Fćrsluflokkur: Spil og leikir
14.3.2017 | 07:00
Fimmta mót Bikarsyrpunnar hefst á föstudaginn
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stađ ţriđja áriđ í röđ. Mót syrpunnar í vetur verđa fimm talsins og hefur umferđum hvers móts veriđ fjölgađ í sjö.
Fimmta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 17. mars og stendur til sunnudagsins 19. mars. Tefldar eru 7 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo mikilvćgt sé ađ börnin vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.
Teflt verđur í einum flokki og hvetjum viđ stelpur jafnt sem stráka til ađ koma og spreyta sig í lokamóti Bikarsyrpunnar ţennan veturinn.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák ţá er gott ađ byrja sem fyrst ađ tefla í kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim börnum sem vilja tefla á alvöru mótum einkum stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk ţess sem mörgum börnum óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví. Ţessi mótaröđ TR er ekki síđur sniđin ađ ţörfum ţeirra barna sem dreymir um ađ nćla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fćdd áriđ 2001 eđa síđar) sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar. Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta ţess betur ađ tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á hefđbundnum kappskákmótum fullorđinna. Mótin uppfylla öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og eru reiknuđ til alţjóđlegra skákstiga.
Dagskrá Bikarsyrpu V:
1. umferđ: 17. mars kl. 17.30 (fös)
2. umferđ: 18. mars kl. 10.00 (lau)
3. umferđ: 18. mars kl. 13.00 (lau)
4. umferđ: 18. mars kl. 16.00 (lau)
5. umferđ: 19. mars kl. 10.00 (sun)
6. umferđ: 19. mars kl. 13.00 (sun)
7. umferđ: 19. mars kl. 16.00 (sun)
Verđlaunaafhending fer fram strax ađ lokinni síđustu umferđ, bćđi fyrir lokamótiđ og samanlagđan árangur í mótunum fimm í vetur.
Tvćr yfirsetur (bye) eru leyfđar í umferđum 1-5 og fćst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna ţarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferđarinnar á undan.
Ţátttökugjald í mótiđ er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiđa ekki ţátttökugjald.
Sigurvegari mótsins hlýtur ađ launum bikar. Verđlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sćti og 3. sćti. Sérstök verđlaun verđa veitt nćsta vor fyrir samanlagđan árangur í mótunum fimm, ţar á međal er veglegur farandbikar. Ţá verđa veitt sérstök verđlaun fyrir samanlagđan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en ţađ eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sćti gefur 5 einkatíma, 2. sćti gefur 3 einkatíma og 3. sćti gefur 2 einkatíma.
Vinsamlegast skráiđ ţátttakendur sem fyrst, ţađ hjálpar til viđ undirbúning mótsins. Hlökkum til ađ sjá ykkur!
Skákstjórn: Ţórir Benediktsson (867 3109).
Skráningarform
Spil og leikir | Breytt 9.3.2017 kl. 10:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2017 | 16:40
Íslandsmót grunnskólasveita fer fram 25. og 26. mars
Íslandsmót grunnskóla 8.10. bekkur 2017 fer fram í Rimaskóla dagana 25. og 26. mars. Tefldar verđa 7-9 umferđir eftir fjölda ţátttökusveita. Teflt verđur eftir svissneska kerfinu. Fimm á laugardegi og fjórar á sunnudegi Umhugsunartími verđur 10 mínútur á skák fyrir hvern keppenda auk fimm sekúnda viđbótatartíma á hvern leik. Tafliđ hefst kl. 13 á laugardeginum en kl. 11 á sunnudeginum.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 8.10. bekk. Ef sérstaklega efnilegir skákmenn finnast í 1.7. bekk er ţeim leyfilegt ađ tefla međ sínum skóla en ţá ađeins í a-sveit hans! Í hverri sveit mega vera allt ađ ţrír varamenn.
Ţátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Ţó ekki hćrri en kr. 15.000.- fyrir hvern skóla.
Veitt verđa verđlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verđunum fyrir efstu sveitir af landsbyggđinni.
Veitt verđa borđaverđlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borđi.
Tvćr efstu sveitirnar fá keppnisrétt til ţátttöku á Norđurlandamóti grunnskólasveita sem fram fer í september nćstkomandi Í Íslandi
Skráning fer fram á Skák.is
Skráningu skal lokiđ í í síđasta lagi 23. apríl
Ath. Áríđandi er ađ sveitirnar séu skráđar fyrirfram.
Upplýsingar um ţegar skráđar sveitir má finna hér.
13.3.2017 | 15:08
Álfhólsskóli Íslandsmeistarar!
Íslandsmót barnaskóla 4. 7. bekkur fór fram í Grindavík um liđna helgi. Teflt var viđ góđar ađstćđur í Grunnskóla Grindavíkur. Skáknefnd UMFG og Skákakademía Reykjavíkur önnuđust mótshaldiđ. Tuttugu og ein sveit tók ţátt í mótinu og ţar af fjórar frá Suđurnesjum. Tefldar voru átta umferđir međ tíu mínútna umhugsunartíma auk tveggja viđbótarsekúnda viđ hvern leik. Fyrirfram mátt búast viđ sterkum sveitum frá Ölduselsskóla, Áfhólsskóla og Rimaskóla. Sú varđ raunin og sköruđu ţessar sveitir nokkuđ fram úr.
Sveit Álfhólsskóla tók snemma forystu í mótinu og náđi ađ leggja ađ velli bćđi sveit Ölduselsskóla og Rimaskóla. Sveitin gerđi jafntefli viđ efnilega sveit Vatnsendaskóla en náđi ađ vinna síđustu ţrjár umferđirnar 4-0 og sigldi ţannig titlinum örugglega í höfn. Baráttan um annađ sćtiđ var mjög spennandi. Annađ sćtiđ skipti miklu máli ţar sem ţađ gaf keppnisrétt á Norđurlandamót barnaskóla sem haldiđ verđur á Íslandi í haust. Fyrir síđustu umferđina voru sveitir Ölduselsskóla og Rimaskóla hnífjafnar. Harđskeytt sveit Hörđuvallaskóla náđi tveimur vinningum af Grafarvogspiltum á međan Ölduselsskóli vann 4-0 og fara ţví Breiđhyltingar á Norđurlandamótiđ.
Sveit Íslandsmeistarana skipa: Róbert Luu, Ísak Orri Karlsson, Alexander Már Bjarnţórsson, Gabríel Sćr Bjarnţórsson og Rayan Sharifa. Ţjálfari og liđsstjóri er Lenka Ptacnikova.
B-sveit Háteigsskóla varđ efst b-sveita og c-sveit Grunnskóla Grindavíkur var bćđi efst c-sveita og landsbyggđarsveita.
Borđaverđlaun hlutu Róbert Luu Álfhólsskóla á fyrsta borđi međ fullt hús, Hilmir Arnarson Rimaskóla og Adam Omarsson Háteigsskóla á öđru borđi međ sjö vinninga af átta, Baltasar Máni Ölduselsskóla á ţriđja borđi međ sex vinninga af sjö og Sigurđur Bergvin Grunnskóla Grindavíkur á fjórđa borđi međ sex vinninga af átta.
Skákstjórar voru Stefán Bergsson og Siguringi Sigurjónsson.
Myndaalbúm má finna hér.
Lokastöđuna má finna á Chess-Results.
Spil og leikir | Breytt 15.3.2017 kl. 12:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2017 | 10:11
Björgvin efstur á Öđlingamótinu
Hún var hörđ baráttan í ţriđju umferđ Skákmóts öđlinga sem fram fór sl. miđvikudagskvöld en ţegar klukkan nálgađist 23. stund sólarhringsins var enn stćrstur hluti bardaganna í gangi. Á efsta borđi mćttust hinir reynslumiklu jaxlar, Ögmundur Kristinsson (2015) og Gunnar K. Gunnarsson (2115), í hörkuskák ţar sem Gunnar virtist vera ađ fá nokkuđ vćnlega stöđu. Úr varđ mikil spenna og eftir allnokkrar tilfćringar manna á hinu köflótta borđi var liđskipan ţannig ađ Ögmundur hafđi tvo hróka gegn hćstvirtri drottningu Gunnars auk ţess sem hvor keppandi hafđi yfir nokkrum peđum ađ ráđa. Eftir ţađ reyndist höfđingjunum ómögulegt ađ bćta stöđur sínar svo nokkru nćmi og voru sverđ ţví slíđruđ síđla kvölds. Skiptur hlutur niđurstađan.
Sömu sögu má segja um viđureign Ţórs Valtýssonar (1962) og Siguringa Sigurjónssonar (2021) á öđru borđi. Eftir harđa rimmu var samiđ jafntefli ţegar út í hnífjafnt endatafl var komiđ. Raunar lauk fimm orrustum af sjö á efstu borđum međ jafntefli en ţađ voru ađeins Fide-meistarinn Ingvar Ţór Jóhannesson (2377) og Björgvin Víglundsson (2185) sem höfđu betur gegn sínum andstćđingum; Ingvar gegn Kristni Jóni Sćvaldssyni (1934) og Björgvin gegn Magnúsi Matthíassyni (1694).
Stađan er nú ţannig ađ áđurnefndur Björgvin er efstur međ fullt hús vinninga en fimm keppendur koma í humátt međ 2,5 vinning. Fjórđa umferđ fer fram nćstkomandi miđvikudagskvöld og ţá verđur stórviđureign á fyrsta borđi ţar sem Björgvin stýrir hvítu mönnunum gegn Ingvari. Einnig mćtast m.a. höfđingjarnir Gunnar og Ţór og Siguringi etur kappi viđ Ögmund.
- Chess-Results
- Skákirnar (pgn): 1 2 3
13.3.2017 | 07:00
Hrađkvöld hjá Hugin í kvöld
Hrađkvöld Hugins í Mjóddinni verđur mánudaginn 13. mars nk. og hefst tafliđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7-10 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik eđa 5 mínútur + 3 sekúndur á hvern leik eftir fjölda umferđa. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Hrađkvöldiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga. Í vetur verđa svo hrađkvöldin fyrsta og síđasta mánudag í hverjum mánuđi ađ ţví undanskildu ţegar mánudag ber upp á stórhátíđ eđa ađrir viđburđir eru til stađar..
Sigurvegarinn á hrađkvöldinu fćr í verđlaun máltíđ fyrir einn á Saffran eđa pizzu frá Dominos Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fćr sama val. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.
Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Spil og leikir | Breytt 8.3.2017 kl. 13:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2017 | 18:20
Jón Kristinn hrađskákmeistari Akureyrar
Tíu skákkempur mćttu til leiks í dag, 12. mars til ađ skera úr um ţađ hver myndi hampa titlinum "Hrađskákmeistari Akureyrar" nćsta áriđ. Hart var barist og spenna mikil og var mönnum nú skammtađar fjórar mínútur á skákina og tvćr sekúndur ađ auki fyrir hvern leik (4-2). Ţá var mótiđ og reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga, sem jók vitanlega mjög á taugatitring í hópi keppenda.
Eins og venjulega tók Jón Kristinn Ţorgeirsson forystuna, en nokkrir félagar hans voru ţó skammt undan. Kvađ svo rammt ađ ţessu ađ ef Jón hefđi tapađ skák sinni viđ Áskel Örn Kárason í síđustu umferđ hefđi sigurinn falliđ ţeim síđarnefnda í skaut. Leit lengi út fyrir ađ svo fćri, en ađ lokum mátti snerpa unga mannsins sín meira og hann hafđi sigur, eins og undantekningarlaust á öđrum mótum vetrarins. Jón fékk sumsé átta vinninga, Andri Freyr Björgvinsson sjö, en ţeir Áskell og Sigurđur Arnarson sex og hálfan. Töfluna má sjá á Chess-results.
12.3.2017 | 18:17
Sćbjörn sterkur í Stangarhyl
Ćsir tefldu sinn 20 skákdag vetrarins síđasta ţriđjudag. Sćbjörn G Larsen varđ efstur međ 8 vinninga af 10 mögulegum. Í öđru sćti varđ Ingimar Halldórsson međ 7,5 vinninga og Ţór Valtýsson varđ í ţriđja sćti međ 7 vinninga.
Röđ nćstu manna
- 4 Stefán Ţormar 6,5
- 5-9 Kristján Stefánsson 6
- Kristinn Bjarnason 6
- Guđfinnur R Kjartansson 6
- Valdimar Ásmundsson 6
- Axel Skúlason 6
- 10-12 Gunnar Örn Haraldsson 5,5
- Jóhann Larsen 5,5
- Finnur Kr Finnsson 5,5
Nćstu 16 fengu ađeins fćrri vinninga ađ ţessu sinni. Nćsta ţriđjudag, 14 mars, höldum viđ Meistaramót Ása. Ögmundur Kristinsson varđ meistari Ása 2016 og líka 2015
Allir skákmenn 60+ eru velkomnir til leiks. Viđ fögnum hverju nýju andliti sem gengur í salinn. Viđ teflum í Stangarhyl 4, félagsheimili F E B
Skákin hefst alltaf stundvíslega kl. 13.00. Tefldar 10 umferđir međ 10 mín. umhugsun.
FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2353) gerđi tvö hörkujafntefli á lokadegi Stockholm Chess Challange í gćr. Í ţeirri fyrri viđ Svíann Milton Pantzar (2257) og í ţeirri síđari gegn indverska FIDE-meistaranum Jena Kumar Rakesh (2315).
Síđari skákin var afar skemmtileg en ţar fórnađi Vignir manni á h7. Fórnin stóđst til sigurs međ bestu taflmennsku en Vignir missti á einu augnabliki af vinningsleiđ og endađi á ađ ţráskáka.
Góđ frammistađa hjá Vigni á mótinu og var hann á pari stigalega. Frammistađa hans samsvarađi 2348 skákstigum. Hann vann tvćr skákir, tapađi tveimur og gerđi fimm jafntefli.
12.3.2017 | 07:00
Magnús + Skákmót fyrir 10-18 ára fer fram í dag
Skákviđburđur fyrir ungt fólk verđur haldinn eftir sýningu heimildarmyndarinnar um norska skákmeistarann Magnus Carlsen
Myndin Magnus er sýnd 12. mars kl. 13:00. Eftir myndina er ungu fólki á aldrinum 10-18 ára bođiđ ađ taka ţátt í skákmóti (hrađskák). Skáksamband Íslands skipuleggur viđburđinn í samstarfi viđ Norska Sendiráđiđ. Verđlaunahafi hlýtur spennandi gjöf frá Norska sendiráđinu. Viltu vera međ? Sendu póst á Silje.Beite.Loken@mfa.no međ nafni og aldri fyrir 9. mars.
Myndin MAGNUS er sýnd kl. 13:00. Mótiđ fer fram á milli kl. 15:00 17:00.
Magnus (NO)
Magnus Carlsen hefur veriđ kallađur "Mozart of Chess" ţar sem hann hefur til ađ bera kunnáttu og greind stórmeistara í skák ásamt framúrskarandi frumleika og innsći. Magnus er einstök saga ungs manns sem reis upp úr vítahring eineltis í ţađ ađ verđa ein skćrasta stjarna og leiđandi í heimi stórmeistara í skák. Magnus býđur áhorfendum ekki ađeins ađ heyra um hinn magnađa og einstaka keppnisheim í skák, heldur líka ađ kynnast örlítiđ huga manns međ snilligáfu.
Spil og leikir | Breytt 8.3.2017 kl. 14:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2017 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Á svona augnablikum rćđst gengi manna
Um miđjan ágúst sl. brast á hiđ svokallađa "demantsafmćli" undirritađs. Í tilefni ţess hófust miklar heitstrengingar um ţátttöku á öflugu skákmóti og ţá var ekki veriđ ađ hugsa um eitt af ţessum túristamótum sem nú eru haldin út um allar koppagrundir, heldur djúpu laugina, Volga, Volga mikla móđa. A-flokkur hins endurreista Aeroflot-móts í Moskvu og Gíbraltar-mótiđ eru sterkustu opnu mót ársins. Aeroflot-mótiđ rakst ađ vísu á heimsbikarmót FIDE sem fram fór í Sameinuđu arabísku furstadćmunum en á Cosmos-hóteliđ í Moskvu voru mćttir til leiks margir af sterkustu ungu skákmönnum heims og stigalágmörk sett viđ 2550 elo.
Ađstćđur mínar voru ađrar en flestra; ef undan eru skildar ýmsar flokkakeppnir hef ég ađeins tekiđ ţátt í tveim einstaklingsmótum sl. tíu ár. Ýmsar ađvörunarbjöllur klingdu: ćfingaleysi getur leitt til rangra ákvarđana, ţreytu; sjálfstraust kann ađ hrapa. En hafđi mađur ekki lent í verđlaunasćti á ţessum vettvangi áriđ 2004? Mótiđ var keyrt áfram enginn frídagur og langar setur reyndu á úthaldiđ eđa ţađ sem Rússarnir kalla taugaorkuna. Lögmál Murphys um ađ allt sem getur fariđ úrskeiđis fari úrskeiđis virtist allsráđandi í fyrstu tveim skákunum:
Irriturizaga Helgi
"Lćrt úrrćđaleysi," voru svona mistök kölluđ í eina tíđ af gömlum félögum mínum. Ég hafđi tvisvar áđur misst af jafntefli og drýgđi nú ţá höfuđsynd ađ gefa upp alla von. Ţađ blasir viđ ađ eftir 64. ... Bxg3! ţvingar svartur fram jafntefli ţví ađ eftir 65. hxg3 er svartur patt.
Ekki gott vegarnesti ađ tapa ţessari skák sem kostađi gríđarleg orkuútlát og 6 klst. taflmennsku.
Ţađ er kannski fulldjúpt í árinni tekiđ ađ halda ţví fram ađ ónákvćmni í 18. leik snemma móts geti skipt sköpum en ég hef nú samt á tilfinningunni ađ ţarna hafi ég misst af 1. verđlaunum, skrifađi Bent Larsen um glatađ tćkifćri í skák sem hann tefldi viđ Anatolí Karpov í San Antonio í Texas haustiđ 1972. Larsen karlinn talađi oft digurbarkalega en áratuga keppnisreynsla hafđi kennt honum ađ á nákvćmlega svona augnablikum rćđst gengi manna á skákmótum.
Annars stađar í salnum sat hinn frćgi Gata Kamsky međ tapađ tafl gegn Serbanum Indjic:
Indjic Kamsky
Indic lék nú 59. f5 og eftir 59. ... Kf7 60. f6 Kf8 61. Ke6 Ke8 62. f7+ Kf8 63. Kf6 h6 64. Kg6 h5! varđ hvítur ađ sćttast á skiptan hlut.
"Ađeins sá sem hefur lćrt af mér getur leyst ţessa ţraut," skrifađi persneski skáksnillingurinn As Suli sem fćddur var áriđ 880 um skákdćmi sem hann birti í skákkennslubók sem lá gleymd og grafin í meira en ţúsund ár eđa ţar til elsti núlifandi stórmeistari heims, Júri Averbakh, vakti athygli á henni og dćminu á Ólympíumótinu í Dubai áriđ 1986. "Reitirnir kallast á". Í ţví hugtaki lá lausnin sem Averbakh fann. Andspćni í ýmsum myndun: á ská, ţversum og langsum, er gott íslenskt orđ um ţá tegund leikţvingunar sem Persinn kunni full skil á.
Aftur ađ stöđumyndinni: As Suli hefđi ekki veriđ lengi ađ finna vinninginn: 59. h5 Kf7 60. Kd6 Kf6 61. h6! Kf7 62. Kd7! og vinnur, t.d. 62. ... Kf6 63. Ke8 o.s.frv.
Í B-flokki tefldu Guđmundur Kjartansson, Dagur Ragnarsson og Sigurđur Dađi Sigfússon. Ţeir tveir síđastnefndu bćttu ćtlađan árangur sinn og Guđmundur var á pari.
------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 4. mars 2017
Spil og leikir | Breytt 6.3.2017 kl. 16:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 8
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 8778312
Annađ
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar