Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, október 2014

Barna- og unglingameistaramót / Stúlknameistaramót TR fer fram í dag

Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 26. október í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Tafliđ hefst kl.14.

Tefldar verđa 7 umferđir eftir Monrad-kerfi međ umhugsunartímanum 15 mín. á skák.

Teflt verđur í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verđlaun verđa veitt fyrir ţrjú efstu sćtin í opna flokknum og ţar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2014.

Ţá verđa veitt verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í stúlknaflokknum og ţar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2014.

Til viđbótar verđa veitt verđlaun fyrir efsta sćtiđ í aldursflokknum 13-15 ára, 11-12 ára, 9-10 ára sem og 8 ára og yngri í báđum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).

Mótiđ er opiđ öllum krökkum 15 ára og yngri (fćdd 1999 og síđar). Skráning fer fram á vef Taflfélags Reykjavíkur og skak.is.  Smelliđ hér til ađ fara beint í skráningarform (vinsamlegast gefiđ upp nafn, fćđingarár og símanúmer) og einnig er hćgt ađ skrá sig á mótsstađ sunnudaginn 26. október frá kl. 13.30- 13.45.

Ađgangur á mótiđ er ókeypis.


Gallerý Skák: Kapptefliđ um Patagóníusteininn VI - Björn Hólm vann fyrsta mótiđ af sex

bjorn_holm_til_vinstri_-ese_23_10_2014_21-58-28.jpgTaflkvöldin halda áfram í Gallerý Skák hjá TR í Faxafeni međ vaxandi ţátttöku yngri sem eldri. Á fimmtudagskvöldiđ hófst hin árlega mótaröđ um PATAGÓNÍUSTEININN, sem keppt er nú um í sjötta sinn.  Steinninn, sem barst hingađ til lands eftir dularfullum leiđum, er einstakt listaverk úr skauti  náttúrunnar suđur ţar, yfir 30 milljón ára gamall.

Um er ađ rćđa 6 kvölda Grand prix mótaröđ ţar sem 4 vettvangsmynd_23_10_2014_18-22-01.jpgbestu mót hvers keppenda telja til stiga og vinnings.  Stigajöf verđur háttađ eins og í Formúlu 1.  Sigurvegarinn  fćr 10 stig og síđan er gefin 8. 6. 5. 4. 3. 2. og 1 stig  eftir sćtaröđ. Góđ verđlaun er veitt og sigurvegarinn fćr nafn sitt skráđ gullnu letri á stall steinsins. Gunnar Kr. Gunnarsson vann fyrstu 2 árin, síđan Vignir Vatnar Stefánsson og Guđfinnur R. Kjartanson í síđustu tvö skipti.

patag_n_usteinninn_1248361.jpgFyrsta mótiđ fór fram fyrrakvöld. Segja má ţađ ţetta hafi veriđ eins konar upphitunarmót fyrir skákhátíđina Ćskan og Ellin í dag ţví 6 ungmenni voru međal keppenda sem velgdu gamalmennum og öđrum keppendum vel undir uggum. Sérstaklega athygli vakti Björn Hólm Birkisson 14 ára TR-ingur sem gerđi sér lítiđ fyrir og varđ efstur og   tvíburabróđir hans Bárđur Örn stóđ sig einnig vel og varđ. Voru ţó ýmsir kunnir kappar međal keppenda sem ekki láta sér allt fyrir brjósti brenna. Gaman verđur ađ fylgjast međ ţeim brćđrum á nćstunni og fleiri efnilegum ungmennum.

Nćsta skákkvöld  af ţessu tagi verđur eftir viku á sama stađ, en telft er viđ kjörađstćđur í skákmiđstöđinni í Faxafeni. Mótin eru öllum opin - bara ađ mćta og sýna snilli sína - hvort sem menn hyggjast taka ţátt i kappteflnu öllu eđa  ekki.  Mótin hefjast  kl. 18 ţegar degi hallar á fimmtudögum. Telfdar eru 11 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma á skákina.  Ţátttökugjöld eru kr. 500 en kr. 1000 fyrir ţá sem eru í fćđi.

Stigastađan ađ einu móti loknu: Björn 10; Friđgeir 8; Jon Olav 6; Bárđur 5; Guđfinnur 4; Ţór 3; Kristján 2 og Árni 1.  

Sjá nánar međf. mótstöflu međ vettvangsmyndum /  ESE

 

gallery_skak_-_motstafla_23_okt_24_10_2014_08-01-038.jpg

 

 


Unglingameistaramót Íslands 2014

Unglingameistaramót Íslands 2014 fer fram í Rimaskóla dagana 7.- 8. nóvember nk.  Ţátttökurétt eiga ţeir sem verđa 20 ára á almanaksárinu og yngri.

Sigurvegari á mótinu hlýtur titilinn “Unglingameistari Íslands 2014” og í verđlaun farseđil - ađ hámarki kr. 50.000.-  á skákmót erlendis.  Farseđilinn gildir í eitt ár.                       

Umferđatafla:            

  • Föstudagur 7. nóv.     kl. 20.00                                 3 atskákir
  • Laugardagur 8. nóv.:  kl. 17.00                                 4 atskákir

Ađ móti loknu verđur verđlaunaafhending.           

Tímamörk:                  25 mín + 10 sek. viđbótartími á hvern leik   

Ţátttökugjöld:            kr. 2.000.-

Skráning:                    http://www.skak.is og skaksamband@skaksamband.is  

Skráningu lýkur fimmtudaginn 6. nóvember.



Íslandsmót 15 ára og yngri fer fram 8. og 9. nóvember

Skákţing Íslands 2014 -  drengja-og telpnameistaramót (15 ára og yngri).

Skákţing Íslands 2014 -   pilta-og stúlknameistaramót (13 ára og yngri).                                       

Keppni á Skákţingi Íslands 2014 - 15 ára og yngri (fćdd 1999 og síđar) og 13 ára og yngri (fćdd 2001 og síđar) verđur haldiđ í Rimaskóla  dagana 8. og 9. nóvember nk.  Tefldar verđa 9 umferđir eftir monrad kerfi og er umhugsunartími 25 mín. + 10 sek. viđbótartími á hvern leik.  Teflt verđur í einum flokki.

Umferđataflan er ţannig:

Laugardagur 8. nóvember     

  • kl. 12.00                     1. umferđ
  • kl. 13.00                     2. umferđ
  • kl. 14.00                     3. umferđ
  • kl. 15.00                     4. umferđ
  • kl. 16.00                     5. umferđ

Sunnudagur 9. nóvember      

  • kl. 11.00                     6. umferđ
  • kl. 12.00                     7. umferđ
  • kl. 13.00                     8. umferđ
  • kl. 14.00                     9. umferđ

Ţetta eru áćtlađar tímasetningar, en hver ný umferđ hefst ađ ţeirri fyrri lokinni.

Ađ ţví loknu verđlaunaafhending og mótsslit.

Ţátttökugjöld: kr. 1.000.- (hámark kr. 1.500.- fyrir fjölskyldu)

Verđlaun:        Verđlaunabikarar fyrir ţrjú efstu sćtin í hvorum flokki.

Skráning: http://www.skak.is og skaksamband@skaksamband.is

Skráningu lýkur fimmtudaginn 6. nóvember.


Ćskan og ellin - Olísmótiđ fer fram í dag

_skanogellin_veggspjald_23_10_2012_22-13-15.jpgSkákmótiđ ĆSKAN OG ELLIN, ţar sem kynslóđirnar mćtast, verđur haldiđ í ellefta sinn laugardaginn 25.  október  í Skákhöllinni í Faxafeni.

RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara, Taflfélagi Reykjavíkur  og OLÍS -gerđu í fyrra  međ sér  stuđnings- og samstarfssamning um framkvćmd mótsins, til ađ auka veg ţess og tryggja  ţađ í sessi til framtíđar.  ĆSIR,  hinn skákklúbbur eldri borgara á höfuđborgarsvćđinu leggur mótinu liđ.

Fyrstu 9 árin var mótiđ veriđ haldiđ í Strandbergi, safnađarheimili Frá 2013-mótinuHafnarfjarđar-kirkju, ţar sem Riddarinn hefur ađsetur sitt og eldri skákmenn hittast til tafls vikulega allan ársins hring.  Fyrri mót af ţessu tagi, ţar sem kynslóđirnar mćtast, hafa vakiđ verđskuldađa athygli, veriđ afar vel heppnuđ  og til mikillar ánćgju fyrir alla ţátttakendur,  jafnt yngri sem eldri.  Í fyrra var yfir 80 ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppandans. Ţá sigrađi Bragi Halldórsson (64) en Oliver Aron Jóhannesson(15) og Vignir Vatnar Stefánsson (10) komu nćstir.

_skan_og_ellin_2013-003_1248028.jpgVerđlaunasjóđur mótsins nú er kr. 100.000, (50.000; 25.000; 15.000; 10.000) auk ţess sem veitt verđa aldurflokkaverđlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga. Gjafabréf  fyrir flugmiđum á mót erlendis međ Icelandair fyrir sigurvegara í barna og unglingaflokkum, 9 ára og yngri; 19-12 ára og 13-15 ára.  Úttektarkort fyrir eldsneyti hjá OLÍS fyrir efstu menn í 3 öldungaflokkum, 60-69 ára; 70-79 ára og 80 ára og eldri. Auk ţess fá yngsti og elsti keppandi mótsins heiđursverđlaun. Fagrar  verđlaunastyttur fyrir sigurvegara mótsins og verđlaunapeningar  í öllum flokkum auk _skan_og_ellin_2013-004_1248029.jpgbókaverđlauna ofl.

Ţátttaka í mótinu er ókeypis og miđast viđ börn og ungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri og roskna skákmenn, 60 ára og eldri. Mótiđ hefst kl. 13 og tefldar verđa 9 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma.   

Mótsnefnd skipa ţeir Björn Jónsson, formađur TR, Einar S. Einarsson, formađur Riddarans og Páll Sigurđsson, skákstjóri. 

elsti_og_yngsti_keppandinn_ljosm_k_26_10_2013_17-39-34_2013_17-39-34.jpgSkráning til ţátttöku fer fram á www.skak.is og www.taflfelag.is  vikuna fyrir mót.  Hámarksfjöldi keppenda miđast viđ 100 og ţví mikilvćgt ađ skrá sig sem fyrst og mćta svo tímanlega á mótsstađ.   


Gauti á sigurbraut!

Gauti PállSjötta umferđ EM ungmenna fór fram í dag í Batumi í Georgíu. Gauti Páll Jónsson vann sína ađra skák í röđ í dag! Oliver Aron Jóhannesson og Símon Ţórhallsson gerđu jafntefli en Dagur Ragnarsson tapađi.

Oliver hefur 3 vinninga, Símon og Gauti hafa 2,5 vinning og Dagur hefur 1 vinning.

Frídagur er á morgun.

Úrslit 6. umferđar

em2014-sta_a_1248350.jpg


Stađa íslensku keppendanna

em2014-sta_a_1248351.jpg

 

989 skákmenn frá 43 löndum taka ţátt. Fulltrúar Íslands eru fjórir ađ ţessu sinni. Dagur Ragnarsson (2154) teflir flokki 18 ára og yngri en Oliver Aron Jóhannesson (2192), Símon Ţórhallsson (1796) og Gauti Páll Jónsson (1739) tefla í flokki 16 ára og yngri. Helgi Ólafsson er fararstjóri og ţjálfari.

Dagur er nr. 42 í stigaröđ 62 keppenda. Í flokki 16 ára og yngri taka 89 skákmenn ţátt. Oliver er nr. 32 í stigaröđ keppenda en Símon er nr. 77 og Gauti er nr. 82.



Unglingameistaramót Hugins hefst á mánudag

Unglingameistaramót Hugins 2014 (suđursvćđi) hefst mánudaginn 27. október n.k. kl. 16.30 ţ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsćfingar. Mótinu verđur svo fram haldiđ ţriđjudaginn 28. október n.k. kl. 16.30 Tefldar verđa 7 umferđir eftir Monrad kerfi. Fyrri keppnisdaginn verđa fjórar skákir og ţrjár ţann seinni. Umhugsunartími á hverja skák er 20 mínútur. Mótiđ er opiđ öllum 15 ára og yngri í grunnskóla en titilinn sjálfan getur ađeins félagsmađur í Huginn unniđ. Á međan á mótinu stendur falla venjulegar barna- og unglingaćfingar niđur. Nćsta barna- og unglingaćfing eftir unglingameistaramótiđ verđur mánudaginn 3. nóvember n.k.  Keppnisstađur er Álfabakki 14a (inngangur milli Subway og Fröken Júlíu) og er salur félagsins á ţriđju hćđ. Engin ţátttökugjöld.

Verđlaunagripir verđa fyrir ţrjú efstu sćtin. Allir ţátttakendur fá skákbók.

Umferđatafla:

1.-4. umferđ:                Mánudaginn 27. október kl. 16.30

5.-7. umferđ:                Ţriđjudaginn 28. október kl. 16.30

Verđlaun:

  1. Unglingameistari Hugins (suđursvćđi) fćr farandbikar til varđveislu í eitt ár.
  2. Ţrír efstu fá verđlaunagripi til eignar.
  3. Allir keppendur fá skákbók.
  4. Ţrír efstu 12 ára og yngri fá verđlaunapening.
  5. Stúlknameistari Hugins (suđursvćđi) fćr verlaunagrip til eignar.

Barna- og unglingameistaramót TR / Stúlknameistaramót TR fer fram á laugardag

Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 26. október í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Tafliđ hefst kl.14.

Tefldar verđa 7 umferđir eftir Monrad-kerfi međ umhugsunartímanum 15 mín. á skák.

Teflt verđur í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verđlaun verđa veitt fyrir ţrjú efstu sćtin í opna flokknum og ţar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2014.

Ţá verđa veitt verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í stúlknaflokknum og ţar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2014.

Til viđbótar verđa veitt verđlaun fyrir efsta sćtiđ í aldursflokknum 13-15 ára, 11-12 ára, 9-10 ára sem og 8 ára og yngri í báđum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).

Mótiđ er opiđ öllum krökkum 15 ára og yngri (fćdd 1999 og síđar). Skráning fer fram á vef Taflfélags Reykjavíkur og skak.is.  Smelliđ hér til ađ fara beint í skráningarform (vinsamlegast gefiđ upp nafn, fćđingarár og símanúmer) og einnig er hćgt ađ skrá sig á mótsstađ sunnudaginn 26. október frá kl. 13.30- 13.45.

Ađgangur á mótiđ er ókeypis.


Ćskan og ellin XI. - Olísmótiđ í skák

_skanogellin_poster_23_10_2012_22-13-15_2012_22-13-15.jpgGlćsileg  peningaverđlaun - flugfarmiđar - eldsneytisúttektir - bćkur - máltíđir

Skákmótiđ  "Ćskan og Ellin", verđur haldiđ í ellefta sinn laugardaginn 25.  október nk.  í Skákhöllinni í Faxafeni og heft kl. 13  - 9 umferđir /7min.

RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara, Taflfélagi Reykjavíkur  og OLÍS2012_skan_og_ellin_urval.jpg - Olíuverslun Íslands hafa gert međ sér  stuđnings- og samstarfssamning um framkvćmd mótsins, til ađ auka veg ţess og tryggja  ţađ í sessi til framtíđar.

ĆSIR hinn klúbbur eldri skákmanna leggur mótinu liđ. 

Fyrri mót af ţessu tagi, ţar sem kynslóđirnar mćtast, hafa vakiđ verđskuldađa athygli, veriđ afar vel heppnuđ  og til mikillar ánćgju fyrir alla ţátttakendur,  jafnt yngri sem eldri.  Í fyrra var yfir 80 ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppandans. 

_skan_ellen_08g_i_167_1248252.jpgVerđlaunasjóđur mótsins er kr. 100.000 (50.000, 25.000, 15.000,10,000) auk ţess sem veitt verđa aldurflokkaverđlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga. Gjafabréf  fyrir flugmiđum á fyrir sigurvegara í barna og unglingaflokkum, 9 ára og yngri; 19-12 ára og 13-15 ára.  Úttektarkort fyrir eldsneyti hjá OLÍS fyrir efstu menn í 3 öldungaflokkum, 60-69 ára; 70-79 ára og 80 ára og eldri.  Bókaverđlaun og fleira.

Ţátttaka í mótinu er ókeypis og miđast viđ börn og _skan_og_ellin_2011-44_1248253.jpgungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri og roskna skákmenn, 60 ára og eldri. Mótiđ hefst kl. 13 og tefldar verđa 9 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á skákina. 

_skan_ellen_08g_i_166_1248254.jpgSkráning fer fram á www.skak.is og www.taflfélag.is vikuna fyrir mót.

Magnús hrađskákmeistari SSON

Herr Magnús Matthíasson hlustar íbygginnMagnús Matthíasson gerđi sér lítiđ fyrir og sigrađi á vel skipuđu hrađskákmóti Skákfélags Selfoss og nágrennis sem fram fór í gćr. Í öđru sćti var Ingimundur Sigurmundsson, vinningi á eftir Magnúsi, og Sverrir Unnarsson í ţví ţriđja. Björgvin Smári, Úlfhéđin fylgdu ţar á eftir og síđan Erlingur Atli og Ţorvaldur Siggason.

Magnús hefur lengi veriđ sleipur í hrađskákinni og kom sterkur til leiks eftir ţátttöku sína í Hrađskákmeistaramóti TR.

Meistaramót SSON byrjar 29. október.

Tefldar verđa klukkutímaskákir.

Núverandi meistari  SSON er Björgvin Smári Guđmundsson Ţeir sem eru ţegar skráđir til leiks eru: 

  • Björgin Smári
  • Magnús Matthíasson
  • Ingimundur Sigurmundsson
  • Úlfhéđinn Sigurmundsson
  • Sverrir Unnarsson
  • Erlingur Atli Pálmarsson 

Hćgt er ađ skrá sig í mótiđ á netfanginu bsg486@gmail.com
 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 33
  • Sl. viku: 282
  • Frá upphafi: 8764813

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 157
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband