Bloggfćrslur mánađarins, júní 2010
19.6.2010 | 18:21
Björn sigrađi í 2. umferđ í Rúmeníu
Alţjóđlegi meistarinn Björn Ţorfinnsson (2390) vann rúmenska skákmeistarann (CM), Mihai-Eugen Bida (2093) í 2. umferđ alţjóđlega mótsins í Eforie í Rúmeníu í dag. Birkir Karl Sigurđsson (1442) og Mikael Jóhann Karlsson (1726) töpuđu báđir en Örn Leó Jóhannsson (1825) vann í ótefldri skák.
Björn hefur 2 vinninga, Örn Leó og Birkir Karl hafa 1 vinning en Mikael Jóhann er ekki kominn á blađ.
Skák Björns í ţriđju umferđ verđur vćntanlega sýnd beint á vefsíđu mótsins á morgun.
181 skákmađur tekur ţátt í ţessu skákmóti. Ţar 17 stórmeistarar og 21 alţjóđlegur meistari. Björn er númer 34 í stigaröđ keppenda.
19.6.2010 | 18:14
Carlsen efstur eftir sigur á Nisipeanu
Carlsen (2813) sigrađi Nisipeanu (2672) í fimmtu umferđ Medias-mótsins í Rúmeníu í dag. Gelfand sigrađi Ponomariov en Wang Yue og Radjabov gerđi jafntefli. Carlsen er efstur međ 3,5 vinning Radjabov og Gelfand eru nćstir međ 3 vinninga.
Stađan:- 1. Carlsen (2813) 3˝ v.
- 2.-3. Radjabov (2740) og Gelfand (2741) 3 v.
- 4.-5. Nisipeanu (2672), Ponomariov (2733) 2 v.
- 6. Wang Yue (2752) 1˝ v.
- Heimasíđa mótsins
- Skákirnar í beinni (hefjast kl. 12:30)
19.6.2010 | 08:26
Björn sigrađi í fyrstu umferđ í Rúmeníu
Alţjóđlegi meistarinn Björn Ţorfinnsson (2390) sigrađi Rúmenann Gheorghe-Cristache Toculet (1886) í fyrstu umferđ alţjóđlega mótsins í Eforie í Rúmeníu sem hófst í gćr. Ásamt Birni taka ţátt Örn Leó Jóhannsson (1825), Mikael Jóhann Karlsson (1726) og Birkir Karl Sigurđsson (1442). Örn og Mikael töpuđu en Birkir Karl vann í ótefldri skák.
Í 2. umferđ sem fram fer í dag teflir Björn rúmenska skákmeistarann (CM), Mihai-Eugen Bida (2093).
181 skákmađur tekur ţátt í ţessu skákmóti. Ţar 17 stórmeistarar og 21 alţjóđlegur meistari. Björn er númer 34 í stigaröđ keppenda.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2010 | 01:43
Skákhátíđin í Arneshreppi hófst í kvöld
Skákatíđin í Árneshreppi hófst í kvöld međ tvískákmóti. Friđrik Ólafsson, lék fyrsta leik mótsins er hann lék sinn fyrsta tvískákleik frá upphafi fyrir Hrafn Jökulsson. Liđ Hrafns, forsetaliđiđ sigrađi á mótinu en međ honum í liđi var Gunnar Björnsson auk ţess sem varaforseti Hróksins, Róbert Lagerman, leysti Hrafn af liđi í einstaka viđureignum.
Í öđru sćti urđu Hlíđar Ţór Hreinsson og Skarphéđinn (vantar föđurnafn) og í ţriđja sćti urđu Arnar Guđlaugsson og Guđmundur Kjartansson.
Hápunktur mótsins, afmćlismóts Friđriks Ólafssonar fer fram á morgun og hefst kl. 13. Ţar taka ţátt m.a. Friđrik sjálfur, Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson og Guđmundur Kjartansson.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 01:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2010 | 01:34
Henrik vann í fyrstu umferđ í Ósló
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2514) sigrađi norska skákmanninn Timmie Nygaard (1963) í fyrstu umferđ í minningarmóti um Svein Johannessen sem hófst í Osló í Noregi í dag. Í 2. umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Henrik viđ annan Norđmann, ađ ţessu sinni Per Omvedt (2123).
Alls taka 60 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 6 stórmeistarar. Henrik er fjórđi stigahćsti ţátttakandi mótsins. Mótiđ er níu umferđir en tekur ađeins fimm daga.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
- 1. verđlaun: 50.000
- 2. verđlaun: 25.000
- 3. verđlaun: 15.000
- Kvennaverđlaun: 20.000
- Efstur stigalausra: 20.000
- Efstur skákmanna međ allt ađ 2200 stig: 20.000
- Efsta ungmenni fćtt 1992 eđa síđar: 20.000
- Efstur Strandamanna: 20.000
Ţá mun dómnefnd ađ vanda velja best klćdda keppandann í Djúpavík, háttvísasti keppandinn fćr ljúffeng verđlaun og fleiri eiga von á glađningi. Fjölmörg önnur verđlaun eru veitt, međal annars útsýnissigling fyrir tvo á Hornstrandir, gisting í Árneshreppi, bćkur, hannyrđir og fleira.
Skákhátíđin í Árneshreppi hefst föstudagskvöldiđ 18. júní klukkan 20 međ tvískákmóti í Djúpavík. Ţetta er mjög skemmtilegt keppnisform ţar sem tveir eru saman í liđi, og handagangur í öskjunni. Á laugardaginn klukkan 13 hefst Afmćlismót Friđriks Ólafssonar í Djúpavík, sem lýkur međ verđlaunaafhendingu síđdegis. Teflt er í gömlu síldarverksmiđjunni og er stemmningin ćvintýraleg á skákstađ. Hátíđinni lýkur á sunnudag međ hrađskákmóti í Kaffi Norđurfirđi frá kl. 13-15.
Keppendur eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst hjá Róbert (chesslion@hotmail.com) eđa Hrafni (hrafnjokuls@hotmail.com). Allar upplýsingar um Skákhátíđina í Árneshreppi má finna á heimasíđu mótsins og Facebook-síđunni Skákhátíđ í Árneshreppi.
17.6.2010 | 17:29
Carlsen vann Wang Yue - efstur ásamt Radjabov
Ţađ urđu hrein úrslitu í öllum viđureignum fjórđu umferđ alţjóđlega mótsins í Medias sem fram fór í Rúmeníu dag. Carlsen (2813) vann loks skák er hann lagđi Wang Yue (2713). Radjabov (2740) er efstur ásamt Carlsen eftir sigur á Gelfand (2741). Ponomariov (2733) lagđi svo heimamanninn Nisipeanu (2672).
Stađan:
- 1.-2. Radjabov (2740) og Carlsen (2813) 2˝ v.
- 3.-5. Nisipeanu (2672), Ponomariov (2733) og Gelfand (2741) 2 v.
- 6. Wang Yue (2752) 1 v.
- Heimasíđa mótsins
- Skákirnar í beinni (hefjast kl. 12:30)
Lenka Ptácníková (2267) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1738) urđu efstar og jafnar međ 4 vinninga á Íslandsmóti kvenna sem lauk í kvöld. Lenka sigrađi Jóhönnu í lokaumferđinni. Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir (1990) varđ í ţriđja sćti međ 3,5 vinning eftir sigur á Hrund Hauksdóttur (1605). Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir (1828) vann Elsu Maríu Kristínardóttur (1709).
Lenka og Jóhanna tefla tveggja skáka einvígi á sunnu- og mánudagskvöld. Jóhanna hefur hvítt í fyrri skák.
Lokastađan:
Rk. | Name | RtgI | Club/City | Pts. | Rp | rtg+/- | |
1 | WGM | Ptacnikova Lenka | 2267 | Hellir | 4 | 2014 | -7,7 |
2 | Johannsdottir Johanna Bjorg | 1738 | Hellir | 4 | 2120 | 32 | |
3 | Thorsteinsdottir Hallgerdur | 1990 | Hellir | 3,5 | 1978 | 0,9 | |
4 | Fridthjofsdottir Sigurl Regin | 1828 | TR | 2 | 1790 | -6,4 | |
5 | Hauksdottir Hrund | 1605 | Fjölnir | 1 | 1666 | -1,8 | |
6 | Kristinardottir Elsa Maria | 1709 | Hellir | 0,5 | 1520 | -17,7 |
Allar skákir mótsins fylgja međ fréttinni.
16.6.2010 | 18:18
Medias: Carlsen enn međ jafntefli - Gelfand og Nisipeanu efstir
Radjabov (2740) sigrađi Ponomariov (2733) í ţriđju umferđ alţjóđlega mótsins í Medias í Rúmeníu. Öđrum skákum lauk međ jafntefli. Carlsen (2813) gerđi jafntefli viđ Gelfand (2741) og heimamađurinn Nisipeanu (2672) gerđi jafntefli viđ Wang Yue (2752).
Stađan:
- 1.-2. Gelfand og Nisipeanu 2v.
- 3.-4. Carlsen og Radjabov 1˝ v.
- 5.-6. Ponmariov og Wang Yue 1 v.
Sex skákmenn taka ţátt og tefld er tvöföld umferđ. Međalstig eru 2742 skákstig sem gerir ţetta eitt sterkasta skákmót ársins.
- Heimasíđa mótsins
- Skákirnar í beinni (hefjast kl. 12:30)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2010 | 08:18
Fyrsta sumarskákmót Vinnuskólans fer fram í dag
Í sumar efnir Vinnuskóli Reykjavíkur í samstarfi viđ Skákakademíu Reykjavíkur til útiskákmóta á útitaflinu viđ Lćkjartorg. Mótin verđa haldin miđvikudaganna 16, 23. júní, 30. júní og 7. júlí og hefjast klukkan 12:30 og má búast viđ ađ mótin taki um 2 klst. Mótin verđa međ sama sniđi og í fyrra en tefldar verđa 5-6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Mótaröđin er opin öllum og er ađ sjálfsögđu ókeypis ađ taka ţátt.
Ţađ er óskandi ađ veđurguđirnir leiki viđ skákmenn nćstu fjóra miđvikudaga en engu ađ síđur eru ţátttakendur hvattir til ađ klćđa sig eftir veđri!
Skákstjórar í sumar verđa : Davíđ Kjartansson, Björn Ţorfinnsson, Bragi Ţorfinnsson.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 14
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 121
- Frá upphafi: 8778223
Annađ
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 82
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar