Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íslendingar erlendis

Henrik og Björn töpuðu

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2482) og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2422) töpuðu báðir sínum skákum í fyrstu umferð Scandinavian Open, sem fram fór í gær í Köben.   Henrik fyrir sænska FIDE-meistarann Daniel Semcesen (2387) en Björn fyrir danska FIDE-meistarann Daniel Vesterbæk Pedersen (2251).  Fall er fararheill!

Í dag eru tefldar tvær skákir og hófst sú fyrri kl. 9.  Henrik teflir við Finnann Olli Sisattö (2286) og Björn við sænska alþjóðlega meistarann Axel Smith (2383).

Hægt er að fylgjast með skákunum beint á vefsíðu mótsins.  

Heimasíða mótsins

Henrik og Björn tefla í Köben

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2482) og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson taka báðir þátt í Scandinavian Open sem hefst í Kaupmannahöfn á laugardag.   Alls taka 20 skákmenn þátt og þar af fjórir stórmeistarar.

Í fyrstu umferð teflir Henrik við sænska FIDE-meistarann Daniel Semcesen (2387) en Björn við danska FIDE-meistarann Daniel Vesterbæk Pedersen (2251).

Heimasíða mótsins


Guðmundur tapaði í 11. umferð

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2365) tapaði fyrir ungverska alþjóðlega meistaranum Miklos Galyas (2456) í 11. og síðustu umferð First Saturdays-mótsins sem fram fór í Búdapest í dag.  Guðmundur hlaut 2 vinninga og varð neðstur.

Árangur hans samsvarar 2221 skákstigi og lækkar hann um 26 skákstig fyrir frammistöðu sína. 

Ungverski alþjóðlegi meistarinn Gyula Pap (2468) varð efstur með 7 vinninga og náði áfanga að stórmeistaratitli.  

Guðmundur tefldi í SM-flokki og var stigalægstur keppenda.  Meðalstigin voru 2452 skákstig.

First Saturday-mótið


Guðmundur tapaði í tíundu umferð

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2365) tapaði fyrir finnska alþjóðlega meistaranum Mikael Agopov (2433) í tíundu og næstsíðustu umferð First Saturdays-mótsins, sem fram fór í gær.  Guðmundur hefur 2 vinninga og er neðstur. 

Ungverski alþjóðlegi meistarinn Gyula Pap (2468) er efstur með 6,5 vinning. 

Guðmundur teflir í SM-flokki og er stigalægstur keppenda.  Meðalstigin eru 2448 og til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf Guðmundur 5 vinninga í 10 skákum.  

First Saturday-mótið


Guðmundur tapaði í níundu umferð

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2365) tapaði fyrir ungverska alþjóðlega meistaranum Gyula Pap (2468) í níundu umferð First Saturdays-mótsins sem fram fór í gær.  Guðmundur hefur 2 vinninga, í átta skákum, og rekur lestina.

Pap (2468) er efstur með 6,5 vinning. 

Guðmundur teflir í SM-flokki og er stigalægstur keppenda.  Meðalstigin eru 2448 og til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf Guðmundur 5 vinninga í 10 skákum.  

First Saturday-mótið


Guðmundur vann í sjöundu umferð

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2365) er kominn í gang eftir slaka byrjun á First Saturday-mótinu, sem fram fer í Búdapest.  Í sjöttu umferð gerði hann jafntefli við ungverska stórmeistarann Zoltan Varga (2488) og í sjöundu umferð vann hann serbneska stórmeistarann Dragan Kosic (2521).  Guðmundur situr yfir í áttundu umferð sem fram fer í dag.

Guðmundur hefur 2 vinninga og er í 10.-11. sæti.  Ungverski alþjóðlegi meistarinn Gyula Pap (2468) er efstur með 5 vinninga. 

Guðmundur teflir í SM-flokki og er stigalægstur keppenda.  Meðalstigin eru 2448 og til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf Guðmundur 5 vinninga í 10 skákum.  

First Saturday-mótið


Guðmundur tapaði í fimmtu umferð

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2365) tapaði fyrir víetnamska alþjóðlega meistaranum Huynh Minh Huy (2465) í fimmtu umferð First Saturdays-mótsins sem fram fór í gær.  Guðmundur hefur ½ vinning og er í ellefta sæti.  

Guðmundur teflir í SM-flokki og er stigalægstur keppenda.  Meðalstigin eru 2448 og til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf Guðmundur 5 vinninga í 10 skákum.  

First Saturday-mótið


Guðmundur með jafntefli í fjórðu umferð

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2365) gerði jafntefli við ungverska alþjóðlega meistarann Imre Balog (2431) í fjórðu umferð First Saturdays-mótsins, sem fram fór í gær.  Guðmundur hefur ½ vinning.

Guðmundur teflir í SM-flokki og er stigalægstur keppenda.  Meðalstigin eru 2448 og til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf Guðmundur 5 vinninga í 10 skákum.  

First Saturday-mótið


Guðmundur tapði í þriðju umferð

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2365) tapaði fyrir víetnamska alþjóðlega meistaranum Huynh Minh Huy Nguyen (2465) í þriðju umferð First Saturday-mótsns sem fram fór í gær.  Guðmundur er enn ekki kominn á blað.

Guðmundur teflir í SM-flokki og er stigalægstur keppenda.  Meðalstigin eru 2448 og til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf Guðmundur 5,5 vinning í 11 skákum.  

First Saturday-mótið


Guðmundur tapaði í 2. umferð

Guðmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2365) tapaði fyrirungverska FIDE-meistaranum Richard Rapport (2371) í 2. umferð First Saturdays-mótsins, sem fram fór í gær.  Guðmundur er ekki kominn á blað.

Guðmundur teflir í SM-flokki og er stigalægstur keppenda.  Meðalstigin eru 2448 og til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf Guðmundur 5,5 vinning í 11 skákum.  

First Saturday-mótið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 14
  • Sl. sólarhring: 34
  • Sl. viku: 144
  • Frá upphafi: 8778502

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 102
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband