Bloggfćrslur mánađarins, september 2016
2.9.2016 | 07:00
Ljósanćturmót HS Orku fer fram á morgun
Skákfélag Reykjanesbćjar í samstarfi viđ HS Orku halda Ljósanćturmót laugardaginn 3.sept kl.13:00. Tefldar verđa 11 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma og í einum opnum flokki. Stađsetning í Njarđvíkurskóla og skráning hér ađ ofan í gula kassanum. Lokađ verđur fyrir skráningu ef fjöldi fer yfir 80 keppendur.
Verđlaunarfé frá HS Orku er 100.000 kr. og mun deilast.
- 1.verđlaun 40.000 kr.
- 2.verđlaun 25.000 kr.
- 3.verđlaun 15.000 k.r
Sérstök unglingarveđlaun fyrir 14 ára og yngri 10.000 kr. og fyrir óvćntustu úrstlitin 10.000 kr.
Mćting 12:45 og stađfesta skráningu hjá Palla
Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Mótstjóri verđur Páll Sigurđsson
Spil og leikir | Breytt 30.8.2016 kl. 13:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2016 | 06:31
Eţópía og Maldvíeyjar í fyrstu umferđ - Reynsluboltarnir hvíla í dag
Eţíópía og Maldíveyjar verđa andstćđingar Íslands í fyrstu umferđ Ólympíuskákmótsins sem hefst kl. 11 í dag. Bćđi liđin eru mun veikari en íslensku liđin á pappírnum.
Hjá körlunum hvílir Jóhann Hjartarson en hjá konunum hvílir Guđlaug Ţorsteinsdóttir.
Umferđ dagsins
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 06:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2016 | 06:11
Flest eftir bókinni í annarri umferđ á Meistaramóti Hugins
Önnur umferđ í Meistaramóti Hugins sem lauk í kvöld var jafn róleg og tíđindalítil og sú fyrsta var viđburđarríka. Sá sem var stigahćrri vann ađ jafnađi ţann stiglćgri nema í skák ţeirra Óskars Víkings Davíđssonar (1666) og Stephan Briem (1569) ţar sem sćst var á skiptan hlut. Miđađ viđ reynslu mína af viđureign viđ Stephn í fyrstu umferđ er spurning hvort telja eigi ţađ óvćnt úrslit. Ţótt úrslitin vćru eftir bókinni ţá var mikil barátta á öllum borđum og engin stutt viđureign nema ţar sem símagambíturinn réđ úrslitum. Ţeir stigalćgri velgdu ţeim stigahćrri undir uggum og gáfum ekki sinn hlut fyrr en í fulla hnefana. Mér sýndist viđ lauslega skođun á viđureignum ađ Mikael Jóhann ţurfa ađ sćkja sigurinn djúpt á móti Ţorsteini Magnússyni og eins komst ég ekki hjá ţví ađ fylgjast međ skákinni á nćsta borđi ţar sem Jón Trausti kreisti vinning út úr skákinni viđ Heimi Pál en ţeir voru síđastir til ađ ljúka umferđinni.
Ađ lokinni annarri umferđ eru fimm skákmenn efstir og jafnir međ 2 vinninga. Ţriđja umferđ fer fram á mánudagskvöldiđ 5. september og hefst kl. 19.30. Eftir ţá umferđ hljóta línur ađ fara ađ skýrast nokkuđ.
Stađan eftir 2 umferđir í chess-results.
1.9.2016 | 21:37
Glćsileg setningarathöfn veislan hefst kl. 11 í fyrramáliđ.
Opnunarhátiđ Ólympíuskákmótsins í Bakú var einkar glćsileg í kvöld. Greinilegt ađ Aserar hafa lagt mikla vinnu og peninga í mótiđ. Međal viđstaddra var Ilham Aliyev forseti landsins. Ţađ var athyglisvert vart ađ hlusta á setningu mótsins en rćđuhöld gengu mikiđ ađ upphefja hans og föđur hans Heydar Aliyev, fyrrum forseta landsins og ţeirra afrek viđ uppbyggingu skáklífs.
Og ţađ eiga ţeir fyllilega skilađ. Núverandi forseti landsins og hefur stađiđ sem klettur á bakviđ aserskt skáklíf og pabbinn, sem er algjör ţjóđhetja hér, stóđ einnig mjög ţétt á bakviđ skáklífiđ á međan hann lifđi. Skilst mér međal annars á frásögnum ţeirra sem til ţekkja ađ hann hafi tekiđ Kasparov uppá sína arma útvegađ honum ţjálfara og húsnćđi ţegar hann var ungur. Fengiđ honum allt til sem til ţurfti.
Kasparov, sem er ekki ţekktur fyrir ađ ţakka mikiđ fyrir sig, orđađi ţađ svo síđar í viđtali:
I always said that Heydar Aliyev has done a lot for me to become the Champion. He created proper conditions for playing. If not him, maybe I wouldn't become the Champion in 1982 and 1984
Töskuleysi hefur hrjáđ hópinn. Viđ fengum ţeir fréttir í kvöld ađ 9 af 13 töskum hafi skilađ sér. Ekki vitum viđ enn hvađa 9 töskur ţađ eru en ţeim á ađ skila til okkur í kvöld/nótt. Frekar óţćgilegt en verslunareigendur í Bakú hafa notiđ góđs af ţessu af ţessu ástandi. Forseti og varaforseti SÍ fóru t.d. í verslunarleiđangur í dag og keyptu reyndar meira í sumarútsölu í Pierre Cardin en til stóđ.
Verđlagiđ hér er mjög lágt í samanburđi viđ Reykjavík og auđvelt ađ gera góđ kaup. Hluti hópsins notađi daginn til ađ heimsćkja gamla bćinn. Ađrir hvíldu sig og söfnuđu kröftum eftir langt og strang ferđalag og mikinn tímamismun.
Umferđ morgundagsins hefst kl. 11. Ekki liggur enn fyrir hverjir verđa andstćđingar morgundagsins ţrátt fyrir klukkan sé orđin 1:30.
Hćgt verđur ađ nálgast allar upplýsingar um hvernig megi fylgjast međ viđureignum morgundagins á Skák.is. Einnig er bent á Facebook-hópinn Íslenskir skákmenn en ţar verđur vel fylgst međ Ólympíuskákmótinu.
Kveđja frá Bakú,
Gunnar Björnsson
Spil og leikir | Breytt 2.9.2016 kl. 19:38 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2016 | 18:33
Meistaramót Hugins hófst í gćrkvöldi.
Ţađ var engin lognmolla í fyrstu umferđ Meistaramóts Hugins sem hófst í gćrkvöldi. Draumur skákstjórans um rólega og stutta fyrstu umferđ rćttist ekki ţví síđast skák klárđist ekki fyrr en um miđnćtti og sjálfur bar hann nokkra ábyrgđ á ţessu međ ađ vera nćst síđastur til ađ klára.
Ţađ komu tvenn óvćnt úrslit í í fyrstu umferđ. Héđinn Briem vann Dag Ragnarsson í ţeirri skák sem lengst stóđ, eftir ađ Dagur fórnađi manni í jafnteflislegri stöđu. Héđinn var ţegar ţar var komiđ sögu mjög tímanaumur og ţurfti ađ tefla lengi viđ ţćr ađstćđur en reyndist vandanum vaxinn. Hann viđurkenndi samt eftir skákina ađ hann hefđi veriđ orđinn svo skekinn af atganginum ađ hann hefđi veriđ ađ ţví kominn ađ leika peđi afturá bak. Mikael Jóhann Karlsson lék af sé manni á móti Heimi Páli Ranarssyni og ţurfti ađ lúta í lćgra haldi. Vigfús var svo hćtt kominn á móti Stephan Briem en hafđi sigur í tímahrakinu undir lok skákar.
Önnur umferđ verđur tefld í kvöld og hefst kl. 19.30. Ţá mćtast m.a. Aron Ţór Davíđ, Sćvar Jón Eggert og Heimir Páll -Jón Trausti.
Úrslit 1. umferđar í chess-results:
1.9.2016 | 16:58
Kennari verđur skákkennari: Hringferđ hófst á Húnavöllum
Skák eflir skóla - kennari verđur skákkennari hefur hafiđ göngu sína ţetta skólaáriđ. Verkefniđ sem er samstarfsverkefni menntamálaráđuneytisins og Skáksambands Íslands er nú unniđ annađ áriđ í röđ. Inntak verkefnisins er ađ kenna almennum kennurum ađ kenna skák. Tólf skólar víđs vegar af á landinu taka ţátt. Kennsla hófst í skólum á höfuđborgarsvćđinu í fyrstu skólaviku. Helmingur skólanna er á landsbyggđinni og heimsćkir Stefán Bergsson verkefnisstjóri ţá í hringferđ sinni um landiđ í ţessari og nćstu viku. Hringferđin hófst í Húnavallaskóla í Austur-Húnavatnssýslu í morgun. Í Húnavallaskóla sjá Grímur Guđmundsson og Áslaug Inga Finnsdóttir um skákkennsluna. Skákkennslan er kennd í samkennslu fjórđa til sjötta bekkjar; á stundaskrá einu sinni í viku. Grímur sem er smíđakennari og húsvörđur skólans hefur töluverđan skákgrunn en hann var nemandi í Laugalćkjarskóla í skólastjóratíđ Ţráins Guđmundssonar heitins. Í skákkennslunni í morgun kenndi Stefán nemendum og kennurum nokkra skákleiki fyrir nemendur til ađ ćfa sig, fór yfir einföld mátstef og helstu atriđi í byrjun tafls. Í fyrramáliđ verđur Grunnskóli Vestur-Húnavatnssýslu á Hvammstanga heimsóttur.
Suzuki umbođiđ er helsti styrktarađili ferđarinnar.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2016 | 11:00
Ólympíufarinn: Jóhann Hjartarson
Ólympíuskákmótiđ fer fram 2.-13. september nk. í Bakú í Aserbaísjan. Nítján manns verđa í sendinefnd Íslands. Fram ađ móti verđa Ólympíufararnir kynntir - einn á dag.
Sá síđasti sem kynntur til leiks er Jóhann Hjartarson sem teflir á sínu ellefta Ólympíuskákmóti. Hann spáir ţví ađ Bragi Ţorfinnsson verđur ađaltrúđur ferđarinnar í fjarveru Björns bróđur síns og miđađ viđ fréttir gćrdagsins gćti sú spá vel rćst.
Ólympíuskákmótiđ er sett kl. 14:30 í dag. Fyrsta umferđ hefst kl. 11 í fyrramáliđ.
Nafn?
Jóhann Hjartarson.
Aldur?
Yfir međallagi.
Hlutverk?
Tefli á 3. borđi í karlasveitinni
Uppáhalds íţróttafélag?
Fram og F.C. Bayern Munchen
Hvernig er undirbúningi ţínum fyrir mótiđ háttađ?
Stúdera og tefli styttri skákir
Hvenćr tókstu fyrst ţátt á Ólympíuskákmóti og hversu oft hefur ţú tekiđ ţátt?
1980, ţori varla ađ segja ţađ en ţetta er mitt 11. ólympíumót.
Getur ţú nefnt frćgan skákmann fćddan í Bakú?
Ţađ mun vera vinur minn Garry Kimovich
Minnisstćđasta atvik á Ólympíuskákmóti?
Ţegar rafmagniđ fór af keppnishöllinni í Manila 1992 ţegar ég var ađ tefla viđ hinn alrćmda Rúmena Súba og átti einungis 3 mínútur eftir (sá hinn sami og bauđ Ingvari Ásmundssyni jafntefli á biđskákina í Buenos Aires 1978 og kannađist síđan ekkert viđ bođiđ og vann skákina ţví Ingvar hafđi ekki stúderađ hana). Ég skipađi liđsstjóranum ađ lýsa upp skákklukkuna međ tiltćkum ljósfćrum ţví ég var svo hrćddur um ađ hann fćri ađ fikta í klukkunni Skákin endađi í jafntefli eftir harđa baráttu eftir ađ ljósin komu aftur á.
Er Kaspíahafiđ haf eđa stöđuvatn?
Spurđu Wikipedíu.
Minnisstćđa skák á Ólympíuskákmóti og af hverju?
Margar sem koma til greina, ćtli ţađ sé ekki langa skákin viđ Karpov í Dúbć 1986 ţegar ég hélt koltapađri biđskák, einnig skorar grísinn á móti Illescas í síđustu umferđ sama móts nokkuđ hátt ţegar allt gekk okkur í haginn og skilađi 5. sćti.
Hverjar eru ţínar vćntingar/vonir um gengi íslensku liđanna?
Vonandi nćr sveitin ađ sýna sitt besta og ná a.m.k. 20 sćtum hćrra en stigin segja til.
Í ljósi ţess ađ Björn Ţorfinnsson er ekki í Bakú-hópnum hver verđur ađaltrúđur ferđarinnar?
Ţađ hlutverk dćmist ţá á Braga bróđur hans, sömu eđalframsóknargenin frá Löngumýri hjá ţessum snilldarbrćđrum.
Eitthvađ ađ lokum?
Vona ađ allt muni ganga vel og reynslan telji ţótt mađur sé etv. ađ verđa fullgamall til ađ vera ađ standa í ţessu...
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2016 | 06:37
Huginn-b vann Skákgengiđ
Skákgengiđ og Huginn-b áttust viđ í Skáksambandinu í fyrrakvöld í 8-liđa úrslitum hrađskákkeppni taflfélaga. Huginsmenn mćttu til leik skipađir reyndum skákmönnum á efri borđunum en neđri borđin voru setin af yngri kynslóđinni.
Huginn tók snemma forystuna og jók hana jafnt og ţétt ţegar á leiđ. Stađan í hálfleik var 26-10 Huginsmönnum í vil. Viđureigninni lauk svo međ öruggum 56-16 sigri Huginsmanna.
Vinningar Hugins:
- Kristján Eđvarđsson 12 vinningar í 12 skákum
- Sigurđur Dađi Sigfússon 11 vinningar í 12 skákum
- Vigfús Ó. Vigfússon 8,5 vinningar í 11 skákum
- Heimir Páll Ragnarsson 8 vinningar í 12 skákum
- Óskar Víkingur Davíđsson 7 vinningar í 11 skákum
- Ögmundur Kristinsson 6,5 vinningar í 8 skákum
- Stefán Orri Davíđsson 3 vinningar í 6 skákum
Bestir í liđi Skákgengisins voru:
- Páll Ţórsson međ 6 vinninga í 12 skákum
- Haraldur Ingi Kárason međ 5,5 vinningar í 12 skákum
Dregiđ var í undanúrslit hrađskákkeppni taflfélaga, sem eru dagsett 18. september, og ţar mćtast:
- Huginn a SA
- TR a Huginn b
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 1
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 8780629
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 87
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar