Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2017

Fjórir með fullt hús á Öðlingamótinu

20170301_194525
Þeir fjölmörgu þátttakendur í Skákmóti Öðlinga sem settust að tafli í 2.umferð síðastliðinn miðvikudag fengu kærkomna upphitun fyrir Íslandsmót skákfélaga sem fram fór um helgina. Hart var glímt í þessari umferð en drengilega þó og báru skákirnar margar hverjar þess merki. Fjórir skákmenn hafa fullt hús og ber þar fyrstan að nefna aldursforsetann og fyrrum Íslandsmeistarann, já og fyrrum skákmeistara Taflfélags Reykjavíkur, Gunnar Gunnarsson.

Gunnar stýrði hvíta hernum til fullnaðarsigurs gegn Sverri Unnarssyni. Reykjanesundrið, Siguringi Sigurjónsson, hefur einnig fullt hús vinninga eftir sigurskák gegn Óskari Long Einarssyni. Gamli markmaðurinn, Ögmundur Kristinsson, hleypti engum boltum framhjá sér gegn Kjartani Ingvarssyni og heldur því búrinu enn hreinu eftir fyrstu tvær umferðirnar. Þá er gamla brýnið Þór Valtýsson einnig með fullt hús vinninga en hann lagði Pétur Jóhannesson að velli.

Það þótti nokkrum tíðindum sæta er Magnús Matthíasson vann Gylfa Þórhallsson með svörtu mönnunum, en á þeim munar tæplega 360 skákstigum. Af öðrum úrslitum má nefna jafntefli Inga Tandra Traustasonar og Þorvarðs Fannars Ólafssonar sem og sigur landsliðseinvaldsins, Ingvars Þórs Jóhannessonar, gegn Arnaldi Loftssyni.

Í 3.umferð sem fram fer í kvöld mætast efstu menn; Ögmundur hefur hvítt gegn Gunnari og Þór stýrir hvítu mönnunum gegn Siguringa. Sem fyrr verður heitt á könnunni og fjörugar flækjur á skákborðunum. Allir velkomnir!

Sjá nánar á heimasíðu TR.


Íslandsmót skákfélaga: Skákirnar

Daði Ómarsson hefur slegið inn skákirnar úr síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga. Þeir má nálgast hér sem viðhengi.

 


Fimmta mót Bikarsyrpunnar fer fram helgina 17.-19. mars

BikarsyrpanBanner_generic (2)Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað þriðja árið í röð. Mót syrpunnar í vetur verða fimm talsins og hefur umferðum hvers móts verið fjölgað í sjö.

Fimmta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 17. mars og stendur til sunnudagsins 19. mars. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.

Teflt verður í einum flokki og hvetjum við stelpur jafnt sem stráka til að koma og spreyta sig í lokamóti Bikarsyrpunnar þennan veturinn.

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2001 eða síðar) sem ekki hafa náð 1600 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

Dagskrá Bikarsyrpu V:

1. umferð: 17. mars kl. 17.30 (fös)
2. umferð: 18. mars kl. 10.00 (lau)
3. umferð: 18. mars kl. 13.00 (lau)
4. umferð: 18. mars kl. 16.00 (lau)
5. umferð: 19. mars kl. 10.00 (sun)
6. umferð: 19. mars kl. 13.00 (sun)
7. umferð: 19. mars kl. 16.00 (sun)

Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni síðustu umferð, bæði fyrir lokamótið og samanlagðan árangur í mótunum fimm í vetur.

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.

Þátttökugjald í mótið er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.

Sigurvegari mótsins hlýtur að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Sérstök verðlaun verða veitt næsta vor fyrir samanlagðan árangur í mótunum fimm, þar á meðal er veglegur farandbikar. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir samanlagðan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.

Vinsamlegast skráið þátttakendur sem fyrst, það hjálpar til við undirbúning mótsins. Hlökkum til að sjá ykkur!

Skákstjórn: Þórir Benediktsson (867 3109).

Skráningarform

Skráðir keppendur


Magnús + Skákmót fyrir 10-18 ára

Magnus_TribecaStill-1220x550Skákviðburður fyrir ungt fólk verður haldinn eftir sýningu heimildarmyndarinnar um norska skákmeistarann Magnus Carlsen

Myndin Magnus er sýnd 12. mars kl. 13:00. Eftir myndina er ungu fólki á aldrinum 10-18 ára boðið að taka þátt í skákmóti (hraðskák).  Skáksamband Íslands skipuleggur viðburðinn í samstarfi við Norska Sendiráðið.  Verðlaunahafi hlýtur spennandi gjöf frá Norska sendiráðinu. Viltu vera með?  Sendu póst á Silje.Beite.Loken@mfa.no með nafni og aldri fyrir 9. mars.

Myndin MAGNUS er sýnd kl. 13:00. Mótið fer fram á milli kl. 15:00 – 17:00.

Magnus (NO)

Magnus Carlsen hefur verið kallaður "Mozart of Chess" þar sem hann hefur til að bera kunnáttu og greind stórmeistara í skák ásamt framúrskarandi frumleika og innsæi. Magnus er einstök saga ungs manns sem reis upp úr vítahring eineltis í það að verða ein skærasta stjarna og leiðandi í heimi stórmeistara í skák. Magnus býður áhorfendum ekki aðeins að heyra um hinn magnaða og einstaka keppnisheim í skák, heldur líka að kynnast örlítið huga manns með snilligáfu.

Sýnishorn


Vignir byrjar vel í Stokkhólmi

403_FM_Vignir_Vatnar_Stefansson-1

Vignir Vatnar Stefánsson (2353) situr þessa dagana að tafli í Stokkhólmi þar sem hann tekur þátt í alþjóðlegu skákmóti sem ber heitið Stockholm Chess Challenge. Eftir 3 umferðir hefur Vignir 1½ vinning. 

Í fyrstu umferð vann hann Svíann Hampus Sorensen (2192), í þeirri annarri gerði hann jafntefli við sænska alþjóðlega meistarann Jonathan Westerberg (2475) og í þeirri þriðju laut hann í dúk gegn úkraínska stórmeistaranum Adam Tukhaev (2541).

Fjórða umferð fer fram í dag og þá teflir Viggi við Indverjann Sharma Hermant. Skákin hefst kl. 14 og er hægt að fylgjast með henni beint á Chess24

 


Ný alþjóðleg hraðskákstig

Ný alþjóðleg hraðskákstig komu út 1. mars sl. Hjörvar Steinn Grétarsson (2662) er langstigahæsti hraðskákmaður landsins. Í næstu sætum eru Jóhann Hjartarson (2574) og Jón Viktor Gunnarsson (2541).

Topp 20

No.NameTitmar.17GmsDiff
1Gretarsson, Hjorvar SteinnGM266200
2Hjartarson, JohannGM25747-7
3Gunnarsson, Jon ViktorIM254100
4Stefansson, HannesGM253500
5Thorfinnsson, BjornIM250600
6Gunnarsson, ArnarIM250300
7Gretarsson, Helgi AssGM2483717
8Kristjansson, StefanGM248300
9Olafsson, HelgiGM243800
10Thorhallsson, ThrosturGM24317-3
11Thorfinnsson, BragiIM242000
12Kjartansson, GudmundurIM241100
13Bjornsson, SigurbjornFM237600
14Petursson, MargeirGM236600
15Johannesson, Ingvar ThorFM235300
16Jensson, Einar HjaltiIM235200
17Asbjornsson, AsgeirFM234400
18Arnason, Jon LGM232000
19Gislason, GudmundurFM23151149
20Karlsson, Bjorn-IvarFM230600


Nýliðar


Björn Halldórsson (2183) er stigahæsti nýliði landsins. Hannes Hrólfsson (1792) og Björn Ívarsson Schram (1715) koma næstir. 

 

No.NameTitmar.17GmsDiff
1Halldorsson, Bjorn 218372183
2Hrolfsson, Hannes 1792111792
3Ivarsson Schram, Bjorgvin 171501715
4Steinbergsson, Hjortur 169701697
5Petersen, Emil 149001490
6Hardarson, Gylfi Mar 142301423
7Bragason, Baldur Mar 133301333
8Sigthorsson, Andri Thor 131801318
9Bjarnason, Loftur Ingi 128301283
10Briem, Kjartan 126301263
11Johannsson, Bjorn Kristinn 126101261
12Agnarsson, Bjorn 125181251
13Claesson, Karl Andersson 114791147
14Kjartansson, Andres Mar 109371093


Mestu hækkanir


Dawid Kolka (110( hækkar mest frá janúar-listanum. Í næstu sætum eru tvibbarnir Bárður Örn og Björn Hólm (63) Birkissynir.

No.NameTitmar.17GmsDiff
1Kolka, Dawid 202117110
2Birkisson, Bardur Orn 20811863
3Birkisson, Bjorn Holm 19821763
4Kristbergsson, Bjorgvin 13112455
5Gislason, GudmundurFM23151149
6Sigurdsson, Birkir Karl 1914947
7Hauksson, Hordur Aron 18571746
8Kristinsson, Ogmundur 2020736
9Halldorsson, Kristjan 1769734
10Jonatansson, Sigurdur Freyr 16071434


Reiknuð hraðskámót 
(mars og febrúar)

  • Hraðskákmót Reykjavíkur
  • Hraðkvöld Hugins
  • Nóa Síríus-hraðskákmótið
  • Atkvöld Hugins (2 frá febrúar)

 


Skákþing Norðlendinga fer fram 24.-26. mars á Sauðárkróki

Skákþing Norðlendinga 2017 verður haldið 24.-26. mars, á Kaffi Krók, á Sauðárkróki. Mótið hefst kl. 20.00 á föstudagskvöldið 24. mars, en þá verða telfdar 4 umferðir af 25 mínútna atskákum.  5. umferð kl. 11.00 og 6 umferð kl. 17.00 laugardaginn 25. mars og 7. umferð kl. 11.00 sunnudaginn 26. mars, en þá verður umhugsunartíminn 90 mínútur á skákina + 30 sek. á hvern leik.  Að 7. umf. lokinni verður Hraðskákmót Norðlendinga haldið og hefst kl. 14.30 eða síðar. Skákmeistari Norðlendinga getur aðeins orðið sá sem á lögheimili á Norðurlandi, en mótið er öllum opið. Skákdómari verður Ingibjörg Edda Birgisdóttir.

Verðlaun eru sem hér segir 1. sæti 45.000 kr.  2. sæti 30.000  3. sæti 20.00  4. sæti 15.000 5. sæti 10.000  Aukaverðlaun fær efsti skákmaður með minna en 1800 stig, 10.000 kr. Verði menn jafnir að vinningum skiftast verðlaun  jafnt milli þeirra.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra kapp- og atskákstiga. 

Skráning á skák.is (skak.blog.is) og einnig er hægt að skrá sig á jhaym@simnet eða í síma 865 3827, þar sem nánari upplýsingar gæti líka verið mögulegt að fá. Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.


Myndir frá lokaathöfn Íslandsmóts skákfélaga

Lokaathöfn Íslandsmóts skákfélaga fór fram að móti loknu í Kringlukránni. Hallfríður Sigurðardóttir mætti þar með myndavélina og tók myndir af verðlaunahöfunum. Þær fylgja hér með:

Íslandsmeistararnir

Íslandsmeistarar Hugins


Silfurhafar TR

DSC_7558


Bronshafar Fjölnis

DSC_7552


2. deild

Sigurvegarnir í TG

DSC_7535


Silfurhafar SA-b (eða silfurhafinn?)


DSC_7524


Bronshafar Hugins-C

DSC_7521


3. deild

Siguvegarnir Hrókar alls fagnaðar

DSC_7513


Silfurhafar frá Selfossi

DSC_7510


4. deild

Sigurvegarnir b-sveit Víkinganna

DSC_7509


Silfurhafarnir frá Sauðárkróki

DSC_7502

 

Ingvar Þór Jóhannesson var kallaður upp í tilefni fertugsafmælis síns og sungið fyrir meistarann. Hann fékk skákbókaúttekt frá Skáksambandi Íslands í afmælisgjöf.

DSC_7516


Áfangaveiðarnir þrír voru kallaðir upp og fengu vænt klapp frá viðstöddum.

Bragi Þorfinnsson - sem náði sínum öðrum stórmeistaraáfanga

DSC_7550


Davíð Kjartansson sem náði sínum öðrum áfanga að alþjóðlegum meistaratitli

DSC_7547


Norski KR-ingurinn Lasse Østebø Løvik náði sínum lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli jafnframt sem hann fór yfir 2400 skákstig.

DSC_7545

 


Íslandsmót barnaskólasveita - 4.-7. bekkur fer fram á laugardaginn

Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkkur) fer fram  laugardaginn 11. mars í Grindavík.

Teflt verður í Grunnskólanum að Ásabraut 2.

Mótið hefst klukkan 12:00 en liðsstjórar þurfa að staðfesta mætingu sinna sveita fyrir 11:40.

Tefldar verða sjö til níu umferðir (eftir fjölda sveita) með 10 mínútna umhugsunartíma og tveimur viðbótarsekúndum á hvern leik. Mótinu lýkur um seinni partinn.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitir, bestu b-e sveitir og bestu landsbyggðarsveitina. Landsbyggðarsveit skilgreinist sem sveit sem er ekki af höfuðborgarsvæðinu. Sveitir frá Suðurnesjum og Suðurlandi eru landsbyggðarsveitir.

Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fer fram á Íslandi í haust.

Liðsmenn sveita skulu vera í 4.-7. bekk en í a-sveit hvers skóla er þó heimilt að notast við yngri nemendur. Hverri sveit skal fylgja liðsstjóri.

Þátttökugjald er 7.500 kr. á sveit en hámark 15.000 kr. á skóla. Gjald verður innheimt með reikningi að móti loknu.

Veitingasala verður á staðnum.

Mótshaldarar eru Skákakademía Reykjavíkur og Skáknefnd UMFG.

Ef spurningar vakna má hringja í Stefán 863-7562 eða Siguringa 691-3007.

Skráning sveita á Skák.is (guli kassinn efst)

Skráningarfrestur er út fimmtudaginn 9. mars. 

Upplýsingar um þegar skráðar sveitir má finna hér.


Dramantískur lokadagur á Íslandsmóti skákfélaga - Bragi með stórmeistaraáfanga

Lokqdagur Íslandsmóts skákfélaga er einn sá mest spennandi í sögu mótsins. Huginn virtist í afar góðum málum fyrir lokadaginn en forystan var 2 vinningar á Taflfélag Reykjavíkur og félagið átti "auðveldari" andstæðinga eftir auk þess sem það dugði Hugin að vera jafnir að vinningum og TR þar sem sigur vannst í innbyrðis viðureign félaganna í fyrri hlutanum. 

En það breyttist fljótt. Eins og fram kom í frétt í gær í Skák.is gerði Huginn aðeins 4-4 jafntefli við Skákdeild KR í fyrri umferð gærdagsins sem verða að teljast ein allra óvæntustu úrslit í sögu keppninnar og á sama tíma unnu TR-ingar Bolvíkinga 5½-2½. Munurinn fyrir lokaumferðina var því aðeins hálfur vinningur Hugin í vil 

TR mætti Skákdeild Fjölnis og Huginn b-sveit TR. Enn virtist því staða Hugins vera töluvert vænlegri því á pappírnum er Fjölnir mun sterkari en b-sveit TR sem var neðst. Engu að síður var TR-sveitin langt því að vera veik með Vigni Vatnar og tvíburana Bárð Örn og Björn Hólm á neðstu borðunum þremur. Enda reyndust ungu mennirnir seigir og tóku 1½ vinning. 

Við upphaf umferðarinnar kom svo í ljós að liðsstjóri Fjölnis, Helgi Árnason, hvíldi sinn sterkasta mann, Héðin Steingrímsson í lokaskákinni gegn TR. Styrkleikamunurinn á milli TR-b og Fjölni þar með að engu orðin. 

17160627_10155170694017728_382826968_n

Fljótt var samið á fyrsta borði hjá TR og Fjölni en þar mættust Bragi Þorfinnsson og Davíð Kjartansson. Þar menn höfðu þeir félagarnir báðir tryggt sér áfanga. Bragi fékk sinn annan áfanga að stórmeistaratitli og vantar aðeins einn til að fá titilinn. Davíð tók sinn annan áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Auk þess tók norski KR-ingurinn Lasse Lovik sinn lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli. 

Á ýmsu gekk í lokaumferðinni og sveifluðust menn fram og aftur hvort TR eða Huginn væri að taka titilinn. Til að byrja með leit þetta afar vel út fyrir TR. Einar Hjalti (Hugin) og Daði Ómarsson (TR-b) gerðu stutt jafntefli og Vignir Vatnar vann peð gegn Magnúsi Erni (Hugin) og Helgi Áss Grétarsson (Hugin) náði ekkert að komast áfram gegn Þorvarði Fannari (TR-b). Aman Hambledon (TR) virtist líka hafa yfirburðastöðu á móti Degi Ragnarssyni (Fjölni). Björgvin Víglundsson (TR-b) hafði einnig mjög skemmtilega stöðu gegn Hannesi Hlífari (Hugin). 

En hlutirnir breyttust. Magnús náði að jafna taflið og halda jafntefli og Hambleton lék af sér manni og virist samt hafa jafnteflissénsa. Hannes náði að trikka Björgvin og vinna. Þá gerðist það að Björn Hólm (TR-b) snéri á Sigurð Daða (Hugin) og TR allt í einu með mjög vænlega sigurmöguleika. Staðan hjá Ingvari Þór (Hugin) og Bárði Erni (TR), var mjög óljós og tími lítill hjá báðum. Þetta var orðin eina skákin eftir hjá Hugin og ljóst að a.m.k. 3 vinningar myndu falla útbyrðis hjá félaginu. Stóra spurningin var því hversu marga vinninga TR-inga myndu missa niður í lokaskákunum. Töpuðu þeir aðeins tveimur vinningum yrði titilinn þeirra. 

Það voru Rimaskóladrengirnir og Fjölnismennirnir, Dagur Ragnarsson og Oliver Aron Jóhannesson, sem sigldu titlinum í hús fyrir Hugin þegar þeir unnu Hambledon og Björn Þorfinnsson (TR). Oliver vann Björn með glæsilegri fórn. Auk þess sem Sigurbjörn Björnsson (Fjölni) tryggði sér jafntefli gegn Guðmundi Kjartanssyni (TR). Allt í einu var ljóst að úrslitin í skák Ingvars og Bárðar Arnar skipti ekki máli þar sem sveitirnar yrðu jafnar að vinningum þótt Ingvar myndi tapa. Ingvar hélt hins vegar uppá fertugsafmælið með sigri. Huginn vann því titilinn með einum vinningi.

Skákdeild Fjölnis varð í þriðja sæti, Víkingklúbburinn í því fjórða og Bolvíkingar í því fimmta. 

Fallbaráttan var þvílíkt hörð. Þar áttu KR-ingar stórkostlegan endasprett. Ekki nóg með jafnteflið gegn Íslandmeisturunum heldur unnu þeir Akureyringa í lokaumferðinni og björguðu sér frá falli með hálfum vinningi. Fallið varð Reyknesinga og b-sveitar TR.

Einstaklingsúrslit lokaumferðirnar má nálgast á Chess-Results

Lokastaðan:

Clipboard02


Sjá nánar á Chess-Results.

Sveit Íslandsmeistara Hugins í fyrri og seinni hluta skipuðu: Gawain Jones, Robin Van Kampen, Helgi Ólafsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Þröstur Þórhallsson, Helgi Áss Grétarsson, Einar Hjalti Jensson, Magnús Örn Úlfarsson, Ingvar Þór Jóhannesson, Sigurður Daði Sigfússon, Kristján Guðmundsson og Þorsteinn Þorsteinsson. Liðsstjórar voru Þorsteinn og Jón Þorvaldsson. 

Hjörvar var bestur Huginsmanna en hann fékk 8 vinninga í 9 skákum. Ingvar hlaut 7½ vinning.

2. deild

Taflfélag Garðabæjar vann öruggan sigur í 2. deild. B-sveit Skákfélags Akureyrar varð í öðru sæti. Þessar sveitir taka sæti TR-b og Reyknesinga í deild þerra bestu að ári. 

Skákfélag Íslands og B-sveit Fjölnis féllu niður í 3. deild

Lokastaðan:

Clipboard03

Nánar á Chess-Results. 

3. deild

Hrókar alls fagnaðar fögnuðu sigri í deildinni - unnu allar sínar viðureignir. Skákfélag Selfoss og nágrennis varð í öðru sæti en þessar sveitir höfðu mikla yfirburði. Þær taka sæti í 2. deild að ári. Skákfélag Siglufjarðar varð í þriðja sæti. 

Ungmennasamband Borgarfjarðar og b-sveitir Taflfélags Garðabæjar og KR féllu niður í fjórðu deild.

Lokastaðan:

Clipboard04

Nánar á Chess-Results.  


4. deild

B-sveit Víkingaklúbbsins hafði mikla yfirburði í 4. deild. Skákfélag Sauðárkróks og Taflfélag Vestmannaeyja urðu í 2.-3. sæti og fylgja Víkingunum uppí 3. deild. 

Clipboard05

Nánar á Chess-Results.

Myndir væntanlegar!

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 8778393

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband