Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Eitt sterkasta Reykjavíkurskákmót sögunnar hefst á ţriđjudaginn

Mameydarov Reykjavik

GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ hefst í Hörpu ţriđjudaginn 8. mars. Um 250 manns taka ţátt í mótinu sem hefur sjaldan veriđ sterkara. Međal keppenda eru fjórir svokallađir ofurstórmeistarar en ţađ eru ţeir kallađir sem hafa meira en 2700 skákstig. Um 30 stórmeistarar taka ţátt.

andreikin03

Ofurmeistararnir

Aserinn Shakhriyar Mamedyarov er stigahćstur keppenda en hann hefur 2747 skákstig. Nćstir koma Rússinn Dmitry Andreikin (2732), Ungverjinn Richard Rapport (2721) og Armeninn Gabriel Sargassian (2702). Allt eru ţetta lykilmenn í sínum landsliđum.

Rapport vann Ramirez

Heimavarnarliđiđ

Íslenska heimavarnarliđiđ mćtir međ Hannes Hlífar Stefánsson (2600) fremstan í flokki.  Einnig eru skráđir til leiks stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson (2572), Henrik Danielsen (2488), Stefán Kristjánsson (2471) og Ţröstur Ţórhallsson (2423).

Hjörvar Steinn


Sterkar skákkonur!

Sterkar skákkonur eru áberandi í ár.  Má ţar nefna hina ţýsku Elizabetu Paetz (2472), hina írönsku Söru Khademalsharieh (2403) og hina indversku Tönju Sachdev (2366).

Tania Sachdev


Efnilegustu skákmenn heims mćta

Ţađ hefur ávallt veriđ stefna Reykjavíkurskákmótsins ađ bjóđa hingađ ungum og efnilegum skákmönnum. Í ár má nefna hinn ítalska Fransesco Rambaldi (2541), sem er ađeins 16 ára, og einn yngsti stórmeistari heims, hinn norska Aryan Tari (2553), sem er yngsti stórmeistari Norđurlanda og bandaríska undrabarniđ Awonder Liang (2408). Hann er ađeins 12 ára og er sá yngsti í skáksögunni sem hefur unniđ stórmeistara en ţađ afrekađi hann ađeins 9 ára.

Awonder

Gođsagnirnar láta sig ekki vanta

Ţađ eru ekki bara ungir menn á menn ţví ávallt taka ţátt í mótinu nokkrar gođsagnir. Í ár má nefna hinn norska Simen Agdestein, sem hefur međal annars ţjálfađ Magnus Carlsen, hinn rúmenska Mikhail Marin og Alexander Beljavsky sem var međal annars Ólympíumeistari međ Sovétmönnum.

Carlsen-Agdestein.jpg

Carlsen mćtir!

Pabbi heimsmeistarans, Henrik Carlsen, lćtur sig ekki vanta á GAMMA Reykjavíkurskákmótiđ nú sem endranćr en hann er einn fastagesta. 

Henrik Carlsen

Setning mótsins hefst kl. 14:30 ţriđjudaginn 8. mars í Hörpu. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráđherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, munu bjóđa hina erlendu keppendur velkomna og tríó Óskars Guđjónssonar leika skemmtilegan jazz.

GAMMA Capital Management hf. er ađalstyrktarađili mótsins ásamt Reykjavíkurborg.

gamma_reykop15

Viđ erum ein fjölskylda!

Af hinum 250 keppendum koma um 165 erlendis frá en alls koma keppendur mótsins frá 35 ţjóđlöndum. Keppendur eru á aldursbilinu 9-73 ára sem endurspeglar einkunnarorđ skákarinnar vel - viđ erum ein fjölskylda!

Enn er opiđ fyrir skráningu fyrir ţá sem vilja taka ţátt í veislunni. Nánar á heimasíđu mótsins.


Fjölnir: Undanrásir hjá Fjölni í dag

Undanrásir hjá Skákdeild Fjölnis fyrir Reykjavík Open Barna Blitz fara fram á morgun miđvikudag klukkan 17:00. Teflt verđur í Rimaskóla.

Á sama tíma fara fram undanrásir hjá Víkingaklúbbnum í Víkinni. Hefjast ţćr 17:15.

Ţeir sem eru komnir áfram eru: Stephan Briem, Alexander Oliver Mai, Óskar Víkingur Davíđsson og Róbert Luu.


Víkingaklúbburinn: Undanrásir fyrir Barna Blitz í dag

Undankeppni fyrir Reykjavík Barna Blitz verđur miđvikudaginn 2. mars kl. 17.15 í Víkingsheimilinu
 
Mótiđ er opiđ skákmönnum fćddum 2003 og síđar.
 
Tefldar verđa sex umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma. Tveir efstu komast í úrslitin sem verđa tefld verđa samhliđa Reykjarvíkurskákmótinu í Hörpu, sunnudaginn ţrettánda mars klukkan 11:00.
 
Til mikils er ađ vinna ţví einungis átta keppendur fá ţátttökurétt á sjáfri úrslitakeppninni, ţar af eru tveir frá móti Víkingaklúbbsins. Hin félögin í Reykjavík sem halda undanrásir eru Skákdeild Fjölnis, Taflfélagiđ Huginn og Taflfélag Reykjavíkur.
Skráning á mótiđ sendist á netfangiđ vikingaklubburinn(hjá)gmail.com.

Austfirđingur efstur í Ásgarđi í dag.

Ćsir tefldu sinn tuttugasta skákdag vetrarins í gćr í Ásgarđi, sem er félagsheimili FEB í Reykjavík. Ţađ voru óvenju fáir sem mćttu til leiks í gćr eđa tuttugu skákvíkingar. Kannski er flensan ađ angra menn. Ţađ var skákvinur okkar af  austfjörđum  Viđar Jónsson  sem varđ efstur ásamt ţeim Ţór Valtýssyni og Friđgeir Hólm allir međ 7˝ vinning af 10 mögulegum. Viđar var efstur á stigum og telst ţví vera Hrókur dagsins.

Guđfinnur R Kjartansson var einn í fjórđa sćti međ 7 vinninga. Ţađ er mjög sjaldgćft ađ Guđfinnur fari niđur fyrir fimmta sćti, ţađ hefur ţó komiđ fyrir.

Nćstu tólf voru svo ađ bítast í miđju mođinu.

Ţeir sem voru síđan í neđsta hópnum í gćr virđast varla hafa nennt ţessu, ţví ađ ţeir hafa oft fiskađ betur.

Svona er nú skákin bara, ţađ dugir ekki ađ hafa bara annađ augađ opiđ.

Nćsta ţriđjudag halda Ćsir sitt meistaramót, ţađ er međ sama sniđi

Tefldar verđa 10 umferđir međ 10. mín. umhugsun.

Allir skákmenn 60 + velkomnir.

Sjá nánari úrslit í međf. töflu

Clipboard02

 

 


Ný alţjóđleg skákstig

Ný alţjóđleg skákstig eru komin út. Hannes Hlífar Stefánsson (2600) er sem fyrr stigahćsti skákmađur landsins. Tryggi Leifur Óttarsson (1624) er stigahćstur nýliđa og Vignir Vatnar Stefánsson (157) hćkkar mest frá febrúar-listanum.

Topp 20

Hannes Hlífar Stefánsson (2600) er stigahćsti skákmađur landsins. Í nćstum sćtum er Hjörvar Steinn Grétarsson (2572) og Héđinn Steingrímsson (2567).

Nr.SkákmađurTitStigMism
1Stefansson, HannesGM26000
2Gretarsson, Hjorvar SteinnGM25720
3Steingrimsson, HedinnGM25670
4Olafsson, HelgiGM25460
5Hjartarson, JohannGM25410
6Petursson, MargeirGM25090
7Arnason, Jon LGM24930
8Danielsen, HenrikGM24880
9Kristjansson, StefanGM24787
10Gunnarsson, Jon ViktorIM24605
11Gretarsson, Helgi AssGM24520
12Kjartansson, GudmundurIM2446-10
13Thorsteins, KarlIM2435-14
14Gunnarsson, ArnarIM24260
15Thorfinnsson, BragiIM24190
16Thorhallsson, ThrosturGM2416-7
17Thorfinnsson, BjornIM2410-8
18Ulfarsson, Magnus OrnFM23805
19Olafsson, FridrikGM23770
20Arngrimsson, DagurIM23760


Stigahćstu nýliđar

Tryggi Leifur Óttarsson (1624) er stigahćstur nýliđa. Í nćstum sćtum eru Gabríel Freyr Björnsson (1454) og Tryggi K. Ţrastarson (1450).

Nr.SkákmađurTitStigMism
1Ottarsson, Tryggvi 16241624
2Bjornsson, Gabriel Freyr 14541454
3Thrastarson, Tryggvi K 14501450
4Briem, Benedikt 11241124
5Runarsson, Jon Hreidar 10851085
6Gudmundsson, Gunnar Erik 10591059


Mestu hćkkanir

Vignir Vatnar Stefánsson hćkkar mest frá febrúar-listanum eđa um 157 skákstig. Í nćstum sćtum eru Stephan Briem (154) og Hjörtur Kristjánsson (136).

Nr.SkákmađurTitStigMism
1Stefansson, Vignir Vatnar 2228157
2Briem, Stephan 1514154
3Kristjansson, Hjortur 1488136
4Njardarson, Daniel Ernir 1425106
5Luu, Robert 159997
6Kravchuk, Mykhaylo 159692
7Mai, Alexander Oliver 155878
8Jonsson, Gauti Pall 199675
9Mai, Aron Thor 178470
10Kristofersson, Sindri Snaer 121270


Stighćstu ungmenni (1996 og síđar)


Dagur Ragnarsson (2243) er stigahćsi skákmađur landsins 20 ára og yngri. Vignir Vatnar Stefánsson (2228) er kominn alla leiđ upp í annađ sćtiđ eftir frábćrt tímabil. Oliver Aron Jóhannesson (2177) er ţriđji.

 

Nr.SkákmađurTitStigB-dayMism
1Ragnarsson, DagurFM2243199724
2Stefansson, Vignir Vatnar 22282003157
3Johannesson, OliverFM21771998-21
4Thorgeirsson, Jon Kristinn 21571999-49
5Thorhallsson, Simon 20921999-65
6Hardarson, Jon Trausti 20581997-1
7Heimisson, Hilmir Freyr 20482001-40
8Birkisson, Bardur Orn 2017200063
9Jonsson, Gauti Pall 1996199975
10Sigurdarson, Emil 196819960

 

Heimslistann má nálgast hér.

Reiknuđ skákmót

  • Skákţing Reykjavíkur
  • Nóa Síríus-mótiđ (a- og b-flokkur)
  • Skákţing Akureyrar + aukakeppni
  • Bikarsyrpa TR #4
  • Hrađskákmót Reykjavíkur
  • Hrađskákmót Nóa Síríus
  • Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur (atskák)
  • TR barna blitz (hrađskák)

 

 


Síđari hluti Íslandsmót skákfélaga hefst á fimmtudaginn

Seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga 2015-2016 fer fram dagana 3.-5. mars nk í Rimaskóla. Keppnin hefst (eingöngu í 1.deild) kl. 19.30 fimmtudaginn 3. mars.  

Ađrar deildir munu hefja taflmennsku föstudaginn 4. mars  kl. 20.00 og síđan  laugardaginn 5. mars. kl. 11.00 og kl. 17.00 sama dag. Lokahóf mótsins verđur haldiđ í Kringlukránni og hefst kl. 22.

1. deild

Skákfélagiđ Huginn er efst í fyrstu deild. Taflfélag Reykjavíkur er í öđru sćti en ţessar sveitir eru langefstar. Skákfélag Akureyrar er í ţriđja sćti.

Nánar á Chess-Results.

2. deild

Skákfélag Reykjanesbćjar hefur yfirburđi í 2. deild. c-sveit Taflfélags Reykjavíkur er í öđru sćti og Taflfélag Garđabćjar í ţví ţriđja. 

Nánar á Chess-Results.

3. deild

Vinaskákfélagiđ er í forystu í ţriđju deild. C-sveit Skákfélags Akureyrar í öđru og b-sveit Skákdeildar KR í ţví ţriđja.

Nánar á Chess-Results.

4. deild

Hrókar alls fagnađar eru efstir í fjórđu deild. Taflfélag Vestmannaeyja er í öđru sćti og Skákdeild Breiđabliks í ţví ţriđja.

Nánar á Chess-Results.

 


Jón Kristinn skákmeistari Akureyrar

Eins og kunnugt er urđu ţrír meistarar eftir og jafnir á Skákţingi Akureyrar 2016. Ţeir ţurftu ţví ađ tefla til úrslita um titilinn.  Fyrst áttust viđ ţeir Sigurđur Eiríksson og Haraldur Haraldsson og vann sá fyrrnefndi ţá skák eftir ađ hafa snúiđ á andstćđing sinn í miđtaflinu og náđ óstöđvandi sókn. Nćst tefldi Sigurđur viđ Jón Kristin Ţorgeirsson, meistarann frá 2014. Međ sigri í ţeirri skák gat Sigurđur tryggt sér meistaratitilinn í fyrsta sinn og um tíma var stađa hans vćnleg. Ađ lokum náđi Jón ţó ađ snúa Sigurđ niđur og stóđ ţví međ pálmann í höndunum fyrir skák sína viđ Harald, sem varđ ađ vinna skákina til ađ vera međ í baráttunni, tefdli hvasst og sótti ađ kóngi Jóns, sem var berskjaldađur á upphafsreit sínum. En međ snjallri vörn tókst Jóni ađ skipta upp í jafnteflislegt endatafl og varđist frekari vinningstilraunum Haraldar fimlega. Jóni hefđi nćgt jafntefli í skákinni, en smám saman náđi hann undirtökunum og sigrađi. Hann er ţví skákmeistari Akureyrar 2016 og óskum vđ honum til hamingju međ titilinn. Sigurđur Eiríksson hafnađi í öđru sćti og Haraldur Haraldsson í ţví ţriđja.


Barna Blitz: undanrásir hjá Fjölni á morgun

Undanrásir hjá Skákdeild Fjölnis fyrir Reykjavík Open Barna Blitz fara fram á morgun miđvikudag klukkan 17:00. Teflt verđur í Rimaskóla.

Á sama tíma fara fram undanrásir hjá Víkingaklúbbnum í Víkinni. Hefjast ţćr 17:15.

Ţeir sem eru komnir áfram eru: Stephan Briem, Alexander Oliver Mai, Óskar Víkingur Davíđsson og Róbert Luu.


Undanrásir fyrir Barna Blitz hjá Víkingum á morgun

Undankeppni fyrir Reykjavík Barna Blitz verđur miđvikudaginn 2. mars kl. 17.15 í Víkingsheimilinu
 
Mótiđ er opiđ skákmönnum fćddum 2003 og síđar.
 
Tefldar verđa sex umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma. Tveir efstu komast í úrslitin sem verđa tefld verđa samhliđa Reykjarvíkurskákmótinu í Hörpu, sunnudaginn ţrettánda mars klukkan 11:00.
 
Til mikils er ađ vinna ţví einungis átta keppendur fá ţátttökurétt á sjáfri úrslitakeppninni, ţar af eru tveir frá móti Víkingaklúbbsins.  Hin félögin í Reykjavík sem halda undanrásir eru Skákdeild Fjölnis, Taflfélagiđ Huginn og Taflfélag Reykjavíkur.
Skráning á mótiđ sendist á netfangiđ vikingaklubburinn(hjá)gmail.com.

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 145
  • Frá upphafi: 8778503

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 103
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband