Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2009

Um 230 krakkar skráđir til leiks á Jólapakkamóti Hellis

Jólapakkamót Hellis

Ríflega 230 skákmenn eru skráđir til leiks á Jólapakkamóti Hellis sem fram fer laugardaginn 19. desember nk. í Ráđhúsi Reykjavíkur. Mótiđ hefst kl. 13 og er ókeypis á mótiđ.   Margt stefnir í metţátttöku á mótinu en mest hefur ţátttakan veriđ um 230.

Keppt verđur í allt ađ 5 flokkum: Flokki fćddra 1994-1996, flokki fćddra 1997-98, flokki fćddra 1999-2000 og flokki fćddra 2001 og síđar og peđaskák fyrir ţau yngstu. Tefldar verđa 5 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verđlaun fyrir 3 efstu sćtin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bćđi drengi og stúlkur. Auk ţess verđur happdrćtti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig. 

Júlíus Vífill Ingvarsson, formađur menntamálaráđs og formađur Skákakademíu Reykjavíkur, setur mótiđ og leikur fyrsta leik ţess.   

Búiđ er ađ opna fyrir skráningu á mótiđ á heimasíđu Hellis.  Hćgt er ađ nálgast upplýsingar um skráđa keppendur hér en nú ţegar eru 73 keppendur skráđir til leiks. 


Fjölmenni á Jólaskákmóti Laugalćkjarskóla

jolaskakmot2009 012Jólaskákmót Laugalćkjarskóla var haldiđ í síđustu viku. Mćttir til leiks voru fjörutíu og einn keppandi í 7.-10. bekk. Ţessi mikli fjöldi á mótinu sýnir hversu mikill skákáhugi er innan skólans. Í skólanum eru margir efnilegir skákmenn og međal ţeirra hefur Örn Leó Jóhannsson náđ góđum árangri síđustu misseri. Örn Leó leiđir sterka skáksveit skólans sem sigrađi nýveriđ á Jólaskákmóti ÍTR.

jolaskakmot2009 001Í vetur hefur Skákakademían komiđ ađ skákstarfinu í skólanum og sinnir Björn Ţorfinnsson kennslu úrvalshóps. Svavar Viktorsson kennari viđ skólann hefur svo umsjón međ almennri skákkennslu viđ skólann. Eftir harđa baráttu á mótinu stóđ Eyjólfur Emil Jóhannesson uppi sem sigurvegari en skammt undan komu Franco Soto og Alexander Már Brynjarsson. Ţessir ţrír efstu voru ekki sáttir viđ ađ einungis vćru tefldar 6 umferđir og héldu áfram taflmennsku ađ mótinu loknu!

Björn og Bragi Ţorfinnssynir sáu um skákstjórn.

Myndaalbúm mótsins

 


Fimmtudagsmót í kvöld

Ađ venju fer fram fimmtudagsmót T.R. í kvöld kl. 19.30.  Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma.

Mótin fara fram í félagsheimili T.R., skákhöllinni ađ Faxafeni 12, og opnar húsiđ kl. 19.10.  Glćsilegur verđlaunapeningur er í bođi fyrir sigurvegarann.

Mótin eru öllum opin og er ađgangseyrir kr. 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir 15 ára og yngri.  Bođiđ er upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds.


Friđriksmót Landsbankans fer fram á sunnudag - skráningu lokiđ

Helgi og RóbertSterkasta hrađskákmót ársins á Íslandi verđur haldiđ í ađalútibúi Landsbankans ţann 20. desember.   Flestir sterkustu skákmenn landsins taka ţátt.  Skráningu á mótiđ hefur veriđ lokađ ţar sem ţátttaka takmarkast viđ um 70 keppendur.  

Međal ţegar skráđra keppenda má nefna stórmeistarana Jóhann Hjartarson (2585), Helga Ólafsson (2524), sigurvegara síđasta móts, og Ţröst Ţórhallsson (2426), alţjóđlegu meistarana Jón Viktor Gunnarsson (2454), Arnar E. Gunnarsson (2448), Braga (2401) og Björn Ţorfinnssyni (2381) , Guđmund Kjartansson (2391) og Sćvar Bjarnason (2164) og Lenku Ptácníková (2307) stórmeistara kvenna.   Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér og á Chess-Results.  

Tefldar verđa 11 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á mann og er reiknađ međ ađ mótiđ standi á milli 13 og 16:30.

Verđlaun eru sem hér segir:

  • 1) 100.000 kr.
  • 2) 60.000 kr.
  • 3) 50.000 kr.
  • 4) 30.000 kr.
  • 5) 20.000 kr.

Aukaverđlaun:

  • Efsti unglingurinn 16 ára og yngri: 10.000 kr.
  • Efsta konan: 10.000 kr.
  • Efsti mađur međ 2200 stig og minna: 10.000 kr.
  • Efsti mađur međ 2000 stig og minna: 10.000 kr.
Aukaverđlaun eru miđađ viđ nýjustu útgefin íslensk skákstig.  

Tefldar verđa 11 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á mann og er reiknađ međ ađ mótinu ljúki um kl. 16.30.

Ţetta er sjötta áriđ í röđ sem Landsbankinn og Skáksamband Íslands standa fyrir Friđriksmótinu í skák, en mótiđ er haldiđ til heiđurs Friđriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Margir af sterkustu stórmeisturum landsins hafa undanfarin ár teflt til heiđurs Friđriki og búist er viđ ađ ýmsir af mestu skákmeisturum landsins verđi međ á mótinu.   

Chess-Results


Björn sigrađi á hrađskákmóti Ása

Björn ŢorsteinssonŢađ var hart barist á Jólahrađskákmóti Ása, sem haldiđ var í dag í Ásgarđi. Tuttugu og átta mćttu til leiks.  Björn Ţorsteinsson sigrađi örugglega međ 8˝ vinning af níu mögulegum. Ţađ var ađeins Jón Víglundsson sem náđi hálfum vinningi af Birni.  Jóhann Örn Sigurjónsson varđ annar međ 7 vinninga og ţriđji varđ Össur Kristinsson međ 6˝ vinning.

Ţađ voru vegleg verđlaun í bođi og fengu allir ţátttakendur verđlaun.

Skákstjórar voru Birgir Sigurđsson og Finnur Kr Finnsson.

 

Lokastađan:

  • 1            Björn Ţorsteinson                        8.5 vinninga
  • 2            Jóhann Örn Sigurjónsson             7        -
  • 3            Össur Kristinsson                        6.5      -
  • 4            Stefán Ţormar                            6         -
  • 5-8         Haraldur Axel Sveinbjörns           5.5      -
  •               Ţór Valtýsson                             5.5      -
  •               Sćbjörn Guđfinnsson                  5.5      -
  •               Ţorsteinn Guđlaugsson                5.5      -
  • 9-12       Gunnar Finnsson                         5         -
  •               Gísli Sigurhansson                      5         -
  •               Bragi G Bjarnason                      5         -
  •               Baldur Garđarsson                      5         -
  • 13-15     Sigfús Jónsson                            4.5      -
  •              Jón Víglundsson                           4.5      -
  •              Einar S Einarsson                         4.5      -

Nćstu ţrettán fengu örlítiđ fćrri vinninga.


Magnus Carlsen sigurvegari London Chess Classic - stigahćsti skákmađur heims

Magnus Carlsen ađ tafli í Nanjing

Norski undradrengurinn sigrađi á London Chess Classic sem lauk í dag eftir jafntefli viđ Short (2707). Ţar međ er ljóst ađ Magnus verđur stigahćsti skákmađur heims um nćstu áramót međ um 2809-2810 skákstig.   

Magnus hlaut 13 stig (5 vinninga), Kramnik (2772) annar međ 12 stig (4˝ vinning) eftir jafntefli viđ Nakamura (2715) og í 3.-4. sćti urđu Adams (2698) og Howell (2597) međ 9 stig (4 vinninga).  Frammistađa ţess síđarnefnda kemur óneitanlega á óvart enda langstigalćgstur og taplaus í ţokkabót. 


 
Úrslit 7. umferđar:

 

Adams, Michael - McShane, Luke J1-0
Nakamura, Hikaru - Kramnik, Vladimir˝-˝
Short, Nigel D - Carlsen, Magnus˝-˝
Ni Hua - Howell, David W L0-1

Lokastađan:


Gefin eru 3 stig fyrir sigur og 1 stig fyri jafntefli. 

1GM Carlsen, Magnus 13
2GM Kramnik, Vladimir 12
3GM Adams, Michael 9
 GM Howell, David 9
5GM McShane, Luke 7
6GM Nakamura, Hikaru 6
 GM Hua, Ni 6
8GM Short, Nigel 5

 

Átta skákmenn taka ţátt í ţessa sterka alţjóđlega móti.  Međalstigin eru 2696 skákstig. 

 

Róbert og Jorge međ jafntefli í lokaumferđinni

Róbert Harđarson

Bćđi Róbert Lagerman (2358) og Jorge Fonseca (2032) gerđu jafntefli í lokaumferđ opins flokks London Chess Classic sem fram fór í dag.  Róbert gerđi jafntefli viđ norska alţjóđlega meistarann Eirik Gullaksen (2400).  Róbert hlaut 6 vinninga og endađi í 10.-23. sćti en Jorge hlaut 4˝ vinning og endađi í 53.-68. sćti.

Norski stórmeistarinn Jon Ludvig Hammer (2588) vann öruggan sigur á mótinu en hann hlaut 8 vinninga.  Í 3.-4. sćti međ 7 vinninga urđu ensku stórmeistararnir Simon Williams (2550) og Mark Hebden (2522) og enska skákkonan Jovanka Houska (2391).

Jorge hćkkar um 7 stig fyrir frammistöđu sína en Róbert lćkkar um 5 stig. 

125 skákmenn tefldu í opnum flokki og ţar á međal eru 9 stórmeistarar.  Norđmađurinn ungi, Jon Ludwig Hammer (2588) er stigahćstur keppenda.



Jólapakkamót Hellis fer fram á laugardag

Jólapakkamót HellisJólapakkamót Hellis verđur haldiđ laugardaginn 19. desember nk. í Ráđhúsi Reykjavíkur. Mótiđ hefst kl. 13 og er ókeypis á mótiđ.  

Keppt verđur í allt ađ 5 flokkum: Flokki fćddra 1994-1996, flokki fćddra 1997-98, flokki fćddra 1999-2000 og flokki fćddra 2001 og síđar og peđaskák fyrir ţau yngstu. Tefldar verđa 5 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verđlaun fyrir 3 efstu sćtin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bćđi drengi og stúlkur. Auk ţess verđur happdrćtti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig. 

Júlíus Vífill Ingvarsson, formađur menntamálaráđs og formađur Skákakademíu Reykjavíkur, setur mótiđ og leikur fyrsta leik ţess.   

Búiđ er ađ opna fyrir skráningu á mótiđ á heimasíđu Hellis.  Hćgt er ađ nálgast upplýsingar um skráđa keppendur hér en nú ţegar eru 73 keppendur skráđir til leiks. 


Frábćr ţátttaka á jólamóti Skákfélags Vinjar

Viđ háborđiđTuttugu og ţrír skráđu sig til leiks á jólamóti Skákfélags Vinjar í gćr en mótiđ var kl. 13:15 í Vin ađ Hverfisgötunni. Var ţetta nćstfjölmennasta mót í Vin frá upphafi og stuđ og fjör í stofunum.

Tefldar voru sex umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma og í miđju móti var jólalegt kaffiborđ, međ nýbökuđum smá- og piparkökum og nammi út um allt.

Hinn kraftmikli formađur Víkingaklúbbsins sem nýlega krćkti sér í heimsmeistaratitil í lyftingum, Gunnar Freyr Rúnarson, sigrađi glćsilega međ 5 og hálfan vinning. Hrafn Jökulsson, nýkominn úr ferska loftinu ađ Ströndum, sýndiGunnar Freyr sigurvegari heldur betur snarpa takta og náđi fimm vinningum. Hrannar Jónsson, sem ţrátt fyrir mikiđ umstang viđ skákstjórn, var beittur og kom ţriđji međ 4,5.

Björn Sölvi Sigurjónsson, VP Magnús Matthíasson og Arnljótur Sigurđsson voru nćstir međ fjóra.

Bóka- og tónlistarútgáfan SÖGUR gaf glćsilega vinninga og hlutu fimm fyrstu verđlaun. Auk ţess fékk Sigríđur Björg Helgadóttir bók fyrir bestan árangur kvenna, en hún sigrađi reyndar einnig í flokki 18 ára og yngri. Verđlaun ţar hlaut hinn Kristinn Andri, ţar sem  ađeins ein verđlaun voru í bođi fyrir hvern og einn. Björn Sölvi Sigurjónsson varđ efstur í 60+.

Selfoss og StrandirDregnir voru út fjórir happadrćttisvinningar og ţá náđu í: Björgvin Kristbergsson, Halldór Ólafsson, Jón S. Ólafsson og Vigfús Ó. Vigfússon krćkti í heitustu skáldsöguna um ţessar mundir, "Síđustu dagar móđur minnar" eftir Sölva Björn Sigurđsson. Ţeir sem ekki krćktu í vinninga fengu skákbćkur til ađ ćfa sig betur!

Gunnar Freyr, sem ekki var fyllilega sáttur međ annađ sćtiđ í jólamótinu í Víkingaskák í síđustu viku, var hinn kátasti međ bikar og nýja bók í lokin og var létt yfir ţátttakendum, enda snilldarmót og SÖGUR fá bestu ţakkir.

Úrslit:

  • 1.       Gunnar Freyr Rúnarson             5,5
  • 2.       Hrafn Jökulsson                          5
  • 3.        Hrannar Jónsson                 4,5
  • 4.       Björn  Sölvi Sigurjónsson          4
  • 5.       Magnús Matthíasson                4
  • 6.       Arnljótur Sigurđsson                  4
  • 7.       Kjartan Guđmundsson              3,5
  • 8.       Árni Haukdal Kristjánsson        3,5
  • 9.       Vigfús Ó. Vigfússon                    3,5
  • 10.   Haukur Halldórsson                   3,5
  • 11.   Jón Birgir Einarsson                    3
  • 12.   Sigríđur Björg Helgadóttir          3
  • 13.   Páll Jónsson                                  3
  • 14.   Björgvin Kristbergsson                  3
  • 15.   Halldór Ólafsson                             3
  • 16.   Hlynur Gestsson                              2,5
  • 17.   Arnar Valgeirsson                            2,5
  • 18.   Guđmundur Valdimar Guđm.        2
  • 19.   Einar Björnsson                                2
  • 20.   Kristinn Andri                                    2
  • 21.   Saga Kjartansdóttir                          2
  • 22.   Sigurjón Ólafsson                             2
  • 23.   Jón S. Ólafsson                                  1
Myndaalbúm mótsins

Carlsen efstur fyrir lokaumferđina

Magnus Carlsen ađ tafli í NanjingNorđmađurinn ungi Magnus Carlsen (2801) gerđi jafntefli viđ enska stórmeistarann Michael Adams (2698) í sjöttu og nćstsíđustu umferđ London Chess Classic sem fram fór í dag.   Vladimir Kramnik (2772) sigrađi hins vegar Nigel Short (2707) og Kínverjinn Hua Ni (2665) vann  Luke McShane (2615).  Carlsen er efstur međ 12 stig (4˝ v.), Kramnik annar međ 11 stig (4 v.) og McShane ţriđji međ 7 stig (2˝ vinning). 

Í sjöundu og síđustu umferđ, sem tefld verđur á morgun, teflir Carlsen viđ Short og Kramnik viđ viđ Nakamura (2715).  Lokaumferđin hefst kl. 12. 

 
Úrslit 6. umferđar:

 

Carlsen, Magnus - Adams, Michael˝-˝
Kramnik, Vladimir - Short, Nigel D1-0
Howell, David W L - Nakamura, Hikaru˝-˝
McShane, Luke J - Ni Hua0-1


Stađan:


Gefin eru 3 stig fyrir sigur og 1 stig fyri jafntefli.

1GM Carlsen, Magnus 12
2GM Kramnik, Vladimir 11
3GM McShane, Luke 7
4GM Howell, David 6
 GM Adams, Michael 6
 GM Hua, Ni 6
7GM Nakamura, Hikaru 5
8GM Short, Nigel 4

 

Átta skákmenn taka ţátt í ţessa sterka alţjóđlega móti.  Međalstigin eru 2696 skákstig. 

 

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 108
  • Frá upphafi: 8778232

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband