Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, september 2012

Guđfríđur Lilja í Gođann

Lilja og dóttir

Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir, alţingismađur og fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands, er gengin til liđs viđ Gođann. Félaginu er mikill akkur í atfylgi ţessarar fjölhćfu afrekskonu enda er hún ein fremsta skákkona Íslands og hefur unniđ skákíţróttinni mikiđ gagn.  Guđfríđur Lilja vakti ţegar á unga aldri athygli fyrir skákhćfileika sína.  

Kornung varđ hún alţjóđlegur meistari og ellefu sinnum hefur hún hlotiđ sćmdarheitiđ Íslandsmeistari kvenna í skák. Guđfríđur Lilja braut blađ í skáksögu Íslands ţegar hún var kjörin forseti Skáksambands Íslands áriđ 2004, fyrst kvenna, og hún varđ einnig fyrst kvenna til ađ gegna formennsku í Skáksambandi Norđurlanda. Guđfríđur Lilja hefur unniđ ötullega ađ ţví ađ efla skákiđkun á Íslandi og endurvakti m.a. kvennalandsliđ Íslands í skák áriđ 2000. Hún er međ BA-gráđu í sagnfrćđi frá Harvard og meistaragráđu í heimspeki frá Cambridge í Englandi.  

Hermann Ađalsteinsson, formađur Gođans: „Okkur er ljúft ađ bjóđa skákdrottinguna Guđfríđi Lilju velkomna í okkar rađir. Hiđ ötula starf hennar viđ útbreiđslu og eflingu skákíţróttarinnar er einstakt og viđ vonumst til ţess ađ geta sótt til hennar góđ ráđ og innblástur á ţví sviđi. Fyrst og fremst vonum viđ ţó ađ Guđfríđur Lilja eigi sem flestar ánćgustundir viđ taflborđiđ og ađ hún njóti ţess sem Gođinn hefur upp á ađ bjóđa." 

Guđfríđur Lilja: „Ég kveđ Taflfélagiđ Helli međ söknuđi og ţakklćti. Ţađ er frábćrt félag. Nú er hins vegar komiđ ađ nýjum kaflaskilum í mínum skákferli og ég lít á inngöngu mína í Gođann sem upphafiđ ađ einhverju nýju og fersku. Gođinn hefur vakiđ athygli mína fyrir skemmtilegan liđsanda og kraftmikiđ félagsstarf.  Hér fć ég tćkifćri til  ađ rifja upp mannganginn í góđra vina hópi og hver veit nema ţetta verđi vel heppnuđ innkoma í seinni helming míns skákferils. Skákin er falleg, skemmtileg og skapandi og ég á ekki von á öđru en ađ hún verđi mér dyggur félagi út lífiđ.  Svo er ţađ auđvitađ borđleggjandi ađ hin klassíska skák er margfalt meira gefandi en refskák stjórnmálanna!"


Úlfhéđinn efstur á Meistaramóti SSON

Úlfhéđinn Sigurmundsson er efstur á Meistaramóti SSON en ađrir međ fullt hús eiga frestađar skákir.  Úlfhéđinn hefur 3 vinninga úr 4 skákum en ţeir Grantas, Ingvar Örn og Ingimundur hafa allir fengiđ 2 vinninga úr tveimur skákum, Erlingur Atli er einnig međ 2 vinninga en í 4 skákum.  Vegna óvćntra forfalla er ţetta stađan en keppendur hafa teflt mismargar skákir, en ofangreindir standa óneitanlega vel ađ vígi.

Mótstöflu og nánari upplýsingar má finna á heimasíđu SSON.

 


Ćsir byrja ađ tefla á ţriđjudaginn eftir sumarfrí

Ćsir byrja ađ tefla ţriđjudag 4 september eftir ađ hafa legiđ í sumardvala. Teflt er í Ásgarđi Stangarhyl 4. Allir skákmenn 60 ára og eldri hjartanlega velkomnir.

Hittumst á hvítum reitum og svörtum og skemmtum okkur međ góđum félögum.


Íslandsmót íţróttafélaga í skák nćsta laugardag á Hlíđarenda

Helgi og Jón L.Skákakademían bođar til Íslandsmóts íţróttafélaganna á Hlíđarenda, laugardaginn 8. september kl. 11. Hvert liđ er skipađ 4 leikmönnum og einum varamanni, auk liđstjóra.

Ţátttökurétt hafa öll liđ sem eru ađilar ađ ÍSÍ eđa UMFÍ, og skulu skákmenn klćđast keppnistreyjum síns félags.

Ćtlast er til ađ eingöngu sé teflt fram leikmönnum sem hafa frá unga aldri veriđ stuđningsmenn viđkomandi félags.

Tefldar verđa 7 umferđir međ 5 mínútna umhugsunartíma. Skráningar sendist til Stefáns Bergssonar í stefan@skakakademia.is


Startmót SA fer fram í dag

Skákmenn eru nú óđum ađ draga fram töflin eftir sumariđ og ađ venju klingjum viđ Skákfélagsmenn klukkunum á hinu árlega Startmóti sem hefst nú á sunnudag, 2. september kl. 13.00. Vonandi sjáum viđ góđa mćtingu ungra og aldinna og leggjum ţar međ grunn ađ öflugu starfi í vetur.  Ef mćting gefur tilefni til efnum viđ til stutts fundar í upphafi ţar sem m.a. verđur fjallađ um ţátttökuna á Íslandsmóti skákfélaga 5-7. október nk. og vetrardagskráin kynnt í stórum dráttum.

Stefnt er ađ ţví ađ hefja haustmótiđ ađ áliđnum september og ađalfundur félagsins er einnig fyrirhugađur undir lok ţess mánađar.

Mćtum sterkir á Startmótiđ!


40 ára Einvígislok - Laugardćlakirkju í Hraungerđisprestakalli í dag

match_of_the_century_small_poster.jpgÍ tilefni fjörtíu ára afmćlis Einvígis Aldarinnar í Laugardalshöll 1972, verđur  flutt tónverk eftir Guđlaug Kristinn Óttarsson tónlistarmann, 2. september nk.

Verkiđ byggir á fimm skákum ţeirra Bobby Fischer og Boris Spasský um áriđ.
Heimsmeistaraeinvígiđ í hita kalda stríđsins, undanfari ţess, ţátttakendurnir tveir og saga ţeirra mörkuđu djúp spor í íslenska samtímasögu - og munu eflaust gera um ókomin ár.

Tónverkiđ sem flutt verđur í Laugardćlakirkju í Hraungerđisprestakalli (ţar sem Fischer er jarđsettur), ásamt tölum og fleiri varíöntum dagskrárinnar og ber heiti međ rentu: 40 ára Einvígislok. 

- Og er afrakstur áralangrar ţróunarvinnu Guđlaugs, ţar sem hann tvinnur saman tónlist og skák - og býr til tónkerfi sem byggir á áttunda-nótnakerfi J.S. Bach, ţar sem taflreitirnir 64 eru haglega útfćrđir sem nótur [sjá tengla hér fyrir neđan]. Í verkinu eru 25 ţúsund hljómar.

Daginn sem tónleikarnir eru haldnir, 2. september, eru nákvćmlega fjörtíu ár síđan Bobby Fisher varđ heimsmeistari í skák - í Laugardalshöll.

Fram koma:

Hörđur Bragason, orgel
Dean Ferrel, kontrabassi
Einar Melax, viola da gamba
- og Guđlaugur Kristinn Óttarsson, höfundur, gítar og kynnir.

Ađ lokum:

Viđtal Stöđvar II viđ höfundinn um verkiđ má sjá hér: http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTV92559DC5-F8A6-459E-9A33-AEE2715E6CE2

Tengill (hlekkur) á viđburđarsíđu (Event) á Facebook: http://www.facebook.com/events/376270855776612/?ref=ts
 
Bestu kveđjur,
Mótsnefnd

Töp gegn Filippseyjum og Belgíu

Liđiđ í opnum flokki viđ upphaf umferđarBáđar viđureignirnar töpuđust í 5. umferđ ólympíuskákmótsins sem fram fór í dag.  Liđiđ í opnum flokki tapađi 1-3 fyrir Filippseyingum.  Hannes Hlífar Stefánsson gerđi jafntefli viđ Wesley So og Ţröstur Ţórhallsson gerđi jafntefli viđ Eugene Torre í hörkuskák.  Henrik Danielsen og Dagur Arngrímsson töpuđu.  Kvennaliđiđ tapađi 0,5-3,5 fyrir sveit Belga.  Lenka Ptácníková gerđi jafntefli en ađrar skákir töpuđust.

Liđiđ í opnum flokki hefur 6 stig af 10 mögulegum en liđiđ í kvennaflokki hefur 4 stig.  

Pörun fyrir sjöttu umferđ liggur fyrir um kl. 19 í kvöld.  Ţađ er hins vegar frídagur á morgun.

Skákir dagsins má nálgast hér:


Ól-pistill nr. 6 - Undradrengur, ólympíumethafi og Belgar

TyrkirnirÍ gćr vannst góđur sigur gegn b-sveit Tyrkja sem ţeir kalla hér Tyrkland2016.  Ţađ var svolítill kvíđi fyrir viđureignina enda eru svona ungar sveitir algjörlega óútreiknanlegar.  Tyrkir hafa veriđ ađ vinna frábćrt unglingastarf, undir forystu hins mjög svo umdeilda Ali Nihat, en ţađ er enginn vafi í mínum augum ađ ţeir verđi ađ skákstórveldi á komandi árum.  

Hjörvar var fyrstur til ađ klára.  Ég hafđi ekki náđ ađ koma Kvennaliđiđmér fyrir í blađamannaherberginu eftir smá fundahöld ţegar mér var sagt ađ skákinni vćri lokiđ.  Andstćđingur hans, fćddur 1998, mun víst ćtla sér ađ verđa heimsmeistari í skák.   Ţetta leit ţví ekki gćfulega út í byrjun.  Í ţokkabót var svo líklegt ađ Dagur myndi tapa en sú skák bjargađist rétt fyrir horn.  Henrik vann góđan sigur á fyrsta borđi en ţađ var Ţröstur sem stal athyglinni.  Hann átti hreint stórkostlega skák á 3. borđi, sem ađ mati Helga Ólafsson, sem teflt hefur á 15 ólympíuskákmótum, sé ein sú besta sem Íslendingur hefur teflt á ólympíuskákmóti.  Fyrst fórnađi Ţröstur drottningu fyrir hrók, svo hrók til Ţröstur fer yfir skákinaviđbótar og var um tíma heilli drottningu undir.  

Ţegar Helgi og Ţröstur komu úr skáksalnum voru ţeir skellihlćjandi.  Gurevich, ţjálfari Tyrkjanna, hristi hausinn eftir matsinn og sagđi, „You tought them some lessons".   Ţröstur ćtlar ađ skýra skákina og verđur hún birt hér á Skák.is á nćstum dögum.

Ég slapp viđ ađ fara upp allar 17. hćđirnar og niđur aftur ţví stelpurnar lágu fyrir Ungverjum, sem hafa eitt sterkasta liđiđ hér.  Jóhanna Björg gerđi gott jafntefli viđ Anitu Gara á 2. borđi en ađrar skákir töpuđust. 

Í dag eru ţađ Filippseyingar.  Viđ höfum teflt viđ Filippseyinga níu sinnum áđur á ólympíuskákmótumWesley So - teflir hann á nćsta Reykjavíkurmóti og hefur gengiđ á ýmsu.  Viđ höfum unniđ ţá tvisvar, tapađ ţrisvar og gert fjórum sinnum jafntefli.  Síđast mćttum viđ ţeim í Tórínó 2006.  Jafnt var á öllum tölum fyrir hana en sú viđureign tapađist 0,5-3,5.  Íslenska liđiđ er eins núna nema ađ Dagur kemur inn frá Jóhann Hjartarson.  Henrik gerđi jafntefli.  Stađan nú er samtals 16,5-19,5. 

Á fyrsta borđi teflir ungstirniđ Wesley So sem mun vera hálfgerđ ţjóđhetja ţar niđur frá og á 3. borđi er ţađ sjálf gođsögnin Eugene Torre, sem teflir sína fyrstu skák á mótinu.  Torre, sem var fyrsti stórmeistari Asíu, slćr í dag met ţví ţetta er 21. ólympíuskákmótiđ sem hann teflir á.  Dagur Arngrímsson hélt fyrst ađ ađ hann vćir ađ tefla viđ Ísland - Filippseyjar - er ţetta Davíđ Kjartansson?Davíđ Kjartansson en andstćđingurinn líkist Davíđ býsna mikiđ

Kvennaliđiđ mćtir sterkri sveit Belgíu og eru okkar konur stigalćgri á öllum borđum.  Nú strax sýnist mér Jóhanna vera komin međ komin međ tapađ tafl.

Internetmál eru loks kominn í betra mál á hótelinu og ţađ virkar prýđilega.  Á morgun er fyrri frídagur mótsins. 

Hitti Ivan Sokolov, vin minn, í göngutúr fyrir umferđ.  Hann var ađ taka gleđi sína enda unnu Kvennaliđiđ gegn BelgíuHollendingar Sri Lanka í gćr 4-0.  Anish Giri er auk ţess loks kominn og ţeir tefla viđ Mónakó í dag.  Ivan var bjartsýnn á annan 4-0 sigur.  Hann kvartađi reyndar svolítiđ yfir ţví ađ ţađ tekiđ tíma og orku ađ vinna skákina í gćr.  Geta veriđ erfiđir ţessir Gúnnarar! 

Í dag fyrir umferđina var fundur ţar sem fariđ yfir lagabreytingartillögur FIDE-manna.  Ţetta er óformlegur fundur og ekki á vegum FIDE.  Unniđ er ađ ţví ađ reyna ađ klára sem flest mál fyrir sjálft FIDE-ţingiđ. 

Á ýmsu gekk hjá Norđurlöndunum í gćr.   Norđmenn, Svíar og Danir vilja sjálfsagt gleyma honum sem fyrst.  Svíar töpuđu fyrir Sameinađa arabíska furstadćminu og Danir fyrir Kosta Ríka.   Norđmenn steinlágu, 0-4, fyrir Tékkum. 

Omar og LenkaFćreyingar náđu vel ásćttanlegum einum punkti gegn Georgíu.   Viđ erum efstir međ 6 stig, Finnar og Norđmenn hafa 5 stig, Fćreyingar 4 stig en Svíar og Danir hafa 3 stig en ţau tvö síđastnefndu eru međ áberandi stigahćstu liđin.   

Norđmenn eru efstir í kvennaflokki međ 5 stig en öll hin löndin hafa 4 stig, viđ erum ađrir á stigum.   Svíar og Danir reka ţar einnig lestina

Opinn flokkur:

Rk.

SNo

Team

TB1

TB2

TB3

TB4

34

51

Iceland

6

25

11

13

50

52

Finland

5

22,5

10,5

11

58

54

Norway

5

19

9

15

83

74

Faroe Islands

4

14,5

8

15

97

34

Sweden

3

30

9

18

105

39

Denmark

3

18

9

11

 

Kvennaflokkur:

Rk.

SNo

Team

TB1

TB2

TB3

TB4

39

40

Norway

5

29

9,5

15

64

62

Iceland

4

18

8

16

70

77

Finland

4

14

8

12

71

51

Denmark

4

13

8

13

74

46

Sweden

4

11

8,5

15

 

Ţađ verđur pistill á morgun, ţrátt fyrir frídag, en kannski í styttra lagi.  Nóg í bili.

Gunnar Björnsson


Beinar útsendingar frá viđureignum dagsins

Beinar útsendingar frá 5. umferđ ólympíuskákmótsins hófust kl. 12.  Útsendingar íslensku liđana má nálgast á eftirfarandi tenglum:


Andstćđingarnir: Filippseyjar og Belgía - söguleg skák hjá Ţresti

Dagur, Helgi og ŢrösturŢá liggja fyrir uppstillingar dagsins. Hjörvar Steinn Grétarsson hvílir í opnum flokki.  Filippseyingar stilla upp Eugenie Torre (2469) á ţriđja borđi gegn Ţresti Ţórhallssyni.  Söguleg viđureign ţví međ henni slćr Torre met, sá fyrsti sem teflir á 21 ólympíuskákmóti en Portisch (20) og Westerinen (19) eru nćstir.   Hannes Hlífar Stefánsson teflir viđ ungstirniđ og ţjóđhetjuna Wesley So (2652) á fyrsta borđi.  Tinna Krístín Finnbogadóttir hvílir í kvennalokki gegn Belgum.

Krefjandi viđureignir en íslendingar eru stigalćgri á öllum átta borđunum.

Viđureignir dagsins:

Bo.51  IcelandRtg-35  PhilippinesRtg0 : 0
13.1GMStefansson, Hannes2515-GMSo, Wesley2652 
13.2GMDanielsen, Henrik2511-GMBarbosa, Oliver2554 
13.3GMThorhallsson, Throstur2426-GMTorre, Eugene2469 
13.4IMArngrimsson, Dagur2375-GMParagua, Mark2508


Bo.62  IcelandRtg-48  BelgiumRtg0 : 0
31.1WGMPtacnikova, Lenka2281-WGMZozulia, Anna2346 
31.2 Thorsteinsdottir, Hallgerdur H1957-WFMBaekelant, Eva2128 
31.3 Johannsdottir, Johanna B1886- Goossens, Hanne1998 
31.4 Kristinardottir, Elsa M1737- Barbier, Wiebke1952

 

156 liđ taka ţátt í opnum flokki er í íslenska liđiđ (Ř-2490) taliđ ţađ 51. sterkasta miđađ viđ međalstig.  Í kvennaflokki eru ţátttökuţjóđirnar 125 og er Ísland (Ř-1989) taliđ ţađ 62. sterkasta.


« Fyrri síđa

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 86
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband