Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2017

Óvćntir forystusauđir í Dortmund

andreikin-bluebaum

Ţegar fjórum umferđum af sjö er lokiđ á Dortmund-mótinu eru Ţjóđverjinn Matthias Blubaum (2642) og Pólverjinn Radoslaw Wojtaszek (2736) nokkuđ óvćnt efstir. Ţeir hafa hlotiđ 2,5 vinninga. Ekki munar reyndar nema einum vinningi á efstu og neđstu mönnum en Vladimir Kramnik (2812) vermir botnsćtiđ.

Mótinu er framhaldiđ í dag. Ţá teflir Kramnik viđ MVL (2791). Í síđustu umferđ vakti stórfengleg varnartaflmennska Dmitry Andreikin gegn Blubaum mesta athygli.

Um gang mála má lesa ítarlega um á Chess24.

Mynd af heimasíđu mótsins (Georgios Souleidis).

 

 


Borgarskákmótiđ verđur haldiđ mánudaginn 14. ágúst

Borgarskakmotid_047_2016

Borgarskákmótiđ fer fram mánudaginn 14. ágúst, og hefst ţađ kl. 16:00. Mótiđ fer fram venju samkvćmt í Ráđhúsi Reykjavíkur og standa  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagiđ Huginn, ađ mótinu, eins og ţau hafa gert síđustu ár. Gera má ráđ fyrir ađ margir af sterkustu skákmönnum ţjóđarinnar taki ţátt í ţví. Skákmenn eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst eftir ađ opnađ verđur fyrir skráningu. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga og er öllum opiđ og er ţátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is

Einnig er hćgt ađ skrá sig í í síma 866 0116 (Vigfús) og 862 0099 (Kjartan). Skráningu á skákstađ verđur lokađ kl. 15:50 fyrir mótiđ. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik. Ţetta er í 32. sinn sem mótiđ fer fram og er ţetta iđulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigrađi Helgi Áss Grétarsson, sem ţá tefldi fyrir Suzuki bíla.

Verđlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.


Magnús Gunnarsson látinn

Magnús Gunnarsson

Selfyssingurinn Magnús Gunnarsson lést 16. júlí sl. 74 ára ađ aldri. Magnús var fćddur 17. júní 1943. Magnús var sterkur skákmađur og tefldi oft á tíđum á fyrsta borđi Selfyssinga á Íslandsmóti skákfélaga. Hann var fastagestur á öđlingamótum TR á međan heilsan leyfđi. Magnús var einnig sterkur bréfskákmađur. 

Jarđarförin verđur í Selfosskirkju á morgun, föstudaginn, 21. júlí, kl 15:00.


Hans Tikkanen sćnskur meistari

437-6_2_Hans_Tikkanen_3_SM_2017_4_Sverigemästarklassen_1_lowres.jpg

Ritstjóra varđ heldur á betur á messunni um daginn ţegar frétt ţess efnis ađ Oskar Von Bahr hefđi orđiđ sćnskur meistari í skák. Ritstjóri horfđi ţá á úrslit áskorendaflokksins! Skákmeistari Svíţjóđvar varđ Hans Tikkanen (2503) en hann hlaut 6,5 vinninga í 9 skákum. Í 2.-3. sćti urđu Tiger Hillarp Persson (2509) og Nils Grandelius (2642) urđu í 2.-3. sćti međ 6 vinninga.

Fjórđi meistaratitill Tikkanens. 

Lokastöđuna má finna hér.

Nánar á heimasíđu sćnska skáksambandsins.


Róbert Lagerman er hrađskákmeistari Vinaskákfélagsins 2017

IMG_1706

Frábćru skákmóti í Vin ţ.e. Opna meistaramót Vinaskákfélagsins í hrađskák var haldiđ mánudaginn 17 júlí 2017. Fjölmenni komu á mótiđ eđa 26 tóku ţátt. Keppt var bćđi úti og inni og tókst mótiđ einstaklega vel. Starfsfólk Vinjar tók vel á móti skákmönnum međ kaffi, vöfflum og eplakaka međ ís. Viđ í Vinaskákfélaginu ţökkum starfsfólki fyrir frábćrar veitingar.

IMG_1703-300x2251. sćti.

Sigurvegari varđ Ólafur Thorsson međ 5,5 vinninga.

2. sćti

Í öđru sćti og efstur Vinaskákfélags manna varđ Róbert Lagerman međ 5 vinningar og fékk hann eignarbikar í sinn hlut. Róbert Lagerman er ţví hrađskákmeistari Vinaskákfélagsins 2017.

3. sćti

Ţriđji varđ svo Eiríkur K. Björnsson međ 4,5 vinninga.

IMG_1693-300x225Hópmynd

Í lokin var tekin hópmynd af ţáttakendum.

Lokastöđuna má finna á Chess-Results.

Nánar á heimasíđu Vinaskákfélagsins.


Opna meistaramót Vinaskákfélagsins í hrađskák fer fram í dag

Forseti Vinaskákfélagsins ađ tafli í Vin

Opna meistaramót Vinaskákfélagsins í hrađskák verđur haldiđ í Vin, Hverfisgötu 47 mánudaginn 17 júlí klukkan 13:00.

Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútur á skák. Eins og undanfarin sumur ţá verđur teflt bćđi inni og úti ef veđur leyfir.

Ađ hćtti hússins ţá verđa veittar frábćrar veitingar í hlé.

Skákstjóri verđur Róbert Lagerman. Verđlaun verđa međ hefđbundum hćtti, gull, silfur og bronze peningar og einnig verđur í verđlaun eignarbikar til efsta manns í Vinaskákfélaginu.

Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn). Einnig er hćgt ađ skrá sig á stađnum. Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér

Mótiđ er reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga. 

 


Radjavob sigurvegari Genfar-mótsins

Clipboard01

FIDE Grand Prix-mótinu í Genf lauk í gćr. Aserinn Teimour Radjabov (2724) kom sá og sigrađi á móintu. Hann hlaut 6 vinninga í 9 skákumm. Í 2.-3. sćti međ 5,5 vinning urđu rússnesku landsliđsmennirir Alaxander Grischk (2761) og Ion Nepomniachtchi (2742). 

Stađan á Grand seríunni en ţú ađ Mamedyarova (340) en Grischuk (336) eru efstir. Ţeir hafa hins vegar lokiđ ţátttöku - hafa teflt í ţremur Grand Prix-mótinu. Radjabov (241), Ding Liren (240) og MVL (211) sem allir tefla í loka Grand Prix-mótinu í nóvember getađ náđ ţeim ađ stigum. Í bođi eru tvö sćti á áskorendafmótinu sem fram fer ađ ári. 

Nánar á Chess.com.

 


Skákţáttur Morgunblađsins: Kasparov snýr aftur

GFQ11GCMTŢađ kemur fáum á óvart núorđiđ ađ Magnús Carlsen vinni mót en yfirburđir hans voru miklir á öđu móti bikarsyrpunnar sem lauk um síđustu helgi í Leuven í Belgíu. Hann tapađi ađeins tveim skákum og viningshlutfall hans var tćplega 75%. Í Belgíu – eins og í París á dögunum – tefldu 10 skákmenn einfalda umferđ at-skáka og tvöfalda umferđ hrađskáka, samtals 27 skákir. Tvö stig gefin fyrir sigur í at-skákinni og eitt fyrir sigur í hrađskákunum sem voru helmingi fleiri og ţannig reynt ađ leita jafnvćgis. Lokaniđurstađan varđ ţessi:

1. Carlsen 25,5 stig ( 20 v. af 27 ) 2. So 22,5 stig 3. Vachier-Lagrave 22 stig 4. Giri 20 stig. Neđar komu Kramnik, Aronjan, Nepomniachttchi, Anand, Ivanchuk og Jobava.

Á HM í hrađskák undanfarin ár hafa tímamörkin veriđ 3 2 sem hentar betur yngri keppendunum. Ţess vegna fannst ýmsum ţađ vel til fundiđ hjá Garrí Kasparov, sem er einn skipuleggjenda syrpunnar, ađ bćta nokkrum sekúndum viđ klukkuna! Sá grunur lćddist ađ mönnum ađ nú vćri svo komiđ fyrir ţessum gamla baráttujaxli ađ hann saknađi baráttunnar viđ skákborđiđ. Hann hćtti á toppnum áriđ 2005 til ađ einbeita sér ađ rússneskum stjórnmálum. Ţess vegna voru flestir búnir ađ afskrifa ţann möguleika ađ hann sneri aftur til keppni. Eđa ţar til á miđvikudaginn ađ hann upplýsti ađ hann ćtlađi sér nú ađ taka fullan ţátt í bikarsyrpunni, Grand chess tour, og fyrsta verkefni hans vćri ađ tefla á ţriđja mótinu sem hefst 14. ágúst nk. í Saint Louis í Bandaríkjunum.

Skákir međ styttri umhugsunartíma sem sýndar hafa veriđ beint á fjölmörgum vefsvćđum hafa ótvírćtt skemmtilgildi. Mistökin eru mýmörg í nánast hverri skák og ţau gera baráttuna bara skemmtilegri! Á lokaspretti mótsins í Belgíu, ţ.e. í hrađskákunum, atti Magnús kappi viđ Frakkann Vachier-Lagrave. Ekki leist sérfrćđingum Chess24.com ţeim Yasser Seirawan og Nigel Short vel á byrjunataflmennsku Magnúsar ţó ađ sá síđarnefndi hefđi raunar bent á ađ svona hefđu enskir skákmenn teflt á fyrsta opinbera skákmótinu sem haldiđ var í London áriđ 1851.

Magnús var ekkert ađ telja peđin en peđ sem braust fram til d6 ţrengdi mjög ađ stöđu svarts og réđi síđar úrslitum:

Magnús Carlsen – Vachier Lagrave

Enskur leikur

1.c4 e5 2. e3 Rf6 3. Rc3 Rc6 4. g4 Bb4 5. g5 Bxc3 6. bxc3 Rg8 7. d4 Dxg5 8. d5 Rd8 9. d6 c6 10. Rf3 Df5 11. Hg1 Re6 12. e4!? Dxe4 13. Be3

Hótar ađ fanga drottninguna međ 13. Bd3.

13.... Df5 14. Rg5 Rf4 15. Bxf4 Dxf4 16. Hg4 Df6 17. Re4 Dh6 18. Df3 Rf6?

Misráđinn leikur. Svarta stađan er prýđisgóđ eftir 18.... g6.

GFQ11GHON19. Hxg7! Dxg7 20. Rxf6+ Kd8 21. Df5!

Skyndilega er hvítur kominn međ hartnćr unniđ tafl.

21.... He8 22. Rxe8 Kxe8 23. c5 b5 24. Bd3 f6 25. Ke2 Kf7 26. Hh1 Hb8 27. Kf1 Dg6 28. Df3 Dh6 29. Hg1 Ba6 30. Dg4 Hd8 31. Hg3 e4 32. Dxe4 He8 33. Dg4 Bc8 34. Kg2 Dg5 35. Df3 Dd5 36. Dxd5 cxd5 37. Bxh7 He5 38. f4 He2 39. Kf1 Hxh2 40. Bg8+ Kf8 41. Bxd5 Hh8 42. Kf2

Skákvélarnar fundu enga raunverulega galla á taflmennsku hvíts allt frá 19. leik. Nú rćđst kóngurinn fram og gerir út um tafliđ.

42.... Ba6 43. Ke3 Ke8 44. Kd4 Kd8 45. Hg7 Bc8 46. c6 dxc6 47. Bxc6 a5 48. Kc5

GEQ11GHOR– Síđustu leikina léku keppendur leifturhratt en sú sá Vachier-Lagrave sćng sína uppreidda og gaf skákina.

------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 8. júlí 2017

Skákţćttir Morgunblađsins


Dortmund-mótiđ byrjar í dag - nćr Kramnik Carlsen?

dortmund-players

Dortmund Sparkassen Chess Meeting er eitt af stóru mótunum ár hvert. Ţađ hefst í dag og međal keppenda er sjálfur Hr. Dortmund, Vladimir Kramnik (2812) sem hefur tíu sinnum sigrađ á mótinu. Međal annarra keppenda eru MVL (2791) og Andreikin (2737).

Kramnik hefur nú tćkifćri á ađ ná toppsćti heimslistans međ frábćrri frammistöđu af Magnusi Carlsen (2822) en nćsta mót heimsmeistarans er Sinquefield Cup í nćsta mánuđi.

 


Opna meistaramót Vinaskákfélagsins í hrađskák fer fram á mánudaginn

Forseti Vinaskákfélagsins ađ tafli í Vin

Opna meistaramót Vinaskákfélagsins í hrađskák verđur haldiđ í Vin, Hverfisgötu 47 mánudaginn 17 júlí klukkan 13:00.

Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútur á skák. Eins og undanfarin sumur ţá verđur teflt bćđi inni og úti ef veđur leyfir.

Ađ hćtti hússins ţá verđa veittar frábćrar veitingar í hlé.

Skákstjóri verđur Róbert Lagerman. Verđlaun verđa međ hefđbundum hćtti, gull, silfur og bronze peningar og einnig verđur í verđlaun eignarbikar til efsta manns í Vinaskákfélaginu.

Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn). Einnig er hćgt ađ skrá sig á stađnum. Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér

Mótiđ er reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga. 

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 68
  • Sl. sólarhring: 73
  • Sl. viku: 234
  • Frá upphafi: 8764677

Annađ

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 143
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband