Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júní 2010

Henrik í 3.-6. sćti í Osló eftir tvö jafntefli

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2514) er í 3.-6. sćti eftir tvö jafntefli í 6. og 7. umferđ á minningarmótinu um Svein Johannessen sem fram fóru í dag í Osló í Noregi.  Henrik hefur 5 vinninga en mótinu lýkur á morgun međ 8. og 9. umferđ.   

Jafnteflin í dag voru gegn stórmeisturunum Mark Hebden (2539), Englandi, og Tiger Hillarp Persson (2542), Svíţjóđ.  Í áttundu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer í fyrramáliđ, teflir Henrik viđ danska alţjóđlega meistarann Nikolaj Mikkelsen (2409).

Hebden er efstur međ 6 vinninga og norski stórmeistarinn Jon Ludvig Hammer (2610) er annar međ 5,5 vinning.   

Alls taka 60 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 6 stórmeistarar.  Henrik er fjórđi stigahćsti ţátttakandi mótsins.  Mótiđ er níu umferđir en tekur ađeins fimm daga.

 

 


Carlsen sigrar enn - fjórđi sigurinn í röđ!

Magnus Carlsen (2813) er óstöđvandi á Medias-mótinu í Rúmeníu.  Í sjöundu umferđ, sem fram fór í dag, sigrađi hann Radjabov (2740).  Magnus byrjađi rólega međ ţremur jafnteflum en setti ţá í fluggír.   Gelfand (2741) er annar, vinningi á eftir Magnúsi eftir sigur á Nisipeanu (2672).

Stađan:
  • 1. Carlsen (2813) 5˝ v.
  • 2. Gelfand (2741) 4˝ v.
  • 3. Radjabov (2740) 3˝ v.
  • 4.-6. Nisipeanu (2672), Ponomariov (2733) og Wang Yue (2752) 2˝ v.
Sex skákmenn taka ţátt og tefld er tvöföld umferđ.  Međalstig eru 2742 skákstig sem gerir ţetta eitt sterkasta skákmót ársins.  

Lenka sigrađi í fyrri einvígisskákinni

Úrslitaskák Jóhönnu og LenkuLenka Ptácníková (2267) sigrađi Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur (1738) í fyrri einvígisskák ţeirra um Íslandsmeistaratitil kvenna í skák.   Lenka hafđi svart.  Síđari einvígisskákin fer fram á morgun.


Skákţáttur Morgunblađsins: Afmćlismót Friđriks Ólafssonar haldiđ í Djúpavík

Fyrr á ţessu ári, nánar tiltekiđ hinn 26. janúar sl., varđ fyrsti íslenski stórmeistarinn Friđrik Ólafsson 75 ára. Af ţví tilefni mun Hrókurinn efna til afmćlishátíđar sem fram fer í Djúpavík og Norđurfirđi í Árneshreppi um nćstu helgi. Ađalmótiđ fer fram laugardaginn 19. júní í gömlu síldarverksmiđjunni í Djúpavík. Heiđursgestur er afmćlisbarniđ sjálft Friđrik Ólafsson en búist er viđ ţátttöku fjölmargra öflugra skákmanna.

Baldur Möller Norđurlandameistari 1948 og 1950 lét ţau orđ eitt sinn falla ađ líta mćtti á Friđrik sem brúna milli gamla tímans og hins nýja. Friđrik haslađi sér ótrauđur völl á alţjóđavettvangi snemma á sjötta ártug síđustu aldar og vann hvert afrekiđ á fćtur öđru. Tilţrifin á millisvćđamótinu í Portoroz 1958 ţar sem Friđrik komst í hóp áskorenda eru enn í minnum höfđ. „Friđriks-kynslóđin,“ eins og hún var samansett í hugum manna hér á landi kom ţar fram ađ hluta međ Tal fremstan í flokki, Petrosjan, Fischer, Gligoric og Larsen.

Međal Íslenskra skákmanna voru ađeins Ingi R. Jóhannsson og mörgum árum síđar Guđmundur Sigurjónsson sem áttu einhverja möguleika gegn Friđriki á sjötta og sjöunda áratug síđustu aldar.

Sá danski, Bent Jörgen Larsen var međ honum alla leiđ, allt frá ţví ađ ţeir hittust fyrst á heimsmeistaramóti unglinga í Birmingham 1951. Á meira en 40 ára tímabili tefldu ţeir 30 kappskákir. Sú síđasta var háđ á 60 afmćlismóti Friđriks í Ţjóđarbókhlöđunni 1995. Bent vann og komst ţá loks yfir, 15˝ : 14˝. Framan af á ferli ţeirra var Friđrik greinilega fremri ţó ađ hann hefđi tapađ einvíginu um Norđurlandameistaratitilinn 1956. Merkilegt er tímabil frá einvíginu '56 til viđureignar ţeirra á Ólympíumótinu í Havana 1966 er ţeir tefla 14 skákir og allar vinnast á svart.

Ég hygg ađ töfrar Friđriks hafi ekki síst legiđ í ţeirri ógnarspennu sem hann náđi ađ byggja upp í skákum sínum. Ókunnugum virtist hann stundum sólunda tíma sínum í furđulegustu atriđi; ađrar skákir voru komnar vel af stađ en Friđrik kannski ađ hugsa fyrsta leikinn. Kringum ţetta spannst mikil umrćđa međal hinna stađföstu fylgismanna Friđriks: Bergur Pálsson, Magnús Sigurjónsson og Jakob Hafstein svo nokkrir séu nefndir voru yfirleitt mćttir og fögnuđu međ Friđriki ţegar vel gekk og ţađ var oft.

Ţegar Friđrik var kosinn forseti FIDE 1978 urđu ákveđin ţáttaskil hjá honum hvađ taflmennskuna varđađi. Fyrr á árinu höfđu áhorfendur flykkst í Kristalsal Hótel Loftleiđa til ađ fylgjast međ honum á Reykjavíkurskákmótinu. Ţar laust ţeim Bent Larsen enn og aftur saman og niđurstađan varđ einn frćkilegasti sigur Friđriks yfir hinum glađbeitta andstćđingi sínum:

8. Reykjavíkurskákmótiđ 1978:

Friđrik Ólafsson – Bent Larsen

Aljékíns-vörn

1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 g6 5. Bc4 Rb6 6. Bb3 Bg7 7. Rg5 d5 8. 0-0 Rc6 9. c3 Bf5

Hér var sennilega best ađ leik 9....f6 t.d. 10. exf6 exf6 11. He1+ Kf8 o.s.frv.

10. g4 Bxb1 11. Df3 0-0 12. Hxb1 Dd7

Hér og í nćsta leik ţráast Larsen viđ ađ reka riddarann af höndum sér međ 12. ... h6.

13. Bc2 Rd8 14. Dh3 h6 15. f4!

Of seinn!

15....hxg5 16. f5 Re6 17. fxe6 dxe6 18. Bxg5 c5 19. Kh1 cxd4 20. cxd4 Hfc8

10-06-13.jpg( STÖĐUMYND )

21. Bf5! gxf5 22. gxf5 Dc6 23. Hg1! Dc2 24. Hbe1 Kf8 25. f6

– og Larsen gafst upp enda stutt í mátiđ.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í sunnudagsmogganum, 7. júní 2010.

Skákţćttir Morgunblađsins


Róbert Norđurfjarđarmeistari

Róbert Lagerman sigrađi Norđurfjarđarmótinu sem fram fór í dag í Kaffi Norđurfirđi.  Mótiđ markađi loka skákhátíđirnar í Árneshreppi.  Róbert hlaut 5 vinninga í sex skákum og var hálfum vinningi fyrir ofan nćstu menn sem voru Jóhann Hjartarson, Hlíđar Ţór Hreinsson, Guđmundur Gíslason, Hrafn Jökulsson og Gunnar Björnsson.  Róbert var jafnframt skákstjóri mótsins svo skákstjórinn sló ţarna viđ stórmeistaranum!

Alls tóku 22 skákmenn ţátt í mótinu.

Nánari fréttir af skákhátíđinni í heild sinni eru vćntanlegar á morgun sem og fjöldi mynda.

 

 


Henrik í 2.-5. sćti eftir tvö jafntefli í dag

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2514)er í 2.-5. sćti á minningarmótinu um Svein Johannessen međ 4 vinninga en tvćr skákir voru tefldar í dag.   Báđum skákum Henriks lauk međ jafntefli. Sú fyrri var gegn norska stórmeistaranum  Jon Ludvig Hammer (2610) og sú síđari gegn danska stórmeistaranum Carsten Hoi (2410).  Henrik mćtir enska stórmeistaranum Mark Hebden (2539), sem er efstur međ 4,5 vinning, í sjöttu umferđ sem fram fer í fyrramáliđ.

Skák Henrik gegn Hebden verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins en umferđin hefst kl. 8:30. 

Alls taka 60 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 6 stórmeistarar.  Henrik er fjórđi stigahćsti ţátttakandi mótsins.  Mótiđ er níu umferđir en tekur ađeins fimm daga.

 

 


Björn í 5.-12. sćti í Rúmeníu

Tvćr umferđir fóru fram á alţjóđlega mótinu í Eforie í Rúmeníu í dag.  Alţjóđlegi meistarinn Björn Ţorfinnsson (2390) gerđi jafntefli viđ brasílíska alţjóđlega meistarann Krikor Sevag Mekhitarian (2499) í fyrri skák dagsins og sigrađi rúmenska stórmeistarann  Gergely-Andras-Gyula Szabo (2546) í síđari skák dagsins.  Björn hefur 3,5 vinning og er í 5.-12. sćti.

Í fimmtu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Björn viđ ísraelska alţjóđlega meistarann Tamir Nabaty (2493).    Skákin verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins.  Umferđin hefst kl. 13.   

Mikael Jóhann Karlsson (1726) hefur 2 vinninga, Birkir Karl Sigurđsson (1442), 1,5 vinning og Örn Leó Jóhannsson (1825) hefur 1 vinning.

181 skákmađur tekur ţátt í ţessu skákmóti.  Ţar 17 stórmeistarar og 21 alţjóđlegur meistari.  Björn er númer 34 í stigaröđ keppenda.  

 

 

 


Enn sigrar Carlsen í Rúmeníu

Magnus Carlsen (2813) er orđinn sjóđheitur en hann vann sína ţriđju skák í röđ í dag er hann lagđi Ponomariov (2733) í sjöttu umferđ alţjóđlega mótsins í Medzina í Rúmeníu.  Öđrum skákum lauk međ jafntefli og hefur Magnus nú vinnings forskot á Radjabov (2740) og Gelfand (2741).

Stađan:
  • 1. Carlsen (2813) 4˝ v.
  • 2.-3. Radjabov (2740) og Gelfand (2741) 3˝ v.
  • 4. Nisipeanu (2672) 2˝
  • 5.-6. Ponomariov (2733) og Wang Yue (2752) 2 v.
Sex skákmenn taka ţátt og tefld er tvöföld umferđ.  Međalstig eru 2742 skákstig sem gerir ţetta eitt sterkasta skákmót ársins.  

Jóhann sigrađi á Friđriksmótinu í Djúpavík

Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson sigrađi á afmćlismóti Friđriks Ólafssonar sem fram fór í Djúpavík í Árneshreppi sem fram fór í dag.  Sigurvegari tveggja síđustu ára, Helgi Ólafsson, varđ annar og heiđursgesturinn sjálfur Friđrik Ólafsson varđ ţriđji.

Mótshaldiđ tókst mjög vel og mótshöldurum mótsins, Hróknum, til mikillar sóma.

Nánari fréttir og fleiri myndir vćntanlegar á morgun eđa á mánudag.

 

 


Henrik međ fullt hús eftir 3 umferđir í Osló

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2514) er međ fullt hús ađ loknum ţremur umferđum á minningarmótinu um  Svein Johannessen sem fram fer í Osló í Noregi.  Í dag voru tefldar 2 umferđir.  Í 2. umferđ sigrađi hann Norđmanninn Per Omvedt (2123) og í ţriđju umferđ vann norska FIDE-meistarann Kristian D. Trygstad (2297).

Alls taka 60 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 6 stórmeistarar.  Henrik er fjórđi stigahćsti ţátttakandi mótsins.  Mótiđ er níu umferđir en tekur ađeins fimm daga.

 

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 114
  • Frá upphafi: 8778216

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 75
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband