Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, október 2012

Friđrik međ jafntefli í fimmtu umferđ í Álaborg

Friđrik Ólafsson í Dresden

Friđrik Ólafsson (2431) gerđi jafntefli viđ norska FIDE-meistarann Erling Kristiansen (2205) í 5. umferđ minningarmóts um Bent Larsen sem fram fór í Álaborg í dag. Friđrik hefur 3˝ vinning og er í 5.-15. sćti.

Danski alţjóđlegi meistarinn Jens Kristiansen (2419) er efstur međ 4˝ vinning.

Í sjöttu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer í fyrramáliđ, teflir Friđrik viđ Danann Svend Pedersen (2210). 

61 skákmađur tekur ţátt í mótinu og ţar á međal 4 stórmeistarar.  Ţađ eru auk Friđriks; Miso Cebalo (2416), Króatíu, Oleg Chernikov (2415), Rússlandi og ţýska gođsögnin Wolfgang Uhlmann (2325). Tefldar eru 7 umferđir.



Tveir sigrar hjá Henrik í dag

HenrikHenrik Danielsen (2524) vann báđar skákir dagsins á Copenhagen Cup í 4. og 5. umferđ Copenhagen Cup.  Henrik er efstur međ 4 vinninga.

Á morgun teflir Henrik viđ danska FIDE-meistarann Igor Teplyi (2386) og norska FIDE-meistarann Kristian Stuvik Holm (2316).

Tíu skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 2 stórmeistarar.  Henrik er stigahćstur keppenda. Tefldar eru 2 umferđir alla daga nema upphafsdag mótsins og hefjast ţćr kl. 8 og 13:30.

 


NM kvenna haldiđ í Reykjavík á nćsta ári

Skáksamband Norđurlanda Skáksamband Norđurlanda hefur ákveđiđ hvar helstu Norđurlandamótin verđa haldin á nćsta ári. Upphaflega áttu öll mótin ađ fara fram í Karlstad í Svíţjóđ í janúar 2013 en mótshaldarar ţar ţurftu svo síđar ađ draga sig út úr mótshaldinu.

Sjálft Norđurlandamótiđ í skák (opinn flokkur) fer fram í Köge í Danmörk, sennilega 11.-20. október 2013.  NM öldunga for fram í Borgundarhólmi í september 2013.  Norđurlandamót kvenna fer hins vegar fram í Reykjavík í apríl/maí eđa september/október 2013. Síđari dagsetningin er líklegri.

Sjá nánar međfylgjandi viđhengi.
Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Skákakademían: Stefán Kristjánsson stórmeistari međ fjöltefli í öllum grunnskólum Reykjavíkur!

Stefán Kristjánsson stórmeistariStefán Kristjánsson stórmeistari í skák skorar börn og ungmenni í Reykjavík á hólm í fjölteflum í öllum grunnskólum Reykjavíkur.

Skákakademían stendur fyrir fjölteflunum, sem byrja í Ártúnsskóla á fimmtudag í nćstu viku. Skákakademían stendur nú fyrir skákkennslu í flestum skólum borgarinnar og er áhugi hvarvetna mikill og vaxandi.

Međ fjölteflunum vill Skákakademían stuđla ađ enn frekari skákvakningu međal barna og ungmenna í höfuđborginni. Vegleg verđlaun eru bođi ef einhverjum tekst ađ leggja stórmeistarann ađ velli.

Hérna má lesa sér til um Stefán, sem hefur veriđ í fremstu röđ um árabil ţrátt fyrir ungan aldur.

Fréttir af fjölteflum Stefáns verđa sagđar jafnóđum, en dagskrá fyrstu fjölteflanna er ţessi:

Fimmtudagur 25. október: Ártúnsskóli.

Föstudagur 26 október: Klébergsskóli.

Mánudagur 29. október: Rimaskóli.


Íslandsmót kvenna hefst í kvöld kl. 19

Skáksamband ÍslandsÍslandsmót kvenna hefst í kvöld föstudaginn 19. október í húsnćđi Skáksambands Íslands, Faxafeni 12, Reykjavík.  Teflt verđur í einum flokki, ţ.e. mótiđ opiđ öllum konum/stúlkum.

Nú eru 12 skákkonur skráđar til leiks, ţar á međal allir fulltrúar Íslands á Ólympíuskákmótinu 2012, en nálgast má keppendalistann á Chess-Results.

Beinar útsendingar verđa frá öllum skákum mótsins.

Tímamörk:   90 mín. + 30 sek. á leik.

Dagskrá:         

  • Föstud., 19. okt., kl. 19, 1. umferđ
  • Mánud., 22. okt., kl. 19, 2. umferđ
  • Miđvikud., 24. okt., kl. 19, 3. umferđ
  • Föstud., 26. okt., kl. 19, 4. umferđ
  • Sunnud., 28. okt., kl. 13, 5. umferđ
  • Mánud., 29. okt., kl. 19, 6. umferđ
  • Miđvikud., 31. okt., kl. 19, 7. umferđ
Verđlaun:       
  • 1. 40.000.-
  • 2. 25.000.-
  • 3. 15.000.-

Skráning fer fram hér á Skák.is.  


Skákbúđir ađ Úlfljótsvatni - síđasti skráningardagur - verđiđ lćkkar í 6.000 kr.

Ennţá er hćgt ađ skrá sig í skákbúđinar sem Skákdeild Fjölnis, Skákakademía Reykjavíkur og Skákskóli Íslands standa fyri ađ Úlfljótsvatni nk. laugardag og sunnudag, 20. - 21. október. Rúmlega 30 grunnskólakrakkar eru nú ţegar skráđir.

Ánćgjulegar fréttir. Norvik styrkir skákbúđirnar og lćkkar verđiđ um 2.000 kr á hvern ţátttakenda.
Ţađ kostar ţví bara 6.000 kr dvölin ađ Úlfljótsvatni međ öllu.

Innifaliđ: gisting, fćđi, kennsla, verđlaun og öll ađstađa.

Nói -Síríus og Ásbjörn ehf gleđja alla ţátttakendur međ nammi á nammidegi og í verđlaun á skákmóti.
Rútan fer á laugardagsmogni frá BSÍ kl. 10:00 og N1 í Ártúnsbrekku kl. 10:15. Bílstjóri er Magnús Ţorsteinsson skákpabbi frá skákdeild Fjölnis.


Unglingastarfsemi Víkingaklúbbsins

Skákćfingar VíkingaklúbbsinsKnattspyrnufélagiđ Víkingur og Víkingaklúbburinn heldu fyrstu barna og unglingaskákćfingu sína í Víkinni miđvikudaginn 3. október. Krakkar úr frístundaheimilum og skólum í hverfinu mćttu og komu um 15 krakkar á fyrstu ćfinguna.  Krakkarnir voru bćđi úr Breiđagerđisskóla og Fossvogskóla og heppnađist ćfingin mjög vel.

 Leiđbeinendur á ćfingunni voru reynluboltarnir Svavar Viktorsson og Frá unglingaćfingu VíkingaHaraldur Baldursson, en Gunnar Fr. Rúnarsson rifjađi upp gamla takta, en hann hafđi ekki kennt skák síđan hann var skákkennari viđ Ártúnskóla áriđ 1993.

Fleiri myndir má finna á vefsíđu Víkingaklúbbsins.


Sigur og tap hjá Henrik í dag

HenrikHenrik Danielsen (2524) fékk einnig úr tveimur skákum dagsins á Copenhagen Cup.  Í 2. umferđ tapađi hann fyrir danska stórmeistaranum Carsten Hři (2370) en í ţeirri síđari vann hans danska FIDE-meistaranum Bjřrn Mřller Ochsner (2322). Henrik hefur 2 vinninga og er í 2.-5. sćti.  Hři er efstur međ 2˝ vinning.

Á morgun teflir Henrik viđ Danina Nikolaj Palm (2307) og Christian A. Eriksson (2098). 

Tíu skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 2 stórmeistarar.  Henrik er stigahćstur keppenda. Tefldar eru 2 umferđir alla daga nema upphafsdag mótsins og hefjast ţćr kl. 8 og 13:30.

 


Friđrik međ sigur í 4. umferđ

Friđrik Ólafsson í Dresden

Friđrik Ólafsson (2431) vann Danann John N Hansen (2087) međ laglegri endataflstćkni í 4. umferđ minningarmóts um Bent Larsen sem tefld var í dag í Álaborg.  Eftir rólega byrjun hefur Friđrik unniđ tvćr skákir í röđ og er í skiptu fjórđa sćti.

Í fimmtu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Friđrik viđ norska FIDE-meistarann Erling Kristiansen (2205).

Ţrír Danir eru efstir og jafnir međ 3˝ vinning.  Ţađ eru alţjóđlegi meistarinn Jens Kristiansen (2419), FIDE-meistarinn Per Andreasen (2296) og Jens Křlbćk (2251).

61 skákmađur tekur ţátt í mótinu og ţar á međal 4 stórmeistarar.  Ţađ eru auk Friđriks; Miso Cebalo (2416), Króatíu, Oleg Chernikov (2415), Rússlandi og ţýska gođsögnin Wolfgang Uhlmann (2325). Tefldar eru 7 umferđir.



Skákćfingar í KR fyrir börn og unglinga

IMG 2384Skákćfingar í KR fyrir börn og unglinga hófust um miđjan september. Eins og síđustu árin eru ćfingarnar samstarfsverkefni Skákakademíunnar og Skákdeildar KR. Ćfingarnar fara fram á miđvikudögum frá 17:30 – 18:30. Stefán Bergsson og Veronika Steinunn Magnúsdóttir skákkona úr TR og nemandi í Hagaskólasjá um ćfingarnar.

IMG 2396Skák er kennd í öllum skólum Vesturbćjar og hafa ţví krakkarnir sem koma á KR-ćfingar nokkurn grunn til ađ byggja á. Mćtingin á ţessu hausti hefur veriđ međ ágćtum og um 15 krakkar mćtt á hverja ćfingu.

IMG 2386Á ćfingunni í gćr voru ýmis verkefni sem krakkarnir fengu; tefldu sín á milli, leystu ţrautir og horfđu á skákmyndbönd eftir Björn Ívar Karlsson sem finna má hér.

IMG 2393Ćfingarnar fara fram á 1. hćđ í sjálfu félagsheimili KR. Er ţar hin ágćtasta ađstađa fyrir skákćfingar og skemmir ekki fyrir ađ bikarar og myndir af helstu hetjum KR í gegnum tíđina umlykja alla veggi.

Myndaalbúm (HJ)


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.7.): 3
  • Sl. sólarhring: 25
  • Sl. viku: 171
  • Frá upphafi: 8779109

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 107
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband