Bloggfćrslur mánađarins, desember 2012
3.12.2012 | 09:12
Jólaskákmót SFS og TR: Tvöfaldur sigur Rimaskóla í yngri flokki
Í gćr, 2. desember, fór hiđ árvissa Jólaskákmót Skóla-og frístundasviđs og Taflfélags Reykjavíkur fram. Ţetta skákmót var nú haldiđ í 30. sinn. Ólafur H. Ólafsson, ötull félagsmađur í Taflfélagi Reykjavíkur, fyrrum skákţjálfari og fyrrverandi formađur í T.R., hefur veriđ skákstjóri á ţessum mótum frá upphafi og var ţví í dag skákstjóri á Jólaskákmótinu í 30. sinn!
Frá árinu 1983 - 2010 var ţetta skákmót kallađ Jólaskákmót ÍTR og TR. En eftir skipulagsbreytingar hjá Reykjavíkurborg fćrđist mótiđ frá Íţrótta-og tómstundasviđi yfir til Skóla-og frístundasviđs og heitir ţví Jólaskákmót SFS og TR. Skákmótiđ er tvískipt og er fyrir skáksveitir frá grunnskólum Reykjavíkur, annars vegar fyrir aldursflokkinn frá 1.-7. bekk og hins vegar fyrir aldursflokkinn frá 8.-10. bekk.
Í gćr var teflt í yngri flokki en ţađ eru nemendur úr 1.- 7. bekkjum grunnskólanna og ídag verđur teflt í eldri flokki. Veitt voru verđlaun fyrir ţrjár efstu drengjasveitirnar (eđa opnu sveitirnar, ţar sem sveitirnar eru blandađar stúlkum og drengjum). Einnig voru ţrenn verđlaun fyrir stúlknasveitir, en ađ ţessu sinni var ađeins ein stúlknasveit međal ţátttakenda. Eitthvađ sem skólastjórnendur í grunnskólum Reykjavíkur svo og skákhreyfingin öll geta íhugađ. Skemmtilegt vćri ef ţátttaka stúlkna í skákmótum yfirleitt og ţá sérstaklega í ţessum Jólaskákmótum fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík vćri til jafns viđ ţátttöku drengjanna. En í dag voru af ca. 80 keppendum um 10 stúlkur međal ţátttakenda.
Teflt var í einum flokki, 6 umferđir eftir Monradkerfi međ 15 mínútna umhugsunartíma. 17 sveitir voru skráđar til leiks.
Rimaskóli bar sigur úr býtum í báđum flokkunum, en eina stúlknasveit mótsins kom einmitt frá Rimaskóla. Stúlknasveitin lenti einnig í 4. sćti í heildarmótinu međ 14 vinninga. A-sveit Rimaskóla fékk 21,5 vinning af 24 mögulegum. Melaskóli varđ í 2. sćti í mótinu međ 19,5 vinning. Kelduskóli fékk bronsverđlaunin međ 14,5 vinning.
Fyrstu ţrjár sveitirnar í drengjaflokki/opnum flokki fengu medalíur og sigursveitirnar eignabikar og svo farandbikar til varđveislu fram ađ nćsta Jólaskákmóti.
Jólaskákmótiđ fór mjög vel fram. Soffía Pálsdóttir frá SFS kom međ hljóđkerfi međ sér sem kom sér mjög vel! Međ hljóđnema í hönd veittist skákstjórum léttara en ella ađ ná til keppenda og halda utan um gang mótsins. Međal keppenda voru mörg börn sem ţegar hafa töluverđa reynslu í keppni á skákmótum, svo lítiđ var um vafaatriđi á međan mótinu stóđ sem skákstjórar ţurftu ađ skera úr um.
Birna Halldórsdóttir sá um veitingar á međan mótinu stóđ sem er ómissandi ţáttur í skákmóti sem ţessu sem tekur um ţrjá og hálfan tíma. Margir foreldrar, systkini, afar og ömmur voru međal áhorfenda sem setti skemmtilegan svip á mótiđ.
Jólaskákmótiđ fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Mótsstjóri var Soffía Pálsdóttir, SFS. Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson og Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir, formađur Taflfélags Reykjavíkur.
Keppni í eldri flokki fer fram á dag, mánudaginn 3. desember og hefst klukkan 17. Eins og í dag verđur teflt í félagsheimili T.R., Skákhöllinni ađ Faxafeni 12.
Heildarúrslit í yngri flokki urđu sem hér segir:
- 1. Rimaskóli A-sveit 22,5 v. af 24.
- 2. Melaskóli 19,5 v.
- 3. Kelduskóli 14,5 v.
- 4. Rimaskóli - stúlkur 14 v.
- 5. Rimaskóli B-sveit 13 v.
- 6. Ölduselsskóli 13 v.
- 7. Vesturbćjarskóli 12,5 v.
- 8. Landakotsskóli 12,5 v.
- 9. Ingunnarskóli B-sveit 12 v.
- 10. Árbćjarskóli 11,5 v.
- 11. Ingunnarskóli A-sveit 11,5 v.
- 12. Grandaskóli 11 v.
- 13. Austurbćjarskóli 11 v.
- 14. Selásskóli 10,5 v.
- 15. Rimaskóli C-sveit 10 v.
- 16. Foldaskóli 9 v.
- 17. Ártúnsskóli 8 v.
Rimaskóli A sveit:
- Nansý Davíđsdóttir
- Jóhann Arnar Finnsson
- Kristófer Halldór Kjartansson
- Joshua Davíđsson
Melaskóli:
- Kolbeinn Ólafsson
- Ellert Kristján Georgsson
- Svava Ţorsteinsdóttir
- Sigurđur Kjartansson
- varam. Björn Ingi Helgason
- varam. Katrín Kristjánsdóttir
Kelduskóli:
- Hilmir Hrafnsson
- Sigurđur Bjarki Blumenstein
- Styrmir Rafn Ólafsson
- Hilmir Sigurđsson
1. varam. Andri Gylfason
Rimaskóli-stúlkur:
- Svandís Rós Ríkharđsdóttir
- Heiđrún A. Hauksdóttir
- Ásdís Birna Ţórarinsdóttir
- Tinna Sif Ađalsteinsdóttir
Pistill og myndir: Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir
Myndaablúm (SRF)
3.12.2012 | 07:00
Hrađkvöld hjá Helli í kvöld
Taflfélagiđ Hellir heldur hrađkvöld mánudaginn 3. desember nk. og hefst tafliđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7 umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni.
Sigurvegarinn á hrađkvöldinu fćr í verđlaun máltíđ fyrir einn á Saffran. Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fćr máltíđ fyrir einn á Saffran. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Verđur Björgvin dreginn út ţriđja skiptiđ í röđ?
Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Spil og leikir | Breytt 2.12.2012 kl. 16:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2012 | 22:27
Carlsen vann Aronian - slćr stigamet!
Magnus Carlsen (2848), stigahćsti skákmađur heims, vann í dag Levon Aronian (2815), ţann stigahćsta. Međ sigrunum er sá norski kominn međ 2855,7 skákstig og hefur ţar međ slegiđ stigamet Kasparov, sem var 2851 skákstig. Ţó međ ţeim fyrirvara ađ stig Magnusar hafa enn ekki birst á opinberum stigalista heldur eru ađeins birt á ópinberum stigalista. Carlsen er efstur, međ međ 6 stig (veitt eru 3 stig fyrir sigur) ásamt Kramnik (2795) sem vann Nakamura (2760)
Níu skákmenn taka ţátt í mótinu og ţví situr alltaf einn yfir. Viđkomandi sér um skákskýringar í ţeirri umferđ.
Í 3. umferđ sem fram fer á morgun mćtast međal annars Kramnik og Carlsen.
Úrslit 2. umferđar:
Judit Polgar | ˝-˝ | Gawain Jones |
Hikaru Nakamura | 0-1 | Vladimir Kramnik |
Magnus Carlsen | 1-0 | Levon Aronian |
Vishy Anand | ˝-˝ | Luke McShane |
Stađan:
- 1.-2. Kramnik (2795) og Carlsen (2848) 6/2
- 3. Adams (2710) 3/1
- 4. Nakamura (2760) 3/2
- 5. Anand (2775) 1/1
- 6.-8. McShane (2713), Polgar (2705) og Jones (2644) 1/2
- 9. Aronian (2815) 0/2
2.12.2012 | 20:00
Skákţćttir Morgunblađsins: Vignir Vatnar hafđi betur gegn Rússunum
Vignir Vatnar Stefánsson var eini fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti ungmenna, 8-18 ára, í opnum flokkum og stúlknaflokkum sem lauk í Maribor í Slóveníu um síđustu helgi. Keppendur voru um 1.600 talsins en alls komu um 3.500 manns til Slóveníu vegna mótsins. Áriđ 2007 tefldu tíu íslensk ungmenni á HM í Tyrklandi en nú eru ađrir tímar og í ár lagđi SÍ meiri áherslu á Evrópumótiđ sem fram fór eftir svipuđu fyrirkomulagi.
Heimsmeistaramótiđ er stćrra í sniđum. Fyrir utan heimamenn voru Rússar međ stćrsta hóp keppenda, vel yfir hundrađ manns. Ţeir áttu sigurvegara í nokkrum flokkum, einnig Indverjar og Bandaríkjamenn en í flokki Vignis, ţar sem keppendur voru 10 ára og yngri, bar Víetnaminn Anh Khoi Ngyen sigur úr býtum og vann allar skákir sínar!
Vignir Vatnar, sem er 9 ára gamall, er á fyrra ári í 10 ára flokknum, hlaut 6 vinninga af 11 mögulegum. Elo-stigatala hans er mun lćgri en styrkleikinn segir til um og hann var ađ tefla upp fyrir sig" nćr allt mótiđ. Fyrir undirritađan, sem var ţjálfari hans á mótsstađ, gafst góđur tími til ađ huga ađ ýmsum ţáttum taflmennsku hans. Og í sex skákum í röđ í 4.-9. umferđ gegn rússneska skákskólanum" reyndi talsvert á undirbúning. Vignir hlaut 3 ˝ vinning gegn 2 ˝ Rússanna og átti raunar unniđ tafl á einhverjum punkti í flestum skákanna. Ţađ er af sú tíđ ţegar ađildarlönd FIDE gátu ađeins sent einn keppanda í hvern keppnisflokk. Rússar áttu 16 skákmenn í flokki Vignis. Viđureignir sjöundu og áttundu umferđar reyndu mjög á úthaldiđ og voru samtals um 200 leikir.
HM Maribor 2012; 4. umferđ:
Vignir Vatnar Stefánsson - Antion Sidorov (Rússland)
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 d6 3. Rc3 e5 4. e3 Rbd7 5. Bd3 g6 6. Rge2 Bg7 7. O-O
Leiđin sem hvítur velur sést oft hjá svarti ţegar hvítur beitir kóngsindversku uppbyggingunni.
7. ... O-O 8. b4 c6 9. Ba3 He8 10. Hb1 Dc7 11. Db3 Rh5 12. b5 f5?
Svartur hefđi átt ađ bíđa međ ţennan leik.
13. Bxd6!
Nú dugar ekki ađ leika 13. .... Dxd6 vegna 14. c5+! De6 15. Bc4 og drottningin fellur.
13. ... Dd8 14. c5+ Kh8 15. d5! e4 16. Bc4 Re5 17. dxc6 bxc6 18. bxc6 Rxc4 19. c7 Df6 20. Dxc4 Be6 21. Da6 Hac8 22. Rd4 Bd7 23. Rcb5?!
Einfaldara var 23. Hb8 eđa 23. Rd5.
23. ... f4 24. Db7 f3 25. Rxa7 Dg5 26. Bg3 fxg2 27. Hfe1 Bxd4 28. exd4 Rxg3 29. Rxc8 Bxc8
Ţetta var eina tćkifćri Rússans til ađ flćkja málin, 29. ... Rf1 gaf meiri von ţví ađ 30. Rd6 má svara međ 30. ... Dh5! og svartur er sloppinn. Hinsvegar vinnur 30. Hxe4 t.d. 30. ... Hxc8 31. Hbe1 Dh5 32. h4 o.s.frv.
30. Dc6 Hf8 31. Dd6 Kg8 32. Dxg3 Df6 33. Hbd1 Bg4 34. Hd2 Bf3 35. De5 Da6 36. Dd5 Kg7 37. De5 Kg8 38. d5 Da5 39. De7?
Vignir ćtlađi ađ leika 39. De6+ sem vinnur létt, en missti" drottninguna til e7.
39. ... Dxd2 40. Dxf8+! Kxf8 41. c8=D+ Kg7 42. Dd7 Kh6 43. Hb1
Úrvinnslan er ekki vandalaus en Vignir missir ţó aldrei ţráđinn.
43. ... Dd3 44. Dh3 Kg5 45. Dg3 Kh5 46. De5 Kh6 47. Df4 Kh5 48. Hc1 Dxd5 49. h4 h6 50. c6 g5 51. Df8 e3 52. De8 Kxh4 53. Dxe3 Bg4 54. Dg3 Kh5 55. Dxg2
55. Dxg4+! Kxg4 56. c7 o.s.frv. var einnig gott.
55. ... Dd2 56. Hf1 Dc3 57. Dh2 Kg6 58. Dg3 Bf3 59. c7 g4 60. Dd6 Kh5 61. Df4 Bb7 62. Hc1 Dh3 63. Df5 Kh4 64. Df6 Kh5 65. Hc5
Og Sidorov gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 25. nóvember 2012.
Spil og leikir | Breytt 24.11.2012 kl. 16:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2012 | 18:44
Taflmennska Sigur-đar Eiríkssonar affarasćlust
Í dag, sunnudaginn 24. desember ađ frádregnum 22 í ađventu, stóđ Skákfélag Akureyrar, í samstarfi viđ Jóla, fyrir 15 mínútna skákmóti.
Slík mót vćri illmögulegt ađ halda, ef ekki vćri fyrir svokallađar skákklukkur sem mćla tímanotkun keppenda.
Ţekkt er sú saga ţegar Taflfélag Hornstrendinga gerđi tilraunir međ klukkulaus kortersmót, en skemmst er frá ţví ađ segja ađ ţćr tilraunir enduđu í glundrođa og innbyrđis átökum sem ađ lokum urđu til ţess ađ byggđ lagđist af í margra kílómetra radíus, SSA af Fćreyjum.
Akureyringar ţekkja skáksöguna, Hornstrendingasögu og söguna um Nýju föt keisarans ţó nokkuđ af ljósmyndum og gerđu viđeigandi ráđstafanir ađ ţessu sinni, sveitarfélaginu og rekstrarfélagi Hólabúđarinnar til heilla.
Tíu litlir jólasveinar mćttu til leiks, en ţurftu ţví miđur frá ađ hverfa áđur en mótiđ hófst, vegna yfirvofandi greiđsluţrots Norđurpósins (Reykjadals).
Ţeir sem eftir sátu og stóđu létu ţađ sem vind um augu ţjóta, enda komast fáir međ hnakkann, ţar sem agureyringar eru međ hćlana.
Fóru leikar ađ lokum ţannig ađ Sigur-đur Eiríksson hafđi tryggt sér sigurinn fyrir síđustu umferđina, enda ţótti honum hún of síđ. Spjátrungarnir í Vatíkaninu, austur á Seyđisfirđi, höfđu ađ orđi ađ ađrar eins skákir hafi ekki sést síđan Hinrik 17. Noregskonungur tefldi viđ Jóhannes Pál Pálsson Páfa í Bónus hér um áriđ. Ađrir fengu miklu fćrri og lakari vinninga.
Lokastađan
- 1. Sigurđur Eiríksson 4 af 5
- 2. Tómas Veigar 3,5
- 3. Einar Garđar Hjaltason 3
- 4. Sveinbjörn Óskabarn Sigurđsson 2,5
- 5. Karl Elliot Ness Steingrímsson VII. 2
- 6. Hreinn Hrafnsson Fćrri en hinir.
Frásögn tekin af heimasíđu SA
2.12.2012 | 11:26
CCP fćrđi Taflfélagi Reykjavíkur veglega gjöf á fjölmennri barna-og unglingaćfingu 1. des
Tölvuleikjafyrirtćkiđ CCP sem framleiđir og rekur fjölspilunarleikinn Eve online fćrđi Taflfélagi Reykjavíkur sl. laugardag, ađ gjöf öflugan skjávarpa, fartölvu af nýjustu gerđ auk peningastyrks. Eldar Ástţórsson frá CCP afhenti búnađinn á fjölmennri barna- og unglingaćfingu félagsins og mun hann nýtast einkar vel viđ ţjálfun og kennslu í öflugu barnastarfi félagsins. Ţađ voru Vignir Vatnar Stefánsson Unglingameistari T.R. 2012, sem nýkominn er af Heimsmeistaramóti barna og unglinga í Slóveníu og Donika Kolica, Stúlknameistari T.R. 2012, sem veittu búnađinum viđtöku fyrir hönd félagsins.
Taflfélag Reykjavíkur kann CCP hinar bestu ţakkir fyrir stuđninginn, sem mun koma félaginu og iđkendum ţess mjög vel um ókomna framtíđ.
2.12.2012 | 00:34
London Chess Classic byrjar međ látum
London Chess Classic byrjađi fjörlega í dag. Ţegar í fyrstu umferđ unnust tvöfalt fleiri skákir en í Kónga-mótinu sem fram fór fyrir skemmstu í Rúmeníu. Carlsen, Nakamura, Kramnik og Adams unnu allir. Nakamura vann Aronian og Kramnik vann Polgar. Önnur umferđ fer fram á morgun en ţá mćtast m.a. Carlsen-Aronian og Nakamura-Kramnik.
Úrslit 1. umferđar:
- McShane - Carlsen 0-1
- Aronian - Nakamura 0-1
- Kramnik - Polgar 1-0
- Jones - Adams 0-1
1.12.2012 | 21:00
Ný alţjóđleg skákstig
Ný alţjóđleg skákstig komu út í dag, 1. desember. Litlar breytingar eiga sér stađ frá nóvember-listanum enda var ađeins eitt innlent mót reiknađ til stiga, Íslandsmót kvenna. Engar breytingar eiga sér stađ međal efstu manna og er ţví röđ efstu manna óbreytt. Jóhann Hjartarson (2592) er langstigahćstur. Enginn nýliđi er á listanum er Vignir Vatnar Stefánsson (32) hćkkar mest frá nóvember-listanum.
Nánari úttekt um listann má finna í PDF-viđhengi sem fylgir međ fréttinni. Einnig fylgir međ Excel-viđhengi fyrir ţá sem vilja grúska frekar.
Virkir íslenskir skákmenn
267 íslenskir skákmenn teljast nú virkir. Engar breytingar eiga sér stađ međal efstu manna. Jóhann Hjartarson (2592), Héđinn Steingrímsson (2560) og Helgi Ólafsson (2547) eru sem fyrr stigahćstu menn landsins. Ţađ ţarf ađ fara niđur í 17. sćti til ađ finna verulegar stigabreytingar en Guđmundur Kjartansson (2404) hćkkar um 10 stig og nćr ađ fara aftur yfir 2400 skákstig.
No. | Name | Tit | dec12 | Gms | Ch. |
1 | Hjartarson, Johann | GM | 2592 | 0 | 0 |
2 | Steingrimsson, Hedinn | GM | 2560 | 0 | 0 |
3 | Olafsson, Helgi | GM | 2547 | 0 | 0 |
4 | Petursson, Margeir | GM | 2532 | 0 | 0 |
5 | Gretarsson, Hjorvar Steinn | IM | 2516 | 0 | 0 |
6 | Stefansson, Hannes | GM | 2512 | 0 | 0 |
7 | Danielsen, Henrik | GM | 2507 | 0 | 0 |
8 | Arnason, Jon L | GM | 2498 | 0 | 0 |
9 | Kristjansson, Stefan | GM | 2486 | 0 | 0 |
10 | Thorfinnsson, Bragi | IM | 2484 | 0 | 0 |
11 | Gretarsson, Helgi Ass | GM | 2464 | 0 | 0 |
12 | Thorsteins, Karl | IM | 2464 | 0 | 0 |
13 | Thorhallsson, Throstur | GM | 2441 | 8 | -1 |
14 | Gunnarsson, Arnar | IM | 2440 | 0 | 0 |
15 | Olafsson, Fridrik | GM | 2419 | 0 | 0 |
16 | Gunnarsson, Jon Viktor | IM | 2413 | 0 | 0 |
17 | Kjartansson, Gudmundur | IM | 2404 | 19 | 10 |
18 | Bjornsson, Sigurbjorn | FM | 2391 | 0 | 0 |
19 | Thorfinnsson, Bjorn | IM | 2386 | 0 | 0 |
20 | Ulfarsson, Magnus Orn | FM | 2386 | 0 | 0 |
Heildarlistann má finna í PDF-viđhenginu.
Nýliđar
Engir nýliđar eru á listnum nú.
Mestu hćkkanir
Vignir Vatnar Stefánsson (32) hćkkar mest eftir góđa frammistöđu á HM ungmenna. Í nćstum sćtum eru Jón Árni Halldórsson (26) eftir góđa frammistöđu í mótum í Tékklandi og Tinna Kristín Finnbogadóttir (21) eftir góđa frammistöđu á Íslandsmóti kvenna.
No. | Name | Tit | dec12 | Gms | Changes |
1 | Stefansson, Vignir Vatnar | 1627 | 9 | 32 | |
2 | Halldorsson, Jon Arni | 2222 | 16 | 26 | |
3 | Finnbogadottir, Tinna Kristin | 1871 | 6 | 21 | |
4 | Kjartansson, Gudmundur | IM | 2404 | 19 | 10 |
5 | Kolica, Donika | 1251 | 5 | 5 |
Skákkonur
Ekki er ástćđa til ađ skođa ungmennalistann né öđlingalistann ţar sem engar stigabreytingar eru međal efstu manna. Rétt er hins vegar ađ skođa skákkonurnar.
16 skákkonur er á listanum. Íslandsmeistarinn Lenka Ptácníková (2281) er sem fyrr langefst. Ţrátt fyrir ađ hafa orđiđ Íslandsmeistari í skák og hlotiđ 6 vinninga í 7 skákum lćkkar hún um 6 stig. Guđlaug Ţorsteinsdóttir (2041) er önnur og Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir (1984) er ţriđja en ţví miđur tefla ţćr stöllur ekki mikiđ. Tinna Kristín Finnbogadóttir hćkkar um 21 skákstig.
No. | Name | Tit | dec12 | Gms | Changes |
1 | Ptacnikova, Lenka | WGM | 2281 | 7 | -6 |
2 | Thorsteinsdottir, Gudlaug | WF | 2041 | 0 | 0 |
3 | Gretarsdottir, Lilja | WIM | 1984 | 0 | 0 |
4 | Thorsteinsdottir, Hallgerdur | 1960 | 6 | 1 | |
5 | Johannsdottir, Johanna Bjorg | 1872 | 7 | -3 | |
6 | Finnbogadottir, Tinna Kristin | 1871 | 6 | 21 | |
7 | Birgisdottir, Ingibjorg | 1783 | 0 | 0 | |
8 | Helgadottir, Sigridur Bjorg | 1754 | 0 | 0 | |
9 | Kristinardottir, Elsa Maria | 1747 | 6 | 3 | |
10 | Fridthjofsdottir, Sigurl. Regina | 1708 | 0 | 0 |
Heimslistinn
Magnus Carlsen (2848) er sem fyrr stigahćsti skákmađur heims. Í nćstum sćtum eru Aronian (2815) og Kramnik (2795). Röđ stigahćstu skákmanna heims má nálgast hér: http://ratings.fide.com/top.phtml?list=men
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2012 | 20:00
Dagur međ jafntefli í fyrstu umferđ í Búdapest
Alţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2384) tekur ţátt í First Saturday-móti sem hófst í dag í Búdapest. Í fyrstu umferđ gerđi hann jafntefli viđ króatíska stórmeistarann Bogdan Lalic (2484). Dagur mćtir í ţremur fyrstu umferđunum öllum ţremur stórmeisturunum sem ţátt taka. Frídagur er á morgun en á mánudag mćtir hann Ungverjanum Zoltan Varga (2455).
Tíu skákmenn taka ţátt og eru međalstig 2426 skákstig. Dagur er nr. 7 í stigaröđ keppenda.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2012 | 19:00
Anna Ushenina heimsmeistari kvenna
Úkraínska skákkonan Anna Ushenina (2452) varđ í dag heimsmeistari kvenna eftir sigur á Antoaneta Stefanova (2491) í heimsmeistaraeinvígi ţeirra á millum. Úrslitin urđu 3,5-2,5 Önnu í vil. Stađan var 2-2 eftir kappskákirnar en Anna hafđi betur í tveimur atskákum sem tefldar voru í dag.
Anna mćtir Íslandsvinkonunni og fráfarandi heimsmeistara Hou Yifan (2606) í heimsmeistaraeinvígi á nćsta ári. Yifan vann sér réttindi til ţess međ öruggum sigri á Grand Prix-seríu kvenna sem fram fór 2011-2012.
Heimasíđa heimsmeistarakeppni kvenna
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.9.): 3
- Sl. sólarhring: 60
- Sl. viku: 161
- Frá upphafi: 8780454
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar