Bloggfćrslur mánađarins, febrúar 2011
17.2.2011 | 22:14
NM í skólaskák: Noregspistill nr. 1
Klukkan er 19.13 á stađartíma og undirritađur situr í setustofunni á farfuglaheimilinu Haraldsheim. Á međan liggur hinn fararstjórinn, Stefán Bergsson, afvelta í kojunni sinni međ svefngrímu yfir augunum og tappa í eyrunum. Ćtla ég á engan hátt ađ vega ađ brothćttri karlmennsku hans međ ţví ađ grínast međ ţá stađreynd ađ miđaldra flugfreyja hefđi veriđ fullsćmd af ađförunum hans viđ ađ undirbúa ţennan stutta blund.
Ferđalagiđ til Noregs gekk vel og einhvern veginn rötuđum viđ á gististađinn ţökk sé góđum leiđbeiningum frá mótshöldurum. Farfuglaheimiliđ Haraldsheim er eins ţćgilegt og farfuglaheimili getur orđiđ. Um er ađ rćđa fjögurra til sex manna herbergi ţar sem gist er í kojum og deila menn hreinlćtisađstöđu međ allri hćđinni. Ţađ sem bjargar hinsvegar öllu er ađ á hverri hćđ eru ţćgilegar stofur ţar sem hröđ nettenging er í bođi, poolborđ, spil og sjónvarp.
Ađeins er yfir einu ađ kvarta en ţađ er sú stađreynd ađ ţađ tekur 30 mín. ađ ferđast á skákstađ. Fyrst 10 mín. strćtóferđ og svo 20 mín. ganga - í tveimur áföngum. Ţađ er ansi mikill munur frá tćplega 1-2 mín. rölti frá hóteli á skákstađ sem bođiđ var uppá í Svíţjóđ í fyrra. Ţađ lítur ţví allt út fyrir ţađ ađ dagarnir verđi ansi langir hér í Osló ţví krakkarnir tefla tvćr skákir á dag og viđ munum vćntanlega ekki hafa tíma til ađ koma upp á farfuglaheimiliđ milli umferđa.
Helstu áföll dagsins tengjast verđlagi í Noregi. Tónninn var settur strax í byrjun ţegar Stefán Már, fađir Vignis, keypti sér Pepsi -flösku á 600 kr. og skömmu síđar fjárfesti Stefán fararstjóri í 200 kr. banana! Tilraun til ráns ferđarinnar átti sér hinsvegar stađ ţegar hópurinn fór út ađ borđa um miđjan daginn. Viđ fundum flottan veitingarstađ sem bauđ upp á pizzahlađborđ fyrir 2.000 kr. á mann sem var ansi vel sloppiđ. Reyndar heimtuđu sumir ađ fara á McDonalds viđ misjafnan fögnuđ annarra, förum ekki nánar út ţađ. Ţegar ađ menn ćtluđu ađ kaupa sér kókglas međ matnum ţá kostađi ţađ 1.000 kr! Varđ ţá skyndilega kúvending úr kókpöntunum yfir í vatnspantanir sem var svo sem ágćtt frá manneldislegum sjónarmiđum. Menn töldu sig ţarna hafa fundiđ hvađ fáránlegasta verđlagiđ en botninn sló úr ţegar Siggi Emilspabbi tékkađi á rćktinni, langađi ađ rífa ađeins í lóđ og negla sér á brettiđ, en menn ţurfa víst ađ snara 4000 kr. fram til ađ leyfa sér smá sprikl!
Nú er fundi međ öllum hópnum nýlokiđ og klukkan farin ađ ganga tíu. Á ţessum fundi var fariđ yfir morgundaginn en 1. umferđ hefst 11:00 ađ norskum tíma og leggur hópurinn af stađ frá Haraldsheim 09:15 undir handleiđslu hinnar leyndardómsfullu Irisar Brecker en menn bíđa í ofvćni eftir ţeim kynnum. Menn eru núna margir hverjir farnir ađ náttbuxna sig í gang og taka til skrínukosts síns. Ţađ var nefnilega ákveđiđ eftir ferđina á veitingastađinn um miđjan daginn ađ hver myndi bjarga sér um kvöldiđ hvađ varđar nćringu. Menn keyptu hinn ýmsa skrínukost; flestir ávöxtuđu sig í gang, sumir tóku vel til sykursins en sérstaklega var tekiđ eftir skrínukosti Björns fararstjóra. Björn er í heilsuátaki miklu og samanstóđ skrínukostur hans af bláberjasojamjólk, blóđappelsínum, vatni og melónum! Hitaeiningasnautt ţađ.
Framundan er langur og strangur dagur međ tveimur umferđum. Mikil spenna er í keppendum og sérstaklega ţeim yngstu í E-flokknum sem hafa veriđ til mikils sóma og eru nú lagstir til hvíldar. Allir keppendur hafa reyndar veriđ til sóma sem og hagađ sér vel sem er langt frá ţví sjálfsagt ţegar um rćđir svo stóran hóp. Eins og áđur segir hefur ferđin gengiđ vel og er ţađ ekki síst ađ ţakka ţeim foreldrum og ömmu sem eru međ í för sem hjálpa til viđ ađ hafa stjórn á hlutunum og sínum krökkum.
Ţađ er hugur í mönnum og spenna fyrir morgundaginn. Meira síđar.
Stefán og Björn
Fulltrúar Íslands eru (stigaröđ keppenda í sviga - 12 keppendur í hverjum flokki):
A-flokkur (18-20 ára):
- 1. Hjörvar Steinn Grétarsson (2460)
- 2. Sverrir Ţorgeirsson (2330)
B-flokkur (16-17 ára):
- 9. Örn Leó Jóhannsson (1940)
- 10. Nökkvi Sverisson (1805)
C-flokkur (14-15 ára):
- 9. Emil Sigurđarson (1720)
- 11. Dagur Kjartansson (1660)
D-flokkur (12-13 ára):
- 8. Jón Kristinn Ţorgeirsson (1645)
- 9. Oliver Aron Jóhannesson (1545)
E-flokkur (11 ára og yngri):
- 7. Vignir Vatnar Stefánsson (1225)
- 8. Heimir Páll Ragnarsson (1200)
Spil og leikir | Breytt 18.2.2011 kl. 00:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2011 | 17:40
Vinverjar lögđu Selfyssinga
Skákfélag Vinjar lagđi Skákfélag Selfoss og nágrennis í viđureign félaganna sem fram fór í Vin í gćr. 44-37. Hinn hógvćri formađur SSON bendir ţó í ţađ í afar skemmtilegri grein sinni á heimasíđu SSON ađ sigurinn sé Flóamanna, 73-72, samtals en Selfyssingar lögđ Vinverja í viđureign félaganna í Selfossi fyrr í vetur.

Bestum árangri gestanna náđu ţeir Úlfhéđinn Sigurmundsson og Magnús Matthíasson međ 7,5 vinninga, Ingimundur, bróđir Úlfhéđins, var síđan međ 5,5 vinninga.
Bent er aftur á heimasíđu SSON ţar sem m.a. má finna myndaalbúm frá mótinu.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2011 | 17:20
Skákţing Íslands 2011 - Áskorendaflokkur
Stjórn Skáksambands Íslands hefur ákveđiđ ađ keppni í áskorendaflokki 2011 fari fram dagana 15. - 24. apríl n.k. . Mótiđ mun fara fram í Faxafeni 12, Reykjavík. Efstu tvö sćtin gefa föst sćti í Landsliđsflokki 2012.
Dagskrá:
- Föstudagur, 15. apríl, kl. 18.00, 1. umferđ
- Laugardagur, 16. apríl, kl. 14.00, 2. umferđ
- Sunnudagur, Frídagur
- Mánudagur, 18. apríl, kl. 18.00, 3. umferđ
- Ţriđjudagur, 19. apríl, kl. 18.00, 4. umferđ
- Miđvikudagur, 20. apríl, kl. 18.00, 5. umferđ
- Fimmtudagur, 21. apríl, Frídagur
- Föstudagur, 22. apríl, kl. 11.00, 6. umferđ
- Föstudagur, 22. apríl, kl. 17.00, 7. umferđ
- Laugardagur, 23. apríl, kl. 14.00, 8. umferđ
- Sunnudagur, 24. apríl, kl. 14.00, 9. umferđ
Umhugsunartími:
90 mín. + 30 sek. til ađ ljúka.
Verđlaun:
- 1. 40.000.-
- 2. 25.000.-
- 3. 15.000.-
Aukaverđlaun:
- U-2000 stigum 8.000.-
- U-1600 stigum 8.000.-
- U-16 ára 8.000.-
- Kvennaverđlaun 8.000.-
- Fl. stigalausra 8.000.-
Aukaverđlaun eru háđ ţví ađ a.m.k. 5 keppendur séu í hverjum flokki og eingöngu er hćgt ađ vinna til einna aukaverđlauna. Reiknuđ verđa stig séu fleiri en einn í efsta sćti. Stigaverđlaunin miđast viđ íslensk skákstig.
Ţátttökugjöld:
- 18 ára og eldri 3.000.-
- 17 ára og yngri 2.000.-
Skráning:
Skráningu skal senda í tölvupósti á skaksamband@skaksamband.is eđa tilkynna í síma 568 9141 virka daga kl. 10-13 í síđasta lagi 11. apríl 2011. Hćgt verđur ađ skrá sig beint á Skák.is ţegar nćr dregur móti.
17.2.2011 | 07:00
Fimmtudagsmót hjá TR í kvöld
Fimmtudagsmót T.R. fer ađ venju fram í kvöld og hefst kl. 19.30. Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma.
Mótin fara fram í félagsheimili T.R., skákhöllinni ađ Faxafeni 12, og opnar húsiđ kl. 19.10. Glćsilegur verđlaunapeningur er í bođi fyrir sigurvegarann.
Mótin eru öllum opin og er ađgangseyrir kr. 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir 15 ára og yngri. Bođiđ er upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds.
Spil og leikir | Breytt 13.1.2011 kl. 08:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2011 | 00:35
Metţátttaka á MP Reykjavíkurskákmóti
Ţađ stefnir í algjöra metţátttöku á MP Reykjavíkurskákmótinu, minningarmóti um Inga R. Jóhannsson, en nú ţegar 3 vikur eru til móts eru 170 skákmenn skráđir til leiks. Og fleiri met verđa slegin, aldursmet, mesti fjöldi erlendra skákmanna og stórmeistara. Og margir áhugaverđir keppendur eru međ. Yngsti stórmeistari heims, náfrćndi eins ţekktasta fótboltamanns heims, nokkrar af sterkustu skákkonum heims, og blindur skákmađur eru međal keppenda. Mótiđ er jafnframt Norđurlandamót í skák bćđi í opnum flokki og kvennaflokki og á kvenkyniđ óvenju marga fulltrúa ađ ţessu sinni.
Stigahćstur keppenda er Úkraínumađurinn Evgenij Miroshnichenko (2670). Nćstur í stigaröđinni er Luke McShane (2664), sem fékk flesta vinninga á London Chess Classic ásamt heimsmeistaranum Anand og stigahćsta skákmanni heims, Magnúsi Carlseni. Ţriđji í stigaröđinni er Ivan Sokolov (2657), sem var einn sigurvegara síđasta MP Reykjavíkurmóts.
Međal Norđurlandabúa má nefna, jafnaldra og félaga besta skákmanns heims, Magnúsar Carlsen, Jon Ludvig Hammer (2647) Og ađ sjálfsögđu mćtir heimavarnarliđiđ međ stórmeistarana Hannes Hlífar Stefánsson, Héđin Steingrímsson og Henrik Danielsen fremsta í flokki.
Stigahćsti skákmađur Afríku Ahmed Adly (2640) er einnig međ. Og ekki vantar gođsagnir en međal keppenda er Lettinn Evgeny Sveshnikov (2521), sem kemur hingađ ásamt syni sínum.
Sem fyrr má finna marga af yngstu og efnilegustu skákmönnum heims. Yngsti stórmeistari heims í dag, Illya Nyzhnik (2530) mćtir. Ţađ gerir einnig búlgarski alţjóđlegi meistarinn Kiprian Berbatov (2437) sem ţykir mikiđ efni en hann tefldi međ hinu sterka búlgarska Ólympíuliđi í Síberíu síđasta haust.
Og ekki má gleyma skákkonunum. Ein stigahćsta skákkona heims, Harika Dronavalli (2520) auđvitađ kemur til leiks en međal kvenna má nefna samlanda hennar Tania Sachdev (2391), frönsku skákkonuna Sophie Millet (2375) og sterkustu skákkonu Hvíta-Rússlands, Anna Sharevich (2332). Sjá nýlegt viđtal viđ Önnu á ChessBase.
Og blindir eiga sinn fulltrúa í fyrsta skipti á Reykjavíkurskákmóti, ţví pólski alţjóđlega meistarinn Piotr Dukaczewski (2312) tekur ţátt en hann er einn sterkasti blindi skákmađur heims.
Af 170 skráđum keppendum koma 108 erlendis frá og eru samtals frá 31 landi! Flestir koma frá Ţýskalandi eđa 19 en nćstir koma Norđmenn (15) og Indverjar (10). Sumir keppendanna koma langt frá en ţar má nefna keppenda frá Hondúras og Brasilíu.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:40 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2011 | 22:50
Undrabörn í Kastljósi og á Eyjunni
MP Reykjavíkurskákmótiđ nálgast og ţar verđa nokkur met slegin. Tvö ţeirra eru vís, ţátttökumet og aldursmet en međal keppenda má nefna ţau Vigni Vatnar Stefánsson, 7 ára, og Nansý Davíđsdóttur, 8 ára en ţau eru langyngstu keppendurnir sem tekiđ hafa ţátt í í tćplega hálfrar aldar sögu mótsins.
Umfjöllun um ţau og ţátttöku ţeirra var ađ finna í Kastljósinu í kvöld og í frétt Eyjunnar í gćr.
16.2.2011 | 09:55
Vigfús sigrađi á hrađkvöldi
Vigfús Ó. Vigfússon sigrađi međ 7,5v af 9 mögulegum á hrađkvöldi Hellis sem fram fór 7. febrúar sl. Önnur varđ Elsa María Kristínardóttir međ 7v og ţriđji varđ Eiríkur Örn Brynjarsson međ 6,5v. Eins og á síđast hrađkvöldi dró sigurvegarinn ţann sem varđ í öđru sćti út í happdrćttinu.
Lokastađan á hrađkvöldinu:
- 1. Vigfús Ó. Vigfússon 7,5v
- 2. Elsa María Kristínardóttir 7v
- 3. Eiríkur Örn Brynjarsson 6,5v
- 4. Jón Úlfljótsson 6v
- 5. Egill Steinar Ásgeirsson 5v
- 6. Dagur Kjartansson 4,5v
- 7. Kristinn Andri Kristinsson 4,5v
- 8. Björgvin Kristbergsson 2v
- 9. Pétur Jóhannesson 1v
15.2.2011 | 23:35
Harkan sex í Vesturbćnum
MánudagsMót KR eru ein ţau hörđustu í bćnum. Ţar á bć láta menn sig ekki muna um ađ tefla 13 umferđa hrađskákmót á mánudagskvöldum allan ársins hring. 7 mínútna skákir. Tafliđ hefst kl. 19.30 og lýkur um 11 leytiđ. Ađ jafnađi er vel mćtt í KR-heimilinu í Frostaskjóli, 20 keppendur eđa fleiri og öllum ţátttakendum vel fagnađ.
Sigurđur A. Herlufsen hefur boriđ sigur úr bítum á tveimur síđustu mótum, en Birgir Berndsen, Gunnar Kr. Gunnarsson og Dr. Ingimar Jónsson fylgt fast á hćla hans og hafa skipst á um ađ vinna mótin ţar á undan á árinu, ađ undanteknu ţví fyrsta sem Kristján Stefánsson, formađur, gerđi sér lítiđ fyrir og vann á góđum degi.
Í gćrkvöldi urđu úrslit sem hér segir:
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2011 | 23:32
Bandaríski stórmeistarinn Robert Hess til liđs viđ KR
Hinn ungi stórmeistari Robert Hess , nýjasti GM Bandaríkjanna, mćtir til leiks og teflir međ KR-A á fyrsta borđii í síđustu 3 umferđum Íslandsmóts skákfélaga. Hann var međ 2602 stig í lok 2010 og verđur án vafa mikill liđstyrkur fyrir skáksveit KR, sem berst fyrir veru sinni í 1. deildinni. Robert Hess er 19 ára, varđ stórmeistari ađeins 17 ára gamall. Hann var valinn í Ólympíusveit Bandaríkjanna í Síberíu í fyrrahaust međ litlum fyrirvara og komst ţví ekki til ađ tefla međ KR í fyrri hluta keppninnar. Hann teflir nú í A-flokki í hinu sterka Aeroflot móti í Moskvu.
Hess á ţađ sammerkt međ GunnaGunn, fyrrum Íslandsmeistara í skák 1966 og knattspyrnu međ Val 1956, ađ hafa orđiđ meistari í tveimur greinum, skák og bandrískum ruđningi međ skólaliđi sínu
15.2.2011 | 21:01
Haraldur Axel og Sigfús efstir á skákdegi Ása
Haraldur Axel Sveinbjörnsson varđ efstur ásamt Sigfúsi Jónssyni í skákdegi Ása Stangarhylnum í dag ţeir fengu báđir 7 vinninga af 10 mögulegum. Ţrír voru jafnir í 3-5 sćti međ 6.5 v.
Heildarúrslit:
- 1-2 Haraldur Axel Sveinbjörnsson 7 vinninga 46.5 stig
- Sigfús Jónsson 7 - 44.5
- 3-5 Gísli Sigurhansson 6.5 - 46.5
- Ásgeir Sigurđsson 6.5 - 42.5
- Jón Víglundsson 6.5 - 42.5
- 6-7 Birgir Sigurđsson 6 -
- Halldór Sigurđsson 6 -
- 8-10 Birgir Ólafsson 5.5 -
- Valdimar Ásmundsson 5.5 -
- Hermann Hjartarson 5.5 -
- 11-15 Egill Sigurđsson 5 -
- Eiđur Á Gunnarsson 5 -
- Jónas Ástráđsson 5 -
- Bragi G Bjarnarson 5 -
- Óli Árni Vilhjálmsson 5 -
- 16 Viđar Arthúrsson 4.5 -
- 17 Finnur Kr Finnsson 4 -
- 18 Sćmundur Kjartansson 3.5 -
- 19 Hrafnkell Guđjónsson 1 -
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.8.): 0
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 120
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 81
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar