Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Spil og leikir

Afmælismót TV fer fram næstu helgi


Taflfélag_Vestmannaeyja_90 ára_GunnarJúl8440806

Helgina 10.-11. september 2016 fer fram atskákmót í Eyjum í tilefni af  90 ára  afmæli Taflfélags Vestmannaeyja.

Keppendur verða úr Eyjum og á fastalandinu. Reiknað er með flestir keppendur ofan af landi komi með Herjólfi laugardaginn 10. september. frá Landeyjahöfn kl. 09.45 og til Eyja um kl. 10.30.  Akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar tekur tæplega  2 klst. og þurfa farþegar og ökutæki að vera mætt 30 mín. fyrir brottför Herjólfs frá Landeyjahöfn.  Algengt er  að farþegar geymi ökutæki sín á bílastæðum í Landeyjahöfn meðan á dvöl þeirra í Eyjum stendur.

Næsta  ferð til Landeyjahafnar frá Eyjum að loknu skákmótinu  er kl. 18.30  sunnudaginn 11. sept og nú síðasta þann dag  kl. 21.00 um kvöldið. Mæting um borð  30 mín. fyrir brottför.

Tefldar verða níu umferðir, umhugsun 20 mín.  á  skák  auk 5 sek. á hvern leik.  Reiknað er með að umferðin taki um 60 mín. Skákstjóri verður  Stefán Bergsson.

Laugardagur 10. sept. 2016

Kl. 12.00 – 17.00  Tefldar verða fimm umferðir fyrri daginn.

Kl. 17.00 – 18.00   Skoðunarferð með rútu um Heimaey.

Sunnudagur 11. sept. 2016

Kl. 12.00 - 16.00   Tefldar verða fjórar umferðir seinni daginn.

Kl. 16.30 – 17.00   Mótsslit og verðlaunahending.

Ekkert þátttökugjald á  atskákmótið og í  skoðunarferðina.

Fyrstu verðlaun  verða 75 þús. kr., önnur verðlaun  kr. 50 þús. kr. og þriðju verðlaun  kr. 25 þús. kr. Landsbankinn er helsti stuðningsaðili mótsins.

Nánari upplýsingar um ferðir til  og frá Eyjum á  herjolfur.is og gistingu í Eyjum  á visitvestmannaeyjar.is   

Skráning þátttakenda á 90 ára afmælismótið  fer fram á Skák.is.

Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér

Afmælisnefnd Taflfélags Vestmannaeyja.


Ólympíuskákmótið: 3. umferð í opnum flokki

OlBaku_Rd3_CrystalSegja má að skyldusigur hafi unnist í dag á sveit Sýrlendinga 3,5-0,5. Fyrirfram vorum við stigahærri á öllum borðum á bilinu 200-400 elostig og því 3,5 eða 4 úrslit sem hefði mátt búast við. Sýrlendingar hvíldu sinn stigahæsta mann í dag en hann hafði í fyrstu umferð náð jafntefli gegn Salgado Lopez hjá Spáni. Sýrlendingar lentu í hremmingum snemma í mótinu með vegabréfbréfsáritun og voru aðeins þrír mættir í fyrstu umferð gegn Spánverjum. Þeir sóttu hinsvegar í sig veðrið í annarri umferð og unnu þar Mauritius 3,5-0,5.

1. borð - Hannes hvítt á A.K. Rayes (2254)

Hannes tefldi eins og í fyrstu umferðinni örugga skák með hvítu mönnunum. Svipað og í fystu umferð var drepið á d4 og margt líkt með þeim skákum í raun og veru. Í báðum tilvikum var Hannes mjög fljótur að fá yfirburðartafl. Í skákinni í dag lék andstæðingurinn ónákvæmum leikjum og lenti fljótlega í algjörri "krippu". Var staða hans í raun svo léleg að Björn Ívar liðsstjóri kvennaliðsins lýsti yfir áhyggjum yfir því að Hannes færi að patta svartan í miðtaflinu, svo léleg var staðan.

Ol_Rd3_HannesPos

(Staðan hvar Björn Ívar hafði áhyggjur af því að svartur væri að verða patt)

Niðurstaðan auðveldur vinningur.

2. borð - Hjörvar svart á G.Bello (2096)

Anstæðingur Hjörvars tefldi varíant á hvítt sem Hjörvar er með 9-0 skor´í! Hjörvar beið spenntur eftir endirbót eða einhverju óvæntu en upp á slíkt var ekki boðið. Var Hjörvar í raun kominn með yfirburðartafl og hvítur búinn að gera það mörg mistök að honum fannst að hann ætti að vinna stöðuna tiltölulega hratt. Hjörvar lagði því e.t.v. aðeins of mikið á stöðuna þar sem hann taldi að hún ætti að vinnast hratt og örugglega. Í staðinn varð verkefni aðeins lengra og erfiðara og varð Hjörvar að snúa hann niður í tímahrakinu. 

Ol_Rd3_HjorvarPos

Staðan úr byrjuninni, svartur með allt sem hann vill!

Í raun var sigurinn þó aldrei í mikilli hættu en samt fékk andstæðingur Hjörvars einn séns á að bjarga sér. Eins og svo oft, þá er munurinn á styrkleika skákmanna að nýta þessa sénsa og það gerði andstæðingur Hjörvars ekki :-)

3. borð - Jóhann hvítt á Sohib (2153)

Jóhann tefldi Spánverjann og kom andstæðingi sínum á óvart með d3 afbrigði sem hann hafði ekki stúderað. Svo vildi til að andstæðingur hans hafði stúderað vel og bjóst við aðalafbrigðum með He1 og vísaði í nokkra sigra á Short hjá Jóhanni. Jóhann hafði stúderað þetta afbrigði fyrir skákina og þá helst þessa blessuðu ofurstórmeistara með 2700 stig. Því miður áttaði Jóhann sig á að þessir 2700 stórmeistarar eru bara ekki að tefla upp á neinn skapaðn hlut með hvítu. Jóhann hafði fylgt bestu skákmönnum heims en svartur í raun jafnar taflið nokkuð auðveldlega.

OlBaku_Rd3_Johann

Jóhann var í raun sáttari við skákina eftir að hafa litið á hana í tölvu eftirá þar sem andstæðingur hans gerir í raun engin mistök. Sohib hafði á nokkrum stöðum breytt útaf því sem ofurstórmeistarnir voru að tefla og svo leikið leik sem leit út eins og hálfgert leiktap en tölvurnar segja að svartur komist upp með þessa taflmennsku.

Í stöðunni áður en Jóhann lék Bd5 hugaði hann vel og lengi í 35 mínútur og fór með megnið af tímanum sem hann hafði áunnið sér umfram andstæðing sinn. Jóhann taldi að hvítur hlyti að eiga eitthvað þar en fann ekkert enda líklega ekkert í stöðunni. Staðan var algjörlega jöfn en Jóhann missti þó mikilvægt peð á d5. Andstæðingur hans bauð honum umsvifalaust jafntefli í sameiginlegu tímahraki. Jóhann taldi þó að hann hefði enn færi en þegar hann uppgötvaði að sú leið sem hann ætlaði að velja var í raun töpuð (eftirá komumst við þó að því að hún var jafntefli) þá var það orðið of seint og Jóhann varð að velja annan leik en hann hafði ætlað sér. Varð niðurstaðan þá hróksendatafl sem líklega var tapað á hann. Sem betur fer var þó loksins komið að Sýrlendingnum að sýna af hverju hann er ekki stigahærri og jafntefli varð niðurstaðan eftir nokkur mistök hjá honum.

Ol_Rd3_JohannPos

Hér náði Jóhann skemmtilegri "X-ray" skák á a8. Andstædðingur hans bauð svo jafntefli eftir ...Kh7 en Jóhann hafnaði því eins og áður sagði. Skömmu síðar kom yfirsjónin í sameiginlegu tímahraki þeirra.

 

4. borð - Bragi svart á Alzaim (2259)

OlBaku_Rd3_Bragi

Bragi tefldi hér mjög góða skák gegn stigahæsta liðsmanni Sýrlendinga í þessari viðureign. Andstæðingur hans tefldi traust afbrigði í e3 Nimanum sem gefur hvítum meira rými þó að sé ekki jafn hættulegt og það lítur út fyrir að vera.

Þrátt fyrir rýmið tefldi Bragi mjög þematískt og lék ...e5 á réttum tíma og smátt og smátt sprakk staða hans út. Skákin var í raun mjög lærdómsrík. Líklegast voru fyrstu strategísku mistökin að leyfa svörtum að drepa á c3 og losna við svartreitbiskupinn. Eftir það varð svarta staðan auðteflanleg og eiginlega unun að fylgjast með Braga stinga sér inn í allar holur sem hvítur skildi eftir í hvítu stöðunni. Eftir að fór að fjara undan mögulegu frumkvæði hvíts fór hann að veikja sig með leikjum eins og f5 og a4 og Bragi nýtti sér það meistaralega. Sérstaklega var skemmtilegt hvernig riddarinn á a6 fór á c7 en svo lúmskur aftur á a6 eftir að hvítur veikti sig með a4.

Ol_Rd3_BragiPos

Eftir að flóðgáttirnar opnuðust var bara tímaspursmál hvenær og hvernig Bragi myndi klára skákina. Varkárari menn hefðu valið ...Dd1 og skipt upp á drottningum en Bragi var með sjálfstraustið í botni og hafði trú á sér og stöðunni og sigldi vinningnum í heimahöfn.

 

Næst á dagskrá í 4. umferð eru frændur okkar Færeyingar. Við eigum í raun harma að hefna þar sem þeir náðu jafntefli gegn okkur í Tromsö. Slíkt verður ekki í boði og sigur eina sem við sættum okkur við!


Ólympíuskákmótið: 3. umferð í kvennaflokki

Brexit #3 – Ísland 2,5 – England 1,5

Rd3_kvennalid

Andstæðingar okkar í 3. umferð voru Englendingar, með meðalstig 2236. Meistari Speelman, liðsstjóri enska liðsins, tók glaðlega í höndina á mér fyrir viðureignina og bað mig að skrifa undir mótmælaplaggið sitt sem ég nefndi í síðasta pistli. Hann er ekki mannglöggur blessaður því við höfðum rætt lengi saman í fyrradag og ég var löngu búinn að skrifa undir hjá honum.

Enska liðið hafði á að skipa sterkum og reynslumiklum skákkonum á 1. og 2. borði. Lenka hafði hvítt gegn IM Jovanka Houska (2386).

lenka3

Upp kom Caro-kann vörn sem Lenka var vel undirbúin fyrir. Við höfðum lagt upp með að tefla af ákveðni og ekki gefa alþjóðlega meistaranum neinn frið í byrjuninni. Ég held að Lenku hafi tekist að slá Houska aðeins út af laginu með taflmennsku sinni. Þrátt fyrir þetta eyddi Lenka talsverðum tíma á byrjunina en fékk samt mun betra tafl. Þegar Houska lék 11...c5 notaði Lenka tækifærið og sprengdi upp stöðuna með 12. c4. Í framhaldinu opnuðust allar flóðgáttir og krítístki punkturinn var þegar Lenka lék 17. d5!

3lenka

Hér lék Lenka 17. d5 og Houska lenti í miklum vandræðum.

Lenka hélt pressunni og Houska komst aldrei inn í skákina. Á einum tímapunkti gat Lenka unnið strax með fallegri hróksfórn, sem hún sá, en krafðist smá úteiknings af hennar hálfu. Á því augnabliki varð henni hugsað til gullkorns Jóhanns Hjartarsonar frá því eftir 1. umferð; ,,Maður á aldrei að fórna með unnið!‘‘ – og valdi því öruggu leiðina. Rannsóknir okkar eftir skákina leiddu hins vegar í ljós að fórnin hefði leitt beint til vinnings svo þetta er sennilega undantekningin sem sannar reglu Jóhanns!

3-1lenka

Hér lék Lenka 27. Hd6 með hugmyndinni 28. He6! Houska lék 27...Hc6 og barðist áfram. Lenka gat þó leikið 27. Hd8!! með hugmyndinni 27...Dxd8 28. Dxh5 með máti og eftir 27...Dg6 28. Hd6 De8 29. He6! vinnur hvítur h5-peðið með óstöðvandi mátsókn.

Eftir að skiptist upp á drottningum hirti Lenka svörtu peðin og innbyrti sigurinn af öryggi. Frábær skák hjá Lenku og liðsstjórinn var mjög stoltur.

Gulla hafði svart gegn IM Dagne Ciuksyte (2323). Upp kom Petroffs-vörn sem var vel undirbúin fyrir skákina. Ciuksyte kom okkur nokkuð á óvart með því að velja afbrigði sem hún hafði ekki teflt áður. Í framhaldinu fékk Gulla verra tafl en tókst með mikilli seiglu að halda sér inni í skákinni og tókst svo að snúa taflinu sér í vil í kringum tímamörkin. Hún vann peð en Ciuksyte hafði biskupaparið sem vóg aðeins upp á móti. Gulla leitaði eftir uppskiptum á riddara fyrir biskup og hafði þá hrók, biskup og þrjú peð gegn hrók, biskup og tveimur peðum. Staða hvíts var samt nokkuð virk og svörtu peðin auk þess skorðuð. Á þessum tímapunkti var staðan orðin 2-1 okkur í vil og Ciuksyte, peði undir, lék 60. d4 sem Gulla mátti ekki taka – og var auk þess tæp á tíma og með óvirka menn. Allt í einu leit út fyrir að hvítur gæti pressað aðeins og kvikindið hann Speelman glotti til mín!

3gulla

Hér lék Ciuksyte 60. d4 og Speelman glotti!

Gulla leysti vandamálin auðvitað án nokkurra vandræða í framhaldinu, virkjaði mennina sína og eftir þráleik krafðist hún jafnteflis, sem tryggði sigurinn í viðureigninni.

3-1gulla

Hér lék Gulla 68...Bf2 og sama staðan var kominn upp í þriðja sinn. Jafntefli niðurstaðan og sigurinn í höfn! Ég leyfði mér að endurgjalda Speelman glottið.

Hallgerður Helga hafði hvítt gegn WFM Sarah Longson (2103). Þegar við flettum henni upp fyrir skákina komu bara fáar, en mjög nýlegar skákir upp. Halla kannaðist þó við myndina af Söruh og komst að því eftir smá rannsóknarvinnu að stúlkan sú væri nýgift og því búin að taka upp nýtt nafn! Var brúðkaupið bara til þess að fela gömlu skákirnar hennar? Einhver ágætur maður sagði mér eitt sinn að brúðkaup væru ekki góð fyrir skákmenn því þá gætu þeir verið vissir um að tapa 50-100 skákstigum alveg um leið.

En aftur að skákinni! Upp kom ítalskur leikur og Longson náði að jafna taflið eftir byrjunarleikina. Í miðtaflinu tók Halla góða ákvörðun og drap með riddara á d4, 17. Rxd4, sem gaf henni ákveðin færi í skrýtinni stöðu. Henni varð þó fótaskortur í framhaldinu og neyddist þá til að gefa skiptamun. Það sama gerðist í 1. umferð; Halla lenti í vandræðum, gaf skiptamun en fékk virka menn og vann glæsilega. Það sama gerðist einnig í dag. Allt í einu lifnaði yfir stöðunni, Longson þurfti að fara að vanda sig skiptamun yfir og í tímahrakinu urðu henni á mistök. Halla vann skiptamuninn til baka og í lokin var ekkert sem gat stoppað hvíta e-peðið og mikilvægur sigur var í höfn!

3halla

Hér kom 47. Rg6! Hee8 47. e7 Hb8 48. Bd7 og taflið snérist Höllu í vil.

Hrund hafði svart gegn WFM Kanwal Bhatia (2133). Upp kom ítalskur leikur, sama afbrigði og hjá Hallgerði Helgu. Hrund lék snemma h6 og gaf Bhatia kost á að leika g4 og fara beint í kóngssókn. Þetta er leið sem Jón Viktor Gunnarsson hefur mælt með fyrir hvítan (sbr. módelskákina JVG - Fiona Steil-Antoni frá Reykjavik Open 2008). Bhatia fékk hörku færi í framhaldinu og Hrund þurfti að finna nákvæma leiki til þess að halda velli. Hún missti af bestu varnarleiðunum og stórsókn hvíts var of hættuleg til þess að stoppa. Sanngjarn sigur þeirrar ensku.

3hrund

Hér lék Hrund 24...De7 og lenti vandræðum eftir 25. Ba3! Það var einhver von í því að leika í staðinn 24...Hh2 25. Dxf6+ Kg8 og svartur hefur smá pressu á f2-peðið.

Lokatölur 2½ - 1½ okkur í vil, sem eru frábær úrslit. Við Speelman tókumst í hendur í lok viðureignarinnar og hann var ekki sáttur með sínar stúlkur: ,,I was glad I brought a newspaper today so I could hide behind something!“

Andinn í liðinu er góður eftir þessa flottu frammistöðu hjá okkur. Ég var ánægður með baráttuþrekið í stelpunum í dag. Á erfiðum augnablikum í skákunum kom ekki til greina að gefa neitt eftir. Tímanotkunin var skynsamari hjá okkur en í gær og við vorum ekki að lenda undir neinni sérstakri tímapressu; þetta höfðum við rætt sérstaklega fyrir umferðina.

Á morgun fáum við lið Moldavíu (meðalstig: 2167) og við erum klárar í slaginn. (athugasemd: Gunnar Björnsson segir að það sé einkennandi fyrir liðsstjóra kvennaliðsins af fara ósjálfrátt að tala um sjálfan sig í kvenkyni!)

Þangað til næst, bestu kveðjur frá Bakú.

- Björn Ívar


Glæsilegur íslenskur sigur gegn Englandi í kvennaflokki

P1040458

Íslenski landsliðshópurinn brást við mótlæti gærdagsins af mikilli fagmennsku þegar 3.umferð var tefld í Kristalhöllinni í Baku, Aserbaísjan. Undirbúningur var markviss og einbeiting skein úr hverju andliti þegar skákklukkurnar voru settar í gang klukkan þrjú að staðartíma. Uppskeran varð 6 vinningar í 8 skákum. Kvennaliðið gerði sér lítið fyrir og lagði sterkt lið Englands 2,5-1,5, á meðan karlaliðið gjörsigraði Sýrland 3,5-0,5.

Björn Ívar Karlsson, landsliðseinvaldur kvennaliðs Íslands, var hvergi banginn er liðið settist að tafli gegn Englandi í dag, þrátt fyrir stóran skell gegn Ítalíu í gær. Þó lið Englands væri mun stigahærra á öllum borðum þá var ekki að sjá að Björn Ívar óttaðist annan skell. Viðureignin byrjaði ekki vel því Hrund Hauksdóttir varð að játa sig sigraða á 4.borði og England því komið yfir 1-0. Lenka Ptacnikova (2159) stýrði hvítu mönnunum eins og herforingi á 1.borði gegn hinni stigaháu Jovanka Houska (2396) og gerði sér lítið fyrir og vann skákina. Staðan var því 1-1 þegar Hallgerður H. Þorsteinsdóttir (2015) snéri laglega á andstæðing sinn og vann. Það kom því í hlut reynsluboltans, Guðlaugar Þorsteinsdóttur (2046), að tryggja stigin tvö með því að gera jafntefli með svörtu á 2.borði gegn alþjóðlega meistaranum Dagne Ciuksyte (2323). Sannarlega glæsilegur sigur hjá íslenska liðinu.

Landslið Íslands í opnum flokki beit í skjaldarrendur í dag og gjörsigraði lið Sýrlands. Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Bragi Þorfinnsson unnu sínar skákir, og Jóhann Hjartarson gerði jafntefli.

4.umferð hefst á morgun klukkan 11 að íslenskum tíma. Ísland mætir Færeyjum í opnum flokki en Moldavíu í kvennaflokki.

 

 


Stórt start: Stefán Bergsson startmeistari

stebbi_be_1291485Efnt var til skákveislu í Höllinni í gær, rétt fyrir leik KA og Selfoss. Margir SA-menn styðja KA, en þó eru dæmi um annað og m.a. eru stuðningsmenn Hugins (Seyðisfirði) mjögsvo velkomnir á mót félagsins!

Í þetta sinn mættu 30 keppendur til leiks í upphafi móts, en nokkrir kusu að ljúka keppni eftir þrjár skákir, eins og heimilt var. Hinir héldu áfram og voru sérlega grimmir. Þrír voru jafnir fyrir síðustu umferð en efti magnaða úrslitaskák náði S Steingrímur Bé að hrifsa til sín efsta sætið og hefur hann nú á einni viku unnið tvö helstu hraðskákmót norðan heiða.  Það er því ljóst sð þessi drengur hefur ekkert að gera til Reykjavíkur. 

Lokastaðan var þessi:

1. Stefán Bergsson      6

2-6. Gylfi Þórhallsson, Jón Kristinn Þorgeirsson, Smári Ólafsson, Andri Freyr Björgvinsson og Elsa María Kristínardóttir 5

7. Sigurður Eiríkisson 4,5

8. Haraldur Haraldsson 4

9-11. Hjörleifur Halldórsson, Ulker Gasanova og Hjörtur Steinbergsson 3,5

Aðrir fengu aðeins minna 


Björn Ívar: Ánægður með byrjanataflmennskuna

Björn Ívar Karlsson, landsliðseinvaldur Íslands í kvennaflokki, var að vonum svekktur eftir 0-4 ósigur gegn sterkri sveit Ítalíu í 2.umferð. Björn Ívar var ánægður með upphaf skákanna og stöðurnar sem fengust eftir byrjanirnar. "Stöðurnar snérust flestar við á einum tímapunkti í miðtaflinu og þá fór að saxast á tímann hjá okkur. Við getum aðeins bætt tímanotkunina fyrir næstu viðureign."

Ísland mætir Englandi í kvennaflokki í dag og má búast við hörkuviðureign en enska liðið er mun stigahærra á öllum borðum.


Viðtal við Ingvar Þór eftir 4-0 sigur gegn Eþíópíu

Ingvar Þór Jóhannesson, landsliðseinvaldur Íslands í opnum flokki, gaf kost á viðtali eftir þægilegan 4-0 sigur gegn Eþíópíu í 1.umferð.


Bakú-pistill forseta nr. 3: Forsetanum vísað út!

P1040417

Það gekk ekki vel í annarri umferð Ólympíuskákmótsins. Einn vinnur af átta kom í hús. Það var reyndar mjög góður vinningur. Hjörvar Steinn Grétarsson vann glæsilegan sigur á Tékkanum sterka, Viktor Laznika. Aðrar skákir töpuðust. Kvennaliðið tapaði 0-4. Liðsstjórarnir hafa farið betur yfir gang mál

Í dag mæta karlarnir liði Sýrlands sem hefur meðalstigin 2241 á móti 2527 hjá okkur mönnum. Gummi hvílir. Sýrlandi höfum við aldrei mætt áður á Ólympíuskákmóti.

Clipboard04

Bein útsending frá viðureign dagsins

Kvennaliðið mætir liði Englands. Veronika hvílir aftur. Þar hallar verulega á okkur stigalega séð. Meðalstigin íslenska liðsins eru 2003 á meðan enska kvennaliðið hefur að meðaltali 2236 skákstig. Við höfum mætt Englendingum tvisvar áður. 1982 og 2010. Í Khanty Mansiesk 2010 vanst frækinn og mjög óvæntur 3-1 sigur á þeim ensku þar sem Lenka, Hallgerður og Sigurlaug unnu sínar skákir. Íslendingar voru mun stigalægri á öllum borðum.  Ég sé að ég hef þá talað þá um liðið hafi “jafnvel náð besta árangri íslensks kvennaliðs á Ólympíuskákmóti”.

Clipboard06

Bein útsending frá viðureign dagsins

Skipulagning Aseranna er almennt góð á mótinu. Einstaka hnökrar eru þó til staðar og snúa þeir helst að aðgangsmálum. Mér og reyndar fleirum finnst mótshaldarar og FIDE taka anti-cheating full langt. Þótt koma verði fyrir svindl með öllum tiltækum ráðum má það ekki vera til þess að skákin og fjölmiðlaumfjöllun líði of mikið fyrir það. 

Margir liðsstjórar mótmæltu því í gær að tilkynna þurfi í hvert skipti sem farið er á klósettið eins og lesa má um á Chess24. Sömuleiðis hafa menn verið að vandræðum að taka myndir eins og lesa má um á Chess.com. Eins og Peter Doggers bendir á í þeirri grein:

No other major sporting event in the world seems so restrictive with the press, making it difficult to highlight the major stories, people, and subplots of the competition. Organizers of the Olympiad, so far, are preferring to suspend access to what should be one of the most interesting and feature-rich worldwide chess events.

Í fyrstu umferð komst ég sjálfur ekki inní nema áhorfendasvæðið. Þar var ég myndavélalaus. Ég gafst upp og dreif mig uppá hótel.

Í gær tókst mér að herja út blaðamannapassa eftir mikið japl, jamm og fuður. Þegar ég komst loks inn í skáksalinn var korterið liðið og ég náði aðeins að taka 3 myndir af karlaliðinu áður en skákstjóri stöðvaði mig. Það að komast inn reyndist mjög skammgóður vermir.

Eftir 45 mínútur kom nefnilega mjög ábúðarfullur öryggisvörður og vísaði mér út! Ég mátti víst ekki vera lengur inní skáksalnum. Við sem eru FIDE-fulltrúar eru vanir því að fá góðan og mikinn aðgang. Því er ekki fyrir að fara hér. Heldur betur ekki!

Aserarnir eru mjög strangir og hlýða greinilega fyrirmælum mjög nákvæmlega. Það lýsir þeim eiginlega mjög vel að ég gær þá ætlaði Joanna Golas, sem er ein æðsta manneskja mótshaldaranna, að hleypa mér inn bakdyra meginn en öruggsvörðurinn sem hún talaði við hlustaði ekkert á hana. Sagði henni að ég hefði ekki viðeigandi aðgang og fengi ekki fara inn! Og þar við sat.

Mér skilst hins vegar að þessu verði kippt í liðinn í dag og að við munum fá fullan aðgang að skákstaðnum. Sjáum til!

Umferð dagsins hefst kl. 11.

Áfram Ísland!

Kveðja frá Bakú,
Gunnar Björnsson


Íslandsmót öldunga 65+ fer fram á laugardaginn

ÍSLANDSMÓT ÖLDUNGA 65 ÁRA OG ELDRI -005

Íslandsmót öldunga  65 ára og eldri  verður haldið laugardaginn 10. september  nk. í Ásgarði, félagsheimili  FEB að Stangarhyl.  Að þessu sinni standa báðir skákklúbbar eldri borgara á Höfuðborgarsvæðinu, RIDDARINN og ÆSIR, sameiginlega að mótinu, sem áður hefur farið fram á vegum hins fyrrnefnda í Hafnarfirði.

Þetta er í þriðja sinn sem slíkt Íslandsmót með atskákarsniði fer fram í þessum aldursflokki.

Tefldar verða 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma auk  3 sekúndna viðbótartíma á leik. Fjórar umferðir verða tefldar fyrir hádegi en lokaumferðirnar fimm eftir hádegisverðarhlé.

Mótið hefst kl. 10 árdegis og lýkur um kl. 16.30  með verðlaunaafhendingu. 

Þátttökugjald er kr. 1000 og innifelur kaffi, svaladrykki og snarl meðan á móti stendur. Björgvin Víglundsson er núverandi Íslandsmeistari og  hefur unnið mótið í bæði skiptin sem það hefur verið haldið.  

Aðalverðlaun mótsins er kr. 50.000 ferðastyrkur á Norðurlandamótið í skák í Sastamala, Finnlandi, 22. -30. október nk.  Auk verðlaunagripa sem gefnir eru af Sportvöruverzluninni JÓA ÚTHERJA, verða veitt vegleg bókaverðlaun og aldursflokkaviðurkenningar (65-70; 71-75; 76-80; 81 og eldri). Vænst er góðrar þátttöku sem víðast hvar að af landinu.  

Mótsnefndina skipa fulltrúar "Öðlinganefndar SÍ" þeir: Einar S. Einarsson, formaður; Finnur Kr. Finnsson; Guðfinnur R. Kjartansson; Sigurður E. Kristjánsson og Össur Kristinsson.

Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér

 


Ólympíuskákmótið: 2. umferð í opnum flokki

P10404152. umferð í opnum flokki fór ekki vel fyrir íslensku liðin og raunin varð sú að Hjörvar Steinn Grétarsson var sá eini í öllum flokkum sem náði í vinning.

Tékkarnir eru vissulega sterkir á pappírnum. Á fyrsta borði beið okkar hinn ígulsterki David Navara sem er að bjóða upp á skákstig yfir 2740 þessa dagana. Á öðru borði er grjótharður Laznicka með rúm 2650 skákstig. Því var ljóst að við ramman reip var að draga. 

Ákveðið var að stilla upp liðinu á eftirfarandi hátt:

1. Hannes - 2. Hjörvar - 3. Jóhann - 4. Guðmundur. 

Semsagt, aðalliðið var á boðstólnum þar sem þetta var fyrsta alvöru viðureignin okkar á þessu móti með fullri virðingu fyrir Eþíópíu.

Fyrir umferðina voru menn bjartsýnir og jafnvel að vonast eftir frammistöðu á þessum nótunum frá Tékkunum:

 

1. borð: Navara - Hannes

Hér var ljóst að Hannes ætti erfiðara skák fyrir höndum. Navara hefur verið að vinna sig upp skákstigalistann enn og aftur og nálægt sínu besta formi. Þar að auki var Hannes með svörtu mennina. Á boðstólnum var e3 afbriðgið í Nimzanum.

Ol2016_Ice_Cze_1_1

Þótt að svartreita-biskupinn sé verri á d2 en í hefðbundnu drottningabragði er hvítur töluvert á undan í liðsskipan.

Ol2016_Ice_Cze_1_2

Hannes vildi meina eftir skákina að lykilmistökin hefðu verið ...Be5 leikurinn og taflið hefði verið erfitt eftir það. Hannes þurfti að taka á sig stakt peð og hvítur hafði mjög þægilegt tafl.

Ol2016_Ice_Cze_1_3

Því miður reyndist það auðvelt fyrir Navara-reiknivélina að vinna úr stöðunni. Loks var komið að the "deathblow" í stöðunni að ofan.

Hér var náðarhöggið 32.Hxd5! 

Góð skák hjá Íslandsvininum Navara þó við hefðum kosið að hún kæmi á öðrum tíma.

2. borð Hjörvar - Laznicka

Í undirbúningi kom í ljós að Laznicka var mest í hollenskri vörn. Hjörvar var hinsvegar spakur og benti á að líklegast væri að hann yrði meira "solid" í liðakeppni og myndi tefla eitthvað á borð við móttekið drottningarbragð með ...dxc4. Lundin hjá liðsstjóra var því nokkuð góð þegar 2...dxc4 kom á borðið.

Lundin var ekki jafn létt þegar svartur lék 18...g5 og var með VIÐBÓTARTÍMA á klukkunni!

Ol2016_Ice_Cze_2_1

Laznicka var semsagt með meiri tíma á klukkunni en þegar hann hóf skákina þegar hann "úðaði" út 18..g5. Þar sem mjög erfitt er að átta sig á hvur fjandinn er eiginlega í gangi í þessari stöðu var undirritaður skiljanlega skíthræddur um að Hjörvar væri hér að lenda í einhverjum tölvustúderingum og væri því í vondum málum.

Hjövar hinsvegar brást vel við og aðeins tveim leikjum síðar var komið að Laznicka að hugsa sig um í yfir 40 mínútur.

Ol2016_Ice_Cze_2_2

Eftir 25.Re3 var mér ljóst að svartur hafði ekki neinar bætur og Hjörvar stæði líklegast til vinnings hér. 25..Ha1+ lítur út fyrir að vera hættulega en hinn einfaldi 26.Rcd1 stoppar allt og svarutr ræður ekki við Rxc4 og Hb8+. Á þessum tímapunkti fannst mér Gummi vera að snúa stöðunni sér í hag og því þónokkur bjarstýni hjá mér á þessum tímapunkti.

Þrátt fyrir aö töluverð úrvinnsla væri eftir þá var niðurstaðan sú að Hjörvar var peði yfir og þetta peð var hættulegt frípeð á b-línunni sem réði úrslitum í skákinni.

 

3.borð: Babula - Jóhann

Babula kom Jóhanni á óvart með Bf4 afbrigðinu í drottningaindverja. Anthony heitinn Miles var þekktur fyrir að beita þessu afbrigði.

Jóhann vissi að ...c5 væri krítíkasti varíanturinn þar sem Helgi Áss Grétarsson átti m.a. góða sigurskák gegn Jóhanni á Íslandsmóti í atskák fyrir einhverjum árum. Jóhann hafði hinsvegar ekki litið á þennan varíant í einhvern tíma og ákvað frekar að tefla traust.

Ol2016_Ice_Cze_3_1

Hér var Jóhann ekki ánægður með ...a4 leikinn. Vildi meina að það hefðu verið fyrstu mistökin og svo hefði hann ekki átt að leyfa d5 og því að drepa á d4. Þess í stað taldi Jóhann taflið hartnær strategískt tapað og reyndist vörnin mjög erfið og á endanum þurfti að leggja niður vopn.

Skákin minnti Jóhann á skák með skiptum litum þar sem Jóhann hafi hvítt gegn Miso Cebalo sem einmitt lék ...a4 í nánast eins stöðu og þurfti að þjást mjög lengi.

4. borð: Guðmundur - Plat

Guðmundur beitti afbrigði sem Milorad Knezevic beitti á sínum tíma með e3 og svo Db3. Guðmundur hafði m.a. búist við Grunfeld og treyst á þetta afbrigði en því miður virtist hann ekki koma að tómum kofanum hja Plat.

Plat jafnaði taflið og fékk líklega aðeins betra. Gummi var hinsvegar ekkert að gefa eftir, varðist vel og var við það að hrifsa frumkvæðið þegar hann missti tökin.

Ol2016_Ice_Cze_4_1

Hér hefði Gummi í stað 20.Hc6? getað fengið betri stöðu með 20.Rd3 sem stoppar ...e5 framrásina (og valdar f2) og síðan hefði verið hægt að vinda sér í aðgerðir á c-línunni.

Þess í stað opnaði svartur stöðuna með ...e5 og hvítur lenti í vandræðum sem kostuðu skiptamun og skákina alltof fljótt.

 

Úrslitin því vonbrigði 1-3 en eins og oft er stutt milli hláturs og gráturs. Með smá heppni hefðu úrslitin getað orðið allt önnur.

Pörun 3. umferðar kom okkur nokkuð á óvart en þar mætum við sveit Sýrlendinga sem skartar mönnum með yfir 2200 stig. Á pappírunum ætti þetta að vera auðveldur vinningur en eins og menn vita hafa pappírar aldrei unnið neitt. Við munum því stíga fast til jarðar og stilla upp sterkri sveit og ekkert nema vinningur sem kemur til greina.

- Ingvar Þór Jóhannesson: Liðsstjóri í opnum flokki. 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.7.): 4
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 8778727

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 85
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband