Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2014

Skákþáttur Morgunblaðsins: Skrítin mynstur "Houdini"

g32s9apt.jpgDagur Ragnarsson - Guðmundur Kjartansson

Svartur leikur og vinnur.

Þessi staða kom upp í 2. umferð „Wow air-mótsins" sem Taflfélag Reykjavíkur stendur fyrir. Greinarhöfundur fór yfir skákina með Degi sem vann eftir mistök Guðmundar í tímahraki. Eins og stundum þegar kappskák lýkur eiga forrit á borð við „Houdini" síðasta orðið um ýmsar erfiðar ákvarðanir sem skákmenn hafa tekið. Hið kalda mat forritanna er nákvæmt. Á svipstundu dæmdi „Houdini" þessa stöðu unna á svart og vinningsleiðin er einhvern veginn svo „ómannleg" að við skelltum upp úr:

Eftir 35. ... Hf2! vinnur svartur í öllum afbrigðum og það flóknasta lítur svona út: 36. hxg6 f5! 37. exf5 De3! 38. Hg2 Hf1+ 39. Hg1 Hf4 40. Dg3 De4+ 41. Hg2 Hh4+ 42. Kg1 Db1+ 43. Kf2 Dxf5+ 44. Kg1 Db1+ 45. Kf2 Dc2+ 46. Kf1 Dc1+ 47. Kf2 Hf4+

Og ef nú 48. Ke2 tilkynnir „Houdini" mát í 7 leikjum! Þekkt mynstur geta ekki hjálpað manni til að finna þessa vinningsleið og rökfræði á borð við þá sem Capablanca notaðist stundum við; að telja mennina sem voru í sókninni gegn þeim sem voru að verjast - að kónginum meðtöldum, gagnast lítið í þessari stöðu.

Dagur Ragnarsson er með sigrinum kominn með 2 vinninga á „Wow air-mótinu" og er í efsta sæti ásamt Hjörvari Steini Grétarssyni. Friðrik Ólafsson tók sér frí í tveimur fyrstu umferðunum en á að tefla við Sigurð Pál Steindórsson í 3. umferð.

Undirritaður spurði Daða Örn Jónsson tölvufræðing, okkar mesta sérfræðing í hugbúnaðarmálum skákarinnar, um framþróun forrita og hann tók dæmið um „Dimmblá" sem lagði Kasparov að velli vorið 1997. Þó að ofurtölva IBM, sem var með sérhannaðan vélbúnað, hafi getað reiknað 200 milljón stöður á sekúndu er hún, að mati Daða, lakari „skákvél" en „Houdini" og „Stockfish" sem reikna 10 sinnum færri leiki á sekúndu en vinsa strax úr vitlausu leikina og einbeita sér að þeim betri.

Gömul saga úr aðdraganda heimsmeistaraeinvígisins 1972 rifjaðist upp. Bobby Fischer kom hingað til lands í vetrarbyrjun það ár til að kanna aðstæður og mætti á 1. umferð Reykjavíkurmótsins í febrúar 1972. Þar sem hann hallaði sér upp við súlu í kjallara Glæsibæjar hékk þessi staða uppi:

g22s9apl.jpgKeene - Stein

„Stein er með koltapað tafl," sagði Bobby við Guðmund G. Þórarinsson, forseta SÍ, sem stóð við hlið hans. Ungur piltur sem annaðist sýningarborðið setti borða á sýningartaflið þar sem á stóð: jafntefli.

„Gaf Stein?" spurði Bobby Fischer en þegar Guðmundur kvað nei við gekk meistarinn úr salnum. Keene virtist líta á sovéska stórmeistara sem einhverskonar hálfguði og tók jafnteflistilboði Stein. Eftir stóð samt spurningin: Hvað sá Bobby Fischer? Fyrir 15 árum eða svo þegar ég lét forritið „Chess Genius" malla á þessari stöðu var ekki hægt að sanna að staða hvíts væri unnin. Um daginn skellti ég lokastöðunni aftur inn í tölvu. Nú tók „Houdini" við. Þá var niðurstaðan allt önnur:

17. Rxc6 bxc6 18. Bd6! Be6 19. Hb7 Dxd1 20. Hxd1 Bf8 21. Be5 Hg8 22. Bf6! Bg7

g32s9app.jpg23. Be7!

Þessi furðulegi leikur sem varla byggist á nokkru þekktu „mynstri" vinnur. Eftir 23. ... Bf8 24. Bg5 á svartur enga haldgóða vörn gegn hótuninni. 25. Bf3.

Bobby Fischer hafði rétt fyrir sér í Glæsibæ forðum, hvíta staðan er unnin.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.  

Grein þessi birtist í Sunnudagsmogganum, 13. apríl 2014

Skákþættir Morgunblaðsins


Allan Stig Rasmussen Danmerkurmeistari í skák

Allan Stig RasmussenStórmeistarinn Allan Stig Rasmussen (2499) varð í dag Danmerkurmeistari í skák í þriðja sinn Allan Stig gerði stutt jafntefli í lokaumferðinni við Jakob Van Glud (2516), eitthvað sem verður bannað á Íslandsmótinu í skák,  og tryggði sér þar með titilinn.

Rasmussen hlaut 7 vinninga í 9 skákum. Stórmeistarinn Sune Berg Hansen (2569) varð annar með 6 vinninga og Jacob Aagaard (2520) og Van Glud urðu jafnir í 3.-4. sæti með 5½ vinning.

Lokastöðuna má nálgast hér.


Blindi snillingurinn sigraði á skákmóti Hróksins í Ittoqqortoormiit

22
Blindi pilturinn Paulus Napatoq sigraði á Norlandair-meistaramóti Ittoqqortoormiit í skák, sem Hróksmenn stóðu fyrir um helgina. Paulus er Íslendingum að góðu kunnur og hefur í tvígang komið í skákferðir til Íslands. Keppendur á mótinu voru um 50 og var gleðin allsráðandi.

1
Talsvert óveður gekk yfir bæinn og þurfti leiðangursstjóri Hróksins, Róbert Lagerman, að byrja dgainn á  því að smeygja sér út um glugga og grafa síðan ferðafélaga sinn út úr annars mjög vislegu húsnæði Hróksmanna á Grænlandi.

12
Eftir að varaforsetinn hafði greitt leiðina var efnt til meistarmóts Ittoqqortoormiit í skák. Veðurskilyrði hafa umtalsvert forspárgildi með þátttöku bæjarbúa, því það virðist sem svo að því svæsnara sem veðrið er, því fleiri mæta á skákviðburði Hróksins. 

20
Paulus Napatoq var úrskurðaður skákmeistari bæjarins eftir að hrein úrslitaskák hans og Siqqersoq Ferdinand Pike endaði í skrautlegri pattstöðu. Paulus Napatoq er vel að sigrinum kominn, en hann tapaði naumlega fyrir Siqqersoq á Bónus páskaeggjamótinu í gær. Á sunnudag halda leiðangursmenn til Cap Tobin, en þar er umferð ísbjarna hvað mest í heiminum.

9
Á mánudag lýkur svo hátíðinni með ,,Degi vináttu Íslands og Grænlands".

Nánari upplýsingar um skákhátíðina er á Facebook-síðu Hróksins.

Páskaskákmót GM-Hellis í Húsavík á morgun

Hið árlega Páskaskákmót GM-Hellis á norðursvæði fer fram í Framsýnarsalnum á Húsavík á morgun, annan í Páskum. Mótið hefst kl 15:00 og áætluð mótslok eru um kl 17:00.  Tefldar verða skákir með 10 mín umhugsunartíma á mann að viðbættum 5 sek fyrir hvern leik.

Mótið er öllum opið en teflt verður í fullorðinsflokki og flokki 16 ára og yngri. Allir keppendur fá páskaegg í verðlaun. Sigurvegarinn ver heim með glæsilegan farandbikar.

Mótsgjald er kr 500 á alla.

Skráning í síma 821 3187.


Mikael Jóhann: Pistill frá Pardubice

Mikael JóhannVið höldum áfram með pistlabirtingar. Í dag er pistill norðansveinsins Mikaels Jóhanns Karlssonar frá Czech Open í Pardubice.

Ég ákvað að taka þátt í Czech Open 2013 sem er eitt fjölmennasta og virtasta opna skákmót í heiminum. Mótið er haldið í Pardubice sem er borg aðeins minni en Reykjavík í u.þ.b. klukkutíma fjarlægð frá Prag. Ég lagði af stað til Keflavíkur um 4 um nóttina með félögum mínum og við flugum þaðan á London Gatwick flugvöllinn sem er leiðinlegasti flugvöllur sem ég hef farið á og biðum þar eftir flugi til Prag í 6-7 klukkutíma.

Frá Prag tókum við síðan strætó á lestarstöðina og héldum þaðan til Pardubice. Þegar við komum loksins á hótelið okkar þá kom í ljós að starfsmaður á hótelinu hafði gert stór mistök og bókað okkur í júní. Maðurinn í móttökunni teiknaði glæsilegt kort fyrir okkur á servéttu og hringdi á annað hótel sem var töluvert slakara og pantaði herbergi fyrir okkur. Klukkan var um eitt að nóttu til þegar við komum á hótelið sem var án loftkælingar og internets sem eru lífsnauðsynlegir hlutir í Tékklandi í júlí. En við sættum okkur við það enda ekki mikið annað í boði. Við keyptum okkur viftu og nýttum okkur free wifi á nokkrum stöðum. Aðal kosturinn við hótelið okkar var að það var nálægt mótstað og helstu verslunarmiðstöðinni.

Fyrsta umferð: Nýkomnir úr rúmlega 20 klukkustunda ferðalagi og varla með nægilega góðan svefn, vegna hitans, héldum í fyrstu skákina. Ég mætti Íra með rúmlega 1850 skákstig og tefldi enska leikinn að venju og vann andstæðing minn heldur örugglega.

Í annarri umferð mætti ég síðan Króatískum Fide-meistara. Byrjunin var Bb5 varíanturinn

í Sikileyjarvörn þar sem andstæðingur minn fékk aðeins betra úr byrjuninni en ég náði að snúa á hann og sigra skákina heldur örugglega með svart. Góð byrjun á mótinu með fullt hús þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Í þriðju umferð mætti ég Rússa með tæp 2300 stig en áður um daginn skellti ég mér í fótbolta með strákunum og skaðbrann líkt og þeir allir og mætti síðan í skákina með gríðarlega litla orku og varla búinn að borða og skeit laglega upp á bak. Ég tefldi enska leikinn eins og algjör byrjandi og má eiginlega segja að ég hafi ekki mætt í skákina fyrr en hún var gjörtöpuð en ég hafði teflt hratt og náði engri einbeitingu. Frekar pirrandi að komast á toppborðin og tefla ekki einu sinni almennilega skák.

En í fjórðu umferð lagaðist þetta ég náði einbeitingunni minni aftur og tefldi eins og maður með svart. Ég vann Þjóðverja með tæp 2150 sem var með verra frá byrjun og með smá nuddi var sigurinn kominn í hús og bráðnauðsynlegur sigur til þess að bæta móralinn minn sem varð fyrir hnjaski deginum áður.

Ég mætti ungverskri konu í fimmtu umferð með tæp 2200 sem tefldi c4 e5 g3 Rf6 Bg2 c6 afbrigðið í enska leiknum sem er ekki góð leið fyrir svartan en ég lék ónákvæmt í byrjuninni sem gaf henni örlítið betra en hún gerði síðan slíkt hið sama og þá beitti ég góðri fléttu sem skilaði mér sigrinum eftir tiltölulega stutta skák.

Í sjöttu umferð mætti ég heimamanni með tæp 2200 og andstæðingurinn minn beitti hollenskri vörn gegn enska leiknum sem ég hafði skoðað örlítið fyrir skákina og fékk betra úr byrjuninni og tókst með smá nuddi að vinna peð og fara út í unnið endatafl og sigraði skákina fljótlega eftir það.

Fyrir sjöundu umferðina var ég komin í toppbaráttuna og mætti þriðja stigahæsta manni mótsins með svart sem var Þjóðverji. Andstæðingurinn lék d4 og ég svaraði með slavneskri vörn og var með heldur verra allan tíman og lék síðan af mér og tapaði þar með skákinni.

Í áttundu umferð tefldi ég við Rússa með 2150 og lék af mér í miðtaflinu en náði með seiglu að hanga á jafnteflinu og eftir þetta var draumurinn um efstu sætin horfinn.

Í níundu umferð mætti ég Grikkja með 2150 og ég tefldi slabbann með svörtu og andstæðingur minn hélt frumkvæðinu í gegnum skákina og á endanum tapaði ég peði og stuttu síðar skákinni sem var leiðinlegur endir á mótinu.

Ég endaði með 5,5 af 9 og hækkaði um 39 stig en hefði viljað fá meira en hálfan úr síðustu þremur en ég er annars sáttur við frammistöðuna og mæli eindregið með þessu móti því það er algjör gullnáma fyrir skákmenn sem vilja hækka sig á stigum. Flokkaskiptingin er aðal ástæðan af því að maður á alltaf möguleika á sigri í hverri einustu umferð. Enn fremur vil ég þakka Skáksambandi Ísland kærlega fyrir stuðninginn og einnig félögum mínum sem gerðu þessa ferð skemmtilega og eftirminnilega.

Mikael Jóhann Karlsson


Jón Trausti: Pistill frá Pardubice

Jón TraustiEnn höldum við áfram með óbirta skákpistla. Síðari pistill dagsins er frá Jón Trausti Harðarsyni sem fjallar um Czech Open-mótið í Pardubice eins og frá svo mörgum öðrum sem sóttu það mót. 

Ég og nokkrir aðrir Íslendingar lögðum á stað til Tékklands þann 18. júlí. . Mótið var haldið í Pardubice og voru aðstæður mjög fínar. Þegar við vorum komnir á áfangastað og ætluðum að fara skrá okkur inná Harmony hotel en þá hafði orðið einhver misskilningur um dagsetninguna. Við áttum pantað herbergi í júní! og öll herbergin voru full. Við létum þetta ekkert á okkur hafa og löbbuðum um miðbæinn að leita af nýju hóteli. Við fundum ágætt hótel sem heitir Hotel laba. Það var mjög nálægt skákstað en það var engin nettengin né loftkæling.

1. umferð

Í fyrstu umferð fékk ég Grigorian Roudolph ungling frá Frakklandi með 2062 stig. Ég lék 1.d4 eins og ég var búinn að undirbúa fyrir mótið en hann svaraði með 1.d6. Ég ákvað þá bara að fara út í pirc vörn með því að leika 2.e4. Skákin var alltaf mín megin en það var ekki fyrr en seint í skákinni sem hann lék smá ónákvæmt sem kostaði hann skákina. Fyrsti sigurinn kominn í hús.

2.umferð

Ég var eiginlega ekkert búinn að undirbúa fyrir þessa umferð enda var andstæðingurinn Stock Andreas (2096 stig) minn búinn að tefla nánast allt. Hann tefldi eitthvað decline afbrigði á móti grunfeld vörn sem ég kunni lítið sem ekkert í. Skákin var frekar spennandi á köflum en í endataflinu stefndi þetta í jafntefli. Í 27.leik bauð hann mér svo jafntefli en það var akkúrat þegar hann lék lélegum leik. Ég fattaði það og auðvitað neitaði. Þetta var samt ekki búið. Staðan var (-0,47) en ég endaði bara á því að svíða hann í hróksendataflinu.

3.umferð

Í þriðju umferð fékk Stock Andreas (2096 stig) mann frá Þýskalandi. Hann var alltaf búinn að tefla benko gambit og ég var með skothellt vopn á móti því svo ég var bara frekar feginn.  Ég mætti mjög rólegur í skákina en andstæðingurinn minn ákvað þá auðvitað að eyðileggja það allt með því að tefla eitthvað sem kallast gamli benko gambiturinn. Leikjaröðin var svona 1.d4 c5 2.d5 Rf6 3.c4 b5 4. cxb5 a6 5. bxa6 e6. Ég er bara nýbyrjaður að tefla 1.d4 þannig að ég hafði aldrei séð þetta áður. Eftir byrjunina fékk ég skítastöðu en náði að fara útí aðeins verra endatafl á mig og halda því. Skákin endaði því með jafntefli.

4. umferð

Í fjórðu umferð fékk ég næst stigahæsta skákmanninn í B-flokk. Hann heitir Jan Turner og er með 2362 stig. Ég var með svart í þessari skák. Hann tefldi ekkert sérstaka byrjun og náði ég að jafna taflið mjög fljótt. Mér tókst einhvern veginn að klúðra stöðunni minni og þá var ekkert meira en jafntefli sem ég gat náð. Ég var búinn að halda endataflinu mjög vel en það var síðan í sirka 70. leik sem ég staðsetti kónginn minn illa og þá tapaði ég annars hefði þetta verið steindautt.

5. umferð

Í fimmtu umferð mætti ég þjóðverja að nafni Webner Dennis (2057 stig). Ég fékk mjög góða stöðu en lék síðan klaufalega af mér tveimur peðum. Skákin var samt ekki búinn því að ég komst útí gott endatafl með mislituðum biskupum. Líklegast var það jafntefli en mér tókst ekki að halda því svo ég tapaði skákinni.

6. umferð

Þessa skák mun ég skýra hér fyrir neðan en þá var ég að tefla við Drozdov Vladimir E (2027 stig) frá Rússlandi.

7. umferð

Í sjöundu umferð mætti ég Tékkneskum manni með 2090 stig. Ég var með hvítt og hann tefldi Von hennig -Schara gambit sem er 4. cxd4 í Tarrash vörn. Skákin var frekar stutt því mér tókst að leika af mér og tapa skákinni.

8. umferð

Í áttundu umferð mætti ég konu frá Póllandi með 2028 stig. Ég telfdi Breyer afbrigði í spænska leiknum. Þessi skák var líklegast sú lélegasta hjá mér á mótinu. Ég hélt að allt væri í gúddi þangað til ég missti af taktík og tapaði skákinni.

9. umferð

Í níundu umferð fékk ég andstæðing frá Tékklandi með 2008 stig. Ég lék 1.d4 og hann svaraði því með benoni defence. Ég tefldi sideline sem hann greinilega kannaðist ekkert vel við því ég fékk miklu betri stöðu eftir byrjunina. Hann komst eitthvað smá inn í skákina í endann en það var samt ekkert hættulegt svo ég endaði á því að vinna.

Ég endaði með 4,5 vinning á mótinu og græddi 31 stig. Ég er alveg sáttur en þetta hefði alveg getað verið betra. Í  lokin vil ég þakka Skáksambandi Íslands fyrir frábæran stuðning.

Jón Trausti Harðarson


Yngsti skákmeistari Færeyja í sögunni: Högni Nielsen vann með fullu húsi

Högni NielsenFæreyjameistaramótinu í skák lauk í dag í Klaksvík. Högni Egilstoft Nielsen (2175), sem er aðeins sextán ára, gerði sér lítið fyrir og sigraði á mótinu með fullu húsi - vann alla níu andstæðinga sína. Hann er yngsti Færeyjameistarinn í sögunni sló met Helga Dam Ziska frá 2008 en Helgi var þá 17 ára.

Bróðir Högna, Rögvi (2282), varð í öðru sæti með 7 vinninga. Pabbi þeirra bræðra, Thorkil Nielsen, er gamall landsmaður Færeyinga í skák og reyndar í fótbolta einnig. Skoraði sennilega frægasta mark Færeyinga í fótbolta fyrr og síðar.

Martin Poulsen (2261) og Hans Kristian Simonsen (2144) urðu í 3.-4. sæti en þeir hlutu 6 vinninga.

Lokastöðu mótsins má finna á Chess-Results.

Færeyjameistarar í skák frá upphafi:

97 Rani Nolsøe
98 John Rødgaard
99 Heini Olsen
00 Flóvin Tór Næs
01 John Rødgaard
02 Hans Kristian Simonsen
03 Martin Poulsen
04 Martin Poulsen
05 Carl Eli Nolsøe Samuelsen
06 Martin Poulsen
07 John Rødgaard 
08 Helgi Dam Ziska
09 Martin Poulsen
10 Olaf Berg
11 Helgi Dam Ziska
12 Rógvi Egilstoft Nielsen
13 Olaf Berg 
14 Høgni Egilstoft Nielsen


Felix: Pistill frá Pardubice

img_5868_1233317.jpgÁfram verður haldið með birtingu pistla frá síðasta ári. Fyrri pistill dagsins er Felix Steinþórssyni sem sótti heim Czech Open í Pardubice.

Í vor ákváðum við félagarnir ég, Dawid og Heimir úr Helli að fara á Czech Open í Pardubice.  Skákhátíðin í Pardubice er alveg frábær og hægt er að velja úr fjölda viðburða. Ég fór á mótið í fyrra og hafði mjög gaman þannig að ég var spenntur fyrir að fá að komast aftur á þetta mót.

Við skráðum okkur í keppni D þ.e.a.s. opinn flokk þar sem hámarksstig voru 2000. Það voru ríflega 220 aðilar sem tóku þátt í þessum flokki en í heildina voru yfir 1100 þátttakendur í mótinu í heild. Auk okkar þriggja Hellisbúanna voru á mótinu nokkrir aðrir íslendingar sem voru reyndar allir að keppa í efri flokkunum utan pabba sem skráði sig í 1800 stiga flokkinn svona til að hann hefði eitthvað að gera meðan við strákarnir vorum að tefla.

Aðstæður í Pardubice eru allt aðrar en við eigum að venjast. Mótið er haldið í stórri íþróttahöll. Með yfir 1100 manns á gólfinu í einu er erfitt að gera ráð fyrir 100% þögn í salnum og í rauninni var nokkuð ónæði af klið og braki í tréplönkunum sem voru notaðir sem gólf. Það var þröngt á þingi en allt var þetta svo sem allt í lagi. Kannski erum við hreinlega of góðu vön heima í Íslandi.

Það var mjög heitt í Pardubice allan tímann og við höfðum valið hótel sem var ekki með loftkælingu. Sú ákvörðun var tekin í hagræðingarskyni en með þeim afleiðingum að það svaf engin í hópnum mjög vel og því fundum við fyrir verulegri þreytu þegar líða fór á vikuna.

Ég byrjaði mótið ágætlega og gerði jafntefli við tæplega 1800 stiga Tékka. Í 2 umferð tapaði ég naumlega fyrir 1823 stiga Þjóðverja í ágætri skák. Þá var komið að tveggja umferða deginum. Ég tefldi tæplega 5½ klst. 105 leikja skák í fyrri umferð dagsins sem ég tapaði fyrir samblöndu af slysni og þreytu eftir að staðan hafði verið hnífjöfn í 40 - 50 leiki. Seinni skák þann daginn klúðraði ég í endataflinu eftir að hafa náð góðri stöðu. Eftir 4 umferðir var staðan því orðin svört. Ég aðeins með ½ vinning af 4 mögulegum. Seinni hluti mótsins gekk mun betur hjá mér og ég tók 4 af þeim 5 vinningum sem þar voru í boði. Ég endaði því með 4½ vinninga af  9 og rp upp á 1718. Ég var heilt yfir sáttur en mjög þreyttur. Meðfylgjandi er skák sem ég tefldi við Jonas Piela frá Ítalíu í 8 umferð. Þetta er örugglega ekki mín besta skák en ég var samt sáttur með jafnteflið sem ég náði eftir að hafa lent í verulegum erfiðleikum í miðtaflinu. Þetta er því fyrst og fremst skák fyrir mig að læra helling af og mér því ánægja að deila með ykkur.

Það er ómetanleg reynsla að fá tækifæri til að taka þátt í svona móti og ég vona að þessi reynsla komi að góðum notum í verkefnum framtíðarinnar. Ég þakka Skáksambandinu og Taflfélaginu Helli fyrir styrkina sem ég fékk vegna ferðarinnar.


Hilmir Freyr: Pistlar frá Politiken Cup og Budva

Hilmir FreyrOg enn höldum við áfram með pistla frá síðasta ári. Hér er pistlar frá Hilmi Frey frá tveimur mótum sem hann tók þátt þá. Pistilinn má finna myndskreyttan sem PDF-viðhengi. Við höldum áfram með pistlana á morgun.

Politiken Cup í Helsingør, Danmörku. 27. júlí - 4. ágúst 2013

Eftir þægilegt ferðalag til Helsingør vorum við komin á áfangastað um kl.14:00 á staðartíma. Við gistum í LO-skolen sem einnig var skákstaður. LO- skolen er falleg bygging með mörgum listaverkum og ranghölum. Útsýnið er stórkostlegt og sést út á Øresund (Eyrarsund) og yfir til Helsingborg í Svíþjóð frá matsalnum og garðinum.

Daginn eftir hófst svo mótið. Borðanúmerum var raðað í mörgi rými með mismunandi mörgum keppendum og teflt var frá jarðhæð uppá 3.hæð. 

1.     Umferð. Ég paraðist við töluvert stigahærri mann Morten Møller Hansen (2126) og var hvítur. Ég telfdi e4 Kings Opening en Hr. Hansen  lék c5 sem er Sikileyjarvörn. Ég tapaði skákinni en tel mig hafa getað gert betur.

2.     Umferð. Mótherjinn var Tomas Olson (1932) hann var hvítur og lék e4 Kings Opening ég svaraði með franskri vörn. Ég vann skákina og mun sýna hana hér að neðan.

3.     Umferð. Ulrich Larsen (1992). Ég lék eins og áður e4 hann lék c5 Sikileyjarvörn. Ég tapaði skákinni.

4.     Umferð. Leif Bjornes (1918). Hann lék d4 Queens Gambit ég svaraði með d5. Þetta var nokkuð góð skák sem endaði með jafntefli.

5.     Umferð. Morten Rasmussen (1921). Ég lék e4 og hann lék c5 Sikileyjarvörn.  Þessi skák var ekki góð hjá mér en ég náði að snúa henni  mér í hag og náði jafntefli.

6.     Umferð.  Ole Rysgaard Madsen (1919).  Hann var hvítur og lék Rf3 og lék f5 sem er hollenska vörnin. Hann lék sig í mát.

7.     Umferð. Ég var hvítur á móti Dick Sørensen (2000) og lék fyrsta leik e4 og hann lék g6. Þetta var góð skák hjá mér og ég vann.

8.     Umferð. Ég var svartur á móti Thomas Tange Jepsen (2079) sem lék d4 og ég lék d5. Hann lék svo c4 Queens Gambit og ég c6 Slavnesk vörn.  Skákin endaði jafntefli.

9.     Umferð.  Ég var hvítur á móti Gunnar Stray (2056) ég var með góða stöðu eftir 16 leiki en í 17. leik lék ég af mér sem varð til þess að missti góðu stöðuna og tapaði.

10.  Umferð.  Lokamótherjinn var Sigurd B. Justinussen (1970) ég var svartur og gerði jafntefli í 11 leikjum.

Hér má sjá nánar um skákirnar: http://www.ksu.dk/politiken_cup/turnering/detaljer.aspx?tur_id=1354&lod=247

 

Ég var sáttur við mótið í heild enda var ég að tefla upp fyrir mig allan tímann. Ég fékk stigaverðlaun 1501 - 1700. Ég tók líka þátt í Børne - Cup og Blitzi til gamans og gekk vel. Mótið var mjög vel skipulagt í alla staði, aðstæður og umhverfi frábært.

EM Ungmenna í Budva, Svartfjallalandi.  28.september - 9.október 2013

Eftir langt og strangt ferðalag, frá morgni dags, þar sem bæði var flogið, beðið lengi, flogið meira lent í Dubrovnik í Króatíu, ekið, siglt og ekið meira var komið á áfangastað seint um kvöld að staðartíma til Budva í Svartfjallalandi. Hótelið Slovenzka Plaza er fínt og snyrtilegt en netsambandið arfaslakt og hægt. Slovenzka Plaza er svona eins og lítið þorp, svolítið ruglingslegt en maður er fljótur að læra. Veðrið var mollulegt, 23 -26 gráður og raki, logn en við fengum líka úrhellis rigningu þannig gangar og göngustígar á hótelsvæðinu breyttust í litlar ár.

Við urðum satt að segja fyrir smá sjokki, skák aðstæður eru vægast sagt slakar, en allir flokkar frá Open 12 - Open 20 tefla saman í íþróttasal og eru um a.m.k 1000 krakkar hér í loftleysinu, eftir gróflega talningu, svo ekki sé minnst á annað eins magn af áhorfendum og dómurum, hér hreyfðist ekki loft, hitinn var skelfilegur og svitaperlur láku af keppendum eftir aðeins um 20 mínútur og þá átti maður eftir að sitja  4 - 5 klukkustunda skák. Erfitt var að finna borðið sitt því ekkert var merkt og ekki nafn spjöld á borðum eins og maður á að venjast bæði frá Íslandi og öðrum löndum, heldur var bara eitt A4 blað sem var hjá dómurunum til að finna hvar maður átti að sitja. Zero tolerance reglan var í gildi sem þýðir að ef þú sest niður mínútu of seint þá ertu búinn að tapa skákinni. Ég lenti líka oftar en einu sinni í því að sitja með borðfæturnar milli fótanna og á óþægilegum sólstól. Yngri strákarnir í Open 8 og Open 10 fengu aðeins betri aðstæður, en yngri flokkarnir tefldu á öðrum stað. Foreldrar þeirra máttu samt ekki koma inn til að horfa.

1.     umferð, ég paraðist við Viktor Matviishen frá Úkraínu með 2115 Elo stig sem er töluvert hærra en hann er með, eða ríflega 300 stiga munur. Hann er mjög sterkur skákmaður og varð Evrópumeistari í mínum flokki með 7,5 vinning. Ég var með svart og tefldi slavann, ég tapaði skákinni.

2.     umferð ég tefldi við Kai Pannwitz frá Skotlandi með 1522 Elo stig ég tefldi mjög góða skák og vann örugglega.             

3.     umferð, mætti Kirill Chukavin 1887 frá Eistlandi, tapaði.         

4.     Aleksandr Efimenko 1515 Rússlandi, ég gerði jafntefli eftir að hafa lent í tímahraki, en ég var með mun betra í byrjun, skákin snérist svo honum í hag og svo náði ég að snúa henni aftur, þessa skák hefði ég unnið ef ég hefði ekki verið í tímahraki, því ég missti af leik. 

5.     Azerbadjinn Adnan Aliyev, ég var að vinna þessa skák en því miður náði hann að halda jöfnu.

6.     Umferð Írinn Michael Higgins, ég tapaði Drottningu í 8.leik fyrir Riddara en ég gafst ekki upp og hélt áfram og fór í stórsókn, þá endaði með því að 12 leikjum seinna þurfti hann að fórna Drottningu því annars hefði ég mátað hann. Skákin fór jafntefli.                  

7.     Umferð Daniel Nordquelle frá Noregi, ég var kominn með unnið eftir 8 leiki og örfáum leikjum seinna gafst hann upp og ég vann.     

8.     Fabian Baenziger 1679  frá Sviss, ég lenti í vandræðum í byrjuninni, fórnaði Drottningu og var þá með þrjá menn, tvo Hróka og nokkur peð á móti Hróki, Drottningu, Biskupi og nokkrum Peðum. Ég vann skákina.

9.     Semen Lomasov 2124 frá Rússlandi, ég tapaði illa.

Hægt er að skoða skákirnar úr mótinu hér: http://www.budva2013.org/index.php?lang=en

Það er áberandi hvað Rússarnir og Azerarnir eru með sterka krakka og líka hinar austantjalds þjóðirnar. Þeir eru búnir að vera í mörg ár í mikilli þjálfun en eru ekki skráðir með nein Elo-stig. Þess vegna þarf maður að passa að vanmeta þá ekki. Ég hafði sett mér það markmið að ná alla vega 50% skori í þessu móti, það tókst þó svo ég hefði sannarlega viljað fá fleiri vinninga.

Ég vil þakka eftirfarandi stuðningsaðilum fyrir mig, en án þeirra hefðu þessar ferðir ekki orðið að veruleika: Gjögur HF Grenivík, Skákfélagið GM Hellir, Hérðssambandið Hrafna - Flóki, Hress líkamsrækt Hafnarfirði, Klofningur ehf Suðureyri, Oddi HF Patreksfirði, Svalþúfa ehf Hafnarfirði, Skáksamband Íslands, Vesturbyggð og öðrum sem lögðu mér lið. Ég vil líka þakka GM Henrik Danielsen sem þjálfaði mig fyrir mótin og á meðan á Politiken Cup stóð og GM Helga Ólafssyni fyrir góða þjálfun fyrir og á meðan á EM stóð sem og GM Hjörvari Steini Grétarssyni.

Með kveðju, Hilmir Freyr Heimisson


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 26
  • Sl. sólarhring: 29
  • Sl. viku: 198
  • Frá upphafi: 8766389

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 114
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband