Bloggfćrslur mánađarins, maí 2018
5.5.2018 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Áskorandinn hefur alltaf međbyr
Ţrátt fyrir glćsilegan sigur Fabiano Caruana á áskorendamótinu í Berlín sem lauk í síđasta mánuđi virđast ekki margir hafa trú á ţví ađ honum takist ađ velta Magnús Carlsen heimsmeistara úr sessi í heimsmeistaraeinvígi ţeirra sem hefst í London ţann 9. nóvember nk. Sigur hans á Grenke-mótinu breytir ţar litlu um. Caruana varđ vinningi á undan Carlsen, hlaut 6 ˝ v. af níu mögulegum. Ferill Magnúsar og fyrri skákir hans viđ Caruana eiga sennilega stćrstan ţátt í ţessari vantrú á möguleikum Bandaríkjamannsins.
Sé litiđ til sögu heimsmeistaraeinvíga síđustu 100 árin kemur hinsvegar í ljós ađ áskorandinn virđist oftast hafa međbyr ţegar í stóra slaginn er komiđ. Úrslit fyrri viđureigna sem grundvöllur fyrir spádómi um úrslit hafa reynst óáreiđanlegt viđmiđ.
Emanuel Lasker var heimsmeistari í 27 ár en ţegar hann háđi einvígi sitt viđ Capablanca í Havana á Kúbu áriđ 1921 tapađi hann án ţess ađ vinna eina einustu skák. Capablanca bar höfuđ og herđar yfir helstu andstćđinga sína á nćstu árum og var jafn öruggur og ađrir um sigur í einvíginu viđ Aljékín í Buenos Aires áriđ 1927. Aljékín vann einn óvćntasta sigur skáksögunnar, 6:3 međ 25 jafnteflum. Hann varđi titil sinn gegn óverđugum áskorenda, Efim Bogoljubov, sem gat hinsvegar tryggt nćgt verđlaunafé sem var hlutverk áskorandans á ţessum árum.
Áriđ 1935 var áskorandinn Max Euwe og vann 15˝ : 14˝. Tveim árum síđar tefldu ţeir aftur og Aljékín endurheimti titilinn međ öruggum sigri, 15˝ : 9˝.
Aljékín lést áriđ 1946 og og nýr handhafi krúnunnar var Sovétmađurinn Mikhael Botvinnik. Hann hélt titlinum á jöfnu, 12:12 í einvígi viđ Bronstein áriđ 1951 og einnig gegn Smyslov ţrem árum síđar. En áriđ 1957 varđ Smyslov heimsmeistari međ öruggum sigri, 12˝ : 9˝. Botvinnik nýtti sér réttinn til annars einvígis og endurheimti titilinn áriđ 1958. Á sömu leiđ fór ţegar hann tefldi tvisvar viđ Mikhael Tal sem vann 12˝ : 8˝ áriđ 1960 en tapađi svo ári síđar, 8:13. Ţessi réttur Botvinniks var afnuminn og hann tapađi fyrir Tigran Petrosjan 9˝ : 12˝ áriđ 1963. Hann mćtti Boris Spasskí áriđ 1966 og vann 12˝ : 11˝. Armeninn er ţví einn fárra sem náđ hafa ađ verja heimsmeistaratitilinn. Aftur bankađi Spasskí á dyr ţrem árum síđar og vann, 12˝ : 10˝.
Bobby Fischer vann 12˝ : 8˝ í einvígi aldarinnar í Reykjavík sumariđ 1972. Hann afsalađi sér FIDE-heimsmeistaratitlinum og Anatolí Karpov, sem var krýndur voriđ 1975 varđi titilinn í einvígum viđ Kortsnoj árin 1978 og 1981.
Allir vissu á hvađa ferđ Garrí Kasparov var er hann vann áskorendakeppnina 1983-´84. Fyrsta einvígi hans af fimm gegn Karpov 1984-´84 lauk án niđurstöđu eins og frćgt varđ en ákveđiđ ađ ţeir myndu tefla aftur og Kasparov vann haustiđ 1985 í 24 skáka einvígi, 13:11. Viđureignum hans viđ Karpov var ekki lokiđ; ţeir tefldu í London og Leningrad, í Sevilla á Spáni og loks í New York og Lyon. Kasparov stóđst allar atlögur.
Áriđ 1993 varđ klofningur í skákheiminum og tveir heimsmeistaratitlar í umferđ. Ţrettán árum síđar vann Kramnik Topalov í sameiningareinvígi en ári síđar náđi Indverjinn Anand titlinum og vann Topalov og Gelfand á nćstum árum. Svo kom Magnús Carlsen kom til skjalanna. Hann telst sextándi heimsmeistari sögunna
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 28. apríl 2018
Spil og leikir | Breytt 28.4.2018 kl. 08:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmta og sjötta umferđ Landsmótsins í skólaskák fóru fram í gćr. Spennan er gríđarleg í yngri flokki en ţar eru fimm keppendur efstir og jafnir og flest stefnir í aukakeppni. Birkir Ísak Jóhannsson (1957) stendur vel ađ vígi í eldri flokki. Í gćr fóru krakkarnir í Keiluhöllina í bođi Skáksambandsins og spiluđu keilu og borđuđu pizzu!
Eldri flokkur
Birkir Ísak Jóhannsson er efstur í eldri flokki međ 5,5 vinninga. Honum dugar jafntefli í lokaumferđinni til ađ vinna mótiđ. Óskar Víkingur Davíđsson (1962) og Stephan Briem (1915) eru í 2.-3. sćti međ 4,5 vinninga.
Yngri flokkur
Stađan í yngri flokki er ótrúleg. Fimm keppendur eru efstir og jafnir međ 4 vinninga. Ţađ eru Gunnar Erik Guđmundsson (1571), Róbert Luu (1687), Örn Alexandersson (1463), Benedikt Briem (1670) og Stefán Orri Davíđsson (1414).
Verđi tveir eđa fleiri keppendur efstir og jafnir verđur aukakeppni. Ţađ stefnir flest í svo verđi rauinin. Mögulega geta orđiđ 4 keppendur efstir og jafnir međ 5 vinninga.
Sjöunda umferđ hefst kl. 10.
Spil og leikir | Breytt 6.5.2018 kl. 09:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2018 | 08:40
Sigurbjörn Björnsson er skákmeistari öđlinga 2018
Fyrir lokaumferđina voru Sigurbjörn og Ţorvarđur efstir og jafnir međ 5,5 vinning og gat enginn af keppendunum náđ ţeim ađ vinningum. Sigurbjörn stýrđi hvítu mönnunum gegn Kristni J. Sigurţórssyni (1744) og ţrátt fyrir mikinn stigamun varđ úr mikil baráttuskák ţar sem Kristinn hafđi í fullu tré viđ Fide-meistarann framan af skák. Svo fór ţó ađ styrkleikamunurinn sagđi til sín og Sigurbjörn sigldi sigrinum í höfn í endatafli sem var hvítu mönnunum ofviđa. Á sama tíma sá Ţorvarđur vart til sólar međ hvítt gegn Lenku sem ţjarmađi hart ađ Öđlingameistaranum 2012 og 2013. Lenka klárađi orrustuna af öryggi og ţví var ljóst ađ Ţorvarđur myndi ekki gera atlögu ađ titlinum ađ ţessu sinni.
Segja má ađ sigurinn hafi veriđ verđskuldađur hjá Sigurbirni sem tefldi heilt yfir af töluverđu öryggi í sínu fyrsta Öđlingamóti og verđur nú 17. skákmađurinn til ađ bera titil Öđlingameistara á ţeim 26 árum sem mótiđ hefur fariđ fram. Alls tóku 37 keppendur ţátt en nokkur stígandi hefur veriđ í mótinu undanfarin ár eftir fćkkun keppenda árin á undan. Keppendum er ţökkuđ ţátttakan og ţá fćr Ţorvarđur sérstakar ţakkir fyrir milligöngu um glćsilegar veigar á lokakvöldinu. Mótahaldinu lýkur formlega nćstkomandi miđvikudagskvöld međ Hrađskákmóti öđlinga ţar sem jafnframt fer fram verđlaunaafhending.
Ađ venju má nálgast öll úrslit ásamt skákunum á Chess-Results en ţađ var Dađi Ómarsson sem sló inn skákirnar hratt og örugglega.
4.5.2018 | 06:28
Óskar sigrađi á hrađkvöldi Hugins
Óskar Víkingur Davíđsson og Vigfús Ó. Vigfússon voru efstir og jafnir međ 8,5v á hrađkvöldi Hugins sem fram fór 30. apríl sl. Ţátttakendur voru sex og tefldu tvöfalda umferđ allir viđ alla. Óskar Víkingur vann innbyrđis viđureign ţeirra međ 1,5v gegn 0,5v en missti niđur hálfan vinning gegn bćđi Hjálmari Sigurvaldasyni og Stefáni Orra Davíđssyni á međan Vigfús vann alla ađra andstćđinga sína. Innbyrđis viđureigning vóg ţungt í stigútreikningnum svo Óskar hlaut fyrsta sćtiđ en Vigfús varđ annar. Ţriđji var svo Hjálmar Sigurvaldason međ 6,5v.
Tölvan sá um dráttinn í happdrćttinu og annađ skiptiđ í röđ kom upp talan 2. Óskar valdi pizzumiđa frá Dominos međan Vigfús hélt sig viđ Saffran. Nćsta hrađkvöld verđur mánudaginn 7. maí.
Lokastađan á hrađkvöldinu í chess-results.
3.5.2018 | 16:00
Héđinn sigrađi á alţjóđulegi móti í Flórída
Stórmeistarinn Héđinn Steingrímsson sigrađi á alţjóđlegu skákmóti sem fram fór dagana 27.-29. apríl í Flórída í Bandaríkjunum. Héđinn hlaut 4,5 vinninga í 5 skákum og vann t.d. gođsögnina Alexey Dreev í lokaumferđinni.
Lokastöđuna má nálgast hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2018 | 12:15
Alexander Oliver og Stefán Orri Reykjavíkurmeistarar í skólaskák
Skólaskákmót Reykjavíkur fór fram fyrir skemmstu í Laugalćkjarskóla. Alexander Oliver Mai, Laugalćkjarsóla, kom sá og sigrađi í eldri flokki. Vann allar sínar skákir. Mikil spenna var í yngri flokki en ţar vann Stefán Orri Davíđsson.
Eldri flokkur
Alexander Oliver Mai vann allar sínar skákir, fimm talsins. Óskar Víkingur Davíđsson, Ölduselsskóla, varđ annar og Sćmundur Árnason, Foldaskóla, varđ ţriđji.
Lokastöđuna má finna á Chess-Results.
Yngri flokkur
Spennan í yngri flokki var yfir mikil og töluvert um óvćnt úrslit. Svo fór ađ Stefán Orri Davíđsson, Öldusselsskóla, og Árni Ólafsson, Hlíđaskóla, komu jafnir í mark. Balthasar Máni Wedholm Gunanrsson, Ölduselsskóla, varđ ţriđji.
Lokastöđuna má finna á Chess-Results.
Tveir efstu keppendur á báđum flokkum unnu sér keppnisrétt í Landsmótinu í skólaskák sem hefst á morgun.
3.5.2018 | 07:55
Hilmir Freyr Íslandsmeistari í skólaskák 2017
Kandídatameistarinn Hilmir Freyr Heimisson er Íslandsmeistari í eldri flokki í skólaskák. Hann vann Vignir Vatnar Stefánsson í úrslitaeinvígi sem fram fór fyrir skemmstu á Chess.com ţar sem Hilmir býr erlendis. Einvígiđ sjálft fór 1-1 eftir tvö jafntefli en bráđabanaskákina vann Hilmir.
Vignir og Hilmir komu jafnir í mark á Landsmótinu í fyrra. Sjá nánar hér. Ađ ýmsum ástćđum dróst ađ ţeir tefldu til úrslita.
2.5.2018 | 09:14
Manar-mótiđ: Pistill frá Hilmi Frey
Isle of Man International
23. september til 1. október 2017
Mótiđ var haldiđ á the Villa Marina, í höfuđstađnum Douglas, sem er glćsilegt bygging og var í göngufćri frá hótelinu okkar. Ég tefldi í Masters flokki ásamt hópi Íslendinga, ég fékk stigahćrri andstćđinga í öllum umferđunum og endađi međ 3,5 af 9 og hćkkađi um 44,4 elóstig.
Í fjórđu umferđ vann ég skoska alţjóđlega meistarann Stephen Mannion (2320) og mig langar ađ sýna ţá skák.
1.d4 d5 2.Bg5 f6 3.Bd2 Nc6 4.c4 dxc4 5.e3 e5 6.Bxc4 exd4 7.Qb3 Nh6 8.Nf3 dxe3 9.Bxe3 Na5 10.Qa4+ c6 11.Be2 ţessi stađa hér er nú bara tölvustúderingar sem ég aflađi mér fyrir skákina og gaman ađ segja frá ţví en hér er ég međ klukkutíma og 35 mínútur á klukkunni og ákvađ ađ fara út í ágćta veđriđ sem ţarna var og kíkti á fallegu fjöllin, dró andann hćgt og rólega međan ađ andstćđingur minn var byrjađur ađ svitna ţar sem ađ hann var ađ detta í 20 mínútur, svo eftir dágóđa stund kom ég aftur inn og sá hann leika 11.b5 12.Bxb5 cxb5 13.Qe4+ Be6 14.Qxe6+ Be7 15.Bxh6 gxh6 hér er ég bara kominn međ yfirburđa stöđu og hann međ lélega peđastöđu, fullt af veikum reitum og međ engar skađabćtur fyrir ţađ og ţar af leiđandi varđ framhaldiđ bara tćknileg úrvinnsla. 16.O-O Qd7 17.Qe4 O-O 18.Qf4 Kg7 19.Nc3 Bd6 20.Qh4 b4 21.Ne4 f5 22.Nxd6 Qxd6 23.Rfd1 Qf6 24.Qxb4 Nc6 25.Qb7+ Kg8 26.Rac1 Rfc8 27.h3 Ne7 28.Rxc8+ Rxc8 29.Qxa7 Rc2 30.b4 Rb2 31.a3 Ra2 32.Qe3 Kg7 33.Re1 Ra1 34.Rxa1 Qxa1+ 35.Kh2 Nd5 36.Qa7+ Kf6 37.b5 Qb2 38.a4 Qb4 39.Qb8 Kf7 40.Qe5 Ne7 41.Qd4 Qa5 42.Ne5+ Ke6 43.f4 Nd5 44.Qc4 Qb6 45.Qc8+ Ke7 46.Qd7 +1-0.
1.5.2018 | 10:23
Nazi Paikidze bandarískur meistari
Nazi Paikidze varđ í gćr bandarískur meistari kvenna í skák. Hún vann hina 15 ára Annie Wang í úrslitaeinvígi 2-1. Paikidze hefur veriđ afar sigursćl á mótinu. Hann vann jafnframt áriđ 2016 og varđ önnur árin 2015 og 2017.
Sjá nánari umfjöllun á Chess.com.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 18)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.8.): 21
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 191
- Frá upphafi: 8779884
Annađ
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 102
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar