Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2017
14.4.2017 | 07:59
Bráđfjörugt Bikarmót SA
Hiđ árlega Bikarmót Skákfélagsins hófst í gćr, skírdag. 17 keppendur mćttu til leiks. Mótiđ er útsláttarkeppni og falla menn út eftir ţrjú töp. Nokkuđ er fariđ ađ saxast á keppendahópinn, en ţó voru enn tíu eftir ţegar upp var stađiđ eftir sex umferđir í gćr. Tefldar eru 15 mínútna skákir.
Mótinu verđur framhaldiđ í dag, föstudaginn langa kl. 13. Í sjöundu umferđ eigast ţessi viđ (tapađar skákir í sviga):
- Benedikt Briem(2,5)-Ólafur Kristjánsson(2)
- Óskar Long(2,5)-Áskell Örn Kárason(1,5)
- Eymundur Eymundsson(1,5)-Sigurđur Arnarson(2)
- Ulker Gasanova(2,5)-Jón Kristinn Ţorgeirsson(1)
- Haki Jóhannesson(2,5)-Haraldur Haraldsson(1,5)
Fyrirkomulag mótsins er óvenjulegt, međ útsláttarfyrirkomulagi eins og lýst er hér ađ framan. Dregiđ er í hverja umferđ og geta sömu keppendur ţví mćst oft og ţessvegna haft sama litinn margar skákir í röđ. Ţađ heyrđi til sérstakra tíđinda í gćr ađ ţeir Óskar Long Einarsson og Stephan Briem drógust saman í fjórum fyrstu umferđunum. Óskar vann ţrjár skákir af fjórum, ţannig ađ Stephan fékk ekki fleiri andstćđina á mótunu. Líkindurekingssérfrćđingur Skákfélagsins telur ađ líkurnar á ađ ţetta gerist hafi veriđ a.mk. 1:70000. Fleiri keppendur rákust ítrekađ hver á annan, en allt setti ţetta skemmtilegan brag á mótiđ, sem vćntnalega lýkur á morgun.
Sjá nánar á heimasíđu SA.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:00 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2017 | 11:41
Helgi Áss er hrađskákmeistari öđlinga 2017
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson bar sigur úr býtum á Hrađskákmóti öđlinga sem fór fram í gćrkveld en hann lauk keppni međ fullt hús vinninga í skákunum sjö. Helgi er ţví hrađskákmeistari öđlinga á jómfrúarári sínu sem háttvirtur öđlingur. Fide-meistarinn Ingvar Ţór Jóhannesson koma annar í mark međ 5,5 vinning en Ingvar er sömuleiđis á sínu fyrsta ári í Öđlingamótunum. Jafnir í 3.-5. sćti međ 4,5 vinning urđu Bragi Halldórsson, Arnaldur Loftsson og Ţór Valtýsson ţar sem Bragi hlaut 3. sćtiđ ađ loknum stigaútreikningi.
Ađ móti loknu fór einnig fram verđlaunaafhending fyrir skákmót öđlinga sem lauk á dögunum. Ţar urđu efstir og jafnir međ 6 vinninga Björgvin Víglundsson og Ingvar Ţór ţar sem Björgvin varđ ofar á stigum. Ţorvarđur F. Ólafsson varđ ţriđji međ 5,5 vinning. Björgvin er aukinheldur Íslandsmeistari skákmanna 50 ára og eldri en öđlingamótiđ var einnig Íslandsmót ţess aldurshóps í ár.
- Chess-Results (Öđlingamót)
- Chess-Results (Hrađskákmót)
- Umfjöllun um Skákmót öđlinga
Nánar á heimasíđu TR.
13.4.2017 | 07:44
Óskar Víkingur sigrađi á páskaeggjamóti Hugins
Páskaeggjamót Hugins í Mjódd fór fram í 25 sinn síđastliđinn mánudag 10.apríl. Keppendur voru 49 sem gerir mótiđ eitt af ţeim best sóttu. Ađ ţessu sinni var umhugsunartíminn 5 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik í stađ 7 mínútna umhugsunartíma eins og veriđ hefur hingađ til en umferđirnar voru sjö eins og áđur.
