Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, september 2012

Afmćlismót í sjónvarpsfréttum

218Báđar sjónvarpsstöđvarnar komu á afmćlismótiđ í Laugardagshöllinni í gćr og tóku myndir og viđtöl.  Og í báđum stöđvum var talađ viđ Friđrik Ólafsson.  Tengla á fréttirnar má finna hér á neđan.  En hver er Skafti?


Stefnumótunarvinna SÍ

Stefnumótun SÍSkáksamband Íslands verđur međ stefnumótunarvinnu fyrir sambandiđ/skákhreyfinguna um nćstu helgi í Grímsnesi.   Ţetta er í fyrsta skipti sem skákhreyfingin stendur fyrir slíku.  Í dag hittist vinnuhópur fyrir stefnumótunarvinnuna, ásamt Ţresti Olaf Sigurjónssyni, lektor viđ Háskólanum viđ Reykjavík, 003_1172659.jpgsem verđur ţátttakendum til ađstođar, til ađ undirbúa stefnumótunarvinnuna sem best.  

Ásamt stjórnarmönnum er formönnum taflfélaga bođiđ ađ taka ţátt í stefnumótunarvinnunni.

 


Myndaveisla úr Höllinni

165Skákhátíđin mikla í Laugardalshöll heppnađist frábćrlega, eins og fram hefur komiđ í máli og myndum í fjölmiđlum. Skák.is hvetur ţá sem voru vopnađir myndavél á laugardaginn ađ senda eftirminnilegar og skemmtilegar myndir til birtingar hér á vefnum. Netfangiđ er frettir@skaksamband.is.

Hér er ađ finna nokkrar eftirminnilegar og skemmtilegar myndir úr Höllinni.


Skovbo: Henrik í 1.-2. sćti međ 3,5 vinning eftir 4 umferđir

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2509) hefur 3,5 vinning eftir 4 umferđir á alţjóđlegu móti sem fram fer í Borup í Danaveldi og er efstur ásamt lettneska stórmeistaranum Normunds Miezis (2574).

Í sínum ţremur vinningsskákum hefur hann unniđ alţjóđlegu meistarana John Arni Nielssen (2372) og Mikkel Djernćs Antonsen (2445) og einn stigalágan andstćđing (2000).   Jafntefliđ varđ í fyrstu umferđ gegn FIDE-meistaranum Igor Teplyi (2377).

Nú er hlé á mótinu til 20. september.  Ţá teflir Henrik viđ Miezis.

72 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 6 stórmeistarar.  Henrik er nr. 5 í stigaröđ keppenda.  Mótiđ fer fram 14.-23. september.

 


Stjórn SÍ um breytingar á íslenska ólympíuliđinu

Stjórn Skáksambands Íslands harmar atvik sem áttu sér stađ í ađdraganda ólympíuskákmótsins og urđu til ţess ađ breytingar voru gerđar á liđinu ađeins degi fyrir mót.

Á stjórnarfundi, sem fram fór 13. september sl., var skipuđ nefnd, undir forystu Jóns Ţorvaldssonar, sem hefur fengiđ ţađ verkefni ađ fara yfir ţessi atvik og breytingarnar sem fylgdu í kjölfariđ, međ ţađ fyrir augum ađ koma í veg fyrir ađ slíkt endurtaki sig.

Ţađ er ósk SÍ ađ nefndin fá stuđning íslensks skákheims til ţessarar vinnu.


Barna- og unglingameistaramót TR sem og Stúlknameistaramót TR fer fram í dag

Barna- og unglingameistaramót T.R. sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 16. september  í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Tafliđ hefst kl.14.

Tefldar verđa 7 umferđir eftir Monrad-kerfi međ umhugsunartímanum 15 mín. á skák.

Teflt verđur í einum flokki. Verđlaun verđa veitt fyrir ţrjú efstu sćtin í mótinu og ţar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2012. Ţá verđa veitt verđlaun fyrir ţrjár efstu stúlkurnar og ţar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2012. Til viđbótar verđa veitt verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í aldursflokknum 12 ára og yngri.

Mótiđ er opiđ öllum krökkum 15 ára og yngri (fćdd 1997 og síđar). Skráning fer fram á taflfelag@taflfelag.is (vinsamlegast gefiđ upp nafn, fćđingarár og símanúmer) og einnig er hćgt ađ skrá sig á mótsstađ sunnudaginn 16. september frá kl. 13.30- 13.45.

Ađgangur á mótiđ er ókeypis.


Fjölmenni á glćsilegri skákhátíđ í Laugardalshöll

Hátt í ţúsund manns hafa sótt viđburđi á vegum skákhátíđar, sem stendur nú yfir í Laugardalshöll, í tilefni af ţví ađ fjörutíu ár eru liđin frá heimsmeistaraeinvígi Boris Spassky og Robert Fischer, sem fram fór í Reykjavík sumariđ 1972.  Á málţingi, sem haldiđ var í tengslum viđ mótiđ, var rćtt um ađ standa mćtti betur ađ ţví ađ minna á einvígiđ og nýta ţađ betur í ţágu ferđaţjónustu, t.d. međ varanlegri sýningu eđa gerđ minnismerkis.

Skákhátíđin hófst međ málţingi ţar sem fjallađ var um einvígiđ frá ýmsum hliđum. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og formađur undirbúningsnefndar skákhátíđarinnar, benti á ađ skákeinvígi Fischer og Spassky vćri án efa frćgasta skákkeppni allra tíma og ţví vćri eđlilegt ađ tala um ţađ sem einvígi aldarinnar. Hann sagđi ađ fram komin gagnrýni um ađ nýta ţyrfti betur ţau tćkifćri sem felast í ţví ađ borgin hafi hýst slíkan heimsviđburđ, vćri réttmćt. ,,Ađilar í ferđaţjónustu hafa t.d. bent á ađ fátt minni á heimsmeistaraeinvígiđ 1972 og ađ ţađ muni tvímćlalaust styrkja Reykjavík sem ferđamannaborg ef bćtt verđur úr ţví. Nú stendur yfir tímabundin sýning í Ţjóđminjasafninu á munum, sem tengjast einvíginu. Rétt er ađ taka til skođunar hugmyndir um ađ koma sýningunni fyrir á varanlegum stađ, sem og hugmyndir um minnismerki. Öflugt skákstarf međal yngstu kynslóđarinnar er ţó eflaust besta minnismerki um einvígi aldarinnar sem völ er á," sagđi Kjartan.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráđherra, hrósađi starfi skákhreyfingarinnar og sagđi á döfinni ađ skipa starfshóp á vegum ráđuneytisins til ađ fara yfir og meta skákkennslu í grunnskólum međ ţađ ađ markmiđi ađ efla skákstarf enn frekar međal yngstu kynslóđarinnar. ,,Viđ viljum útbreiđa skákíţróttina enn frekar en međ henni fá börn hugarró til einbeitingar nú á tímum mikils áreitis. Ţá erum viđ tilbúin til samstarfs viđ Reykjavíkurborg og skákhreyfinguna um ađ gera sýninguna um heimsmeistaraeinvígiđ 1972 varanlega međ einhverjum hćtti," sagđi Katrín.

Eric Green, stađgengill sendiherra Bandaríkjanna, fjallađi um mikilvćgi einvígis aldarinnar međ tilliti til Kalda stríđsins og stöđunnar í alţjóđamálum á áttunda áratugnum. Hann fjallađi einnig um persónuleika keppendanna og benti á ađ móđir Fischer hefđi veriđ kommúnisti og virk í pólitísku starfi. Hún hefđi síđan yfirgefiđ Fischer ţegar hann var sextán ára. ,,Ţađ hafđi mikil áhrif á hann og hefur ef til vill mótađ afstöđu hans til Sovétríkjanna. Ţađ má á margan hátt segja ađ kalt stríđ hafi geisađ í fjölskyldu hans."

Andrei Melnikov, sendiráđsritari í rússneska sendiráđinu, fjallađi um samskipti keppendanna og ţá hluti sem ţeir áttu ţrátt fyrir allt sameiginlega. Fischer vildi upphaflega tefla í Júgóslavíu enda naut hann mikilla vinsćlda ţar en Spassky fékk á endanum ađ ráđa ţví ađ Ísland varđ fyrir valinu. Tuttugu árum síđar tefldu ţeir aftur í Júgóslavíu og í kjölfariđ gat Fischer ekki snúiđ aftur til Bandaríkjanna. Ţađ var ţví sama hvađ Fischer langađi til ađ tefla í Belgrad, alltaf endađi hann á Íslandi," sagđi Melnikov.

Melnikov benti einnig á ađ margar myndir hefđu birst af Fischer í rússneskum blöđum í tengslum viđ heimsmeistaraeinvígiđ og brátt hefđi hárklipping Fischer orđiđ mjög vinsćl í Sovétríkjunum. ,,Algengt var ađ mćđur kćmu međ syni sína til rakarans og bćđu um ađ ţeir fengju Fischer-klippingu," sagđi Melnikov.

Friđrik Ólafsson stórmeistari sagđi ađ heimsmeistaraeinvígiđ hefđi veriđ ćvintýri sem aldrei mćtti gleymast. ,,Ţarna er deig sem ţarf ađ móta og gera meira úr," sagđi Friđrik.

Friđrik hafđi margvísleg kynni af báđum keppendum.  Rifjađi hann upp ýmsar sögur í tengslum viđ ţađ en tók sérstaklega fram ađ hann hefđi kosiđ ađ leiđa hjá sér öll ágreiningsmál, sem kćmu upp á milli Fischer og Spassky í einvíginu.  

Helgi Ólafsson stórmeistari fjallađi um ţau áhrif sem heimsmeistaraeinvígiđ hafđi á skákíţróttina víđa um heim. ,,Áhugi á skák jókst mjög í kjölfariđ og víđa varđ skáksprenging," sagđi Helgi.

Helgi sagđist oft hafa velt persónuleika Fischer fyrir sér og hvađ hann hefđi haft umfram ađra, sem gerđi hann ađ heimsmeistara. Niđurstađan vćri sú ađ Fischer varđ ,,harđhaus," afar harđur í horn ađ taka og sást stundum ekki fyrir, eins og sumar persónur í Íslendingasögunum sem brá hvorki viđ sár né bana.

Helgi sagđi ađ Íslendingar hefđu veriđ heppnir ađ fá heimsmeistaraeinvígiđ 1972 upp í hendurnar, margar tilviljanir hefđu ţar komiđ saman. ,,Ţađ er mikilvćgt ađ viđ Íslendingar minnum á mikilvćgi einvígisins og vinnum betur úr ţví á nćstu árum," sagđi Helgi.

Óttarr Ólafur Proppé, borgarfulltrúi og stjórnaformađur Skákakademíu Reykjavíkur, ţakkađi fyrir gott málţing og sagđi ađ ţar hefđi komiđ fram međ skýrum hćtti hve mikil áhrif ţađ hefđi haft á alţjóđamálin, skákíţróttina og Íslendinga sem unga og nýsjálfstćđa ţjóđ á ţessum tíma. Skákhátíđin vćri ánćgjuleg áminning um einvígiđ og hvatning til Reykjavíkurborgar og skákhreyfingarinnar ađ festa minningu ţess og skáklíf í borginni enn frekar í sessi.

Ađ málţingi loknu hófst risaskákmót í Laugardalshöll ţar sem um ţrjú hundruđ keppendur skráđu sig til leiks. Jón Gnarr, borgarstjóri, setti mótiđ međ orđunum "Skák er töff". Tefldar voru sex umferđir ađ viđstöddum fjölda ţátttakenda. Er taliđ ađ keppendur og gestir skákhátíđar hafi veriđ á milli 7-800 manns.  

Sigurvegarar flokkanna:

  • 1.-2. bekkur: Joshua Davíđsson
  • 3.-4. bekkur: Vignir Vatnar Stefánsson
  • 5.-6. bekkur: Hilmir Freyr Heimisson
  • 7.-10. bekkur: Oliver Aron Jóhannsson
  • Heiđursflokkur: Jóhann Örn Sigurjónsson
Myndir vćntanlegar síđar sem og nánari úrslit

 


Afmćlismót aldarinnar fer fram í dag - hefst međ málţingi kl. 11

Fischer SpasskyUm 250 börn eru skráđ til leiks á Afmćlisskákmóti aldarinnar, sem fram fer í Laugardalshöll í dag kl. 13. Keppendur eru minntir á ađ mćta ađ minnsta kosti hálftíma fyrr. Allir fá sérhannađa boli í tilefni dagsins og hćgt verđur ađ skođa ýmsa muni sem tengjast einvíginu.

Stefán Bergsson framkvćmdastjóri Skákakademíunnar og mótsstjóri segist hlakka til morgundagsins:

,,Ţetta stefnir í frábćra skákhátíđ í Laugardalshöll. Um 200 börn eru skráđ til leiks og fjölmargir skákmenn 60 ára og eldri. Ţá verđur ekki síđur spennandi ađ fylgjast međ málţinginu, sem hefst klukkan 11. Ţar verđur fariđ yfir einvígiđ frá mörgum hliđum. Ţađ er ánćgjulegt ađ sendimenn Bandaríkjanna og Rússlands taki ţátt í málţinginu, auk meistaranna Helga Ólafssonar og Friđriks Ólafssonar. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráđherra flytur setningaávarp og Kjartan Magnússon formađur undirbúningsnefndar og Óttarr Proppé lýsa sinni sýn á einvígiđ."

Keppt verđur í 4 flokkumm barna og ungmenna, og auk ţess sérstökum flokki 60 ára og eldri.

Stefán hvetur skákáhugamenn á öllum aldri og fjölskyldur til ađ fjölmenna í Höllina í dag.

,,Ţetta verđur margrétta og skemmtileg skákveisla viđ allra hćfi!"

Framsýnarmótiđ fer fram helgina 21.-23. september

Framsýnarmótiđ í skák 2012 verđur haldiđ helgina 21-23 september nk. í fundarsal stéttarfélagsins Framsýnar ađ Garđarsbraut 26 á Húsavík. Ţađ er skákfélagiđ Gođinn/Mátar í Ţingeyjarsýslu og Framsýn-stéttarfélag, sem sjá um mótshaldiđ.

Mótiđ er öllum áhugasömum opiđ.

Dagskrá.

1. umf. föstudaginn 21 september kl 20:00   25 mín (atskák)
2. umf. föstudaginn 21 ------------ kl 21:00       
3. umf. föstudaginn 21 ------------ kl 22:00     
4. umf. föstudaginn 21 -----------  kl 23:00     

5. umf. laugardaginn 22 október kl 11:00  90 mín + 30 sek/leik
6. umf. laugardaginn 22 október kl 19:30   
7. umf. sunnudaginn  23 október kl 11:00 

Verđlaunaafhending í mótslok.

Verđlaun.

Veittir verđa glćsilegir eignarbikarar fyrir ţrjá efstu í mótinu sem stéttarfélagiđ Framsýn gefur í tilefni af samvinnu Framsýnar og skákfélagsins Gođans/Máta í ţingeyjarsýslu. Einnig hlýtur efsti utanfélagsmađurinn eignarbikar.

Mótiđ verđur reiknađ til íslenskra skákstiga og til FIDE-skákstiga.
Ekkert ţátttökugjald er í mótiđ.

Upplýsingar.

Allar nánari upplýsingar um Framsýnarskákmótiđ verđa ađgengilegar á heimasíđu skákfélagins Gođans/Máta, ásamt skráningu, stöđu, skákir og svo loka-úrslit, verđa birt á http://www.godinn.blog.is/  og áhttp://www.framsyn.is/

Skráning.

Skráning í mótiđ er hjá Hermanni Ađalsteinssyni, formanni skákfélagins Gođans/Máta, í síma 4643187 og 8213187


Fjölnir byrjar vetrarstarfiđ í dag

img_6640_1171607.jpgVikulegar skákćfingar Skákdeildar Fjölnis fyrir börn og unglinga hefjast laugardaginn 15. september og verđa ţćr framvegis alla laugardaga í vetur frá kl. 11:00 - 12:30. Ćfingarnar eru í Rimaskóla og er gengiđ inn um íţróttahús skólans. Árangur ţeirra barna sem sótt hafa reglulega skákćfingar Fjölnis hefur veriđ mjög góđur á undanförnum árum og skákdeildin hlotiđ mörg verđlaun og viđurkenningar fyrir árangursríkt starf. Fjölnismenn eiga nánast alla Íslandsmeistara í barna-og unglingaflokkum í skák og á Íslandsmóti unglingasveita 2011 vann A - sveit Fjölnis í fyrsta sinn Íslandsmeistaratitilinn.

Foreldrar áhugasamra barna í Grafarvogi og á höfuđborgarsvćđinu öllu eru hvattir til ađ nýta sérimg_7553.jpg ţessar frábćru skákćfingar Fjölnis sem bjóđast ókeypis. Nauđsynlegt er ađ foreldrar yngstu barna fylgi ţeim á ćfingarnar frá kl. 11:00 - 12:00. Reynt er ađ hafa ćfingarnar fjölbreyttar og skemmtilegar, kennsla og skákmót til skiptis. Bođiđ er upp á ávexti og vatn á hverri ćfingu  og öllum skákmótum lýkur međ verđlaunaafhendingu. Međal leiđbeinenda í vetur verđur ungt afreksfólk í skáklistinni sem á síđustu árum hefur sótt kennslu og ćfingar í úrvalsflokki Skákskóla Íslands og unniđ til fjölda verđlauna jafnt á Íslandi sem erlendis. Má ţar nefna Ingvar Ásbjörnsson, Sigríđi Björgu Helgadóttur og Hjörvar Stein Grétarsson sem öll urđu Íslandsmeistarar og Norđurlandameistarar međ skáksveitum Rimaskóla. Skákdeild Fjölnis verđur í samstarfi viđ Skákakademíu Reykjavíkur og munu kennarar frá akademíunni mćta á nokkrar ćfingar skákdeildarinnar í vetur.

Skákdeild Fjölnis heldur líkt og fyrri ár vegleg barnaskákmót á starfsárinu svo sem Torgmót, páskaeggjaskákmót og sumarskákmót Fjölnis í kringum sumardaginn fyrsta. Skákdeildin hefur einnig skipulagt og haldiđ utan um Skákmót Árnamessu í Stykkishólmi. Síđast en ekki síst ber ađ nefna ađ Skákdeild Fjölnis mun í samstarfi viđ Skákakademíu Reykjavíkur og Skákskóla Íslands efna til ćfingbúđa ađ Úlfljótsvatni helgina 20. - 21. október n.k. Ţetta verđur í annađ sinn sem efnt er til skákbúđa á vegum deildarinnar en í fyrra tókst einstaklega vel til međ skákbúđir í Vatnaskógi ţar sem skákkennsla, leikir, frjáls tími, kvöldvaka og skákmót voru á ţéttskipađri dagskrá. Einstakt og nauđsynlegt tćkifćri fyrir áhugasama skákkrakka. Skákbúđirnar međ nákvćmri dagskrá verđa auglýstar í byrjun október.

Umsjón međ skákćfingum Fjölnis í vetur hefur Helgi Árnason formađur skákdeildarinnar.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 116
  • Frá upphafi: 8778240

Annađ

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband