4.5.2014 | 09:15
Jón Kristinn og Vignir Vatnar efstir fyrir lokaumferð Landsmótsins
Lokaumferð Landsmótsins í skólaskák hefst kl. 10 í dag. Línur skýrðust nokkuð í lokaumferðum gærdagsins og eru þeir Jón Kristinn Þorgeirsson (eldri flokkur) og Vignir Vatnar Stefánsson (yngri flokkur) efstir með 9,5 vinning í 10 skákum. Oliver Aron Jóhannesson og Hilmir Freyr Heimisson eru í öðru sæti og hafa von um sigur misstigi Jón og Vignir sig.
Það var gaman hjá krökkunum í gær. Það var ekki nóg með að tefldar væru fjórar umferðir á Landsmótinu heldur var tefld tvískák af milli umferða af miklum móð, farið var í keilu og pool spilað á Billiardbarnum.
Eldri flokkur:
Jón Kristinn er efstur með 9,5 en hann vann Oliver Aron í hörkuskák í gær. Oliver hefur 9 vinninga. Gauti Páll Jónsson og Símon Þórhallsson eru jafnir í 3.-4. sæti en þeir mætast í lokaumferðinni og ræður sú skák úrslitum um hvor fær bronsið. Bárður Örn Birkisson og Jakob Alexander Petersen eru næstir með 6 vinninga.
Mótstöflu eldri flokks má nálgast á Chess-Results.
Yngri flokkur
Vignir Vatnar er efstur með 9,5 vinning en hann gerði jafntefli við Hilmi Frey í gær. Hilmir er annar með 8,5 vinning. Guðmundur Agnar Bragason er þriðji með 7,5 vinning og hafa þeir félagar allir tryggt sér verðlaunasæti. Felix Steinþórsson, Mykhaylo Kravchuk og Heimir Páll Ragnarsson eru jafnir í 4.-6. sæti með 6 vinninga.
Mótstöflu yngri flokks má nálgast á Chess-Results.
- Beinar útsendingar frá eldri flokki
- Beinar útsendingar frá yngri flokki
- Facebook-síða Landsmótsins
- Chess-Results (eldri flokkur)
- Chess-Results (yngri flokkur)
- Myndaalbúm (ÁHS/GB)
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.7.): 1
- Sl. sólarhring: 23
- Sl. viku: 137
- Frá upphafi: 8779030
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.