Ţađ var djús og vatn fyrir keppendur en heitt á könnunni fyrir foreldra og var glatt á hjalla allan tímann, Eins og og oft áđur fengust afgerandi úrslit ţví í ţetta sinn sigrađi Óskar Víkingur Davíđsson örugglega á mótinu međ ţví ađ vinna alla sjö andstćđinga sína nokkuđ örugglega. Ţótt Óskar hafi áđur unniđ til verđlauna á mótinu er ţetta hans fyrsti sigur og aldrei ađ vita nema ţeir verđi fleiri síđar. Ţađ var jöfn barátta um nćstu sćti og ţar gerđu margir tilkall til verđlauna en ţegar upp var stađiđ var Gunnar Erik Guđmundsson einn í öđru sćti međ 6v. Hann tefldi vel á mótinu og tapađi ađeins fyrir Óskari. Ţar sem Gunnar Erik var sá eini ţeirra sem var međ 5v fyrir lokaumferđina, sem náđi sér í vinning í síđustu umferđinni voru margir jafnir međ 5v í lokin eđa samtals 10 skákmenn. Af ţeim var Magnús Hjaltason efstur á stigum og hlaut hann ţriđja sćtiđ.
Veitt voru verđlaun í fjórum flokkum. Ţremur aldursflokkum. Ţrír efstu keppendur komu úr flokki ţeirra sem fćddir voru 2005 2008 en ţađ voru eins og fram hefur komiđ Óskar Víkingur Davíđsson, Gunnar Erik Guđmundsson og Magnús Hjaltason. Í elsta aldursflokkum ţeirra sem fćdd voru 2001-2004 voru efst ţau Karl Anderson Claesson, Rakel Tinna Gunnarsdóttir og Steindór Sólon Arnarson.
Í flokki ţeirra sem fćdd voru 2009 og síđar hlutu verđlaun ţeir Einar Dagur Brynjarsson, Egill Breki Pálsson og Gunnar Freyr Valsson.
Stúlknaverđlaun fengu Iđunn Helgadóttir, Batel Goitom Haile og Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir. Ţćr tefldu á efstu borđum allt mótiđ og stóđu sig mjög vel og gáfu strákunum ekkert eftir.
Auk ţess fékk efsti keppandi í hverjum aldursflokki páskaegg í verđlaun. Ef sá efsti hafđi unniđ páskaegg í ađalverđlaun fékk sá nćsti í aldursflokknum páskaeggiđ.
Í lokin voru sjö páskaegg dregin út og duttu ţar í lukkupottinn ţau Árni Ólafsson, Kiril Alexander Igorson, Alfređ Dossing, Arnór Gunnlaugsson, Adam Omarsson, Víkingur Eldon Arnarson og Bergţór Helga Gunnarsdóttir. Ţau sem ekki hlutu verđlaun á mótinu voru svo leyst út međ páskaeggi nr. 3 ţannig ađ allir fóru ánćgđir heim. Mótsstjórar voru Alec Elías Sigurđarson, Erla Hlín Hjálmarsdóttir og Vigfús Ó. Vigfússon.
Eftirtaldir hlutu verđlaun á páskaeggjamótinu:
Flokkur 2001-2004:
- Karl Anderson Claesson, 4v
- Rakel Tinna Gunnarsdóttir, 3,5v
- Steindór Sólon Arnarson, 3v
Flokkur 2005-2008:
- Óskar Víkingur Davíđsson, 7v
- Gunnar Erik Guđmundsson, 6v
- Magnús Hjaltason, 5v
Flokkur 2009 og yngri
- Einar Dagur Brynjarsson, 4v
- Egill Breki Pálsson, 4v
- Gunnar Freyr Valsson, 4v
Stúlkur:
- Iđunn Helgadóttir, 5v
- Batel Goitom Haile, 5v
- Ylfa Ýr Welding Hákonardótttir, 4v
Árgangaverđlaun:
- Árgangur 2011: Jósef Omarsson
- Árgangur 2010: Leon Bjartur Sólar Arngrímsson
- Árgangur 2009: Bjartur Ţórisson (Einar Dagur Brynjarsson)
- Árgangur 2008: Soffía Arndís Berndsen
- Árgangur 2007: Rayan Sharifa (Gunnar Erik Guđmundsson)
- Árgangur 2006: Stefán Orri Davíđsson
- Árgangur 2005: Anton Breki Óskarsson (Óskar Víkingur Davíđsson)
- Árgangur 2004: (Steindór Sólon Arnarson)
- Árgangur 2003: Tinna Chloé Kjartansdóttir (Rakel Tinna Gunnarsdóttir)
- Árgangur 2002: Sigurđur Arnar Garđarsson
- Árgangur 2001: (Karl Anderson Claesson)
Gert verđur hlé á barna- og unglingaćfingum fram yfir páskahátíđina. Nćsta ćfing verđur mánudaginn 24. apríl og hefst kl. 17.15. Ćfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengiđ er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á ţriđju hćđ.
Nánar á heimasíđu Hugins.
12.4.2017 | 08:56
Páskamót KR - Dagur Ragnarsson vann međ fullu húsi
Hinn ungi og örtvaxandi skákmeistari Dagur Ragnarsson gerđi sér lítiđ fyrir og vann Stóra-Páskamót KR međ fullu húsi eđa 13 vinningum af 13 mögulegum. Vart er hćgt ađ gera betur og ţar međ skaut hann 22 öđrum ţátttakendum ref fyrir rass međ sannfćrandi hćtti. Tómas Björnsson varđ annar međ 10.5 v.; Gunnar Freyr Rúnarsson ţriđji međ10 v. og Gauti Páll Jónsson fjórđi međ 9.5 v. en eftir ţađ fór ađ teygjast úr lestinni.
Svava Ţorsteinsdóttir varđ efst kvenna en Björgvin Kristbergsson rak lestina og fékk páskaegg í sárabćtur. Fleiri voru leystir út međ ţeim hćtti eđa duttu í lukkupottinn. Skákdeildin ţakkar gestum og félögum sínum ţátttökuna. Teflt er í KR ölll mánudagskvöld kl. 19.30 og á laugardagsmorgnum kl. 10.30. Veri gestir velkomnir.
Međf. er myndskeiđ frá mótinu frá hendi GRK
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2017 | 07:00
Hrađskákmót öđlinga fer fram í kvöld
Hrađskákmót öđlinga fer fram miđvikudaginn 12. apríl í félagsheimili TR ađ Faxafeni 12. Mótiđ hefst kl. 19.30 og er opiđ fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mín + 2 sek á leik (umferđum kann ađ vera fjölgađ í níu ef nćg ţátttaka verđur). Í lok mótsins fer fram verđlaunaafhending fyrir Hrađskákmótiđ sem og Skákmót öđlinga sem lauk fyrir skemmstu.
Ţátttökugjald er kr. 1.000 og er í ţví innifaliđ ilmandi nýtt kaffi. Greiđa skal međ reiđufé viđ upphaf móts.
Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra (Fide) hrađskákstiga.
Núverandi Hrađskákmeistari öđlinga er Róbert Lagerman.
Skákmenn 40+ eru hvattir til ađ fjölmenna!
Skráning fer fram hér ađ neđan.
Skráningarform
Spil og leikir | Breytt 5.4.2017 kl. 09:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2017 | 10:47
Kirsan Ilyumzhinov enn forseti FIDE en nánast valdalaus
Stjórnarfundur var haldinn hjá FIDE í Aţenu í gćr. Niđurstađa ţess fundar var sú ađ Kirsan Ilyumzhinov heldur stöđu sinni sem forseti FIDE. Völd hans hafa hins vegar enn veriđ minnkuđ og eru í raun og veru nú engin. Öll raunverulegu völd eru í hendi varaforsetans Georgios Makropoulos.
Niđurstöđu fundar FIDE má finna á heimasíđu sambandsins.
Stađa Kirsan er ekki góđ. Orđrómur er um ađ hann vilji bjóđa sig aftur fram en međ á međan hann lista Bandaríkjamanna yfir óćskilega menn vegna tenglsa hans viđ Sýrland er stađa hans vonlaus.
Sögur segja ađ möguleika munu Karpov og Kasparov takast á um forsetastól FIDE. Hér áđur fyrr hafđi Kasparov yfirleitt ávallt betur í einvígum ţeirra en ţau einvígi fóru fram viđ skákborđiđ.
Ítarlega umfjöllun um stöđuna í FIDE má finna á Chess.com.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2017 | 10:05
Wesley So og Sabina Foisor skákmeistarar Bandaríkjanna
Bandaríska meistaramótinu í skák lauk í gćr međ sigri Wesley So. Hann fyrsti meistaratitilinn en Wesley So er fćddur í Filippseyjum en tók upp bandarískan ríkisborgararétt fyrir nokkrum árum. Wesley So varđ ásamt á mótinu ásamt Alexander Onichuk (2667) en ţeir hlutu 7 vinninga í 11 skákum. Frammistađa ţess síđarnefnda vekur nokkra athygli enda sló hann ţarna viđ Fabiano Caurana og Nikaru Nikamura sem urđu í 3.-5. sćti međ 6˝ vinning.
Bandaríkjamenn nota sama kerfi og viđ Íslendingar og láta tefla til úrslita međ styttri tímamörkum séu menn jafnir í efsta sćti. Ţar hafđi So betur í tveimur atskákum 1˝-˝ og ţví skákmeistari Bandaríkjamanna í fyrsta skipti.
Lokastađan (inniheldur aukakeppni)
Ekki ţurfti aukakeppni í kvennaflokki. Ţar vann Sabina Foisor sigur. Sabina ţessi tók ţátt í Reykjavíkurskákmótinu áriđ 2015.
Nánar um mótiđ á Chess24.
10.4.2017 | 23:25
Páskaeggjasyrpan: Háspenna og dramatík á ţriđja mótinu
Ţriđja og síđasta mótiđ í Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur fór fram í gćr og var ţađ fjölmennasta mótiđ til ţessa. Toppbarátta beggja flokka var ćsispennandi og réđust úrslit ekki fyrr en í lokaumferđinni. Einnig skapađist mikil spenna yfir ţví hver myndi hljóta flesta vinninga samanlagt í mótunum ţremur. Sú spenna komst ţó ekki í hálfkvisti viđ spennuna sem myndađist vegna allra páskaeggjanna sem biđu í gulu kössunum á kantinum eftir ađ komast í hendur verđandi eigenda sinna. Spurningum um stćrđ eggjanna, uppruna og innihald rigndi yfir skákstjórana svo minnti um tíma á hrađaspurningar í Gettu Betur.
Í yngri flokki hóf Anna Katarina Thoroddsen mótiđ af miklum krafti og gerđi sér lítiđ fyrir og vann fyrstu sex skákir sínar. Hennar helsti keppinautur, Einar Tryggvi Petersen, lenti í vandrćđum í 4.umferđ ţar sem hann varđ ađ játa sig sigrađan gegn Einari Degi Brynjarssyni. Einar Tryggvi hafđi halađ inn 5 vinninga ţegar hann mćtti taplausri Önnu Katarinu í síđustu umferđ. Ţar hafđi Einar Tryggvi betur og náđi ţar međ Önnu Katarinu ađ vinningum og skaust upp fyrir hana á stigum. Einar Tryggvi tryggđi sér ţví sigur í mótinu og Anna Katarina varđ í 2.sćti. Í 3.sćti lenti hinn ungi og efnilegi Leon Bjartur Sólar Arngrímsson en hann nćldi sér í 5 vinninga og tapađi einungis fyrir Einari Tryggva og Önnu Katarinu. Jöfn honum ađ vinningum voru Einar Dagur Brynjarsson, Soffía Berndsen, Bjartur Ţórisson og Katrín María Jónsdóttir, en öll voru ţau lćgri en Leon Bjartur á stigum. Stúlknaverđlaunin komu í hlut Soffíu Berndsen.
Katarina og Bjartur Ţórisson voru í toppbaráttu allra mótanna ţriggja og ţau röđuđu sér í ţrjú efstu sćtin í keppninni um samanlagđan vinningafjölda. Einar Tryggvi varđ hlutskarpastur međ 19 vinninga, Anna Katarina hlaut 17 vinninga og Bjartur Ţórisson varđ ţriđji međ 16,5 vinning. Stúlknaverđlaunin komu í hlut Soffíu Berndsen en hún fékk alls 14 vinninga í mótunum ţremur.
Í eldri flokki var ekki međ nokkru móti hćgt ađ sjá fyrir efstu sćtin fyrr en síđasta klukkan hafđi veriđ stöđvuđ. Benedikt Ţórisson, sem daginn áđur hafđi tryggt sér sćti í úrslitum í Barna Blitz hrađskákmótinu, hélt áfram ađ ná góđum úrslitum og vann međal annarra Ísak Orra Karlsson og Örn Alexandersson. Benedikt var efstur ásamt Gunnari Erik Guđmundssyni fyrir síđustu umferđ ţar sem ţeir mćttust í úrslitaviđureign. Ţar hafđi Gunnar Erik betur og tryggđi hann sér ţví sigur í mótinu međ 6 vinninga í 7 skákum. Gunnar Erik fór taplaus í gegnum mótiđ og leyfđi ađeins tvö jafntefli, gegn Benedikt Briem og Erni Alexanderssyni. Í 2.sćti varđ Örn Alexandersson međ 5,5 vinning og í 3.sćti, einnig međ 5,5 vinning, var Batel Goitom Haile. Benedikt Ţórisson hafnađi í 4.sćti međ 5 vinninga. Jafnir honum ađ vinningum, en lćgri á stigum, voru ţeir Karl Andersson Claesson og Gabríel Sćr Bjarnţórsson. Stúlknaverđlaunin komu í hlut Ásthildar Helgadóttur en hún lauk tafli međ 3,5 vinning.
Flesta samanlagđa vinninga í eldri flokki í mótunum ţremur fékk Batel Goitom Haile, alls 17,5 vinningur. Í 2.sćti varđ Gunnar Erik Guđmundsson međ 16 vinninga. Ţriđji varđ Árni Ólafsson međ 14 vinninga. Stúlknaverđlaunin komu í hlut Iđunnar Helgadóttur sem halađi inn 10 vinninga í mótunum ţremur.
Lukkan var međ Guđrúnu Fanneyju Briem í dag er hún var dregin út í happdrćttinu og hlaut hún ađ launum páskaegg nr.6.
Taflfélag Reykjavíkur ţakkar öllum ţeim fjölmörgu börnum sem lögđu leiđ sína í Faxafeniđ og tóku ţátt í ađ gera Páskaeggjasyrpuna áriđ 2017 ađ ţeim stórskemmtilega og eftirminnilega viđburđi sem raunin varđ. Nói Síríus fćr jafnframt miklar og góđar ţakkir fyrir ánćgjulegt samstarf.
Sjáumst ađ ári liđnu!
Nánari úrslit og stöđu í yngri flokki má nálgast hér.
Nánari úrslit og stöđu í eldri flokki má nálgast hér.
10.4.2017 | 13:00
Stóra páskaeggjamót KR fer fram í kvöld
Ţađ er jafnan hart barist á skákmótunum í KR- heimilinu hvort heldur er á mánudagskvöldum eđa árdegismótunum á laugardagsmorgnum. Ţađ sem af er ári hafa margir frćknir kappar fagnađ ţar glćstum sigrum eđa hafnađ í öđru sćti ella eđa enn neđar. Međal sigursćlla keppenda undanfariđ hafa veriđ Magnús Sigurjónsson, Jón G. Briem, Guđfinnur Kjartansson, Stefán Ţormar, Gunnar Gunnarsson, Bjarni Hjartarson o.fl. ađ ógleymdum Björgvini Víglundssyni, tvöföldum Íslandsmeistara (bćđi 50+ og 65 ára og eldri) sem gerđi sér lítiđ fyrir og vann kapptefliđ um Friđrikskónginn međ fullu húsi fyrr í vetur.
Á mánudagskvöldiđ kemur verđur svo haldiđ ţar hiđ árlega Kapp- og Happ páskaeggjamót, ţar sem 3 risa páskaegg frá sćlgćtisgerđinni SAMBÓ verđa í vinning auk fjölda annarra girnilegra nammieggja frá GÓU. Bćđi sigurvegarar í einstökum aldursflokkum karla og kvenna geta gert sér góđar vonir um ađ fara ekki tómhentir heim og eins ţeir sem detta óvćnt í lukkupottinn í mótslok ţegar darrađardansinum lýkur.
Um er ađ rćđa 7 mínútna 1113 umferđa alvöru hrađskákmót, eftir keppendafjölda. Ýtt verđur á klukkurnar kl. 19.30 og allir sem taflmanni geta valdiđ hjartanlega velkomnir til ţátttöku.
Spil og leikir | Breytt 7.4.2017 kl. 13:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2017 | 07:00
Páskaeggjamót Hugins fer fram í kvöld
Páskaeggjamót Hugins verđur haldiđ í 25. sinn mánudaginn 10. apríl 2017, og hefst tafliđ kl. 17, ţ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsćfingar. Páskaeggjamótiđ kemur í stađ mánudagsćfingar. Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Mótiđ er opiđ öllum krökkum á grunnskólaaldri. Skráningarform er er á skak.is og eru vćntanlegir ţátttakendur beđnir um ađ skrá sig til ađ auđvelda undirbúning mótsins. Mótiđ verđur reiknđ til alţjóđlegra hrađskákstiga.
Allir ţátttakendur keppa í einum flokki en verđlaun verđa veitt í tveimur ađskildum flokkum. Páskaegg verđa í verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, bćđi í eldri flokki (fćddir 2001 2004) og yngri flokki (fćddir 2005 og síđar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fćr einnig páskaegg sem og efstu ţrjár stúlkurnar á mótinu. Ađ auki verđa tvö páskaegg dregin út. Enginn fćr ţó fleiri en eitt páskaegg. Lítiđ páskaegg verđur svo fyrir ţá sem ekki vinna til verđlauna.
Páskaeggjamótiđ verđur haldiđ í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Fröken Júlíu en salur félagsins er á ţriđju hćđ hússins.
Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Spil og leikir | Breytt 2.4.2017 kl. 22:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 1
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 108
- Frá upphafi: 8778232
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 77
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar