Fćrsluflokkur: Spil og leikir
11.5.2015 | 09:56
Pistill ţjálfara um Norđurlandamót stúlkna í skák
Fimmtudaginn 30. apríl 2015 héldu sex galvaskar stúlkur í víking ásamt fríđu föruneyti til Danaveldis. Markmiđiđ var skýrt: ađ rćna og rupla eins mörgum stigum og hćgt vćri inn í íslenskt stigahagkerfi. Auk ţess átti auđvitađ líka ađ njóta dvalarinnar međ stöllum sínum.
Ţjálfarinn gerđi ţeim strax ljóst ađ hann myndi reyna ađ hjálpa ţeim eftir fremsta megni. Ţćr tóku hann á orđinu og byrjuđu sumar hverjar strax ađ skođa byrjanir á flugvellinum eđa spyrja út í eitt og annađ tengt skáklistinni. Ferđin var löng en gekk vel fyrir sig. Eftir ađ hafa variđ ţremur tímum í flugvél og öđrum ţremur í lest, komst hópurinn á áningarstađ, sćll og sáttur. Okkar biđu ákaflega fín salarkynni á vönduđu hóteli og heitur matur strax viđ komuna. Greinilegt var ađ Danirnir ćtluđu ađ hugsa vel um okkur ađ öllu leyti og ţeim tókst ţađ međ ágćtum. Ađstćđur voru alveg til fyrirmyndar og flestir voru á ţeirri skođun ađ sjaldan hefđi tekist eins vel til viđ skipulagiđ og í ţessari ferđ. Gott andrúmsloft var á stađnum og mótshaldarar fengu mikiđ lof úr öllum áttum.
Eftir matinn lá leiđ ţjálfarans á liđstjórafund og síđan var parađ í fyrstu umferđ. Stúlkurnar hófust ţá handa viđ undirbúninginn og tóku númer til ađ fá ađstođ frá ţjálfaranum. Ţćr biđu ţolinmóđar eftir ađ röđin kćmi ađ ţeim og nýttu sér ţađ oft ađ fylgjast međ skákrannsóknum annarra. Ferđin einkenndist af dugnađi og elju stúlknanna sem vildu fátt annađ gera en ađ fara yfir skákir sínar og undirbúa sig fyrir nćstu umferđ. Sú vinna skilađi sér greinilega viđ skákborđiđ ţví ađ gćđin í taflmennskunni hjá íslenska liđinu voru ákaflega mikil í raun mun meiri en skákstigin gáfu tilefni til.
C-flokkur
Í c-flokki áttum viđ ríkjandi Norđurlandameistara, Nansý Davíđsdóttur. Hún var nćststigahćst í flokknum á eftir hinni sćnsku Önnu Cramling. Ţó ađ á ţeim hafi munađ 249 stigum, varđ snemma ljóst ađ Nansý tefldi einfaldlega betur. Ţjálfarann fór fljótt ađ gruna ađ sú sćnska ţjáđist af vćgum einkennum af svokölluđu k-40-heilkenni ţar sem stúlkan hafđi hćkkađ allverulega á tveimur mánuđum án ţess ţó ađ standa fyllilega undir nýju stigunum. Fyrirfram var ţví líklegt ađ nokkuđ jöfn keppni yrđi milli ţessara tveggja stúlkna um titilinn. Međ Nansý í för var ung og efnileg stúlka, Freyja Birkisdóttir. Hún var stigalćgsti keppandinn en átti eftir ađ sýna og sanna hvađ í henni býr.
Í fyrstu umferđ keppti Nansý viđ Klöru Maki-Uuro frá Finnlandi. Nansý fylgdi fullkomlega ráđleggingum ţjálfarans í byrjuninni og fékk strax ţćgilega stöđu. Sú finnska grátbađ aftur og aftur um jafntefli en Nansý harđneitađi jafnóđum og bođin komu. Eftir enn eina höfnunina brast Klara í grát og hljóp út. Ţegar ţćr settust aftur ađ skákborđinu afgreiddi Nansý skákina af miklu öryggi og fyrsti vinningurinn var í höfn. Freyja tefldi viđ grjótharđa sćnska stúlku sem heitir Margo Polovnikova. Freyja fann rökréttar hugmyndir en styrkleikamunurinn kom fljótlega í ljós. Margo vann af henni mann og síđan skákina.
Í annarri umferđ stýrđi Nansý svörtu mönnunum gegn Maríu Nass frá Noregi. Einhvern veginn atvikađist ţađ ađ Taimanov-byrjun Nansýjar breyttist í franska vörn međ einu tempói yfir en hún var samt ekki par hrifin af ţví. Hún ákvađ ađ ţiggja jafnteflisbođ í 20. leik af ţví ađ henni leiđ ekki nógu vel í stöđunni. Freyja tefldi vel á móti hinni dönsku Catarínu Wul og fékk tvisvar gott tćkifćri til ađ gera út um skákina. Hún tefldi ađeins of hratt og endađi manni undir. Skömmu síđar lauk skákinni međ tapi en Freyja var stađráđin í ađ lćra af mistökunum og nýta tímann betur.
Í ţriđju umferđ stýrđi Nansý hvítu mönnunum á móti dönsku stúlkunni Nienke van den Brink. Nansý tefldi skoska leikinn og fékk ađeins rýmra tafl. Í tiltölulega jafnri stöđu gerđi Nienke ţau klaufalegu mistök ađ leika drottningunni beint í dauđann. Hún brast viđ međ táraflóđi og dómarinn leyfđi henni ađ jafna sig áđur en hann úrskurđađi ađ leikurinn stćđi gildur. Eftirleikurinn var auđveldur og Nansý var nú komin međ 2,5 af 3. Freyja fékk upp sérstakt afbrigđi í Sikileyjarvörn, sem hún hafđi ekki séđ áđur, gegn hinni sćnsku Trino Paltzer. Hún ákvađ ađ nota sömu uppstillingu og hún hafđi lćrt af ţjálfaranum gegn öđru afbrigđi í sömu byrjun. Sú uppstilling svínvirkađi og fljótlega var Freyja orđin manni yfir. Síđan varđ hún fullgráđug og leyfđi Trino ađ fá sóknarbćtur fyrir liđ sem Freyja var of upptekin viđ ađ hrifsa. Ţrátefli varđ niđurstađan og fyrsti punkturinn kominn í höfn. Hér urđu ţáttaskil hjá Freyju ţar sem aukiđ sjálfstraust skilađ sér í góđri taflmennsku í framhaldinu.
Í fjórđu umferđ mćttust Nansý og Thyra Kvendseth en ţćr voru efstar og jafnar í fyrsta sćti međ 2,5 vinning. Nansý vann fljótlega peđ og stóđ til vinnings. Síđan platađi hún af henni riddara og vann örugglega. Freyja tapađi snemma hróki á móti dönsku stúlkunni Pernille Hojer og varđ mát í 38. leik.
Spennan var mikil fyrir síđustu umferđ. Nansý var efst og henni dugđi jafntefli gegn Margo sem hafđi fariđ illa međ Freyju viđ skákborđiđ. Margo ţurfti ađ vinna til ađ tryggja sér titilinn og hafnađi ţví jafnteflisbođi Nansýjar. En fljótlega eftir ţađ hrundi stađan hennar og Nansý ákvađ ađ hefna almennilega fyrir ófarir Freyju og vann í 48 leikjum. Freyja tapađi tveimur peđum í byrjun gegn Klöru Maki-Uuro en lét ţađ ekki slá sig út af laginu. Full sjálfstrausts blés hún til sóknar og fórnađi manni. Klöru tókst ekki ađ finna neina vörn gegn virkum mönnum Freyju og varđ mát í 41. leik.
Árangurinn í c-flokki var sem sagt framar vonum. Nansý vann flokkinn nokkuđ örugglega međ 4,5 vinningum af 5 og gaf í raun engin fćri á sér í neinni skák. Freyja er ađeins 9 ára og var ţví ađ tefla viđ mun eldri stelpur mest allan tímann. Hún tefldi vel og var međ unniđ í ţremur skákum. Međ ađeins meiri reynslu og betri tímanotkun hefđi hún auđveldlega getađ landađ ţessum ţremur vinningum. Hins vegar er 1,5 vinningur stigalćgsta keppandans í raun frábćrt afrek. Ţađ verđur spennandi ađ fylgjast međ henni í framtíđinni ţví hún á mörg ár eftir í c-flokki og ţjálfarinn yrđi ekki hissa ţó hún tćki titilinn sjálf eitthvert áriđ.
B-flokkur
B-flokkur skiptist í raun í tvennt stigalega séđ. Sex efstu stelpurnar voru á stigabilinu 1500-1800 en ţćr fjórar neđstu í kringum 1000-1200. Okkar stúlkur, Hildur Berglind Jóhannsdóttir og Svava Ţorsteinsdóttir, voru báđar međ ţeim stigalćgri og ţví kannski ekki fyrir fram viđ mörgum vinningum ađ búast ţar. Hildur hefur ekki teflt mikiđ síđustu árin og Svava er tiltölulega nýbyrjuđ ađ keppa á alvörumótum. Hins vegar sýndi ţađ sig í skákunum ađ hćfileikarnir eru vissulega fyrir hendi hjá ţeim báđum og árangurinn átti eftir ađ koma skemmtilega á óvart.
Í fyrstu umferđ tefldi Hildur viđ sigurvegara flokksins, Línu Cao-Zhang frá Svíaríki. Lína platađi af henni mann í byrjun og ţá varđ ekki aftur snúiđ. Svava ţreytti frumraun sína á mótinu gegn norsku stúlkunni Söru Nass. Svava sýndi ađ hún er međ mjög gott minni ţví ađ hún tefldi byrjunina alveg rétt eftir ađ hafa fengiđ ađ sjá afbrigđin bara einu sinni eđa tvisvar. Ţađ er í sjálfu sér stórmerkilegt í ljósi ţess ađ hún hefur varla fengiđ neina markvissa ţjálfun áđur. Svo fór ţó ađ sú norska náđi góđri sókn og Svava náđi ekki ađ verjast. Tvö töp í fyrstu umferđ en eftir skákirnar sást á ţeim ađ sjálfstraustiđ var ađ aukast.
Í annarri umferđ fengu stúlkurnar báđar danska andstćđinga. Hildur tefldi viđ stigahćstu stúlkuna í flokknum, Ellen Nilssen. Hildur tapađi fljótt liđsafla en stóđ samt merkilega mikiđ í stúlkunni ţrátt fyrir gjörtapađa stöđu. Svava átti mjög góđa skák gegn Kristine Sten. Ţegar Kristine var orđin óverjandi mát ákvađ hún ađ fara ađ sprikla og fórna mönnum. Svo fór ađ Svava hafđi um tvo reiti ađ velja fyrir kónginn og valdi ţví miđur ţann ranga. Kristine náđi ţví ađ máta einum leik á undan Svövu. Vonbrigđin voru mikil en Svava var farin ađ sjá ađ hún gćti alveg unniđ ţessar stelpur. Ţjálfarinn benti henni á ađ ef hún hefđi notađ tímann ađeins betur hefđi hún unniđ ţessa skák. Í nćstu ţremur skákum sýndi Svava ţađ ţarf bara nefna hlutina einu sinni viđ hana. Eftir ţetta varđ tímanotkunin alveg eins og hjá atvinnuskákmanni, aldrei í tímahraki og tíminn notađur jafnt og ţétt yfir alla skákina.
Ţriđja umferđin var umferđin ţar sem allar íslensku stúlkurnar fóru á kostum. Hildur lagđi hina sćnsku Brandy Paltzer eftir laglega fléttu. Ţar sást vel ađ Hildur teflir mjög vel ef hún kemst lifandi úr byrjuninni. Svava gerđi allt rétt á móti Míu Gammeltoft frá Danmörku og var orđin tveimur peđum yfir í 27. leik. Svava gćtti ţó ekki alveg ađ sér og Mía fékk ágćtissóknarfćri. Nú voru góđ ráđ dýr. Viđ fyrstu sýn virtist stađan varnarlaus og ţjálfarinn ţurfti ađ hugsa sig vel um áđur en hann sá eina varnarleikinn, fórn sem var alls ekki auđvelt ađ sjá. Ţađ kom honum svo skemmtilega á óvart nokkrum mínútum síđar ţegar Svava skellti leiknum beint framan í andlitiđ á ţeirri dönsku og glottiđ fauk skyndilega í burtu. Eftir stóđ nokkuđ jöfn stađa međ 3 peđ fyrir biskup. Eftir uppskipti tefldi Svava einfaldlega betur en Mía og vann sćtan og verđskuldađan sigur.
Í fjórđu umferđ lék Hildur af sér skiptamun gegn norskri stúlku, Ingrid Greibrokk. Sú norska átti ekki í vandrćđum međ restina og tap hjá Hildi varđ raunin. Svava lék af sér í byrjun gegn fyrrnefndri Brandy frá Svíţjóđ. Svava náđi ţó ađ rétta úr kútnum međ peđsfórn og smám saman náđi hún ađ bćta stöđu sína. Svava fann fína fórn og nú var ţađ Brandy sem ţurfti virkilega ađ passa sig. Sú sćnska vandađi sig vel og náđi rétt svo jafntefli. Frábćr árangur hjá Svövu á móti stúlku međ 1552 stig. Fyrir ţessa skák fékk Svava verđlaun fyrir bestu skákina í b-flokki!
Í lokaumferđinni fékk Hildur Míu Gammeltoft. Sú danska vann skiptamun en ţurfti ađ gefa hann aftur út af sóknarmöguleikum Hildar. Eftir stóđ hróksendatafl ţar sem Hildur var peđi yfir. Hildur tefldi ţađ mjög nákvćmlega og vann ađ lokum. Svava keppti viđ Igridi Greibrokk en missti snemma ţráđinn og gafst upp skömmu eftir ađ hafa misst drottninguna.
Hildur endađi 2 vinninga og árangur upp á heil 1483 stig, yfir 300 stigum meira en íslensku stigin hennar segja til um. Svava fékk 1,5 og árangur upp á 1262 stig. Frammistađa ţeirra beggja verđur ađ teljast mjög góđ og vonandi stutt í ađ ţćr komist inn á alţjóđlegan stigalista. Ţetta mót var frábćrt skref í ţá átt fyrir ţćr báđar.
A-flokkur
Spennan var mikil í a-flokki. Flokkurinn var nokkuđ jafn fyrir utan stigahćsta keppanda mótsins, Jessicu Bengtsson frá Svíţjóđ. Okkar stúlkur voru stigalćgstar en voru samt báđar stađráđnar í ađ blanda sér í toppbaráttuna. Ţađ varđ og raunin ţrátt fyrir ađ áćtlađir vinningar samkvćmt stigum vćru ađeins 2 hjá Hrund Hauksdóttur og 1,25 hjá Veroniku Steinunni Magnúsdóttur.
Í fyrstu umferđ tefldi Hrund viđ norsku stúlkuna Hönnu Kyrkjebo. Hrund tefldi betur alla skákina og Hanna kiknađi undan pressunni. Veronika atti kappi viđ Ellen Kakulidis frá Danmörku. Veronika tefldi vel til ađ byrja međ en fékk tapađ eftir ađ hafa látiđ freistast til ađ fórna tveimur riddurum fyrir hrók og tvö peđ. Hún sýndi ţó mikiđ baráttuţrek og náđi ađ tryggja sér jafntefli í tímahrakinu.
Í annarri umferđ fékk Hrund ţađ erfiđa verkefni ađ stýra svörtu mönnunum á móti Jessicu Bengtsson. Sú sćnska fékk ađeins ţćgilegri stöđu úr byrjuninni en Hrund tefldi frekar vel alla skákina. Ţćr hrókeruđu hvor í sína áttina og úr varđ mjög spennandi stađa. Í lokin voru ţćr báđar viđ ţađ ađ falla og Jessica ţráskákađi Hrund til ađ tryggja sér jafntefli. Samkvćmt tölvunni var hvítur međ unniđ en ţađ er mjög erfitt ađ gera út af viđ skákina međ svona lítinn tíma ţegar andstćđingurinn er líka í sókn. Sem sagt gott jafntefli fyrir Hrund međ svörtu mönnunum á móti stigahćsta keppanda mótsins. Veronika tefldi vel mest alla skákina gegn danskri stúlku, Freju Vangsgaard, og var međ betra alla skákina. Veronika lenti ţví miđur í tímahraki og lék af sér manni í betra endatafli og tapađi. Ţađ voru auđvitađ mjög svekkjandi úrslit í skák sem hún átti aldrei skiliđ ađ tapa.
Í ţriđju umferđ fékk Hrund svo hina sćnsku stúlkuna í flokknum, Louise Segerfelt. Ţćr stöllur tefldu báđar vel ţangađ til komiđ var í endatafliđ. Ţar sýndi Hrund styrk sinn og vann frekar auđveldlega ţrátt fyrir ađ hafa veriđ frekar međ ađeins verra ef eitthvađ var. Ţetta reyndist virkilega mikilvćgur sigur í toppbaráttunni. Veronika tefldi traust gegn vinkonu sinni frá Noregi, Kimiya Sajjadi. Hún snéri á hana í miđtaflinu og varđ peđi yfir í endataflinu. Hún afgreiddi ţađ af öryggi og sigurinn aldrei í hćttu.
Í fjórđu umferđ tefldu íslensku stúlkurnar saman og börđust af krafti. Niđurstađan varđ endatafl međ mislitum biskupum og jafntefli samiđ.
Fyrir síđustu umferđ voru Hrund og Jessica efstar međ 3 af 4. Hrund tefldi viđ Ellen og Jessica fékk Veroniku. Hrund ákvađ ađ tefla mjög sjaldgćft afbrigđi gegn franskri vörn Ellenar. Ţađ virtist slá ţá dönsku ađeins út af laginu og hún vissi ekki alveg hvernig hún átti ađ tefla á móti ţessari óvenjulegu uppstillingu. Hrund tefldi ţví sem nćst óađfinnanlega og uppskar sigur fyrir vikiđ. Veronika fékk fljótt ađeins verra gegn Jessicu og sú sćnska náđi ađ landa sigrinum međ öruggri taflmennsku.
Hrund og Jessica voru ţví efstar og jafnar međ 4 af 5. Eftir stigaútreikning var Jessica úrskurđuđ sigurvegari og Norđurlandameistari. Hrund var hins vegar međ frammistöđu upp á 2045 stig sem var sú hćsta í mótinu. Til samanburđar má geta ţess ađ frammistađa Jessicu var upp á 1989 stig. Ţetta var ţví alveg hreint frábćrt mót fyrir Hrund sem hćkkar um heil 39,4 stig! Mótiđ var líka mjög gott fyrir Veroniku sem endađi í 5. sćti. Hún hćkkar um 29,2 stig og hefđi auđveldlega getađ hćkkađ meira miđađ viđ stöđurnar í skákunum.
Samantekt
Ţađ er nokkuđ ljóst ađ Íslendingar fóru heim sem sigurvegarar mótsins. Einn Norđurlandameistaratitill og silfurverđlaun í höfn. Ţrátt fyrir ađ viđ hefđum veriđ stigalćgsta liđiđ sýndum viđ styrk okkar og ţćr ţrjár, sem hafa alţjóđleg stig, hćkkuđu samtals um 90,6 stig. Til samanburđar má geta ţess ađ allar hinar ţjóđirnar lćkkuđu á stigum, Finnar um -1,6 stig, Svíar -20 stig, Norđmenn -27,6 stig og Danir heil -108 stig. Auk ţess áttu stigalausu stúlkurnar okkar allar gott mót og eru nú skrefinu nćr ađ nćla sér í sín fyrstu alţjólegu stig.
Stúlkurnar eiga allar mikiđ hrós skiliđ fyrir dugnađ á međan mótinu stóđ. Ţađ var alveg ljóst hjá ţeim öllum ađ skákin hafđi forgang yfir allt annađ. Ţćr gáfu sér ekki mikinn tíma til ađ versla eđa skođa sig um. Ţćr nýttu tímann vel í ađ fara yfir skákir sínar og undirbúa sig fyrir nćstu umferđ eins og kostur gat. Liđsandinn í hópnum var ákaflega fínn allan tímann og ţćr biđu ţolinmóđar í röđ eftir ađ fá hjálp frá ţjálfara. Ţetta mót var gott dćmi um ţađ hversu vel ţađ skilar sér ađ vera iđinn viđ kolann í skák. Ef mađur leggur á sig erfiđiđ, uppsker mađur góđan árangur fyrr eđa síđar. Í ţetta skipti kom árangurinn strax í ljós og stúlkurnar héldu heim á leiđ hćstánćgđar međ ránsfeng upp á 90,6 stig.
Danska skáksambandiđ sá til ţess ađ allur ađbúnađur og skipulag var eins og best var á kosiđ. Međ ţví vildi sambandiđ reyna ađ lyfta mótinu á hćrri stall en áđur. Ţađ er Dönunum mikiđ kappsmál ađ gera stúlknaskák hćrra undir höfđi en veriđ hefur og ţeim er mjög umhugađ ađ reyna ađ fá fleiri stúlkur ađ skákborđinu.
Ađ lokum ber ađ ţakka foreldrunum fjórum, Guđlaugu, Davíđ, Ţorsteini og Margréti, kćrlega fyrir ađ hugsa vel um ungviđiđ sitt og vera hópnum til halds og trausts. Án ţeirra hefđi ţjálfarinn aldrei getađ einbeitt sér jafn mikiđ ađ kennslu og raun bar vitni.
Ţökk fyrir frábćra ferđ.
Einar Hjalti Jensson.
- Myndaalbúm (EHJ og heimasíđa mótsins)
- Heimasíđa mótsins
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2015 | 10:14
Reykjavíkurskákmótiđ í 50 ár fékk styrk frá Miđstöđ íslenskra bókmennta
Bókin Reykjavíkurskákmótiđ í 50 ár eftir Helga Ólafsson fékk styrk frá Miđstöđ íslenskra bókmennta fyrir skemmstu. Styrkurinn nam 400.000 kr.
Nánar má lesa um styrkveiktingar Miđstöđ íslenskra bókmennta hér.
Hćgt er ađ kaupa bókina međ ţví ađ skrá sig fyrir henni á Skák.is (guli kassinn efst).
Magnús Carlsen sigrađi á minningarmótinu um Vigar Gashmov í Aserbaídsjan sem lauk um síđustu helgi. Hann fékk 7 vinninga af níu mögulegum og er ţađ árangur sem reiknast uppá tćplega 3000 elo-stig. Magnús er nú međ 2876 elo-stig. Yfirburđir hans ţessi misserin eru miklir og eins og sakir standa er vandfundinn sá skákmađur sem getur ógnađ veldi hans. En mótinu í Aserbaídsjan var ekki fyrr lokiđ en athyglin beindist vestur um haf. Í St. Louis í Mississippi-ríki settist hinn 52 ára gamli Garrí Kasparov niđur viđ ţađ sem hann gerir best ađ tefla og háđi 10 skáka einvígi viđ gamlan kunningja sem hann hefur margoft tuskađ til áđur, enska stórmeistarann Nigel Short. Tíu ár eru liđin frá ţví ađ Kasparov hćtti taflmennsku og sneri sér ađ pólitík. Kasparov hafđi ţá unniđ til fjögurra ólympíugullpeninga fyrir Rússland á árunum 1992-2002 og átti kannski von á vinsamlegri viđtökum en ţeim sem hann hefur mátt lifa viđ: morđhótunum, barsmíđum og fangelsunum. Svo fór hann ađ hann hraktist úr heimalandi sínu og býr nú í New York ásamt fjölskyldu sinni. Ţeir Short tefldu tvćr atskákir, 25 10 og átta hrađskákir, 5 3. Kasparov vann 8˝ : 1˝ . Í einu tapskákinni féll hann á tíma og var ţá međ betri stöđu. Einvígiđ tók tvo daga, eftir fyrri daginn var stađan 3 ˝ : 1 ˝ en seinni daginn vann Kasparov allar skákirnar. Persónulega fannst mér Garrí full hógvćr í yfirlýsingum eftir einvígiđ ţar sem hann taldi engar líkur á ađ hann myndi gera atlögu ađ heimsmeistaratitlinum. Ţađ blasir viđ ađ Magnús myndi ekki eiga auđvelt verk fyrir höndum ef til einvígis ţeirra kćmi. Taflmennska Kasparov logađi af krafti. Ţeir sem skođa skákir hans ćttu alltaf ađ veita ţví athygli hversu sterk áhersla hans á frumkvćđiđ er. Hann er tilbúinn ađ kaupa ţađ dýru verđi sbr. eftirfarandi hrađskák:
St. Louis 2015; 8. skák
Nigel Short Garrí Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. d4
Short sem löngum hefur ţótt góđur kóngspeđsmađur átti ekkert svar viđ sikileyjarvörn Kaspaovs í ţessu einvígi. Hann leitar ţví á náđir drottningarpeđs-byrjunar ekkert dugar.
1. ... Rf6 2. Rf3 g6 3. Bg5 Bg7 4. Rbd2 h6 5. Bh4 d6 6. c3 g5 7. Bg3 Rh5 8. e3 Rd7 9. Bd3 e6 10. O-O De7 11. a4 f5 12. Re1 Rdf6 13. f4 Rxg3 14. hxg3 O-O 15. e4 c5!?
Rökrétt. Svartur rćđst til atlögu viđ miđborđiđ en leikurinn ber einnig međ sér lúmska gildru.
16. dxc5
Short hefđi sennilega átt ađ leika 16. exf5, 16. Rc2 er lakara vegna 16. ... c4! Nú hrifsar Kasparov tíl sín frumkvćđiđ.
16. ... d5! 17. exf5 Dxc5+ 18. Kh1 exf5 19. Rb3 De3 20. Df3
Valdar g3-peđiđ og býđur drottningar-uppskipti.
Finnur h5-reitinn, eftir ađ riddarinn kemst til g4 verđur erfitt ađ verja kóngsstöđuna.
21. Rc2 Rg4 22. Kg1 Dh5 23. Hfe1 Bd7!
Virkjar báđa hrókana hótunin er 24. ... Hae8.
24. Dxd5+ Kh8 25. Dxd7 Dh2+ 26. Kf1 Had8 27. Dxb7 Dxg3 28. He2 Hxd3 29. Rc5 Dxf4+ 30. Ke1 Dg3+
Ţađ er erfitt ađ finna leik sem ekki vinnur en hér kemur ţó einn, 30. ... Hxc3?? 31. Dxg7+! Kxg7 32. Re6+ ásamt 33. Rxf4 og hvítur stendur til vinnings.
31. Kf1 Dh4 32. g3 Hxg3 33. Re6 Hg8 34. Rxg7 Rh2+ 35. Ke1 Rf3+ 36. Kf2 Hh3 37. Ke3 Df4 38. Kd3 Re5 mát!
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 2. maí 2015.
Spil og leikir | Breytt 4.5.2015 kl. 10:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2015 | 19:25
Björn teflir í landsliđsflokki Íslandsmótsins í skák
Alţjóđlegi meistarinn Björn Ţorfinnsson (2407) tekur sćti í landsliđsflokki Íslandsmótsins í skák sem fram fer 14.-24. maí nk. Hann tekur sćti Ţrastar Ţórhallssonar sem ţurfti draga sig út úr mótinu af persónulegum ástćđum.
Keppendalistinn:
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (2590)
- GM Jóhann Hjartarson (2566)
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2561)
- GM Héđinn Steingrímsson (2532)
- GM Henrik Danielsen (2520)
- GM Jón L. Árnason (2499)
- GM Stefán Kristjánsson (2485)
- IM Guđmundur Kjartansson (2474)
- IM Bragi Ţorfinnsson (2416)
- IM Björn Ţorfinnsson (2407)
- FM Sigurđur Dađi Sigfússon (2319)
- WGM Lenka Ptácníková (2284)
9.5.2015 | 12:00
Hannes efstur fyrir lokaumferđ Wow air vormótsins
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson en einn efstur fyrir lokaumferđina í Wow air vormóti Taflfélags Reykavíkur. Mikiđ var um frestanir í sjöttu umferđinni enda eru margir keppenda ađ ţreyta próf um ţessar mundir.
Hannes sem sigrađi Ingvar Ţór Jóhannesson örugglega í frestađri skák á miđvikudagskvöldiđ er međ fimm vinninga eftir sex skákir, hálfum vinning á undan Davíđ Kjartanssyni sem gerđi jafntefli viđ Sigurđ Dađa Sigfússon í 100 leikja marathon og tímahraksskák. Sigurđur varđist ţar afar fimlega í flókinni og erfiđri stöđu og í tímahraki í ofanálag.
Sigurđur og Einar Hjalti Jensson sem sigrađi alţjóđameistarann Braga Ţorfinnsson í spennandi skák eru svo jafnir í ţriđja til fjórđa sćti međ fjóra vinninga.
Í B flokki eru Halldór Pálsson sem sigrađi Stefán Bergsson örugglega og Sverrir Örn Björnsson sem gerđi jafntefli viđ landsliđskonuna Hallgerđi Helgu Ţorsteinsdóttur efstir, en ţeir hafa báđir fjóra og hálfan vinning eftir sex skákir. Hinn ungi Vignir Vatnar Stefánsson er ţriđji međ fjóra vinninga en hann sigrađi Jóhann Óla Eiđsson sannfćrandi.
Í lokaumferđinni í A flokki sem fer fram á mánudagskvöld mćtast međal annarra Einar Hjalti og Hannes, Ingvar Ţór og Kjartan og Sigurđur Dađi mćtir Degi Ragnarssyni.
Í B flokki mćtir Sverrir Örn Stefáni Bergssyni, međan liđsfélagarnir úr TR og sigurvegararnir úr yngri og eldri flokk Landsmótsins í skólaskák ţeir Vignir Vatnar og Björn Hólm Birkisson leiđa saman hesta sína.
Úrslit stađa og pörun í báđum flokkum má finna hér.
Myndskreytta frásögn má finna á heimasíđu TR.
Allir velkomnir í feniđ á spennandi lokaumferđ í Wow air mótinu og ţađ verđur heitt á könnunni!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2015 | 09:44
Nýtt Fréttabréf SÍ komiđ út
Nýtt Fréttabréf SÍ kom út í gćr. Međal efnis er:
- Ríkisstjórn Íslands styrkir EM landsliđa um 25 milljónir króna
- Nansý Norđurlandameistari stúlkna
- Björn Hólm Íslandsmeistari í skólaskák í eldri flokki
- Vignir Vatnar Íslandsmeistari í skólaskák í yngri flokki
- Rimaskóli Íslandsmeistari grunnskólasveita
- Hörđuvallaskóli Íslandsmeistari barnaskólasveita
- Styttist í Íslandsmótiđ!
- Ađalfundur SÍ fer fram 30. maí
- Henrik sigrađi á móti í Kaupmannahöfn
- Jón Viktor skákmeistari Vals
- EM landsliđa 2015 - niđurtalning
- Mót á döfinni
Fréttabréfiđ má nálgast hér.
Hćgt er ađ skrá sig fyrir Fréttabréfinu sem kemur ađ jafnađi út tvisvar á mánuđi yfir vetrarmánuđina ofarlega á vinstri hluta Skák.is.
Eldri fréttabréf má nálgast hér.
8.5.2015 | 09:32
Hlynur Snćr ćfingameistari Hugins
Hlynur Snćr Viđarsson tryggđi sér ćfingameistaratitil Hugins á norđursvćđi á skákćfingu sem fram fór á Húsavík sl. mánudag. Hlynur krćkti í tvo vinninga á lokaskákćfingunni sem ţá fór fram, en Herman Ađalsteinsson, hans helsti keppninautur í vetur fékk fjóra vinninga, en ţađ dugđi ekki til. Smári Sigurđsson varđ efstur á ćfingu gćrkvöldins međ fimm vinninga af fimm mögulegum.

Hlynur hafđi ţrjá og hálfan vinning í forskot á Hermann fyrir lokaćfinguna og endađi ţví veturinn međ 82 vinninga eđa einum og hálfum vinningi meira en Hermann.
Ţetta er í fyrsta sinn sem Hlynur vinnur ţennan tiltil, en Pétur Gíslason og Smári Sigurđsson hafa unniđ hann einu sinni og Hermann Ađalsteinsson hefur unniđ hann ţrisvar sinnum.
Lokastađan eftir veturinn
Hlynur Snćr Viđarsson 82 Vinningar
Hermann Ađalsteinsson 80,5
Rúnar Ísleifsson 64
Sigurbjörn Ásmundsson 58,5
Smári Sigurđsson 37,5
Ármann Olgeirsson 23,5
Ćvar Ákason 21,5
Tómas Veigar Sigurđarson 18
Heimir Bessason 17,5
Jón Ađalst. Hermannsson 15
Sighvatur Karlsson 12,5
Jakub Piotr Statkewicz 7,5
Sigurđur Daníelsson 5,5
Sam Rees 4,5
Eyţór Kári Ingólfsson 3
Ásgeir Ingi Unnsteinsson 3
Guđmundur Hólmgeirsson 2,5
Heiđar Kristjánsson 2
Ari Ingólfsson 2
Hallur Birkir Reynisson 1,5
Viđar Njáll Hákonarson 1
Ketill Tryggvason 0,5
7.5.2015 | 12:20
Einar efstur fyrir lokaumferđ Skákmóts öđlinga
Einar Valdimarsson (1945) er í miklu stuđi á Skákmóti öđlinga. Hann vann í gćr Magnús Kristinsson (1765) er efstur međ fullt hús eftir sjöttu og og nćstsíđustu umferđ sem fram fór í gćr. Ţorvarđur F. Ólafsson (2222), sem vann Halldór Pálsson (2030) er annar međ 5 vinninga og er sá eini sem getur náđ Einari ađ vinningum.
Halldór, Ögmundur Kristinsson (2030), Eiríkur Björnsson (1959), Ólafur Gísli Jónsson (1900) og Haraldur Baldursson (1984) erí 3.-7. sćti međ 4 vinninga.
Lokaumferđin fer fram nk. miđvikudagskvöld. Ţá mćtast međal annars: Haraldur-Einar, Ögmundur-Ţorvarđur og Eiríkur-Ólafur Gísli.
Spil og leikir | Breytt 8.5.2015 kl. 14:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2015 | 11:55
Lagabreytingartillögur fyrir ađalfund SÍ
Allmargar lagabreytingartillögur bárust fyrir ađalfund SÍ sem fram fer 30. maí nk. Smá samantekt má finna um ţćr hér.
Stofnađur hefur veriđ sér Facebook-hópur um tillögurnar ţar sem menn rökstudd tillögurnar og rćtt ţćr.
Tillögurnar sem bárust eru eftirfarandi.
Tillaga um sex liđa keppni á Íslandsmóti skákfélaga
Flutt af nefnd sem stjórn SÍ skipađi til ađ endurskođa reglur um Íslandsmót skákfélaga.
Helsta breytingin sem lögđ er til, er ađ sex liđ tefli tvöfalda umferđ í efstu deild í stađ tíu liđa sem tefla einfalda umferđ eins og er í dag.
Jafnframt fylgir međ greinagerđ og upplýsingar um ítarefni sem sérviđhengi.
Tillaga um átta liđa keppni á Íslandsmóti skákfélaga
Flutt af nefnd sem stjórn SÍ skipađi til ađ endurskođa reglur um Íslandsmót skákfélaga.
Lagt er til ađ átta liđ keppi í stađ tíu liđa nú.
Jafnframt fylgir međ greinagerđ og upplýsingar um ítarefni sem sérviđhengi.
Tillaga um skákstigaútreikning
Lagt er til ađ tekin verđi úr lögum sú skylda stjórnar SÍ ađ reikna út íslensk skákstig.
Flutt af Halldóri Grétari Einarssyni
Greinargerđ í sama viđhengi.
Tillögur um breytingar Íslandsmóti unglinga- og barna.
Fluttar af Gunnari Björnssyni og Stefáni Bergssyni
Lagt er ađ unglingamótum verđi breytt töluvert og teflt verđi í mun fleiri flokkum en nú er. Tekiđ verđi mun meira miđ af flokkaskiptingum á EM/HM ungmenna en nú er. Lagt er til ađ Unglingameistari Íslands fái beinan keppnisrétt í landsliđsflokki.
Rökstuđningur í sama viđhengi.
Tillögur um Skákdeild Fjölnis
Ýmsar tillögur koma frá Skákdeild Fjölnis. Ná ţćr međal annars utan um ađbúnađ á skákmótum og upptöku siđareglna.
Tillögur og rökstuđning má finna í viđhengi.
-
Tillaga um átta liđa keppni
-
Greinargerđ um átta liđa keppni
-
Greinargerđ um sex liđa keppni
-
Ítarefni um tillögur nefndar um Íslandsmót skákfélaga
-
Tillaga um breytingar á skákstigaútreiningi
-
Tillaga um breytingar á Íslandsmóti barna og unglinga
-
Breytingar frá Skákdeild Fjölnis
-
Tillaga um sex liđa keppni
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2015 | 17:15
Ađalfundur SÍ fer fram 30. maí nk.
Eftirfarandi bréf var sent til ađildarfélaga SÍ 30. apríl sl. Vćntanlegar eru á Skák.is lagabreytignartillögur ţćr sem bárust.
-----------------------
Stjórn Skáksambands Íslands bođar hér međ til ađalfundar Skáksambandsins í samrćmi viđ 8. gr. laga S.Í.
Fundurinn verđur haldinn laugardaginn 30. maí nk. kl. 10.00 fyrir hádegi í Félagsheimili Breiđabliks, Dalsmára 5, Kópavogi.
Dagskrá: Venjuleg ađalfundarstörf.
Stjórn Skáksambandsins sendir ennfremur međ fundarbođinu gögn varđandi skrá yfir fullgilda félagsmenn ađildarfélaga S.Í. Stjórnir ađildarfélaganna eru vinsamlegast beđnar ađ útfylla skrár ţessar vandlega og senda ţćr Skáksambandi Íslands í pósth. 8354, 128 Reykjavík eđa á netfang skaksamband@skaksamband.is fyrir 16. maí 2015.
Bréf ţetta er sent ásamt gögnum í samrćmi viđ 9. gr. laga S.Í., en sú grein hljóđar svo:
Viđ atkvćđagreiđslu á ađalfundi á hvert félag eitt atkvćđi enda geti sýnt fram á a.m.k. 10 félagsmenn međ lögheimili á Íslandi og geti sýnt fram á virka skákstarfsemi. Eitt atkvćđi bćtist viđ hjá félagi fyrir hverja sveit sem ţađ sendir í Íslandsmót skákfélaga ţađ áriđ. Viđ atkvćđagreiđslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, ađ hvert félag fari ekki međ fleiri atkvćđi en ţađ hafđi á ađalfundi áriđ áđur. Enginn fulltrúi getur fariđ međ meira en eitt atkvćđi á fundinum. Viđ atkvćđagreiđslur á ađalfundi rćđur einfaldur meirihluti atkvćđa, nema um ţau mál sem sérstaklega eru tilgreind í ţessum lögum.
Einnig skal bent á 6. grein:
Standi ađildarfélag í gjaldfallinni skuld viđ sambandiđ hefur ţađ ekki rétt til ađ eiga fulltrúa á ađalfundi. Skákdeildir í félögum geta átt ađild ađ sambandinu, enda hafi ţá minnst 10 menn bundist slíkum samtökum. Heimilt er tveimur eđa fleiri ađildarfélögum í sama landshluta ađ stofna međ sér svćđissamband.
Taflfélögunum gefst kostur á ađ birta stutta skýrslu um starfsemi sína á síđasta starfsári í árrsskýrslu Skáksambands Íslands. Hafi félögin áhuga á ţessu ţarf efni ađ hafa borist skrifstofu S.Í. í síđasta lagi 15. maí 2015.
Virđingarfyllst,
SKÁKSAMBAND ÍSLANDS
Spil og leikir | Breytt 28.5.2015 kl. 10:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 13
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 8778334
Annađ
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 75
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar