Bloggfćrslur mánađarins, mars 2012
23.3.2012 | 21:45
EM: Pörun 5. umferđar
Pörun 5. umferđar EM einstaklinga sem fram fer á morgun liggur nú fyrir. Báđir íslensku stórmeistararnir tefla viđ rússneska stórmeistara međ 2656 skákstig! Hannes teflir viđ Denis Khismatullin en Héđinn mćtir Igor Lysyj. Hannes hefur 3 vinninga og er í 22.-64. sćti (48. sćti á stigum) en Héđinn hefur 2,5 vinning og er í 65.-141. sćti (92. sćti á stigum). 23 efstu ávinna sér keppnisrétt á Heimbikarmótinu (World Cup).
Enski Íslandsvinurinn Gawain Jonese (2635) er einn efstur međ fullt hús og hefur greinilega mikiđ vatn runniđ til sjávar síđan hann rétt hélt jafntefli gegn ritstjóra Skák.is áriđ 2008 í Bunratty á Írlandi. 20 keppendur hafa 3,5 vinning og má ţar međal annarra nefna Íslandsvinina Cheparinov (2664), Kuzubov (2615) og Sokolov (2653).
Hannes og Héđinn verđa báđir í beinni útsendingu á morgun. Bćđi er hćgt ađ fylgjast međ ţeim á heimasíđu mótsins sem og á Chessbomb. Hannes er á borđi nr. 29 en Héđinn á borđi nr. 40.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (borđ 1-47)
- Chess-Results
- Myndaalbúm (GB)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 16:54
EM: Héđinn vann - Hannes međ jafntefli
Stórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2556) vann ítalska FIDE-meistarann Alessio Valsecchi (2429) í 4. umferđ EM einstaklinga sem fram fór í dag í Plovdid í Búlgaríu. Héđinn vann í 35 leikjum. Hannes Hlífar Stefánsson (2531) gerđi jafntefli viđ hvít-rússneska stórmeistarann Sergei Zhigalko (2649) í 36 leikjum. Hannes hefur 3 vinninga en Héđinn hefur 2,5 vinning.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (borđ 1-47)
- Chess-Results
- Myndaalbúm (GB)
23.3.2012 | 13:00
EM: Hannes í beinni
Bein útsending frá 4. umferđ EM einstaklinga hefst nú kl. 13. Hannes Hlífar Stefánsson mćtir hvít-rússneska stórmeistaranum Sergei Zhigalko (2649).
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (borđ 1-47)
- Chess-Results
- Myndaalbúm (GB)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 12:30
Gallerý hark: Jón Ţ. Ţór bar sigur úr bítum
Ţađ var gestkvćmt í Gallerý Skák í gćrkvöldi og kenndi ţar margra grasa. Ungir og aldnir gestir í bland međ Viet-Nömsku ívafi. Hinir gamalkunnu meistarar Gunnar Gunnarsson og Jón Ţ. Ţór börđust lengi um forustuna, töpuđu ţó báđir fyrir Guđfinni stađarhaldara sem sjaldan bregst orđiđ bogalistinn. Úrslitin réđust á hálfu stigi ţar sem ţeir urđu jafnir ađ vinningum ţegar orrahríđinni slotađi međ 9 vinninga af 11 mögulegum.
Ţađ setti óvćnt strik í reikninginn ađ Vietnami nokkur , sem hér er búsettur, kom galvaskur til tafls og reyndist Gunnari skeinuhćttur og vann meistarann óvćnt. Hann fékk 6 vinninga sem og hinn ungi og efnilegi Gauti Páll Jónsson, 12 ára, sem gerđi ţađ gott í gallerýinu í annađ sinn og skaut mörgum valinkunnum teflendum ref fyrir rass. Á ýmsu öđru gekk en allir skyldu ţó sáttir í lokin og ţess albúnir ađ mćtast aftur ađ viku liđinni og taka slaginn á ný.
Nánari úrslit skv. međf. mótstöflu.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 08:30
Öflugt skáksamstarf fjögurra skóla skólaáriđ 2011 - 12
Fjörir grunnskólar í Reykjavík, Rimaskóli, Hagaskóli, Laugalćkjarskóli og Vćttaskóli, hafa í vetur keppt í skák međ heimsóknum í skólana fjóra. Rúmlega 70 skákkrakkar frá ţessum skólum hittust í síđasta sinn á skólaárinu í Rimaskóla ţar sem haldiđ var velheppnađ skákmót áhugasamra skákkrakka. Tefldar voru sjö umferđir og bođiđ upp á hrađskáksformiđ.
Verđlaunin voru ekki af verri sortinni ţví veitt voru tólf pítsugjafabréf frá Hróa hetti. Hart var barist viđ skákborđin, einkum á efstu borđum ţar sem skákmeistarar framtíđarinnar sýndu leikni sína. Efnilegir Rimaskólakrakkar fóru ţarna fremstir, afrekskrakkar skólans á öllum aldri, yngstur ţeirra er Joshua Davíđsson sem er nemandi í 1-KMG og ţegar kominn í hóp ţeirra bestu. Krökkunum var bođiđ upp á veitingar í skákhléi og höfđu ţau öll mikla ánćgju af ţátttöku í velmönnuđu skákmóti.
Úrslitin í Rimaskóla urđu ţessi međal efstu manna:
- 1-2 Dagur Ragnarsson Rimaskóla 6,5 vinningar af 7
- Oliver Aron Jóhannesson Rimaskóla 6,5
- 3 Hrund Hauksdóttir Rimaskóla 6
- 4-5 Jón Trausti Harđarson Rimaskóla 5,5
- Jóhannes Kári Sólm.son Laugalćkjarskóla 5,5
- 6-15 Svandís Rós Ríkharđsdóttir Rimaskóla 5
- Joshua Davíđsson Rimaskóla 5
- Nansý Davíđsdóttir Rimaskóla 5
- Garđar Sigurđarson Laugalćkjarskóla 5
- Arnar Ingi Njarđarson Laugalćkjarskóla 5
- Kristófer Helgi Kjartansson Rimaskóla 5
- Huginn Orri Hafdal Laugalćkjarskóla 5
- Hilmir Hrafnsson Vćttaskóla 5
- Mikolaj Oskar Rimaskóla 5
- Gunnar Traustason Hagaskóla 5
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:27 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 08:00
Skákrapp
Arnljótur Sigurđsson hefur bent ritstjóra á íslenskt skáklaga sem finna má á Youtube. Hér er ţađ!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 07:00
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák hefst 30. mars
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák 2012 fer fram dagana 30. mars - 8. apríl nk. Mótiđ fer fram í Faxafeni 12, Reykjavík.
Efstu tvö sćtin gefa föst sćti í Landsliđsflokki 2012 eđa 2013. Tveir efstu menn í áskorendaflokki nú geta valiđ ţar á milli. Fyrirkomulag landsliđsflokks má finna hér.
Dagskrá:
- Föstudagur, 30. mars, kl. 18.00, 1. umferđ
- Laugardagur, 31. mars, kl. 14.00, 2. umferđ
- Sunnudagur, 1. apríl, Frídagur
- Mánudagur, 2. apríl, kl. 18.00, 3. umferđ
- Ţriđjudagur, 3. apríl, kl. 18.00, 4. umferđ
- Miđvikudagur, 4. apríl, kl. 18.00, 5. umferđ
- Fimmtudagur, 5. apríl, Frídagur
- Föstudagur, 6. apríl, kl. 11.00, 6. umferđ
- Föstudagur, 6. apríl, kl. 17.00, 7. umferđ
- Laugardagur, 7. apríl, kl. 14.00, 8. umferđ
- Sunnudagur, 8. apríl, kl. 14.00, 9. umferđ
Umhugsunartími: 90 mín. + 30 sek. til ađ ljúka.
Verđlaun:
- 1. 50.000.-
- 2. 30.000.-
- 3. 20.000.-
Aukaverđlaun:
- U-2000 stigum, 10.000.-
- U-1600 stigum, 10.000.-
- U-16 ára, 10.000.-
- Kvennaverđlaun, 10.000.-
- Fl. stigalausra, 10.000.-
Aukaverđlaun eru háđ ţví ađ a.m.k. 5 keppendur séu í hverjum flokki og eingöngu er hćgt ađ vinna til einna aukaverđlauna. Reiknuđ verđa stig séu fleiri en einn í efsta sćti. Stigaverđlaunin miđast viđ íslensk skákstig.
Ţátttökugjöld:
- 18 ára og eldri 3.000.-
- 17 ára og yngri 2.000.-
Skráning fer fram hér á Skák.is. Einnig er hćgt ađ skrá tölvupósti á skaksamband@skaksamband.is eđa tilkynna í síma 568 9141 virka daga kl. 10-13. Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér.
Spil og leikir | Breytt 16.3.2012 kl. 11:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2012 | 20:13
EM-pistill nr. 3: Hannes međ gott jafntefli
Hannes átti fínt jafntefli í dag međ svörtu. Hannes, tefldi drottningarbragđ og hélt fremur auđveldlega jafntefli í 55 leikjum međ svörtu gegn rússneska stórmeistaranum Ildar Khairullin (2626). Hannes hefur nú 2,5 vinning og er í 12.-52. sćti.
Héđinn Steingrímsson tefldi viđ heimamanninn Ivan Cheparinov (2664), sem er helsti ađstođarmađur Topalov, međ hvítu Tefld var einhvers konar Sikileyjarvörn og var stađan lengi vel í jafnvćgi en smá ónákvćmni hjá Héđni í tímahrakinu gáfu Búlgaranum séns sem hann lét ekki fara fram hjá sér. Héđinn hefur 1,5 vinning.
Ekki tókst mér ađ fara í bćjarferđ í dag eins og ég stefndi ađ. Stefnan er hins vegar tekin á slíkt á morgun eđa hinn.
Skipulagning heimamanna er góđ og vanir menn á ferđ. Tiltölulega afslappađ andrúmsloft. Inkiov, sem er skákstjóri međ mér í "gúanóinu" vinur eingöngu viđ skák. Hann rekur síđan Chessmix.com sem margir stórmeistarar og alţjóđlegir meistarar eru áskrifendur af, stendur fyrir skákmótum og ţar nefna mót í júní sem kennt er viđ Gullna sandinn, starfar sem skákstjóri, var yfir tćknivinnu t.d. í einvígi Anand-Topalov og teflir auk ţess enda stórmeistari í skák!
Annars sér lítiđ skákmennina hér á kvöldin. Menn eru mjög einbeittir og ćtla sér ađ enda á topp 23. Mér skilst ađ ţađ fari ađ lifna viđ ţegar líđa fer á mótiđ og ljóst er hverjir hafa séns og hverjir ekki.
Töluvert hefur veriđ rćtt um dresskóđa (dress code). Ekki sýnist mér ađ hann breyti einu eđa neinu. Menn eru hér mun verr klćddir en t.d. á N1 Reykjavíkurskákmótinu ţar sem gáfum út einföld tilmćli, sem ég held ađ sé betri leiđ en reglur.
Erfitt er ađ ná myndum af íslensku keppendunum. Ţađ er vegna ţess ađ ţeir hafa veriđ ađ tefla í hinum salnum auk ţess sem ţeir hafa báđir ţann ávana ađ halda höndum yfir andlitinu!
Nóg í bili.
Gunnar Björnsson- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (borđ 1-47)
- Chess-Results
- Myndaalbúm (GB)
22.3.2012 | 19:14
EM: Pörun 4. umferđar
Ţá liggur fyrir pörun 4. umferđar sem fram fer á morgun og hefst kl. 13. Ţá teflir Hannes viđ hvít-rússneska stórmeistarann Sergei Zhigalko (2649) en Héđinn viđ ítalska FIDE-meistarann Alessio Valsecchi (2429).
Ellefu skákmenn eru međ fullt hús og ţar á međal Íslandsvinirnir Gawain Jones (2635) og Yuriy Kuzubov (2615).
Hannes verđur í beinni útsendingu á morgun. Bćđi er hćgt ađ fylgjast međ skák hans á heimasíđu mótsins sem og á Chessbomb. Hannes teflir á borđi nr. 24.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (borđ 1-47)
- Chess-Results
- Myndaalbúm (GB)
22.3.2012 | 17:49
EM: Hannes međ jafntefli - Héđinn tapađi
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2531) gerđi jafntefli viđ rússneska stórmeistarann Ildar Khairullin (2612) í ţriđju umferđ EM einstaklinga sem fram fór í dag í Plovdid í Búlgaríu. Héđinn Steingrímsson (2531) tapađi hins vegar fyrir búlgarska stórmeistaranum Ivan Cheparinov (2664). Hannes hefur 2,5 vinning en Héđinn hefur 1,5 vinning.
Pörun 4. umferđar er ekki komin ţar sem margar skákir eru enn í gangi.Frétt um pörun og smá pistill síđar í kvöld.
Hćgt er ađ skođa skákirnar á heimasíđu mótsins sem og á Chessbomb.- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (borđ 1-47)
- Chess-Results
- Myndaalbúm (GB)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.8.): 11
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 142
- Frá upphafi: 8779654
Annađ
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 122
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar