Fćrsluflokkur: Spil og leikir
11.9.2017 | 15:22
EM Ungmenna í Rúmeníu - Pistill #4
Ţá er frídagurinn ađ baki og seinni helmingur mótsins býđur íslensku keppendanna nú í vikunni. Ég átti eftir ađ fjalla ađeins um fjórđu og fimmtu umferđirnar og svo var frídagur hjá okkur í gćr.
Enn er ekki hćgt ađ vera alveg sáttur viđ mótshaldara en alltaf virđast vanta nokkrar skákir í innsláttinn hjá ţeim og ţví erfitt ađ treysta á .pgn skrá á heimasíđu mótsins. Ég hef meira reynt núna ađ ná í skottiđ á okkar mönnum og slá inn skákirnar sjálfur ţó ţađ sé međ eindćmum tímafrekt.
Viđ skulum hefja ţennan pistil á ađ fara yfir fjórum umferđina.
Yfirferđ yfir 4. umferđ
U8
Bjartur nýtti undirbúninginn frá skákinni á undan en lék einum ónákvćmum leik í byrjuninni en fékk samt fína stöđu. Hann hafđi séns á ađ vinna mann en fljótfćrnin varđ honum ađ falli stuttu síđar ţegar hann lék drottningunni í dauđann. Međ meiri einbeitingu styttist í fyrsta sigur Bjarts ţví hann var klárlega búinn ađ tefla betur en andstćđingur sinn fram ađ afleiknum afdrifaríka.
U10
Gunnar lenti snemma í erfiđri beyglu í byrjuninni en skákin varđ ađ sama skapi lćrdómsrík útaf ţví. Hann fékk á sig Petrosian afbrigđi í drottningarindverja sem viđ bjuggumst alls ekki viđ en höfđum eytt mestum tíma í ađ skođa Nimzann. Ţađ er erfitt ađ undirbúa menn á tíđum ţegar fáar skákir andstćđings eru til stađar til ađ njörva niđur byrjanir. Andstćđingur Gunnars tefldi í raun mjög vel og mun betur en stigin gefa til kynna. Ţví miđur var svarta stađan of slćm eftir byrjanatrikkiđ og lítiđ sem Gunnar gat gert.
Vert er ţó ađ benda á ađ menn međ alţjóđlega meistaratign hafa falliđ í ţetta trikk gegn undirrituđum og ţví einfaldlega gamli góđi reynslubankinn sem hér byggist upp!
U10 stelpur
Viđ Batel ákváđum ađ breyta ađeins útaf Najdorf afbrigđinu til ađ vera ekki algjört "sitting duck" ţegar kemur ađ undirbúningi. Viđ undirbjuggum sjaldgćft afbrigđi sem ţó býđur upp á ýmsa pytti sem eru líklegir á ţessu keppnisstigi ađ ganga upp. Mér sýnist mikilvćgast ađ Batel komist klakklaust inn í miđtafliđ ţví hún virđist standa nokkuđ framarlega ţegar kemur ađ taktísku auga og hefur veriđ ađ yfirspila sýna andstćđinga ţannig. Ţađ varđ einnig niđurstađan hér og Batel komin međ 50% eftir ţessa fjórđu umferđ.
U14
"Hvađ er ađ??" eins og sameiginlegur vinur okkar Vignis, Guđmundur Gestur Sveinsson myndi segja. Andstćđingur Vignis í ţessari skák hreinlega hafđi engan vilja til ađ reyna nokkurn skapađan hlut og tefldi eins og vindurinn upp á jafntefli. Hann skipti upp á öllu viđ fyrsta tćkifćri og Vignir hafđi ekki nóg í riddaraendatafli til ađ leggja andstćđing sinn ađ velli. Skákina vantar ţví miđur í .pgn skrá mótsins en Vignir beitti Leningrad afbrigđi og var í raun nánast ekki hćgt ađ tefla skákina betur hjá honum. Mögulega hefđi hann átt smá sénsa ef hann hefđi beitt ...d5 framrás einum leik fyrr í skákinni en skákin getur veriđ svona, ef andstćđingurinn teflir nćgjanlega vel ađ ţá er stundum ekkert hćgt ađ gera og menn verđa ađ sćtta sig viđ jafntefli međ svörtu mönnunum. Svekkjandi úrslit en lítiđ viđ ţeim ađ gera.
U18
Jón Kristinn fékk stigalágan andstćđing og átti í litlum vandrćđum eftir strategísk mistök andstćđings síns. Öruggur sigur ţar á ferđ.
Símon fékk sterkan Azera sem tefldi ţungan pósa og í athyglisverđri skák reyndist sókn hvíts á kóngsvćng fremri framfrás Símons á drottningarvćngnum og Azerinn hafđi sigur.
Úrslit 4. umferđar:
5. keppnisdagur
Ţá var komiđ ađ 5. keppnisdegi og merkilegt nokk fengu ALLIR islensku keppendurnir hvítu mennina!
Ég tók upp svona smá vídeó af herberginu mínu til ađ sýna ađeins hvernig hóteliđ okkar er. Flestir eru sammála um ađ ţetta sé međ ţví versta sem menn hafa gist á en menn eru ţó ekkert ađ detta í neinu fýlu ;-)
Maturinn er heldur ekki upp á marga fiska (er reyndar aldrei fiskur heldur!) og svo láta ţeir okkur bera eitthvađ armband allan tímann til ađ komast inn í matinn.....eins og ţađ sé EINHVER sem fćri ađ svindla sér inn í ţennan viđbjóđ! Allavega fékk ég nóg og er búinn ađ slíta armbandiđ af mér, bara fyrir.
En já, kíkjum á vídeóiđ :-)
En ađ 5. umferđinni. Ţetta var okkar langbesta umferđ hingađ til og íslenski hópurinn halađi heila 4 vinninga af 6 í hús!
U8
Bjartur tapađi sinni skák og vantađi hana í .pgn skrá frá mótshöldurum. Ég get hinsvegar tekiđ forskot á sćluna og glatt menn međ ţví ađ Bjartur var fyrstur ađ klára í dag í 6. umferđinni og vann sína skák :-)
U10
Eftir smá ónákvćmni í byrjuninni tefldi Gunnar Erik eins og herforingi og var ađ yfirspila andstćđing sinn. Maltverjinn náđi hinsvegar ađ verjast međ kjafti og klóm og var líklega langleiđina viđ ađ sleppa ţegar Gunnar missti af ţví ađ taka af honum hrókunarréttinn. Jafntefli varđ svo niđurstađan međ mistlitum biskupum. Gott tćkifćri forgörđum ţarna hjá Gunnari en fín taflmennska.
U14
Vignir lenti í hörkuskák gegn teoríúvél frá Ísrael. Líklega valdi Vignir vel í byrjuninni međ Bb5+ og miđtafliđ leit vel út hjá honum. Sá ísraelski tók hinsvegar völdin en skrikađi fótur og Vignir nýtti sér sína möguleika og fékk unniđ hróksendatafl sem hann stýrđi til vinnings meistaralega.
U18
Úrslitin í U18 voru fín. Símon vann sína skák geng stigalćgri andstćđing og lenti í engu teljandi vandrćđum ađ innbyrđa sinn vinning. Jokkó fór í óafvitandi í ţekkta jafnteflisteoríu og gerđi ţví jafntefli viđ stigahćrri Pólverja nokkuđ snemma í umferđinni.
Heilt yfir fín úrslit í 5. umferđinni og okkar bestu hingađ til.
Laugardagurinn var jafnframt afmćlisdagur Jokkó og leyfđum viđ ţví afmćlisbarninu ađ sjálfsögđu ađ velja hvar skyldi borđađ.....ţađ kemur vćntanlega engum á óvart!
Til ađ fara á McDonalds ţurfti ađ rölta góđa 3km međ tilheyrandi "are we there yet" hjali hjá einhverjum međlimum göngutúrsins.
Leigubíll var svo tekinn til baka og kíkjum viđ í tívolíđ, Luna Park en ţangađ höfum viđ oft fariđ og margt má sér til dundurs gera, allskonar tćki ţar sem hćgt er ađ fá ókeypis svima og ógleđi, klessubílar, ţythokkí, körfuboltavélar og fleira og fleira. Fórum í versta draugahús í sögu tívolía....setjumst í vagn og keyrum í gegnum einhvern smákofa ţar sem eru í besta falli miđlungs halloween skreytingar og svo reyna ţeir ađ redda túrnum međ ţví ađ ţađ sem er gaur sem segir BÖÖÖHHHHH alveg í lokin. Fengum nokkurn veginn ţađ sem viđ borguđum fyrir sem var svona 150 kr :-)
Frídagurinn:
Í gćr var svo frídagur á mótinu. Hópurinn fór saman í fótbolta í líklega mesta hitanum hingađ til og menn svitnuđu vel. Viđ skiptum í liđ á grasvelli sem viđ fundum og leyfđum tveimur litlum rúmenskum guttum sem voru á vellinu ađ spila međ okkur. Skipt var eldri á móti yngri og höfđu ţeir yngri sigur 10-8. Vert er ţó ađ benda á ađ ţeir rúmensku beittu ákveđnum stađarreglum ţar sem ţeir hlupu alltaf á eftir boltanum ef hann fór útaf og héldu svo bara áfram. Allt í góđu gríni og gaman hjá okkur :-)
Ćtlunin var svo ađ kíkja í vatnsrennibrautagarđ hér skammt frá hótelinu en ţađ kom á daginn ađ hann var lokađur ađ fullu. Í raun kristallađist hvađ ţjónustulundin er léleg hérna...held ţađ sé almennt en ekki bara á hótelinu. Einn úr hópnum fór í lobbýiđ og spurđi hvort vatnsrennibrautgarđurinn vćri opinn. Í stađ ţess ađ "hafa fyrir ţví" ađ gá ađ ţví fyrir okkur sagđi hún í alvöru ađ ţađ vćri svo stutt ađ labba ađ viđ gćtum bara gáđ....semsagt engin ađstođ!
Ţess í stađ var frídagurinn nokkuđ frjálslegur. Ég fór međ Símon í telegondóla eđa kláfinn og fengum viđ góđa útsýnisferđ og göngutúr til baka. Kvöldiđ var svo sem fyrr tekiđ í tívólíinu.
Látum ţetta gott heita ađ sinni kveđjur frá Mamaia,
Ingvar Ţór Jóhannesson
P.S. Stađan í hrađkákeinvígi Vignis og Ingvar er 22-20 fyrir Vigni eftir ađ hann fór ađ beita ýmsum bellibrögđum....bíđiđ spennt eftir nćsta pistli ţegar viđ förum yfir maurana í herberginu hjá Símoni og Jokkó!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2017 | 09:10
Carlsen, Kramnik og Nakamura halda heim á leiđ
Gćrdagurinn var sá tíđindamesti á Heimsbikarmótinu í Tbilisi. Stćrstu tíđindin eru ađ sjálfsögđu ađ heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2827) er á heimleiđ eftir ađ hafa ekki náđ ađ jafna metin gegn Kínverjanum Bu Xiangzhi (2714). Kramnik (2803) og Nakamura (2781) eru einnig á heimleiđ. Kramnik tapađi fyrir Ivanchuk í gćr og sama gerđi Nakamura (2781) á móti Fedoseev (2731).
Tvö sćti á áskorendamótinu ráđast af hćstu međalstigum á árinu 2017. Eftir gćrdaginn datt Kramnik niđur í ţriđja sćtiđ en á undan eru Caruana og So. Kramnik ţarf ţví annađ hvort ađ treysta á ađ ţađ ţeir lćkki á stigum eđa ţá ađ annar hvort ţeir komist í úrslit og hann fái ţá ţannig sćti á áskorendamótinu. Möguleikar Nakamura á ađ komast í áskorendamótiđ eru nú engir - ekki nema ađ hann fái bođssćtiđ (wild card) sem FIDE heldur á. Ţađ verđur ađ teljast ólíklegt nema ađ mótiđ verđi haldiđ í Bandaríkjunum.
Martin Bennedik heldur úti síđu sem ţar sem hann fylgist međ hverjir séu standi best á vígi í baráttunni um sćti á áskorendamótinu. Skjaliđ má finna hér.
Anish Giri (2777) bjargađi tapađri skák í jafntefli á lygilegan hátt gegn Sethuraman (2617) og tefla ţeir til ţrautar í dag ásamt 14 öđrum skákmönnum. Eini möguleikinn á sćti fyrir Giri á áskorendamótinu felast í ţví ađ komast í úrslitin í Tbilisi.
Auk ofangreinda tryggđu So (2792), Rodshtein (2695) og Wang Hao (2701) sér keppnisrétt í 4. umferđ (16 manna úrslitum) í gćr.
Ţađ er ahtyglisvert ađ skođa lifandi stigalistann. Ţrettán stigastigahćstu skákmenn hafa lćkkađ á stigum. Peter Svidler, sem er í fjórtandi sćti er sá eini á topp 20 sem hćkkar á skákstigum.
Ítarlega frásögn og öll úrslit má finna á Chess.com.
Taflmennskan í dag hefst kl. 11.
Myndir (Maria Emelianova - Chess.com)
- Heimasíđa mótsins (Ivan Sokolov ađalskýrandi)
- Chess.com (Yasser Seirawan og fleiri)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2017 | 22:37
Einar Hjalti Jensson einn efstur á Haustmótinu
Ţađ var hart barist á flestum borđum í dag er 3.umferđ Haustmótsins var tefld. Á 1.borđi og 3.borđi náđu keppendur jafntefli gegn stigahćrri andstćđingi og á 5.borđi vann stigalćgri keppandinn.
Hjörvar Steinn Grétarsson (2567) vann peđ snemma tafls á efsta borđi gegn Magnúsi Pálma Örnólfssyni (2227) og héldu gestir á kaffistofunni ađ stórmeistarinn myndi landa sigri í kjölfariđ. Magnús Pálmi greip ţá til ţess ráđs -peđi undir- ađ hleypa skákinni í endatafl međ samlitum biskupum. Ţađ var sem Bolvíkingurinn vćri aftur kominn á heimaslóđir í gömlu góđu Sjómannastofuna ţar sem endataflskver Paul Keres, Hagnýt endatöfl, var stúderađ til hlítar. Skákin stóđ yfir í nćr 5 klukkustundir og tókst Magnúsi Pálma ađ halda taflinu jöfnu gegn stórmeistaranum.
Einar Hjalti Jensson (2362) var lengi vel peđi yfir gegn Jóhanni H. Ragnarssyni (2032) en Jóhann hafđi ţó nokkrar bćtur fyrir. Einar nýtti sér ţó liđsmuninn og innbyrti vinninginn, sinn ţriđja í ţremur skákum. Á ţriđja borđi tefldu Björgvin Víglundsson (2137) og Loftur Baldvinsson (1963) og sćttust ţeir á skiptan hlut. Oliver Aron Jóhannesson (2272) tefldi sína fyrstu skák í mótinu er hann vann hinn unga og efnilega Árna Ólafsson (1217). Á 5.borđi stýrđi Ólafur Guđmarsson (1721) hvítu mönnunum til sigurs gegn Kristjáni Erni Elíassyni (1869).
Einar Hjalti er ţví einn efstur eftir ţrjár umferđir međ fullt hús. Sex skákmenn fylgja fast á eftir međ 2,5 vinning. Einar Hjalti tekur yfirsetu í nćstu umferđ sem gefur keppinautum hans kjöriđ tćkifćri til ţess ađ ná honum ađ vinningum. 4.umferđ Haustmótsins verđur tefld nćstkomandi miđvikudagskvöld og hefst tafliđ klukkan 19:30.
Úrslit og stađa: Chess-results
10.9.2017 | 10:34
Bu Xiangzhi yfirspilađi heimsmeistarann - stuttbuxur skekja skákheiminn
Bu Xiangzhi (2710) yfirspilađi heimsmeistarann Magnus Carlsen (2810) í fyrri skák ţriđju umferđar (32 manna úrslita) í gćr. Kínverjinn sterki fórnađi manni međ svörtu fyrir sóknarfćri. Carlsen gat valiđ ađ leyfa Kínverjanum ađ ţráskáka en tók ákvörđun um ađ tefla til sigurs. Ţađ reyndist röng ákvörđun og Bu vann glćsilegan sigur. Skákina má finna skýrđa á Chess.com. Heimsmeistarinn ţarf ţví nauđsynlega ađ vinna Bu međ svörtu til ađ komast í bráđabana.
Sigur Bu féll ţó algjörlega í skuggann á "stóra stuttbuxnamálinu" í gćr. Hinn rússnesk-ćttađi Kanadamađur Anton Kovalyov (2641) hafđi byrjađ frábćrlega á mótinu. Í fyrstu umferđ sló hann bandaríska stórmeistarann Varuzhan Akobian (2662) út og í annarri umferđ vann hann mjög óvćntan sigur á Vishy Anand (2794). Eftir sigurinn á Indverjanum vöktu ummćli hans í viđtali nokkra athygli en ţar talađi hann ađ hann vćri kominn lengra en hann ćtti von á - og ţađ hentađi honum illa í námi sínu. Í lok viđtalsins sagđi hann.
Its very nice to play against such strong opponents but Im really stressed, so Im not really enjoying myself here, but I try to survive as long as I can.
Međal annars gagnrýndi Emil Sutovsky, formađur ACP (félag atvinnuskákmanna), ţađ ađ menn sem ekki hefđu löngun til ađ komast áfram vćru ađ taka sćti af sterkum atvinnuskákmönnum.
Kanadamađurinn hafđi mćtt til leiks til Tbilisi međ einn lítinn bakpoka og einum voru engar buxur - ađeins skrautlega stuttbuxur. Ţćr reyndust miklar happabuxur í umferđum 1 og 2. Ţegar hann hins vegar mćtti til leiks í ţriđju umferđ í gćr gegn ísraelska stórmeistarann Rodshtein (2695) gerir pólski yfirdómarinn, Tomek Delega, athugasemdir viđ klćđnađ Kovalyov sem samrćmist ekki kröfum mótsins um snyrtilegan klćđnađ. Kanadamađurinn bendir á ađ hann hafi ţegar teflt í ţessum buxum í umferđum 1 og 2 og einnig á síđasta Heimsbikarmóti. Í framhaldinu gerir Kovalyov athugasemdir viđ ađ hann hafi svart í fyrstu skákinni en hann taldi sig hafa hvítt. Kanadamađurinn hafđi ţar rangt fyrir sér. Út af fyrir sig mjög sérkennilegt ađ hafa ekki litinn á hreinu.
Á međan yfirdómarinn skođar máliđ mćtir Zurab Azmaiparashvili, ađalskipuleggjandi mótsins, til leiks fyrir framan íslenska fánann og segir honum ađ skipta um föt. Ađ sögn Kanadamannsins hafi Azmai helt sér yfir hann, hafi veriđ verulega dónalegur, og kallađ sig međal annars sígauna (gypsy) og skipađ sér ađ skipta um föt.
Kovalyov hélt úr skáksalnum. Í stađ ţess ađ fara upp á hótelherbergi og skipta um föt og mćta aftur í skákina virđist sem Kanadamađurinn hafi fariđ upp á hótelherbergi og pantađ sér flug til heim til Kanada. Nokkru síđar sást hann úti viđ á leiđinni í leigubíl. Í framhaldinu sendir hann frá sér yfirlýsingu á Facabook ţar sem ber ţví viđ ađ eiga ekki síđbuxur sem passi sér - ţar sem hann hafi fitnađ. Ber hann skipuleggjara mótsins ţungum sökum fyrir dónaskap. Yfirlýsinguna í heild sinni má finna hér.
Chess24 spurđi Zurab Azmaiparashvili um máliđ og hafđi hann eftirfarandi um máliđ ađ segja:
There is not "my view". There is lie and true. The true is that Mr Kovalev came to Tbilisi (12000 km away from Canada) and took only short pants. By accident I was present when chief arbiter give a warning to him and he don't care about. After this as an organizer I interfered and ask him (in the beginning in polite way) to respect regulations and organizers and change his shorts. He told me that already played previous World Cup like this and what's wrong?! My reply was that "I don't care how he played previous World Cup, but I care how he will dress here" and "if he will not follow request of chief arbiter and organizer then he will be punished by FIDE on maximum level which allow contract and regulations". Kovalev asked me what is wrong in his dress and I told him he is dressed like gipsy. I mean of course homeless people and not tsigan nation. After this he left tournament hall and never come back. This is full story.
Nánar má lesa um stóra stuttbuxnamáliđ á Chess.com, Chessbase Chess-news.ru og á Chess24.
Svo meira sé fjallađ um skákirnar! Tólf skákum af sextán lauk međ jafntefli í gćr. Ađ áđurnefndum skákum undanskyldum ţá vann Aronian (2802) Matlakov (2728) og Wesley So (2792) lagđi Vallejo Pons (2717) ađ velli.
Ítarlega frásögn og öll úrslit má finna á Chess.com.
Taflmennskan í dag hefst kl. 11. Hvađ gerir Carlsen í dag? Mćtir einhver annar í stuttbuxum?
Myndir (Maria Emelianova - Chess.com)
- Heimasíđa mótsins (Ivan Sokolov ađalskýrandi)
- Chess.com (Yasser Seirawan og fleiri)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:38 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2017 | 23:15
EM ungmenna: Gott gengi í fimmtu umferđ
Ţađ gekk vel hjá íslensku skákmönnunum í fimmtu umferđ EM ungmenna sem fram fór í dag. Fjórir vinningar í sex skákum. Besta umferđin til ţessa. Vignir Vatnar Stefánsson (u14), Símon Ţórhallsson (u18) og Batel Goitom Haile (u10) unnu sínar skákir. Gunnar Erik Guđmundsson (u10) og Jón Kristinn Ţorgeirsson (u18) gerđu jafntefli. Bjartur Ţórisson (u8) tapađi.
Vignir og Batel hafa 3 vinninga, Jón Kristinn hefur 2,5 vinninga, Gunnar Erik og Símon hafa vinninga og Bjartur hefur 1 vinning.
Frídagur er á morgun, sunnudag.
Úrslit dagsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12 - 10 efstu skákir hvers flokks sýndar beint)
Spil og leikir | Breytt 10.9.2017 kl. 08:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2017 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Lenka Íslandsmeistari kvenna Jóhann byrjar á morgun í Tiblisi

Međ sigrinum stađfestir Lenka auđvitađ stöđu sína sem langsterkasta skákona landsins en frammistađa Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur sem varđ í 2. sćti kom nokkuđ óvart ţar sem hún hefur lítiđ teflt undanfarin ár.
Hin 10 ára gamla Haile Batel Goitom teflir fyrir Íslands hönd á Evrópumeistaramóti ungmenna sem hefst í Rúmeníu 4. september nk.
Heimsbikarmótiđ hefst á morgun

Athygli vakti ţegar heimsmeistarinn Magnús Carlsen ákvađ ađ taka sćti í mótinu en ţar sem keppt er um tvö sćti í áskorendakeppninni og ađ ţví gefnu ađ Magnús komist alla leiđ í lokaeinvígiđ verđa ţeir sem lenda í 3.-4. sćti ađ tefla einvígi um sćti í áskorendakeppninni, móti ţar sem átta skákmenn tefla tvöfalda umferđ og sigurvegarinn öđlast rétt til ađ skora á heimsmeistarann.
16 stigahćstu skákmenn heims eru mćttir til leiks í Tiblisi og verđur hćgt ađ fylgjast međ keppninni á hinum ýmsum vefsvćđum, t.d. á Chess.com. Skákirnar hefjast kl. 11 ađ íslenskum tíma. Fyrirkomulag er ţannig ađ fyrst eru tefldar tvćr kappskákir en verđi jafnt er gripiđ til skáka međ styttri umhugsunartíma. Ţćr fara fram nćsta dag sem ţýđir ađ ţeir sem komast áfram eftir kappskákirnar fá frídag. Í lokaeinvíginu verđa tefldar fjórar kappskákir.
Ţó ađ andstćđingur Jóhanns í 1. umferđ, David Navara, sé stighćrri svo munar nćstum 200 elo-stigum er vert ađ geta ţess ađ Tékkinn hefur oft lent í erfiđleikum ţegar hann mćtir íslenskum skákmönnum. Hann er nýkominn frá St. Louis í Bandaríkjunum ţar sem hann tók ţátt í Grand tour, at- og hrađskákmótinu, og varđ neđstur en náđi samt ađ vinna Garrí Kasparov samanlagt 2:1.
Keppnin Í Tiblisi fer fram samkvćmt Wimbeldon-kerfinu Magnús Carlsen međ rásnúmer 1. teflir viđ ţann sem hefur rásnúmer 128, Oluwafemi Balogun frá Nígeríu sem er međ 2.255 elo-stig.
Ţó ađ Magnús og flestir ţeir sem sitja í efstu sćtum heimslistans séu mun sigurstranglegri er ţetta mót ţekkt fyrir óvćnt úrslit.
------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 2. september 2017
Spil og leikir | Breytt 4.9.2017 kl. 11:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2017 | 10:00
Mamedyarov, Radjabov og Wei Yi fallnir úr leik
Ţriđju umferđ Heimsbikarmótsins í skák lauk í gćr ţegar teflt var til ţrautar í 22 einvígjum međ styttri umhugsunartíma. Ýmsir sterkir skákmenn féllu úr leik og má ţar nefna ađ Wei Yi tapađi sínu einvígi gegn Richard Rapport. Aserarnir Mamedyarov og Radjabov töpuđu einnig sínum einvígum og geta tekiđ flug saman til Bakú.
Ţriđja umferđ (32 manna úrslit) hefjast í dag kl. 11. Carlsen teflir viđ Bu. Međal annarra áhugaverđa einvíga má nefna Kramnik-Ivanchuk og Jobava-Nepo.
Ítarlega frásögn og öll úrslit má finna á Chess.com.
Myndir (Maria Emelianova - Chess.com)
- Heimasíđa mótsins (Ivan Sokolov ađalskýrandi)
- Chess.com (Yasser Seirawan og fleiri)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2017 | 08:29
Jón Kristinn og Batel unnu í fjórđu umferđ
Jón Kristinn Ţorgeirsson (u18) og Batel Goitom Hailee (u10) unnu sínar skákir í fjórđu umferđ EM ungmenna sem fram fór í gćr. Vignir Vatnar Stefánsson (u14) gerđi jafntefli. Ađrar skákir töpuđust.
Vignir Vatnar, Jón Kristinn og Batel hafa 2 vinninga, Gunnar Erik Guđmundsson (u10) hefur 1,5 vinninga og Bjartur Ţórisson (u8) og Símon Ţórhallsson (u18) hafa 1 vinning.
Fimmta umferđ fer fram í dag. Allir íslensku keppendurnir hafa hvítt í dag!
Úrslit gćrdagsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12 - 10 efstu skákir hvers flokks sýndar beint)
8.9.2017 | 13:25
EM ungmenna í Rúmeníu - Pistill #3
EM ungmenna heldur áfram hér í sólinni á Mamaia. Ţriđja umferđ fór fram í gćr og var hún sú versta hjá íslenska hópnum til ţessa.
Viđ erum reyndar ekki ţeir einu sem áttu slćman dag ţví mótsstjórninni hefur ekki ennţá tekist ađ koma út .pgn frá umferđinni í gćr og ţví nć ég ekki ađ hengja skákirnar hér viđ sem viđhengi.
Rúmenar eru ekki ađ heilla okkar í matargerđ allavega enn sem komiđ er. Maturinn á hótelinu er alls ekki nógu góđur og rétt sleppur á köflum. Kjöt og kjúklingur yfirleitt ofsteikt og ţurrt og ţađ er ekki einu sinni hćgt ađ fá pasta sem er í ţokkalegasta lagi.
Viđ fórum nokkur úr íslenska hópnum út ađ borđa í gćr svona til ađ fá einhverja tilbreytingu frá frekar ţreyttum hótelmat. Satt best ađ segja var sá matur rétt svo skárri. Ég sjálfur fékk mér Spaghetti Bolognese sem á ekki ađ vera hćgt ađ klúđra og var ţađ ekki nógu gott. Fékk mér einnig kjúklingavćngi sem rétt sluppu en mér sýndist á öđrum ađ í lagi hefđi veriđ međ hamborgara sem ađrir pöntuđu. Eftirrétturinn slapp hinsvegar enda erfitt ađ klúđra ís! ...ţađ er ţó alltaf Kebab to the rescue!
En ađ úrslitum gćrdagsins, ađeins Símon vann sína skák og Gunnar Erik gerđi jafntefli. Ađrir töpuđu sínum skákum. Flestir voru ađ tefla upp fyrir sig en Vignir var auđvitađ ekki sáttur međ sitt tap miđađ viđ stigatölu andstćđings. Ţessir Rússar eru ţó alltaf erfiđir, ţađ liggur fyrir. Rétt er ađ benda á ađ Batel hefur fengiđ skuggalega erfitt prógram, er búin ađ tefla viđ stelpur rankađar númer 3, 6 og 18 í í hennar flokki.
Hef nú bćtt skákum umferđarinnar viđ pistilinn. Á heimasíđu mótsins vantađi ţó skák Vignis Vatnars af einhverjum ástćđum.
U8
Bjartur stýđi svörtu mönnunum og sáum viđ ađ andstćđingur hans var međ nokkrar skákir í Alapin (2.c3) gegn Sikileyjarvörninni. Viđ kíktum ţví ađeins á afbrigđi međ ...Bf5 sem ég veit ađ Gunnar hefur líka skođađ til ađ halda svona smá samrćmi í hópnum. Örlítiđ einbeitingarleysi og fljótfćrni hefur veriđ ađ hraka Bjart og hann lék ţess í stađ ...Bg4 en fékk samt fína stöđu en lenti í mistökum sem hann lćrir vonandi af. Fljótfćrni hefur lengi einkennt krakka á ţessum aldri, líklega flesta en sérstaklega á Íslandi og man ég t.d. ađ Hjörvar Steinn og Vignir voru mjög fljótfćrir á unga aldri. Hvađ um ţađ, smá pćlingar og kannski eitthvađ sem má skođa almennt hjá okkur heima.
U10
Gunnar Erik fékk sinn undirbúning algjörlega upp á borđiđ. Gunnar hefur veriđ mjög duglegur ađ stúdera og undirbúa sig sjálfur og er farinn ađ vera međ sínar byrjanri vel á hreinu. Nćsta verkefni er ađ fínpússa afbrigđin ađeins meira en ţađ lofar mjög góđu byrjanaundirbúningurinn hjá honum.
Stigahćrri andstćđingur hans bauđ jafntefli í ađeis verra endatafli sem Gunnar ţáđi.
U10 stelpur
Batel tefldi viđ ađra rússneska stelpu í topp 6. Sú tefldi alltaf Caro-Kann og taldi ég einfaldast ađ útskýra nokkur plön og leiđir í tveggja riddara tafli gegn CK. Upp kom reyndar afbrigđiđ sem viđ fórum minnst yfir (...Rf6) en Batel fékk samt fína stöđu og stóđ vel í ţeirri rússnesku. Á endanum var ţó sú rússneska sterkari á svellinu og hafđi sigur eftir fína baráttu. Batel hefur eins og áđur segiđ fengiđ feykisterkt prógram og ég spái henni yfir 50% í mótinu og vćnni stigahćkkun!
U14
Í .pgn skrá mótsins vantar skák Vignis. Hann tefldi 1.d4 en andstćđingur hans platađi hann eilítiđ međ 1...e6 ţar sem Vignir vildi ekki tefla gegn Frakkanum og systemiđ sem hann ćtlađi ađ tefla gegn Hollending virkađi ekki gegn 1...e6. Upp kom ţó eđlileg stađa og skákin bara í jafnvćgi en Vignir gerđi mistök í miđtaflinu og fékk erfiđara endatafl sem hann hefđi líklega átt ađ halda en ţetta var ekki dagurinn hans Vignis.
U18
Símon fékk stigalágan heimamann og átti ekki í miklum vandrćđum međ ađ innbyrđa sinn vinning. Jón Kristinn hinsvegar komst ekki nógu vel út úr byrjuninni gegn Norđmanninum Haug og flćkjurnar í kjölfariđ voru alfariđ honum í óhag og ţví tap niđurstađan.
mbk,
Ingvar
Spil og leikir | Breytt 9.9.2017 kl. 13:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2017 | 11:00
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hafiđ
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur, hiđ 84. í röđinni, hófst síđastliđiđ miđvikudagskvöld. Keppendur ađ ţessu sinni eru 30 talsins og er ţetta fámennasta Haustmótiđ um árabil, en margir íslenskir skákmenn eru uppteknir á öđrum vígstöđvum á ţessum annasömu haustmánuđum.
Ţó mótiđ sé fámennt ţá er ţađ sannarlega góđmennt enda skipađ fjölmörgum skemmtilegum skákmönnum. Ţrír titilhafar eru á međal keppenda; stórmeistarinn og skákţjálfarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2567), alţjóđlegi meistarinn og byrjanaprófessorinn Einar Hjalti Jensson (2362) og FIDE meistarinn geđţekki úr Grafarvoginum Oliver Aron Jóhannesson (2272). Fjórđi í stigaröđinni er Bolvíkingurinn sókndjarfi, Magnús Pálmi Örnólfsson (2227) sem hefur smíđađ margar laglegar fléttur í Faxafeninu í gegnum árin. Fimmti stigahćsti keppandinn er fyrrum skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur, hinn eitilharđi Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2164) sem nýveriđ söđlađi um og gekk til liđs viđ Vinaskákfélagiđ. Nćstur honum í stigaröđinni er gamla brýniđ og einn virkasti skákmađur landsins síđustu ár, Björgvin Víglundsson (2137). Sjöundi í stigaröđinni og sá síđasti sem er yfir 2000 skákstigum er Garđbćingurinn snjalli, Jóhann H. Ragnarsson (2032).
Úrslit fyrstu umferđar voru öll eftir gömlu góđu bókinni, ţ.e. ţeir stigahćrri unnu ţá stigalćgri, enda stigamunur mikill. Í nćstu umferđ minnkar stigabiliđ verulega og má ţví búast viđ nokkrum spennandi skákum á föstudagskvöld ţegar 2.umferđ verđur tefld. Ţá mćtast međal annars á efstu borđum Hjörvar Steinn og Kristján Örn Elíasson (1869), og Einar Hjalti mćtir Herđi Aroni Haukssyni (1859).
Fjölmargir ungir og efnilegir liđsmenn TR munu vafalítiđ láta finna fyrir sér í umferđinni enda duglegir ađ stunda ćfingar og tefla í mótum. Árni Ólafsson (1217) stýrir hvítu mönnunum gegn Hjálmari Sigurvaldasyni (1498), Adam Omarsson (1149) sem nýveriđ gekk til liđs viđ Taflfélag Reykjavíkur hefur hvítt gegn Tryggva K. Ţrastarsyni (1325), Benedikt Ţórisson (1065) hefur svart gegn Kristófer H. Kjartanssyni (1297) og Kristján Dagur Jónsson (1271) stýrir hvíta herliđinu gegn Kjartani Karli Gunnarssyni (0).
Umferđin á föstudagskvöldiđ hefst klukkan 19:30 í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12. Gestir eru hjartanlega velkomnir ađ líta viđ í kaffi og fylgjast međ baráttunni í skáksalnum.
Úrslit og stađa: Chess-results
Skákirnar (pgn): HTR #1
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 1
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 169
- Frá upphafi: 8779107
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 105
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar