Bloggfćrslur mánađarins, september 2013
20.9.2013 | 07:29
Kristján Guđmundsson gengur til liđs viđ Gođann-Máta

19.9.2013 | 16:41
EM-keppandinn: Mikael Jóhann Karlsson
Átta fulltrúar frá Íslandi taka ţátt í EM ungmenna sem fram fer í Budva í Svartfjalllandi dagana 28. september - 9. október. Einn keppandi verđur kynntur daglega fram ađ móti. Byrjađ er á ţeim elsta Mikael Jóhanni Karlssyni sem keppir í U18.
Nafn
Mikael Jóhann Karlsson.
Fćđingardagur
26. júní 1995.
Félag
Skákfélag Akureyrar.
Hefurđu teflt áđur á EM/HM ungmenna?
Keppti síđast á HM í Tyrklandi 2009 og afţakkađi bođiđ á EM í fyrra.
Helstu skákafrek
Íslandsmeistari í skólaskák 2008 og 2011, Íslandsmeistari drengja og telpna 2010, unglingameistari Íslands 2011 (U20), Meistari Skákskóla Íslands 2012, annađ sćti á Unglingameistaramóti Íslands 2012 (eftir Hjörvari). Vann Norđurlandsmót unglinga 7 sinnum í röđ 8 sinnum allt í allt. Vann B-flokk Haustmóts TR 2011, 3. sćti á Skákţingi Reykjavíkur 2013 og 3. sćti á NM í skólaskák (17-19 ára).
Skemmtilegasta skákferđin
Czech Open 2013 sem var ađ ljúka, ég fór í ferđ međ félögum mínum og var á tímabili í toppbaráttunni og grćddi 40 stig.
Eftirminnilegasta skákin
Ţegar ég vann Dag Andra Friđgeirsson í úrslitaskák um fyrsta Íslandsmeistaratitilinn minn!
Viltu styrkja ungmennin sem fara á EM?
Ţađ er hćgt ađ styrkja viđ ungmennin, sem er mestan kostnađinn sjálf, međ framlögum međ greiđslukorti; 2.000 kr., 5.000 kr. og 10.000 kr.
19.9.2013 | 16:17
Skákćfingar í Reykjavík
Öll skákfélög Reykjavíkur međ ćskulýđsstarfsemi hafa nú hafiđ barna- og unglingaćfingar. Alls eru fimm ćfingar í bođi sem standa ungum og efnilegum skákmönnum til bođa.
- Mánudagar 17:15: Hellir. Álfabakki 14a.
- Miđvikudagar 17:10: Víkingaklúbburinn. Víkinni.
- Föstudagar 17:40: KR. Frostaskjól.
- Laugardagar 11:00: Skákdeild Fjölnis. Rimaskóla.
- Laugardagar 14:00: Taflfélag Reykjavíkur.
Mikiđ fagnađarefni er ađ Víkingaklúbburinn hefur hafiđ reglulegar barnaćfingar og má lesa um ţćr hér: http://vikingaklubburinn.blogspot.com/
19.9.2013 | 07:00
Ađalfundur Hellis fer fram í kvöld
Ađalfundur Taflfélagsins Hellis verđur haldinn fimmtudaginn 19. september og hefst kl. 20. Venjuleg ađalfundarstörf eins og yfirferđ ársskýrslu og kosning stjórnar.
Félagiđ hvetur félagsmenn til ađ fjölmenna
Spil og leikir | Breytt 15.9.2013 kl. 10:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2013 | 23:36
Stefán, Jón Viktor og Einar Hjalti efstir á Gagnaveitu-mótinu
Önnur umferđ Gagnaveitumótsins - Haustmóts TR fór fram í kvöld. Ţrír stigahćstu keppendur mótsins Stefán Kristjánsson (2491), Jón Viktor Gunnarsson (2408) og Einar Hjalti Jensson (2305) unnu allir sínar skákir og leiđa međ fullu húsi. Stefán Bergsson (2131) vann einnig sína skák. Fjörlega er teflt í a-flokki og ađeins einni skák hefur lokiđ međ jafntefli í tveimur fyrstu umferđunum.
B-flokkur:
Jón Trausti Harđarson (1951) og Ingi Tandri Traustason (1804) unnu sínar skákir en öđrum skákum lauk međ jafntefli.
Ţađ stefnir í jafna og spennandi keppni enda hafa keppendurnir flestir mjög áţekk skákstig. Athyglisvert er ađ enginn hefur fullt hús.
Jón Trausti, Ingi Tandri, Ţórir Benediktsson (1942) og Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir (1949) leiđa međ 1,5 vinning.
C-flokkur:
Stigalćgsti keppandi flokksins, Kristófer Ómarsson (1598) er efstur međ fullt hús!D-flokkur:
Óvćnt úrslit urđu ţegar Hilmir Hrafnsson (1245) vann Bárđ Örn Birkisson (1461). Björn Hólm (1231) vann Sóleyju Lind Pálsdóttur (1442).
Hilmir og Björn Hólm eru efstir ásamt Hjálmari Sigurvaldasyni (1361) og Heimi Páli Ragnarssyni (1455).
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2013 | 18:00
Gagnaveitumótiđ: Bein útsending
Önnur umferđ Gagnaveitumótsins - Haustmóts TR hefst kl. 19:30. Skákir a-flokksins verđa sýndar beint. Í 2. umferđ mćtast:
- Oliver Aron - Stefán K.
- Jóhann - Jón Viktor
- Gylfi - Einar Hjalti
- Sverrir Örn - Stefán B.
- Kjartan - Dagur
Heimasíđa mótsins
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2013 | 15:15
SSON fćr góđan styrk til skákfrćđslu
Skákfélag Selfoss og nágrennis (SSON) fékk fyrir skemmstu góđan styrk í hérađi. Alls fékk félagiđ 400.000 kr. sem á ađ renna til skákfrćđslu.
Í frétt á DFS segir međal annars:
Dagmar Una Ólafsdóttir á Selfossi hefur styrkt tvö verkefni á stađnum um 700.000 krónur. 300.000 króna styrkur rennur til skammtímavistunar fyrir fatlađa í Álftarima 2 og hinn, 400.000 krónur til skákfrćđslu hjá Skákfélagi Selfoss og nágrennis.
Ég hef unniđ međ fötluđum í gegnum tíđina og eru málefni fatlađra mér mjög hugleikin. Varđandi skákina vildi ég styđja viđ bakiđ á ţeim vaxtarsprotum sem nú eru hér í skákinni og styrkja skákfélagiđ til skákkennslu grunnskólabarna. Skákíţróttin er öllum holl og góđ forvörn. Ţađ er engin sérstök fjáröflun er ađ baki ţessum styrkjum, ég vil bara láta gott af mér leiđa, viđ eigum öll ađ hjálpast ađ ef viđ getum," sagđi Dagmar.
18.9.2013 | 12:23
Hou Yifan vann enn - komin međ ţriggja vinninga forskot
Kínverska skákdrottningin Hou Yifan (2609) fer mikinn í heimsmeistaraeinvígi hennar og Önnu Ushenina (2500) sem nú er í gangi í Taizhou í Kína. Hún vann sjöttu skákina og hefur nú unniđ allar skákirnar međ svörtu en ţegar hún hefur haft hvíttu hefur ţeim lokiđ međ jafntefli. Stađan er nú 4˝-1˝ og ţarf hún ađeins einn vinning til viđbótar í síđustu fimm skákunum til ađ tryggja sér heimsmeistaratitlinn.
- Heimsasíđa einvígisins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 7)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2013 | 11:12
Stórmeistaramót Taflfélags Reykjavíkur hefst 1. október
Frá 1. til 8. október nćstkomandi mun alţjóđlegt lokađ 10 manna stórmót verđa haldiđ í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur. Ţá fer fram í fyrsta sinn Stórmeistaramót Taflfélags Reykjavíkur sem stefnt er ađ, ađ verđi árviss viđburđur í framtíđinni. Vefur mótsins er nú kominn í loftiđ og verđa upplýsingar ţar uppfćrđar í ađdraganda ţess.
Mótiđ verđur geysiöflugt og međal ţátttakenda eru ţrír stórmeistarar og fimm alţjóđlegir meistarar. Ađstćđur verđa eins og best verđur á kosiđ, bćđi fyrir keppendur og áhorfendur. Allar skákir mótsins verđa sýndar beint á netinu, en auk ţess verđur hćgt ađ fylgjast međ ţeim á stóru tjaldi á keppnisstađ. Reiknađ er međ ađ skákskýringar verđi á mótsstađ í hverri umferđ, og svo síđast en ekki síst verđa hinar rómuđu veitingar í bođi sem ćtíđ fylgja mótum félagsins.
Mótiđ er nú fullbókađ og eftirtaldir meistarar munu leiđa saman hesta sína á reitunum 64:
1. Úkraínski ofurstórmeistarann Sergey Fedorchuk (2667)
Fedorchuck varđ Evrópumeistari unglinga undir 14 ára áriđ 1995, en međal annara afreka hans má nefna efsta sćtiđ á Cappelle la Grande Open áriđ 2008, ásamt TR-ingunum Vugar Gashimov (2737), Erwin L'Ami (2640), nýbökuđum skákmeistara Úkraínu, Yuriy Kryvoruchko (2678) og fleirum. Einnig sigrađi hann á Dubai Open 2006 ásamt Armenunum Sargissian og Petrosian. Fedorchuk gekk nýveriđ í Taflfélag Reykjavíkur og verđur spennandi ađ sjá hvort hann muni einnig tefla fyrir félagiđ í Íslandsmóti skákfélaga.
2. Úkraínski stórmeistarinn Mikhailo Oleksienko (2596)
Oleksienko sem er 27 ára, varđ sextán ára alţjóđlegur meistari og ţremur árum síđar stórmeistari. Fyrr í sumar sigrađi hann Czech Open ţar sem hann vann 6 skákir í röđ eftir rólega byrjun. Nú í ágúst varđ hann síđan í 1.-3. sćti á ZMDI Open í Dresden. Hann er ţví til alls líklegur á mótinu, og hefur veriđ á hrađri uppleiđ á stigalista Fide. Oleksienko er íslenskum skákmönnum ađ góđu kunnur, enda hefur hann veriđ fastamađur í liđi Taflfélags Reykjavíkur á Íslandsmóti skákfélaga undanfarin ár.
3. Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2500)
Henrik ţarf vart ađ kynna, enda veriđ einn af okkar sterkustu og virkustu skákmönnum um árabil. Hann er fćddur í Nyköbing í Danmörku en hefur síđan 2006 teflt fyrir íslands hönd. Sex sinnum hefur hann teflt á Ólympíuskákmótinu, ţar af ţrisvar (2006, 2008 og 2012) fyrir Ísland. Henrik varđ Íslandsmeistari í skák áriđ 2009, ţar sem hann sigrađi međ nokkrum yfirburđum. Henrik Danielsen er liđsmađur Taflfélags Vestmannaeyja.
4. Fćreyski alţjóđlegi meistarinn Helgi Dam Ziska (2468)
Ţessi mikli Íslandsvinur og liđsmađur T.R. náđi nýveriđ sínum fyrsta áfanga ađ stórmeistaratitli á opnu móti í Riga Lettlandi. Ţar sýndi hann úr hverju hann er gerđur, var međ árangur upp á 2600 stig og mun hćkka mikiđ á nćsta stigalista Fide. Helgi er 23 ára, og varđ alţjóđlegur meistari sautján ára. Á XXII Reykjavíkurskákmótinu 2006, sigrađi Ziska (ţá sextán ára) hollenska stórmeistarann Jan Timman í frćgri skák. Stórmeistarinn ţekkti gafst ţá upp í tuttugasta leik međ unna stöđu! Helgi mun örugglega sćkja stíft annan áfanga sinn ađ stórmeistaratitli á mótinu, og verđur spennandi ađ fylgjast međ ţessum geđţekka frćnda vor.
5. Danski alţjóđlegi meistarinn Simon Bekker-Jensen (2414)
Simon hefur margoft teflt á Íslandi, bćđi međ Taflfélagi Reykjavíkur á Íslandsmóti Skákfélaga, og eins á Reykjavíkurskákmótinu. Hann varđ norđurlandameistari drengja (U16), alţjóđlegur meistari 18 ára, og 9 ár í röđ varđ hann danskur meistari međ liđi sínu Helsinge Chess Club. Hann stefnir á sinn fyrsta áfanga ađ stórmeistaratitli á mótinu, og verđur án efa erfiđur viđureignar. Simon kemur inn í mótiđ í stađ Jakob Vang Glud (2520) sem nýveriđ náđi sínum öđrum áfanga ađ stórmeistaratitli á Politiken Cup. Glud sá Stórmeistaramót Taflfélagsins sem kjöriđ tćkifćri til ađ ná lokaáfanganum, en vegna anna viđ nám, ţurfti hann ađ hćtta viđ ţátttöku.
6. Alţjóđlegi meistarinn Arnar Erwin Gunnarsson (2441)
Arnar er án efa einn hćfileikaríkasti skákmađur landsins. Snemma kom í ljós hversu mikiđ efni vćri hér á ferđ, enda varđ pilturinn hvorki meira né minna en áttfaldur Norđurlandameistari í skák. Arnar hefur unniđ sigur allavegana einu sinni á öllum stćrstu mótum landsins, ađ undanskildum landsliđsflokknum. Fjórum sinnum hefur hann orđiđ atskákmeistari Íslands, og er einnig ţekktur sem einn snjallasti hrađskákmađur landsins. Eflaust munu nú margir bíđa spenntir eftir ađ sjá meistarann taka ţátt í stórmóti í kappskák eftir ţó nokkuđ hlé. Arnar hefur allan sinn skákferil veriđ liđsmađur Taflfélags Reykjavíkur.
7. Alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2434)
Guđmundur er án efa virkasti íslenski skákmeistarinn í dag. Hann hefur á árinu ţegar teflt vel yfir 100 kappskákir og geri ađrir betur! Guđmundur varđ Norđurlandameistari U-20 og síđan alţjóđlegur meistari áriđ 2009. Fyrsti áfanginn ađ stórmeistaratitli kom sama ár á skoska meistaramótinu. Í fyrra tefldi Guđmundur mikiđ í suđur Ameríku og varđ m.a. í 1.-3. sćti á alţjóđlegu móti í Bogotá, Kólumbíu. Fyrr í sumar sigrađi hann stigahćsta keppenda Stórmeistaramótsins, Sergey Fedorchuk í glćsilegri skák á Evrópumeistaramóti einstaklinga. Guđmundur er ţví í góđri ţjálfun, getur unniđ hvern sem er á góđum degi og stefnir án efa á annan stórmeistaraáfanga sinn. Guđmundur er uppalinn hjá Taflfélagi Reykjavíkur og hefur allan sinn feril teflt fyrir félagiđ.
8. Alţjóđlegi meistarinn Bragi Ţorfinnsson (2493)
Bragi varđ alţjóđlegur meistari áriđ 2003. Áriđ 2012 var hann á međal sigurvegara á Opna skoska meistaramótinu međ 7 v. af níu. Fyrsta áfanginn ađ stórmeistaratitli kom í hús í ár í bresku deildakeppninni. Ţar tefldi hann fantavel og gerđi m.a. jafntefli viđ stórmeistarann ţekkta Nigel Short. Bragi hefur margsinnis teflt fyrir hönd Íslands og varđ Ólympíumeistari međ sveit Íslands, á Ólympíumóti unglingalandsliđa í Las Palmas, Kanaríeyjum, áriđ 1995. Auk ţess tefldi hann međ landsliđinu á Ólympíumótinu 2004 og 2010 sem og í ţremur Evrópukeppnum landsliđa 2001, 2003 og 2010. Nokkuđ ljóst má vera ađ Bragi er hvađ líklegastur til afreka á mótinu, og gćti hćglega nćlt sér í sinn annan áfanga ađ stórmeistaratitli. Bragi er liđsmađur Taflfélags Bolungarvíkur.
9. Fide meistarinn Sigurbjörn Björnsson (2395)
Sigurbjörn hefur einn áfanga til alţjóđlegs meistaratitils og hefur sannarlega styrk til ađ sćkja annan á Stórmeistaramóti Taflfélags Reykjavíkur. Sigurbjörn hefur unniđ fjölmörg mót innanlands og besti árangur hans á erlendri grundu er 4-13. sćti á Politiken Cup áriđ 2004 og 2.-12 sćti á Politiken Cup áriđ 2005, í bćđi skiptin međ sjö og hálfan vinning af tíu. Ţađ verđur gaman ađ fylgjast međ kappanum, enda einn af ţeim líklegri til ađ ná "normi" á mótinu. Sigurbjörn er liđsmađur Taflfélags Vestmannaeyja.
10. Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2266)
Ţorvarđur er nýjasti liđsmađur Taflfélags Reykjavíkur og ţađ er okkur mikil ánćgja ađ hann skuli nú taka ţátt í fyrsta Stórmeistaramóti félagsins. Fáir hafa veriđ duglegri ađ sćkja mót félagsins en Ţorvarđur og hann hefur stórbćtt sig undanfariđ eitt og hálft ár. Hann sigrađi á Skákţingi Reykjavíkur 2009 og hefur sigrađ á Öđlingamóti T.R. undanfarin tvö ár. Ţorvarđur varđ skákmeistari Hafnarfjarđar ţrjú ár í röđ 2003-2005. Ţađ skildi enginn afskrifa "Varđa" ţótt hann sé stigalćgstur keppenda. Stigin telja nefnilega ekkert á reitunum sextíu og fjórum og Ţorvarđur gćti hćglega sett strik í reikning gegn mun stigahćrri keppendum á ţessu móti.
Taflfélag Reykjavíkur vill međ ţessu móti gefa nokkrum af efnilegustu skákmönnum landsins kost á ađ tefla hér á landi á öflugu lokuđu móti sem sérsniđiđ er til áfangaveiđa. Má segja ađ ţar međ hafi félagiđ svarađ kalli íslenskra afreksskákmanna um slíkt mótahald, og ţađ er von okkar í stjórn Taflfélagsins ađ ţetta mót verđi nú sem og nćstu ár sú vítamínsprauta inn í íslenskt afreksskáklíf sem vantađ hefur. Ţađ er einnig von okkar í T.R. ađ ţađ muni hvetja önnur félög til slíks mótahalds í framtíđinni, hvort sem er upp á eigin spýtur eđa í samvinnu sín á milli.
En Taflfélagiđ mun einnig nýta komu erlendu meistaranna til ađ gefa ţeim fjölmörgu börnum og unglingum sem sćkja ćfingar félagsins tćkifćri á ađ kynnast ţeim og tefla viđ ţá. Bođiđ verđur t.d. upp á fjöltefli viđ einn af meisturunum og fleira skemmtilegt verđur á dagskránni.
Meira um fyrirkomulag mótsins, töfluröđun, tímasetningar umferđa og fleira, mun verđa tilkynnt fljótlega
18.9.2013 | 09:52
Gunnar og Arnaldur sigurvegarar á Breiđbliksćfingu
Gunnar Björnsson og Arnaldur Loftsson urđu efstir og jafnir á fyrstu Breiđabliksćfingunni sem fram fór í Stúkunni í gćr. Ţeir hlutu 8 vinninga í 9 skákum. Ćfingar Skákdeildar Breiđabliks fara fram í Stúkunni hvert ţriđjudagskvöld í vetur og segja má ađ ađstćđur ţar séu hreint frábćrar fyrir skákmótahald.
Tólf keppendur tóku ţátt en ekki var hćgt ađ klára mótiđ ţví skila ţurfti húsnćđinu kl. 22. Var ţađ Arnaldi til happs ţví hann átti bćđi eftir ađ mćta Gunnari og Stefáni Bergssyni.
Teflt var međ tímamörkunum 4+2.
Röđ efstu manna:
- Gunnar Björnsson 8 v. af 9 (41 SB)
- Arnaldur Loftsson 8 v. (33 SB)
- Vignir Vatnar Stefánsson 7 v.
- Halldór Grétar Einarsson 7 v.
- Stefán Bergsson 6 v.
- Siguringi Sigurjónsson 5 v.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.7.): 17
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 161
- Frá upphafi: 8778534
Annađ
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 114
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar