Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, mars 2017

Huginn Íslandsmeistari skákfélaga

Skákfélagiđ Huginn er Íslandsmeistari skákfélaga. Ţađ er ljóst ţó enn sé nokkrum skákum ólokiđ. Lokaumferđin var ţvílíkt spennandi og réđust úrslitin ekki fyrr en í lokaskákunum. Skákdedild Fjölnis varđ í ţriđja sćti. Spennan var ekki minni í fallbaráttunni en ţar björguđu KR-ingar sér frá falli međ frábćrum endaspretti. Reyknesingar og b-sveit TR féllu niđur í 2. deild. 

Lokastađan á Chess-Results.

2. deild

Taflfélag Garđabćjar vann ađra deildina. B-sveit Skákfélag Akureyrar varđ í öđru sćti og fylgir ţeim upp í efstu deild. 

Nánar á Chess-Results. 

3. deild

Hrókar alls fagnađar unnu deildina. Selfyssingar fylgja ţeim upp í 2. deild. 

Nánar á Chess-Results.  


4. deild

B-sveit Víkingaklúbbsins vann öruggan sigur. Skákfélag Sauđárkróks og Taflfélag Vestmannaeyja fylgja ţeim upp í 3. deild.

Nánar á Chess-Results.

Nánari fréttir síđar.. 


Skákţáttur Morgunblađsins: Sókndjarfir fótgönguliđar

G2E10UDQDÁ hinu árlega Norđurlandamóti ungmenna sem fram fór í Drammen í Noregi um síđustu helgi tefldu Íslendingar fram ágćtu liđi í fimm aldursflokkum frá 10 til 19 ára aldurs. Viđ vorum međ ţrjá nýliđa í hópnum en einnig stigahćsta keppandann, Vigni Vatnar Stefánsson, sem ţurfti ţví miđur ađ kljást viđ slćma hálsbólgu međan á keppni stóđ.

Ađrir liđsmenn Íslands voru Dagur Ragnarsson, Oliver Aron Jóhannesson, Hilmir Freyr Heimisson, Bárđur Birkisson, Nansý Davíđsdóttir, Óskar Víkingur Davíđsson, Robert Luu, Stefán Orri Davíđsson og Gunnar Erik Guđmundsson, en tveir síđastnefndu voru nýliđar. Fararstjórar og ţjálfarar voru undirritađur og Guđmundur Kjartansson.

Á NM ungmenna er keppt um verđlaun í fimm aldursflokkum og mótiđ er einnig keppni allra sex Norđurlandaţjóđanna ţar sem samanlagđur vinningafjöldi rćđur niđurstöđunni. Ţessi keppni hefur fengiđ síaukiđ vćgi undanfarin ár. Fyrir síđustu unferđ voru Íslendingar međ 1 ˝ vinnings forskot á gestina, Norđmenn, og međ góđa stöđu međ tilliti til sigurs í tveim flokkum. En í lokaumferđinni var eins og hin stífa dagskrá, tvćr kappskákir á dag, kćmi loksins niđur á einbeitninni. Dagur Ragnarsson, Oliver Aron og Óskar Víkingur voru allir međ unnar stöđur en uppskeran var rýr, ađeins ˝ vinningur úr ţessum ţrem mikilvćgu skákum og til ađ bćta gráu ofan á svart ţá sigldu Norđmenn fram úr okkur í 6-landa keppninni ţar sem íslenska liđiđ endađi í 2. sćti, Svíar urđu í 3. sćti, Finnar og Danir í 5. sćti og Fćreyingar ráku lestina. Oliver Aron fékk silfur í sínum flokki og Robert Luu brons. Ţeir hlutu báđir 4 vinninga en Dagur, Vignir, Óskar Víkingur og Bárđur fengu allir 3 ˝ vinning.

Framkvćmd norsku skipuleggjendanna var međ miklum ágćtum.

Á mótinu voru tefldar fjölmargar skemmtilegar skákir en skák Dags í 5. umferđ var án efa sú fallegasta. Ţađ verđur aldrei nógsamlega brýnt fyrir ungum skákmönnum ađ peđ eru líka sóknarmenn; d- og h-peđ hvíts ruddu brautina í eftirfarandi glćsiskák:

NM ungmenna 2017:

Dagur – Ragnarsson – Mikkel Jakobsen

1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. Bg5 h6 6. Bxf6 Dxf6 7. e3 Rd7 8. Bd3 g6 9. O-O Bg7 10. Hc1 dxc4 11. Bxc4 O-O 12. He1 Hd8 13. e4 e5 14. d5 Rb6 15. Bb3 Be6?!

Óvenjulegur leikur í ţekktri byrjun sem býđur uppá ţann athyglisverđa möguleika ađ gefa drottninguna fyrir hrók og léttan. En Dagur ákvađ ađ bíđa átekta.

16. He3 cxd5 17. exd5 Df5 18. Re1 e4?!

Vafasamur leikur. Og nú voru öll bestu skilyrđi fyrir hendi til ađ láta drottninguna af hendi.

G2E10UDQI19. dxe6! Hxd1 20. exf7+ Kh7 21. Hxd1 Hc8 22. Rxe4 Rc4 23. He2 Db5 24. Hc2!

Óţćgileg leppun eftir c-línunni.

24. De5 25. Bxc4 Dxe4 26. Bd3! Dg4 27. Hxc8 Dxc8

28. Dxd1 29. Kf1 dugar skammt.

G2E10UDQN

 

 

 

28. h4!

Loftar út og hótar 29. h5.

28. ... h5 29. Rf3 Bxb2?

Ţetta peđ er eitrađ. Hann gat enn barist međ 29. Bf6 sem hvítur svarar best međ 30. b3 ásamt 31. Bc4. Ađ endingu mun f7-peđiđ alltaf ráđa úrslitum.

30. Rg5+ Kg7 31. He1! Ba3 32. He6! Dc1+ 33. Kh2 Df4+ 34. g3 Dxf2+ 35. Kh3

Vel reiknađ, svartur á ekki fleiri skákir.

35. Kf8 36. He8+ Kg7 37. Hg8+

- og svartur gafst upp. Eftir 37. ... Kf6 vinnur 38. f8(D)+ eđa 38. Re4+ Kxf7 39. Bc4+ og síđan fellur drottningin.

 

------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 25. febrúar 2017

Skákţćttir Morgunblađsins


Huginn međ hálfs vinnings forskot fyrir lokaumferđina - afar óvćnt úrslit KR gegn Hugin

 

Ein óvćntustu úrslit í sögu Íslandsmóts skákfélaga urđu í áttundu og nćstsíđustu umferđ Íslandsmóts skákfélaga rétt í ţessu ţegar Skákdeild KR gerđi 4-4 jafntefli gegn Íslandsmeisturum Hugins. Á sama tíma vann Taflfélag Reykjavíkur 5˝-2˝ sigur á Skákfélagi Akureyrar. Munurinn á sveitunum er ţví ađeins hálfur vinningur fyrir lokaumferđina sem hefst kl. 17. Búast má viđ gríđarlegri spennu 

Í lokaumferđinni teflir Hugin viđ b-sveit TR og TR viđ Fjölni. 

Stađan:

Clipboard01

2. deild

Taflfélag Garđabćjar hefur örugga forystu í annarri deild og hafa nánast tryggt sér sćti í efstu deild nćsta keppnistímabil. B-sveit Akureyrar er í öđru sćti og virđast einnig vera á leiđinni upp. C-sveit Hugins er í ţriđja sćti.

Nánar á Chess-Results. 

3. deild

Hrókar alls fagnađar eru efstir og hafa tryggt sér sćti í 2. deild. Skákfélag Selfoss er í öđru sćti og virđast líklegir til ađ fylgja ţeim upp. Skákfélag Siglufjarđar er í ţriđja sćti.

Nánar á Chess-Results.  


4. deild

B-sveit Víkingaklúbbsins hefur tryggt sér sigur í deildinni og sćti í 3. deild. Skákfélag Sauđárkróks og Taflfélag Vestmannaeyja eru í 2.-3. sćti. 

Nánar á Chess-Results.

 


Huginn jók forystuna í tvo vinninga - spennandi lokadagur framundan

2017-03-03 22.20.18

Umferđ kvöldsins var afar spennandi á Íslandsmóti skákfélaga. Fyrir hana höfđu Huginsmenn eins vinnings forskot á Taflfélag Reykjavíkur. Huginn mćtti Víkingaklúbbnum en Taflfélagsmenn öttu kappi viđ Skákfélag Akureyrar. Báđir viđureignirnar voru vćgst sagt afar spennandi. Úrslitin í viđureign TR-inga og SA-manna réđust mun fyrr en ţar vann TR 5-3 sigur. Óvćnt úrslit urđu ţegar Jón Kristinn Ţorgeirsson vann alţjóđlega meistarann Arnar Gunnarsson á glćsilegan hátt eftir margskonar fórnir og Arnar Ţorsteinsson hafđi sigur á stórmeistaranum Stefán Kristjánssyni.

2017-03-03 22.20.49

Ţegar úrslitin í viđureign TR og SA voru ljós var enn allmörgum skákum ólokiđ í viđureign Hugins og Víkinganna og úrslit engan vegin ljós. Huginsmenn voru seigir ađ draga inn vinninganna á lokasprettinum úr misgóđum stöđum og svo fór ađ ţeir unnu 6-2 sigur og juku ţar međ forystuna á TR úr einum vinningi í tvo vinninga fyrir lokaátökin.

Ţessar sveitir hafa mikla yfirburđi en munurinn á öđru og ţriđja sćti er 8 vinningar. Fjölnismenn sem unnu b-sveit TR 5˝-2˝ eru ţriđju. Bolvíkingar eru fjórđu ţrátt fyrir 3-5 tap gegn b-sveit Hugins sem tókst međ sigri ađ fjarlćgja sig nokkuđ frá fallbaráttunni.

Ţađ stefnir í afar spennandi fallbaráttu en ađeins munar tveimur vinningum á sjöunda og tíunda sćti en tvćr neđstu sveitirnar falla.

Lokaumferđirnar tvćr eru tefldar í dag (laugardag). Sú fyrri hefst kl. 11 og sú síđari kl. 17. 

Stađan:

Clipboard02

 

 

 

 

 

 

 

 

 

2. deild

Taflfélag Garđabćjar er efst í 2. deild. B-sveit Skákfélag Akureyrar er í öđru sćti og Vinaskákfélagiđ í ţví ţriđja. Afar mjótt er á munum í deildinni bćđi á toppi og botni. Tvö efstu liđin vinna sig upp og tvö neđstu falla. 

Clipboard03


3. deild

Hrókar alls fagnađar eru efstir í deildinni međ fullt hús stiga. Skákfélag Selfoss og nágrennis er í öđru sćti og c-sveit Skákfélags Akureyrar í ţví ţriđja. 

Röđ efstu liđa:

Clipboard04


4. deild

B-sveit Víkingaklúbbsins er efst međ fullt hús stiga. E-sveit TR er í öđru sćti og Skákfélag Sauđárkróks og Taflfélag Vestmannaeyja eru í 3.-4. sćti. Ţrjú efstu liđin ávinna sér keppnisrétt í 3. deild á nćsta keppnistímabili.

Röđ efstu sveita:

Clipboard05

 

 

 


Huginn međ eins vinnings forskot á TR

17105344_10155162020347728_46588027_n

Taflfélag Reykjavíkur minnkađi forystu Skákfélagsins Hugins niđur í ađeins einn vinning í sjöttu umferđ Íslandsmóts skákfélaga í kvöld. TR vann ţá 7˝-˝ sigur á Skákdeild KR. Á sama tíma töpuđu Huginsmenn niđur 2 vinningum á móti Skákfélagi Reykjanesbćjar ţar sem Haukur Bergmann gerđi sér lítiđ fyrir og vann alţjóđlega meistarann Einar Hjalta Jensson ţrátt fyrir mikinn stigamun.

Skákdeild Fjölnis er ţriđja sćti eftir sigur á Víkingaklúbbnum međ minnsta mun 4˝-3˝. Taflfélag Bolungarvíkur er í fjórđa sćti ásamt Víkingaklúbbnum en ţeir unnu b-sveit TR 5˝-˝. B-sveit Hugins vann Skákfélag Akureyrar 5-3 og er í sjötta sćti. 

Einstaklingsúrslit má finna hér

Gríđarleg spennandi fallbarátta er framundan en ađeins munar 3 vinningum á sjötta sćtinu og fallsćti. 

Stađan:

Clipboard01


Sjöunda umferđ fer fram á morgun. Ţá teflir Hugin viđ Víkingaklúbbinn og TR viđ Skákfélag Akureyrar. 

Mótiđ á Chess-Results.


Síđari hluti Íslandsmót skákfélaga hefst í kvöld

16905029_10155195917503291_6296132756881029019_o

Síđari hluti Íslandsmóts skákfélaga hefst á morgun međ taflmennsku í fyrstu deild. Deildir 2-4 hefjast á föstudagskvöldiđ. Taflmennsku lýkur á laugardaginn. Teflt er í Rimaskóla í Grafarvogi. 

Íslandsmót skákfélaga er mikil árshátíđ skákmanna. Ţar tefla allir sterkustu skákmenn ţjóđarinnar. Međal keppenda um helgina má nefna Gunnar Gunnarsson, 84 ára. Gunnar varđ Íslandsmeistari í skák áriđ 1966 og Jósef Omarsson, 5 ára en Jósef tefldi međ liđi leikskólans Laufásborgar á Íslandsmóti barnaskólasveita fyrir skemmstu en frammistađan skólans vakti feyki athygli. Sennilega er ţađ einsćmi ađ aldurmunur á keppendum á sama móti sé um 80 ár! 

Mikil spenna er í öllum deildum.  Í fyrstu deild berjast Íslandsmeistarar Hugins viđ Taflfélag Reykjavíkur um titilinn. Huginsmenn hafa 2˝ vinnings forskot á TR. Skákdeild Fjölnis er í ţriđja sćti. 

Stöđuna má nálgast hér.

Í annarri deild eru Taflfélag Garđabćjar og b-sveit Skákfélag Akureyrar í forystu. C-sveit Hugins er í ţriđja sćti. 

Stöđuna má nálgast hér

Hrókar alls fagnađar eru efstir í ţriđju deild. Skákfélag Selfoss og b-sveit Skákfélags Reykjanesbćjar eru í 2.-3. sćti.

Stöđunu má nálgast hér

B-sveit Víkingaklúbbsins er efst í fjórđu deild. Skákfélag Sauđárkróks er í 2. sćti og e-sveit Taflfélags Reykjavíkur í ţví ţriđja.

Stöđuna má finna hér.

Teflt er á fimmtudagskvöldiđ kl. 19:30, föstudagskvöldiđ kl. 20 og á laugardaginn kl. 11 og 17.

Lokahóf mótsins verđur í Kringlukránni um kl. 22:00. Ţangađ eru allir 20 ára og eldri velkomnir.


Fannar Breki sigurvegari Skákţings Akureyrar - yngri flokka

Ţeir Fannar Breki Kárason og Arnar Smári Sigrúnarson urđu efstir og jafnir á mótinu um síđustu helgi, eins og komiđ hefur fram hér á síđunni. Báđir tryggđu sér ţađ međ Akureyrarmeistaratitil í skólaskák, hvor í sínum flokki. Til ađ skera úr um sigurvegara á Skákţinginu og titilinn skákmeistari Akureyrar í yngri flokkum var efnt til einvígis sem fór fram í Skákheimilinu í gćr. 

Fannar vann fyrstu skákina nokkuđ örugglega eftir ađ Arnar lék af sér manni í upphafi miđtaflsins. Í annarri skákinni snerist ţetta viđ; Arnar náđi undirtökum strax eftir byrjunina og nýtti sér yfirburđi sína til ađ vina öruggan sigur. Ţar sem stađan var ţá jöfn tefldu ţeir eina skák til úrslita. Var hún sviptingasöm eins og efni stóđu til. Eftir ađ hafa fengiđ góđa stöđu úr byrjuninni lék Fannar illa af sér og tapađi manni. Hann klórađi ţó í bakkann og á örlagastundu uggđi Arnar ekki ađ sér, hótađi máti međ kröftugum riddaraleik en sást yfir ađ hann gaf um andstćđingum leiđ fćri á mái í leiknum. Fannar greiđ tćkifćriđ og vann ţar međ einvígiđ og Skákţingiđ.  Viđ óskum honum til hamingju međ sigurinn, en báđir mega ţeir félagar vera stoltir af árangrinum og framsókn sinni á skáksviđinu.


Aeroflot Open: Gott og slćmt gengi

Aeroflot Open lauk í dag í Moskvu. Ţađ gekk upp og niđur hjá íslensku keppendum. Sigurđur Dađi Sigfússon (2226) og Dagur Ragnarsson (2276) áttu báđir gott mót í b-flokki og hćkka vel á stigum. Guđmundur Kjartansson (2464) fékk flesta vinninga íslensku keppendanna og var nálćgt pari. Helgi Ólafsson (2540), sem tefldi í a-flokki, náđi sér ekki á strik á mótinu.  

Helgi hlaut 2,5 vinning í 9 skákum í a-flokki. Guđmundur Kjartansson varđ efstur strákanna í b-flokki en hann hlaut 5,5 vinninga. Sigurđur Dađi Sigfússon hlaut 4 vinninga og Dagur Ragnarsson 3,5 vinninga. 

Sigurđur Dađi hćkkar um 26 stig fyrir frammistöđu sína, Dagur um 17 stig ţrátt fyrir hafa tapađ ţremur síđustu skákunum. Guđmundur lćkkar um 2 stig og Helgi um 26 stig. 


KALAK fagnar 25 ára afmćli á laugardag -- allir velkomnir

1dKALAK, vinafélag Íslands og Grćnlands, bođar til 25 ára afmćlisfagnađar laugardaginn 4. mars kl. 14-16 í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11 viđ Reykjavíkurhöfn. Rifjuđ verđur upp saga félagsins, bođiđ upp á veitingar og nýir og gamlir Grćnlandsvinir bođnir velkomnir til fagnađarfundar.

 

KALAK, vinafélag Íslands og Grćnlands, var stofnađ í Norrćna húsinu í Reykjavík miđvikudaginn 4. mars 1992. Í fyrstu stjórn KALAK voru Guđmundur Hansen formađur, Magnús Magnússon, Elísabeth B. Nielsdóttir og Kolbrún Sćmundsdóttir. Stofnfélagar voru 43.

1 (12)

Markmiđ KALAK er ađ vinna ađ auknum samskiptum Íslands og Grćnlands, einkum á sviđi félags- og menningarmála. Félagiđ hefur gegnum tíđina haldiđ fjölmörg mynda- og frćđslukvöld, stađiđ fyrir Grćnlenskum dögum og stutt viđ samfélagsleg verkefni á Grćnlandi, sérstaklega í ţágu ungs fólks.

img668

Stćrsta verkefni KALAK árlega er heimsókn 11 ára barna frá litlu ţorpunum á austurströnd Grćnlands. Hingađ koma ţau ásamt fylgdarliđi kennara og dvelja á Íslandi í rúmlega 2 vikur. Börnin sćkja skóla í Kópavogi, ţar sem ţau kynnast jafnöldrum, fara í sundtíma tvisvar á dag og gera ótal margt skemmtilegt međan á dvölinni stendur.  KALAK hefur líka frá upphafi, áriđ 2003, tekiđ virkan ţátt í skáklandnámi og verkefnum Hróksins á Grćnlandi, og eiga félögin góđa og nána samvinnu.

Allir eru hjartanlega velkomnir í afmćlisfögnuđinn á laugardaginn.

 

Um KALAK: http://kalak.is/um-kalak/


Síđari hluti Íslandsmóts skákfélaga hefst á morgun

16905029_10155195917503291_6296132756881029019_o

Síđari hluti Íslandsmóts skákfélaga hefst á morgun međ taflmennsku í fyrstu deild. Deildir 2-4 hefjast á föstudagskvöldiđ. Taflmennsku lýkur á laugardaginn. Teflt er í Rimaskóla í Grafarvogi. 

Íslandsmót skákfélaga er mikil árshátíđ skákmanna. Ţar tefla allir sterkustu skákmenn ţjóđarinnar. Međal keppenda um helgina má nefna Gunnar Gunnarsson, 84 ára. Gunnar varđ Íslandsmeistari í skák áriđ 1966 og Jósef Omarsson, 5 ára en Jósef tefldi međ liđi leikskólans Laufásborgar á Íslandsmóti barnaskólasveita fyrir skemmstu en frammistađan skólans vakti feyki athygli. Sennilega er ţađ einsćmi ađ aldurmunur á keppendum á sama móti sé um 80 ár! 

Mikil spenna er í öllum deildum.  Í fyrstu deild berjast Íslandsmeistarar Hugins viđ Taflfélag Reykjavíkur um titilinn. Huginsmenn hafa 2˝ vinnings forskot á TR. Skákdeild Fjölnis er í ţriđja sćti. 

Stöđuna má nálgast hér.

Í annarri deild eru Taflfélag Garđabćjar og b-sveit Skákfélag Akureyrar í forystu. C-sveit Hugins er í ţriđja sćti. 

Stöđuna má nálgast hér

Hrókar alls fagnađar eru efstir í ţriđju deild. Skákfélag Selfoss og b-sveit Skákfélags Reykjanesbćjar eru í 2.-3. sćti.

Stöđunu má nálgast hér

B-sveit Víkingaklúbbsins er efst í fjórđu deild. Skákfélag Sauđárkróks er í 2. sćti og e-sveit Taflfélags Reykjavíkur í ţví ţriđja.

Stöđuna má finna hér.

Teflt er á fimmtudagskvöldiđ kl. 19:30, föstudagskvöldiđ kl. 20 og á laugardaginn kl. 11 og 17.

Lokahóf mótsins verđur í Kringlukránni um kl. 22:00. Ţangađ eru allir 20 ára velkomnir.


« Fyrri síđa

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 8778393

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband