Færsluflokkur: Spil og leikir
5.11.2017 | 08:37
EM Landsliða - Liðsstjórapistill 7. umferðar
Viðureign 7. umferðar var gegn sterku liði Tékka. Tékkarnir státa af hinum feykisterka David Navara á fyrsta borði en hann hefur nú lengi verið yfir 2700 elóstigum og er mjög nálægt því að vera í hópi elítuskákmanna. Annað borðið hjá þeim er einnig sterkt með 2650 elóstig og svo eru hinir þrír stórmeistararnir allir nokkuð þéttir. Það var reyndar vitlaust munað hjá mér í gær að þeir væru númer 13 í stigaröðinni þar sem þeir eru númer 11 í stigaröðinni!
Ungverjar og Rússar voru efstir fyrir þessa umferð og mættu Ungverjar Azerum á meðan Rússar öttu kappi við Króata.
Viðureign dagsins var erfið en skoðum hana í sömu tímaröð og skákirnar kláruðust.
2. borð Hjörvar hvítt á Laznicka
"Rematch" á öðru borði. Hjörvar og Laznicka tefldu einnig í Baku þar sem Hjörvar vann góða skák sælla minninga. Móttekið drottningarbragð var á boðstólnum þá en að þessu sinni var það Chebanenko Slabbi sem Hjörvar hafði nokkurn veginn giskað á.
Laznicka er nokkuð mikill teóríuhestur og kannski kom það full mikið á daginn í þessari skák. Undirbúning Hjörvars var Dd1 hér sem er ekki efstur á blaði hjá tölvunni en í nútíma skák er það einmitt góð leið til að koma á óvart að velja góða eða solid leiki sem eru ekki endilega efsti á blaði hjá tölvunni. Því miður dugði sá undirbúningur skammt þar sem Laznicka lék án umhugsunar ...Bd6 sem er efsti leikur á blaði hjá tölvunni. Í stuttu máli fékk Hjörvar ekkert frumkvæði og Laznicka jafnaði taflið.
Skömmu síðar var komin staða með mistlitum biskupum og lítið að tefla upp á. Tilþrifalítil skák og staðan í viðureigninni því 0.5-0.5
1. borð Héðinn svart á Navara
Í stuttu máli mætti kalla byrjunina og miðtaflið sem kom í kjölfarið nokkuð "órætt". Staðan er mjög óvenjuleg, hvítur með betri liðsskipan og frumkvæði en svartur á móti með biskupaparið og búinn að losna við h-peðs veikleikann en á móti með kónginn á miðborðinu og smá öruðgleika við að klára liðsskipan.
Staðan hér að ofan strax óvenjuleg en hér lék Navara g5 en hefði mögulega fengið betra tafl með Rd6.
Skömmu síðar var Navara eiginlega þvingaður til þess að fórna manni. Þegar kallar á þessum kalíber fórna svona heldur maður að það sé allt í springa í andlitið á manni. Héðinn var hinsvegar háll sem áll og svalur eins og valur og treysti sínu stöðumati og útreikningum. Hann hafði séð að hvítur varð að fórna hér og mat það rétt að hann stæði jafnvel betur.
Fórnin var mjög athyglisverð og í stöðunni að ofan var mjög athyglisvert augnablik. Riddari til a5 virðist eðlilegasti leikurinn (rauð ör) en Héðinn lék Re5 (græna) sem er mun betri leikur. Hvítur hafði enga mátsókn og í kjölfarið kom tvöfalt hróksendatafl þar sem Héðinn var í raun með aðeins betra en náði ekki að sigla vinningi í höfn.
Hefði svartur leikið ...Ra5 hefði komið mjög flottur varíantur með 28.e4 h3 (til að forðast mát) 29.Hgg6 Hh5 (annars Hh6+ og mát) og hér er virkilega smekklegt mát með 31.Hf4+ og svo Hg4 mát, virkilega smekklegt. Þetta höfðu báðir keppendur séð og hraðspóluðu yfir í stúderingum með bros á vör. Annars var gaman að fylgjast með stúderingum þeirra Héðins og Navara. Navara er eins og menn þekkja mjög kurteis og á köflum eiginlega of kurties því hann eiginlega biðst afsökunar ef hann stingur upp á leik í post-mortem sem er ekki besti leikurinn. Svo er gríðarlega fallegt að fylgjast með þegar hann drepur menn í skákinni. Hann passar að taka manninn rólega útaf borðinu og ýtir ekki á klukkuna fyrr en allt er komið á sinn stað. Það er engin truflun á andstæðinginn!
En já, skákin semsagt einfaldaðist í jafnt hróksendatafli og staðan því 1-1 í viðureigninni. Vel teflt hjá Héðni og gott jafntefli heilt yfir þó gaman hefði verið ef að Héðinn hefði fundið erfiðu leikina og unnið.
3. borð Hannes svart á Hracek
Hannes stýrði svörtu mönnunum gegn Hracek og átti nokkurn veginn von á að ítalski leikurinn kæmi upp enda verið hálfgerð "tískubyrjun" undanfarið af furðulega ástæðum. Í raun má segja að menn hafi verið þreyttir á að fá lítið sem ekkert frumkvæði í Berlínarvörninni og því eru menn sáttari við að fá "ekkert" í ítalska leiknum. Hannes hafði skoðað fyrir skákina ...a5 hugmynd til að hafa eitthvað fram að færa. Í stuttu máli virtist hvítur alltaf hafa aðeins betri stöðu en aldrei nógu mikið til að skapa einhver raunveruleg vandamál fyrir Hannes.
Þessi staða kom upp í miðtaflinu. Tölvan gefur þessu mjög lítinn plús á hvítann og e.t.v. lítur þetta verr út en þetta er. Svartur hefur þrjár peðaeyjur og virðist eiga nokkuð erfitt um vik. Peðið á e5 er stakt og hægt er að setja á það með Bc3. Peðið á c7 er bakstætt og hvítur er að ráðast á það á opinni línu. Hvítur getur sett riddara sinn á f5 og svartur þarf smá tíma til að stugga við honum. Ofan á þetta þarf svartur aðeins að hrókera sínum mönnum til þess að virkja hrókinn á a8. Heilt yfir hljómar þetta og lítur ansi illa út fyrir svartan en einhvern veginn náði hvítur ekki að búa neitt til. Smátt og smátt náði svartur að virkja biskupinn sinn og hrókinn og leika svo ...h5 og ...g6 og losa stöðuna. Skömmu síðar var jafntefli samið.
Enn eitt jafnteflið og staðan því 1.5-1.5 í viðureigninni og aðeins Gummi eftir (ekkert nýtt þar!)
4. borð Guðmundur hvítt á Plat
Gummi ákvað að beita Bb5 Rossolimo afbrigðinu og slá á c6. Plat er nokkuð vanur þessum afbrigðum og e.t.v. var það ekki vænleg leið að fara í afbrigði sem hann þekkir svona vel eftir á að hyggja. Kannski hefði verið skynsamara að fara í Rf3 eða c4 "juð" og tefla skákina. Athyglisvert er að Gummi mætti Plat líka á Ólympíumótinu í Baku en þar var Grunfeld á boðstólnum og Gummi fékk ágætis stöðu eftir byrjunina.
Í teórískri stöðu kom óalgengur Re2 leikur og svo g4 í kjölfarið. Eftir það kom furðuleg drottningartilfæring til a3 sem líklega gaf svörtum frumkvæðið. Hvítur tapaði miklum tíma á tilfærslunni Dd2-c3-a3-b3-c2. Svartur hafði öll vopn á hendi eftir það og hvítur fastur í erfiðri vörn. Til gamans má geta þess að drottning hvíts fór einnig til a3 í Grunfeld skákinni í Baku!!
Gummi var nokkuð seigur í vörninni og fórnaði peði og var að gera Plat lífið erfitt. Þegar hér var komið við sögu var ég farinn að eygja von að Gummi gæti barist en tölvan gefur næsta leik allt að falleinkunn. Gummi lék hér e5 sem opnaði of miklar flóðgáttir.
Í kjölfarið kom endatafl þar sem liðsafli var jafn en frípeðið á b3 líklega of mikið. Mín tilfinning er að svarta drottningin komist alltaf inn í hvítu stöðuna og líklegast lendir hvítur alltaf í leikþröng. Að öllum líkindum hefði mátt gera svörtum lífið erfiðara í framhaldinu en þess í stað komst svarta drottningin inn í hvítu stöðuna og kláraði dæmið.
Niðurstaðan því aftur 2.5-1.5 tap gegn aðeins sterkari sveit líkt og í 5. umferðinni. Nokkuð svekkjandi en kannski sanngjarnt. Í raun var 2-2 það mesta sem við hefðum getað fengið úr þessari viðureign eins og skákirnar þróuðust. Við þurfum því enn að lúta í gras fyrir Tékkum en við höfum tapað fyrir þeim í öll fimm skiptin sem við höfum mætt þeim á EM eða ÓL.
Á toppnum lögðu Azerar Ungverja að velli og greiddu því leiðina fyrir Rússa á toppinn. Rússarnir lögðu Króata og eru því einir efstir eftir sjö umferðir. Rússarnir hafa 12 stig og mæta Azerum á morgun en þeir eru með 11 stig og hafa unnið síðustu fjórar viðureignir sínar eftir erfiðara byrjun. Vert er að minnast á Rauf Mamedov á 4. borði en hann er með 6.5 vinning af 7 og er kominn yfir 2700 elóstigin í fyrsta skipti á sínum ferli. Ef Rússarnir leggja Azera á morgun má nánast afhenda þeim bikarinn og því væri skemmtilegt fyrir mótið ef Azerar ná að stríða þeim.
Endapsretturinn verður einnig mikilvægur fyrir okkur. Við losnum við jójóið og teflum ekki niður fyrir okkur heldur fáum Sviss sem eru númer 26 í stigaröðinni, einu sæti fyrir ofan okkur. Því er um að ræða algjörlega jafna viðureign og má segja að þessi viðureign og sú næsta skilgreini mótið okkar algjörlega. Ef við leggjum Sviss og náum góðum úrslitum í síðustu umferð má kalla mótið mjög gott en allt annað verður í besta falli viðunandi.
Krítarkveðja frá liðsstjóra,
Ingvar Þór Jóhannesson
Snapchat story frá Ingvar77:
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2017 | 08:27
Góð frammistaða Andra í uppsölum
Andri Freyr Björgvinsson (1937) stóð sig afar vel á alþjóðlega unglingamótinu sem fram fór í Uppsölum 27. október - 1. nóvember. Andri hlaut 3½ vinning í 4 síðustu skákum og endaði með 5 vinninga í 9 umferðum.
Frammistaða hans samsvaraði 2071 skákstigi og hækkar um 31 stig. Mjög flott.
Símon Þórhallsson (2027) náði sér ekki jafnvel á strik. Hann hlaut 3½ vinning. Hann sló hins vegar í gegnum í Svíþjóð - að því leyti að hann talar sænsku reiprennandi!
Gríski FIDE-meistarinn Evgenios Ioannidis (2302) sigraði á mótinu.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2017 | 07:00
Barna- og unglingameistaramót TR fer fram í dag
Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 5. nóvember í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13.
Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 10+5 (10 mínútur á mann auk 5 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til atskákstiga.
Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum og þar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2017.
Þá verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í stúlknaflokknum og þar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2017.
Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í aldursflokknum 13-15 ára (f. 2002-2004), 11-12 ára (f. 2005-2006), 9-10 ára (f. 2007-2008) sem og 8 ára og yngri (f. 2009 og síðar) í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).
Fyrra árs Unglingameistari TR er Vignir Vatnar Stefánsson og Stúlknameistari TR er Batel Goitom Haile.
Mótið er opið öllum krökkum 15 ára og yngri (fædd 2002 og síðar).
Skákmótið hefst kl.13 og er aðgangur ókeypis. Skráning í mótið fer fram rafrænt og má nálgast skráningarformið hér. Einnig má finna skráningarformið í gula kassanum á skak.is. Upplýsingar um þegar skráða keppendur má nálgast hér.
Spil og leikir | Breytt 31.10.2017 kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Fyrir keppnina urðu miklar breytingar á sumum liðunum og bar þar hæst að Víkingasveitin bætti við sig félögum úr skáksveit Bolungarvíkur þeim Jóhanni Hjartarsyni og Jóni L. Árnasyni og úr Taflfélagi Reykjavikur komu Jón Viktor Gunnarsson og Björn Þorfinnsson.
Huginn var að þessu sinni án Gawain Jones og Robin van Kampen og munar um minna þó að frammistaðan hafi verið vel viðunandi. Víkingasveitin tefldi hinsvegar af miklu öryggi og tapaði ekki skák, vann tvær viðureignir með núlli og öðrum lauk 7:1. Þar sem vinningar eru látnir ráða eins og í þýsku Bundesligunni verður að teljast afar ólíklegt að Huginn eigi möguleika á að verja titilinn en efstu sveitirnar mætast í lokaumferðinni. Staðan fimm efstu liða í 1. deild:
1. Víkingaklúbburinn 37 v. (af 40) 2. Huginn 31 v. 3. Fjölnir 24 v. 4. TR 21 v. (6 stig) 5. SA (a-sveit) 21 v.
Í 2. deild hefur b-sveit TR ½ vinnings forskot á Skákfélag Reykjanesbæjar en tvær efstu sveitirnar komast upp í efstu deild. Í 3. deild er b-sveit Víkingaklúbbsins efst og í 4. deild hefur Taflfélag Akraness forystuna.
Margir náðu góðum úrslitum um helgina og ef litið er til árangurs í efstu deild miðað við stigahækkun þá hækkaði Akureyringurinn Símon Þórhallsson mest eða um 32 Elo-stig. Frammistaða Sverris Þorgeirssonar hjá Garðbæingum var eftirtektarverð en hann vann stórmeistarann Margeir Pétursson og hækkaði um tæplega 24 stig.
Í 2. deild fengu Selfyssingar til liðs við sig þekktan meistara og strangtrúaðan gyðing, Jaacov Noorwitz. Honum ber að halda hvíldardaginn heilagan og þegar hann tefldi við Björgvin Jónsson mátti hann að vísu tefla, en ekki skrifa niður skákina. Skákin fer hér á eftir en Björgvini tókst að halda sér á floti í erfiðri stöðu gegn andstæðingi sem hefur frábæra leiktækni og er afburða hraðskákmaðu.
Jaacov Norowitz Björgvin Jónsson
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 b6 4. g3 Ba6 5. b3 d5 6. cxd5 exd5 7. Bg2 Bb4+ 8. Bd2 Bd6 9. 0-0 0-0 10. Rc3 He8 11. Re5 Rxe5 12. dxe5 Hxe5 13. Bf4 Hf5?!
Óvenjulegur staður fyrir hrók, 13.... He6 var betra.
14. Dc2
Gott var einnig 14. e4 eða 14. Dd2.
14.... Hxf4 15. gxf4 Bb7 16. Had1 Ra6 17. Df5 c6 18. e4 Rc7 19. e5?!
Með 19. Hfe1 heldur hvítur öllum möguleikum opnum.
19.... Rfe8 20. b4 Ba6 21. Hfe1 De7 22. a3 Bc4 23. Re2 Re6 24. Dg4 h5!? 25. Dg3 f5 26. Rd4?! Rxd4 27. Dxd4 Rc7
Svartur er kominn yfir það versta en nú bregður hvítur á það ráð að gefa skiptamun til baka.
28. Hxc4? dxc4 29. Bxc6 Hd8 30. b5 Re6 31. Df3 Dc5!
Hrifsar til sín frumkvæðið.
32. Kh1 c3 33. Hc1 Dc4!
Bráðsnjall leikur, 34. Dxc er svarað með 34.... Hd1+! og vinnur og 34. Hxc3 strandar á 34.... Df1 mát.
34. h3 c2 35. Kh2 Hd2 36. Dxg5 Dxf4+ 37. Kh1 Dxf2
og hvítur gafst upp.
------------------
Skákþættir Morgunblaðsins eftir Helga Ólafsson birtast u.þ.b. viku síðar á Skák.is.
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 28. október 2017
Spil og leikir | Breytt 28.10.2017 kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2017 | 18:19
Tap gegn Tékkum með minnsta mun
Íslenska liðið á Evrópumóti Landsliða á Krít mátti sætta við tap með minnsta mun gegn sterkri sveit Tékka. Jafntefli urðu á þremur efstu borðunum en Guðmundur Kjartansson beið lægri hlut á 4. borði. Íslenska liðið hefur því enn 6 stig en ekki liggur fyrir hvaða sveit við mætum í 8. umferð þegar þetta er ritað
Áttunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 13.
Ingvar liðsstjóri mun gera umferð dagsins betri skil síðar í kvöld.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2017 | 11:44
EM landsliða: Tékkland í dag
Ísland mætir sterku liði Tékklands í dag. Það að við fáum sterkari og veikari sveitir til skiptis heldur því áfram sjöundu umferðina í röð. Tékkar eru sterkir. Þeir hafa meðalstigin 2643 skákstig á móti 2527 skákstigum Íslands. Tékkar eru með elleftu stigahæstu sveitina á meðan okkar var raðað nr. 27. Það hallar því töluvert á okkur. Tékkum hefur hins vegar ekki vel á mótinu og hafa aðeins 5 stig. Hafa ekki unnið viðureign síðan í annarri umferð og halda því vonandi áfram í dag!
Viðureign dagsins
Við höfum þrívegis teflt áður við Tékka á EM og okkur hefur ekki gengið vel. Ávallt tapað. Síðast mættum við þeim í fyrstu umferð EM í Póllandi 2013 og töpuðum þá mjög naumlega 1½:2½. Héðinn gerði þá jafntefli við David Navara á fyrsta borði og var þá lukkan með þeim síðarnefnda. Hannes Hlífar og Hjörvar gerðu þá einnig jafntefli en Guðmundur tapaði á síðasta borði.
Höfum bara einu sinni mætt þeim á Ólympíuskákmóti. Það var árið 2016 í Bakú. Við töpuðum þá 1-3. Hjörvar vann Laznicka á öðru borði en aðrar skákir töpuðust.
Viðureign dagsins hefst kl. 13. Best er að fylgjast með á Chess24 sem og á Facebook-síðunni íslenskum skákmönnum
4.11.2017 | 07:00
Æskan og ellin fer fram í dag
Skákmótið ÆSKAN OG ELLIN XIV., þar sem kynslóðirnar mætast, verður haldið í 14. sinn laugardaginn 4. nóvember í Skákhöllinni í Faxafeni.
TAFLFÉLAG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu með stuðningi TOPPFISKS ehf leiðandi fyrirtækis í ferskum og fyrstum sjávarafurðum - standa saman að mótshaldinu sem það hefur eflst mjög að öllu umfangi og vinsældum með árunum.
Fyrstu 9 árin var mótið haldið í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, þar sem Riddarinn hefur aðsetur sitt og eldri skákmenn hittast til tafls vikulega allan ársins hring, en nú síðustu 4 árin í samstarfi við TR- elsta og öflugasta taflfélag landsins. Þessi mót - þar sem kynslóðirnar mætast - hafa jafnan verið fjölsótt jafnt af yngri sem eldri skákmönnum og afar velheppnuð. Yfir 80 ára aldursmunur er hefur iðulega verið milli yngsta og elsta keppandans.
Þátttaka í mótinu er ókeypis og miðast við börn og ungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri og roskna skákmenn, 60 ára og eldri. Mótið hefst kl. 13 og verða tefldar 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.
Vegleg verðlaun og viðurkenningar. Auk aðalverðlauna verða veitt aldurflokkaverðlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga. Annars vegar fyrir þrjú efstu sæti í barna og unglinga-flokkum, 9 ára og yngri; 10-12 ára og 13-15 ára og hins vegar fyrir efstu menn í 3 öldunga-flokkum, 60-69 ára; 70-79 ára og 80 ára og eldri. Auk þess fær sú telpa sem bestum árangri nær og yngsti og elsti keppandi mótsins heiðursverðlaun.
Mótsnefnd skipa þeir Kjartan Maack, formaður TR, og Einar S. Einarsson, erkiriddari/formaður Riddarans.
Skráning til þátttöku fer fram á www.skak.is og www.taflfelag.is vikuna fyrir mót. Hámarksfjöldi keppenda er takmarkaður og því mikilvægt að skrá sig sem allra fyrst og/eða mæta tímanlega á mótsstað.
Spil og leikir | Breytt 31.10.2017 kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2017 | 00:17
EM Landsliða - Liðsstjórapistill 6. umferðar
Eftir góðan frídag þar sem batteríin voru hlaðin á nýjan leik var komið að viðureign við Makedóníu. Makedónar voru númer 33 í stigaröðinni í upphafi móts á móti 27. sæti hjá okkur. Krafan var því að sjálfsögðu sigur enda við með allavega 80 elóstigum meira á hverju einasta borði.
Fyrsta borð þeirra Makedóna, Pancevski var búinn að vera mjög heitur með 4 af 5 fram að þessu í mótinu og því ljóst að sigurinn yrði ekki auðsóttur þó að sigur væri krafan.
Króatar voru óvænt efstir fyrir umferðina með 9 stig (matchpunkta) en í humátt á eftir þeim komu Armenar, Rússar, Ungverjar og Pólverjar.
Króatar mættu Ungverjum og eins var athyglisverð viðureign hjá "vinaþjóðunum" Azerum og Armenum.
En kíkjum á viðureignina hjá okkar mönnum. Hefjum leik sem fyrr á fyrstu skákinni til að klárast.
3. borð Hannes hvítt gegn Nikolovski
Andstæðingur Hannesar tefldi Benoni og leist mér mjög vel á að sjá Bf4/e3 afbrigðið sem Hannes hefur beitt með góðum árangri. Andstæðingur Hannesar lék hinsvegar ekki ...a6 eins og yfirleitt er gert í þessu afbrigði og krítíski leikurinn þar er því Da4+ en Hannes tefldi aðra línu. Snemma tafls var Nikolovski tilneyddur til að fórna skiptamun en slíkar fórnir eru þó algengar í slíkum stöðum og í öllum sjö skákum þar sem stöðumyndin að neðan hefur komið upp hefur svartur fórnað skiptamun.
Svartur tefldi framhaldið nokkuð vel og það var alls ekki auðvelt að virkja hvítu stöðuna. Svartu rhafði fullar bætur og var líklega með aðeins betra lungann af miðtaflinu.
Hér er farið að verða ansi hvasst í kringum hvíta kónginn og fljótt á litið er þetta ákveðinn vendipunktur í skákinni. Hannes hefði getað teflt baráttuskák með því að leika He2 hér en þess í stað lék Hannes Hg2 og missti í kjölfarið alveg þráðinn og lenti í taktík. Tvö töp í röð hjá Hannesi núna eftir sterka byrjun og vonandi að hann nái sér á strik aftur en hann hefur verið að missa þráðinn núna í tveim síðustu skákum á svipuðum tíma.
Makedónar tóku því forystu hér 1-0.
2. borð Hjörvar svart gegn Nedev.
Eini stórmeistari Makedóna í þessari viðureign mætti Hjörvari á öðru borði. Einhverra hluta vegna er stórmeistarinn viðkunnalegi Alex Colovic einungis hér sem liðsstjóri kvennaliðs Makedóna. Gaman er að segja frá því að Hjörvar átti góðar minningar frá síðustu skák sinni við Nedev en hann tryggði sér stórmeistaratitilinn á sínum tíma með því að leggja Nedev.
Hjörvar var búinn að kortleggja Nedev nokkuð vel, bjóst við Ítalanum eða Skotanum og leið mér nokkuð vel þegar ég sá stöðuna eftir 10. leik á borðinu en hún var sú sama og ég hafði séð á "eldhúsborðinu" (reyndar hótelherbergisborðinu) fyrr um daginn.
Hvítur hafði alltaf aðeins þægilegri stöðu sem var auðveldara að tefla og var skákin í raun nokkuð vel tefld. Loks fór að draga til tíðinda eftir Rf5+ leik hvíts en skömmu eftir það endurtóku keppendur stöðuna þrisvar sinnum.
Hér fór svarti hrókurinn fram og til baka á h8 og e8 og hvíti biskupinn á milli c2 og b3. Hjörvar tók skiljanlega þessum þráleik þar sem taflið hlýtur að vera mun þægilegra á hvítan. Var Hjörvar í raun aðeins hissa að hvítur skildi ekki tefla stöðuna áfram.
Staðan hér því 1,5-0,5 fyrir Makedóníu og ljóst að ekkert mátti útaf bera núna!
1. borð Héðinn hvítt á Pancevski
Héðinn valdi 1.e4 gegn Pancevski þar sem hann teflir nánast alltaf 1...d6 eða Pirc vörn og auðveldara að stjórna valinu þar e.t.v. á meðan hann hefur bæði teflt kóngsindverja og hollending gegn 1.d4.
Byrjunin var róleg og skipt var upp á drottningum. Héðinn fékk aðeins meira rými og voru þeir sammála í stúderingum (post-mortem) að hvítur hefði staðið aðeins betur í byrjuninni en svartur var ekki langt frá því að jafna alveg taflið.
Mér fannst taflið byrja að snúast Héðni í vil hér:
Svartur getði líklega smávægileg mistök að skipta upp á a-peðunum í kjölfarið en eftir Hd4 hjá hvítum er ljóst að svartur vill alls ekki hafa hrókinn sinn passífan á b6 en hann hafði í raun ekkert val þar. Í kjölfarið tók Héðinn til við að sauma að Pancevski í stöðutýpu sem hentar honum fullkomlega.
Hér er Héðinn búinn að "hlaða vel í pósaþjöppuna" og gjörsamlega búinn að yfirspila andstæðing sinn. Hvítur er að taka allt rýmið og menn svarts standa klaufalega, sérstaklega á b-línunni. Peðið á e7 er svo komið á matseðilinn. Þessi vandamál auk tímapressu urðu fljótlega til þess að Pancevski réði ekki við stöðuna og tapaði manni og fljótt eftr það skákinni.
Sterkur sigur hjá Héðni sem jafnaði þarmeð viðureignina 1,5-1,5. Því var allt undir á fjórða borði!
4. borð Guðmundur svart gegn Lazov
Guðmundur ákvað að beita Caro-Kann og afbrigðið sem andstæðingur hans valdi, Rd2-b3 í advance variation kom ekki á óvart þar sem hann hefur teflt það nokkuð oft áður. Gummi var því vel undirbúinn og fékk trausta stöðu þar sem hann þekkti plönin.
Hvítur stendur líklega örlítið betur í miðtaflinu með sterkan riddara á d4 og ef hvítur gerir ekki neitt er mjög erfitt fyrir svartan að bæta stöðuna. Svartur er hinsvegar með mjög trausta stöðu og það er oft mikilvægara í liðakeppnum og það er oft þannig að tækifærin koma síðar í skákinni. Gummi sýndi því mikla skynsemi í byrjanavali hér og þolinmæði.
Snúningspunkturinn í skákinni var klárlega í stöðunni hér að ofan. Eftir mikla baráttu í jafnri stöðu átti hvítur val á milli þess að leika Hb8+ og De4+ og skipta upp á drottningum og fara í hróksendatafl. Líklega er það jafntefli ef hvítur teflir það vel en kannski ekki auðvelt að meta það í tímahraki. Hinn möguleikinn var Dg4 sem hvítur valdi. Þá átti Gummi ...Dc5+ sem étur peðið á e5 í næsta leik og allt í einu er svartur kominn með unnið tafl þó einhver úrvinnsla sé eftir. E.t.v. var hægt að fara fljótlegri leið í kringum tímamörkin en Gummi var þó fljótur að komast á rétta braut og smíðaði loks mátnet í kringum hvíta kónginn.
Hér sá ég að ...h5 var mjög freistandi enda hótar það einfaldlega ...h4+ og svo De1 mát. Mér leið svo mun betur þegar ég sá mikla grettu hjá andstæðingi Guðmundar en hann hafði líklega misst af þessu frahaldi. Eftirleikurinn varð auðveldur enda ræður hvíti kóngurinn ekki við svarta stórskotaliðið og liðstap óumflýjanlegt.
Gummi tryggði því hér góðan 2,5-1,5 sigur á lúmskri sveit sem erfitt er að vinna. Gamla sýnd veiði og allt það tuggan ;-)
Þessi sigur þýðir að við teflum aftur upp fyrir okkur í næstu umferð og að þessu sinni eru það Tékkar sem við komum til með að mæta. Við töpuðum fyrir Tékkunum á Ólympíumótinu í Baku en þar gátum við gert betur. Líklegt er að við fáum tvö rematch á morgun þegar Gummi tekur á móti Vojta Plat og Hjörvar á móti Laznicka. Þetta eru bara vangaveltur en Stocek tapaði í dag og því líklegur í skiptingu og eins vann Plat gegn Guðmundi í Baku þó að Gummi hafi haft betra tafl í þeirri skák. Hjörvar vann gegn Laznicka í þeirri viðureign og væri gaman að hafa svipað uppi á boðstólnum á morgun. Sjáum þó hvað setur hvernig þeir stilla upp. Líklegt þó að Héðinn fái svart á hinn feykisterka David Navara.
Ungverjar eru komnir aftur á toppinn eftir glæsilegan 3,5-0,5 stórsigur á Króötum. Rússar eru jafnir þeim að stigum en Armenar duttu aðeins niður í baráttunni með tapi gegn Azerum.
Azerar mæta Ungverjum á morgun og Króatar þurfa að eiga við Rússana. Líklegast verður að telja að sigurvegarar mótsins komi úr þessum hópi. Aldrei skal segja aldrei þó en lið með 8 stig þurfa klárlega að vinna rest til að eiga möguleika. Líklegastir í þeim hópi eru Aremanar, Úkraínumenn, Pólverjar og Ísrael.
Í lokin má nefna það að eyðimerkuganga okkar Íslendinga hélt áfram á knattspyrnusviðinu í kvöld þegar við lágum enn á ný gegn Frökkum. Okkut til varnar vorum við aðeins tveir og Moldóvskir liðsfélagar okkar voru lítið fyrir að a) gefa boltann b) stjórna honum eða c) spila vörn. Niðurbrotið var svo algjört með lánsmanninn Jon Ludvig Hammer (fórnarlamb "du er en kuk" svívirðinga gærdagsins) stýrandi liðinu og kallandi "forty five, forty five" í einu af fjölmörgum 4 á 1 upphlaupum hjá Frökkum. Þetta mikla dulmál þýðir að sjálfsögðu sending til hliðar í 45 gráður. Kannski er hann bara "kuk" eftir allt saman hann Jón Lúðvík ;-)
Fyrir áhugamenn um skemmtilegar og góðar skákir má ég til með að mæla með kaftein Fantastik....sjálfum Ljubomir Ftacnik sem örugglega gleður menn með Grunfeld hjarta í sigurskák sinni gegn Aryan Tari. Kannski ekki rétt "tölvulega" en ...Hb2 leikur var mjög flottur fannast mér engu að síður og hvernig hann slátraði Tari á svörtu reitunum. Hér er skákin á Chessbomb
Látum þetta gott heita að sinni. Bestu kveðjur frá Krít,
Ingvar Þór Jóhannesson
Liðsstjóri
p.s.
Hér er svo eins og venjulega snapchat story dagsins. Addið Ingvar77 til að fylgjast með því. Einhverjir bentu á að göngutúrinn hafi verið full langur en Melrose Place brandarainn góður. Ég tek glaður við ábendingum og óskum, bara bomba því á snappið ;-)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2017 | 17:56
Sigur gegn Makedóníu - Héðinn og Guðmundur unnu
Ísland vann Makedóníu 2½-1½ í sjöttu umferð EM landsliða en viðureigninni er nýlokið. Héðinn Steingrímsson og Guðmundur Kjartansson unnu góða sigra á 1. og 4. borði. Hjörvar Steinn Grétarsson gerði jafntefli en Hannes Hlífar Stefánsson tapaði.
Viðureign dagsins
Góður 2½-1½ sigur gegn þéttri sveit Makedóníu. Íslenska liðið hefur 50% vinningshlutfall þ.e. 6 stig af 12 mögulegum.
Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 13. Þegar þetta er ritað liggur ekki fyrir hverjum við mætum.
Ingvar liðsstjóri mun gera umferðinni betri skil í kvöld.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2017 | 09:00
EM landsliða: Makedónía í dag
Eftir frídaginn í gær hefst EM landsliða aftur í dag. Sjötta umferð fer fram og teflum við Makedóníu. Við höfum verið iðnir þetta mót að tefla við þjóðir sem eru ekki fastagestir á mótinu. Makedónía, Albanía og Portúgal eru allt þjóðir sem ekki tefldu á EM 2015 í Reykjavík. Makedónía hefur meðalstigin 2461 skákstig og móti 2527 skákstigum okkar manna. Þeir eru 31 í styrkleikaröðinni en við erum nr. 27.
Aðeins einn stórmeistari er í liðið þeirra og teflir hann á öðru borði. Fyrsta borðs maðurinn, alþjóðlegi meistarinn Filip Pancevski (2489) hefur farið mikinn og hefur 4 vinninga í 5 skákum og hefur góðan möguleika á stórmeistaraáfanga standi hann sig vel í lokaumferðunum fjórum.
Viðureign dagsins
Við höfum þrívegis mætt Makedóníu á EM. 2005, 2009 og 2011. Unnum þá með minnsta mun 2005 og 2011 2½-1½, en töpuðum með sama mun árið 2009.
Hannes Hlífar Stefánsson og Arnar Gunnarsson unnu sínar skákir 2005 en Bragi Þorfinnsson gerði jafntefli. Árið 2011 unnu Henrik og Hjörvar Steinn en Björn Þorfinnsson gerði jafntefli Árið 2009 töpuðum við hins vegar. Björn Þorfinnsson vann sína skák en Jón Viktor Gunnarsson gerði jafntefli. Við höfum aldrei mætt þeim á Ólympíuskámóti.
Í gær bauð Skáksamband Íslands liðinu út að borða. Ágætt að komast útaf hótelinu eitt kvöld. Strákarnir fundu góðan ítalska veitingastað hér við ströndina. Ágætt að brjóta þetta pínu upp.
Í gær hófst ECU-þingið. Fundur var í viðburðarnefnd (ECU commission) en þeirri nefnd veiti ég forystu. Ekki tókst að klára dagskránna þrátt fyrir 4,5 tíma fundarsetu. Aðalmálið er að fara yfir lög ECU og breyta og þar hafa menn mjög miklar skoðanir, alls konar ólíkar áherslur og menn alls ekki sammála. Fundurinn verður kláraður í dag og vonandi ná menn lendingu. Sjálfur aðalfundurinn (General Assembly) fer fram á morgun.
Gunnar Björnsson
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.7.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 85
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 70
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar