Fćrsluflokkur: Spil og leikir
24.9.2016 | 19:31
Korpúlfar - nýr öldungaklúbbur í Grafarvogi
Félag eldri borgara í Grafarvogi - KORPÚLFARr - (stofnađ 1998) heldur uppi mikilli félagsstarfsemi ţar um slóđir. Ađsetur ţess er nú í hinni glćsilega félagsmiđstöđ BORGUM (á vegum Reykjavíkurborgar) viđ Spöngina, ađalverslunarmiđstöđ hverfisins.
Ađ frumkvćđi Hlyns Smára Ţórđarsonar (mágs Ingvars Ásmundssonar, heitins) í samráđi viđ Sesselju Eiríksdóttur, formanns Korpúlfa, var bryddađ ţar upp á taflmennsku í fyrravetur. Nú hafa skákmót eldri borgara veriđ gerđ ađ föstum liđ á dagskrá menningarhússins og verđa haldin alla fimmtudaga í vetur kl. 13 -16. Fyrsta mótiđ fór fram međ pomp og prakt nú í vikunni og var ţátttaka góđ og ađstađa öll til fyrirmyndar. Frítt kaffi og međlćti fyrir lítiđ.
Ekki verđur annađ sagt en ađ eldri skákmenn á höfuđborgarsvćđinu hafa nú nćg tćkifćri til ađ hrista af sér sleniđ og iđka heilabrot sér til heilsubótar. Geta teflt međ ÁSUM í Ásgarđi, Stangarhyl á ţriđjudögum, međ RIDDURUM í Vonarhöfn, Strandbergi, Hafnarfirđi, á miđvikudögum og nú svo međ Korpúlfum í Borgum á fimmtudögum.
Allar ţessa skákskylmingar eldri borgara hefjast kl. 13 umrćdda daga. Mótin ćttu ađ geta hentađ flestum, nema menn vilji sćkja ţau öll, auk ţess ađ tefla í KR á mánudögum og árdegis á laugardögum, ţar sem haldin eru skákmót/ćfingar allan ársins hring sem eru opin jafnt ungum sem öldnum.
24.9.2016 | 08:20
Skákkynning í Gerđubergi í dag
Skákakademía Reykjavíkur stendur fyrir skákkynningu í Gerđubergi í dag klukkan 13:30. Nánar má lesa um dagskránna sem hefst 13:30 hér; http://borgarbokasafn.is/is/content/sk%C3%A1k-fyrir-alla-konur-b%C3%B6rn-og-karla
24.9.2016 | 07:00
Ađalfundur SA í dag
Eins og ţegar hefur veriđ auglýst verđur ađalfundur Skákfélags Akureyrar haldin í Skákheimilinu laugardaginn 24. september kl. 13.00. Ţar verđa stunduđ venjuleg ađalfundarstörf, s.s. skýrsla stjórnar og afgreiđsla reikninga. Einnig skal kjósa stjórn félagsins á ađalfundi.
Félagar eru hvattir til ađ mćta, enda ef fundurinn ćđsta vald í málefnum félagsins og hér mun ţví gefast einstćtt tćkifćri til áhrifa á sterf ţess og hlutverk. Svo má minna á ađ minnst ţurfa 10 félagar ađ sćkja fundinn svo hann verđi löglegur.
Spil og leikir | Breytt 21.9.2016 kl. 12:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2016 | 09:47
Minningarmót um Guđmund Arnlaugsson fer fram á sunnudaginn - enn hćgt ađ skrá sig!
Í tilefni 50 ára afmćlis Menntaskólans viđ Hamrahlíđ verđur verđur haldiđ minningarmót um Guđmund Arnlaugsson, fyrrum rektor skólans, sunnudaginn 25. september. Skákmótiđ er síđasti viđburđur afmćlisdagskrár sem nćr yfir dagana 19.25. september. Heildarverđlaun eru 100.000 kr. og tefldar verđa 11 umferđir međ umhugsunartímanum 4+2. Eldri nemendur úr MH er bođnir sérstaklega velkomnir til leiks en mótiđ er opiđ öllum.
Međal ţegar skráđra keppenda má nefna stórmeistarana: Jóhann Hjartarson, Hjörvar Stein Grétarsson og Ţröst Ţórhallsson.
Mótiđ hefst kl. 14 og teflt verđur í hátíđarsal skólans. Í upphafi móts verđur Friđrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga, međ stuttan fyrirlestur um mikilvćgi Guđmundar fyrir íslenskt skáklíf.
Verđlaun eru sem hér segir:
- 50.000 kr.
- 30.000 kr.
- 20.000 kr.
Verđlaunum verđur skipt eftir Hort-kerfinu.
Ţrenn bókarverđlaun verđa veitt fyrir bestan árangur ungmenna fćdd 2001 og síđar.
Ţátttökugjöld eru kr. 1.000 og er hćgt ađ leggja ţau inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409 fyrir mót eđa greiđa međ reiđufé á skákstađ.
Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga.
Skráning fer fram á www.skak.is (guli kassinn). Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2016 | 09:01
Andri Freyr efstur á Haustmóti SA
Önnur umferđ Haustmóts Skákfélags Akureyrar fór fram í gćrkveldi. Andri Freyr Björgvinsson er efstu rmeđ fullt hús.
Úrslitin í gćrkvöldi urđu sem hér segir:
A-úrslit:
- Andri-Hreinn 1-0
- Elsa-Jón Kristinn 0-1
- Sigurđar 1/2
B-úrslit:
- Haki-Fannar 1-0
- Gabríel-Karl 0-1
- Hilmir-Arnar 0-1
Í ţriđju umferđ sem tefld verđur á sunnudaginn eigast ţessi viđ:
- Jón Kristinn-SigurđurA
- Hreinn-Elsa
- SigurđurA-Andri
- Fannar-Hilmir
- Karl-Haki
- Arnar-Gabríel
Sjá nánar á Chess-results:
22.9.2016 | 22:09
Ţorsteinn nýr formađur Hugins
Ađalfundur skákfélagsins Hugins fór fram í gćrkvöld bćđi í Reykjavík og Reykjadal í gegnum fjarfundarbúnađ. Bar ţar helst til tíđinda ađ Ţorsteinn Ţorsteinsson var kjörinn nýr formađur skákfélagsins Hugins og tekur viđ af Hermanni Ađalsteinssyni sem verđi hefur formađur Hugins sl. ţrjú ár.
Á dagskrá fundarins voru venjuleg ađalfundarstörf. Tillaga um ađ fćkka stjórnarmönnum úr 11 í 7 var samţykkt á fundinum.
Fundargerđ ađalfundar verđur birt innan skamms
Spil og leikir | Breytt 23.9.2016 kl. 07:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2016 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Sögulegur sigur Bandaríkjamanna
Bandaríkjamenn unnu sögulegan sigur í opnum flokki Ólympíuskákmótsins í Bakú á ţriđjudaginn ţegar liđiđ vann öfluga sveit Kanada, 2˝:1˝, en keppinautar ţeirra Úkraínumenn unnu einnig. Bandaríkjamenn og Úkraínumenn hlutu 20 stig en ţeir fyrrnefndu voru mun hćrri á mótsstigum. Rússar urđu svo í ţriđja sćti. Bandaríkjamenn unnu gulliđ síđast í Haifa áriđ 1976 og sigruđu ţrisvar á millistríđsárunum, 1933, 1935 og 1937. Bandaríska skáksambandiđ lagđi mikiđ undir ađ ţessu sinni og sigurinn var sannfćrandi og sanngjarn, en sveitina skipuđu Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura, Wesley So, Samuel Shankland og Ray Robson.
Í kvennaflokki stađfestu Kínverjar yfirburđi sína og unnu Rússa í lokaumferđinni 2˝:1˝. Kínverjar hlutu 20 stig, Pólverjar urđu í 2. sćti og Úkraína í 3. sćti en báđar ţjóđirnar fengu 17 stig.
Segja má ađ íslenska liđiđ í opna flokknum hafi botnađ á kolvitlausum tíma; 60. sćti er ekki viđunandi niđurstađa. Sá sem ţessar línur ritar er ekki mikill ađdáandi ţeirra breytinga sem gerđar voru á keppninni fyrir nokkrum árum; viđ ţađ ađ fćkka umferđum úr ţrettán í ellefu og láta stig gilda er hćttan sú ađ ýmsar niđurstöđur verđi full tilviljanakenndar. En lengi var íslenska sveitin á réttri leiđ og tókst ţađ sem ađ var stefnt ađ komast í góđ fćri fyrir lokasprettinn en ţađ hafđist međ góđum sigri á Slóvakíu í 8. umferđ. En í lokaumferđunum ţremur gekk allt á afturfótunum og sveitin fékk ađeins eitt stig.
Hćgt er ađ tína til ýmislegt sem betur hefđi mátt fara en ţess má geta ađ ţrír af fimm liđsmönnum bćttu ćtlađan árangur sinn og frammistađa Hjörvars Steins Grétarssonar var međ ágćtum. Hvorki honum né Braga Ţorfinnssyni tókst ţó ađ fylgja eftir frábćrri byrjun, en Hjörvar var látinn tefla međ svart í fimm af sex síđustu skákum sínum og jafnteflistilbođ sem hann fékk í betri stöđu í nćstsíđustu umferđ kallađi á ađ liđsstjórinn svarađi međ afdráttarlausum hćtti en hann kaus ađ varpa ábyrgđinni frá sér. Ţá var hinn öflugi stórmeistari Jóhann Hjartarson hvíldur fjórum sinnum, sem var sérkennileg ráđstöfun ţegar litiđ er til ţess ađ á EM í fyrra tefldi hann allar skákirnar fyrir liđ sitt og stóđ sig glimrandi vel. Hannes Hlífar var ekki sannfćrandi á 1. borđi, vann ađeins tvćr skákir í upphafi móts gegn andstćđingum međ í kringum 2.200 Elo-stig. Ingvari Ţór Jóhannessyni liđsstjóra tókst vel upp međ íslenska liđiđ á EM í fyrra en var ekki farsćll í Bakú.
Árangur liđsmanna, vinningar og reiknađur árangur var ţessi:
1. borđ: Hannes Hlífar Stefánsson 5 v. af 10 2.537 Elo
2. borđ: Hjörvar Steinn Grétarsson 7 v. af 10 2.617 Elo.
3. borđ: Jóhann Hjartarson 3˝ v. af 7 2.472 Elo.
4. borđ: Guđmundur Kjartansson 5 v. af 9 2.466 Elo.
1. varamađur: Bragi Ţorfinnsson 5 v. af 8 2.469 Elo.
Íslenska kvennaliđiđ hafnađi um mitt mót, eđa í 78. sćti. Lenka Ptacnikova hefur um langa hríđ veriđ akkeriđ í ţessu liđi og ágćtur grunnur Hallgerđar Helgu Ţorsteinsdóttur skilađi stigahćkkun upp á 35 Elo-stig. Hrund Hauksdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttur bćttu báđar ćtlađan árangur sinn en Guđlaug Ţorsteinsdóttir var langt frá sínu besta. Ţegar allt er tekiđ saman skilađi liđstjóri kvennaliđsins, Björn Ívar Karlsson, góđu verki.
Árangur liđsins var ţessi:
1. borđ: Lenka Ptacnikova 7 v. af 11 2.276 Elo
2. borđ: Guđlaug Ţorsteinsdóttir 2 v. af 9 1.893 Elo.
3. borđ: Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir 6˝ v. af 10 2.135 Elo.
4. borđ: Hrund Hauksdóttir 2˝ v. af 6 1.846 Elo.
1. varamađur: Veronika Steinunn Magnúsdóttir 2˝ v. af 6 1.802 Elo.
Torre hetja Ólympíumótsins
Ólympíuskákmótin eru gríđarlega stór viđburđur ţar sem saman safnast skákmenn úr öllum heimshornum undir kjörorđi FIDE, Gens una sumus Viđ erum ein fjölskylda. Athyglin beinist oft ađ ţeim sem fremst standa á hverjum tíma. Heimsmeistarinn Magnús Carlsen hóf mótiđ á byrjunarleik sem ekki sést oft, 1. e2-e3. Hann fékk 7˝ vinning af 10 mögulegum og var taplaus. Andstćđingur hans í HM-einvíginu í New York í haust, Sergei Karjakin, hlaut sex vinninga úr níu skákum.Filippseyingurinn Eugenio Torre, góđvinur og velgjörđarmađur Bobby Fischer, er 64 ára gamall og tefldi á sínu fyrsta Ólympíumóti í Siegen í V-Ţýskalandi áriđ 1970. Hann var fyrsti stórmeistari Asíu eftir árangur á Ól í Nice í Frakklandi sumariđ 1974. Hann tefldi á sínu 23 Ólympíumóti, sem er ţátttökumet. Frammistađa hans í Bakú verđur lengi í minnum höfđ; hann hlaut flesta vinninga allra keppenda, 10 vinninga af ellefu mögulegum, árangur sem reiknast upp á 2.836 Elo stig.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 15. september 2016
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2016 | 14:40
Ţorvarđur á hvínandi siglingu í Haustmótinu
Blásiđ var í herlúđra í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur í gćr ţegar 2.umferđ Haustmótsins var tefld. Óvćnt úrslit litu dagsins ljós og línur eru farnar ađ skýrast eilítiđ í toppbaráttu flokkanna ţriggja.
A-flokkur
Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2184) lét sér ekki nćgja ađ ganga í stjórn Taflfélags Reykjavíkur á dögunum heldur ćtlar hann sér stóra hluti viđ skákborđiđ líka. Ţessi fyrrum skákmeistari félagsins lagđi gamla brýniđ Björgvin Víglundsson (2185) ađ velli og hefur Ţorvarđur ţví fullt hús einn manna í A-flokki. Ţá tók stigahćsti keppandi mótsins, Ingvar Ţór Jóhannesson (2367), upp gömlu góđu skólabókina og kenndi ungstirninu -yngsta keppanda A-flokks- Vigni Vatnari Stefánssyni (2129) lexíu í athygliverđu endatafli. Vignir Vatnar tefldi ágćtlega međ svörtu framan af skák og lengi vel leit út fyrir ađ hann myndi halda fengnum hlut gegn Ingvari. Vigni varđ hins vegar á ađ leika ónákvćmum leikjum í endataflinu og Ingvar nýtti tćkifćriđ og vann tafliđ međ nćr óađfinnanlegri úrvinnslu. Ţá tefldi Jón Trausti Harđarson (2100) sína fyrstu vinningsskák í mótinu međ ţví ađ stýra hvítu mönnunum til sigurs gegn Birki Karli Sigurđssyni (1900). Grafarvogsbyltan á milli Olivers Arons Jóhannessonar (2255) og Dags Ragnarssonar (2272) endađi međ skiptum hlut og sömu sögu má segja um TR-bardaga Gauta Páls Jónssonar (2082) og Hrafns Loftssonar (2192).
Round 2 on 2016/09/21 at 19.30 | |||||||||
Bo. | No. | Rtg | Name | Result | Name | Rtg | No. | ||
1 | 10 | 2184 | Olafsson Thorvardur | 1 0 | Viglundsson Bjorgvin | 2185 | 6 | ||
2 | 7 | 2100 | Hardarson Jon Trausti | 1 0 | Sigurdsson Birkir Karl | 1900 | 5 | ||
3 | 8 | 2255 | FM | Johannesson Oliver | ˝ ˝ | FM | Ragnarsson Dagur | 2272 | 4 |
4 | 9 | 2367 | FM | Johannesson Ingvar Thor | 1 0 | Stefansson Vignir Vatnar | 2129 | 3 | |
5 | 1 | 2082 | Jonsson Gauti Pall | ˝ ˝ | Loftsson Hrafn | 2192 | 2 |
B-flokkur
Mai brćđur voru ekkert ađ grínast međ skráningu sinni í Haustmótiđ og sitja ţeir nú á toppi B-flokks međ fullt hús ásamt Jóni Ţór Lemery. Ţeir ţremenningar hafa mćtt afspyrnuvel á afreksćfingar í Taflfélaginu og ţví kemur ţessi frammistađa skakţjálfurum félagsins ekki á óvart. Alexander Oliver Mai (1656) gerđi sér lítiđ fyrir og vann stigahćsta keppanda B-flokks, Hörđ Aron Hauksson (1856). Alexander hefur ţví mćtt tveimur af fjórum stigahćstu keppendum B-flokks og unniđ ţá báđa. Aron Ţór Mai (1845) vann Stephan Briem (1569) í lengstu skák umferđarinnar. Jón Ţór Lemery (1591) vann góđan sigur međ svörtu gegn Halldóri Kristjánssyni (1649). Róbert Luu (1672) stóđ fast í fćturna gegn fyrrum landsliđskonunni Sigurlaugu R. Friđţjófsdóttur (1802) og lyktađi skákinni međ jafntefli. Ţá mćttust feđginin Magnús Kristinsson (1833) og Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1777) og sćttust ţau á skiptan hlut, sem ađ öllum líkindum er jákvćtt fyrir heimilisfriđinn.
Round 2 on 2016/09/21 at 19.30 | |||||||||
Bo. | No. | Rtg | Name | Result | Name | Rtg | No. | ||
1 | 10 | 1833 | Kristinsson Magnus | ˝ ˝ | Magnusdottir Veronika Steinun | 1777 | 6 | ||
2 | 7 | 1656 | Mai Alexander Oliver | 1 0 | Hauksson Hordur Aron | 1867 | 5 | ||
3 | 8 | 1672 | Luu Robert | ˝ ˝ | Fridthjofsdottir Sigurl. Regi | 1802 | 4 | ||
4 | 9 | 1569 | Briem Stephan | 0 1 | Mai Aron Thor | 1845 | 3 | ||
5 | 1 | 1649 | Kristjansson Halldor | 0 1 | Lemery Jon Thor | 1591 | 2 |
Opinn flokkur
Til tíđinda dró í toppbaráttu opna flokksins ţegar Ólafur Evert Úlfsson (1464) vann stigahćsta keppanda flokksins, Arnald Bjarnason (1647). Ólafur Evert hefur ţví unniđ báđar sínar skákir líkt og Ingvar Egill Vignisson, Hörđur Jónasson og Hjálmar Sigurvaldason. Ţá sýndi hinn ungi og efnilegi Benedikt Briem (1093) ađ hann ćtlar ekki ađ gefa stóra bróđur í B-flokki ţumlung eftir viđ taflborđiđ ţví hann vann Örn Alexandersson (1217) og hefur Benedikt ţví hlotiđ 1,5 vinning í skákunum sínum tveimur. Skák Héđins Briem og Ţorsteins Magnússonar var frestađ vegna veikinda og verđur hún tefld nćstkomandi mánudagskvöld.
Bo. | No. | Name | Rtg | Pts. | Result | Pts. | Name | Rtg | No. | ||
1 | 6 | Ulfsson Olafur Evert | 1464 | 1 | 1 0 | 1 | Bjarnason Arnaldur | 1647 | 1 | ||
2 | 2 | Briem Hedinn | 1563 | 1 | 1 | Magnusson Thorsteinn | 1415 | 9 | |||
3 | 10 | Davidsson Stefan Orri | 1386 | 1 | 0 1 | 1 | Vignisson Ingvar Egill | 1554 | 3 | ||
4 | 4 | Jonasson Hordur | 1532 | 1 | 1 0 | 1 | Heidarsson Arnar | 1340 | 11 | ||
5 | 24 | Hakonarson Oskar | 0 | 1 | 0 1 | 1 | Sigurvaldason Hjalmar | 1485 | 5 | ||
6 | 20 | Kristbergsson Bjorgvin | 1081 | ˝ | 0 1 | ˝ | Thrastarson Tryggvi K | 1450 | 7 | ||
7 | 18 | Briem Benedikt | 1093 | ˝ | 1 0 | 0 | Alexandersson Orn | 1217 | 13 | ||
8 | 12 | Hakonarson Sverrir | 1338 | 0 | ˝ ˝ | 0 | Karlsson Isak Orri | 1148 | 17 | ||
9 | 14 | Thorisson Benedikt | 1169 | 0 | ˝ ˝ | 0 | Gudmundsson Gunnar Erik | 1082 | 19 | ||
10 | 21 | Omarsson Adam | 1065 | 0 | 0 1 | 0 | Baldursson Atli Mar | 1167 | 15 | ||
11 | 16 | Olafsson Arni | 1156 | 0 | 0 1 | 0 | Moller Tomas | 1028 | 22 | ||
12 | 23 | Haile Batel Goitom | 0 | 0 | 1 | bye |
Nánari upplýsingar um mótiđ má nálgast á chess-results. Ţá hefur Dađi Ómarsson slegiđ inn skákir 2.umferđar međ slíkum ógnarhrađa ađ keppendur ná varla ađ undirrita skorblađiđ áđur en skákir eru komnar á tölvutćkt form. Skákir Haustmótsins (pgn): #1, #2
Nćstkomandi föstudagskvöld verđur 3.umferđ tefld í félagsheimilinu og má reikna međ ćsilegum bardögum og fallegum fléttum. Tafliđ hefst klukkan 19:30.
Myndskreytta frásögn má finna á heimasíđu TR.
22.9.2016 | 11:27
Minningarmót um Guđmund Arnlaugsson fer fram á sunnudaginn
Í tilefni 50 ára afmćlis Menntaskólans viđ Hamrahlíđ verđur verđur haldiđ minningarmót um Guđmund Arnlaugsson, fyrrum rektor skólans, sunnudaginn 25. september. Skákmótiđ er síđasti viđburđur afmćlisdagskrár sem nćr yfir dagana 19.25. september. Heildarverđlaun eru 100.000 kr. og tefldar verđa 11 umferđir međ umhugsunartímanum 4+2. Eldri nemendur úr MH er bođnir sérstaklega velkomnir til leiks.
Međal ţegar skráđra keppenda má nefna stórmeistarana: Jóhann Hjartarson, Hjörvar Stein Grétarsson og Ţröst Ţórhallsson.
Mótiđ hefst kl. 14 og teflt verđur í hátíđarsal skólans. Í upphafi móts verđur Friđrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga, međ stuttan fyrirlestur um mikilvćgi Guđmundar fyrir íslenskt skáklíf.
Verđlaun eru sem hér segir:
- 50.000 kr.
- 30.000 kr.
- 20.000 kr.
Verđlaunum verđur skipt eftir Hort-kerfinu.
Ţrenn bókarverđlaun verđa veitt fyrir bestan árangur ungmenna fćdd 2001 og síđar.
Ţátttökugjöld eru kr. 1.000 og er hćgt ađ leggja ţau inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409 fyrir mót eđa greiđa međ reiđufé á skákstađ.
Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga.
Skráning fer fram á www.skak.is (guli kassinn). Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Davíđ Kjartansson (2356) sigrađi á Meistaramóti Hugins sem lauk síđastliđiđ mánudagskvöldi. Davíđ hlaut 6˝ vinning í 7 skákum og var ótvírćtt bestur á mótinu og vel ađ sigrinum kominn. Taflmennska hans var heilt yfir heildstćđ og mistök fá ţannig ađ hann gaf sjaldan höggstađ á sér. Jafnir í öđru og ţriđja sćti voru Sćvar Bjarnason (2093) og Jón Trausti Harđarson (2100) međ 5v og áttu ţeir báđir ágćtt mót og tóku góđa spretti inn á milli. Í lokaumferđinni lagđi Davíđ Björgvin Víglundsson ađ velli en Björgvin ţurfti á sigri ađ halda til ađ ná Davíđ ađ vinningum. Sćvar vann Mikael Jóhann Karlsson sem eins og Björgvin gat náđ Davíđ ef lokaumferđin hefđi teflst honum í hag. Jón Trausti vann Dawid Kolka í lokaumferđinni sem var í baráttu um titilinn skákmeistari Hugins, ţar sem enginn af efstu mönnum er félagsmađur í Huginn. Ţađ notfćrđu sér Óskar Víkingur Davíđsson og Heimir Páll Ragnarsson og náđu Dawid ađ vinningum međ góđum sigrum í lokaumferđinni. Ţađ verđa ţví ţessir ţrír ungu Huginsmenn sem ţurfa ađ heyja aukakeppni um titillinn. Sú keppni fer fram nćstkomandi laugardag 24. september og hefst kl. 15.30. Fyrst verđa tefldar atskákir međ umhugsunartímanum 15.mínútur + 5 sekúndur á leik. Ef ţađ dugar ekki til verđur hrađskák međ tímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik og ef ţađ nćgir ekki verđur bráđabani.
Lokastöđu mótsins má nálgast á Chess-Results:
Hverjir hljóta aukaverđlaun er ekki hćgt ađ birta fyrr en ađ lokinni keppninni um skákmeistara Hugins ţar sem hún hefur nokkur áhrif á skiptingu ţeirra.
Búiđ er ađ slá inn skákir 7. umferđar og hćgt ađ skođa ţćr á heimasíđu Hugins. Ef menn taka eftir villum í innslćtti skáka vćri gott ađ frétta af ţví. Allar skrárnar međ skákum meistaramótsins verđa sameinađar og birtar međ frétt um aukaverđlaunin sem kemur um nćstu helgi.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 18
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 111
- Frá upphafi: 8778409
Annađ
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 93
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar