Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2012

Frode Urkedal og Espen Lie efstir og jafnir á Noregsmótinu í skák

Alţjóđlegu meistararnir Frode Urkedal (2412) og Espen Lie (2422) urđu efstir og jafnir á Noregsmótinu í skák sem fram fór 7.-14. júlí í Sandefjord.  Ţeir ţurfa ađ tefla einvígi um Noregsmeistaratitilinn. Báđir náđu ţeir áfanga ađ stórmeistaratitli međ frammistöđu sinni.  Alls tóku 20 skákmenn ţátt í efsta flokki og voru tefldir 9 umferđir eftir svissneska kerfinu.   Stórmeistarinn Jon Ludvig Hammer (2643) varđ ţriđji međ 6,5 vinning.

Röđ efstu manna:

  • 1.-2. IM Frode Urkedal (2412) og IM Espen Lie (2422) 7 v. af 9
  • 3. SM Jon Ludvig Hammer (2643) 6,5 v.
  • 4.-5. IM Frode Elsness (2481) og GM Simen Agdestein (2535) 6 v.
  • 6.-8. GM Berg Östenstad (2464), IM Östein Hole (2308) og Benjamin Arvola (2256) 5 v.
  • 9. GM Rune Djurhuss (2414) 4,5 v.

Kristian Stuvik Holm (2316) var međal ţeirra sem fengu 4 vinninga.

Vefsíđur


Héđinn og Henrik tefla á Politiken Cup

Eina alţjóđlega mótiđ á Norđurlöndum sem telst stćrra en Reykjavíkurskákmótiđ er Politiken Cup sem haldiđ er í Helsingör, skammt fyrir utan Kaupmannahöfn 28. júlí - 5. ágúst.  Ţangađ hafa Íslendingar lögnum fjölmennt.  Allar upplýsingar um mótiđ má nálgast á heimasíđu mótsins en mótiđ er opiđ öllum og auđvelt ađ skrá til leiks.  Tilvaliđ fyrir ţá sem vilja tefla á sumrin!

Tveir íslenskir stórmeistarar eru skráđir til leiks.  Ţađ eru ţeir Héđinn Steingrímsson (2560) og Henrik Danielsen (2511) sem báđir tefla fyrir Íslands hönd á Ólympíuskákmótinu. 

Ţess má geta ađ Hannes Hlífar Stefánsson (2515) og Hjörvar Steinn Grétarsson (2507) taka ţátt í Czech Open sem fram 20.-28. júlí.

 


Opna skoska: Bragi, Nökkvi, Jón Trausti og Mikael Jóhann unnu í dag - Bragi efstur!

Bragi ađ tafli á opna skoskaBragi Ţorfinnsson (2465), Nökkvi Sverrisson (1973), Jón Trausti Harđarson (1774) og Mikael Jóhann Karlsson (1929) unnu allir í sjöundu umferđ opna skoska meistaramótsins sem fram fór í dag.  Bragi vann stigahćsta keppenda mótsins, ungverska stórmeistaranum Imre Jr. Gera (2568) og er efstur á mótinu ásamt búlgarska stórmeistaranum Momchil Nikolov (2556).

Nökkvi vann ungversku skákkonuna Boglarka Bea (2178), sem hefur ekki gengiđ vel á móti íslensku víkingum á mótinu.   Jón Trausti vann skosku skákkonuna Elaine Bamber (2091), sem er einnig FIDE-meistari kvenna.  Jón hefur nú unniđ 3 skákir í röđ.  

Róbert Lagerman (2315), Emil Sigurđarson (1808), Birkir Karl Sigurđsson (1709) og Óskar Long Einarsson (1587) gerđu allir jafntefli.  Róbert viđ indverska alţjóđlega meistarann Arghyadip Das (2415).  Hjörvar Steinn Grétarsson tapađi fyrir enska alţjóđlega meistarann Jonathan Hawkins (2499).

Stađa íslensku keppendanna:

  • 1.-2. Bragi Ţorfinnsson (2465) 6 v.
  • 17.-30. Hjörvar Steinn Grétarsson (2507) og Róbert Lagerman (2315) 4,5 v.
  • 31.-47. Nökkvi Sverrisson (1973) og Jón Trausti Harđarson (1774) 4 v.
  • 48.-63. Mikael Jóhann Karlsson (1929) 3,5 v.
  • 64.-85.  og Emil Sigurđarson (1808) 3 v.
  • 95.-109. Birkir Karl Sigurđsson (1709) og Óskar Long Einarsson (1587) 2 v.

Skákir Braga, Hjörvars og Róberts verđa sýndar beint á netinu á morgun.  Umferđin hefst kl. 12:00.  Bragi teflir á fyrsta borđi viđ Nikolov en Hjörvar og Róbert mćtast í innbyrđis viđureign.

116 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 9 stórmeistarar og 13 alţjóđlegir meistarar.  Hjörvar er nr. 8 í stigaröđ keppenda, Bragi nr. 13 og Róbert nr. 25.


Antoniewski í TV

AntoniewskiPólski stórmeistarinn Rafal Antoniewski (2538) er genginn til liđs viđ Taflfélag Vestmannaeyja. Hann hefur hćst náđ 2614 elóstigum á júlí stigalistanum 2010. Antoniewski  bćtist viđ fríđan hóp stórmeistara í TV eins og Alexey Dreev (2677), Jon Ludvig Hammer (2638), Jan Gustafsson (2629), Kamil Miton (2623), Mikhali Gurevich (2596), Sebastien Maze (2573), Helga Ólafsson (2547) og Henrik Danielsen (2511).

Youtube-myndbönd frá kappanum


Meier eini sigurvegari dagsins í Dortmund

Georg Meier teflir viđ Snorra G. BergssonDortmund Sparkassen-mótiđ hófst í dag.   Heimamađurinn Georg Meier (2644) vann Pólverjann Mateusz Bartel (2674) en öđrum skákum lauk međ jafntefli.   Međal keppenda eru Kramnik (2799), Caruana (2775) og Karjakin (2779).

Átta skákmenn taka ţátt í mótinu sem fram fer í 13.-22. júlí.  Međalstig eru 2711 skákstig.  Vegna afmćlis Hannesar, Jóns Viktors og Sćvars verđur frídagur ţann 18. júlí.  


Búdapest: Dagur tapađi í sjöttu umferđ

Dagur ArngrímssonAlţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2366) tapađi fyrir ungverska alţjóđlega meistaranum Janos Szabolcsi (2418) í sjöttu umferđ First Saturday-mótsins sem fram fór í dag.  Dagur hefur 2 vinninga og er í 8. sćti.

10 skákmenn tefla í SM-flokki og er Dagur nćststigalćgstur keppenda.  Međalstig í flokknum eru 2428 skákstig.

 


Róbert, Nökkvi og Jón Trausti unnu í dag - Bragi í 1.-4. sćti eftir jafntefli viđ Hjörvar

Róbert í skáksal í GlasgowRóbert Lagerman (2315), Nökkvi Sverrisson (1973) og Jón Trausti Harđarson (1774) unnu allir í 6. umferđ opna skoska meistaramótsins sem fram fór í dag.   Bragi Ţorfinnsson (2465) og Hjörvar Steinn Grétarsson (2507) gerđu jafntefli í hörkuviđureign á fyrsta borđi.   Fjallađ var um skákina á Skákhorninu.  Bragi er sem fyrr efstur á mótinu, jafn ţremur öđrum.

Emil Sigurđarson (1808) og Birkir Karl Sigurđsson (1709) gerđu einnig jafntefli en Mikael Jóhann Karlsson (1929) og Óskar Long Einarsson (1587) töpuđu. Jón Trausti vann sína ađra skák í röđ.  Ađ ţessu sinni hafđi andstćđingur hans  um 200 stigum meira en Jón.

Stađa íslensku keppendanna:
  • 1.-4. Bragi Ţorfinnsson (2465) 5 v.
  • 5.-15. Hjörvar Steinn Grétarsson (2507) 4,5 v.
  • 16.-27. Róbert Lagerman (2315) 4 v.
  • 46.-67. Nökkvi Sverrisson (1973) og og Jón Trausti Harđarson (1774) 3 v.
  • 69.-83. Mikael Jóhann Karlsson (1929) og Emil Sigurđarson (1808) 2,5 v.
  • 101.-108. Birkir Karl Sigurđsson (1709) og Óskar Long Einarsson (1587) 1,5 v.

Skákir Braga, Hjörvars og Róberts verđa sýndar beint á netinu á morgun.  Umferđin hefst kl. 11:30.  Bragi teflir á fyrsta borđi gegn stigahćsta keppenda mótsins, ungverska stórmeistaranum Imre Jr. Gera (2568), Hjörvar viđ enska alţjóđlega meistarann Jonathan Hawkins (2499) og Róbert viđ indverska alţjóđlega meistarann Arghyadip Das (2415).

116 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 9 stórmeistarar og 13 alţjóđlegir meistarar.  Hjörvar er nr. 8 í stigaröđ keppenda, Bragi nr. 13 og Róbert nr. 25.


Blómamótiđ fer fram á morgun í Sumarskákhöllinni

BlómasettÁ föstudaginn klukkan 12:00 heldur Grćna serían áfram í Sumarskákhöllinni ađ Ţingholtsstrćti 37.

Ingvar Ţór Jóhannesson varđ Ávaxtameistarinn og Björn Ívar Karlsson Grćnmetismeistarinn. Góđ ţátttaka hefur veriđ á tveimur fyrstu mótum sumarsins. Mótin hafa einnig veriđ vel mönnuđ og landsliđsmenn - og konur veriđ í hópi ţátttakenda - teflandi innan um byrjendur og almenna skákáhugamenn sem sýnir enn og aftur gildi kjörorđa skáhreyfingarinnar; Viđ erum ein fjölskylda.

Mótiđ á morgun hefst 12:00 og eins og venjulega verđa tefldar 5 umferđir međ 5 mínútum á mann.


Kirsan bannar Ali ađ hćtta sem einn varaforseta FIDE

Ali Nihat forseti tyrkneska skáksambandsinsForseti tyrkneska skáksambandsins Ali Nihat var mikiđ gagnrýndur í kjölfar ţeirra ákvörđunar ađ hafna skákstjórum frá sjö löndum um skákstjórastarf á Ólympíuskákmótinu sem fram fer í Istanbul 27. ágúst - 10. september.  Ali gerđi ţađ á ţeim forsendum ađ viđkomandi lönd hafi veriđ ađ standa í málaferlum gegn FIDE.  Margir töldu ađ ţarna vćri ađ blanda saman gerólíkum hlutum.  

Í kjölfariđ sagđi Ali af sér sem einn varaforseta FIDE.  Gerđi hann ţađ á ţeim forsendum ađ ţađ hafđi veriđ kćrt ađ FIDE hafi skipađ of marga varaforseta miđađ viđ reglur sambandsins og sagđist međ ţessu sýna fram á ađ hann hefđi enga persónulega hagsmuna ađ gegna.

Ali hefur hafđi m.a. veriđ gagnrýndur fyrir hagsmunaárekstur sem einn skipuleggjanda Ólympíuskákmótsins og vera á sama tíma í forystu FIDE sem semur viđ mótshaldarana.  Silvio Danaliov skaut á hann föstum skotum í opnu bréfi ţar sem hann m.a. gagnrýndi Tyrkina fyrir hátt verđlag á gistinóttum.  

Í kjölfar úrsagnarinnar var Ali í viđtali á Chessvibes.  Ţar skaut hann mjög föstum skotum í ýmsar áttir međal annars á Kasparov og Danaliov.

Máliđ tók svo óvćnta stefnu í dag ţegar í ljós kom ađ Kirsan Ilyumzhinov, forseti FIDE, hafđi skrifađ bréf til Ali ţar sem neitar ađ taka viđ úrsögn hans á ţeim forsendum ađ FIDE hafi unniđ málaferlin.   Fram kemur ađ Ali ţakkar traustiđ og verđur sem fyrr einn varaforseta FIDE!

Ali kom í heimsókn til Íslands áriđ 2010 en ţá bauđ hann sig fram sem forseti ECU en tapađi naumlega fyrir Danilov.  Síđan ţá hefur veriđ í gangi kalt stríđ á milli ţeirra. 

RÚV fjallar um 40 ára afmćli einvígisins

Fischer og Spassky 1972RÚV gerđi 40 ára afmćli einvígis aldarinnar góđ skil í fréttum kl. 22 í gćrkveldi.

10-fréttir RÚV (ca. 4:30-5:30)

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 124
  • Sl. viku: 245
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 116
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband