Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2017

Anish Giri međ klukkufjöltefli á morgun í GAMMA - fjármálaráđherra međal andstćđinga

Anish-Giri-victorious-in-the-longest-game-of-the-day

Ofurstórmeistarinn Anish Giri (2771) verđur međ klukkufjöltefli á morgun. Međal andstćđinga hans verđur fjármálaráđherrann Benedikt Jóhannesson. Fjöltefliđ fer fram í höfuđstöđvum GAMMA, Garđastrćti 37, og hefst kl. 13:00. Ráđherrann var um skeiđ međal efnilegustu skákmanna landsins áđur en önnur hugđarefni tóku viđ. Friđrik Ólafsson, fyrrverandi forseti FIDE, leikur fyrsta leik fjölteflisins.  

Andstćđingar Giri í fjölteflinu verđa engin lömb ađ leika sér viđ. Elstur ţeirra verđur Gunnar Gunnarsson, 83 ára, fyrrum Íslandsmeistari í skák (áriđ 1966) og fótbolta međ Val (áriđ 1956) og landsliđskonurnar Guđlaug Ţorsteinsdóttir og Hrund Hauksdóttir

Andstćđingar Giri í fjölteflinu verđa sem hér segir:

  1. Benedikt Jóhannesson
  2. Bragi Halldórsson
  3. Gauti Páll Jónsson
  4. Guđlaug Ţorsteinsdóttir
  5. Gunnar Björnsson
  6. Gunnar Kr. Gunnarsson
  7. Haraldur Haraldsson
  8. Hrund Hauksdóttir
  9. Óskar Víkingur Davíđsson
  10. Stephan Briem
  11. Svava Ţorsteinsdóttir

Umhugsunartíminn verđur 45 mínútur á mann.

Áhorfendur eru hjartanlega velkomnir! 


Birkir Karl endađi í ţriđja sćti

Birkir Karl Sigurđsson (1851) endađi í ţriđja sćti á skákmóti í Ástralíu sem lauk í gćr. Birkir Karl hlaut 5˝ vinning í sjö skákum.

Lokastöđuna má finna á Chess-Results.

Heimasíđa mótsins.


Mads Andersen skákmeistari Danmerkur

Mads_Andersen-edFćreyingar og Danir hafa haldiđ ţeirri venju ađ hafa sín meistaramót um páska. Landsliđsflokki Dananna lauk í gćr. Danski stórmeistarinn Mads Andersen (2565) kom sá og sigrađi og hlaut 7˝ vinning í 9 skákum. Annar varđ Allan Stig Rasmussen (2533) međ 7 vinninga og ţriđji varđ Jesper Söndergard Thybo (2739) međ 5˝ vinning.

Heimasíđa mótsins


Páskamót SA fer fram í dag

Sćlir félagar í lok páskaveislunnar mánudaginn 17 apríl kl 13:00 bjóđum viđ upp á Skákveislu. Páskahrađskáksmótiđ. Nú ríđur á ađ menn láti sig ekki vanta, heldur mćti hressir og kátir eftir páskeggjaátiđ og brenni nokkrum kaloríum viđ skákborđiđ. Ţađ mćttu 17 keppendur á Bikarmótiđ og nú stendur til ađ slá ţá tölu út. Mótiđ er opiđ öllum sem kunna mannganginn.

Sjá nánar á heimasíđu SA.


Helgi Dam skákmeistari Fćreyja

FM2017_top3_landslidsbolkur-1050x525

Helgi Dam Ziska varđ í gćr skákmeistari Fćreyinga. Helgi vann öruggan sigur en hann hlaut 4˝ vinning í 6 skákum. Fjórir skákmenn tóku ţátt í landslisđflokki og tefldu tvöfalda umferđ. Hřgni Egilstoft Nielsen varđ annar međ 3 vinninga og John Rřdgĺrd ţriđji međ 2˝ vinning.

Ţetta er ţriđji meistaratitill Helga en hann hefur ekki teflt svo oft á mótinu. Hann vann mótiđ síđast 2011.

Um 40 skákmenn tóku ţátt í mótinu sem fram fór um páskana. 

Nánar á heimasíđu fćreyska skáksambandsins.

 


GRENKE-mótiđ hófst í gćr - Carlsen međ nýtt útlit

caruana-hou-yifanGRENKE-mótiđ hófst í Karlsruhe í Ţýskalandi í gćr. Átta skákmenn taka ţátt og ţar af bćđi heimsmeistarar karla og kvenna. Carlsen mćtti međ "nýtt útlit" og gerđi jafntefli viđ Ţjóđverjann Matthias Bluebaum (2634) í fyrstu umferđ. Hou Yifan gerđi sér hins vegar lítiđ fyrir og vann Fabiano Caruana (2817) í fyrstu umferđinni. Caruana hefur ekki náđ sér strik undanfariđ og er nú kominn niđur 2800 skákstig á lifandi listanum

magnus-c24

 

Önnur umferđ hefst kl. 13 og ţá teflir Carlsen viđ Levon Aronian (2774). 

GRENKE-mótiđ fer fram í Karlsruhe og Baden Baden dagana 15.-22. apríl. Takmörkuđ umfjöllun verđur um mótiđ á Skák.is vegna árekstur ţess viđ GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ. Áhugasömum er bent á Chess.24

GRENKE-mótiđ í ár varđ til ţess ađ Henrik Carlsen, fađir heimsmeistarans, getur ađ ţessu sinni ekki tekiđ ţátt í Reykjavíkurskákmótinu ţar sem hann fylgir syni sínum á flest mót. Hann lofar hins vegar komu sinni ađ ári!

 


Skákţáttur Morgunblađsins: Guđmundur Gíslason efstur í áskorendaflokki Íslandsmótsins

GPS114AK4Í keppni áskorendaflokks Skákţings Íslands sem fram fer í Stúkunni á Kópavogsvelli ţar sem keppt er um tvö sćti í landsliđsflokki hefur Ísfirđingurinn Guđmundur Gíslason unniđ allar skákir sínar og er 1 ˝ vinningi á undan Jóhanni Ingvasyni og Lenku Ptacnikovu sem eru međ 3 ˝ vinning. Međ ţrjá vinninga eru nokkrir, ţ.ám. Jón Kristinsson, eini keppandinn sem orđiđ hefur Íslandsmeistari en ţađ gerđist árin 1971 og aftur 1974. 

Óvćnt úrslit á bandaríska meistaramótinu

Spćnski leikurinn er eins og margir vita nefndur eftir spćnskum presti, Ruy Lopez. Hann var samfara miklum breytingum sem urđu á iđkun skákar ţegar styrkur drottningarinnar var aukinn á skákborđinu en breytingin er rakin til hylli Ísabellu Spánardrottningar sem eins og sagan greinir frá greiddi götu Kristófers Kólumbus. Eftir níu algengustu leiki ţess spćnska á svartur marga valkosti og einn ţeirra sem virkar svolítiđ skringilega er afbrigđi Ungverjans Breyer og byggist á ţví ađ riddara er leikiđ upp í borđ. 

Vinur okkar Boris Spasskí, sem varđ áttrćđur 30. janúar sl., tefldi Breyer-afbrigđiđ af slíkum ţokka ađ unun var á ađ horfa. En ţar kom ađ hann tapađi; í 10. einvígisskák gegn Fischer í Laugardalshöllinni um verslunarmannahelgina 1972 og aftur 20 árum síđar í fyrstu skák endurkomueinvígis ţeirra í Júgóslavíu. Spasskí lagđi meira til ţróunar afbrigđisins međ hvítu en flesta grunar; í áskorendaeinvígi sem hann háđi viđ Lajos Portisch áriđ 1977 vann hann lykilskák međ slíkum glćsibrag ađ mótspyrna Ungverjans hrundi. Á bandaríska meistaramótinu í St. Louis kom eiginlega „systurskák“ ţessarar viđureignar. Wesley So heldur naumri forystu en stórskytturnar Hikaru Nakamura og Fabiano Caruana hafa átt í basli og sá síđarnefndi missti sennilega af lestinni í keppni um efsta sćtiđ ţegar hann tapađi í 7. umferđ fyrir lítt ţekktum Úkraínumanni sem náđi viđ ţađ efsta sćti ásamt So. Stađan á toppnum:

1. – 2. So og Zherebukh 4 ˝ v. (af 7) 3. – 4. Akobian og Nakamura 4 v. 5. – 9. Robson, Caruana, Shankland, Naroditsky og Onischuk 3 ˝ v. Keppendur eru 12 talsins.

Bandaríska meistaramótiđ 2017:

Zherebukh – Caruana

Spćnskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8 13. Rf1 Bf8 14. Rg3 g6 15. a4 c5 16. d5 c4 17. Bg5 h6 18. Be3 Rc5 19. Dd2 h5 20. Bg5 Bg7 21. Hf1 Dc7

Allt saman ţekkt en drottningin gćti veriđ betur geymd á e7 til ađ eiga f8-reitinn.

22. Bh6 Bh8 23. Rg5 Rh7 24. Rxh7 Kxh7 25. Be3 De7 26. f4!

Ţessi framrás reynir á burđarveggi kóngsstöđunnar en riddarinn fćr e5-reitinn.

26. ... exf4 27. Bxf4 Kg8 28. Hf3 Bg7 29. Haf1 Rd7 30. Bh6 Bxh6 31. Dxh6 Df8 32. Dd2 Re5 33. Hf6 Had8 34. Dg5 Dg7 35. Bd1! Bc8 36. Dh4 Kf8 37. Df4 Dg8 38. Kh1 He7 

GPS114AK839. Bxh5!

Ţessi biskup sem stundum rekst á eigin peđ í spćnska leiknum tekur nú til óspilltra málanna. Ţađ er ekki hollt ađ taka hann: 39. ... gxh5 40. Rxh5 og „Houdini“ segir mér ađ svarta stađan sé óverjandi.

39. ... bxa4 40. Bd1 Dg7 41. Bxa4 Dh7 42. Dg5 a5 43. Kg1 Dh8 44. H1f4 Dg7 45. Hh4 Rd3 46. Hh6 Re5 47. Hf4 Bd7 48. Dh4! Kg8 49. Dxe7 He8 50. Dg5 Bxa4 51. Hf6

- og svartur gafst upp.

------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 8. apríl 2017

Skákţćttir Morgunblađsins


GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ hefst á miđvikudag - Giri teflir viđ fjármálaráđherra á ţriđjudaginn

17634367_10155295158618291_2576871072485773090_n
Upphitun fyrir Reykjavíkurmótsveislan hefst í höfuđstöđvum GAMMA, ţriđjudaginn 18. apríl nk. kl. 13:00. Ţá teflir ofurstórmeistarinn Anish Giri, helsta stjarna Reykjavíkurskákmótsins, klukkufjöltefli viđ 10-12 skákmenn. Međal andstćđinga hans ţar verđur fjármálaráđherrann Benedikt Jóhannesson en ráđherrann var um skeiđ međal efnilegustu skákmanna landsins áđur en önnur hugđarefni tóku viđ. Friđrik Ólafsson, fyrrverandi forseti FIDE, mun vera viđstaddur og leika fyrsta leik fjölteflisins. Upphitunin heldur áfram kl. 18 ţegar opnunarpartý mótsins verđur haldin í Smurstöđunni í Hörpu. Ţangađ eru allir keppendur og skákáhugamenn velkomnir. 

Andstćđingar Giri í fjölteflinu verđa engin lömb ađ leika sér viđ. Elstur ţeirra verđur Gunnar Gunnarsson, 83 ára, fyrrum Íslandsmeistari í skák (áriđ 1966) og fótbolta međ Val (áriđ 1956). Ţá munu landsliđskonurnar Guđlaugu Ţorsteinsdóttur og Nansý Davíđsdóttur međal annars etja kappi viđ Giri. 

Fjöltefliđ verđur forsmekkurinn ađ sjálfu Alţjóđlega Reykjavíkurskákmótinu sem fram fer í Hörpu 19.-27. apríl. Mótiđ verđur hiđ  sterkasta og fjölmennasta í 53 ára sögu ţess. 

Alls eru um 280 skákmenn skráđir til leiks frá um 45 löndum. Ţar af eru 35 stórmeistarar og hafa ţeir aldrei veriđ fleiri. 

Ofurstórmeistararnir 

Anish Giri

Ofurstórmeistarar eru ţeir taldir sem hafa 2700 skákstig eđa meira. Áđurnefndur Anish Giri, sem hefur 2771 skákstig, er einn besti skákmađur heims og sá stigahćsti sem nokkurn tímann hefur teflt á Reykjavíkurskákmóti í hálfrar aldar sögu mótanna. 

BaadurJobava

Georgíumađurinn Baadur Jobava er einn frumlegasti skákmađur heims og vekur taflmennska hans jafnan athygli.

andreikin1

Dmitry Andreikin er ţekktur fyrir ađ tefla ávallt til sigurs og vakti kraftmikil taflmennska hans í mótinu í fyrra mikla athygli. 

Gođsagnir

 Shirov

Lettinn Alexei Shirov er einn allra skemmtilegast skákmađur heims, ţekktur fyrir sinn leiftrandi stíl,  og hefur hefur margoft veriđ líkt landa sinn, Mikhail Tal, sem sigrađi á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu áriđ 1964. Shirov sigrađi á Reykjavíkurskákmótinu 1992 ásamt Jóhanni Hjartarsyni og hefur síđan haldiđ sér í hópi bestu skákmanna heims. Hann er fjórđi í stigaröđ keppenda.

Kamsky (1)

 

Gata Kamsky tefldi síđast á Reykjavíkurskákmótinu 1990. Ţá var hann 15 ára ađ aldri og ţótti undrabarn. Kamsky komst nćstum ţví á topp skákheimsins ţví hann tefldi heimsmeistaraeinvígi viđ Karpov sem hann tapađi.

090616_torre

 

Eugene Torre hefur löngum veriđ besti skákmađur Filippseyinga. Torre er sá skákmađur, sem teflt hefur á flestum Ólympíuskákmótum allra skákmanna í skáksögunni, eđa alls 22 sinnum. Á Ólympíuskákmótinu í Bakú í fyrra hlaut hann 10 vinninga í 11 skákum og hefur sjaldan veriđ í betra formi.   

Óvćntir sigurvegarar tveggja síđustu ára Abijeet Gupta og Erwin L´Ami eru svo ađ sjálfsögđu međal keppenda.

Skákdrottningar 

CdvX3V8W8AAt2_T (1)

 

Indverska skákdrottningin Tania Sadchev stal senunni í fyrra međ frábćrri frammistöđu og geislandi framkomu. Hún er fastagestur hér. Landskona hennar Harika Dronavalli tekur einnig ţátt en hún er međal bestu skákkvenna heims.

Harika-Dronavalli-GM

 

Međal annarra gesta má nefna hina mongólsku Tuvshintugs Batchimeg en hún verđur ţar međ fyrsti skákmađurinn frá Mongolíu sem teflir á Reykjavíkurskákmótinu.

 

batchimeg01 (1)

 

Einnig má nefna hina írönsku Dorsa Derakhshani sem hefur vakiđ athygli fyrir ţađ ađ neita ađ tefla međ slćđu og hefur gerđ brotrćk úr landsliđi Írans fyrir ţá sök.

3D7DF20700000578-4245962-Iranian_chess_player_Dorsa_Derakhshani_18_was_banned_from_Irania-a-3_1487699197337

 

 

Undrabörnin

Ţađ hefur ávallt veriđ lögđ mikil áhersla á ađ fá hingađ til landsins undrabörn. Í áranna rás hafa t.d. Magnus Carlsen, Gata Kamsky, Fabiano Caruana og Hikaru Nakamura,  sótt landiđ sem kornungir skákmenn.

 

praggnanandhaa

Á mótinu nú er vert ađ benda á tvo unga indverska drengi sem báđir eru taldir geta orđiđ međal bestu skákmanna heims - jafnvel heimsmeistarar. Praggnanandhaa Rameshbabu er annar ţeirra. Sá er ađeins 11 ára og sá yngsti í heimi sem náđ hefur titli alţjóđlegs meistara.

world-junior-chess-championship-and-nihal-sar-L-__WHfo

 

Hinn er Nihal Sarin, 12 ára, og er líka alţjóđlegur meistari. Sarin ţessi lagđi Helga Ólafsson t.d. nýlega ađ velli í hrađskák í Moskvu.  Ţeir eru báđir talda hafa möguleika á ţví ađ verđa yngsti stórmeistari sögunnar. Nýlega grein má lesa um kappann í Chessbase. Hann er ţessa stundina ađ tefla í Fagranesi í Noregi og er ađ gera ţar mjög góđa hluti.  

Heimavarnarliđiđ 

reykjavik_open_day_3_dsc_0047

Nćrri 100 íslenskir skákmenn taka ţátt í mótinu nú og ţar á međal ţrír stórmeistarar. Stigahćstur ţeirra er Hannes Hlífar Stefánsson, sigursćlasti skákmađur í sögu Reykjavíkurskákmótanna. Hannes hefur sigrađ fimm sinnum á mótinu.

Jóhann Hjartarson er Íslandsmeistari 2016

Ţađ sćtir tíđindum ađ Jóhann Hjartarson tekur nú ţátt í mótinu nú í fyrsta skipti í 21 ár og er ţađ mikiđ fagnađarefni.  Sá ţriđji er svo Ţröstur Ţórhallsson.  Sjö íslenskar skákkonur taka ţátt. Fyrir ţeim fer Lenka Ptáncíková, stórmeistari kvenna og margfaldur Íslandsmeistari.

Kjartansson-Gudmundur

 

Alţjóđulegu meistararnir Guđmundur Kjartansson, Bragi og Björn Ţorfinnssynir taka ţátt og ţađ gerir einnig Vignir Vatnar Stefánsson, okkar efnilegasti skákmađur. 

Íslenska heimavarnarliđiđ er skemmtilegt blanda af atvinnumönnum, áhugamönnum, eldri skákmönnum og ungum ljónum sem eru ađ stíga sín fyrstu skref. Akureyringar fjölmenna á Reykjavíkurskákmótiđ nú og er ţađ gleđilegt og vitnar um skákgrósku norđan heiđa. 

Fćreyingar fjölmennir 

csm_2016-09-10-HelgiDamZiska_02_d5474be388

Um 180 erlendir skákmenn taka ţátt í mótinu og hafa ţeir aldrei veriđ fleiri. Flestir ţeirra koma frá Bandaríkjunum, Indlandi og Kanada.  Góđ ţátttaka Fćreyinga vekur athygli en ţeir eru 12 talsins. Fyrir ţeim hópi fer Helgi Dam Ziska, fyrsti stórmeistari okkar góđu frćndţjóđar. 

Ekki bara skákmót

 

Reykjavíkurskákmótiđ er miklu frekar skákhátíđ  en skákmót. Efnt er til alls konar sérviđburđa međan mótiđ fer fram. Áđur hefur veriđ minnst á fjöltefli Anish Giri. Međal annarra sérviđburđa má nefna: 

Opnunarpartý, fyrirlestur um skákţjálfun, fyrirlestur um ţađ sem gerist bakviđ tjöldin í heimsmeistaraeinvígum, hrađskákmót, barnahrađskákmót, spurningkeppni (pub quiz), fótbolta, gullna hringinn međ viđkomu viđ leiđi Fischers og kotrumót

Ţesir viđburđir eru opnir gestum og gangandi. 

Umferđir hefjast yfirleitt kl. 15. Bođiđ verđur upp á skákskýringar alla daga í Hörpu og hefjast ţćr um tveimur tímum eftir upphaf umferđar eđa um kl. 17. Um skákskýringar sjá okkar fremstu skákmenn af ţeim sem ekki taka ţátt í mótinu ađ ţessu sinni.

Beinar útsendingar á netinu verđa í umsjón Simon William og Fionu Antoni-Steil. 

Ítarlegur fréttaflutningur frá mótinu verđur alla daga á www.skak.is.

Heimasíđa mótsins


Páskamót SA fer fram á mánudaginn

Sćlir félagar í lok páskaveislunnar mánudaginn 17 apríl kl 13:00 bjóđum viđ upp á Skákveislu. Páskahrađskáksmótiđ. Nú ríđur á ađ menn láti sig ekki vanta, heldur mćti hressir og kátir eftir páskeggjaátiđ og brenni nokkrum kaloríum viđ skákborđiđ. Ţađ mćttu 17 keppendur á Bikarmótiđ og nú stendur til ađ slá ţá tölu út. Mótiđ er opiđ öllum sem kunna mannganginn.

Sjá nánar á heimasíđu SA.


Áskell tapađi fćstum á Bikarmótinu

Ţegar Bikarmótinu var fram haldiđ í dag, föstudaginn langa, kom fram tillaga um ađ lengja skákirnar. Skákstjóri lagđist ţó gegn ţví og sćttust keppendur ađ tefla enn 15 mínútna skákir, ţótt dagurinn vćri langur. Eins og vera ber fćkkađi keppendum smám saman ţegar á leiđ og eftir níundu umferđ voru einungis ţrír eftir. Ólafur Kristjánsson gekk svo af skaptinu eftir tap fyrir Jóni Kristni og settust ţá ađ tafli Jón og Áskell, einir eftir. Var Jón međ tvö töp (fyrir Sigurđum A og E), en Áskell međ eitt og hálft (fyrir Jóni sjálfum og hálft gegn Eymundi). Skákina vann Jón eftir nokkrar sviptingar og nćgđi nú jafntefli í síđustu skák mótsins. Hann fékk ţó snemma lakara tafl og mátti ađ lokum játa sig sigrađan. Ţar međ var hann kominn í ţrjú töp, en Áskell hékk í tveimur og hálfu og fćr nafn sitt á bikarinn ađ launum. Lauk mótinu í tólftu umferđ og ţótti á allan máta vel heppnađ. Ţó má vera ađ reglum verđi breytt lítillega til ađ minnka hćttuna á ađ sami keppandi sitji yfir fleiri en eina umferđ í röđ, eins og gerđist nú í dag. 

Sjá nánar á heimasíđu SA.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 229
  • Frá upphafi: 8765181

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 132
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband