Fćrsluflokkur: Spil og leikir
19.3.2017 | 08:48
Ný íslensk skákstig
Ný íslensk skákstig eru komin út og miđast ţau viđ 1. mars sl. Héđinn Steingrímsson er stigahćstur allra. Björgvin Ívarsson Schram er stigahćstur nýliđa og Árni Ólafsson hćkkađi mest allra frá desember-listanum.
Topp 20
Héđinn Steingrímsson (2566) er stigahćstur allra. Í nćstu sćtum eru Hannes Hlífar Stefánsson (2562) og Margeir Pétursson (2561).
No. | Name | RtgC | Diff | Tit | Games | Club |
1 | Héđinn Steingrímsson | 2566 | 0 | GM | 425 | Fjölnir |
2 | Hannes H Stefánsson | 2562 | 0 | GM | 1194 | Huginn |
3 | Margeir Pétursson | 2561 | 0 | GM | 691 | TR |
4 | Jóhann Hjartarson | 2561 | -13 | GM | 818 | TB |
5 | Helgi Ólafsson | 2543 | 0 | GM | 873 | Huginn |
6 | Hjörvar Grétarsson | 2542 | 0 | GM | 661 | Huginn |
7 | Henrik Danielsen | 2490 | 0 | GM | 310 | SR |
8 | Helgi Áss Grétarsson | 2472 | -4 | GM | 612 | Huginn |
9 | Jón Loftur Árnason | 2470 | -16 | GM | 668 | TB |
10 | Jón Viktor Gunnarsson | 2444 | 5 | IM | 1166 | TR |
11 | Stefán Kristjánsson | 2443 | 0 | GM | 906 | TR |
12 | Guđmundur Kjartansson | 2439 | 10 | IM | 867 | TR |
13 | Bragi Ţorfinnsson | 2438 | 0 | IM | 1076 | TR |
14 | Karl Ţorsteins | 2429 | 0 | IM | 615 | TR |
15 | Friđrik Ólafsson | 2426 | -15 | GM | 182 | TR |
16 | Ţröstur Ţórhallsson | 2414 | 3 | GM | 1335 | Huginn |
17 | Arnar Gunnarsson | 2404 | 0 | IM | 850 | TR |
18 | Björn Ţorfinnsson | 2401 | -5 | IM | 1195 | TR |
19 | Dagur Arngrímsson | 2399 | 0 | IM | 670 | TB |
20 | Magnús Örn Úlfarsson | 2356 | 4 | FM | 594 | Huginn |
Nýliđar
Björgvin Ívarsson (1544) er stigahćstur nýliđa. Hjörtur Steinbergsson (1535) kemur annar og Smári Arnarson (1493) er nćstur og Ţórarinn Hjaltason (1262) ţriđji.
No | Name | RtgC | Diff | Games | Club |
1 | Björgvin Ívarsson Schram | 1544 | 1544 | 9 | KR |
2 | Hjortur Steinbergsson | 1535 | 1535 | 6 | |
3 | Smári Arnarson | 1493 | 1493 | 18 | TR |
4 | Ţórarinn Hjaltason | 1262 | 1262 | 10 | KR |
5 | Sveinn Sigurđarson | 1197 | 1197 | 13 | |
6 | Ármann Pétursson | 1184 | 1184 | 15 | TR |
7 | Heiđar Ólafsson | 1184 | 1184 | 6 | |
8 | Elsa Kristín Arnaldardóttir | 1000 | 1000 | 8 | TR |
9 | Josef Omarsson | 1000 | 1000 | 16 | Huginn |
Árn Ólafsson hćkkar mest frá desember-listanum. Í nćstu sćtum er ţeir brćđur Benedikt (156) og Stephan Briem (149).
No. | Name | RtgC | Diff | Tit | Games | Club |
1 | Árni Ólafsson | 1238 | 238 | 84 | TR | |
2 | Benedikt Briem | 1423 | 156 | 67 | Breiđablik | |
3 | Stephan Briem | 1748 | 149 | 99 | Breiđablik | |
4 | Örn Alexandersson | 1244 | 145 | 50 | Breiđablik | |
5 | Gudmundur Peng Sveinsson | 1311 | 140 | 44 | Víkingaklúbburinn | |
6 | Freyja Birkisdóttir | 1277 | 118 | 115 | TR | |
7 | Héđinn Sveinn Baldursson Briem | 1606 | 81 | 88 | Vinaskákfélagiđ | |
8 | Jóhann Bernhard Jóhannsson | 1319 | 72 | 25 | Vinaskákfélagiđ | |
9 | Atli Mar Baldursson | 1235 | 71 | 87 | Breiđablik | |
10 | Dawid Kolka | 1870 | 57 | 344 | Huginn | |
11 | Ólafur Evert Úlfsson | 1722 | 54 | 100 | Hrókar alls fagnađar | |
12 | Alex Cambray Orrason | 1571 | 50 | 75 | Hrókar alls fagnađar | |
13 | Ingvar Egill Vignisson | 1621 | 47 | 175 | Vinaskákfélagiđ | |
14 | Sćmundur Árnason | 1155 | 46 | 40 | Fjölnir | |
15 | Dagur Ragnarsson | 2266 | 43 | FM | 440 | Fjölnir |
16 | Dađi Ómarsson | 2249 | 41 | 358 | TR | |
17 | Björn Hólm Birkisson | 1908 | 38 | 264 | TR | |
18 | Hilmar Ţorsteinsson | 1819 | 35 | 259 | Huginn | |
19 | Oliver Aron Jóhannesson | 2216 | 33 | FM | 466 | Fjölnir |
20 | Magnús Hjaltason | 1100 | 33 | 51 | Fjölnir |
Reiknuđ skákmót
- Bikarsyrpa TR III og Bikarsyrpa stúlkna
- Bikarsrypa TR IV og Bikarsyrpa stúlkna
- Janúarmót Hugins (Húsavík, Vöglum og úrslitakeppni)
- Nóa Síríus mótiđ (a- og b-flokkur)
- Skákţing Akureyrar (ađalmót og úrslitakeppni)
- Skákţing Reykjavíkur
- Skákţing Vestmannaeyja
- TM-mót Skákfélags Reykjanesbćjar
- U-2000 mót TR
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2017 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Huginn Íslandsmeistari ţriđja áriđ í röđ
A-sveit Hugins er Íslandsmeistari skákfélaga ţriđja áriđ í röđ eftir ćsispennandi lokahrinu Íslandsmóts taflfélaga sem fram fór í Rimaskóla um síđustu helgi. Sem fyrr áttu Huginsmenn í harđri keppni um titilinn viđ A-sveit Taflfélags Reykjavíkur. Lokumferđirnar einkenndust af óvćntum úrslitum en ţegar Íslandsmótiđ hófst aftur ađ kvöldi fimmtudags í síđustu viku hafđi Huginn 2˝ vinnings forskot á TR-inga, sem minnkuđu strax muninn í einn vinning. Á föstudagskvöldiđ töpuđu TR-ingar hins vegar ţrem vinningum gegn hinni félagslega sterku sveit Skákfélags Akureyrar. Arnar Ţorsteinsson, Jón Kristinn Ţorgeirsson og Gylfi Ţórhallsson unnu Stefán Kristjánsson, Arnar Gunnarsson og Dađa Ómarsson. Viđ ţessi úrslit og 6:2 sigur Hugins yfir Víkingasveitinni juku Huginsmenn forystuna og formsatriđi virtist ađ ljúka mótinu. En ađ morgni laugardags sáu dagsins ljós óvćntustu úrslit keppninnar er skákdeild KR hélt jöfnu viđ Hugin, 4:4 en TR-ingar unnu ţá Bolungarvík 5˝:2˝ og munađi ţví ađeins hálfum vinningi á liđunum fyrir lokaumferđina ţegar TR mćtti Fjölni og Huginn tefldi viđ b-sveit TR.
Gamlir nemendur Rimaskóla, Dagur Ragnarsson og Oliver Aron Jóhannesson, unnu Aman Hamelton og Björn Ţorfinnsson og ţó ađ TR hafi unniđ samanlagt 5˝:2˝ dugđi ţađ ekki ţar sem Huginn fékk sex vinninga gegn b-sveit TR. Lokaniđurstađan í 1. deild varđ ţessi:
1. Huginn 52 v. (af 72) 2. TR 51 v. 3. Fjölnir 38˝ v. 4. Víkingaklúbburinn 36 v. 5. Taflfélag Bolungavíkur 34˝ v. 6. Huginn b-sveit 32˝ v. 7. Skákfélag Akureyrar 31˝ v. 8. KR 29 v. 9. Skákfélag Reykjanesbćjar 28˝ v. 10. TR b-sveit 26˝ v.
Í 2. deild sigrađi Taflfélag Garđabćjar, í 3. deild sigruđu Hrókar alls fagnađar og í 4. deild vann b-sveit Víkingaklúbbsins.
Bragi náđi áfanga ađ stórmeistaratitli
Eftir ađ fram kom tillaga um ađ fjölga umferđum í efstu deild Íslandsmóts skákfélaga í níu opnuđust möguleikar til sóknar ađ alţjóđlegum titlum. Tveir áfangar sáu dagsins ljós ţegar Bragi Ţorfinnsson og Davíđ Kjartansson slíđruđu sverđin í síđustu umferđ viđureignar TR og Fjölnis. Bragi hlaut 7 vinninga af níu en árangur hans reiknast upp 2.623 Elo-stig. Davíđ náđi árangri upp á 2.451 Elo-stig.
Íslandsmót skákfélaga er umfram allt skemmtileg keppni ţar sem dregin eru á flot skemmtileg liđ og kunnir kappar. Kristján Guđmundsson, kennari viđ HR og Kvennaskólann í Reykjavík, var vinsćll leiđbeinandi ungra skákmanna hjá TR og farsćll liđsstjóri íslenska ólympíuliđsins á árunum 1984-´92. Í eftirfarandi skák tíndi hann upp leikvinningana og rak kóng andstćđingsins á flótta út á mitt borđ:
Kristján Guđmundsson (Huginn) Stefán Sigurjónsson (Reykjanesbćr)
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d3 d5 3. Rd2 dxe4 4. dxe4 e5 5. Rgf3 Bd6 6. Rc4 Bb4+?!
Upphaf ađ ferđalagi biskups en betra var 6. ... De7 eđa 6. .. Rc6.
7. c3 Dxd1+ 8. Kxd1 Bc5 9. Rcxe5 Bxf2 10. Bc4 Be6 11. Bxe6 fxe6 12. Hf1 Bb6 13. Rg5!
Svartur hefur tapađ miklum tíma og getur ekki variđ e6-peđiđ.
13. ... Rf6 14. Rxe6 Rxe4 15. Rxg7+ Ke7 16. Hf7+ Kd6 17. Bf4 Kc5 18. b4+ Kd5 19. Kc2 Rxc3!?
Stefán er útsjónarsamur og hyggst nú svara 20. Kxc3 međ 20. ... Bd4+.
20. Hf5! Hg8 2. Rd3+ Kc4 22. Rb2+ Kd4 23. Re6+
- og svartur gafst upp.
------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 11. mars 2017
Spil og leikir | Breytt 15.3.2017 kl. 10:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2017 | 13:46
Landsliđsflokkur Íslandsmótsins í skák
Keppendalisti Íslandsmótsins í skák sem fram fer í Hafnarfirđi, 9.-20. maí liggur nú fyrir ađ undanskyldum ţeim tveim ávinna sér keppnisrétt úr áskorendaflokki sem fram fer 1.-9. apríl nk. Ađ ţessu sinni taka 10 keppendur ţátt í landsliđsflokki. Keppendalistinn er sem hér segir:
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (2570)
- GM Héđinn Steingrímsson (2564)
- IM Guđmundur Kjartansson (2471)
- GM Ţröstur Ţórhallsson (2419)
- IM Björn Ţorfinnsson (2410)
- FM Vignir Vatnar Stefánsson (2353)
- FM Sigurbjörn Björnsson (2271)
- Bárđur Örn Birkisson (2142)
- Áskorendaflokkur I
- Áskornedaflokkur II
Međalstigin eins og er eru 2400 skákstig.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2017 | 10:35
Róbert skákmeistari Vinaskákfélagsins
Í gćrkvöldi lauk Meistaramóti Vinaskákfélagsins í atskák. Tefldar voru 15 mín. + 10 sek. skákir og voru tefldar 8 umferđir. Í fyrsta sćti var Róbert Lagerman međ 7 vinninga. Í öđru sćti var Vigfús Vigfússon međ 5,5 vinninga og í ţriđja sćti var Magnús Magnússon međ sama vinningsfjölda, en lćgri á stigum.
Einnig var dregin út innrömmuđ teikning af Mikael Tal, heimsmeistara í skák 1960-61, og fékk Ingi Tandri Traustason myndina. Ég vil ađ lokum ţakka öllum sem gerđu ţetta mót ađ veruleika og verđur ţetta mót ađ árlegum viđburđi hjá Vinaskákfélaginu.
Nćsta verkefni Vinaskákfélagsins er Páskmót félagsins sem fram fer 3. apríl nk.
Hörđur Jónasson, varaforseti Vinaskákfélagsins
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2017 | 07:00
Fimmta mót Bikarsyrpunnar hefst í dag
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stađ ţriđja áriđ í röđ. Mót syrpunnar í vetur verđa fimm talsins og hefur umferđum hvers móts veriđ fjölgađ í sjö.
Fimmta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 17. mars og stendur til sunnudagsins 19. mars. Tefldar eru 7 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo mikilvćgt sé ađ börnin vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.
Teflt verđur í einum flokki og hvetjum viđ stelpur jafnt sem stráka til ađ koma og spreyta sig í lokamóti Bikarsyrpunnar ţennan veturinn.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák ţá er gott ađ byrja sem fyrst ađ tefla í kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim börnum sem vilja tefla á alvöru mótum einkum stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk ţess sem mörgum börnum óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví. Ţessi mótaröđ TR er ekki síđur sniđin ađ ţörfum ţeirra barna sem dreymir um ađ nćla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fćdd áriđ 2001 eđa síđar) sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar. Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta ţess betur ađ tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á hefđbundnum kappskákmótum fullorđinna. Mótin uppfylla öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og eru reiknuđ til alţjóđlegra skákstiga.
Dagskrá Bikarsyrpu V:
1. umferđ: 17. mars kl. 17.30 (fös)
2. umferđ: 18. mars kl. 10.00 (lau)
3. umferđ: 18. mars kl. 13.00 (lau)
4. umferđ: 18. mars kl. 16.00 (lau)
5. umferđ: 19. mars kl. 10.00 (sun)
6. umferđ: 19. mars kl. 13.00 (sun)
7. umferđ: 19. mars kl. 16.00 (sun)
Verđlaunaafhending fer fram strax ađ lokinni síđustu umferđ, bćđi fyrir lokamótiđ og samanlagđan árangur í mótunum fimm í vetur.
Tvćr yfirsetur (bye) eru leyfđar í umferđum 1-5 og fćst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna ţarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferđarinnar á undan.
Ţátttökugjald í mótiđ er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiđa ekki ţátttökugjald.
Sigurvegari mótsins hlýtur ađ launum bikar. Verđlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sćti og 3. sćti. Sérstök verđlaun verđa veitt nćsta vor fyrir samanlagđan árangur í mótunum fimm, ţar á međal er veglegur farandbikar. Ţá verđa veitt sérstök verđlaun fyrir samanlagđan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en ţađ eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sćti gefur 5 einkatíma, 2. sćti gefur 3 einkatíma og 3. sćti gefur 2 einkatíma.
Vinsamlegast skráiđ ţátttakendur sem fyrst, ţađ hjálpar til viđ undirbúning mótsins. Hlökkum til ađ sjá ykkur!
Skákstjórn: Ţórir Benediktsson (867 3109).
Skráningarform
Spil og leikir | Breytt 9.3.2017 kl. 10:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2017 | 07:00
Íslandsmót grunnskólasveita fer fram 25. og 26. mars
Íslandsmót grunnskóla 8.10. bekkur 2017 fer fram í Rimaskóla dagana 25. og 26. mars. Tefldar verđa 7-9 umferđir eftir fjölda ţátttökusveita. Teflt verđur eftir svissneska kerfinu. Fimm á laugardegi og fjórar á sunnudegi Umhugsunartími verđur 10 mínútur á skák fyrir hvern keppenda auk fimm sekúnda viđbótatartíma á hvern leik. Tafliđ hefst kl. 13 á laugardeginum en kl. 11 á sunnudeginum.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 8.10. bekk. Ef sérstaklega efnilegir skákmenn finnast í 1.7. bekk er ţeim leyfilegt ađ tefla međ sínum skóla en ţá ađeins í a- eđa b-sveit hans! Í hverri sveit mega vera allt ađ ţrír varamenn.
Ţátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Ţó ekki hćrri en kr. 15.000.- fyrir hvern skóla.
Veitt verđa verđlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verđunum fyrir efstu sveitir af landsbyggđinni.
Veitt verđa borđaverđlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borđi.
Tvćr efstu sveitirnar fá keppnisrétt til ţátttöku á Norđurlandamóti grunnskólasveita sem fram fer í september nćstkomandi Í Íslandi
Skráning fer fram á Skák.is
Skráningu skal lokiđ í í síđasta lagi 23. mars.
Ath. Áríđandi er ađ sveitirnar séu skráđar fyrirfram.
Upplýsingar um ţegar skráđar sveitir má finna hér.
Spil og leikir | Breytt 20.3.2017 kl. 14:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2017 | 17:39
Páskaskákmót Vinaskákfélagsins
Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verđur haldiđ mánudaginn 3. apríl kl: 13 í Vin ađ Hverfisgötu 47. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútur á skák. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga.
Í hléi verđur bođiđ upp á hiđ frábćra og ógleymanlega kaffi og veitingar. Góđ verđlaun verđa í bođi. (Kannski verđa einhver páskaegg í verđlaun).
Ţiđ getiđ skráđ ykkur á mótiđ á gula kassanum efst á síđunni á skak.is
Allir velkomnir!!
Spil og leikir | Breytt 17.3.2017 kl. 17:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2017 | 12:19
Áskorendaflokkur hefst 1. apríl í Stúkunni
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák fer 1.-9. apríl nk. Teflt er í Breiđabliks-stúkunni í Kópavogi. Tefldar verđa níu umferđir eftir svissneska kerfinu.
Verđlaun í áskorendaflokki eru sem hér segir:
- 75.000 kr.
- 45.000 kr.
- 30.000 kr.
Verđlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verđlaunasćtum í áskorendaflokki. Tvö efstu sćtin gefa keppnisrétt í landsliđsflokki í ár sem fram fer á Hafnarfirđi, 9.-20. maí nk.
Séu menn jafnir rćđur stigaútreikningur.
Skráning
Ţátttökugjöld eru 5.000 kr. Unglingar 15 ára og yngri (2000 og síđar) fá 50% afslátt. F3-félagar fá frítt í mótiđ.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Ţátttökugjöld greiđist inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409 fyrir mót.
Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Tímamörk
Áskorendaflokkur: 90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viđbótartími eftir hvern leik.
Opinn flokkur: 30 mínútur auk 30 sekúnda viđbótartími eftir hvern leik.
Dagskrá:
- umferđ, laugardagurinn, 1. apríl, kl. 13:00
- umferđ, sunnudagurinn, 2. apríl, kl. 13:00
- umferđ, mánudagurinn, 3. apríl, kl. 18:30
- umferđ, ţriđjudagurinn, 4. apríl, kl. 18:30
- umferđ, miđvikudagurinn, 5. apríl, kl. 18:30
- umferđ, fimmtudagurinn, 6. apríl, kl. 18:30
- umferđ, föstudagurinn, 7. apríl, kl. 18:30
- umferđ, laugardagurinn, 8. apríl, kl. 13:00
- umferđ, sunnudagurinn, 9. apríl, kl. 13:00
Jafnteflisreglur
Takmarkanir eru settar á jafnteflisbođ. Hún gengur út á ţađ ađ ekki er heimilt ađ bjóđa jafntefli fyrr en báđir keppendur hafa leikiđ 30 leiki. Á ţví má gera undantekningar sé ţráteflt en ţá verđur ađ stöđva klukku, kalla á skákstjóra og koma međ jafntefliskröfu.
Yfirseta
Hćgt er ađ taka tvćr yfirsetur í umferđum 1-6 og fá fyrir hana hálfan vinning. Óska ţarf eftir yfirsetunni međ góđum fyrirvara og fylla út eyđublađ ţess efnis hjá skákstjóra.
15.3.2017 | 09:43
Ögmundur Kristinsson skákmeistari Ása í fjórđa sinn.
Ćsir héldu sitt meistaramót í gćr 14 mars. Tuttugu og fjórir kappar mćttu til leiks og tefldar voru tíu umferđir međ tíu mínútna umhugsun.Ţađ var hart barist á efstu borđum eins og viđ er ađ búast ţegar margir skákvígamenn mćtast vel vopnađir af gambítum og endataflstćkni.
Ögmundur fór rólega af stađ, gerđi jafntefli viđ Gunnar Finnsson í fyrstu umferđ og tapađi fyrir Axel Skúlasyni í annarri umferđ.
Eftir fimm umferđir var Friđgeir K Hólm efstur međ 4˝ vinning og Guđfinnur og Axel međ 4 vinninga og Ögmundur 4.-7. sćti međ 3˝ vinning.
Ţá hefur Ögmundur örugglega sagt viđ sjálfan sig: "Nú er ekkert í bođi annađ en vinna rest". Ţađ gerđ hann líka međ glćsibrag.
Ögmundur endađi međ 8˝ vinning í fyrsta sćti. Friđgeir varđ annar međ 8 vinninga og Guđfinnur ţriđji međ 7 vinninga.
Röđ nćstu manna:
- 4. Gunnar Örn Haraldsson 6,5
- 5.-6 Sćbjörn Larsen 6
- Stefán Ţormar 6
- 7-11 Axel Skúlason 5,5
- Össur Kristinsson 5,5
- Ţór Valtýsson 5,5
- Valdimar Ásmundsson 5,5
- Gunnar Finnsson 5,5
- 12-16 Páll G Jónsson 5
- Haraldur Magnússon 5
- Jóhann Larsen 5
- Ţorsteinn Ţorsteinsson 5
- Sigurđur G Ţorsteinsson 5
Nćstu átta urđu ađ sćtta sig viđ ađeins fćrri vinninga ađ ţessu sinni.
15.3.2017 | 08:43
Skákţing Norđlendinga fer fram 24.-26. mars
Skákţing Norđlendinga 2017 verđur haldiđ 24.-26. mars, á Kaffi Krók, á Sauđárkróki. Mótiđ hefst kl. 20.00 á föstudagskvöldiđ 24. mars, en ţá verđa telfdar 4 umferđir af 25 mínútna atskákum. 5. umferđ kl. 11.00 og 6 umferđ kl. 17.00 laugardaginn 25. mars og 7. umferđ kl. 11.00 sunnudaginn 26. mars, en ţá verđur umhugsunartíminn 90 mínútur á skákina + 30 sek. á hvern leik. Ađ 7. umf. lokinni verđur Hrađskákmót Norđlendinga haldiđ og hefst kl. 14.30 eđa síđar. Skákmeistari Norđlendinga getur ađeins orđiđ sá sem á lögheimili á Norđurlandi, en mótiđ er öllum opiđ. Skákdómari verđur Ingibjörg Edda Birgisdóttir.
Verđlaun eru sem hér segir 1. sćti 45.000 kr. 2. sćti 30.000 3. sćti 20.00 4. sćti 15.000 5. sćti 10.000 Aukaverđlaun fćr efsti skákmađur međ minna en 1800 stig, 10.000 kr. Verđi menn jafnir ađ vinningum skiftast verđlaun jafnt milli ţeirra.
Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra kapp- og atskákstiga.
Skráning á skák.is (skak.blog.is) og einnig er hćgt ađ skrá sig á jhaym@simnet eđa í síma 865 3827, ţar sem nánari upplýsingar gćti líka veriđ mögulegt ađ fá. Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 9
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 104
- Frá upphafi: 8778313
Annađ
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar