Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íslendingar erlendis

Henrik og Björn töpuðu í níundu umferð

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2482) og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2422) töpuðu báðir í níundu umferð Scandinavian Open, sem fram fór í dag í Kaupmannahöfn.  Henrik fyrir úkraínska stórmeistaranum Yuri Drozdovskij (2603) en Björn fyrir indversku skákkonunni Tania Sachdev (2423).  Henrik hefur 4,5 vinning og er í 7.-12. sæti en Björn hefur 4 vinninga og er í 13.-16. sæti.  

Drozdovskij (2603) og þýski alþjóðlegi meistarinn Thorsten Michael Haub (2448) eru efstir með 7 vinninga.  Sá síðarnefndi náði þar með í stórmeistaraáfanga.  Þriðji, með 6 vinninga, er danski stórmeistarinn Carsten Höi (2387).

Tíunda og næstsíðasta umferð hófst kl. 16.  Þar teflir Henrik við bosníska FIDE-meistarann Jasmin Bejtovic (2306) en Björn við danska FIDE-meistarann Stefan Christensen (2313).

Heimasíða mótsins

Henrik og Björn unnu báðir í áttundu umferð

Henrik að tafli í LúxStórmeistarinn Henrik Danielsen (2482) og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2422) unnu báðir í áttundu umferð Scandinavian Open, sem fram fór í dag í Kaupmannahöfn.  Henrik vann  danska alþjóðlega meistarann Simon Bekker-Jensen (2411) en Björn lagði úkraínsku skákkonuna Natalia Zdebskaja (2438), sem er stórmeistari kvenna.   Henrik hefur 4,5 vinning og er í 5.-9. sæti en Björn hefur 4 vinninga og er í 10.-11. sæti.  

Úkraínski stórmeistarinn Yuri Drozdovskij (2603) og þýski alþjóðlegi meistarinn Thorsten Michael Haub (2448) eru efstir með 6 vinninga.  Þriðji er sænski alþjóðlegi meistarinn Hans Tikkanen (2425) með 5,5 vinning. 

Frídagur er á morgun en í níundu umferð, sem fram fer á laugardag, teflir Henrik við Drozdovskij en Björn við heldur áfram í stórmeisturum kvenna og teflir við indversku skákkonuna Tania Sachdev (2423).

Heimasíða mótsins

Björn gerði jafntefli í Köben

Björn ÞorfinnssonAlþjóðlegi meistarinn, Björn Þorfinnsson (2422), gerði jafntefli við  Finnann Olli Sisattö (2286) í sjöundu umferð Scandinavian Open sem fram fór í kvöld.  Henrik Danielsen (2482) gerði jafntefli við sænska alþjóðlega meistarann Nils Grandelius (2491).  Henrik hefur 3,5 vinning og er í 9.-10. sæti en Björn hefur 3 vinninga og er í 11.-16. sæti.

Efstur með 5½ vinning er úkraínski stórmeistarinn Yuri Drozdovskij (2603) og annar er þýski alþjóðlegi meistarinn Thorsten Michael Haub (2448) með 5 vinninga.  

Í áttundu umferð, sem fram fer í fyrramálið, teflir Henrik við danska alþjóðlega meistarann Simon Bekker-Jensen (2411) en Björn við úkraínsku skákkonuna Natalia Zdebskaja (2438), sem er stórmeistari kvenna. 

Heimasíða mótsins


Henrik vann Björn

HenrikStórmeistarinn Henrik Danielsen (2482) vann Björn Þorfinnsson (2422) í sjöttu umferð Scandinavian Open sem fram fór í dag í Kaupmannahöfn.  Henrik hefur 3½ vinning og er í 5.-9. sæti en Björn hefur 2½ vinning og er í 13.-16. sæti.

Efstir með 4½ vinning eru eru þýski alþjóðlegi meistarinn Thorsten Michael Haub (2448) og úkraínski stórmeistarinn Yuri Drozdovskij (2603).

Í sjöundu umferð, sem hófst nú kl. 16, teflir Henrik við sænska Eyjapeyjann Nils Grandelius (2491) en Björn teflir við  Finnann Olli Sisattö (2286).

Heimasíða mótsins


Björn sigraði í fimmtu umferð

BjörnAlþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2422) vann sína aðra skák í röð er hann sigraði bosníska FIDE-meistarann Jasmin Bejtovic (2306) í fimmtu umferð Scandinavian Open, sem fram fór í dag, í Kaupmannahöfn.  Henrik Danielsen (2482) tapaði hins vegar fyrir pólska stórmeistaranum Miroslaw Grabarczyk (2469).  Báðir hafa þeir 2½ vinning og eru í 8.-14. sæti.  Þeir mætast í fimmtu umferð, sem fram fer í fyrramálið. 

Efstir með 4 vinninga eru þýski alþjóðlegi meistarinn Thorsten Michael Haub (2448) og úkraínski stórmeistarinn Yuri Drozdovskij (2603).

Heimasíða mótsins


Björn sigraði í fjórðu umferð

Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2422) vann Danann Bo Jackobsen (2325) í fjórðu umferð Scandinavian Open sem fram fór í Kaupmannahöfn í dag.  Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2482) gerði jafntefli við forystusauðinn þýska alþjóðlega meistarann Thorstein Michael Haub (2448).  Henrik hefur 2,5 vinning og er í 4.-8. sæti en Björn hefur 1,5 vinning og er í 14.-18. sæti.  

Efstir með 3 vinninga eru Haub, úkraínski stórmeistarinn Yuri Drozdovskij (2603) og sænski Eyjamaðurinn Nils Grandelius (2491).  

Í fimmtu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Henrik við pólska stórmeistarann Miroslaw Grabarczyk (2469) en Björn við bosníska FIDE-meistarann Jasmin Bejtovic (2306).  

Heimasíða mótsins


Henrik vann í þriðju umferð

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2482) vann sænska alþjóðlega meistarann Axel Smith (2383) í þriðju umferð Scandinavian Open, sem fram fór í dag í Kaupmannahöfn.  Björn Þorfinnsson (2422) tapaði fyrir danska stórmeistarann Carsten Höi (2387).  Henrik hefur 2 vinninga og er í 2.-9. sæti en Björn hefur ½ vinning og er í 18.-19. sæti.  

Þýski alþjóðlegi meistarinn Thorstein Michael Haub (2448) er efstur með 2½ vinning.  Í fjórðu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Henrik við Haub en Björn teflir við Baunann Bo Jackobsen (2325). 

 

Heimasíða mótsins

Hrund í 2. sæti á NM stúlkna!

HrundHrund Hauksdóttir endaði í öðru sæti í sínum aldursflokki á Norðurlandamóti stúlkna sem lauk í dag í Stokkhólmi.  Hrund hlaut 3½ vinning og varð í 2.-3. sæti en hafði 2. sætið eftir stigaútreikning.   Jóhanna Björg Jóhannsdóttir varð í 3.-5. sæti en endaði í fimmta sæti eftir stigaútreikning.  

Lokastaða íslensku stúlknanna er sem hér segir:

A-flokkur:

  • 4.-7. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 2½ v.
  • 8.-9. Elsa María Kristínardóttir 2 v.

B-flokkur:

  • 3.-5. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 3 v.
  • 6.-7. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir 2½ v.

C-flokkur:

  • 2.-3. Hrund Hauksdóttir 3½ v. (í 2. sæti eftir stigaútreikning)
  • 11. Hulda Rún Finnbogadóttir 1 v.

Helgi Ólafsson var liðsstjóri íslensku sendinefndarinnar. 


Henrik vann í 2. umferð

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2482) vann Finnann Olli Sisattö (2286) í 2. umferð Scandinavian Open sem fram fór í Köben í morgun.  Björn Þorfinnsson (2422) gerði jafntefli við sænska alþjóðlega meistarann Axel Smith (2383).   Henrik hefur 1 vinning en Björn hefur 0,5 vinning.  Í 3. umferð, sem hefst kl. 16, mætir Henrik Axel en Björn teflir við danska stórmeistarann Carsten Höi (2387).

Þýski alþjóðlegi meistarinn Thorstein Michael Haub (2448) er efstur með 2 vinninga. 

Hægt er að fylgjast með skákunum beint á vefsíðu mótsins.  

Heimasíða mótsins

Hallgerður í 2.-6. sæti á NM stúlkna

 

Elsa, Jóhanna og Geirþrúður

Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1951) er í 2.-6. sæti með 2 vinninga eftir 3 umferðir á NM stúlkna á sem fram fer um helgina í Stokkhólmi.  Hallgerður teflir í a-flokki.  Staða íslensku stúlknanna er sem hér segir:

 

 

 

A-flokkur:

  • 2.-6. Hallgerður Helga 2 v.
  • 7.-9. Elsa María 1 v.

B-flokkur:

  • 5.-6. Jóhanna Björg 1½ v.
  • 7.-8. Geirþrúður Anna 1 v.

C-flokkur:

  • 5.-8. Hrund 1½ v.
  • 11.-12. Hulda Rún 0 v.

Í dag lýkur mótinu með 4. og 5. umferð  Á heimasíðu mótsins er valdar skákir sýndar beint.  Nú eru m.a. skákir Hallgerðar, Jóhönnu, Geirþrúðar og Hrundar sýndar beint.  Hrund hefur þegar sigrað í sinni skák.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 37
  • Sl. viku: 132
  • Frá upphafi: 8778490

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 94
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband