Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2016
25.7.2016 | 11:21
Tap gegn Suđur-Afríku - tćkifćri til hefndar í dag!
Ísland tapađi 1˝-2˝ fyrir suđur-afríski sveit á Ólympíuskákmóti 16 ára og yngri í gćr. Hilmir Freyr Heimsson vann sína skák á ţriđja borđi, Vignir Vatnar Stefánsson gerđi jafntefli á efsta borđi, en Björn Hólm Birkisson og Svava Ţorsteinsdóttir töpuđu.
Íslenska sveitin mćtir hins vegar annarri suđur-afrískri sveit í fimmtu umferđ í dag og ţví gćti tćkifćri til hefndar!
Úrslit 4. umferđar
Umferđin dagsins hefst kl. 12. Bárđur Örn kemur aftur inn í liđiđ en Svava hvílir í dag.
Pörun 5. umferđar
Hćgt er ađ fylgjast međ krökkun beint hér.
Íslenska liđiđ er 32. í styrkleikaröđ 54 liđa. Hverju liđi er skylt ađ hafa eina stúlku liđinu sem tefla skal a.m.k. 3 skákir af 9 á mótinu. Kjartan Maack er liđsstjóri liđsins.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2016 | 09:21
Hjörvar Steinn og Einar Hjalti međ fullt hús á Xtracon-mótinu
Xtracon-mótiđ (ţekkt sem Politiken Cup) hófst fyrir skemmstu í Helsingör nćrri Kaupmannahöfn. Fjórir íslenskir skákmenn taka ţátt. Hjörvar Steinn Grétarsson (2550) og Einar Jensson (2371) eru báđir međ fullt hús eftir ţrjár umferđir.
Andstćđingarnir fara nú ađ ţyngjast eftir fremur rólegar upphafs umferđir. Í 4. umferđ, sem fram fer í dag, teflir Hjörvar viđ Ţjóđverjann Malte Colpe (2385) en Einar viđ ţýska stórmeistarann Rasmus Svane (2549).
Hćgt verđur ađ fylgjast međ skákum Hjörvars og Einars beint á netinu. Umferđin hefst kl. 11:15.
Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir (1815) og Lárus H. Bjarnason (1516) taka einnig ţátt og hafa 1 vinning eftir ţrjár umferđir.
398 skákmenn frá 26 löndum taka ţátt í mótinu. Ţar af eru 27 stórmeistarar.
- Heimasíđan mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar á Chess24 (hefjast flestar kl. 11:15).
25.7.2016 | 09:03
Jón Trausti međ fullt hús - Oliver međ jafntefli viđ stórmeistara
Ţremur umferđum er lokiđ á Opna tékkneska mótinu(Czech Open) í Pardubice í Tékklandi. Sjö íslenskir taka ţátt. Tveir keppendur, Dagur Ragnarsson (2274) og Oliver Aron Jóhannesson (2232) tefla í a-flokki en 5 íslenskir skákmenn tefla í b-flokki.
Dagur hefur 2 vinninga en Oliver hefur 1˝ vinning en hefur fengiđ sterkari andstćđinga en Dagur. Í gćr gerđi hann jafntefli viđ rússneska stórmeistarann Kirill Bryzgalin (2411) og í dag teflir Oliver viđ gođsögnina Vlstimil Jansa (2411)
Jón Trausti Harđarson (2078) hefur byrjađ mjög vel í b-flokki og unniđ alllar sínar skákir. Hinir íslensku skákmennirnir hafa ˝-1˝ vinning.
Fjórđa umferđ fer fram í dag.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13).
24.7.2016 | 12:30
Tap gegn Kínverjum - Suđur Afríka andstćđingur dagsins
Ísland tapađi ˝-3˝ fyri Kína í 3. umferđ Ólympíuskákmóts 16 ára og yngri í Slóvakíu í gćr. Hilmir Freyr Heimisson gerđi jafntefli viđ 11 ára stúlku á fjórđa borđi, sem á örugglega eftir ađ komast langt, en ađrar skákir töpuđust. Slćm úrslit en gegn afar sterkri sveit. Andstćđingirnir í dag er sveit Suđur-Afríku.
Úrslit 3. umferđar
Fjórđa umfeđr hófst nú kl. 12:00. Svava Ţorsteinsdóttir kemur aftur inn en en Bárđur Örn hvílir í dag.
Pörun 4. umferđar
Hćgt er ađ fylgjast međ krökkun beint hér.
Íslenska liđiđ er 32. í styrkleikaröđ 54 liđa. Hverju liđi er skylt ađ hafa eina stúlku liđinu sem tefla skal a.m.k. 3 skákir af 9 á mótinu. Kjartan Maack er liđsstjóri liđsins.
24.7.2016 | 11:47
Carlsen öruggur sigurvegari Bilbaó-mótsins
Lokaumferđ Bilbaó-mótsins fór fram í gćr. Öllum skákum umferđinnar lauk međ jafntefli. Carlsen (2855) gerđi jafntefli viđ Wesley So (2770). Heimsmeistarinn vann öruggan sigur á mótinu en hann hlaut 17 stig. Nakamura varđ annar međ 12 stig og Wei Yi ţriđji međ 11 stig.
Lokastađan
Nánar má lesa um gang mála í gćr á Chess.com.
23.7.2016 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Í mestri taphćttu í fyrstu umferđ
Skákunnendur sem bíđa í ofvćni eftir ţví ađ heimsmeistaraeinvígi Magnúsar Carlsen og Sergei Karjakin hefjist áttu ekki von á ţví ađ sjá ţá ađ tafli fyrir uppgjöriđ mikla í nóvember. Ţeir voru báđir skráđir til leiks á norska mótinu í vor en Karjakin sá sér ekki fćrt ađ vera međ og bar viđ ţreytu en ţá blésu Baskar til ofurmóts í Bilbao ţar sem sex skákmenn tefla tvöfalda umferđ og ţeir eru báđir međ Carlsen og Karjakin! Ađrir ţátttakendur eru Nakamura, So, Hollendingurinn Giri og Kínverjinn Wei Yi.
Í Bilbao kemur aftur á daginn ađ norski heimsmeistarinn er aldrei í meiri taphćttu en í fyrstu umferđ hvers móts. Í ţetta sinn tapađi hann fyrir Bandaríkjamanninum Hikaru Nakamura og mun ţađ vera í fyrsta sinn sem Nakamura vinnur Magnús í kappskák; ţeir hafa teflt 30 slíkar og Magnús unniđ 12 sinnum međ 27 jafnteflum. Ţrátt fyrir ţetta óvćnta tap eiga flestir von á Magnúsi sterkum ţegar líđa tekur á keppnina.
Hvađ Bandaríkjamenn varđar liggur fyrir ađ ţeir stefna á ólympíugull. Liđiđ sem teflir í Baku er ekki árennilegt međ Nakamura, Caruana og Wesley So í broddi fylkingar. Nú eru 40 ár síđan Bandaríkin unnu Ólympíumót síđast en austurblokkin sat heima. Nakamura er á mikilli siglingu ţessa dagana og sýndi ţađ í eftirfarandi skák:
Magnús Carlsen Hikaru Nakamura
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Re2
Keres átti ţađ til ađ leika riddaranum ţangađ. Fljótlega beinist tafliđ yfir í ţekkta stöđu.
2. ... d6 3. Rbc3 a6 4. g3 g6 5. Bg2 Bg7 6. d4 cxd4 7. Rxd4 Rf6 8. 0-0 0-0 9. b3 Rc6 10. Rxc6 bxc6 11. Bb2 Da5 12. Ra4 Bg4 13. De1 Dh5 14. f3 Bh3 15. g4 Dh6 16. Hd1
Hann gat teygt sig eftir peđi međ 16. Bc1 g5 en eftir 17. Bxg5 Dxg5 18. Bxh3 Rh5! og Rf4 er svarta stađan betri og 17. Bxh3 Dxh3 18. Bxg5 er svarađ međ 18. ... Rxg4! o.s.frv.
16. ... g5 17. Bc1 Bxg2 18. Kxg2 Dg6 19. h4 gxh4 20. Dxh4 d5
Eftir fremur óhefđbundna byrjun er einfaldast og best ađ leika 21. exd5 cxd5 (eđa 21. ... Rxd5 22. c4) 22. c3 og hvíta stađan er eilítiđ betri. En Magnús velur ađra leiđ og lakari.
21. g5? dxe4 22. f4 e6!
( Stöđvar f-peđiđ. )
23. c4 Hfd8 24. Hde1 Re8 25. Rc5 Rd6 26. Df2 f5!
Nakamura vill alls ekki láta peđiđ af hendi. Og brátt segir liđsmunurinn til sín.
27. Bb2 Rf7 28. Bxg7 Kxg7 29. Dg3 Hd6 30. Hd1 Had8 31. Hxd6 Hxd6 32. Dc3 Kg8 33. Hf2 Dh5!
Svartur stendur vel til varnar og sóknar. Ţađ er ekki nokkur leiđ fyrir hvítan ađ verja ţessa stöđu.
34. Dh3 Dd1 35. De3 e5! 36. Dg3 Hg6 37. Kh2 exf4 38. Dxf4 Dh5+ 39. Kg1 Dd1+ 40. Kh2 Dh5+ 41. Kg1 Rxg5 42. Db8+ Kg7 43. De5+ Kh6 44. Df4 Dd1 45. Kh2 Dd4 46. b4 Kg7 47. Dc7 Kh8 48. Dc8 Hg8 49. Dxf5 Rf3 50. Kh3
Enn er smá von: 50. ... Dxf2 51. Df6+ Hg7 52. Df8+ og hvítur ţráskákar.
50. ... Dd6!
Hótar 51. .. Dg3 mát og 51. ... Dh6+. Ţađ er engin vörn. Magnús gafst upp.
Hjörvar Steinn vann opna mótiđ í Suđur-Wales
Hjörvar Steinn Grétarsson vann öruggan sigur á opna skákmótinu sem lauk í Cardiff í Suđur-Wales sl. miđvikudag. Hjörvar hlaut 8 vinninga af tíu mögulegum og var ˝ vinningi fyrir búlgörsku stórmeistarana Boris Chatalbashev og Marian Petrov en Hjörvar vann ţá báđa í sjöundu og áttundu umferđ svo sigurinn var sanngjarn og jákvćtt skref fram á viđ eftir Skákţing Íslands á dögunum.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 16. júlí 2016
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2016 | 12:18
4-0 stórsigur gegn sveit heimamanna
Ísland vann sveita heimamanna 4-0 í annarri umferđ Ólympíuskákmóts 16 ára og yngri sem fram fór nú í morgunsáriđ í Poprad Tatry í Slóvakíu. Vignir Vatnar Stefánsson, tvíburarnir, Bárđur Örn og Björn Hólm Birkissynir, og Svava Ţorsteinsdóttir unnu öll sínar skákir. Svava međ svörtu gegn skákkonu sem var 200 skákstigum hćrri. Vel tefldar skákir og virkilega góđ úrslit.
Ţriđja umferđ hefst kl. 14:30. Pörun liggur ekki fyrir.
Íslenska liđiđ er 32. í styrkleikaröđ 54 liđa. Hverju liđi er skylt ađ hafa eina stúlku liđinu sem tefla skal a.m.k. 3 skákir af 7 á mótinu. Kjartan Maack er liđsstjóri liđsins og mun skrifa reglulega pistla frá skákstađ.
23.7.2016 | 10:25
Jón Trausti vann í fyrstu umferđ
Opna tékkneska skákmótiđ (Czech Open) hófst í gćr í Pardubice. Sjö íslenskir skákmenn taka ţátt í mótinu. Tveir tefla í a-flokki mótsins en fimm tefla í b-flokki. Dagur Ragnarsson (2274) og Oliver Aron Jóhannesson (2232), fulltrúarnir í a-flokki töpuđu báđir fyrir sterkum stórmeisturum. Hetja gćrdagsins var Jón Trausti Harđarson (2078) sem vann Tékkann Vojech Riha (1872).
Úrslit 1. umferđar
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13).
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2016 | 10:17
Loks vann Carlsen Giri - búinn ađ tryggja sér sigur á mótinu
Níunda og nćstsíđasta umferđ Bilbaó-mótsins fór fram fór í gćr. Loks tókst heimsmeistaranum Magnus Carlsen (2855) ađ vinna Anish Giri (2785). Hollendingurinn vann ţeirra fyrstu kappskák áriđ 2011 í Wijk aan Zee en síđan gerđu ţeir 14 jafntefli í röđ. Öđrum skákum í gćr lauk međ jafntefli. Carlsen hefur tryggt sér sigur á mótinu en hann hefur 5 stiga forskot á Nakamura en lokaumferđin fer fram í dag og hefst kl. 13.
Nánar má lesa um gang mála í gćr á Chess.com.
22.7.2016 | 22:16
Tap gegn ţýskri sveit í fyrstu umferđ
Íslenska sveitin á Ólympíuskákmóti 16 ára og yngri tapađi í fyrstu umferđ fyrir Ţýskalandi 1-3. Ţýska sveitin er ein sú allra sterkasta á mótinu. Sá sem teflir á fyrsta borđi er heimsmeistari 16 ára og yngri. Bárđur Örn Birkisson og Hilmir Freyr Heimisson gerđu góđ jafntefli á 2. og 4. borđi en Vignir Vatnar Stefánsson og Björn Hólm Birkisson töpuđu.
Úrslit 1. umferđar:
Á morgun eru tefldar tvćr umferđir og hefjast ţćr kl. 8 og 14:30. Í fyrri umferđ dagsins teflir Ísland viđ eina af sveitum heimamönnum. Hilmir Freyr hvílir en Svava Ţorsteinsdóttir teflir.
Pörun 2. umferđar:
Íslenska liđiđ er 32. í styrkleikaröđ 54 liđa. Hverju liđi er skylt ađ hafa eina stúlku liđinu sem tefla skal a.m.k. 3 skákir af 7 á mótinu. Kjartan Maack er liđsstjóri liđsins og mun skrifa reglulega pistla frá skákstađ.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.5.): 0
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 224
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 127
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar