Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Áskrifendur ađ Tímaritinu Skák komnir yfir 100

Tímaritiđ SkákYfir 100 manns hafa skráđ sig fyrir áskrift ađ Tímaritinu Skák hér á Skák.is.  Óhćtt er ađ segja ađ undirtektir skák(áhuga)manna hafa fariđ framúr björtustu vonum stjórnarmanna á ţeim fjórum dögum sem könnunin hefur veriđ í gangi .  Međal ţeirra sem ţegar hafa skráđ sig fyrir áskrift má nefna 4 stórmeistara, ađra sterka skákmeistara, öldunga, krakka, skákforeldra, skólastjórnendur og síđast en ekki síst hinn almenna skákáhugamann.  Ţá hafa allmargir skákáhugamenn sem búsettir eru erlendis skráđ sig

Markiđ er ţó sett mun hćrra, enda dugar ţessi fjöldi hvergi nćrri til ađ grundvöllur sé fyrir útgáfunni.  Rétt er ađ hvetja skákáhugamenn til ađ skrá sig fyrst enda veglegt árstímarit í bođi á ađeins á 2.000 kr. 

Könnunin verđur í gangi í allan júlí og endanleg ákvörđun um útgáfu verđur tekin í byrjun ágúst.

 

 


Héđinn vann í lokaumferđinni - Giri vann hollenska meistaramótiđ međ fáheyrđum yfirburđum

Héđinn SteingrímssonStórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2569) vann Ramón Jessurun (1895) í níundu og síđustu umferđ opins sem fram fór samhliđa hollenska meistaramótinu í Boxtel.  Héđinn hlaut 6˝ vinning og endađi í 3. sćti, hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Stórmeistarinn Yge Visser (2455) og alţjóđlegi meistarinn Manuel Bosboom (2401) urđu efstir.  Anish Giri (2687) sigrađi á hollenska meistaramótinu međ fáheyrđum yfirburđum en hann hlaut 7˝ vinning og varđ tveimur vinningum ofar en Ivan Sokolov (2645), Anish Girisem varđ annar.

Árangur Héđins samsvarađi 2420 stigum og lćkkar hann um 8 stig fyrir frammistöđu sína.  Ţess má geta ađ Héđinn hefur hćkkađ jafnt og ţétt á stigum síđustu misseri og mun án efa koma sterkur til baka á nćsta móti.   

Lokastađa efstu manna á hollenska meistarmótinu:
  • 1. Giri (2687) 7˝ v.
  • 2. Sokolov (2645) 5˝ v.
  • 3.-6. Ernst (2596), Swinkels (2483), Nijboer (2538) og Spoelman (2564) 5 v.
31 skákmađur tók ţátt í móti Héđins og ţar á međal 2 stórmeistarar og 2 alţjóđlegir meistarar.  Héđinn var stigahćstur keppenda.  

Nýjar reglur um val keppenda á barna- og unglingaskákmót erlendis

Skáksamband Íslands hefur samţykkt nýja reglugerđ um ţátttöku barna og unglinga á vegum Íslands á alţjóđlegum mótum FIDE og evrópska Skáksambandsins.

Reglugerđina má finna í tengli en helstu breytingar frá fyrri reglugerđ eru:

  • Stigalágmörk hćkkuđ.
  • Búin til stigalágmörk fyrir hvert aldursár.
  • Búin til afreksmörk.
  • Ráđgjafarnefnd annast val keppenda 10 ára og yngri.
  • Keppendur taka ţátt í kostnađi.

Sérstök reglugerđ hefur veriđ samin fyrir NM í skólaskák, enda hefur ţađ mót nokkra sérstöđu sem hluti af norrćnu samstarfi Skáksambandsins.

Helstu breytingar á vali á NM í skólaskák eru ţćr ađ í yngri flokkunum (C-E) tilnefnir ráđgjafarnefndin einn keppenda í hverjum flokki til Skáksambandsins auk ţess sem ţađ er fest í reglugerđ ađ Íslandsmeistari barna fá ţátttökurétt á NM.

Ráđgjafarnefndina skipa Stefán Bergsson, Helgi Ólafsson og Davíđ Ólafsson.

Reglugerđir SÍ


Héđinn vann - Giri hollenskur meistari

Anish GiriStórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2569) vann Rob Van Meurs (2095) í áttundu og nćstsíđustu umferđ opins móts sem fram fer samhliđa hollenska meistaramótinu í Boxtel.  Héđinn hefur 5˝ vinning og er í fjórđa sćti.  Anish Giri (2687) varđ í dag hollenskur meistari en hann hefur 1˝ vinnings forskot á nćstu menn ţegar einni umferđ er ólokiđ.  Báđum mótunum lýkur á morgun.Héđinn Steingrímsson

Í móti Héđins eru stórmeistarinn Yge Visser (2455) og alţjóđlegi meistarinn Manuel Bosboom (2401) efstir međ 6˝ vinning. 

Stađa efstu manna á hollenska meistarmótinu:

  • 1. Giri (2687) 6˝ v.
  • 2.-4. Sokolov (2645), Ernst (2596) og Spoelman (2564) 5 v.
31 skákmađur tekur ţátt í móti Héđins og ţar á međal 2 stórmeistarar og 2 alţjóđlegir meistarar.  Héđinn er stigahćstur keppenda.   Á hollenska meistaramótinu eru Anish Giri (2687) og Ivan Sokolov (2645) međal keppenda.

Magnús Örn og Lárus gerast Víkingar

Magnús Örn

FIDE-meistarinn Magnús Örn Úlfarsson (2375) og Lárus Knútsson (2080) hafa gengiđ frá félagaskiptum í Víkingaklúbbinn.  Magnús Örn úr Helli og Lárus úr Taflfélagi Vestmannaeyja.

Víkingar eru ţví ađ styrkja sig fyrir átökin í 2. deild sem geta orđiđ hörđ enda Gođamenn einnig orđnir geysiöflugir.   

 


Skákţáttur Morgunblađsins: Magnús Carlsen endurheimti efsta sćti heimslistans

CarlsenMagnús Carlsen tyllti sér aftur í efsta sćti heimslistans ţegar hann sigrađi á skákmótinu í Medias í Rúmeníu sem lauk í vikunni. Magnús deildi raunar efsta sćtinu međ Úkraínumanninum Sergei Karjakin en telst sigurvegari ef reiknuđ eru Sonneborg-Berger stig.

Magnús er eftir mótiđ međ 2821 elo-stig en heimsmeistarinn Anand er međ 2817 elo-stig. Ţetta er óverulegur munur en mikilvćgur fyrir Norđmanninn í samhengi viđ stóran auglýsingasamning sem hann hefur gert viđ tískuhúsiđ G-Star RAW.

Ţetta er annađ stórmót Magnúsar í ár en síđast tefldi hann á Cours-mótinu í Wijk aan Zee í janúar sl. Sigurvegarinn ţađan, Nakamura, var mćttur til leiks og einnig stjarna síđasta Ólympíumóts, Vasilí Ivantsjúk. En ţeir náđu sér ţó aldrei á strik en Karjakin tókst međ góđum endaspretti ađ ná Magnúsi. Lokastađan varđ ţessi:

1. - 2. Magnús Carlsen og Sergei Karjakin 6 ˝ v. (af 10) 3. - 4. Teimur Radjabov og Hikaru Nakamura 4 ˝ v. 5 - 6. Vasilí Ivantsjúk og Liviu Nisipeanu 4 v.

Magnús Carlsen tók ekki ţátt í áskorendakeppninni sem lauk međ sigri Boris Gelfands í maí sl. Carlsen og NakamuraKeppnisfyrirkomulagiđ ţar var ekki gott og ţarfnast róttćkra breytinga. Um taflmennsku sigurvegarans er ţađ ađ segja, ađ heilmikiđ vantađi upp á tilţrifin. Magnúsi tókst ađ snúa Ivantsjúk og Nisipeanu niđur í jafnteflislegum endatöflum en strax í fyrstu umferđ lagđi hann sigurvegarann frá Wijk aan Zee í snarpri sóknarskák.

Magnús Carlsen - Hikaru Nakamura

Drottningarbragđ

1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. cxd5 exd5 5. Bf4 c6 6. Dc2

Algengara er 6. e3 Bf5 7. g4!? Hér kemur sterklega til greina ađ leika 6. ... Ra6.

6. ... Bg4 7. e3 Bh5 8. Bd3 Bg6 9. Bxg6 hxg6 10. O-O-O Rf6 11. f3 Rbd7 12. Rge2 b5 13. e4 b4 14. Ra4 dxe4 15. fxe4 Da5 16. Kb1 O-O 17. h4!

Kasparov hefđi veriđ fullsćmdur af ţessum leik sem minnir á ađ peđ geta líka veriđ öflugir sóknarmenn.

17. ... Hfe8 18. e5 Rd5?

Liggur beinast viđ en betra var 18. ... Rg4 sem hótar 19. ... Rf2.

19. h5 g5 20. h6!

Óţćgilegur hnykkur. Ekki gengur 20. ... gxf4 vegna 21. hxg7 og vinnur.

20. ... g6 21. Bc1 R7b6 22. Rc5 Bxc5 23. dxc5 b3!?

Nakamura er mikill snillingur í ađ hrista upp í erfiđum stöđum. Nú strandar 24. axb3 á 24. ... Rb4 og vinnur.

24. Dxb3 Dxc5 25. Rd4! Hxe5 26. Rf3 He2 27. Rxg5!

Ţessi riddari er stórhćttulegur međ h-peđiđ sér viđ hliđ. Varnarstađan á drottningarvćng minnir á reglu Capablanca: sé liđsaflinn til varnar a.m.k. jafn - og kóngurinn er tekinn međ - dugar ţađ oftast.

27. ... De7 28. Dd3 Hf8 29. Hdf1 f5

Hvítur hótađi 30. Rxf7 o.s.frv.

30. g4!

Aftur leggur peđ til sóknar.

30. ... Ra4 31. Dd4 De5 32. Dxe5 Hxe5 33. gxf5 gxf5 34. Rf3! He7 35. Hfg1+ Kh7

Eđa 35. ... Kh8 36. Rh4 og vinnur.

gelnla9c.jpg- sjá stöđumynd -

36. Hg7+! Kh8 37. Hhg1 Hfe8 38. Rh4 Hxg7

- og gafst upp m leiđ. Framhaldiđ gćti orđiđ: 39. hxg7 He7 40. Rg6+ og vinnur.

Rúnar sigrađi í Djúpavík

Rúnar Sigurpálsson sigrađi á ađalmóti Skákhátíđarinnar á Ströndum sem Hrókurinn stóđ fyrir. Ţetta var í fjórđa sinn sem ţessi skákhátíđ er haldin. Rúnar fékk 8 ˝ vinning úr níu skákum og skaut aftur fyrir sig sigurvegara mótsins 2010, Jóhanni Hjartarsyni. Alls tóku 43 skákmenn ţátt í mótinu sem ađ ţessu sinni fór fram í Trékyllisvík.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 26. júní 2011.

Skákţćttir Morgunblađsins


Héđinn međ jafntefli - Giri međ vinningsforskot

Héđinn SteingrímssonStórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2569) gerđi jafntefli viđ Roland Daamen (1858) í sjöundu umferđ opins móts sem fram fer samhliđa hollenska meistarmótinu í skák í Boxtel í Hollandi.  Héđinn hefur 4˝ vinning og er í 5.-7. sćti.  Alţjóđlegi meistarinn David Miedema (2409) er efstur međ 6 vinninga.  Héđinn mćtir Rob Van Meurs (2095) í áttundu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer á morgun.  Anish Giri vann Robin Swinkels (2483) á Anish Girihollenska meistaramótinu og hefur nú vinnings forskot á stórmeistarann Sipke Ernst (2596) ţegar ađeins 2 umferđir eru eftir.  

Stađa efstu manna á hollenska meistarmótinu:

  • 1. Giri (2687) 5˝ v.
  • 2. Ernst (2596) 4˝ v.
  • 3.-5. Sokolov (2645), Swinkels (2564) og Spoelman (2564) 4 v.
31 skákmađur tekur ţátt í móti Héđins og ţar á međal 2 stórmeistarar og 2 alţjóđlegir meistarar.  Héđinn er stigahćstur keppenda.   Á hollenska meistaramótinu eru Anish Giri (2687) og Ivan Sokolov (2645) međal keppenda.

Yfir 50 manns hafa lýst yfir áhuga á áskrift á Tímaritinu Skák

Tímaritiđ SkákŢađ hefur vćntanlega ekki fariđ fram hjá neinum lesenda Skák.is ađ nú stendur yfir könnun á ţví hvort ađ grundvöllur sé á ţví ađ Tímaritiđ Skák verđi endurvakiđ en nú sem árstímarit.  Óhćtt er ađ segja ađ viđbrögđ skákáhugamanna hafi veriđ góđ en á ţeim sólarhring sem könnunin hefur veriđ í gangi hér á Skák.is hafa ţegar 57 skráđ sig.  

Ţađ er ţó engan veginn nóg til ađ grundvöllur sé fyrir útgáfunni og eru ţví skákáhugamenn eindregiđ hvattir til ađ skrá sig, enda veglegt árstímarit í bođi á ađeins á 2.000 kr.  

Könnunin verđur í gangi í allan júlí og endanleg ákvörđun um útgáfu verđur tekin í byrjun ágúst.

 


Héđinn tapađi í sjöttu umferđ í Boxtel - Giri efstur á hollenska meistaramótinu

Héđinn SteingrímssonStórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2569) tapađi fyrir hollenska alţjóđlega meistaranum Manuel Bosboom (2401) í sjöttu umferđ opins mót í Boxtel í Hollandi, sem fram fer samhliđa hollenska meistaramótinu.  Héđinn hefur 4 vinninga og er í 4.-7. sćti.  Í sjöundu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Héđinn viđ Roland Daamen (1858).   Alţjóđlegi meistarinn David Miedema (2409) er efstur međ 5˝Anish Giri vinning.   Anish Giri (2687) náđi forystunni á hollenska meistaramótinu eftir ađ Sokolov (2645) lagđi Spoelman (2564) sem var efstur fyrir umferđina.   Ţar er mikil spenna ţar sem efstu menn eiga mikiđ eftir ađ mćtast.  

Stađa efstu manna á hollenska meistarmótinu:

  • 1. Giri (2687) 4˝ v.
  • 2.-4. Ernst (2596), Spoelman (2564) og Swinkels (2483) 4 v .
  • 5. Sokolov (2645) 3˝ v.
31 skákmađur tekur ţátt í móti Héđins og ţar á međal 2 stórmeistarar og 2 alţjóđlegir meistarar.  Héđinn er stigahćstur keppenda.   Á hollenska meistaramótinu eru Anish Giri (2687) og Ivan Sokolov (2645) međal keppenda.

Ný mótaáćtlun SÍ

Ný mótaáćtlun SÍ er komin út.  Hana má finna hér á hćgri hluta síđunnar.  Einnig má finna hana beint hér: https://spreadsheets.google.com/pub?key=pKMwnxnkmbq_WZ3zXjTXOOQ&gid=0

Rétt er ađ hafa í huga ađ ţetta er áćtlun og áćtlanir geta breyst.   

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 8778393

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband