Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2009

Útiskákmót á Lćkjartorgi kl. 13 í dag

Skákakademía ReykjavíkurSkákakademía Reykjavíkur og Vinnuskóli Reykjavíkur standa í dag ađ útiskákmóti viđ útitafliđ á Lćkjartorgi.  Mótiđ hefst kl. 13 og er öllum opiđ.  Ókeypis ađgangur.   Tefldar verđa 5-6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma og munu bragđgóđ verđlaun (ís) vera í bođi. Ţetta verđur nćstsíđasta mótiđ á útitaflinu sem SR og Vinnuskólinn standa fyrir í sumar.

Björn međ jafntefli í Quebec - Dagur og Jón Viktor töpuđu

Dagur Arngrímsson ađ tafli í Búdapest

Björn Ţorfinnsson (2395) gerđi jafntefli viđ Kanadamann Louie Jiang (2250) í 5. umferđ Meistaramóts Quebec sem fram fór í nótt.  Dagur Arngrímsson (2396) og Jón Viktor Gunnarsson (2462) töpuđu báđir.  Dagur fyrir makedónska stórmeistaranum Vladimir Georgiev (2530) og Jón fyrir úkraínska stórmeistarann Yaroslav Zherebukh (2541).

Dagur hefur 3 vinninga og er í 3.-8. sćti, Jón Viktor hefur 2 vinninga og er í 15.-18. sćti og Björn hefur 1 vinning og er í 19.-20. sćti.  

Efstur er kanadíski stórmeistarinn Bator Sambuev (2491) međ 4,5 vinning og annar er er Georgiev međ 4 vinninga. 

Í sjöttu umferđ, sem hefst kl. 22 í kvöld, teflir Dagur viđ hvít-rússneska stórmeistarann Sergei Kasparov (2487), sjötti stórmeistarinn í röđ sem hann mćtir.  Jón Viktor og Björn tefla svo saman.  Ađ ţessu sinni verđur enginn Íslendinganna í beinni í kvöld svo áhugasömum er bent á ađ fara ađ snemma svona í kvöld.  Rétt er ađ benda á Bragi Ţorfinnsson verđur í beinni frá Politiken Cup núna a kl. 11 en hann teflir viđ danska stórmeistarann Sune Berg Hansen.

Alls tekur 21 skákmađur ţátt í efsta flokki.  Ţar af eru 10 stórmeistarar og 8 alţjóđlegir meistarar.  Semsagt afar sterkt skákmót.


Valgarđ Ingibergsson í TA

Valgarđ IngibergssonValgarđ Ingibergsson (1905) hefur gengiđ til liđs Taflfélags Akraness úr Taflfélagi Reykjavíkur.  Valgarđ er nú búsettur á Akranesi.

 


Gott gengi í fimmtu umferđ á Politiken Cup

Bjarni Jens KristinssonMun betur gekk í fimmtu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag, en í ţeirri fjórđu.  Bragi Ţorfinnsson, (2377), Bjarni Jens Kristinsson (1985) og Atli Antonsson (1720) unnu en Ólafur Gísli Jónsson (1899) tapađi.  Dađi Ómarsson (2091) sat yfir.  Bragi mćtir danska stórmeistaranum Sune Berg Hansen (2554) í sjöttu umferđ, sem hefst kl. 11 í fyrramáliđ.  Skákin verđur sýnd beint á vef mótsins.  

 

Stađa íslensku skákmannanna:

  • 13.-35. Bragi Ţorfinnsson (2377) 4 v.
  • 132.-178. Bjarni Jens Kristinsson (1985) 2,5 v.
  • 179.-240. Dađi Ómarsson (2091) og Ólafur Gísli Jónsson (1899) 2 v.
  • 241.-269. Atli Antonsson (1720) 1,5 v.

Efstir međ fullt hús eru stórmeistararnir Vladimir Malakhov (2707), Rússlandi, Peter Heine Nielsen (2680), Danmörku, og Jonny Hector (2556), Svíţjóđ.

Alls taka 307 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 20 stórmeistarar, 14 alţjóđlegir meistarar og 17 FIDE-meistarar. 


Skákkeppni unglingalandsmóts UMFÍ fer fram á Sauđárkróki 1. ágúst

Skákkeppni á Unglingalandsmóti UMFÍ fer fram á Sauđárkróki um Verslunarmannahelgina. Keppt verđur í 8 flokkum, ţ.e. 4 stráka og 4 stelpna.

  • Flokki 17-18 ára
  • Flokki 15-16 ára
  • Flokki 13-14 ára
  • Flokki 11-12 ára

Telft verđur laugardaginn 1. ágúst og hefst keppnin kl. 10. Gert er ráđ fyrir 10 mín upphugsunartíma, en fyrirkomulag keppninnar rćđst ađ öđru leiti af ţátttöku.

Skráning fer fram á www.umfi.is.


Útiskákmót á Lćkjartorgi á morgun

Skákakademía ReykjavíkurSkákakademía Reykjavíkur og Vinnuskóli Reykjavíkur standa á morgun, miđvikudag, ađ útiskákmóti viđ útitafliđ á Lćkjartorgi.  Mótiđ hefst kl. 13 og er öllum opiđ.  Ókeypis ađgangur.   Tefldar verđa 5-6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma og munu bragđgóđ verđlaun (ís) vera í bođi. Ţetta verđur nćstsíđasta mótiđ á útitaflinu sem SR og Vinnuskólinn standa fyrir í sumar.

Hrađskákkeppni taflfélaga hefst eftir verslunarmannahelgi

Hrađskákkeppni taflfélaga, hefst eftir verslunarmannahelgi.  Ţetta er í fimmtánda sinn sem keppnin fer fram en Taflfélag Reykjavíkur er núverandi meistari og hafa ásamt Helli unniđ keppnina oftast eđa sex sinnum hvort félag.   Auk ţess hafa Hrókurinn og Skákfélag Hafnarfjarđar sigrađ í einu sinni hvort félag í keppninni.

Hvet ykkur til ađ skrá ykkar félög til leiks sem fyrst en nú ţegar hafa bćđi Hellismenn og Bolvíkingar skráđ sig.

Áćtlunin er sem hér segir:

  • 1. umferđ (u.ţ.b. 12 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 15. ágúst
  • 2. umferđ (8 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 22. ágúst
  • 3. umferđ (undanúrslit): Skuli vera lokiđ 28. ágúst (áđur en áskorendaflokkur hefst)
  • 4. umferđ (úrslit): Fer fram á Bolungarvík, föstudaginn 11. september.

Skráning til ţátttöku rennur út 7. ágúst nk.   Forráđamenn taflfélaga eru vinsamlegast beđnir um ađ hafa samband viđ umsjónarmann í netfangiđ gunnibj@simnet.is eđa í síma 820 6533.  Eđa á Skákhorninu.

Tilkynna ţarf eftirfarandi:

  • Liđ
  • Liđsstjóri
  • Símanúmer liđsstjóra
  • Netfang liđsstjóra

Reglur keppninnar:

1.  Sex manns eru í hvoru liđi og tefld er tvöföld umferđ, ţ.e. allir í öđru liđinu tefla viđ alla í hinu liđinu. Samtals 12 umferđir, eđa 72 skákir.

2.  Heimaliđ sér um dómgćslu. Komi til deiluatriđa er Ólafur S. Ásgrímsson yfirdómari keppninnar.

3.  Varamenn mega koma alls stađar inn. Ţó skal gćta ţess ađ menn tefli ekki oftar en tvívegis gegn sama andstćđingi og hafi ekki sama lit í báđum skákunum.

4.  Ćtlast er til ţess ađ ţeir sem tefli séu fullgildir međlimir síns félags. Ađeins má tefla međ einu taflfélagi í keppninni.

5.  Liđsstjórar koma sér saman um hvenćr er teflt og innan tímaáćtlunar.  Komi liđsstjórar sér ekki saman um dagsetningu innan tímaramma getur umsjónarađili ákvarđađ tímasetningu.

6.  Verđi jafnt verđur tefldur bráđabani. Ţađ er tefld er einföld umferđ ţar sem dregiđ er um liti á fyrsta borđi og svo hvítt og svart til skiptist. Verđi enn jafnt verđur áfram teflt áfram međ skiptum litum ţar til úrslit fást.

7.  Heimaliđ bjóđi upp á léttar veitingar, t.d. kaffi, gos, kökur eđa kex.

8.  Viđureignirnar skulu fara innan 100 km. radíus frá Reykjavík nema ađ félög komi sér saman um annađ.  Úrslitaviđureignin fer ţó fram í Bolungarvík ţann 11. september og er ábyrgst ađ ferđakostnađur verđi greiddur fyrir ađalliđ hvors liđs.   

9.  Úrslitum skal koma til umsjónarmann eins fljótt og auđiđ er í netfangiđ gunnibj@simnet.is og eigi síđar en 12 klukkustundum eftir ađ keppni lýkur.

10.Úrslit keppninnar verđa ávallt ađgengileg á heimasíđu Hellis, www.hellir.blog.is , sem er heimasíđa keppninnar, og á www.skak.is.

11.Mótshaldiđ er í höndum Taflfélagsins Hellis sem sér um framkvćmd mótsins.


Keppendalisti landsliđsflokks Íslandsmótsins í skák

Keppendalisti landsliđsflokks Íslandsmótsins í skák, sem fram fer á Bolungarvík, 11.-13. september nk., liggur nú fyrir.  Međal keppenda eru 2 stórmeistarar, 5 alţjóđlegir meistarar og 4 fjórir FIDE-meistarar.  Međalstigin er 2386 skákstig.  Ekki er mögulegt ađ ná stórmeistaraáfanga en 6,5 vinning ţarf í áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli.  Ađeins einn keppendanna hefur áđur orđiđ Íslandsmeistari en ţađ er Jón Viktor Gunnarsson sem hampađi titlinum áriđ 2000.

Keppendalistinn:

 

Nr.NafnTitillFélagStig
1Henrik DanielsenSMHaukar2473
2Jón Viktor GunnarssonAMBol2462
3Stefán KristjánssonAMBol2462
4Ţröstur ŢórhallssonSM 2433
5Dagur ArngrímssonAMBol2396
6Björn ŢorfinnssonAMHellir2395
7Bragi ŢorfinnssonAMBol2377
8Róbert LagermanFMHellir2351
9Guđmundur Gíslason Bol2348
10Davíđ ÓlafssonFMHellir2327
11Ingvar Ţór JóhannessonFMHellir2323
12Sigurbjörn BjörnssonFMHellir2287
 Međalstig  2386

 


Dagur vann stórmeistara í fjórđu umferđ í Quebec

Dagur Arngrímsson ađ tafli í BúdapestAlţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2396) heldur áfram ađ brillera á meistaramót Quebec.  Í fjórđu umferđ, sem fram í nótt, sigrađi hann úkraínska stórmeistarann Yaroslav Zherebukh (2541).  Dagur hefur 3 vinninga, er í 2.-4. sćti, og ţađ ţrátt fyrir ađ hafa eingöngu teflt viđ stórmeistara!  Jón Viktor Gunnarsson (2462) gerđi jafntefli viđ hvít-rússneska stórmeistarann Sergei Kasparov (2487) og Björn Ţorfinnsson (2395) tapađi fyrir Spánverjanum Renier Castellanos (2453).  Jón Viktor hefur 2 vinninga og er í 8.-14. sćti en Björn ađeins hálfan vinning og er í 20. sćti.  

Efstur er kanadíski stórmeistarinn Bator Sambuev (2491) međ 3,5 vinning.  Jafnir Degi í 2.-4. sćti eru stórmeistararnir Alojzije Jankovic, Króatíu, og Vladimir Georgiev (2530), Makedóníu.

Í fimmtu umferđ, sem hefst kl. 22 í kvöld, teflir Dagur viđ Georgiev, Jón Viktor viđ Zherebukh og Björn viđ Kanadamanninn Louie Jiang (2250).  Skák Dags verđur sýnd beint á vefnum og er tilvaliđ fyrir B-menn ađ vaka frameftir!

Alls tekur 21 skákmađur ţátt í efsta flokki.  Ţar af eru 10 stórmeistarar og 8 alţjóđlegir meistarar.  Semsagt afar sterkt skákmót.

Vont gengi í Danaveldi

Ţađ gekk illa hjá íslensku skákmönnum í fjórđu umferđ Politiken Cup, sem fram fór í dag, en allir fimm íslensku skákmennirnir töpuđu.  Bragi Ţorfinnsson (2377) tapađi fyrir sćnska stórmeistaranum Jonny Hector (2554).

Dađi tapađi í ótefldri skák og hefur ekki veriđ rađađ í fimmtu umferđ en ritstjóra er ekki kunnugt um ástćđur ţess.  

Stađa íslensku skákmannanna:

  • 25-70. Bragi Ţorfinnsson 3 v.
  • 113.-199. Dađi Ómarsson og Ólafur Gísli Jónsson 2 v.
  • 200.-231. Bjarni Jens Kristinsson 1,5 v.
  • 287.-299. Atli Antonsson 0,5 v.

23Alls taka 307 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 20 stórmeistarar, 14 alţjóđlegir meistarar og 17 FIDE-meistarar. 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 242
  • Frá upphafi: 8765194

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 141
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband