Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2013

Guđmundur tapađi í lokaumferđinni - endađi í 9.-15. sćti

Guđmundur Kjartansson í Andorra

Guđmundur Kjartansson (2434) tapađi fyrir alţjóđlega meistarann Felix Jose Ynojosa (2405) frá Venesúela í níundu og síđustu umferđ alţjóđlega mótsins í Badalona sem fram fór í gćr. Guđmundur hlaut 6 vinninga og endađi í 9.-15. sćti.

Frammistađa Guđmundar samsvarađi 2459 skákstigum og hćkkar hann um 4 stig fyrir hana.

Spćnski alţjóđlegi meistarinn Joan Fluvia Poyatos (2491) sigrađi á mótinu en hann hlaut 7,5 vinning.

Guđmundur hélt á annađ alţjóđlegt skákmót á Spáni sem hófst í dag.

Alls tóku 94 skákmenn frá 21 landi ţátt í efsta flokki. Međal keppenda voru sex stórmeistarar og 22 alţjóđlegir meistarar. Guđmundur var nr. 17 í stigaröđ keppenda.

Engar beinar útsendingar.


Brćđurnir töpuđu í lokaumferđinni

Brćđur Bragi og Björn

Brćđurnir Bragi (2493) og Björn Ţorfinnssynir (2403) töpuđu báđir í níundu og síđustu umferđ alţjóđlegs móts í Riga sem lauk í dag. Bragi fyrir ţýska alţjóđlega meistaranum Jonathan Carlstedt (2387) og Björn fyrir finnska FIDE-meistaranum Tommi Luukkonen (2284).

Bragi hlaut 5 vinninga og endađi í 57.-74. sćti (60. á stigum) en Björn hlaut 4,5 vinning og endađi í 75.-99. sćti (77. á stigum). 

Frammistađa Braga samsvarađi 2408 skákstigum en Björns 2239 skákstigum. Báđir lćkka ţeir á stigum. Bragi um 10 stig en Björn um 18 stig.

Stórmeistararnir Bartosz Socko (2646), Póllandi, sem er félagi í Víkingaklúbbnum, og Robin Van Kampen (2606), Hollandi, sem er félagi í Gođum-Mátum sigruđu á mótinu en ţeir hlutu 7 vinninga.

Alls tóku 173 skákmenn frá 28 löndum ţátt í efsta flokki. Ţar af voru 27 stórmeistarar og jafnmargir alţjóđlegir meistarar. Bragi var nr. 24 í stigaröđ keppenda en Björn var nr. 46.



David Howell međ yfirburđi á 100. breska meistaramótinu

David HowellStórmeistarinn David Howell (2639) sigrađi međ yfirburđum á 100. Breska meistaramótinu í skák sem fram fór 29. júlí - 9. ágúst í  Torquay á Englandi. Howell hlaut 9,5 vinning í 11 skákum og samsvarađi frammistađa hans 2768 skákstigum. í 2.-4. sćti međ 8 vinninga urđu stórmeistararnir Gawain Jones (2643), Mark Hebden (2555) og  Stephen Gordon (2521).

Yfir 1000 keppendur tóku ţátt á breska meistaramótinu í 23 flokkum. Ţar af voru 13 stórmeistar. Stćrstu bresku stjörnurnar Adams, McShane og Short tóku ekki ţátt.

Heimasíđa mótsins


Stórmót Árbćjarsafns og TR fer fram í dag

Hallgerđur og HeimirStórmót Árbćjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram í níunda sinn sunnudaginn 11. ágúst. Teflt verđur í Árbćjarsafni og hefst tafliđ kl. 14. Tefldar verđa sjö umferđir međ umhugsunartímanum 7 mín. á skák.

Breyting verđur gerđ á lifandi taflinu sem veriđ hefur árviss atburđur á Stórmóti Árbćjarsafns og T.R.  Notast verđur nú viđ taflmennina af útitafli Reykjavíkur í stađ "lifandi taflmanna".  Hefst sú skák klukkan 13.

Veitt verđa verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í Stórmótinu, 12.000 kr., 8.000 kr. og 5.000 kr.

Ţátttökugjöld í Stórmótinu eru kr. 1.000 fyrir 18 ára og eldri, en ókeypis fyrir yngri en 18 ára, eldri borgara (67) og öryrkja.  Ţátttökugjöld eru jafnframt ađgangseyrir ađ safninu en ţeir sem ţegar hafa ađgang, t.d. međ menningarkorti, ţurfa ekki ađ borga ţátttökugjald.

Frekari upplýsingar veitir Torfi Leósson, netfang: (torfi.leosson@gmail.com) eđa í síma 697-3974.  

Mótiđ er jafnan upphafsviđburđur skákársins, og viđ vonumst til ađ sjá sem flesta á ţessu skemmtilega móti.


Borgarskákmótiđ fer fram á ţriđjudag

045Borgarskákmótiđ fer fram ţriđjudaginn 13. ágúst, og hefst ţađ kl. 16:00. Mótiđ fer fram venju samkvćmt í Ráđhúsi Reykjavíkur og standa Reykjavíkurfélögin, Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagiđ Hellir, ađ mótinu, eins og ţau hafa gert síđustu ár. Gera má ráđ fyrir ađ margir af sterkustu skákmönnum ţjóđarinnar taka ţátt í ţví. Skákmenn eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst eftir ađ opnađ verđur fyrir skráningu. Mótiđ er öllum opiđ og er ţátttaka ókeypis en skráning fer fram hér á Skák.is


Einnig er hćgt ađ skrá sig í í síma 866 0116 Vigfús og 899 9268 (Björn). Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Ţetta er í 27. sinn sem mótiđ fer fram og er ţetta iđulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigrađi Sigurbjörn Björnsson sem tefldi fyrir Verkís.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, setur mótiđ og leikur fyrsta leik ţess.

Verđlaun:

  1. 15.000 kr.
  2. 10.000 kr.
  3. 5.000 kr.

Hátíđ í Fischersetri á sunnudag

Sunnudaginn 11.ágúst kemur Helgi Ólafsson stórmeistari til Selfoss og heldur fyrirlestur um kynni sín af Bobby Fischer. 

Ţetta er án efa mikill fengur fyrir alla skákáhugamenn sem og ađra enda Helgi ekki bara međ eindćmum skemmtilegur fyrirlesari heldur ţekkti hann Fischer vel og átti mikil samskipti viđ hann síđustu ćviár heimsmeistarans.

helg ó

Helgi mun auk ţess sem hann segir frá kynnum sínum af Fischer taka ţátt í hrađskákmóti sem fram fer ađ loknu erindi, hann kemur ekki einn, ţví međ honum í för verđa nokkrir nemendur hans úr Skákskóla Íslands sem einnig munu taka ţátt í hrađskákmótinu.

Hvetjum alla skákáhugamenn til ađ mćta og hlusta á stórmeistarann og taka síđan nokkrar skákir viđ efnilegustu börn landsins.  Mótiđ er náttúrulega síđan einnig góđ upphitun fyrir Hrađskákkeppni skákfélaga en ţar mćtir SSON Taflfélagi Vestmannaeyja á heimavelli Eyjamanna, í Reykjavík!

Fyrirlesturinn hefst kl 13:30 og ćtla má ađ hrađskákmótiđ sem er öllum opiđ hefjist um klukkustund síđar.


Guđmundur međ jafntefli viđ stórmeistara í dag

Guđmundur Kjartansson í Andorra

Guđmundur Kjartansson (2434) gerđi jafntefli viđ spćnska stórmeistarann Daniel Alsina Leal (2538) í áttundu og nćstsíđustu umferđ Badalona-mótins sem fram fór í dag. Guđmundur hefur 6 vinninga og er í 4.-8. sćti.

Í lokaumferđinni, sem fram á morgun, teflir hann viđ alţjóđlega meistarann Felix Jose Ynojosa (2405) frá Venesúela.

Spćnski alţjóđlegi meistarinn Joan Fluvia Poyatos (2491) er efstur á mótinu međ 7 vinninga.

Alls taka 94 skákmenn frá 21 landi ţátt í efsta flokki. Međal keppenda eru sex stórmeistarar og 22 alţjóđlegir meistarar. Guđmundur er nr. 17 í stigaröđ keppenda.

Engar beinar útsendingar.


Bragi vann í Riga í dag

Brćđur Bragi og Björn

Bragi Ţorfinnsson (2493) vann bandaríska FIDE-meistarann Valdis Saulespurens (2324) í 7. umferđ alţjóđlega mótsins í Riga sem fram fór í dag. Björn (2403), bróđir hans, tapađi hins vegar fyrir eistneska FIDE-meistaranum Egons Lavendelis (2300).

Bragi hefur 4,5 vinning en Björn hefur 3,5 vinning. Fimm skákmenn eru efstir og jafnir međ 4,5 vinning. Ţađ eru alţjóđlegu meistararnir Mikhail Antipov (2488), Rússlandi, og Daniel Naroditsky (2503), Bandaríkjunum, og stórmeistararnir Robin Van Kampen (2606), Hollandi, Aloyzas Kveinys (2491), Litháen, og Igors Rausis (2552), Tékklandi. 

Í áttundu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer á morgun, tefla ţeir báđir viđ titillausa andstćđinga. Bragi viđ Ísraelsmann (2341) en Björn viđ Eista (2214).

Alls taka 173 skákmenn frá 28 löndum ţátt í efsta flokki. Ţar af eru 27 stórmeistarar og jafnmargir alţjóđlegir meistarar. Bragi er nr. 24 í stigaröđ keppenda en Björn er nr. 46.

Hannes efstur í Búdapest - vann Varga í dag

Hannes HlífarStórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2526) er efstur á First Saturday-móti sem nú er í gangi í Búdapest. Ađ loknum sex umferđum hefur hann 4 vinninga. Í fimmtu umferđ tapađi hann fyrir Bandaríkjamanninum Erik F. Santarius (2263) en í sjöttu umferđ sem fram fór í dag, vann hann ungverska stórmeistarann Zoltan Varga (2449).

Í sjöundu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir hann viđ Kínverjann Jia Haoxiang (2363).

Hannes teflir í lokuđum 10 manna flokki ţar sem međalstigin eru 2410 skákstig. Hannes er nćststigahćstur keppenda.

 


Dagur vann í lokaumferđinni - endađi í 3.-10. sćti

Dagur Arngrímsson

Alţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2385) vann rúmenska alţjóđlega meistarann Ervin Mozes (2207) í níundu og síđustu umferđ Arad-mótsins í Rúmeníu sem fram fór í morgun.

Dagur hlaut 7 vinninga og endađi í 3.-10. sćti á mótinu. Hann mćtti 8 Rúmenum í ţessum 9 umferđum! Frammistađa hans samsvarađi 2392 skákstigum og hćkkar hann um 3 stig fyrir hana. 

Sigurvegarar mótsins međ 7˝ vinning voru úkraínski alţjóđlegi meistarinn Konstantin Tarlev (2545) og ungverski stórmeistarinn Attila Czebe (2467).

241 skákmađur frá 16 löndum tók ţátt í mótinu. Ţar af voru 8 stórmeistarar og 19 alţjóđlegir meistarar. Dagur var nr. 21 í stigaröđ keppenda.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.8.): 2
  • Sl. sólarhring: 35
  • Sl. viku: 130
  • Frá upphafi: 8779680

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 105
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband