Leita í fréttum mbl.is

Hrađskákkeppni taflfélaga hefst eftir verslunarmannahelgi

Hrađskákkeppni taflfélaga, hefst eftir verslunarmannahelgi.  Ţetta er í fimmtánda sinn sem keppnin fer fram en Taflfélag Reykjavíkur er núverandi meistari og hafa ásamt Helli unniđ keppnina oftast eđa sex sinnum hvort félag.   Auk ţess hafa Hrókurinn og Skákfélag Hafnarfjarđar sigrađ í einu sinni hvort félag í keppninni.

Hvet ykkur til ađ skrá ykkar félög til leiks sem fyrst en nú ţegar hafa bćđi Hellismenn og Bolvíkingar skráđ sig.

Áćtlunin er sem hér segir:

  • 1. umferđ (u.ţ.b. 12 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 15. ágúst
  • 2. umferđ (8 liđa úrslit): Skuli vera lokiđ 22. ágúst
  • 3. umferđ (undanúrslit): Skuli vera lokiđ 28. ágúst (áđur en áskorendaflokkur hefst)
  • 4. umferđ (úrslit): Fer fram á Bolungarvík, föstudaginn 11. september.

Skráning til ţátttöku rennur út 7. ágúst nk.   Forráđamenn taflfélaga eru vinsamlegast beđnir um ađ hafa samband viđ umsjónarmann í netfangiđ gunnibj@simnet.is eđa í síma 820 6533.  Eđa á Skákhorninu.

Tilkynna ţarf eftirfarandi:

  • Liđ
  • Liđsstjóri
  • Símanúmer liđsstjóra
  • Netfang liđsstjóra

Reglur keppninnar:

1.  Sex manns eru í hvoru liđi og tefld er tvöföld umferđ, ţ.e. allir í öđru liđinu tefla viđ alla í hinu liđinu. Samtals 12 umferđir, eđa 72 skákir.

2.  Heimaliđ sér um dómgćslu. Komi til deiluatriđa er Ólafur S. Ásgrímsson yfirdómari keppninnar.

3.  Varamenn mega koma alls stađar inn. Ţó skal gćta ţess ađ menn tefli ekki oftar en tvívegis gegn sama andstćđingi og hafi ekki sama lit í báđum skákunum.

4.  Ćtlast er til ţess ađ ţeir sem tefli séu fullgildir međlimir síns félags. Ađeins má tefla međ einu taflfélagi í keppninni.

5.  Liđsstjórar koma sér saman um hvenćr er teflt og innan tímaáćtlunar.  Komi liđsstjórar sér ekki saman um dagsetningu innan tímaramma getur umsjónarađili ákvarđađ tímasetningu.

6.  Verđi jafnt verđur tefldur bráđabani. Ţađ er tefld er einföld umferđ ţar sem dregiđ er um liti á fyrsta borđi og svo hvítt og svart til skiptist. Verđi enn jafnt verđur áfram teflt áfram međ skiptum litum ţar til úrslit fást.

7.  Heimaliđ bjóđi upp á léttar veitingar, t.d. kaffi, gos, kökur eđa kex.

8.  Viđureignirnar skulu fara innan 100 km. radíus frá Reykjavík nema ađ félög komi sér saman um annađ.  Úrslitaviđureignin fer ţó fram í Bolungarvík ţann 11. september og er ábyrgst ađ ferđakostnađur verđi greiddur fyrir ađalliđ hvors liđs.   

9.  Úrslitum skal koma til umsjónarmann eins fljótt og auđiđ er í netfangiđ gunnibj@simnet.is og eigi síđar en 12 klukkustundum eftir ađ keppni lýkur.

10.Úrslit keppninnar verđa ávallt ađgengileg á heimasíđu Hellis, www.hellir.blog.is , sem er heimasíđa keppninnar, og á www.skak.is.

11.Mótshaldiđ er í höndum Taflfélagsins Hellis sem sér um framkvćmd mótsins.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 133
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 109
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband