Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, maí 2011

Norđurţing styrkir skákkennslu í bćjarfélaginu

Í gćr var undirritađur samningur skákfélagsins Gođans viđ sveitarfélagiđ Norđurţing um skákkennslu í grunnskólum Norđurţings (Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn). Samningurinn er til tveggja ára. Raunar hófst skákkennsla, á grundvelli samningsins sem var undirritađur í gćr, í febrúar sl. og er hún í umsjá Smára Sigurđssonar, sem kennir lengra komnum nemendum og Hermanns Ađalsteinssonar sem sér um byrjendur. Skákkennslan fer fram í sal Framsýnar-stéttarfélags.

Ţađ var formađur skákfélagsins Gođans, Hermann Ađalsteinsson sem skrifađi undir samninginn fyrir hönd Gođans og Jóhann Rúnar Pálsson ćskulýđsfulltrúi Norđurţings sem skrifađi undir hann fyrir hönd Norđurţings.

Skákkennslunni lýkur ţetta voriđ nk. miđvikudag, en skákkennslan hefst aftur međ komandi hausti.


Mikael Jóhann efstur í eldri flokki - Vignir Vatnar, Jón Kristinn og Oliver í ţeim yngri

IMG 0982Tvćr umferđir hafa fariđ fram í dag á Landsmótinu í skólaskák á Akureyri og er nú 7 umferđum af 11 lokiđ.  Ýmislegt hefur breyst frá ţví gćr.   Mikael Jóhann Karlsson hefur tekiđ forystuna í eldri flokki, hefur 6˝ vinning en Dagur Ragnarsson og Birkir Karl Sigurđsson koma nćstir međ 5˝ vinning.  Í yngri flokki eru Vignir Vatnar Stefánsson, Jón Kristinn Ţorgeirsson og Oliver Aron Jóhannesson efstir og jafnir međ 6 vinninga.  Ţađ er ţví gífurleg spenna í báđum flokkum.  Tvćr umferđir til viđbótar fara fram í dag og hefst sú fyrri kl. 15.  Mótinu lýkur svo á morgun međ tveimur síđustu umferđunum. IMG 0929

Ţrátt fyrir mikla taflmennsku ver slegiđ upp hrađskaákmóti í gćr.  Ţar fékk einnig Landsmótsstjórinn, Páll Sigurđsson, ađ taka ţátt sem og fulltrúi skipuleggjanda í SA, Sigurđur Arnarson.  Sigurđur kom sá og sigrađi, Mikael Jóhann varđ annar og Emil Sigurđarson og Páll urđu í 3.-4. sćti. Sá nánar á Chess-Results.

Páll Sigurđsson, Landsmótsstjóri, hefur sett fjölda mynda í myndaalbúm mótsins. Öll úrslit koma jafnóđum á Chess-Results og skákir frá mótinu má finna á heimasíđu SA.


Stađan í eldri flokki:

Rk.NameClub/CityPts. 
1Karlsson Mikael Johann Brekkuskóli, Norđurland Eystra6,5
2Ragnarsson Dagur Rimaskóli, Reykjavík5,5
3Sigurdsson Birkir Karl Salaskóli, Reykjanes5,5
4Lee Gudmundur Kristinn Salaskóli, Reykjanes4,5
5Sigurdarson Emil Grunnskóli Bláskógabyggđar, Suđurla4
6Kjartansson Dagur Hólabrekkuskóli, Reykjavík3,5
7Hauksdottir Hrund Rimaskóli, Reykjavík3,5
8Hardarson Jon Trausti Rimaskóli, Reykjavík3,5
9Kristinsson Kristinn Andri Rimaskóli, Reykjavík3
10Jonsson Hjortur Snaer Glerárskóli, Norđurland Eystra2
11Heidarsson Hersteinn Glerárskóli, Norđurland Eystra0,5
12Magnusson Asmundur Hrafn Grunnskóli Egilstađa, Austurland0



Stađan í yngri flokki:

Rk.NameClub/CityPts. 
1Stefansson Vignir Vatnar Hörđuvallaskóli, Reykjanes6
2Thorgeirsson Jon Kristinn Lundaskóli, Norđurland Eystra6
3Johannesson Oliver Rimaskóli, Reykjavík6
4Magnusdottir Veronika Steinunn Melaskóli, Reykjavík5
5Jonsson Gauti Pall Grandaskóli, Reykjavík4,5
6Johannesson Kristofer Joel Rimaskóli, Reykjavík4,5
7Leifsson Adalsteinn Brekkuskóli, Norđurland Eystra2,5
8Thorsteinsson Leifur Melaskóli, Reykjavík2,5
9Palsdottir Soley Lind Hvaleyrarskóli, Reykjanes2
10Sverrisson Atli Geir Egilsstađaskóli, Austurland2
11Gylfason Saevar Valsárskóli, Norđurland Eystra1
12Jozefik Filip Jan Flúđaskóli, Suđurland0


Hjörvar Íslandsmeistari í atskák

SAM 01851Hjörvar Steinn Grétarsson varđ í kvöld Íslandsmeistari í atskák eftir sigur í spennandi einvígi viđ stórmeistarann Ţröst Ţórhallsson sem fram fór í húsnćđi Skáksambandsins, Faxafeni 12 í kvöld.   Fyrst tefldu ţeir kapparnir tvćri atskákir sem báđum lauk međ jafntefli eftir harđa baráttu.  Svo voru tefldar tvćr hrađskákir og ţar hafđi Hjörvar betur.   

Áhorfendur voru í Billiardbarnum sem er viđ hliđin á Skáksambandinu.  Skákirnar ţar voru sýndar á risaskjá.  Ţar skýrđi Jóhann Hjartarson skákirnar og naut ţar ábendinga áhorfenda en međal ţeirra voru Helgi Ólafsson, landsliđsţjálfari.  Alls voru 40 áhorfendur sem fylgdust međ skákunum í beinni og stemming góđ í salnum.  Ingvar Ţór Jóhannesson lét skákforrit fara yfir skákirnar og skaut inn athugasemdum mynd2ţegar viđ átti.

Skákstjóri var Gunnar Björnsson en tćknimál voru í öruggum höndum Halldórs Grétars Einarssonar.  

Myndir frá Einari S. Guđmundssyni.

Skákirnar eru ađgengilegar sem viđhengi og má einnig finna hér. 

Myndaalbúm


Birkir Karl og Oliver Aron efstir á Landsmótinu í skólaskák

DSC002280028Landsmótinu í skólaskák var framhaldiđ í dag međ 3 umferđum en mótiđ fer fram á Akureyri.  Birkir Karl Sigurđsson er efstur í eldri flokki (8.-10. bekkur) međ fullt hús, Mikael Jóhann Karlsson er annar međ 4˝ vinning og Dagur Ragnarsson ţriđji međ 3˝ vinning.  Oliver Aron Jóhannesson er efstur í yngri flokki, einnig međ fullt hús, Vignir Vatnar Stefánsson er annar međ 4˝ vinning og Jón Kristinn Ţorgeirsson og Kristófer Jóhannesson eru í 3.-4. DSC002190019sćti međ 4 vinninga.  Mótinu verđur framhaldiđ á morgun međ 4 umferđum.  

Páll Sigurđsson, Landsmótsstjóri, hefur sett fjölda mynda í myndaalbúm mótsins. Öll úrslit koma jafnóđum á Chess-Results og skákir frá mótinu má finna á heimasíđu SA.


Stađan í eldri flokki:

Rk.NameClub/CityPts. 
1Sigurdsson Birkir Karl Salaskóli, Reykjanes5
2Karlsson Mikael Johann Brekkuskóli, Norđurland Eystra4,5
3Ragnarsson Dagur Rimaskóli, Reykjavík3,5
4Kjartansson Dagur Hólabrekkuskóli, Reykjavík3
5Lee Gudmundur Kristinn Salaskóli, Reykjanes3
6Hauksdottir Hrund Rimaskóli, Reykjavík3
7Hardarson Jon Trausti Rimaskóli, Reykjavík2,5
8Sigurdarson Emil Grunnskóli Bláskógabyggđar, Suđurla2
9Kristinsson Kristinn Andri Rimaskóli, Reykjavík1,5
10Jonsson Hjortur Snaer Glerárskóli, Norđurland Eystra1,5
11Heidarsson Hersteinn Glerárskóli, Norđurland Eystra0,5
12Magnusson Asmundur Hrafn Grunnskóli Egilstađa, Austurland0



Stađan í yngri flokki:

 

Rk.NameClub/CityPts. 
1Johannesson Oliver Rimaskóli, Reykjavík5
2Stefansson Vignir Vatnar Hörđuvallaskóli, Reykjanes4,5
3Thorgeirsson Jon Kristinn Lundaskóli, Norđurland Eystra4
4Johannesson Kristofer Joel Rimaskóli, Reykjavík4
5Magnusdottir Veronika Steinunn Melaskóli, Reykjavík3
6Jonsson Gauti Pall Grandaskóli, Reykjavík2,5
7Leifsson Adalsteinn Brekkuskóli, Norđurland Eystra1,5
8Palsdottir Soley Lind Hvaleyrarskóli, Reykjanes1,5
9Sverrisson Atli Geir Egilsstađaskóli, Austurland1,5
10Thorsteinsson Leifur Melaskóli, Reykjavík1,5
11Gylfason Saevar Valsárskóli, Norđurland Eystra1
12Jozefik Filip Jan Flúđaskóli, Suđurland0


Meistaramót Skákskóla Íslands

Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsáriđ 2010/2011 hefst föstudaginn 27. maí. Tefldar verđa sjö umferđir eftir svissneska kerfinu. Ţátttökurétt hafa nemendur skólans og allir ţeir sem tekiđ hafa ţátt í námskeiđum á vegum  skólans eđa hlotiđ ţjálfun á vegum skólans.  

Núverandi meistari Skákskóla íslands er Hjörvar Steinn Grétarsson.   

Ţátttökuréttur:

Allir nemendur skólans og ţeir sem tekiđ hafa ţátt í námskeiđum á vegum skólans.

Ađ öđru leyti áskilur skólastjóri/mótsnefnd sér rétt til ađ bjóđa völdum einstaklingum til ţátttöku.

Dagskrá mótsins verđur međ eftirfarandi hćtti:

Umferđafjöldi: Sjö umferđir. Í ţrem fyrstu umferđunum verđa tefldar atskákir en fjórar lokaumferđirnar eru kappskákir.

Tímamörk: Atskákir 25 10  ţ.e 25 mínútur ađ viđbćttum10 sekúndum fyrir hvern leik. 

Kappskákir: 90 30 ţ.e. 90 mínútur á alla skákina og 30 sekúndur bćtast viđ eftir hvern leik.

Fyrirkomulag: Svissneska kerfiđ.

Skákstig: Mótiđ verđur reiknađ til skákstiga, en ţrjár fyrstu umferđirnar til at-skákstiga.

Verđlaun:

A:

1. verđlaun:

Meistaratitill Skákskóla Íslands 2010/2011 og farandbikar. Einnig  flugfar m/Flugleiđum á Evrópuleiđ* og uppihalds kostnađi kr. 30 ţús.

2. verđlaun: Flugfarmiđi á leiđum Flugfélags Íslands innanlands.  

3. - 5. verđlaun: Vandađar skákbćkur.

Sérstök stúlknaverđlaun:

Farmiđi á leiđum Flugfélags Íslands innanlands.

Aldursflokkaverđlaun. 

1. Tvenn verđlaun fyrir ţá keppendur sem ná

bestum árangri í hópi 14 ára og yngri

2. Tvenn verđlaun fyrir ţćr

stúlkur sem bestum árangri ná í mótinu.

Verđlaun fyrir keppendur 12 ára og yngri.

1. - 3. verđlaun: Vandađar skákbćkur.

* Mótshaldarinn áskilur sér rétt til ađ finna hagstćđasta fargjald sem hćgt er ađ fá enda verđi tilkynnt um ferđir međ góđum fyrirvara. 

B:

Dagskrá:

1. umferđ: Föstudagurinn 27.maí kl. 18  

2. umferđ: Föstudagurinn 27.maí kl. 19

3. umferđ. Föstudagurinn 27.maí kl. 20.

4. umferđ: Laugardagurinn 28. maí kl. 10-14  

5. umferđ: Laugardagurinn 28. maí 15 - 19

6. umferđ: Sunnudagurinn 29. maí kl. 10.-14.

7. umferđ: Sunnudagurinn 29. maí kl. 15-19.

* Hljóti einhver stúlka 1. eđa 2. verđlaun mun 2. sćti međal stúlkna gilda til sérstakra stúlknaverđlauna.

Verđlaunaafhending fer fram strax ađ móti loknu.

Ţátttöku skal tilkynna í síma SÍ 5689141 á netfangiđ skaksamband@skaksamband.is eđa helol@simnet.is .

Mótsnefnd áskilur rétt til ađ gera breytingar á fyrirfram bođađri dagskrá.

 

 


Áskorendaeinvígin: Jafntefli í dag

Báđum skákum áskorendaeinvíganna lauk međ jafntefli í dag.  Heldur var um rćđa lengri baráttuskákir en í fyrstu skák og tóku 56 og 66 leiki.  Stađan í báđum einvígum er ţví 1-1.  Einvígunum verđur framhaldiđ á morgun og hefst taflmennskan kl. 11.   Rétt er ađ benda á ađ Henrik Danielsen er međ daglegar skákskýringar á Chessdom.

Alls eru tefldar 4 skákir í undanúrslitum.  Ef jafnt verđur teflt til ţrautar í atskák og hrađskák.

Stađan í undaúrslitum:

  • Kamsky (USA) - Gelfand (ISR) 1-1
  • Kramnik (RUS) - Grischuk (RUS) 1-1
Vefsíđur

 


EM landsliđa: Liđiđ valiđ í ágústbyrjun

Heine og HannesSkáksamband Íslands stefnir ađ ţví ađ senda liđ til ţátttöku í opnum flokki EM landsliđa sem fram fer í Heraklion á Krít 2.-11. nóvember nk.  Ákveđiđ var á fundi landsliđsnefndar í gćr ađ liđiđ verđi valiđ í byrjun ágúst.

Međfylgjandi mynd er frá EM landsliđa 2007 sem fór einmitt fram í Heraklion á Krít.

 


Guđmundur G. Ţórarinsson heiđrađur

IMG 4224Á hátíđarskákkvöldi í Gallerý Skák í gćrkvöldi var Guđmundur G. Ţórarinsson, heiđrađur fyrir mikiđ, heilladrjúgt og óeigingjarnt starf í ţágu íslenskra skákmála og eflingu skáklistarinnar um árabil. Guđmundur gegndi starfi forseta Skáksambands Íslands í alls 10 ár, 1969-1973 og 1992-1997, nćstlengst allra og var í forystu fyrir heimsmeistaraeinvíginu á skák 1972, sem kom Íslandi á heimskortiđ ađ margra mati.

Hann hefur nú sett fram athyglisverđa kenningu um uppruna hinna fornu sögualdartaflmanna sem kenndir eru viđ eyjuna Lewis (Ljóshús) en ć fleiri frćđimenn hallast nú ađ tilgátu Guđmundar, í ljósi margvíslegra vísbendinga og raka, ađ ţeir kunni ađ hafa veriđ gerđir í Skákholti í tíđ Páls Jónssonar biskups um kring um áriđ 1200. Gripir ţessir eru taldir međal 5 mestur gersema í safni The British Museum og kennir ţar ţó margra grasa.  Verđi ţađ almennt viđurkennt muna ţetta breyta Íslandssögunni.
 
Guđmundur hlaut  "Skákorđuna" fyrir áriđ 2011, sem Einar S. Einarsson, formađur Skákeflis IMG 4240vinafélags, sem stendur ađ baki Gallerý Skákar, afhenti honum međ smá ávarpi í leikhléi á 11 umferđa hvatskákmóti sem ţar fór fram međ 18 ţátttakenduum, sem klöppuđu Guđmundi innilega lof í lófa.   Ţađ var Guđfinnur R. Kjartansson sem vann mótiđ međ nokkrum yfirburđum, 9 vinningum af 11 mögulegum, í öđru sćti varđ hinn aldna skákkempa Kristinn Johnson ásamt Stefáni Ţormar međ 7. vinninga. Annars dreifđust vinningarnir nokkuđ jafnt međ örfáum undantekningum.
 
Ţetta er í fjórđa sinn sem Skákorđan er veitt, en hana í fyrra Magnús V. Pétursson, ţar áđur Guđfinnur R. Kjartansson og fyrstur Birgir Sigurđsson áriđ 2008.

Texti ritađur af Einari S. Einarssyni.

Myndaalbúm (ESE)


Eiríkur efstur á fimmtudagsmóti

Eiríkur Kolbeinn BjörnssonEiríkur K. Björnsson sigrađi á jöfnu og sterku fimmtudagsmóti í gćr. Trúlega hefur ekki unnist sigur á fimmtudagsmóti í vetur á jafn fáum vinningum, án ţess ađ kćmi til stigaútreiknings. Enginn fór taplaus frá mótinu og úrslit réđust í síđustu umferđ en ţá töpuđu báđir efstu menn (Eiríkur og Stefán Ţór) skákum sínum! Úrslit í gćrkvöldi urđu annars sem hér segir:

 

 

Lokastađan:

  • 1       Eiríkur K. Björnsson                     5.5     
  •  2-4  Elsa María Kristínardóttir            5       
  •          Stefán Ţór Stefánsson                 5       
  •          Kristján Örn Elíasson                    5       
  •  5-6  Erlingur Ţorsteinsson                   4      
  •         Sindri Guđjónsson                         4       
  •  7-8  Finnur Kr. Finnsson                      3.5     
  •        Áslaug Kristinsdóttir                      3.5     
  •   9   Ragnar Hermannsson                   3       
  •  10   Csaba Daday                                  2       
  •  11   Björgvin Kristbergsson                 1.5    
  •  12   Pétur Jóhannesson                       1

Úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í atskák fer fram í kvöld

ŢrösturHjörvarÚrslitaeinvígi Íslandsmótsins í atskák fer fram föstudagskvöldiđ, 13. maí.  Stórmeistarinn Ţröstur Ţórhallsson og Hjörvar Steinn Grétarsson mćtast í úrslitum.  Ađ ţessu sinni fer einvígiđ ekki fram í sjónvarpi.  Kapparnir tefla í húsnćđi Skáksambandsins, Faxafeni 12 og eru áhorfendur velkomnir.   Einvígiđ hefst kl. 19.  Einvíginu verđur varpađ upp á risaskjá í Billiardbarnum sem er hliđina á Skáksambandinu en verđur ekki sýnt beint á netinu.

Helgi Ólafsson, forfallast sem skákskýrandi, en en viđ hans hlutverki tekur enginn annar en stigahćsti skákmađur ţjóđarinnar, Jóhann Hjartarson.  Hann mun fara yfir ţađ sem er ađ gerast í skákinni jafnóđum.  Ingvar Ţór Jóhannesson ćtlar einnig ađ mćta međ tölvuforrit og greina frá ţví hvađ tölvuforritin segja um gang mála jafnóđum. 

Áhugamenn geta ţví ýmist fylgst međ skákinni beint og fylgst međ skýringum Jóhanns og Ingvars.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 87
  • Frá upphafi: 8778242

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband