Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2011

Baldur Teódór efstur unglinga fćddra 2001

Baldur TeodorBaldur Teódór Petersson varđ efstur á Grand Prix Stokkhólms sem fram fór í höfuđborg Svíţjóđar um helgina.  Ţetta er annađ áriđ í röđ sem Baldur sigrar í ţessari keppni.  Hann hlaut 8 vinning í 9 skákum í úrslitakeppninni en á ţessu móti fer fram sérkeppni í hverjum árgangi.

Nánari úrslit á heimasíđu mótsins.


Skákţáttur Morgunblađsins: Magnús Carlsen er langefstur á heimslistanum

Carlsen og NakamuraÁ minningarmótinu um Mikhael Tal sem lauk í Moskvu um síđustu helgi gafst ágćtt tćkifćri til ađ rifja upp feril meistara sem líklega ávann sér meiri hylli en nokkur annar heimsmeistari. Ţó ađ halla tćki undan fćti eftir tapiđ í seinna einvíginu viđ Botvinnik áriđ 1961 báru ađdáendur hans ávallt ţá von í brjósti ađ ţeir dagar kćmu aftur ţegar Tal lagđi skákheiminn ađ fótum sér. Leiftrandi snilld hans hafđi fćrt honum heimsmeistaratitilinn verđskuldađ ađeins 23 ára gömlum en nćstu ár voru honum erfiđ, ekki síst í heilsufarslegu tilliti. Íslendingar fengu margoft ađ njóta snilldar Tal, fyrst á stúdentamótinu 1957, á Reykjavíkurmótunum 1964 og 1986, IBM-mótinu 1987 og á heimsbikarmótinu 1988.

Á minningarmótinu var jafnteflisprósentan býsna há eđa um 77%. Heimsmeistarinn Anand gerđi jafntefli í öllum skákum sínum. Enn og aftur sannađi Magnús Carlsen hćfni sína og er kirfilega efstur á stigalista FIDE međ 2.829 stig. Magnús náđi nýlega samkomulagi viđ FIDE um tilhögun heimsmeistarakeppninnar og mun hann vera međal ţátttakenda í nćstu hrinu hennar. Lokaniđurstađan á Tal-mótinu:

1.-2.Carlsen og Aronjan 5˝ v.3.-5. Ivantsjúk, Karjakin og Nepomniachtchi 5 v. 6.-7. Svidler og Anand 4˝ v. 8.-9. Kramnik og Gelfand 3˝ v. 10. Nakamura 3 v.

Skömmu fyrir mótiđ barst sú fregn ađ Kasparov vćri tekinn viđ sem ţjálfari Nakamura. Ekki er vitađ til ţess ađ viđskilnađur Kasparovs viđ Magnús Carlsen hafi kostađ mikil átök en ţekki mađur Kasparov má reikna má međ ađ hann hafi gefiđ hinum nýja skjólstćđingi sínum góđ ráđ fyrir viđureignina í lokaumferđinni. Kom fyrir ekki; Magnús náđi snemma frumkvćđinu og vann sannfćrandi sigur:

Hiakru Nakamura - Magnús Carlsen

Drottningar-indversk vörn

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6 5. Dc2 Bb4 6. Bd2 Be7 7. Bg2 c6 8. 0-0 d5 9. Re5 Rfd7 10. cxd5 cxd5 11. Bf4

Afundinn eftir slćmt gengi í mótinu sniđgengur Nakamura skarpari möguleika. 11. e4!? er ekki eins vitlaus leikur og virđist í fyrstu, t.d. 11...Rxe5 12. exd5 Bxf1 13. Kxf1 međ ýmsum möguleikum.

11....Rxe5 12. dxe5 0-0 13. Hd1 Bb7 14. Rd2 Rc6 15. Rf3 g5!

Međ ţessari óvćntu framrás sem beinist gegn e5-peđinu hrifsar Magnús til sín frumkvćđiđ. Hvítur geldur ţess ađ hafa teflt byrjunina alltof linkulega.

16. Be3 g4 17. Rd4 Rxe5 18. Bh6 He8 19. e4 Bc5! 20. Rb3 Hc8 21. Rxc5 Hxc5 22. Da4

Eđlilegra var 22. De2 en kannski hefur Nakamura óttast 22..... d4.

22....Bc6 23. Dd4 Df6 24. Bf4 dxe4 25. Bxe4 Rf3+!

Međ uppskiptum kemst svartur út í endatafl peđi yfir. Ţađ gefur bestu vinningsmöguleikana.

26. Bxf3 Dxd4 27. Hxd4 Bxf3 28. Hd7 Hd5! 29. Hxd5 exd5 30. Be3 He4 31. He1 d4 32. Bd2 Hxe1 33. Bxe1

gdsoc3hk.jpgSjá stöđumynd.

33....Be2!

Međ ţessum snjalla leik lokar Magnús hvíta kónginn af og ţađ kostar peđ ađ losa um hann.

34. f4 gxf3 35. Bf2 d3 36. Be1 Kg7 37. Kf2 Kf6 38. Ke3 Kf5 39. h3 h5 40. Bd2 Bf1 41. Be1 Bxh3 42. Kxd3 Bf1 43. Ke3 Kg4 44. Kf2 Bb5 45. Bc3 Bc6 46. Be5 b5 47. Bb8 a6 48. Bc7 f5 49. b3 Bd5 50. Bd6 f4 51. gxf4 h4 52. f5 Kxf5 53. Ke3 Kg4 54. Kf2 h3 55. Ke3 Be4 56. Kf2 Bb1 57. a3 Ba2 58. b4 Bf7

- og hvítur gafst upp, biskupinn er á leiđ til h5 og g4 og kóngurinn til d5. Eftir ţađ er a3-peđiđ dćmt til ađ falla.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

-------------------------------------------

Skákţćttur Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 4. desember 2011.

Skákţćttir Morgunblađsins


Héđinn í beinni gegn Shirov í dag

Héđinn fékk bćn sína uppfyllta - Valur vannÍslandsmeistarinn í skák, Héđinn Steingrímsson (2562), teflir viđ engan annan en spćnska ofurstórmeistarann Alex Shirov (2713) í sjöundu umferđ ţýsku deildakeppnarinnar sem fer nú í morgunsáriđ.  Héđinn teflir á fyrsta borđi fyrir Dortmund en Shirov fyrir Baden Baden.  Skákin hefst nú kl. 9.

 


Jólaskákćfing T.R. - tónlist og fjölskylduskákmót!

IMG 9086Í gćr var jólaskákćfing í T.R. sem jafnframt var síđasta skákćfingin fyrir börn og unglinga í T.R. á ţessu ári. Laugardagsćfingarnar svokölluđu hafa veriđ vel sóttar í vetur. Tveir flokkar hafa veriđ í gangi og hafa Dađi Ómarsson og Eiríkur Kolbeinn Björnsson séđ um ţjálfun unglingaflokksins og Torfi Leósson séđ um ţjálfun barnaflokksins.

Jólaskákćfingin í dag var sameiginleg fyrir báđa flokkana og var hún fjölmenn og međ nýstárlegu sniđi. Jólasveinahúfur settu skemmtilegan svip á ćfinguna. Tónlistaratriđi og fjölskylduskákmót var ţema dagsins! Alls voru ţátttakendur 48, ţar af 37 börn og unglingar og 9 fullorđnir! En byrjum á byrjuninni.

Fyrst á dagskrá voru ţrjú tónlistaratriđi sem skákkrakkar úr T.R. stóđu fyrir. Páll Ísak Ćgisson spilađiIMG 9091 jólalagiđ Jingle Bells á básúnu og Ólafur Örn Olafsson spilađi Musette á hljómborđ. Ađ lokum spilađi Símon Ţórhallsson á rafmagnsgítarinn sinn Led Zeppelin lagiđ frćga Stairway to heaven. Ţetta voru snilldarflott atriđi og hlutu tónlistarmennirnir mikiđ lófaklapp fyrir!

Nćst á dagskrá var tveggja manna liđakeppni. Krökkunum hafđi veriđ bođiđ upp á ađ taka einhvern fjölskyldumeđlim međ sér á jólaskákćfinguna og mynda liđ. Ţađ voru heilmargir sem komu međ pabba, afa, systkini eđa frćnku eđa frćnda međ sér. Ađrir voru í liđi međ vinum eđa félögum af laugardagsćfingunum. Liđanöfnin voru frumleg og skemmtileg!

Tefldar voru 6 umferđir međ 5 mín. umhugsunartíma. Í tveimur fyrstu sćtunum urđu brćđurnir Arnaldur Loftsson og Hrafn Loftsson sem tefldu í sitt hvoru liđinu međ sonum sínum! Eftir stigaútreikning hlutu Arnaldur og sonur hans Bjarki 1. sćtiđ og Hrafn og Hilmir sonur hans 2. sćtiđ. Í 3. sćti urđu síđan vinirnir úr unglingaflokki T.R. ţeir Jóhannes Kári Sólmundarson og Rafnar Friđriksson. Ţessi ţrjú liđ fengu Hátíđarpoka Freyju í verđlaun. En úrslit urđu annars sem hér segir:

  • 1.   Biskupapariđ: Bjarki Arnaldarson/Arnaldur Loftsson 10v af 12, 32,5 stig
  • 2.    Hvítu riddararnir: Hilmir Hrafnsson/Hrafn Loftsson 10v 31, 5 stig
  • 3.   Tveir jólasveinar og trefill: Rafnar Friđriksson/Jóhannes Kári Sólmundarson 8v 32,5 stig
  • 4.   Chess Master: Guđmundur Agnar Bragason/Bragi Ţór Thoroddsen 8v 28 stig
  • 5.   Svörtu hrókarnir: Bárđur Örn Birkisson/Björn Hólm Birkisson 8v 26,5 stig
  • 6.   Međan peđin sofa liggja hrókarnir andvaka: Ellert Kristján Georgsson/Georg Lúđvíksson 7,5v
  • 7.   Brose before Hose: Huginn Orri Arnórsson/Daníel Örn Auđunsson 7,5v
  • 8.   Arsenal United: Jakob Alexander Petersen/Símon Ţórhallsson 7v
  • 9.   Kolli og Kalli: Kolbeinn Ólafsson/Karl Andersson 7v
  • 10. Axel og Co: Axel Bergsson/Birkir Bárđarson 7v
  • 11. Svart-hvítir: Ţorsteinn Muni Jakobsson/Guđmundur Karl Úlfarsson 7v.
  • 12. Jólarnir: Aron Ingi Woodard/Ignas Mykolaitis 6,5v
  • 13. Riddararnir: Erik Daníel Jóhannesson/Bjarni Ţór Guđmundsson 6,5v
  • 14. A-liđiđ: Anton Oddur Jónasson/Aldís Birta 5v
  • 15. M og H: Hubert Jakubek/Pétur Jakubek 5v
  • 16. Hrókar alls fagnađar: Svava Ţorsteinsdóttir/Leifur Ţorsteinsson, 5v
  • 17. Tvibbarnir: Sólrún Elín Freygarđsdóttir/Halldóra Freygarđsdóttir, 5v
  • 18. Jólasveinar: Alexandra Kinder/Mateusz Jakubek 5v
  • 19. Kóngarnir: Páll Ísak Ćgisson/Sveinn Valgeirsson 5v
  • 20. Eldhrókarnir: Ólafur Örn Olafsson/Ţröstur Olaf Sigurjónsson 4v
  • 21. Jólakötturinn: Jóhann Bjarkar Ţórsson/Gylfi Harđarson 4v
  • 22. Ađalskákfélag: Bjartur Guđmundsson/Orri Guđmundsson 3v
  • 23. Jólaliđiđ: Sana Salahkarim/Mir Salahkarim 3v
  • 24. Boginn: Bóas Orri Hannibalsson/Hannibal Hauksson 2v

IMG 9001Ađ ţessari skemmtilegu liđakeppni lokinni fór fram verđlaunaafhending. Fyrst voru veitt verđlaun (medalíur) fyrir mćtingu og árangur á laugardagsćfingunum á ţessari önn (nánar í pistli um jólaskákćfinguna á heimasíđu T.R., taflfelag.is).

Ţví nćst fór fram verđlaunaafhendingin fyrir Fjölskylduskákmótiđ og ađ lokum voru dregnir út fjórir bíómiđar í happdrćtti. Tvö liđ voru dregin út og ţeir heppnu voru Eldhrókarnir, feđgarnir Ólafur Örn og Ţröstur Olaf, svo og Jólakötturinn en ţađ voru Jóhannes og Gylfi sem eru nýbyrjađir ađ koma á laugardagsćfingarnar.

Ţá var bara jólahressingin eftir, sem ađ ţessu sinni var höfđ sem lokapunktur á jólaskákćfingunni. Malt og appelsín, piparkökur og kanelsnúđar, allt átti ţetta vel viđ á vel heppnađri jólaćfingu. Skákmömmurnar Elfa Björt Gylfadóttir, mamma Gauta Páls, og Áróra Hrönn Skúladóttir, mamma Hilmis Freys, bökuđu vöfflur og helltu upp á kaffi frammi í eldhúsi og allt féll ţetta vel í kramiđ!

Skákstjórar voru Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir og Jóhann H. Ragnarsson sem einnig tók myndir.

Laugardagsćfingar T.R. hefjast aftur 7. janúar 2012!

Pistill: SRF.

Myndaalbúm (JHR)


Who Keres og Heiđursmenn efstir á afar spennandi Atskákmóti Icelandair

Fyrstu níu umferđirnar á Atskákmóti Icelandair fóru fram í magnţrungnu andrúmslofti í Hótel Natura (Loftleiđum) í dag.  Keppnin er afar jöfn og spennandi og ađeins munar 5,5 vinningi á efstu sveitinni og sveitinni í 11. sćti.   Sveitirnar Who Keres og Heiđursmenn leiđa međ 25 vinning af 36 mögulegum.  Three Burritos & One Pink Taco er í 3. sćti međ 24,5 vinning.

Stöđuna má finna á Chess-Results.

Sé skođađ hverjir eru standa sig best á hverju borđi er stađan ţannig:

  • 1. borđ: Guđmundur Kjartansson, Bragi Ţorfinnsson 8 v. Omar Salama 7,5 v.
  • 2. borđ: Jón Viktor Gunnarsson 8 v., Ţröstur Ţórhallsson 7,5 v.
  • 3. borđ: Dađi Ómarsson 8 v., Ţorsteinn Ţorsteinsson 7,5 v.
  • 4. borđ: Gunnar I. Birgisson 8 v., Magnús Sigurjónsson 7,5 v.

Taflmennskan hefst kl. 13 á morgun og ţá eru tefldar áttu síđustu umferđirnar.  

Chess-Results

 


Hrund og Gauti Páll efst á Jólagleđimóti viđ Hverafold

IMG 2583Tuttugu áhugasamir skákkrakkar tóku ţátt i velheppnuđu skákmóti Fjölnis og NETTÓ viđ Hverafold í Grafarvogi. Ţau Hrund Hauksdóttir Rimaskóla og Gauti Páll Jónsson Grandaskóla urđu efst á hnífjöfnu móti međ 5 vinninga af 6 mögulegum. Mótiđ var haldiđ í tilefni af Jólagleđi í Hverafold, verslunarmiđstöđinni Torginu Grafarvogi.

Í nćstu sćtum komu Norđurlandameistararnir úr Rimaskóla Svandís Rós Ríkharđsdóttir sem gerđi sér lítiđ fyrir og vann Hrund skólasystur sína í fyrsta sinn og Kristófer Jóel Jóhannesson međ 4,5 vinninga. Felix Steinţórsson Álfhólsskóla og Axel Hreinn Hilmisson Rimaskóla fengu 4IMG 2576 vinninga og Ásdís Birna Ţórarinsdóttir sem er enn ein skákdrottningin í Rimaskóla hlaut 3,5 vinninga.

Skákmótiđ fór fram í glćsilegum sal Sjálfstćđismanna í Grafarvogi. Í skákhléi fengu allir ţátttakendur veitingar frá NETTÓ í Grafarvogi en verslunin gaf einnig öll verđlaun mótsins. Allir ţátttakendur fengu vinninga frá Nettó og ţeir 10 efstu bćkur og nammipoka.

Ţađ voru ţeir frćndur Helgi Árnason og Gunnlaugur Egilsson stjórnarmenn í Skákdeild Fjölnis sem sáu um framkvćmd mótsins og hrósuđu ţeir óspart ţátttakendum fyrir góđa frammistöđu og hegđun. 

Myndaalbúm (HÁ)

 


Guđmundur og Birkir Karl unnu í dag - Björn í beinni á morgun

Guđmundur GíslaGuđmundur Gíslason (2318) og Birkir Karl Sigurđsson (1649) unnu báđir í áttundu og nćstsíđustu umferđ b-flokks London Chess Club sem fram fór í dag.  Björn Ţorfinnsson tapađi fyrir indverska alţjóđlega meistaranum Sahaj Grover (2515) og Bjarni Jens Kristnsson (2045) tapađi einnig.  Björn og Guđmundur mćta enskum landsliđsmönnum á morgun.  Björn teflir viđ Gawain Jones (2635) en Guđmundur teflir viđ Nicholas Pert (2563).  Skák Björns verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins. 

Björn hefur 6 vinninga og er í 6.-16. sćti, Guđmundur hefur 5,5 vinning og er í 17.-36. sćti og Bjarni Jens og Birkir Karl hafa 3,5 vinning og eru í 129.-163. sćti.

Indverski stórmeistarinn Abhjeet Gupta (2640) er efstur međ 7 vinninga.  Í 2.-5. sćti međ 6,5 vinning eru Grover og Englendingarnir;  Peter Wells (2492), Keith Arkell (2418), Jovanka Houska (2415) og Jones.

231 skákmađur tekur ţátt í b-flokknum og ţar á međal 11 stórmeistarar og 22 alţjóđlegir meistarar.  Björn er nr. 22 í styrkleikaröđ keppenda, Guđmundur nr. 35, Bjarni Jens nr. 120 og Birkir Karl nr. 220.


Carlsen, McShane og Kramnik efstir í London

McShane og CarlsenŢremur skákum af fjórum lauk međ hreinum úrslitum í sjöundu umferđ sem fram fór í dag.   Sigurvegar dagsins, Carlsen, McShane og Kramnik eru efstir međ 12 stig en ţeir lögđu allir hver sinn Englendinginn.   Nakamura er fjórđi međ 11 stig.  

Stađan:

  • 1.-3. Carlsen (2826), Kramnik (2800) og McShane (2671) 12 stig
  • 4. Nakamura (2758) 11 stig
  • 5.-6. Aronian (2802) og Anand (2811) 7 stig
  • 7. Short (2698) 4 stig
  • 8.-9. Howell (2633), Adams (2734) 3 stig

Adams og Howell hafa teflt 7 skákir en ađrir hafa teflt 6 skákir.  

Í 8. og nćstsíđustu umferđ sem fram fer á morgun mćtast m.a: Anand-Carlsen og McShane-Kramnik.

 


Héđinn međ jafntefli í dag - gćti mćtt Shirov í fyrramáliđ

Héđinn fékk bćn sína uppfyllta - Valur vannÍslandsmeistarinn í skák, Héđinn Steingrímsson (2562) gerđi jafntefli viđ rúmenska stórmeistarann Constantin Lupulescu (2655) í 6. umferđ ţýsku deildakeppninnar (Bundesliga) sem fram fór í dag.  Héđinn tefldi á fyrsta borđi fyrir Hansa Dortmund.  Á morgun teflir Dortmund viđ Baden Baden en ţar tefldi enginn annar en Alexei Shirov (2713) á fyrsta borđi í dag og er ţví líklegt ađ ţeir tefli saman.  

Umferđin á morgun hefst kl. 9.  Skák Héđins verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins

 


Héđinn í beinni í dag

Héđinn SteingrímssonÍslandsmeistarinn í skák, Héđinn Steingrímsson (2562), verđur í beinni í dag frá ţýsku deildakeppninni (Bundesligan).  Hann teflir á fyrsta borđi fyrir Hansa Dortmund og mćtir rúmenska stórmeistaranum Constantin Lupulescu (2655).

Skákin verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins og hefst kl. 13. 

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 14
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 124
  • Frá upphafi: 8780628

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 100
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband