Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Unglingaskák

Álfhólskóli teflir á Norðurlandamóti barnaskólasveita

Afmaelisdinner

Barnaskólavveit Álfhólsskóla teflir núna um helgina á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem haldið er í Helsinki í Finnlandi.

Sveitina skipa:

1. borð  Dawid Kolka

2. borð Felix Steinþórsson

3. borð Guðmundur Agnar Bragason

4. borð Oddur Unnsteinsson

varamaður Halldór Atli Kristjánsson

Sveitin er í öðru sæti meðalstiga með heldur færri meðalstig en finnska sveitin. Í viðhengi er listi yfir keppendur. Taflið hefst kl 9 á morgun föstudag að íslenskum tíma en á morgun verða telfdar tvær umferðir kl 9 og kl 14.

Finnarnir hafa staðið sig afar vel við undirbúning mótsins og hafa meðal annars sett upp heimasíðu fyrir mótið þar sem ætlun þeir er m.a. að sýna allar skákirnar beint. Slóðin á síðuna er http://www.shakki.net/kerhot/MatSK/nm/ Við auðvitað vonum að þau áform þeirra gangi eftir.

Sveitin ferðaðist í dag til Finnlands á 13 ára afmælisdegi Dawid Kolka sem fekk auðvitað að velja hvar yrði borðað og fyrir valinu hjá honum varð Pizza Hut í miðborg Helsinki þar sem slegið var upp afmælisveislu. Á morgun hefst svo alvaran hjá þessum vösku drengjum.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Rimaskóli og Engjaskóli með sterkustu skáksveitirnar á Miðgarðsmótinu 2011

A sveit Rimaskóla, sigurvegarar Miðgarðsmótsins í skák 2011: Oliver Aron Jóhannesson, Hrund Hauksdóttir, Dagur Ragnarsson, Kristófer Jóel Jóhannesson, Jón Trausti Harðarson, Kristinn A. Kristinsson, Nansý Davíðsdóttir og Jóhann A. FinnssonRúmlega 100 grunnskólanemendur mættu á hið árlega Miðgarðsmót, sveitakeppni grunnskólanna í Grafarvogi og á Kjalarnesi. Mótið var nú haldið í 6. sinn og sem fyrr sigraði A-sveit Rimaskóla, nú með nokkrum yfirburðum, sveitin fékk 46,5 vinninga af 48 mögulegum. Keppnin um önnur sæti var mjög jöfn og hörð. A sveit Engjaskóla náði öðru sæti á Miðgarðsmótinu hálfum vinningi ofar en B-sveit Rimaskóla.

Keppt var í átta manna sveitum og að þessu sinni sendu sex grunnskólar þrettán sveitir til leiks sem er metþátttaka. Skákmótið fór fram í íþróttasal Rimaskóla. Það er fjölskylduþjónustan Miðgarður í Grafarvogi sem hélt mótið í samstarfi við skákdeild Fjölnis. Keppt var um glæsilegan farandbikar en auk þess fékk vinningsskólinn eignarbikar að launum. Allir þátttakendur fengu glæsilegt viðurkenningarskjal með nafni sínu til minja um þátttökuna. Tefldar voru sex umferðir eftir Monrad-kerfi. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu Rúmlega 100 grunnskólakrakkar að tafli á Miðgarðsmótinu í íþróttahúsinu Rimaskólaþátttöku þar sem margir voru að taka þátt í sínu fyrsta skákmóti þá gekk keppnin mjög vel fyrir sig. Í skákhléi var öllum þátttakendum boðið upp á hagstæðar veitingar og krakkarnir voru undantekningarlaust afar ánægðir með þátttökuna í lokin.

Sigursveit Rimaskóla er á öllum borðum skipuð kunnum afrekskrökkum: Dagur Ragnarsson, Jón Trausti Harðarson, Oliver Aron Jóhannesson, Hrund Hauksdóttir, Kristinn Andri Kristinsson, Kristófer Jóel Jóhannesson, Nansý Davíðsdóttir og Jóhann Arnar Finnsson. Mótstjórar voru þau Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og Hera H. Björnsdóttir frístundafulltrúi Miðgarðs.

Miðgarðsmótið í skák 2011  -   Úrslit:

  • 1. Rimaskóli A                                   46, 5    vinninga
  • 2. Engjaskóli A                                  31,5
  • 3. Rimaskóli B                                   31
  • 4-5. Húsaskóli B                                25
  • 4-5. Foldaskóli A                               25
  • 6. Húsaskóli A                                               23
  • 7. Borgaskóli A                                  22
  • 8. Engjaskóli C                                  21
  • 9. Engjaskóli B                                  19
  • 10. Engjaskóli D                                18
  • 11. Klébergsskóli A                           17,5
  • 12. Rimaskóli D                                 17
  • 13. Rimaskóli C                                 16
Myndaalbúm mótsins

NM í skólaskák: Noregspistill nr. 1

Klukkan er 19.13 á staðartíma og undirritaður situr í setustofunni á farfuglaheimilinu Haraldsheim. Á meðan liggur hinn fararstjórinn, Stefán Bergsson, afvelta í kojunni sinni með svefngrímu yfir augunum og tappa í eyrunum.  Ætla ég á engan hátt að vega að brothættri karlmennsku hans með því að grínast með þá staðreynd að miðaldra flugfreyja hefði verið fullsæmd af aðförunum hans við að undirbúa þennan stutta blund.

Ferðalagið til Noregs gekk vel og einhvern veginn rötuðum við á gististaðinn þökk sé góðum leiðbeiningum frá mótshöldurum.  Farfuglaheimilið Haraldsheim er eins þægilegt og farfuglaheimili getur orðið.  Um er að ræða fjögurra til sex manna herbergi  þar sem gist er í kojum og deila menn hreinlætisaðstöðu með allri hæðinni.  Það sem bjargar hinsvegar öllu er að á hverri hæð eru þægilegar stofur þar sem hröð nettenging er í boði, poolborð, spil og sjónvarp.

Aðeins er yfir einu að kvarta  en það er sú staðreynd að það tekur 30 mín. að ferðast á skákstað. Fyrst 10 mín. strætóferð og svo 20 mín. ganga - í tveimur áföngum. Það er ansi mikill munur frá tæplega 1-2 mín. rölti frá hóteli á skákstað sem boðið var uppá í Svíþjóð í fyrra. Það lítur því allt út fyrir það að dagarnir verði ansi langir hér í Osló því krakkarnir tefla tvær skákir á dag og við munum væntanlega ekki hafa tíma til að koma upp á farfuglaheimilið milli umferða.

Helstu áföll dagsins tengjast verðlagi í Noregi. Tónninn var settur strax í byrjun þegar Stefán Már, faðir Vignis, keypti sér Pepsi -flösku á 600 kr. og skömmu síðar fjárfesti Stefán fararstjóri í 200 kr. banana! Tilraun til ráns ferðarinnar átti sér hinsvegar stað þegar hópurinn fór út að borða um miðjan daginn. Við fundum flottan veitingarstað sem bauð upp á pizzahlaðborð fyrir 2.000 kr. á mann sem var ansi vel sloppið. Reyndar heimtuðu sumir að fara á McDonalds við misjafnan fögnuð annarra, förum ekki nánar út það. Þegar  að menn ætluðu að kaupa sér kókglas með matnum þá kostaði það 1.000 kr! Varð þá skyndilega kúvending úr kókpöntunum yfir í vatnspantanir sem var svo sem ágætt frá manneldislegum sjónarmiðum.  Menn töldu sig þarna hafa fundið hvað fáránlegasta verðlagið en botninn sló úr þegar Siggi Emilspabbi tékkaði á ræktinni, langaði að rífa aðeins í lóð og negla sér á brettið, en menn þurfa víst að snara 4000 kr. fram til að leyfa sér smá sprikl!

Nú er fundi með öllum hópnum nýlokið og klukkan farin að ganga tíu. Á þessum fundi var farið yfir morgundaginn en 1. umferð hefst 11:00 að norskum tíma og leggur hópurinn af stað frá Haraldsheim 09:15 undir handleiðslu hinnar leyndardómsfullu Irisar Brecker en menn bíða í ofvæni eftir þeim kynnum. Menn eru núna margir hverjir farnir að náttbuxna sig í gang og taka til skrínukosts síns. Það var nefnilega ákveðið eftir ferðina á veitingastaðinn um miðjan daginn að hver myndi bjarga sér um kvöldið hvað varðar næringu. Menn keyptu hinn ýmsa skrínukost; flestir ávöxtuðu sig í gang, sumir tóku vel til sykursins en sérstaklega var tekið eftir skrínukosti Björns fararstjóra. Björn er í heilsuátaki miklu og samanstóð skrínukostur hans af bláberjasojamjólk, blóðappelsínum, vatni og melónum! Hitaeiningasnautt það.

Framundan er langur og strangur dagur með tveimur umferðum. Mikil spenna er í keppendum og sérstaklega þeim yngstu í E-flokknum sem hafa verið til mikils sóma og eru nú lagstir til hvíldar. Allir keppendur hafa reyndar verið til sóma sem og hagað sér vel sem er langt frá því sjálfsagt þegar um ræðir svo stóran hóp.  Eins og áður segir hefur ferðin gengið vel og er það ekki síst að þakka þeim foreldrum og ömmu sem eru með í för sem hjálpa til við að hafa stjórn á hlutunum og sínum krökkum.

Það er hugur í mönnum  og spenna fyrir morgundaginn. Meira síðar.

Stefán og Björn

Fulltrúar Íslands eru (stigaröð keppenda í sviga - 12 keppendur í hverjum flokki):

A-flokkur (18-20 ára):

  • 1. Hjörvar Steinn Grétarsson (2460)
  • 2. Sverrir Þorgeirsson (2330)

B-flokkur (16-17 ára):

  • 9. Örn Leó Jóhannsson (1940)
  • 10. Nökkvi Sverisson (1805)  

C-flokkur (14-15 ára):

  • 9. Emil Sigurðarson (1720)
  • 11. Dagur Kjartansson (1660)

D-flokkur (12-13 ára):

  • 8. Jón Kristinn Þorgeirsson (1645)
  • 9. Oliver Aron Jóhannesson (1545)

E-flokkur (11 ára og yngri):

  • 7. Vignir Vatnar Stefánsson (1225)
  • 8. Heimir Páll Ragnarsson (1200)
Heimasíða mótsins

MR Íslandsmeistari framhaldsskólasveita

IMG 7317Sveit Menntaskólans í Reykjavík varð í gær, 12. febrúar, Íslandsmeistari framhaldsskólasveita í skák 2011. M.R. hlýtur því rétt á að tefla fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti framhaldsskólasveita sem fram fer síðar á árinu. Þetta er þriðja árið í röð sem M.R. verður Íslandsmeistari framhaldskólasveita og er sveitin Norðurlandameistari frá 2009 og 2010! Glæsilegur árangur.  

Mótshaldari var að venju Taflfélag Reykjavíkur og fór mótið fram í Skákhöll T.R, Faxafeni 12. Fimm sveitir voru skráðar til leiks, en þegar til kom forfallaðist sveit M.H. Fjórar sveitir tefldu því einfalda umferð með 25 mín. umhugsunartíma. Það voru A- og B sveitir Menntaskólans í Reykjavík, Menntaskólinn í Kópavogi og Verzlunarskóli Íslands.

Fyrir síðustu umferð var M.R. A-lið með 7 1/2 vinning, en Hallgerður hafði gert jafntefli við Eirík Örn í M.K.  Verzlunarskólinn var með 7 vinninga eftir að Bergsteinn Már í B-liði M.R. hafði unnið sigur á Herði Aron. Hrein úrslitaviðureign var því í síðustu umferðinni milli þessa tveggja liða. Hallgerður og Jóhanna unnu sínar skákir á 3. og fjórða borði fyrir M.R. og jafntefli varð á 1. og 2. borði. Viðureignin fór því 3 -1 M.R. í vil og sigurinn var í höfn. Allt getur samt gerst á komandi árum, því framhaldsskólasveitirnar breytast með reglulegu millibili, þegar liðsmenn útskrifast sem stúdentar! Það ætti því að vera hvetjandi fyrir framhaldsskólanema um allt land að fara að huga að næstu keppni að ári liðnu og tefla fram sinni sterkustu sveit.

Skákstjóri var Ólafur H. Ólafsson og myndir tók Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir.

Nánari úrslit urðu sem hér segir:

  • 1. sæti: Menntaskólinn í Reykjavík A-sveit með 10 1/2 vinning.
  • 2. sæti: Verzlunarskóli Íslands með 8 vinninga.
  • 3. sæti: Menntaskólinn í Reykjavík B-sveit með 3 vinninga.
  • 4. sæti: Menntaskólinn í Kópavogi með 2 1/2 vinning.

Í sigurliði M.R. eru:


  • 1. b. Sverrir Þorgeirsson
  • 2. b. Bjarni Jens Kristinsson
  • 3. b. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
  • 4. b. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir

 

Í silfurliði Verzlunarskóla Íslands eru:

  • 1. b. Hjörvar Steinn Grétarsson
  • 2. b. Helgi Brynjarsson
  • 3. b. Patrekur Maron Magnússon
  • 4. b.  Hörður Aron Hauksson

 

Í bronsliði M.R. B-sveitar eru:

  • 1. b. Paul Frigge
  • 2. b. Árni Guðbjörnsson
  • 3. b. Leó Jóhannsson
  • 4. b. Bergsteinn Már Gunnarsson

Í liði M.K. sem lenti í 4. sæti eru:

  • 1. b. Páll Andrason
  • 2. b. Tjörvi Schiöt
  • 3. b. Eiríkur Örn Brynjarsson
  • 4. b. Fannar Páll Vilhjálmsson
Myndaalbúm mótsins

Kennsla Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs hefst að nýju í Stúkunni

Föstudaginn 14. janúar hefst að nýju starfssemi Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs í stúkunni á Kópavogsvelli þar sem er bæði hátt til lofts  og vítt til veggja og frábært útsýni. DSC 0433Markviss þjálfun sterkustu og efnilegustu skákmanna Kópavogs hófst þar sl. haust. Kennari er Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla íslands en aðrir sem hafa stutt við starfssemina í hinum glæsilegu salarkynnum eru Haraldur Baldursson, Smári Rafn Teitsson, Tómas Rasmus og Hlíðar Þór Hreinsson f/h Skákakademíunnar. 

Þeir Smári og Tómas eru skákkennarar í Hjallaskóla og DSC 0430Salaskóla lands. Meðal þeirra sem sótt hafa æfingar og kennslu í stúkunni á Kópavogsvellinum eru meðlimir í hinni kunnu skáksveit Salaskóla, Páll Andrason, Guðmundur Kristinn Lee, Birkir Karl Sigurðsson og Eiríkur Örn Brynjarsson. Einnig nýbakaður Íslandsmeistari barna 10 ára og yngri, Dawid Kolka og nokkrar af efnilegustu ungu stúlkum í skákinni dag.

Auk þjálfunar og taflmennsku hafa  krakkarnir fengið heimsókn Hallgerðar Helgu Þorsteinsdóttir sem tefldi fjöltefli í nóvember sl. og jólamót fór fram þann 17. desember sl. en þar sigraði Páll Andrason eftir harða keppni við félaga sína Birki Karl og Eirík Örn.

Myndaalbúm Skákakademíu Kópavogs


Dawid Kolka Íslandsmeistari barna

 

SL371737
Dawid Kolka varð í dag íslandsmeistari barna, 10 ára og yngri, á fjölmennu og spennandi móti sem fram fór í Salaskóla í Kópavogi í dag.   Dawid fór mikinn í mótinu, þar sem ríflega 100 krakkar tóku þátt og sigraði með fullu hús.   Í 2.-3. sæti urðu Vignir Vatnar Stefánsson og HilSL371747mir Hrafnsson með 7 vinninga.   Nansý Davíðsdóttir varð Íslandsmeistari stelpna.   Í næstum sætum urðu Tinna Ósk Rúnarsdóttir og Ásdís Birna Þórarinsdóttir.  Mótið var haldið af Skáksambandi Íslands í samvinnu við Skákstyrktarsjóð Kópavogs sem styrkti á myndarlegan hátt við mótshaldið.  Samhliða aðalmótinu fór fram Peðaskák þar sem Logi Traustason hafði sigur.

 

Veit voru sérstök verðlaun fyrir árangur í hverjum aldursflokki og þar höfðu sigur:

  • 2000: Dawid Kolka 8 v.
  • 2001: Hilmir Hrafnsson 7 v.
  • 2002: Nansý Davíðsdóttir 6 v.
  • 2003: Vignir Vatnar Stefánsson 7 v.
  • 2004: Stefán SSL371743tefánsson 4 v.
  • 2005: Joshua Davíðsson 5 v.

Þess má geta að Nansý og Joshua, eru systkini.

Skákstjórn önnuðust Gunnar Björnsson, Halldór Grétar Einarsson, Magnús Pálmi Örnólfsson og Stefán Bergsson, sem hélt utan um mótiSL371750ð og átti langmestan þátt í því hversu vel mótið var skipulagt.  Lenka Ptácníková stjórnarði svo Peðaskákinni af miklum myndarskap.

Lokastaðan:

RankNameRtgPtsBH.
1Dawid Kolka1160834
2Vignir Vatnar Stefánsson1225735
3Hilmir Hrafnsson0733
4Nansý Davíðsdóttir0636
5Hilmir Freyr Heimisson0636
6Guðmundur Agnar Bragason0635½
7Jóhann Arnar Finnsson0635
8Heimir Pall Ragnarsson1200634
9Eyþór Daði Kjartansson1265634
10Felix Steinþórsson0631
11Viktor Ísar Stefánsson0629
12Tinna Ósk Ompi Rúnarsdóttir0627½
 Ásdís Birna Þórarinsdóttir0627½
14Aron Ingi Woodard0627
15Björn Breki Steingrímsson027
16Joshua Davíðsson0536
17Mykael Kravchuk0535½
18Sara Hanh Hong Bui0534½
19Jón Otti Sigurjónsson0533
20Nói Jón Marinósson0532
21Svandís Rós Ríkharðsdóttir0532
22Eysteinn Högnason0531½
 Óðinn Örn Jacobsen0531½
24Matthías Ævar Magnússon0531
25Axel Hreinn Hilmisson0530
26Axel Óli Sigurjónsson0530
27Ólafur Örn Ólafsson0529½
28Mateusz Piotr Jakubek0527
29Alísa Helga Svansdóttir0526½
30Ívar Andri Hannesson0526½
31Burkni Björnsson0524½
32Tinna Sif Aðalsteinsdóttir0524½
33Kári Georgsson0523½
34Eyjólfur Axel Kristjánsson030½
35Ólafur Sær Sigursteinsson029½
36Grímur Arnar Ámundason029½
37Heiðrún Anna Hauksdóttir027
38Pétur Steinn Atlason025½
39Anton Logi Lúðvíksson023½
40Dagur Ævarr Jónsson0433
41Brynjar Bjarkason0431
42Axel Bergsson0430
43Máni Steinn Þorsteinsson0430
44Dagur Kárason0430
45Ágúst Unnar Kristinsson0430
46Sverrir Páll Hjaltested0429½
47Marel Andri Friðjónsson0429
48Björn Hólm Birkisson0428
49Goði Hólmar Gíslason0428
50Kjartan Gauti Gíslason0428
51Arnar Ágúst Kristjánsson0427½
52Helgi Svanberg Jónsson0427
53Gunnar Hrafn Kristjánsson0426½
54Karen Ýr Sigurbjörnsdóttir0426½
55Breki Freysson0426
56Pétur Ari Pétursson0426
57Brynjar Halldórsson0425½
58Stephan Briem0425
59Orri Þórhallsson0425
60Kristján Gabríel Þórhallsson0424½
61Stefán Stefánsson0424
62Sindri Snær Kristófersson0423½
63Oddur Stefánsson0423
64Ástþór Ragnar Gautason0422½
65Þórður Hólm Hálfdánarson028½
66Tómas Andri Ólafsson023
67Bárður Örn Birkisson022½
68Sölvi Santos020
69Benedikt Ernir Magnússon0330
70Hilmar Jökull Arnarsson0326½
71Blær Víkingur -0326
72Ari Magnússon0326
73Árni Eyþórs Erlendsson0325½
 Lilja Andrea Kitmitto0325½
75Eyjólfur Örn Hauksson0325
76Viktor Forafonov0325
77Viktor Breki Guðlaugsson0324½
78Bjarki Arnaldarson0324½
79Katrín Sigurðardóttir0324
80Axel Pálsson0323½
81Anna María Þorsteinsdóttir0323½
82Árni Ólafsson0322½
83Elísa Sól Bjarnadóttir0322
84Andri Snær Zebitz025
85Finnur Gauti Guðmundsson024
86Baldur Skúlason021
87Máni Sverrisson017½
88Hermann Heiðar Jónsson017
89Atli Mar Baldursson0223½
90Axel Örn Heimisson0223
91Sindri Björn Hjaltested0222
92Kolbeinn Björnsson0221½
93Elín Edda Jóhannsdóttir0220½
94Helga Rún Hermannsdóttir0219½
95Lovísa Líf Hermannsdóttir018½
96Fannar Már Guðmundsson018½
97Brynjar Erwinsson0121½
98Breki Hrafn Ottósson0118
99Ólafur  Helgason0½22
100Gísli Jón Benjamínsson0½17
101Ágúst Freyr Axelsson0014

 SL371652

Peðaskákin:

  1. Logi Traustason 5 v.
  2. Jón Skúli Guðmundsson 4 v.
  3. Alexander Már Bjarnþórsson 3½ v.
  4. Alex Darri Guðmundsson 3 v.
  5. María  Jónsdóttir 3 v.
  6. Ragnheiður Sigurðardóttir 2½ v.
  7. Hafrún Arna Jóhannsdóttir 2½ v.
  8. Ísabella Ösp Davíðsdóttir 2½ v.
  9. Salka Heiður Högnadóttir 2½
  10. Anton Bjarni Björnsson 2 v.
  11. Rúnar Njáll Marinósson 1½ v
  12. Stefán Máni Vignisson 1 v.
  13. Þórhildur Tinna Magnúsdóttir 1 v.
  14. Benedikt Briem 0 v.


Myndaalbúm mótsins


Íslandsmót barna fer fram í dag

Íslandsmót barna í skák 2011 verður haldið laugardaginn 8. janúar nk.  Öll börn 10 ára og yngri (fædd 2000 og síðar) geta verið með á mótinu.  Tefldar verða 8 umferðir, umhugsunartími 15. mín. á skák fyrir hvern keppenda.  Engin þátttökugjöld.

Mótið verður haldið í Salaskóla í Kópavogi og hefst kl. 12.00 og lýkur á fimmta tímanum.  Keppendur verða að skrá sig fyrirfram á Skák.is.

Veglegur bikar er fyrir sigurvegara mótsins og verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin.  Sérstök verðlaun verða veitt þrem efstu stúlkunum í mótinu og hlýtur sú efsta titilinn "Íslandsmeistari stelpna 2011."  Einnig verður sigurvegurum í  hverjum aldursflokki fæddir 2000 og síðar veitt sérstök verðlaun.

Meðfram Íslandsmótinu verður í fyrsta sinn haldið Íslandsmótið í peðaskák. Mótið er ætlað leikskólabörnum og þeim krökkum í grunnskóla sem eru nýbyrjuð að tefla.   Hefst það mót einnig klukkan 12:00.   Tefldar verða 5 umferðir og ætti mótið að taka um 1.5 tíma.

Reglurnar í peðaskák eru þannig að til að vinna þarf að drepa öll peðin hjá hinum eða koma einu sinna peða alla leið yfir skákborðið.

Skáksamband Ísland heldur mótið í samvinnu við Skákstyrktarsjóð Kópavogs sem styrkir mótshaldið.

Minnt er á að skrá sig fyrirfram á Skák.is.

Jólaskákmót Víkingaklúbbsins & Skákklúbbs Faktory fer fram í kvöld

Hressilegt Jólaskákmót Víkingaklúbbsins í skák og Skákklúbbs Skemmtistaðarins Faktory við Smiðjustíg 6. (gamli Grand, efri hæð) verður haldið 23. desember nk.

Í ljósi Þorláksmessunnar og að það verður síðasti dagurinn fyrir Jól - þá er þreyttum og útúr tjúnnuðum víkingum (margir eflaust), feðrum, mæðrum og brjáluðum börnum - sérstaklega gert hátt undir höfði!

Að gefnu tilefni munu eftirfarandi listamenn stíga á stokk að móti loknu og verðlaunaafhendingu:

Jóhann Eiríksson (úr Gjöll og Reptilicus) mun spila sóla efni sitt fyrir skákmenn og gesti. Að auki koma fram Þorri (Loftski) Ljóðskáld og meðlimur í hinni alræmdu Inferno 5, ásamt Einari Melax (úr Sykurmolunum og Kukl). En þrjátíu ár eru frá því að ljóðabókin eftir Þorra: Sálin verður ekki þvegin kom út. (H)ljóðaBók er skipti sköpum í íslenskri ljóðagerð þótt áhrifin hafi verið hulin eftir megni. Einnig í tilefni þess að nú í desember heldur Þorri upp á það að fimmtán ár eru liðin síðan síðasta ljóðabókin eftir hann kom út, Holræsin á Ströndinni (1995) mun Þorri Forni Lofstki þylja þulur með ýmsum slætti á skákmótinu á Faktory.

Dagskráin hefst kl: 20:00 með hraðskákmóti og 22:00 hefst tón- og gjörningadagskrá kvöldsins.

Skráning fer fram á netfanginu: stereohypnosis@gmail.com
Takmarkaður fjöldi þátttakenda

Nánari upplýsingar um mótið er hægt að finna á vefslóðinni:

http://www.facebook.com/home.php?#!/event.php?eid=137198649670868


Jólapakkamót Hellis fer fram á laugardag

Picture 054Jólapakkamót Hellis verður haldið laugardaginn 18. desember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið.

Keppt verður í allt að 5 flokkum: Flokki fæddra 1995-1997, flokki fæddra 1998-99, flokki fæddra 2000-2001 og flokki fæddra 2002 og síðar og peðaskák fyrir þau yngstu. Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig. 

Búið er að opna fyrir skráningu á mótið hérna á heimasíðu Hellis. Nú er þegar um 150 keppendur skráðir til leiks. 


Jólamót TR og ÍTR: Tvöfaldur sigur Rimaskóla í yngri flokki

IMG 6897Í dag fór hið árvissa Jólaskákmót Íþrótta-og tómstundaráðs Reykjavíkur og Taflfélags Reykjavíkur fram. Þetta skákmót hefur verið haldið í áratugi og er fyrir skáksveitir frá grunnskólum Reykjavíkur. Í dag var teflt í yngri flokki en það eru nemendur úr 1.- 7. bekkjum grunnskólanna. Veitt voru verðlaun fyrir þrjár efstu drengjasveitirnar (eða opnu sveitirnar, þar sem sveitirnar eru blandaðar stúlkum og drengjum) og þrjár efstu stúlknasveitirnar. Teflt var í einum flokki, 6 umferðir eftir Monradkerfi með 15. mínútna umhugsunartíma. 17 sveitir voru skráðar til leiks, þar af 4 stúlknasveitir.

Rimaskóli bar sigur úr býtum í báðum flokkunum. Drengjasveit Rimaskóla, A-sveit, fékk 20 vinninga af 24 mögulegum og stúlknasveit Rimaskóla, sem vann stúlknaflokkinn, varð í þriðja sæti yfir mótið í heildina með 16 vinninga, sem er glæsilegur árangur. Skemmtilegt að skóli getur státað af svo jöfnum sveitum í drengja-og stúlknaflokki. Sigursveitirnar frá Rimaskóla mættust í síðustu umferð og gerðu jafntefli á öllum borðum. En það var svo Melaskóli sem varð í 2. sæti í mótinu með 18 vinninga. Engjaskóli, A-sveit, fékk bronsverðlaunin með 14 vinninga og varð hærri á stigum en Langholtsskóli sem fékk einnig 14 vinninga. Í öðru sæti í stúlknaflokki varð Engjaskóli með 13 vinninga og í 3. sæti  varð Árbæjarskóli með 9 vinninga. IMG 6900

Fyrstu þrjár sveitirnar í hvorum flokki fyrir sig fengu medalíur og sigursveitirnar eignabikar og farandbikar til varðveislu fram að næsta Jólaskákmóti.

Jólaskákmótið fór mjög vel fram. Meðal keppenda voru mörg börn sem þegar hafa töluverða reynslu í keppni á skákmótum, svo lítið var um vafaatriði á meðan mótinu stóð, sem skákstjórar þurftu að skera úr um. Einn keppandinn afrekaði m.a. að tefla nokkrar umferðir, skjótast síðan að spila á tónleikum í Langholtskirkju á meðan einni umferð stóð og koma aftur og halda áfram að tefla! Ekki skemmdi svo fyrir að margir liðsstjóranna eru reyndir skákmenn og héldu vel utan um sín lið. Birna Halldórsdóttir sá um veitingar á meðan mótinu stóð sem er ómissandi þáttur í skákmóti sem þessu sem tekur um þrjá og hálfan tíma. Margir foreldrar, systkini, afar og ömmur voru meðal áhorfenda sem setti skemmtilegan svip á mótið. 

IMG 6895Jólaskákmótið fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Mótsstjóri var Soffía Pálsdóttir, ÍTR. Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson og Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir.

Keppni í eldri flokki fer fram á morgun, mánudaginn 6. desember og hefst klukkan 17. Eins og í dag verður teflt í félagsheimili T.R., Skákhöllinni að Faxafeni 12.

Heildarúrslit í yngri flokki urðu sem hér segir:

  • 1. Rimaskóli A-sveit              20 v. af 24.
  • 2. Melaskóli                            18 v.
  • 3. Rimaskóli-stúlkur               16 v.
  • 4. Engjaskóli A-sveit              14 v. 74 stig.
  • 5. Langholtsskóli                    14 v. 66 stig
  • 6. Hólabrekkuskóli                 13,5 v.
  • 7. Engjaskóli-stúlkur              13 v.
  • 8. Árbæjarskóli                       12,5 v.            
  • 9. Rimaskóli B-sveit               12 v.
  • 10. Borgaskóli 11,5 v.
  • 11. Laugalækjarskóli11,5 v.
  • 12. Fossvogsskóli 11,5 v.
  • 13. Engjaskóli B-sveit 11 v.
  • 14. Skóli Ísaks Jónssonar 10 v.
  • 15. Selásskóli 10 v.
  • 16. Árbæjarskóli-stúlkur 9 v.
  • 17. Skóli Ísaks Jónssonar-stúlkur 8,5 v.

Rimaskóli A sveit:

  1. Oliver Aron Jóhannesson
  2. Kristófer Jóel Jóhannesson
  3. Jóhann Arnar Finnsson
  4. Viktor Ásbjörnsson

Melaskóli:

  1. Veronika Steinunn Magnúsdóttir
  2. Leifur Þorsteinsson
  3. Dagur Logi Jónsson
  4. Breki Jóelsson
  1. varam. Valtýr Már Michaelsson

Engjaskóli A-sveit:

  1. Helgi G. Jónsson
  2. Jóhannes K. Kristjánsson
  3. Ísak Guðmundsson
  4. Jón Gunnar Guðmundsson

Rimaskóli-stúlkur:

  1. Nancy Davíðsdóttir
  2. Svandís Rós Ríkharðsdóttir
  3. Ásdís Birna Þórarinsdóttir
  4. Tinna Sif Aðalsteinsdóttir

Engjaskóli-stúlkur:

  1. Honey Bargamento
  2. Aldís Birta Gautadóttir
  3. Rosa Róbertsdóttir
  4. Alexandra Einarsdóttir
  1. varam. Sara Sif Helgadóttir
  2. varam. Sara H. Viggósdóttir

 

Árbæjarskóli-stúlkur:

  1. Sólrún Elín Freygarðsdóttir
  2. Halldóra Freygarðsdóttir
  3. Ólöf Ingólfsdóttir
  4. Iveta Chardarova
  1. varam. Aníta Nancíardóttir
Myndaalbúm mótsins

Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.7.): 8
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 144
  • Frá upphafi: 8779037

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 114
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband