Fćrsluflokkur: Spil og leikir
28.3.2018 | 10:50
Caruana mćtir Carlsen í heimsmeistaraeinvígi
Lokaumferđin á áskorendamótinu var afar spennandi. Svo fór ađ Caruana (2784) vann Grischuk (2767) og vann ţví mótiđ örugglega - hafđi vinningi meira en nćstu menn Mamedyarov (2809) og Karjakin (2763). Ţađ verđur ţví Caruana sem mćtir Magnúsi Carlseni í heimsmeistaraeinvígi í nóvember nćstkomandi í London.
Lokastađan:
Sjá nánar á Chess.com.
27.3.2018 | 12:49
Lokamót Bikarsyrpu TR fer fram helgina 6.-8. apríl
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stađ fjórđa áriđ í röđ. Líkt og síđastliđinn vetur verđa mót syrpunnar fimm talsins og verđa tefldar sjö umferđir í hverju móti. Mótin fara fram í Skákhöll TR ađ Faxafeni 12.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák ţá er gott ađ byrja sem fyrst ađ tefla í kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim börnum sem vilja tefla á alvöru mótum einkum stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk ţess sem mörgum börnum óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví. Ţessi mótaröđ TR er ekki síđur sniđin ađ ţörfum ţeirra barna sem dreymir um ađ nćla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fćdd áriđ 2002 eđa síđar) sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar. Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta ţess betur ađ tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á hefđbundnum kappskákmótum fullorđinna. Mótin uppfylla öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og eru reiknuđ til alţjóđlegra skákstiga.
Fimmta og síđasta mót Bikarsyrpunnar ţennan veturinn hefst föstudaginn 6. apríl og stendur til sunnudagsins 8. apríl. Tefldar eru 7 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo mikilvćgt sé ađ börnin vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.
Dagskrá:
1. umferđ: 6. apríl kl. 17.30 (fös)
2. umferđ: 7. apríl kl. 10.00 (lau)
3. umferđ: 7. apríl kl. 13.00 (lau)
4. umferđ: 7. apríl kl. 16.00 (lau)
5. umferđ: 8. apríl kl. 10.00 (sun)
6. umferđ: 8. apríl kl. 13.00 (sun)
7. umferđ: 8. apríl kl. 16.00 (sun)
Verđlaunaafhending fer fram strax ađ lokinni 7. umferđ.
Tvćr yfirsetur (bye) eru leyfđar í umferđum 1-5 og fćst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna ţarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferđarinnar á undan. Merkja skal viđ yfirsetu í 1. umferđ á neđangreindu skráningarformi.
Sjálfkrafa tap dćmist á keppanda sem mćtir á skákstađ meira en 15 mínútum eftir ađ viđkomandi umferđ hefst.
Ţátttökugjald í mótiđ er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiđa ekki ţátttökugjald.
Sigurvegari mótsins hlýtur ađ launum bikar og ţá hlýtur einnig efsta stúlkan í hverju móti bikar. Verđlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sćti og 3. sćti. Sérstök verđlaun verđa veitt nćsta vor fyrir besta samanlagđan árangur, ţar sem mest fjögur mót gilda; taflsett, skákklukka, 5.000kr bókainneign ásamt veglegum farandbikar. Ţá verđa veitt sérstök verđlaun fyrir besta samanlagđan árangur, ţar sem mest fjögur mót gilda, fyrir börn sem eru félagar í TR, en ţađ eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sćti gefur 5 einkatíma, 2. sćti gefur 3 einkatíma og 3. sćti gefur 2 einkatíma.
Skráning fer fram í gegnum skráningarform hér ađ neđan. Hlökkum til ađ sjá ykkur!
Skráningarform
Skákstjórn: Ţórir Benediktsson, s. 867 3109, thorirbe76@gmail.com
27.3.2018 | 10:00
Caruana efstur - Mamedyarov og Karjakin fylgja eins og skugginn
Gríđarlega spennan er fyrir lokaumferđ áskorendamótsins í skák. Fjórir keppendur af átta hafa tölfrćđilega möguleika ađ vinna mótiđ. Caruana (2784) og Mamedyarov (2809) unnu sínar skákir í nćstsíđstu umferđ í gćr. Sá fyrrnefndi vann Aronian (2794) í gríđarlega spennandi og flókinni skák. Mamedyarov snéri á Grischuk (2767) en öđrum skákum lauk međ jafntefli.
Caruana er efstur međ 8 vinninga en Mamedyarov og Karjakin (2763) hafa 7,5 vinning. Ding Liren (2769) hefur 7 vinninga.
Stađan:
Skođum reglur mótsins
If the top two or more players score the same points, the tie will be decided by the following criteria, in order of priority:
a) The results of the games between the players involved in the tie.
b) The total number of wins in the tournament of every player involved in the tie.
c) Sonneborn-Berger System.
If there is no clear winner with the above three criteria, there will be a playoff.
Stađan er flókin. Caruana hefur hálfan vinning á Mamedyarov og Karjakin. Jafntefli setur hann hins vegar í ţá stöđu ađ ef Aserinn og Rússinn vinna fara ţeir báđir uppfyrir hann vegna innbyrđisúrslita. Sigurlíkur Ding Liren eru afar takmarkađur. Hann ţarf ađ vinna og treysta á hagstćđ úrslit í öđrum skákum.
Umferđin hefst kl. 13 í dag. Ţá mćtast: Grischuk-Caruana, Aronian-So, Karjakin-Ding, Kramnik-Mamedyarov.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2018 | 09:00
Líf og fjör á Páskaeggjamóti TR
Hann var fjörugur í fyrradagurinn, sunnudagurinn í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur ţví strax ađ loknum ćfingatíma framhaldshópsins hjá Birni Ívari var flautađ til leiks í Páskaeggjamóti félagsins ţetta áriđ. Tćplega 30 börn úr 1.-3. bekk báru páskaandann í skauti sér er ţau gengu hvert af öđru inn á keppnisvöllinn međ blik eftirvćntingar í augum yfir ţví ađ hefja leik á hinum töfrandi 64-reita borđum. Ein og ein augu sáust jafnvel gjóast í átt ađ ljúffengum súkkulađieggjum sem stóđu eins og hnarreistar styttur á listfengu skrautborđi.
Rétt tćplega rúmlega á slaginu 12.30 var blásiđ í herlúđra, parađ var í fyrstu umferđ og keppendur skutust eins og eldingar í sćti sín, líkt og ţeir hefđu aldrei gert neitt annađ áđur. Eftir góđa yfirferđ ćđsta stjórnanda mótsins, Kjartans Maack, um helstu reglur var sett í gírinn og göldróttir taflmenn hófu för sína um hina ferningslaga vígvelli undir öruggri stjórn lipra fingra barnanna. Úr varđ spennandi og drengileg barátta ţar sem kóngar voru mátađir og menn felldir ţvers og kruss en ţegar hinstu orrustunni lauk í sjöttu og síđustu umferđ var ţađ Einar Dagur Brynjarsson sem tróndi einn á toppnum međ fullt hús vinninga. Egill Breki Pálsson kom nćstur međ 5 vinninga og ţá fylgdu Matthías Björgvin Kjartansson og Guđrún Fanney Briem, bćđi međ 4,5 vinning ţar sem Matthías var hćrri á mótsstigum.
Verđlaun voru veitt fyrir ţrjú efstu sćtin ásamt stúlkna- og árgangaverđlaunum og ađ auki voru tveir heppnir dregnir út í happdrćtti.
1. sćti Einar Dagur Brynjarsson, 2. sćti Egill Breki Pálsson, 3. sćti Matthías Björgvin Kjartansson, efst stúlkna Guđrún Fanney Briem, 2009 Markús Orri Jóhannsson, 2010 Gunnar Ađalsteinn Jóhannsson, 2011 Jón Björn Margrétarson.
Víkur ţá sögunni ađ stćrri páskaungunum, alltsvo ţeim hinum sömu og dvelja viđ nám í 4.-7. bekk, ţví ţegar klukkan nálgađist 15 (páska)hanagöl tóku ţeir ađ streyma inn í salarkynnin verulega hungrađir í taflmennsku og jafnvel enn frekar í listilega sköpuđ egg unnin úr ljúffengu súkkulađi. Einhver hafđi ţađ á orđi ađ ţarna vćru fallbyssurnar mćttar til leiks! Öllu má nafn gefa en hvađ sem ţví líđur voru margir af öflugustu skákkrökkum landsins í ţessum aldurshópi komnir til ađ freista gćfunnar viđ skákborđin og nćla sér í eins og eitt súkkulađistykki sem lítur út alveg eins og egg.
Ţegar upp var stađiđ hafđi Benedikt Briem sigur eftir miklar baráttuskákir utan ţeirrar síđustu ţegar súkkulađiţörfin var farin ađ segja vel til sín en ţá sömdu hann og félagi hans, norđan Kópavogslćks, Árni Ólafsson svokallađ páskajafntefli. Ţar međ var Benedikt einn efstur međ 5,5 vinning en nćstur honum međ 5 vinninga kom liđsfélagi hans og frćndi, Örn Alexandersson. Jöfn međ 4,5 vinning voru síđan Gunnar Erik Guđmundsson, Árni Ólafsson og Batel Goitom Haile ţar sem sá fyrstnefndi var hćstur á mótsstigum.
1. sćti Benedikt Briem, 2. sćti Örn Alexandersson, 3. sćti Gunnar Erik Guđmundsson, efst stúlkna Batel Goitom Haile, 2005 Árni Ólafsson, 2006 Benedikt Ţórisson, 2007 Rayan Sharifa, 2008 Katrín María Jónsdóttir.
Sannarlega vasklega framganga hjá börnunum á Páskaeggjamóti TR ţetta áriđ og ljóst ađ efniviđurinn er mikill. Viđ ţökkum fyrir okkur og sjáumst ađ ári. Gleđilega páska!
Sjá nánar á vefsíđu TR
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2018 | 07:12
Sćbjörn sigrađi á Meistaramóti Ása
Sćbjörn G. Larsen sigrađi á meistaramóti Ása í síđustu viku og fékk 8 vinninga af 10 mögulegum. Í 2.-3. sćti komu svo kempurnar Magnús Sólmundarson og Friđgeir K. Hólm međ 7.5 vinning. Ţađ voru svo eldhugarnir Bragi Halldórsson og Ögmundur Kristinsson sem skipuđu 4. og 5. Sćti, en sá síđarnefndi hafđi unniđ mótiđ tvö síđustu árin.
Eins og sjá má á međf. mótstöflu var afar góđ ţátttaka og met mćting. Alls 35 skákmenn mćttir til leiks og eirđu sumir hverjir fáu. Unglingurinn Einar S. Einarsson vann flokk 80 ára og eldri međ glćsibrag. Friđgeir sigrađi sinn aldursflokk 60-69 ára og Magnús 70-79 ára ađ sigurvegaranum slepptum.
Ţađ er eins međ skákina og ađrar íţróttir ađ ekki ganga allir frá borđi sáttir međ sinn hlut en ţađ kemur dagur eftir ţennan dag, ţví á morgun etja Ćsir kappi á ný eins og ávallt á ţriđjudögum og munu tefla til ţrautar.
26.3.2018 | 10:00
Hrađkvöld hjá Hugin í kvöld
Hrađkvöld Hugins verđur mánudaginn 26. mars nk. og hefst tafliđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7-10 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mínútur + 3 sekúndur eđa 5 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni.
Sigurvegarinn á hrađkvöldinu fćr í verđlaun máltíđ fyrir einn á Saffran eđa pizzu frá Dominos Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fćr sama val. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.
Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Spil og leikir | Breytt 24.3.2018 kl. 07:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2018 | 07:00
Páskaeggjamót Hugins fer fram í dag
Páskaeggjamót Hugins verđur haldiđ í 26. sinn mánudaginn 26. mars 2018, og hefst tafliđ kl. 17, ţ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsćfingar. Páskaeggjamótiđ kemur í stađ mánudagsćfingar. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik. Mótiđ er opiđ öllum krökkum á grunnskólaaldri. Skráningarform verđur sett upp á skak.is og eru vćntanlegir ţátttakendur beđnir um ađ skrá sig til ađ auđvelda undirbúning mótsins. Mótiđ verđur reiknđ til alţjóđlegra hrađskákstiga.
Allir ţátttakendur keppa í einum flokki en verđlaun verđa veitt í tveimur ađskildum flokkum. Páskaegg verđa í verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í eldri flokki (fćddir 2002 2004) og yngri flokki (fćddir 2005 og síđar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fćr einnig páskaegg sem og efstu ţrjár stúlkurnar á mótinu. Ađ auki verđa tvö páskaegg dregin út. Enginn fćr ţó fleiri en eitt páskaegg. Lítiđ páskaegg verđur svo fyrir ţá sem ekki vinna til verđlauna.
Páskaeggjamótiđ verđur haldiđ í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Lyfjaval í Mjódd en salur félagsins er á ţriđju hćđ hússins.
Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2018 | 06:57
Skrifstofa SÍ lokuđ fram til 9. apríl
Skrifstofa Skáksambands Íslands verđur lokuđ fram til 9. apríl nk. Hćgt er ađ senda tölvupóst í netfangiđ gunnar@skaksamband.is ef erindiđ ţolir ekki biđ.
25.3.2018 | 13:55
Karjakin vann Caruana - mikil spenna fyrir lokaátökin
Ţađ urđu miklar sviptingar í 12. umferđ áskorendamótsins í skák í gćr. Tveir efstu menn mótsins töpuđu báđir. Karjakin (2763) vann Caruana (2784). Á sama tíma tapađi Mamedyarov (2809) sem var nćst efstur fyrir Ding Liren (2769). Stađan fyrir tvćr síđustu umferđirnar er sú ađ Karjakin og Caruana eru efstir međ 7 vinninga. Mamedyarov, Ding Liren og Grischk (2767) hafa ađeins hálfum vinningi minna. Fimm keppendur af átta hafa ţví möguleika á sigri á mótinu.
Stađan:
Frídagur er í dag. Á morgun mánudag mćtast: Mamedyarov-Grischuk, Ding-Kramnik, So-Karjakin, Caruana-Aronian. Í lokumferđinni á ţrijudaginn mćtast svo: Grischuk-Caruana, Aronian-So, Karjakin-Ding, Kramnik-Mamedyarov.
Hvađ gerist ef 2 eđa fleiri keppendur eru jafnir og efstir? Reglur mótsins segja:
If the top two or more players score the same points, the tie will be decided by the following criteria, in order of priority:
a) The results of the games between the players involved in the tie.
If they are still tied:
b) The total number of wins in the tournament of every player involved in the tie.
If they are still tied:
c) Sonneborn - Berger System.
Ef jafnt verđur teflt til ţrautar međ styttri umhugsunartíma.
Karjakin stendur- betur ađ vígi en Caruana ţar sem hann hefur 1,5-0,5 á móti honum.
Sjá nánar á Chess.com.
Myndir: Maria Emelianova (Chess.com)
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chessbrah)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2018 | 07:00
Páskaeggjamót Taflfélags Reykjavíkur haldiđ í dag
Páskaeggjamót Taflfélags Reykjavíkur verđur haldiđ sunnudaginn 25.mars. Mótiđ er opiđ öllum grunnskólabörnum í 1.-7.bekk. Sex umferđir verđa tefldar međ 4 mínútna umhugsunartíma og bćtast 2 sekúndur viđ tímann eftir hvern leik (4+2). Mótiđ verđur tvískipt ađ ţessu sinni og er dagskrá mótsins sem hér segir:
- 1.-3.bekkur kl.12:30 14:30.
- 4.-7.bekkur kl. 15:00 17:00.
Verđlaunapeningur og páskaegg verđa veitt fyrir ţrjú efstu sćtin í hvorum flokki. Ţá verđur jafnframt páskaegg í verđlaun fyrir efstu stúlkuna í hvorum flokki sem og fyrir efsta sćti í hverjum árgangi (2005-2011). Ađ móti loknu í hvorum flokki verđa tveir ţátttakendur dregnir út í happdrćtti og hljóta ţeir ađ launum páskaegg. Mikilvćgt er ađ hafa í huga ađ ţátttakendur geta mest fengiđ eitt páskaegg hver í mótinu, ţó er happdrćttiđ undanskiliđ ţeirri reglu.
Skráning fer fram í gegnum skráningarformiđ hér ađ neđan, en einnig má nálgast ţađ í gula kassanum á skak.is.
Spil og leikir | Breytt 18.3.2018 kl. 18:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 21
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 171
- Frá upphafi: 8775602
Annađ
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 129
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar