Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2017

Vignir með tvö hörkujafntefli á lokadeginum í Stokkhólmi - góð frammistaða

406_FM_Vignir_Vatnar_StefanssonFIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2353) gerði tvö hörkujafntefli á lokadegi Stockholm Chess Challange í gær.  Í þeirri fyrri við Svíann Milton Pantzar (2257) og í þeirri síðari gegn indverska FIDE-meistaranum Jena Kumar Rakesh (2315).

Síðari skákin var afar skemmtileg en þar fórnaði Vignir manni á h7. Fórnin stóðst til sigurs með bestu taflmennsku en Vignir missti á einu augnabliki af vinningsleið og endaði á að þráskáka.

Góð frammistaða hjá Vigni á mótinu og var hann á pari stigalega. Frammistaða hans samsvaraði 2348 skákstigum. Hann vann tvær skákir, tapaði tveimur og gerði fimm jafntefli. 

 


Magnús + Skákmót fyrir 10-18 ára fer fram í dag

Magnus_TribecaStill-1220x550Skákviðburður fyrir ungt fólk verður haldinn eftir sýningu heimildarmyndarinnar um norska skákmeistarann Magnus Carlsen

Myndin Magnus er sýnd 12. mars kl. 13:00. Eftir myndina er ungu fólki á aldrinum 10-18 ára boðið að taka þátt í skákmóti (hraðskák).  Skáksamband Íslands skipuleggur viðburðinn í samstarfi við Norska Sendiráðið.  Verðlaunahafi hlýtur spennandi gjöf frá Norska sendiráðinu. Viltu vera með?  Sendu póst á Silje.Beite.Loken@mfa.no með nafni og aldri fyrir 9. mars.

Myndin MAGNUS er sýnd kl. 13:00. Mótið fer fram á milli kl. 15:00 – 17:00.

Magnus (NO)

Magnus Carlsen hefur verið kallaður "Mozart of Chess" þar sem hann hefur til að bera kunnáttu og greind stórmeistara í skák ásamt framúrskarandi frumleika og innsæi. Magnus er einstök saga ungs manns sem reis upp úr vítahring eineltis í það að verða ein skærasta stjarna og leiðandi í heimi stórmeistara í skák. Magnus býður áhorfendum ekki aðeins að heyra um hinn magnaða og einstaka keppnisheim í skák, heldur líka að kynnast örlítið huga manns með snilligáfu.

Sýnishorn


Skákþáttur Morgunblaðsins: Á svona augnablikum ræðst gengi manna

Um miðjan ágúst sl. brast á hið svokallaða "demantsafmæli" undirritaðs. Í tilefni þess hófust miklar heitstrengingar um þátttöku á öflugu skákmóti og þá var ekki verið að hugsa um eitt af þessum túristamótum sem nú eru haldin út um allar koppagrundir, heldur „djúpu laugina“, „Volga, Volga mikla móða“. A-flokkur hins endurreista Aeroflot-móts í Moskvu og Gíbraltar-mótið eru sterkustu opnu mót ársins. Aeroflot-mótið rakst að vísu á heimsbikarmót FIDE sem fram fór í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en á Cosmos-hótelið í Moskvu voru mættir til leiks margir af sterkustu ungu skákmönnum heims og stigalágmörk sett við 2550 elo.

Aðstæður mínar voru aðrar en flestra; ef undan eru skildar ýmsar flokkakeppnir hef ég aðeins tekið þátt í tveim einstaklingsmótum sl. tíu ár. Ýmsar aðvörunarbjöllur klingdu: æfingaleysi getur leitt til rangra ákvarðana, þreytu; sjálfstraust kann að hrapa. En hafði maður ekki lent í verðlaunasæti á þessum vettvangi árið 2004? Mótið var keyrt áfram – enginn frídagur og langar setur reyndu á úthaldið eða það sem Rússarnir kalla taugaorkuna. Lögmál Murphys um að allt sem getur farið úrskeiðis fari úrskeiðis virtist allsráðandi í fyrstu tveim skákunum: 

Irriturizaga – Helgi

GG710VBHK64. ... Bb8??

"Lært úrræðaleysi," voru svona mistök kölluð í eina tíð af gömlum félögum mínum. Ég hafði tvisvar áður misst af jafntefli og drýgði nú þá höfuðsynd að gefa upp alla von. Það blasir við að eftir 64. ... Bxg3! þvingar svartur fram jafntefli því að eftir 65. hxg3 er svartur patt.

Ekki gott vegarnesti að tapa þessari skák sem kostaði gríðarleg orkuútlát og 6 klst. taflmennsku.

„Það er kannski fulldjúpt í árinni tekið að halda því fram að ónákvæmni í 18. leik snemma móts geti skipt sköpum en ég hef nú samt á tilfinningunni að þarna hafi ég misst af 1. verðlaunum,“ skrifaði Bent Larsen um glatað tækifæri í skák sem hann tefldi við Anatolí Karpov í San Antonio í Texas haustið 1972. Larsen karlinn talaði oft digurbarkalega en áratuga keppnisreynsla hafði kennt honum að á nákvæmlega svona augnablikum ræðst gengi manna á skákmótum.

Annars staðar í salnum sat hinn frægi Gata Kamsky með tapað tafl gegn Serbanum Indjic:

 

Indjic – Kamsky

GG710VBHOIndic lék nú 59. f5 og eftir 59. ... Kf7 60. f6 Kf8 61. Ke6 Ke8 62. f7+ Kf8 63. Kf6 h6 64. Kg6 h5! varð hvítur að sættast á skiptan hlut.

"Aðeins sá sem hefur lært af mér getur leyst þessa þraut," skrifaði persneski skáksnillingurinn As Suli sem fæddur var árið 880 um skákdæmi sem hann birti í skákkennslubók sem lá gleymd og grafin í meira en þúsund ár eða þar til elsti núlifandi stórmeistari heims, Júri Averbakh, vakti athygli á henni og dæminu á Ólympíumótinu í Dubai árið 1986. "Reitirnir kallast á". Í því hugtaki lá lausnin sem Averbakh fann. Andspæni í ýmsum myndun: á ská, þversum og langsum, er gott íslenskt orð um þá tegund leikþvingunar sem Persinn kunni full skil á.

Aftur að stöðumyndinni: As Suli hefði ekki verið lengi að finna vinninginn: 59. h5 Kf7 60. Kd6 Kf6 61. h6! Kf7 62. Kd7! og vinnur, t.d. 62. ... Kf6 63. Ke8 o.s.frv.

Í B-flokki tefldu Guðmundur Kjartansson, Dagur Ragnarsson og Sigurður Daði Sigfússon. Þeir tveir síðastnefndu bættu ætlaðan árangur sinn og Guðmundur var á pari. 

------------------

Skákþættir Morgunblaðsins eftir Helga Ólafsson birtast u.þ.b. viku síðar á Skák.is.

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 4. mars 2017

Skákþættir Morgunblaðsins


Íslandsmót barnaskólasveita - 4.-7. bekkur fer fram í dag í Grindavík

Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkkur) fer fram  laugardaginn 11. mars í Grindavík.

Teflt verður í Grunnskólanum að Ásabraut 2.

Mótið hefst klukkan 12:00 en liðsstjórar þurfa að staðfesta mætingu sinna sveita fyrir 11:40.

Tefldar verða sjö til níu umferðir (eftir fjölda sveita) með 10 mínútna umhugsunartíma og tveimur viðbótarsekúndum á hvern leik. Mótinu lýkur um seinni partinn.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitir, bestu b-e sveitir og bestu landsbyggðarsveitina. Landsbyggðarsveit skilgreinist sem sveit sem er ekki af höfuðborgarsvæðinu. Sveitir frá Suðurnesjum og Suðurlandi eru landsbyggðarsveitir.

Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fer fram á Íslandi í haust.

Liðsmenn sveita skulu vera í 4.-7. bekk en í a-sveit hvers skóla er þó heimilt að notast við yngri nemendur. Hverri sveit skal fylgja liðsstjóri.

Þátttökugjald er 7.500 kr. á sveit en hámark 15.000 kr. á skóla. Gjald verður innheimt með reikningi að móti loknu.

Veitingasala verður á staðnum.

Upplýsingar um þegar skráðar sveitir má finna hér.

Mótshaldarar eru Skákakademía Reykjavíkur og Skáknefnd UMFG.

Ef spurningar vakna má hringja í Stefán 863-7562 eða Siguringa 691-3007.

Skráning sveita á Skák.is (guli kassinn efst)

Skráningarfrestur er út fimmtudaginn 9. mars. 


Vignir vann Eyvind í Stokkhólmi

404_FM_Vignir_Vatnar_Stefansson

Vignir Vatnar Stefánsson (2353) vann norska FIDE-meistarann Eivind Olav Risting (2283) í sjöundu umferð alþjóðlegs móts í Stokkhólmi í Svíaveldi í dag. Afar vel tefld skák hjá Vigga. Vignir hefur staðið sig mikilli prýði og hefur hlotið 3½ vinning í umferðunum sjö. Mótinu lýkur á morgun með tveimur síðustu umferðunum. 

Í fyrri umferð morgundagsins teflir Vignir við sænska Íslandsvininn og liðsmann Taflfélags Garðabæjar Milton Pantzar (2257). 

Umferðir morgundagsins hefjast kl. 8 og 15.

 


Vignir með með 2½ vinning í Stokkhólmi

403_FM_Vignir_Vatnar_Stefansson-1

Vignir Vatnar Stefánsson (2353) hefur hlotið 2½ vinning eftir 6 umferðir á sterku skákmóti í Stokkhólmi í Svíþjóð. Í 4. og 5. umferð gerði hann jafntefli við Indverjann Sharma Hermant (2399) og sænska FIDE-meistarann Theodor Kenneskog (2323). Í sjöttu umferð tapaði hann fyrir norska FIDE-meistaranum og Íslandsvininum Sebastian Mihaljov (2346).

Sjöunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 14. Þá teflir Viggi við norska FIDE-meistarann Eivind Olav Risting (2283). Mótinu lýkur svo á morgun með tveimur umferðum.

 


Magnús + Skákmót fyrir 10-18 ára

Magnus_TribecaStill-1220x550Skákviðburður fyrir ungt fólk verður haldinn eftir sýningu heimildarmyndarinnar um norska skákmeistarann Magnus Carlsen

Myndin Magnus er sýnd 12. mars kl. 13:00. Eftir myndina er ungu fólki á aldrinum 10-18 ára boðið að taka þátt í skákmóti (hraðskák).  Skáksamband Íslands skipuleggur viðburðinn í samstarfi við Norska Sendiráðið.  Verðlaunahafi hlýtur spennandi gjöf frá Norska sendiráðinu. Viltu vera með?  Sendu póst á Silje.Beite.Loken@mfa.no með nafni og aldri fyrir 9. mars.

Myndin MAGNUS er sýnd kl. 13:00. Mótið fer fram á milli kl. 15:00 – 17:00.

Magnus (NO)

Magnus Carlsen hefur verið kallaður "Mozart of Chess" þar sem hann hefur til að bera kunnáttu og greind stórmeistara í skák ásamt framúrskarandi frumleika og innsæi. Magnus er einstök saga ungs manns sem reis upp úr vítahring eineltis í það að verða ein skærasta stjarna og leiðandi í heimi stórmeistara í skák. Magnus býður áhorfendum ekki aðeins að heyra um hinn magnaða og einstaka keppnisheim í skák, heldur líka að kynnast örlítið huga manns með snilligáfu.

Sýnishorn


Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák hefst 1. apríl í Stúkunni

Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák fer  1.-9. apríl nk. Teflt er í Breiðabliks-stúkunni í Kópavogi. Tefldar verða níu umferðir eftir svissneska kerfinu.

Verðlaun í áskorendaflokki eru sem hér segir: 

  1. 75.000 kr.
  2. 45.000 kr.
  3. 30.000 kr. 

Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verðlaunasætum í áskorendaflokki. Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki í ár sem fram fer á Hafnarfirði, 9.-20. maí nk.

Séu menn jafnir ræður stigaútreikningur.

Skráning

Þátttökugjöld eru 5.000 kr. Unglingar 15 ára og yngri (2000 og síðar) fá 50% afslátt. F3-félagar fá frítt í mótið.

Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Þátttökugjöld greiðist inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409 fyrir mót.

Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.

Tímamörk

Áskorendaflokkur: 90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.

Opinn flokkur: 30 mínútur auk 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.

Dagskrá: 

  1. umferð, laugardagurinn, 1. apríl, kl. 13:00
  2. umferð, sunnudagurinn, 2. apríl, kl. 13:00
  3. umferð, mánudagurinn, 3. apríl, kl. 18:30
  4. umferð, þriðjudagurinn, 4. apríl, kl. 18:30
  5. umferð, miðvikudagurinn, 5. apríl, kl. 18:30
  6. umferð, fimmtudagurinn, 6. apríl, kl. 18:30
  7. umferð, föstudagurinn, 7. apríl, kl. 18:30
  8. umferð, laugardagurinn, 8. apríl, kl. 13:00
  9. umferð, sunnudagurinn, 9. apríl, kl. 13:00

Jafnteflisreglur 

Takmarkanir eru settar á jafnteflisboð. Hún gengur út á það að ekki er heimilt að bjóða jafntefli fyrr en báðir keppendur hafa leikið 30 leiki. Á því má gera undantekningar sé þráteflt en þá verður að stöðva klukku, kalla á skákstjóra og koma með jafntefliskröfu. 

Yfirseta

Hægt er að taka tvær yfirsetur í umferðum 1-6 og fá fyrir hana hálfan vinning. Óska þarf eftir yfirsetunni með góðum fyrirvara og fylla út eyðublað þess efnis hjá skákstjóra.

Þegar skráðir keppendur

 


Íslandsmót skákfélaga: Skákir 2. umferðar

Daði Ómarsson hefur skilað af sér innslætti skáka annarrar umferð Íslandsmóts skákfélaga. Þær fylgja með sem viðhengi.

 


Íslandsmót barnaskólasveita 4.-7. bekkur fer fram á laugardag - skráningu lýkur á miðnætti

Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkkur) fer fram  laugardaginn 11. mars í Grindavík.

Teflt verður í Grunnskólanum að Ásabraut 2.

Mótið hefst klukkan 12:00 en liðsstjórar þurfa að staðfesta mætingu sinna sveita fyrir 11:40.

Tefldar verða sjö til níu umferðir (eftir fjölda sveita) með 10 mínútna umhugsunartíma og tveimur viðbótarsekúndum á hvern leik. Mótinu lýkur um seinni partinn.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitir, bestu b-e sveitir og bestu landsbyggðarsveitina. Landsbyggðarsveit skilgreinist sem sveit sem er ekki af höfuðborgarsvæðinu. Sveitir frá Suðurnesjum og Suðurlandi eru landsbyggðarsveitir.

Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fer fram á Íslandi í haust.

Liðsmenn sveita skulu vera í 4.-7. bekk en í a-sveit hvers skóla er þó heimilt að notast við yngri nemendur. Hverri sveit skal fylgja liðsstjóri.

Þátttökugjald er 7.500 kr. á sveit en hámark 15.000 kr. á skóla. Gjald verður innheimt með reikningi að móti loknu.

Veitingasala verður á staðnum.

Mótshaldarar eru Skákakademía Reykjavíkur og Skáknefnd UMFG.

Ef spurningar vakna má hringja í Stefán 863-7562 eða Siguringa 691-3007.

Skráning sveita á Skák.is (guli kassinn efst)

Skráningarfrestur er út fimmtudaginn 9. mars. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 16
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 117
  • Frá upphafi: 8778389

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 91
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband