Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2016

Sumarsyrpa Breiđabliks 2016

Sumarsyrpa Breiđabliks er međ samskonar fyrirkomulagi og hin vinsćla Bikarsyrpa TR.
Mótiđ er ćtlađ börnum á grunnskólaaldri (fćddum 2000 og síđar) sem ekki hafa náđ 1600 skákstigum. Mótiđ er reiknađ til íslenskra og alţjóđlegra skákstiga.
Tefldar eru 5 umferđir eftir svissneska kerfinu. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţađ margborgar sig ađ vanda sig og nota tímann, en samt má búast viđ ţví ađ margar skákir klárist á styttri tíma.

Dagskrá:

  • Föstudagurinn 5.ágúst :  1 umferđ klukkan 17.30
  • Laugardagurinn 6.ágúst : 2 umferđ klukkan 10.30
  • Laugardagurinn 6.ágúst : 3 umferđ klukkan 14
  • Sunnudagurinn 7.ágúst : 4 umferđ klukkan 10.30
  • Sunnudagurinn 7.ágúst : 5 umferđ klukkan 14

Teflt er í Glersalnum í Stúkunni viđ Kópavogsvöll.


Sigur og jafntefli í dag á Ólympíuskákmótinu

Hong Kong2

Ţađ gekk á ýmsu á ólympíuskákmótinu undir 16 ára í Slóvakíu í dag. Í fyrri umferđ dagsins gerđi sveitin 2-2 jafntefli viđ pólska sveit. Ţar unnu Bárđur Örn Birkisson og Hilmir Freyr Heimisson sínar skákir. Í síđari umferđ dagsins vannst 3-1 sigur á Hong Kong. Ţá unnu Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr sínar skákir.

Úrslit 6. umferđar

Ól16-6


Úrslit 7. umferđar

Ól16-7


Íslenska sveitin hefur 7 stig eftir 7 umferđir og er í 26. sćti. Áttunda og nćstsíđasta umferđ fer fram á morgun og ţá teflir Ísland viđ Belgíu.

Íslenska liđiđ er 32. í styrkleikaröđ 54 liđa. Hverju liđi er skylt ađ hafa eina stúlku liđinu sem tefla skal a.m.k. 3 skákir af 9 á mótinu. Kjartan Maack er liđsstjóri liđsins.


Hjörvar og Einar Hjalti unnu í dag

Hjörvar Steinn

Hjörvar Steinn Grétarsson (2550) og Einar Hjalti Jensson (2371) komu sterkir til baka í dag í sjöttu umferđ Xtracon-mótins (Politiken Cup) í dag eftir töp í gćr. Báđir unnu ţeir sannfćrandi sigra. Hjörvar hefur 5 vinninga en Einar Hjalti hefur 4˝ vinning.

Sjöunda umferđ fer fram á morgun. Ţá teflir Hjörvar viđ alţjóđlega meistarann Kevin Goh Wei Ming (2435) frá Singapore en Einar teflir viđ rússneska stórmeistarann Vladimir Burmakin (2549).

Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir (1815) hefur 3 vinninga og Lárus H. Bjarnason (1516) hefur 1˝ vinning. 

398 skákmenn frá 26 löndum taka ţátt í mótinu. Ţar af eru 27 stórmeistarar. 


Pistill frá Slóvakíu - fyrsti hluti

Ísland - Suđur-Afríka

Kjartan Maack hefur skrifađ pistil um veruna um Ólympíuskákmót 16 ára og yngri. Hér má finna fyrsta hluta pistilsins. Framhald vćntanleg.

-------------- 

Ólympíumót ungmenna yngri en 16 ára fer fram í Poprad, Slóvakíu dagana 22.júlí -29.júlí. Landsliđiđ er ţannig skipađ: 1.Vignir Vatnar Stefánsson (2171) 2.Bárđur Örn Birkisson (2048) 3.Björn Hólm Birkisson (1977) 4.Hilmir Freyr Heimisson (1974) 5.Svava Ţorsteinsdóttir (1313). 

Ferđalagiđ

Ţađ voru nokkuđ lúnir skákmenn sem lentu á flugvellinum í Búdapest laust eftir miđnćtti ađfaranótt 21.júlí. Um tvö leytiđ komum viđ á hóteliđ sem mótshaldarar höfđu útvegađ okkur og stóđ til ađ halda ferđalaginu áfram til Slóvakíu klukkan 9 morguninn eftir.

Hóteliđ lofađi ekki góđu viđ fyrstu sýn, reyndar ekki viđ ađra sýn heldur. Ađalinngangur hótelsins var harđlćstur og ljósin slökkt. Viđ fundum dyrabjöllu og ýttum á hana. Stuttu síđar birti til í anddyrinu og hurđin opnađist. Í dyrunum stóđ hótelstjórinn međ úfiđ hár, hálf lokuđ augu og bara alls ekkert hress. Hann sagđi eitthvađ óskiljanlegt eins atkvćđis orđ og gekk aftur inn, og viđ á eftir. Tók ţá viđ posafarsinn. Korti liđsstjórans var rennt í gegn en posavélin neitađi ađ bregđast viđ međ hefđbundnum hćtti. Nokkur reikistefna skapađist og varđ niđurstađan sú ađ greiđslan hafđi ekki fariđ í gegn. Hressi hótelstjórinn reyndi aftur og aftur og aftur. Og svo aftur. Ţá loks hrökk apparatiđ í gang eđa allt ţar til kom ađ ţví ađ prenta kvittun. Ţá ađgerđ neitađi apparatiđ stađfastlega ađ framkvćma. Hressi hótelstjórinn skipti ţá um pappír og reyndi aftur. Ţá slökkti kerfiđ á sér í hvert sinn sem PIN númeriđ var slegiđ inn. Ţá bankađi hótelstjórinn hraustlega í apparatiđ. Ţá loks spýttist út kvittunin, nema hvađ ţađ stóđ ekkert á henni. Eftir nokkra rannsóknarvinnu kom í ljós ađ pappírsrúllan snéri öfugt í apparatinu. Hressi hótelstjórinn gaf ţá frá sér nokkur hugljúf slavnesk orđ, og eitt enskt; Shit! Allt hafđist ţetta ađ lokum og íslenska liđiđ komst upp á herbergi fyrir klukkan ţrjú. Fóru ţá allir ađ sofa, nema liđsstjórinn sem hringdi umsvifalaust í embćttismenn kortafyrirtćkis síns til ađ kanna hve oft hann hafđi greitt fyrir herbergin fjögur. Kom ţađ ánćgjulega á óvart ađ ađeins hafđi veriđ tekiđ tvisvar af kortinu. Ţegar upp var stađiđ veitti ţetta sérstaka hótel okkur öllum nýja lífsreynslu. Enda hafđi ţađ allt til alls; faxtćki í lobbýinu, hermannabedda til ađ hvílast og bílaverkstćđi undir herbergjunum. Allt hugsađ til ţess ađ herđa landsliđiđ andlega fyrir átökin sem framundan voru.

Klukkan 9 morguninn eftir stóđ íslenska liđiđ međ töskur viđ vegarkantinn og beiđ ţess ađ langferđabíll renndi í hlađ. Klukkan 10 stóđ íslenska liđiđ enn viđ sama vegarkant. Liđsstjórinn hóf ţá ađ grennslast fyrir um orsakir ţessarar seinkunar. Reyndist skýring mótshaldara einföld. Rússnesku bílstjórarnir tveir höfđu villst í Búdapest. Klukkan 11 voru ţeir ennţá villtir. Ţeir renndu loks í hlađ, á fimmtán manna bíl međ tengivagni fyrir ferđatöskur, um klukkan 12. Ţegar rússnesku bílstjórarnir opnuđu hurđina á bílnum valt út allt byrjunarliđ landsliđs Azerbaijan, og varamađurinn líka. Liđsstjórinn lá rćnulítill í öftustu sćtaröđ. Ţeir hresstust eilítiđ viđ ađ fá vatnssopa og gátu ţá lýst raunum sínum. Höfđu ţeir setiđ vatnslausir í ţessum fimmtán manna bakaraofni í 3 klukkustundir. Okkur ţótti nokkuđ vel af sér vikiđ ađ hafa keyrt frá Azerbaijan til Ungverjalands á ađeins ţremur klukkustundum, en komumst fljótt ađ ţví ađ svo var ekki raunin. Ţeir höfđu flogiđ frá heimaslóđum og lent á flugvellinum í Búdapest um morguninn hvar rússnesku bílstjórarnir biđu ţeirra. Ţeir voru sem sagt ţrjár klukkustundir frá flugvellinum ađ hótelinu okkar, leiđ sem viđ fórum nóttina áđur á sjö mínútum. Af ţessu mátti ráđa ađ bílferđin til Slóvakíu myndi ekki ganga snurđulaust fyrir sig.

Á leiđinni til Poprad lentu rússnesku bílstjórarnir upp á kant viđ “konuna” í google maps appinu og virtu ráđ hennar ítrekađ ađ vettugi. Fengum viđ ţví aukalega heila klukkustund um borđ í heitum langferđabílnum; heila klukkustund aukalega af rússneskri dćgurlagatónlist. Á einum tímapunkti er Rússarnir hófu ađ rífast um hvort beygja ćtti til hćgri eđa vinstri ţá mátti heyra einhvern farţegann raula stefiđ úr Klaufabárđunum. Ţegar Poprad skiltiđ loks birtist og ţađ glitti í Tatra fjöllin ţá bentu Rússarnir sigri hrósandi í átt ađ borginni ţar sem viđ ćtluđum ađ tefla 9 skákir á Ólympíumóti ungmenna undir 16 ára. Ţeir höfđu sigrađ konuna í google maps.

Framhald vćntanlegt ţar sem fjallađ verđur um hverja umferđ fyrir sig.

Kjartan Maack.


Oliver vann Jansa - Jón Trausti međ fullt hús

Oliver Aron Jóhannesson (2232) vann tékkneska stórmeistarann Vlastimil Jansa (2411) í 4. umferđ opna tékkneska mótsins (Czech Open) sem fram fór í gćr. Oliver hefur 2˝ vinning. Dagur Ragnarsson (2274) tapađi sinni skák og hefur 2 vinninga. Oliver og Dagur tefla í a-flokki.

Jón Trausti Harđarson (2078) er í banastuđi í b-flokki og hefur fullt hús ásamt ţremur keppendum eftir 4 umferđir. Í gćr vann hann ţýska FIDE-meistarann Johannes Dorst (2215).

Árangur íslensku keppendanna

Czech4

 


Stórsigur gegn Suđur-Afríku

Slóvakía

Íslenska liđiđ á Ólympíuskákmóti 16 ára og yngri sneri aftur međ góđum sigri gegn suđur-afrísku liđi í fimmtu umferđ 4-0 sem fram fór í gćr. Vignir Vatnar Stefánsson, tvíburarnir, Bárđur Örn og Björn Hólm Birkissynir og Hilmir Freyr Heimisson unnu sínar skákir. Sveitin hefur 4 stig eftir 5 umferđir. Frídagur er í dag.

Úrslit 5. umferđar

Ól16-5

 

Í sjöttu umferđ sem fram fer á morgun teflir Ísland viđ pólska sveit.

Íslenska liđiđ er 32. í styrkleikaröđ 54 liđa. Hverju liđi er skylt ađ hafa eina stúlku liđinu sem tefla skal a.m.k. 3 skákir af 9 á mótinu. Kjartan Maack er liđsstjóri liđsins.


Tónar og tafl

Veriđ velkomin í tafl međ ljúfum tónum á Óđinstorgi!

Flemming Viđar Valmundsson harmonikkuleikari verđur á svćđinu og tekur lagiđ.

Gestum og gangandi býđst ađ spreyta sig í tafli á međan ađ ljúfir harmonikkutónar flćđa um torgiđ. Stefán Bergsson frá Skákakademíu Reykjavíkur verđur á stađnum og leiđbeinir ţeim sem hafa áhuga.

C is for Cookie sjá um veitingar á torginu.
Óđinstorgstilbođ: Uppáhellt kaffi og pönnukaka á 500 kr!

Viđburđurinn verđur milli kl. 14 og 17, miđvikudaginn 27. júlí.

Sjáumst teflandi á Óđinstorgi!

Yfir og út. Skák og mát..


Hjörvar Steinn međ fullt hús eftir fjórar umferđir

Hjörvar Steinn

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2550) hefur fullt hús ađ loknum fjórum umferđum á Xtracon-mótinu (Politiken Cup). Í gćr vann hann Ţjóđverjann Malte Colpe (2385). Einar Hjalti Jensson (2371) hefur 3˝ vinning en hann gerđi jafntefli viđ ţýska stórmeistarann Rasmus Svane (2549) í gćr.  

Fimmta umferđ fer fram í dag. Hjörvar teflir ţá viđ viđ ţýska alţjóđlega meistarann Dr. Erik Zude (2403) en Einar Hjalti teflir viđ ítalska stórmeistarann og Íslandsvininn Sabino Brunello (2567). 

Umferđ dagsins hefst kl. 11:15. 

Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir (1815) hefur 2 vinninga og Lárus H. Bjarnason (1516) hefur 1˝ vinning. 

398 skákmenn frá 26 löndum taka ţátt í mótinu. Ţar af eru 27 stórmeistarar. 


Hjörvar Steinn sigrađi á Minningarmóti Jorge Fonseca

13

Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari sigrađi á Minningarmóti Jorge Fonseca 2016, hlaut 7,5 vinning af 8 mögulegum. Í öđru sćti varđ alţjóđlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson međ 7 vinninga og bronsiđ hreppti stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson. Skákfélagiđ Hrókurinn stóđ fyrir mótinu og voru keppendur alls 27. 

2

Jorge Fonseca fćddist 1976 og lést á síđasta ári, ađeins 39 ára gamall. Hann ólst upp í Salamanca á Spáni og flutti á unglingsaldri til Madrid. Jorge menntađi sig á Spáni og Belgíu og var stćrđfrćđingur ađ mennt. Hann bjó um árabil á Íslandi og var virkur í skáklífinu hér og međal helstu meistara í kotru. 

5

Minningarmótiđ fór fram viđ afar góđar ađstćđur í Pakkhúsi Hróksins viđ Reykjavíkurhöfn. Ţar er miđstöđ fatasöfnunar Hróksins í ţágu barna, ungmenna og heimilislausra á Grćnlandi, og hefur mikiđ magn af vönduđum og góđum fatnađi veriđ sent ţangađ á sl. 2 árum. 

25

Hjörvar Steinn fékk í sigurlaun málverk eftir hinn fjölhćfa listamann Guđjón Kristinsson frá Dröngum, Jón Viktor fékk inneignarbréf hjá Flugfélagi Íslands og Helgi Grétarsson kassa af Gulli. Helstu bakhjarlar Minningarmóts Jorge Fonseca voru Ölgerđin, Flugfélag Íslands og Ísspor.


Erik Blomqvist skákmeistari Svíţjóđar

Erik

Skákţing Svíţjóđar fór fram í Uppsölum nú í júlí. Erik Blomqvist (2531) varđ skákmeistari Svíţjóđar en hann hafđi mikla yfirburđi á mótinu. Erik hlaut 7˝ vinning og varđ tveimur vinnum fyrir ofan nćsta mann. Fyrirfram ţótt Nils Grandelius (2643) langsigurstranglegastur en hann varđ ađ gera sér góđa sćtiđ ađ góđu. Alţjóđlegi meistarinn Jonathan Westerberg (2489) varđ svo ţriđji. 

Ţessir ţrír skipa sćnska landsliđiđ á ólympíuskákmótinu í Bakú ásamt Tiger Hillarp og Axel Smith.

 

Lokastađan

Skákţing Svíţjóđs


Nánari umfjöllun um mótiđ og međal annars viđtal viđ Erik tekiđ af G. Sverri Ţór má finna á heimasíđu sćnska skáksambandsins

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 174
  • Frá upphafi: 8764617

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 138
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband