Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2017

Guđmundur öruggur sigurvegari ţrátt fyrir tap - Dagur fylgir Gumma í landsliđsflokk

IMG_2743

Guđmundur Gíslason (2314) vann öruggan sigur í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák sem lauk í dag í Stúkunni í Kópavogi. Guđmundur tapađi fyrir félaga sínum Halldóri Grétari Einarssyni (2257) en ţađ kom ađ lítilli sök. Guđmundur hlaut 7˝ vinning, vinningi meira en nćsti mađur. Dagur Ragnarsson (2316). Fjölnismađurinn vann Lenku Ptácníková (2242) og fylgir Gumma í landsliđsflokk sem fram fer í Hafnarfirđi 10.-20. maí nk. Jóhann Ingvason (2121), sigurvegarinn frá í fyrra, varđ ţriđji međ 6 vinninga.

Skákstjóri mótsins var Ólafur S. Ásgrímsson. Halldór Grétar Einarsson, formađur Breiđabliks, ađstođađi viđ mótiđ og átti heiđurinn af beinum útsendingum. 

Lokastöđu mótsins má nálgast á Chess-Results. 


Barna Blitz: Róbert Luu og Benedikt Ţórisson komnir áfram

IMG_8871Hún var óvenjuleg Laugardagsćfingin í gćr ţví hún var jafnframt undankeppni í svokölluđu Barna Blitz sem haldiđ er samhliđa Reykjavíkurskákmótinu. Tvö sćti voru í bođi fyrir ţau börn sem eru fćdd áriđ 2004 eđa síđar. Spennan var ţví enn meiri en venjulega á ţessum vel sóttu ćfingum.

Fyrirfram var búist viđ sterkari ţátttakendum en yfirleitt mćta á ţessar ćfingar. Róbert Luu var sá sterkasti ađ ţessu sinni en Róbert stundađi Laugardagsćfinguna grimmt er hann tók sín fyrstu skref í skáklistinni. Róbert hefur síđustu ár náđ langt í Barna Blitz keppninni og var ţví til alls líklegur, enda langstigahćstur keppenda.

IMG_8862

Svo fór ađ Róbert vann mótiđ međ 6 vinninga í 7 skákum. Hann varđ ţó ađ sćtta sig viđ tap gegn Benedikt Ţórissyni er hann uggđi ekki ađ sér í vörninni og gleymdi ađ lofta út fyrir kónginn. Benedikt hefur veriđ á mikilli siglingu ađ undanförnu og ţessi sigur tryggđi honum 2.sćtiđ međ 5,5 vinning. Benedikt fylgir ţví Róberti í úrslit Barna Blitz sem fram fer laugardaginn 22.apríl.

Skákstjóri var Gauti Páll Jónsson.

Nánar á heimasíđu TR.


Ađalfundur Vinaskákfélagsins fer fram 4. maí

Ađalfundur Vinaskákfélagsins verđur haldinn 4 maí 2017 í Vin, Hverfisgötu 47, 101 Reykjavík klukkan 19:30. 

Dagskrá ađalfundar er sem hér segir:

  1. Forseti setur fundinn.
  2. Kosning fundarstjóra.
  3. Skýrsla stjórnar lögđ fram.
  4. Reikningar lagđir fram til samţykktar.

Kaffi hlé!

  1. Lagabreytingar.
  2. Kosning stjórnar.
  3. Önnur mál. 

Stjórnin.

 

 


Ţriđja og síđasta mót Páskaeggjasyrpunnar hefst kl.13 í dag

TRBanner2017_simpleŢriđja og síđasta mót Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur verđur haldiđ í dag, sunnudaginn 9.apríl. Tafliđ hefst klukkan 13 og er áćtlađ ađ ţví ljúki um klukkan 15:45.

Keppt verđur í tveimur flokkum, 1-3.bekk (og yngri) og 4-10.bekk. Sjö umferđir verđa tefldar međ 5 mínútna umhugsunartíma á mann og bćtast 3 sekúndur viđ tímann eftir hvern leik (5+3). Hrađskákstig verđa reiknuđ. Enginn ólöglegur leikur er leyfđur og ţví tapast skák viđ fyrsta ólöglega leik.

Verđlaunapeningur og páskaegg verđa í verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í hvorum flokki. Ţá verđur jafnframt páskaegg í verđlaun fyrir efstu stúlkuna í hvorum flokki. Ađ móti loknu verđur einn ţátttakandi dregin út í happdrćtti og hlýtur sá heppni ađ launum stórt páskaegg. Ţátttakendur geta ađeins fengiđ eitt páskaegg hver í hverju móti Páskaeggjasyrpunnar, ţó er happdrćttisvinningurinn undanskilin ţeirri reglu. Ađ loknu ţriđja og síđasta mótinu verđa veitt stór páskaegg í verđlaun fyrir samanlagđan árangur.

Allir sem taka ţátt í minnst tveimur af ţremur mótum Páskaeggjasyrpunnar fá páskaegg í verđlaun fyrir ţátttökuna og verđa ţau afhent í lok ţriđja mótsins.

Skráning fer fram í gegnum skráningarformiđ hér ađ neđan, en einnig má nálgast ţađ í gula kassanum á skak.is. Birnukaffi verđur opiđ svo engin ţarf ađ tefla međ tóman maga!

Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus hlakka til ađ sjá ykkur á móti númer 3 í Páskaeggjasyrpunni 2017!

Skráningarform

 


Hrađskákmót öđlinga fer fram á miđvikudagskvöld

Hrađskákmót öđlinga fer fram miđvikudaginn 12. apríl í félagsheimili TR ađ Faxafeni 12. Mótiđ hefst kl. 19.30 og er opiđ fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 4 mín + 2 sek á leik (umferđum kann ađ vera fjölgađ í níu ef nćg ţátttaka verđur).  Í lok mótsins fer fram verđlaunaafhending fyrir Hrađskákmótiđ sem og Skákmót öđlinga sem lauk fyrir skemmstu.

Ţátttökugjald er kr. 1.000 og er í ţví innifaliđ ilmandi nýtt kaffi. Greiđa skal međ reiđufé viđ upphaf móts.

Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra (Fide) hrađskákstiga.

Núverandi Hrađskákmeistari öđlinga er Róbert Lagerman.

Skákmenn 40+ eru hvattir til ađ fjölmenna!

Skráning fer fram hér ađ neđan.

Skráningarform

Skráđir keppendur


Skákţáttur Morgunblađsins: Wesley So ćtlar ađ verđa heimsmeistari

Ţađ er varla neinum blöđum um ţađ ađ fletta ađ stórveldin međal ţjóđa Asíu eru Kínverjar og Indverjar. En ţađ hefur ekki alltaf veriđ ţannig. Anand ruddi brautina fyrir Indverja á árunum í kringum 1990 en ţá vann hann sér sćti í áskorendakeppninni. Kínverjar tefldu fyrst á ólympíumóti ári 1978 en fram ađ ţeim tíma voru Filippseyingar Asíu-stórveldiđ í skákinni ţökk sé sterkri skákhefđ og Eugenio Torre sem áriđ 1974 varđ fyrsti stórmeistari Asíu og hefur teflt í fleiri ólympíumótum en nokkur annar. Á ţví síđasta sem fram fór í Bakú í Aserbadsjan náđi hann árangri sem lengi verđur í minnum hafđur hann tefldi á 3. borđi fyrir Filppseyinga og hlaut 10 vinninga af 11 mögulegum. Miklar vonir bundu Filippseyingar viđ Torre á uppgangsárunum og sumariđ 1976 vann hann sterkt skákmót í Manila og lagđi ţar sjálfan Karpov heimsmeistara ađ velli. Torre var á ţessum árum fenginn til ađ stjórna sjónvarpsţćtti um skák og tók einnig ađ sér hlutverk í kvikmyndum sem kann ađ hafa leitt hann á brautir fjarri hinni einmanalegu göngu til ćđstu metorđa skáklistarinnar.

„Heitasti“ skákmađurinn í dag er líka frá Filippseyjum; Wesley So hefur opinberlega lýst ţví yfir ađ hann stefni á ađ verđa heimsmeistari. Hann hefur unniđ hvern sigurinn á fćtur öđrum undanfariđ, nú síđast á stórmótunum í London og Wijk aan Zee og er kominn í 2. sćti á stigalista FIDE međ 2822 elo stig. Ţar trónir Magnús Carlsen á toppnum međ međ 2838 elo stig. Munurinn er ekki mikill en áđurnefndur Karpov lýsti ţví nýlega yfir ađ Norđmađurinn bćri enn höfuđ og herđar yfir kollega sína.

Uppgjör ţessarra tveggja eđa einhverskonar reikningskil virđast liggja í loftinu; ţađ spurđist út um daginn ađ í keppni á netinu sem kallast Pro chess league myndu ţeir mćtast í skák međ tímamörkunum 15 2. So tefldi fyrir sveit sem nefnist Erkibiskupar St. Louis en Magnús var í brúnni fyrir Norsku dvergana. Ţeir fyrrnefndu unnu 9:7 ţó ađ Magnús hafi unniđ allar fjórar skákir sínar ţ. ám. So. Í skákinni sem hér fer á eftir tókst norska heimsmeistaranum ađ ţröngva stíl sínum upp á So sem tefldi byrjunin fremur „druslulega,“ skipti vitlaust upp á miđborđinu og mátti síđan fylgjast međ Magnúsi bćta stöđu sína hćgt og bítandi. Ţegar tíminn tók ađ styttast gáđi So ekki ađ sér:

Wesley So – Magnús Carlsen

Bogo-indverskv vörn

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Bd2 a5 5. a3 Bxd2+ 6. Dxd2 b6 7. Rc3 Bb7 8. g3 O-O 9. Bg2 Re4 10. Rxe4 Bxe4 11. O-O a4 12. De3 Bb7 13. Dd3 f5 14. Re5 Bxg2 15. Kxg2 d6 16. Rf3 Df6 17. e4 Rc6 18. Hae1 Ha5! 

Óvenjulegur stađur fyrir hrókinn sem frá a5 eygir f5-reitinn.

GDO113CL819. d5 fxe4 20. Dxe4?

Og hér var tvímćlalaust betra ađ taka á e4 međ hrók.

20. ... exd5 21. cxd5 Re7! 22. Hd1 Df5! 23. Dxe7 Dxf3+ 24. Kg1 Hc5 25. Hd2 h6 26. He1? Hf5 27. He3 Hc1+ 28. He1 Hxe1+ 29. Dxe1 He5 30. Dc1 b5 31. h3 Kf8 32. h4 Ke8 33. Kh2 Kd8 34. Dh1 Db3 35. Dg2 He1 36. Dh3 Df3 37. Dg2 Df5 

GDO113CLCSvarta stađan er vćnleg en vinningsleiđin liggur ekki fyrir. Ein áćtlunin gćti veriđ ađ bćta stöđu kóngsins ogh sćkja ađ d5-peđinu. En eins og stundum gerist ţegar tíminn styttist leikur annar ađilinn gróflega af sér.

38. Dh3?? Hh1+!

– drottningin fellur og frekari barátta er tilgangslaus. So gafst upp.

------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 1. apríl 2017

Skákţćttir Morgunblađsins


Guđmundur hefur tryggt sér sćti í landsliđssćti - mikil spenna hver fylgir honum upp

2017-04-08 13.01.15

Guđmundur Gíslason (2314) er í banastuđi í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák. Í dag vann Kristján Eđvarđsson (2228) og hefur hlotiđ 7˝ vinning í átta umferđum! Hefur tveggja vinninga forskot á nćstu menn. Mikil spenna er í baráttunni um annađ sćti sem jafnframt tryggir keppnisrétt í landsliđsflokki.

2017-04-08 13.01.09

Jóhann Ingvason (2121), sem vann Björgvin Víglundsson (2143), Dagur Ragnarsson (2316), sem lagđi Tómas Björnsson (2179) ađ velli, og Lenka Ptácníková (2242), sem hafđi betur gegn Braga Halldórssyni (2110), eru í 2.-4. sćti međ 5˝ vinning. Kristján Eđvarđsson (2228) er fimmti međ 5 vinninga og virđist vera úr leik í baráttunni.

Í lokaumferđinni sem fram fer á morgun og hefst kl. 13 mćtast:

  • Halldór Grétar Einarsson (4˝) - Guđmundur Gíslason (7˝)
  • Lenka Ptácníková (5˝) - Dagur Ragnarsson (5˝)
  • Jóhann Ingvason (5˝) - Tómas Björnsson (4˝)
  • Kristján Eđvarđsson (5) - Jón Kristinsson (4˝)

Vinni Jóhann hefur hann tryggt sér annađ sćti á mótinu og sćti í landsliđsflokki. Jafntefli dugar einnig Jóhanni ef Lenka og Dagur gera einnig jafntefli. 

Dagur kemst áfram vinni hann og Jóhann vinni ekki. Degi gćti dugađ jafntefli ef Jóhann tapar. Lenka ţarf ávallt sigur til ađ komast áfram og ţarf ţá jafnframt ađ treysta á ađ Jóhann vinni ekki. 

Áhorfendur eru velkomnir í Stúkuna. Birnukaffi hefur flutt sig um set og ţar nú međ ađsetur! 


Norđurlandamótiđ í skák fer fram í Växjö í júní-júlí

Clipboard06

 

Norđurlandamótiđ í skák fer fram í Växjö í Svíţjóđ dagana 26. júní - 2. júlí nk. Alls er teflt í fjórum mótum.

Fyrst má sjálft ađalmótiđ sem jafnframt er svćđamót og fćr sigurvegarinn keppnisrétt á Heimsbikarmótinu í Georgíu.

Hin mótin eru Norđurlandamót kvenna og Norđurlandamót eldri skákmanna bćđi fyrir 50 ára og eldri sem og 65 ára og eldri.

Mótiđ er afmćlismót Skáksambands Svíţjóđar en sambandiđ fagnar 100 ára afmćli í ár. 

Nánari upplýsingar um mótiđ má nálgast á heimasíđu sćnska skáksambandsins

Bođsbréfiđ sjálft má nálgast hér

 


Guđmundur međ 1˝ vinnings forskot - Kristján í öđru sćti

Guđmundur Gíslason (2314) er kominn međ annan fótinn, nánast báđa, í landsliđsflokkinn í Hafnarfirđi í maí. Í sjöundu umferđ í gćr gerđi hann jafntelfi viđ Dag Ragnarsson (2316). Guđmundur hefur 6˝ vinning og 1˝ vinnings á Kristján Eđvarđsson (2228) sem lagđi Jóhann Ingvason (2121), sigurvegarann frá í fyrra, ađ velli. Jóhann, Björgvin Víglundsson (2143), Dagur, Tómas Björnsson (2179) og Lenka Ptácníková (2242) eru 3.-7. sćti međ 4˝ vinning. Bragi Halldórsson (2110) hefur svo 4 vinninga.

Í dag kl. 13 hefst nćstsíđasta umferđ og er spennan mikil um hver fylgi Guđmundi í landsliđsflokkinn.

  • Guđmundur Gíslason (6˝) - Kristján Eđvarđsson (5)
  • Tómas Björnsson (4˝) - Dagur Ragnarsson (4˝)
  • Jóhann Ingvason (4˝) - Björgvin Víglundsson (4˝)
  • Bragi Halldórsson (4) - Lenka Ptácníková (4˝)

Áhorfendur eru velkmnir í Stúkuna. Birnukaffi hefur flutt sig um set og ţar nú međ ađsetur! 


Brćđur áfram í Barna Blitz eftir undanrásir Víkingaklúbbsins

viking1

Undanrásir Víkingaklúbbsins fyrir Reykjavík barnablitz fór fram í á miđvikudaginn hjá Víking. 14. keppendur tóku ţátt. Efstur varđ Óskar Víkingur neđ 5.5 af 6. Stefán Orri bróđir hans annar međ 5.0. Róbert Luu ţriđji međ 4.5. Tefldar voru 6. umerđir međ 6 mínútna umhugsunartíma. Skákstjórar á mótinu voru Sigurđur Ingason og Gunnar Fr. Rúnarsson.

Úrslit:

1. Óskar Víkingur Davíđsson 5.5
2. Stefán Orri Davíđsson 5
3. Róbert Luu 4.5
4. Benedikt Ţórisson 4.0
5. Bjartur Ţórisson 3.5
6. Ásthildur Helgadóttir 3.5
7. Batel 3.0
8. Áslaug 3.0
9. Einar Dagur Brynjarsson 3.0
10. Bergţóra Helga Gunnarsdóttir 2.0
11. Ása 2.0
12. Sigurđur Rúnar Gunnarsson 2.0
13. Ísak Trausti Ingólfsson 1.0
14. Skotta 0.0

Nánar á heimasíđu Víkingaklúbbsins.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 8778234

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband