Bloggfćrslur mánađarins, nóvember 2013
10.11.2013 | 19:29
EM: Jafntefli gegn Sviss og tap fyrir Pólverjum
Íslenska liđiđ í opnum flokki tapađi 1,5-2,5 fyrir ţriđja liđi heimamanna á EM landsliđa en ţriđja umferđ fór fram í kvöld í Varsjá. Liđiđ ber nafniđ Pólland "Goldies" og er skipađ sterkum skákmönnum sem eru hćttir atvinnumennsku. Guđmundur Kjartansson vann góđan sigur - hans fyrsti sigur međ íslenska landsliđinu, Hannes Hlífar Stefánsson gerđi jafntefli en Hjörvar Steinn Grétarsson og Henrik Danielsen töpuđu.
Kvennaliđiđ gerđi 2-2 jafntefli gegn liđi Sviss. Tinna Kristín Finnbogadóttir vann, Lenka Ptácníková og Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir gerđu jafntefli en Jóhanna Björg Jóhannsdóttir tapađi.
Bćđi íslensku liđin hafa 1 stig.
Frakkar sem unnu Úkraínu og Tékkar sem véluđu Tyrki eru međ fullt hús stiga í opnum flokki. Rússar máttu teljast heppnir ađ sleppa 2-2 gegn Englendingum. Ísraelsmenn unnu óvćntan sigur á Hollendingum.
Umferđin var ekki umferđ Norđurlandanna sem töpuđu öll.
Nánari frétt síđar í kvöld.
Vakin er athygli á ţví ađ umferđin á morgun byrjar tveimur tíđar síđar en venjulega eđa kl. 16 ţar sem ţjóđhátíđardagur Pólverja er á morgun.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2013 | 15:17
EM-pistill nr. 3 - Lenka vann Evrópumeistarann!
Íslenska liđiđ í opnum flokki gerđi 2-2 jafntefli viđ finnsku sveitina í gćr. Hannes Hlífar vann góđan sigur á öđru borđi en hefur gengiđ vel á móti finnskum skákmönnum síđustu misseri. Virđist Finna sig vel á móti finnum. Lenka var hetja dagsins en hún hann Evrópumeistara kvenna í mjög vel tefldri skák. Í dag eru ţađ ţriđja liđ Pólland og Svisslendingar. Hallar á stigalega í báđum viđureignum.
Viđureignir gćrdagsins
Héđinn var fyrstur ađ klára í gćr. Hann fékk ekkert útúr byrjuninni og smá saman hallađi á hann og tap stađreynd. Engu ađ síđur bundum viđ vonir um sigur í viđureigninni. Hannes hafđi unniđ og Hjörvar vćnlegt tafl. Hannes vann en Hjörvar náđi ekki ađ kreista fram vinning ţrátt fyrir ríflega 100 leikja skák. Henrik gerđi öruggt jafntefli á fjórđa borđi međ svörtu. 2-2 stađreynd. Ásćttanleg úrslit en ađ sjálfsögđu var stefnt á sigur enda heldur sterkari.
Hjá stelpunum var ţađ fljótlega ljóst ađ Tinna myndi tapa - fékk fljótt skítastöđu. En allar hinar skákirnar litu vel. Hallgerđur lék af sér skákinni niđur í tap í einum leik peđi yfir ţegar henni yfirsást 29. He8+! Elsa María vann peđ í byrjuninni en andstćđingurinn hafđi hćttulegt frípeđ. Elsu yfirsást riddara-fitta en ţess má geta 46...f4! hefđi unniđ skákina ţar sem ţá eru e3 og g3-reitirnir valdađir. Stelpurnar drullusvekktar eftir viđureignina en fyrirfram hefđi 1 vinningur ţótt ásćttanlegur. Lukkan ekki međ okkur í liđi.
Viđureignir dagsins
Í dag eru ţađ ţriđja liđ Pólland í opnum flokki. Liđiđ ber nafniđ Pólland Goldies. Í liđinu eru skákmenn sem hafa lagt atvinnumennsku á hilluna. Sjálfur man ég vel eftir Gdanski sem teflir viđ Henrik í dag. Hann var oft andstćđingur Ţrastar á unglingamótum hér áđur fyrr og iđulega međal efstu manna. Pólski fyrrverandi forseti pólska skáksambandsins, sem á mestan heiđur ađ fá mótshaldiđ til Varsjár, Tomek Silicka, sagđi ađ ţetta liđ skipuđu amatörar"! Held ađ ţađ sé hćpin nálgun ţví ţetta er stórhćttulegt liđ međ ţrautreynda skákmenn og fyrrum landsliđsmenn innanborđs.
Guđmundur kemur aftur inn en Héđinn hvílir.
Viđ höfum ađeins einu sinni mćtt Pólverjum á EM. Ţađ var áriđ 2007 en ţá vann íslenska liđiđ mjög óvćntan 3-1 sigur á Pólverjum sem var mun stigahćrra á öllum borđum en viđ. Ţá var ég liđsstjóri liđsins. Hannes, Héđinn og Stefán Kristjánsson unnu en Henrik tapađi. Ég minnist ţess ađ Áskell Örn hafi sagt á Horninu ađ ţetta vćru ein bestu einstöku úrslit sem íslenskt liđ hafi náđ. Sjá pistil frá 2007.
Viđ höfum mćtt Pólverjum tíu sinnum á Ólympíuskákmóti á tímabilinu 1930-1986. Međ liđinu 1930 ţá tefldu međal annars Tartakower og Rubenstein! Sú viđureign tapađist 0-4. Ţar hallar verulega á okkur. Stađan er 14-26. Viđ höfum unniđ tvćr viđureignir en höfum tapađ fimm. Ţrjú jafntefli.
Kvennaliđiđ, sem teflir á sína ţriđja EM-móti, mćtir Svisslendingum í ţriđja skipti! Ţćr eru haldir sterkari en viđ og veikasta sveitin sem höfum hingađ til fengiđ. Jóhanna kemur aftur inn en Elsa hvílir.
Töpuđum fyrir ţeim 0,5-1,5 áriđ 2001 (ţá ađeins teflt á tveimur borđum) og töpuđum aftur 1,5-2,5 áriđ 2005. Höfum teflt viđ ţá fimm sinnum á Ólympíuskákmótum. Ţar höfum viđ unniđ ţćr ţrisvar en tapađ tvisvar.
Toppbaráttan
Ţađ urđu verulega óvćnt úrslit í gćr ţegar Tyrkir unnu Rússa međ 2,5-1,5. Grikkir unnu svo Englendinga örugglega 3-1. Til fullkomna ólán ţessara liđa sem bćđi eru fyrrverandi Evrópumeistarar mćtast ţau í dag!
Hitti Nigel Short í lyftunni í dag sem sagđist vera ađ upplifa Deja Vu. Á EM 2011 töpuđu einmitt Englendingar fyrir Grikkjum í 2. umferđ og mćttum Armenum í ţeirri ţriđua. Nigel Short sagđi lessíuna - ekki tapa fyrir Grikkjum!
Englendingar eru međ fimmta stigahćsta liđiđ. Frakkar og Úkraínumenn mćtast á efsta borđi.
Fimm liđ hafa fullt hús stiga en auk Frakka og Úkraínumanna eru ţađ Tékkar, Grikkir og Tyrkir.
Í kvennakeppninni hafa sjö liđ enn fullt hús stiga og ţar á međal tvö pólsk liđ.
Norđurlandamótiđ
Danir, sem unnu Belga, leiđir Norđurlandamótiđ međ 2 stig. Viđ, Svíar og Finnar höfum 1 stig. Norđmenn reka lestina - ekki enn komnir á blađ.
Í gúanóinu (borđ 12-19) er nú allar norrćnu sveitirnar !
Finnar eru efstir í kvennakeppninni međ 1 stig. Viđ og Norđmenn eru ekki komnir á blađ.
Mótshaldiđ
Íslensku fulltrúarnir erum óđum ađ ná sinni rútínu. Á svona mótum verđa allir dagar eins hvort sem er ađ rćđa helgi eđa virka daga.
Dagurinn á morgun verđur ţá öđruvísi en ţá verđur ţjóđhátíđardagur Pólverja. Skrýtin ţjóđhátíđardagur en mér skilst ađ Pólverjar noti til móttćla! Ţađ komu tilmćli frá yfirdómara til keppenda ađ vera ekki úti eftir kl. 13 á morgun. Viđ Davíđ stefnum ótrauđir út!
Verđur fróđlegt ađ fylgjast međ en viđ erum hér í miđbć Varsjár. Umferđin á morgun byrjar tveimur tímum síđar en vanalega eđa kl. 16 ađ íslenskum tíma.
Einhverjum vandrćđum voru mótshaldarar í gćr međ pörunina en hún skilađi sér ţó fyrir rest. Róbert sagđi mér ađ skákstjórnin vćri farin ađ róast og hlutirnir ađ komast í fastari skorđur hjá ţeim.
Ég sjálfur lenti í smávandrćđum ađ komast inn í skáksalina í gćr. Skákstjórarnir eru orđnir strangari og sumir full strangir enda sumir reynslulitlir á stćrri mótum (á engan viđ ţá Omar og Róbert). Ég er búinn ađ verđa mér útum betri ađgang og á nú ađ geta komist inn í skáksalina án ţess ađ eiga hćttu á ţví ađ vera rekinn út.
Rólegt er á hótelinu og keppendur lítiđ á hótelbarnum. Frakkarnir sitja ţó ţar á kvöldin, sötra rauđvín, og spila Bridge sýnist mér.
Í gćr var hér diskótek hér í gćr og voru víst sumir ţar í stuđi.
Mótiđ hér virđist vekja töluvert athygli og hér má sjá pólska ríkissjónvarpiđ á hverjum degi. Í dag var tekiđ viđtal viđ áđurnefndan Tomek Silecki og í gćr viđ Aronian.
Skákkennsla er einnig á stađnum. Pólverjarnir eru ađ sstanda sig vel.
Skák.is
Áhorfiđ á Skák.is var mikiđ í gćr. Stćrsti dagurinn á Skák.is ţar síđan 27. febrúar sl. sem var lokadagur Reykjavíkurskákmótsins. Kemur ekki á óvart í ljósi EM og Heimsmeistaraeinvígisins.
Nóg í bili.
Kveđja frá Varsjá,
Gunnar
10.11.2013 | 11:40
Heimsmeistaraeinvígiđ: Annađ tilţrifalítiđ jafntefli
10.11.2013 | 09:48
EM landsliđa: Viđureignir dagsins
Ţá er liđsuppstilling dagsins tilbúin. Héđinn Steingrímsson hvílir í opnum flokki en Elsa María Kristínardóttir í kvennaflokki.
Opinn flokkur:
Bo. | 28 | ICELAND | Rtg | - | 24 | POLAND GOLDIES | Rtg | 0 : 0 |
13.1 | GM | STEFANSSON, Hannes | 2539 | - | GM | TAZBIR, Marcin | 2555 | |
13.2 | IM | GRETARSSON, Hjorvar Steinn | 2511 | - | GM | BULSKI, Krzysztof | 2538 | |
13.3 | GM | DANIELSEN, Henrik | 2502 | - | GM | GDANSKI, Jacek | 2518 | |
13.4 | IM | KJARTANSSON, Gudmundur | 2455 | - | IM | MASTERNAK, Grzegorz | 2333 |
Kvennaflokkur:
Bo. | 26 | Switzerland | Rtg | - | 32 | Iceland | Rtg | 0 : 0 |
16.1 | WIM | Seps, Monika | 2260 | - | WGM | Ptacnikova, Lenka | 2238 | |
16.2 | WIM | Heinatz, Dr. Gundula | 2169 | - | Thorsteinsdottir, Hallgerdur | 1951 | ||
16.3 | WFM | Stoeri, Laura | 2102 | - | Johannsdottir, Johanna Bjorg | 1901 | ||
16.4 | WFM | De Seroux, Camille | 2066 | - | Finnbogadottir, Tinna Kristin | 1882 |
9.11.2013 | 23:01
EM: Pólland III og Sviss á morgun - slćmt gengi Rússa
Íslenska liđiđ í opnum flokki mćtir Póllandi III á morgun. Liđiđ ber nafniđ Pólland "Goldies" en ţađ skipa stórmeistarar sem ekki stunda atvinnumennsku lengur. Liđiđ er heldur sterkara á pappírnum en ţađ íslenska, međ međalstigin 2542 á móti 2524 skákstigum okkar liđs. Kvennaliđiđ mćtir sveit Sviss sem hefur međalstigin 2149 á móti 1993 íslenska liđsins.
Dagurinn í dag var sérdeilis ekki dagur Rússa. Liđiđ í opnum flokki tapađi mjög óvćnt fyrir Tyrkjum og kvennaliđiđ tapađi fyrir sveit Ísraels. Í báđum tilfellum var liđ Rússa mun sterka á pappírnum.
Úkraínumenn, Tékkar og Grikkir sem unnu afar óvćntan sigur á Englendingum eru efstir međ 4 stig og 6 vinninga í opnum flokki Íslenska liđiđ er í 29. sćti af 38 liđum međ 1 stig og 3,5 vinning.
Í kvennaflokki er íslenska liđiđ í 27. sćti af 32 međ 0 stig og 2 vinninga. Armenía og Georgía eru efst á mótinu međ 4 stig og 7 vinninga.
9.11.2013 | 19:33
Jafntefli gegn Finnum - Lenka vann Evrópumeistarann
Íslenska liđiđ í opnum flokki gerđi 2-2 jafntefli gegn sveit Finna. Hannes Hlífar vann sína skák, Hjörvar Steinn og Henrik gerđu jafntefli en Héđinn tapađi. Íslenska liđiđ í kvennaflokki tapađi 1-3 fyrir sterkri sveit Ungverja. Lenka gerđi sér lítiđ fyrir og vann sjálfan Evrópumeistarann í skák Thanh Trang Hoang (2495). Lukkan var ekki međ
Íslendingum í ţeirri viđureign en bćđi Hallgerđur og Elsa léku illa af sér međ vćnlegar stöđur.
Eins og í gćr virđast vera töluvert um óvćnt úrslit. Tyrkir hafa 2-1 yfir gegn Rússum og flestir bendir til sigurs í viđureigninni. Grikkir unnu Englendinga 3-1.
Nánari fréttir síđar í kvöld.
9.11.2013 | 16:36
Oliver Aron, Vignir Vatnar og Sóley Lind urđu TORG-skákmeistarar 2013

Skákdeild Fjölnis hélt TORG-skákmót félagsins í 10. sinn í Foldaskóla og mćttu 45 efnilegir skákkrakkar á öllum aldri til leiks. Teflt var í ţremur flokkum og var áhugavert ađ sjá hversu kornungir skákkrakkar voru međ í slagnum um efstu sćtin. Tefldar voru sex umferđir og undir öruggri stjórn Páls Sigurđssonar og Helga Árnasonar gekk mótiđ vel fyrir sig auk ţess sem ađstćđur á mótsstađ í Foldaskóla voru alveg til fyrirmyndar.
Mótiđ var spennandi frá upphafi til enda voru ţarna á ferđinni Norđurlandameistarar úr Rimaskóla og Álfhólsskóla auk Evrópumeistarafara frá ţví í haust til Slóveníu. Oliver Aron Jóhannesson Rimaskóla/Fjölni var talinn líklegastur til sigurs og byrjađi á 1. borđi. Ţví sćti hélt hann viđ borđiđ út allt mótiđ og kom í mark sem sigurvegari TORG-skákmótsins ţriđja áriđ í röđ. Hann gerđi jafntefli viđ Vigni Vatnar Stefánsson í lokaumferđ en hafđi áđur unniđ allar sínar skákir. Í 2. - 5. sćti međ 5 vinninga komu ţeir Felix Steinţórsson Álfhólsskóla/TM Helli, Ţorsteinn Magnússon Tjarnarskóla/TR, Vignir Vatnar Stefánsson Hörđuvallaskóla/TR og Mykhaylo Kravchuk Ölduselsskóla/TR.
Sóley Lind Pálsdóttir í Hvaleyrarskóla/TG varđ ein í 6. sćti međ 4,5 vinninga og vann međ ţví stúlknaflokkinn. Fjölnisstúlkurnar Nansý Davíđsdóttir og Alisa Helga Svansdóttir urđu nćstar á eftir Sóleyju í stúlknaflokki. Hina glćsilegu NETTÓ eignarbikara hlutu Oliver Aron Jóhannesson fyrir sigur á mótinu og í eldri flokk, Vingir Vatnar Stefánsson sigurvegari í yngri flokk og Sóley Lind Pálsdóttir stúlknameistari TORG-mótsins.
Hrafn Jökulsson forseti Hróksins og Grćnlandsfari var heiđursgestur mótsins. Hann ávarpađi ţátttakendur í upphafi, lék fyrsta leik mótsins fyrir Oliver Aron og afhenti sigurvegurunum NETTÓ bikarana í mótslok.
Fyrirtćki í verslunarmiđstöđinni Hverafold gáfu alla 23 vinninga mótsins og á međal áhugaverđra vinninga voru gjafabréf fyrir hamborgara, pítsur, bćkur og blóm, súkkulađitertur frá bakaríinu og skartmunir frá tískuvöruversluninni CoCo´s. Nettó - Hverafold gaf veglega bikara til keppninnar líkt og undanfarin ár auk ţess ađ bjóđa öllum ţátttakendum upp á ljúfar veitingar. Foreldrar fjölmenntu og fylgdust af stolti međ börnunum sínum sem öll stóđu sig međ mikilli prýđi.
Lokastöđu mótsins má finna á Chess-Results.
Myndaalbúm (HÁ)
9.11.2013 | 15:07
EM-pistill nr. 2 - Töp í gćr

Viđureignir gćrdagsins
Guđmundur var fyrstur ađ klára í gćr. Hann lenti í erfiđleikum en tefldi vörnina taktíst og var kominn međ mjög aktíva vörn. Á einum stađ átti hann vinningsleik (32. Hxf7!) sem er reyndar ekki auđveldur leikur ađ sjá yfir borđinu međ lítinn tíma. Guđmundur lék hins vegar ónákvćmt í tímahrakinu og tapađi. Hjörvar Steinn tefldi skemmtilega Sikileyjar-skák, virtist um tíma vera í erfiđri vörn en hélt jafntefli. Hannes lék af sér peđi en tefldi vörnina vel og hélt jafntefli. Héđinn tefldi afar vel á fyrsta borđi, jafnađi tafliđ auđveldlega gegn Navara og var sennilega međ eitthvađ betra í lokastöđunni. Tap 1,5-2,5 verđur ađ teljast viđunandi gegn sterkri sveit Tékka.
Lenka tapađi fyrst gegn Litháum. Hún fékk á sig afar fallega drottningarfórn (21. Dxf6!) gegn Cmylite. Jóhanna lenti fljótlega í beyglu og tapađi einnig. Hallgerđur tefldi lengi vel erfiđa vörn en tókst ekki ađ halda jafntefli. Tinna Kristín vann hins vegar góđan sigur. Leikurinn 38. He5! er mjög flottur. Tap gegn Litháum 1-3 er ásćttanlegt. Krúttbangsinn Kveynis, sem er liđsstjóri kvennaliđs Litháa, var afar brosmildur í lok umferđar.
Viđureignir dagsins
Í dag tefla strákarnir viđ sveit Finna. Viđ höfum tvívegis teflt viđ ţá EM og leiđum 4,5-3,5. Fyrst viđ áriđ 2001 en ţá fór 2-2. Hannes vann sína skák. Svo áriđ 2007 ţegar viđ unnum 2,5-1,5 í lokaumferđinni. Ţröstur vann ţá sína skák.
Talandi um Ţröst - ţá er hann fyrsti Íslendingurinn sem tefldi viđ Anand og reyndar Carlsen einnig. Tefldi viđ hann áriđ 2000 í Bergen ţegar sá norski var á tíunda ári og mátti hafa sig allan viđ ađ halda jafntefli og botnađi ekkert í ţví!
Viđ höfum hins vegar teflt viđ Finna 14 sinnum á Ólympíuskákmóti síđast áriđ 1986. Ţar höfum viđ lagt ţá fimm sinnum, tapađ jafnoft og gert fjórum sinnum jafntefli. Stađan ţar er 29,5-26,5 okkur í vil.
Henrik kemur inn í dag og Guđmundur hvílir. Finnar töpuđu 1-3 fyrir Ítölum í gćr. Agapov (2435), sem teflir viđ Hjörvar í dag, vann Rombaldoni (2530).
Stelpurnar mćta Ungverjum í dag. Ţeir hafa aldrei teflt viđ ţćr á EM en ţrívegis á Ólympíuskákmótinu 1978, 1982 og í fyrra. Ţar er skoriđ ekki uppörvandi eđa 0,5-9,5! Hálfi vinningurinn náđist í fyrra ţegar Jóhanna Björg gerđi jafntefli viđ Anitu Gara. Bćđi Jóhanna og Anita Gara hvíla hins vegar í dag. Ég vona ađ vinningshlutfall okkar gegn Ungverjum hćkki eftir umferđ dagsins!
Ungverska sveitin er sú áttunda sterkasta hér. Á fyrsta borđi teflir Thanh Trang Hoang (2511) sem er núverandi Evrópumeistari kvenna. Hoang ţessi hefur náđ ţeim einstaka árangri ađ vera bćđi heimsálfumeistari Evrópu og Asíu. Lenka mćtir í fyrstu tveimur umferđum fjórđu og áttundu sterkustu skákkonu mótsins.
SkákstađurinnAđstćđur á skákstađ eru ađ flesti leyti góđar og greinilegt ađ Pólverjar hafa lagt á sig mikla vinnu. Helsti gallinn er sá ađ keppendurnir eru í 4 herbergjum. Eitthvađ sem verđur mikla mun betra í höllinni 2015.
Fyrir framan salina er gott miđrými ţar sem međal annars má fá frítt kaffi og vatn. Eitthvađ sem hefur alls ekki veriđ sjálfgefiđ í gegnum tíđina í landsliđskeppnum.
Á skákstađ er komiđ málmleitarhliđ. Ţađ hefur venjulega ekki veriđ á EM en iđulega á Ólympíuskákmótum. Eins og er fatta ég ekki tilganginn. Í gćr pípađi tćkiđ á mjög marga en ég sá aldrei leitađ á viđkomandi. Í dag sýndist mér hliđiđ óvirkt.
Stelpurnar tefla í dag í ađalsalnum en strákarnir í minni sal. Áhorfendur eiga ekki auđvelt međ ađ vera nálćgt skákunum en sem betur fer er mér hleypt alls stađar.
Í gćrkveldi tókum viđ Omar og Róbert smá spjall. Omar hefur tekiđ ađ sér ađ skrifa upp gátlista yfir hluti sem viđ ţurfum ađ hugsa fyrir EM 2015. Mjög mikilvćgt ađ hafa hér tvo skákstjóra upp á mótiđ 2015.
Varđandi beinu útsendingarnar ţá eru ţćr ekki alveg beinar - ţví hér er 15 mínútna áđur en skákirnar koma á netiđ.
Nóg í bili. Áfram Ísland og Magnús!
Kveđja frá Varsjá,
Gunnar
9.11.2013 | 14:26
Viđureignir dagsins: Finnar og Ungverjar
Önnur umferđ EM landsliđa hófst kl. 14. Liđiđ í opnum flokki mćtir liđi Finna en kvennaliđiđ mćtir liđi Ungverja.
Viđureignir dagsins:
Bo. | 28 | ICELAND | Rtg | - | 32 | FINLAND | Rtg | 0 : 0 |
18.1 | GM | STEINGRIMSSON, Hedinn | 2543 | - | GM | NYBACK, Tomi | 2586 | |
18.2 | GM | STEFANSSON, Hannes | 2539 | - | IM | SIPILA, Vilka | 2463 | |
18.3 | IM | GRETARSSON, Hjorvar Steinn | 2511 | - | IM | AGOPOV, Mikael | 2435 | |
18.4 | GM | DANIELSEN, Henrik | 2502 | - | FM | EBELING, Daniel | 2365 |
Bo. | 32 | Iceland | Rtg | - | 8 | Hungary | Rtg | 0 : 0 |
9.1 | WGM | Ptacnikova, Lenka | 2238 | - | GM | Hoang, Thanh Trang | 2511 | |
9.2 | Thorsteinsdottir, Hallgerdur | 1951 | - | WGM | Gara, Ticia | 2350 | ||
9.3 | Finnbogadottir, Tinna Kristin | 1882 | - | WGM | Papp, Petra | 2300 | ||
9.4 | Kristinardottir, Elsa Maria | 1819 | - | WGM | Rudolf, Anna | 2281 |
9.11.2013 | 12:54
Tilţrifalítiđ jafntefli í fyrstu skák
Tilţrifalítiđ jafntefli var í fyrstu skák heimsmeistaraeinvígis Carlsen (2870) og Anand (2775). Carlsen hafđi hvítt og var tefld Réti-byrjun. Ţrátefldu ţeir eftir ađeins 16 leiki.
Önnur skák einvígisins verđur telfd á morgun og hefst kl. 9:30. Ţá hefur Anand hvítt.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.7.): 25
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 191
- Frá upphafi: 8779175
Annađ
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 121
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 16
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar