Bloggfćrslur mánađarins, október 2012
18.10.2012 | 11:14
Sigurmundssynir og Sigurđur efstir á Atskákmeistari SSON
Ađ loknum 9 umferđum af 13 á Atskákmeistaramóti SSON eru ţeir brćđur Ingimundur og Úlfhéđinn Sigmundssynir efstir ásamt Sigurđi H. Jónssyni međ 7 vinninga.
Ţessir ţrír hafa allir teflt af feikna öryggi og ekki tapađ skák. Brćđurnir mćttust í gćrkvöldi og sćttust á skiptan hlut, sömuleiđis ţeir Ingimundur og Sigurđur.
Mótinu lýkur nćstkomandi miđvikudag međ fjórum síđustu umferđunum.
18.10.2012 | 10:25
Jóhanna sigrađi á hrađkvöldi Hellis
Ţađ mćttu 14 á hrađkvöld Hellis sem haldiđ var 15. október sl. Ţađ náđist ţví ekki ađ manna tvo riđla en í stađinn var teflt í einum flokki allir viđ alla međ 5 mínútna umhugsunartíma. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir sigrađi á hrađkvöldinu međ 12v í ţrettán skákum og tapađi bara einni gegn Gunnari Nikulássyni. Annar varđ Páll Andrason međ 11v og ţriđji Örn Leó Jóhannsson međ 10v. Í lokin dró svo Jóhanna í happdrćttinu og upp kom Óskar í annađ skiptiđ í röđ.
Nćsta skákkvöld í Hellisheimilinu verđur svo hrađkvöld mánudaginn 22. október kl. 20.
Lokastađan á hrađkvöldinu:
Röđ Nafn Vinn. Berg. Wins 1 Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, 12 72.50 12 2 Páll Andrason, 11 60.00 11 3 Örn Leó Jóhannsson, 10 49.00 10 4 Elsa María Kristínardóttir, 9 49.00 9 5-6 Vignir Vatnar Stefánsson, 8 38.00 8 Jón Úlfljótsson, 8 34.50 7 7-9 Gunnar Nikulásson, 6.5 31.75 5 Kristófer Ómarsson, 6.5 27.00 6 Vigfús Ó. Vigfússon, 6.5 23.25 6 10 Hafliđi Hafliđason, 6 22.00 6 11 Björgvin Kristbergsson, 3.5 12.00 3 12-13 Pétur Jóhannesson, 2 5.00 1 Óskar Víkingur Davíđsson, 2 2.00 2 14 Vilhjálmur Atlason, 0 0.00 0
18.10.2012 | 09:10
Friđrik međ hvítt í skák dagsins -- Bein útsending
18.10.2012 | 07:00
Skákbúđir ađ Úlfljótsvatni um nćstu helgi


Umsjón og fararstjórn verđur á höndum ţeirra Helga Árnasonar formanns Skákdeildar Fjölnis, Stefáns Bergssonar framkvćmdastjóra Skákakademíunnar og Andreu Margrétar Gunnarsdóttur frá Skákfélagi fjölskyldunnar.
Fjöldi skákkennara og leiđbeinenda verđa til stađar og halda utan um alla skákkennslu og skákmót sem bođiđ verđur upp á.
Verđ á hvern ţátttakenda er 8.000 kr fyrir ţessa tvo daga. Innifaliđ i gjaldinu er allur matur, kennsla, skálaleiga, námsgögn, ţátttökugjald í skákmóti og rútuferđ fram og til baka. Ţátttakendurur eiga ekki ađ hafa međ sér nesti né peninga til ferđarinnar.
Ađstađa öll viđ Úlfljótsvatn telst einstök fyrir skákbúđir og ţar er umhverfiđ fallegt. Svefnskálar, matsalur og hópherbergi eru til stađar fyrir samstilltan hóp. Í frjálsum tíma er bođiđ upp á frábćra ađstöđu á skipulögđu útivistarsvćđi sem höfđar til allra ţátttakenda. Reglur eru í gildi í ferđinni líkt og um skólaferđalag vćri ađ rćđa. Brjóti nemandi alvarlega af sér verđur hann viđ fyrsta tćkifćri sendur heim á kostnađ foreldra.
Skákbúđir viđ Úlfljótsvatn eru einstakt tćkifćri fyrir áhugasama skákkrakka til ađ fá góđa skákkennslu og efla samfélag viđ ađra skákkrakka. Dagskrá skákbúđanna er í samrćmi viđ skákbúđir Fjölnis í Vatnaskógi apríl 2011 sem heppnuđust mjög vel. Skráning fer fram á skrifstofu Skáksambands Íslands s. 568 9141 netfang skaksamband@skaksamband.is og hjá Skákakademíu Reykjavíkur netfang stefan@skakakademia.is. Upplýsingar veitir Helgi Árnason s. 6648320
- Svefnpoka eđa sćngurfatnađ
- Fatnađ til skiptanna (nćrföt, sokka, buxur, skyrtu, peysu)
- Lopapeysu, vettlinga, ullarsokka, trefil og húfu
- Vindheldan galla
- Stígvél og inniskó
- Íţróttafatnađ
- Handklćđi, tannbursta og tannkrem
- Skemmtileg spil
- Myndavél / Ipod (ekki tekin ábyrgđ á ţessum tćkjum)
Dagskrá skákbúđa 20. - 21. okt. 2012:
laugardagur : 20. okt.
kl. 10:00 Brottför frá BSÍ
- 10:15 Brottför frá N1 Ártúnsbrekku
- 11:00 Móttaka viđ Úlfljótsvatn
- 11:30 Frjáls tími úti og inni
- 12:30 Hádegisverđur
- 13:15 Skákkennsla (hópar)
- 15:00 Kaffi.
- 15:30 Frjáls tími - göngutúr
- 17:00 Skákkennsla (hópar)
- 19:00 Kvöldverđur.
- 19:30 Frjáls tími
- 20:30 Kvöldvaka, tvískák og spilatími
- 22:00 Kvöldhressing og spjall á herbergjum
- 23:15 Hljóđ komiđ á í herbergjum
sunnudagur : 21. okt.
kl. 09:00 Morgunmatur
kl. 09:30 Frjáls tími úti og inni
kl. 11:30 Hádegismatur
kl. 12:30 Einstaklings hrađskákmót
kl. 14:30 Verđlaunaafhending -
kl. 15:00 Heimferđ frá Úlfljótsvatni
kl. 16:00 Ferđarlok viđ BSÍ
Dagskrárlok
Spil og leikir | Breytt 17.10.2012 kl. 13:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2012 | 23:48
Jón Viktor öruggur sigurvegari Tölvuteksmótsins - Dađi skákmeistari TR
Alţjóđlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2410) gerđi jafntefli viđ Sćvar Bjarnason (2090) í níundu og síđustu umferđ Tölvuteksmótsins - Haustmóts TR sem fram fór í kvöld. Jón vann öruggan sigur á mótinu varđ vinningi fyrir ofan Lenku Ptácníková (2264) sem varđ önnur. Sćvar varđ ţriđji. Dađi Ómarsson (2206) varđ efstur TR-inga og er ţví skákmeistari TR í fyrsta sinn.
Rimskćlingar röđuđu sér í ţrjú efstu sćtin í b-flokki. Dagur Ragnarsson (1916) og Jón Trausti Harđarson (1813) urđu efstir Oliver Aron Jóhannesson (2018) varđ hálfum vinningi á eftir ţeim. Dagur telst sigurvegari flokksins á stigum og fćr ţví keppnisrétt í a-flokki ađ ári.
Dawid Kolka (1603) sigrađi í opnum flokki. Hilmir Freyr Heimisson (1711) og Bjarnsteinn Ţórsson (1335) urđu í 2.-3. sćti. Sá síđarnefndi var ađ tefla á sínu fyrsta kappskákmóti í áratugi! Dawid hefur ţar međ áunniđ sér rétt til ađ tefla í b-flokki ađ ári.
Skákstjórn var í örggum höndum Ólafs S. Ásgrímssonar og Ríkharđs Sveinssonar.
Minnt er á Hrađskákmót TR sem fram fer á sunnudag og hefst kl. 14. Ađ ţví loknu fer fram verđlaunaafhending fyrir Tölvuteksmótiđ.
Úrslit 9. umferđar í a-flokki:
Bo. | Rtg | Name | Result | Name | Rtg |
1 | 2264 | Ptácníková Lenka | 1 - 0 | Karlsson Mikael Jóhann | 1933 |
2 | 2206 | Ómarsson Dađi | 1 - 0 | Björnsson Sverrir Örn | 2154 |
3 | 2410 | Gunnarsson Jón Viktor | ˝ - ˝ | Bjarnason Sćvar Jóhann | 2090 |
4 | 2156 | Ţórhallsson Gylfi Ţór | ˝ - ˝ | Ragnarsson Jóhann Hjörtur | 2081 |
5 | 2132 | Maack Kjartan | 1 - 0 | Jensson Einar Hjalti | 2305 |
Lokastađan:
Rk. | Name | Rtg | Club/City | Pts. | |
1 | IM | Gunnarsson Jón Viktor | 2410 | TB | 7,5 |
2 | WGM | Ptácníková Lenka | 2264 | Hellir | 6,5 |
3 | IM | Bjarnason Sćvar Jóhann | 2090 | Vinjar | 6 |
4 | FM | Jensson Einar Hjalti | 2305 | Gođinn | 5 |
5 | Ómarsson Dađi | 2206 | TR | 4,5 | |
6 | Maack Kjartan | 2132 | TR | 3,5 | |
7 | Ragnarsson Jóhann Hjörtur | 2081 | TG | 3,5 | |
8 | Ţórhallsson Gylfi Ţór | 2156 | SA | 3 | |
9 | Karlsson Mikael Jóhann | 1933 | SA | 3 | |
10 | Björnsson Sverrir Örn | 2154 | Haukar | 2,5 |
B-flokkur:
- 1.-2. Dagur Ragnarsson (1916) og Jón Trausti Harđarson (1813) 6˝ v.
- 3. Oliver Aron Jóhannesson (2018) 6 v.
- 4. Eiríkur Björnsson (1970) 5˝ v.
- 5. Emil Sigurđarson (1839) 4˝ v.
Nánar á Chess-Results
C-flokkur (opinn flokkur):
- 1. Dawid Kolka (1603) 7 v.
- 2.-3. Hilmir Freyr Heimisson (1711) og Bjarnsteinn Ţórsson (1335) 6˝ v.
- 4. Gauti Páll Jónsson (1481) 6 v.
- 5.-7. Ingvar Egill Vignisson (1564), Sóley Lind Pálsdóttir (1358) og Vignir Vatnar Stefánsson 5˝ v.
- Heimasíđa TR
- Chess-Results
- Myndaalbúm (GB, ŢB og BJ)
- Myndaalbúm (TR-síđa)
Spil og leikir | Breytt 18.10.2012 kl. 10:00 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2012 | 20:20
Henrik vann í fyrstu umferđ í Kaupmannahöfn
Henrik Danielsen (2524) lćtur yfirleitt ekki langan tíma líđa á milli móta. Í gćr lauk hann ţátttöku á BSF-mótinu og í dag hóf hann ţátttöku á Copenhagen Cup. Í fyrstu umferđ vann hann norska FIDE-meistarann Brede Krisvik (2342).
Á morgun eru tefldar tvćr umferđir. Í ţeirri fyrri mćtir hann danska stórmeistaranum Carsten Hři (2370) og í ţeirri síđari mćtir hann danska FIDE-meistaranum Bjřrn Mřller Ochsner (2322).
Tíu skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 2 stórmeistarar. Henrik er stigahćstur keppenda. Tefldar eru 2 umferđir alla daga nefna upphafsdag og hefjast ţćr kl. 8 og 13:30.
17.10.2012 | 18:30
Lokaumferđ Tölvuteksmótsins - Hausmóts TR fer fram í kvöld
Níunda og síđasta umferđ Tölvuteksmótsins - Haustmóts TR fer fram í kvöld og hefst kl. 19:30. Jón Viktor, sem hefur ţegar tryggt sér sigur á mótinu, mćtir Sćvari Bjarnasyni, sem er í 2.-3. sćti ásamt Lenku Ptácníková. Lenka mćtir hins vegar Mikaeli Jóhanni Karlssyni.
Hrađskákmót Taflfélags Reykjavíkur verđur haldiđ í húsnćđi félagsins ađ Faxafeni 12 sunnudaginn 21. október kl. 14:00
Tefldar verđa 2x7 umferđir eftir Swiss Perfect kerfi. Umhugsunartími 5 mín á skák.
Ţátttökugjald kr 500 fyrir 16 ára og eldri, en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Ţrenn verđlaun verđa i bođi.
Ađ loknu hrađskákmótinu fer fram verđlaunaafhending fyrir Tölvuteksmótiđ 2012 - Haustmót T.R.
Núverandi Hrađskákmeistari T.R. er Halldór Pálsson.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2012 | 17:00
Friđrik vann Andersson í 3. umferđ
Friđrik Ólafsson (2431) vann Svíann Kaj Andersson (2051) í 3. umferđ minningarmóts um Bent Larsen sem nú fer fram í Álaborg í Danmörku. Friđrik hefur 2 vinninga.
Í 4. umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Friđrik viđ Danann John N Hansen (2087).
Danski alţjóđlegi meistarinn Jens Kristiansen (2419) og ţýski stórmeistarinn og gođsögnin Wolfgang Uhlmann (2325) eru efstir međ fullt hús vinninga.
61 skákmađur tekur ţátt í mótinu og ţar á međal 4 stórmeistarar. Ţađ eru auk Friđriks; Miso Cebalo (2416), Króatíu, Oleg Chernikov (2415), Rússlandi og ţýska gođsögnin Wolfgang Uhlmann (2325). Tefldar eru 7 umferđir.- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 9)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2012 | 15:34
Íslandsmót kvenna hefst á föstudag
Íslandsmót kvenna hefst föstudaginn 19. október í húsnćđi Skáksambands Íslands, Faxafeni 12, Reykjavík. Teflt verđur í einum flokki, ţ.e. mótiđ opiđ öllum konum/stúlkum.
Nú ţegar eru 9 skákkonur skráđar til leiks en nálgast má keppendalistann á Chess-Results. Búast má viđ ađ ţađ bćtist vel viđ á keppendalistannfram ađ móti.
Tímamörk: 90 mín. + 30 sek. á leik.
Dagskrá:
- Föstud., 19. okt., kl. 19, 1. umferđ
- Mánud., 22. okt., kl. 19, 2. umferđ
- Miđvikud., 24. okt., kl. 19, 3. umferđ
- Föstud., 26. okt., kl. 19, 4. umferđ
- Sunnud., 28. okt., kl. 13, 5. umferđ
- Mánud., 29. okt., kl. 19, 6. umferđ
- Miđvikud., 31. okt., kl. 19, 7. umferđ
- 1. 40.000.-
- 2. 25.000.-
- 3. 15.000.-
Skráning fer fram hér á Skák.is.
17.10.2012 | 13:38
KR-pistill: Birgir Berndsen í banastuđi
Skćđur skákbakteríu faraldur geisađi grimmt í gćrkvöldi á Alţjóđlega handţvottadeginum vestur í KR-heimili. Hvađ sem öllum handţvotti leiđ í eiginlegum skilningi ţvođu menn ţar hendur sínar af öllu misjöfnu. Könnuđust ekki viđ nein brögđ í tafli og hvítţvođu sig af öllum jafnteflistilhneigingum. Allir vinningar vćru velfengnir, byggđust á hreinum snilldartöktum og lćvísum brellum eđa međ hjálp andstćđingsins.
Í síđustu viku var ţađ alţjóđlegi geđheilbrigđisdagurinn sem haldinn var hátíđlegur en nú dagur tileinkađur mikilvćgi handţvottar í tíma og ótíma. Ţetta vekur vissulega upp hugleiđingar um hreinlćti viđ skákborđiđ. Er nćgilega vel ađ ţví hugađ. Óvíđa komast menn í jafn beina handsnertingu og viđ skákiđkun. Bćđi takast menn í hendur áđur en skákin hefst og tefla síđan oft á tíđum međ óhreinum taflmönnum sem ţeir skiptast á ađ snerta og á skítugum skákdúkum. Algengt er ađ keppendur snćđi međ höndunum milli skáka án ţess ađ hugsa um ađ sápuţvo sér um hendurnar áđur, sem ţó vćri líklega ćskilegt ađ teflendur, sérstaklega ungmenni, myndu ađ temja sér.
Mikilvćgi handţvottar í sóttvarnarskyni uppgötvađist ađeins fyrir 700 árum, sem helsta vörn til ađ koma í veg fyrir smit milli manna og nú ekki síst hvađ varđar fjölónćmar bakteríur auk farsótta. Áđur fyrr var handţvottur ađallega iđkađur í tengslum viđ trúarlegar athafnir. Nú til dags er ónćmiskerfi mannsins og almenn sýkingarhćtta mjög ofarlega á baugi og ţví kannski ekki úr vegi ađ leiđa hugann ađeins ađ ţessum málum líka viđ skákborđiđ. Hvernig vćri ađ hafa sótthreinsunarkrem og klúta tiltćka á skákstöđum. Svo mćtti ţvo taflmennina međ ţeim líka og dúkanna af og til.
Ţađ var ţröng á ţingi í Frostaskjólinu ţegar ýtt var á klukkurnar upp úr klukkan hálf átta. Hátt á ţriđja tug spenntra keppenda mćttir til tafls, sem tilbúnir voru til ađ leggja allt í sölurnar til ađ máta mótherjann eđa falla međ sćmd ella. Sú varđ líka raunin ţví sjaldan ţessu vant vannst mótiđ međ ađeins 9˝ vinningi af 13 mögulegum. Allir urđu ađ bíta í ţađ súra epli ađ ađ lúta í gras, tapa nokkrum skákum ađ ţessu sinni vegna stórra eđa smárra yfirsjóna eđa ţá á tíma. Vikuna áđur hafđi hinn ungi meistari Hjörvar Steinn Grétarsson heiđrađ KR-inga međ ţátttöku sinni og unniđ međ fullu húsi og jafnađ ţar međ vallarmet Róberts Hess frá ţví í fyrra enda ţar skáksnillingar á ferđ.
Allra snjallastur eftir harđa og tvísýna baráttu efstu manna varđ ađ ţessu sinni hinn afar snjalli og fagureygđi Birgir Berndsen, sem sýndi ţađ enn og sannađi ađ fáir standast honum snúning á góđum degi. Úrslitin réđust ekki fyrr en í síđustu umferđ međ hjálp annarra. Birgir vann einnig mótiđ fyrir hálfum mánuđi og stal ţá senunni frá Gunnarunum ţremur, Birgissyni, Gunnarssyni og Skarphéđinsyni, sem títt eriđ hafa í toppbaráttunni ađ undanförnu, ásamt Jóni G. Friđjónssyni, ţá er hann mćtir til leiks. Nćst komu ţeir Gunnar Birgisson og Jón G. Friđjónsson međ 9 vinninga og hinn síungi og eitilharđi altmeister Gunnar Gunnarsson međ 8. 5.
Önnur úrslit má sjá á međf. mótstöflu og myndum.
Meira á www.kr.net
Myndaalbúm (ESE)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 16
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 184
- Frá upphafi: 8779122
Annađ
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 114
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar