Leita í fréttum mbl.is

Sumarnámskeið Taflfélags Reykjavíkur hefjast 11. júní

20180325_141302-620x330

Taflfélag Reykjavíkur heldur átta skáknámskeið í sumar fyrir börn fædd árin 2005-2011. Námskeiðin verða haldin í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Námskeið 1: 11. júní – 15. júní kl. 09:30 – 12:00
Námskeið 2: 11. júní – 15. júní kl. 13:00 – 15:30
Námskeið 3: 18. júní – 22. júní kl. 09:30 – 12:00
Námskeið 4: 18. júní – 22. júní kl. 13:00 – 15:30
Námskeið 5: 25. júní – 29. júní kl. 09:30 – 12:00
Námskeið 6: 25. júní – 29. júní kl. 13:00 – 15:30
Námskeið 7: 02. júlí – 06. júlí kl. 09:30 – 12:00
Námskeið 8: 02. júlí – 06. júlí kl. 13:00 – 15:30

Kennari á námskeiðunum er stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson.

Gjald fyrir hvert námskeið er 8.500kr. Ef þátttakandi velur bæði námskeiðin fyrir og eftir hádegi í sömu vikunni þá er gjaldið 13.500kr. Systkynaafsláttur verður veittur í formi 20% afsláttar. Hægt er að velja á milli þess að greiða námskeiðisgjaldið með reiðufé við upphaf námskeiðis eða í gegnum heimabanka (þá bætist við umsýslugjald).

Námskeiðin eru hugsuð fyrir börn af ólíkum skákstyrkleika, en þó er ætlast til þess að börnin kunni allan mannganginn. Allir fá því viðfangsefni við sitt hæfi. Taflfélag Reykjavíkur áskilur sér rétt til þess að fella niður námskeið sé þátttaka ekki næg. Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 16.

Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna á vef Taflfélags Reykjavíkur eða í síma 867 2627 (Bragi). Skráning fer fram í gegnum skráningarform sem nálgast má í gula kassanum á skak.is.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 20
  • Sl. sólarhring: 45
  • Sl. viku: 248
  • Frá upphafi: 8764937

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 167
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband