Leita í fréttum mbl.is

Háspenna og Gordonshnútar í 5. umferð Skákhátíðar MótX

IMG_0091

Fimmta umferð Skákhátíðar MótX var tefld þriðjudagskvöldið 6. febrúar. Þessi umferð var sú æsilegasta á mótinu hingað til, þrungin þvílíkri spennu og flækjum að við lá skammhlaupi í taugakerfum teflenda frammi fyrir agndofa áhorfendum.

A flokkur

Efstur fyrir umferðina var Suðurnesjamaðurinn geðþekki, Björgvin Jónsson, með 31/2 vinning en hann sat yfir að þessu sinni. Á efsta borði öttu stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Hjörvar Steinn Grétarsson kappi í rammaslag miklum. Jóhann tefldi byrjunin hratt og náði þannig forskoti á tíma er reyndist skipta máli þegar á leið. Eftir mannsfórn Jóhanns á g7 kom upp gríðarflókið tafl þar sem Hjörvar Steinn hafði tvo menn fyrir hrók en möguleikarnir voru svo margslungnir að erfitt var fyrir mennskan heila að tæma stöðuna. Hvortveggi fékk færi á að hrifsa til sín vinninginn en að lokum veitti Jóhann betur. Vel tefld skák en ekki hnökralaus.

Á öðru borði mættust stórmeistararnir og Huginskapparnir Hannes Hlífar og Þröstur Þórhallsson. Hannes, sem stýrði hvítu mönnunum, langhrókaði og náði sóknarfærum gegn kóngi svarts. Þröstur varðist þeim hótunum fimlega en upp kom að lokum endatafl þar sem veikleikarnir í kringum kóng svarts riðu baggamuninn.

Jón Viktor fékk snemma betra tafl og vann peð gegn Baldri sem varðist af útsjónarsemi en varð að játa sig sigraðan. Helgi Áss kom Halldóri Grétari á óvart í byrjun með óvenjulegri leikjaröð. Hann náði smám saman tökum á miðtaflinu og vann mann og þar sem Halldóri Grétari tókst ekki að tryggja frípeði sínu sæluvist í himnaríki 8. reitaraðarinnar voru örlög svarts ráðin. Jón L. fékk þægilegra tafl gegn Oliver, tefldi markvisst eins og hans er háttur og knúði fram sigur í endatafli.

Örn Leo tefldi af mikilli varfærni gegn Þorsteini Þorsteinssyni sem vann mann með lúmskri gildru. En Arnarljónið var ekki á því að láta í minni pokann heldur braust inn bakdyramegin hjá bóndanum á Steinastöðum og knúði fram jafntefli. Kristján Eðvarðsson lagði Bárð Örn laglega, Ingvar Þór sveið félaga sinn í Hugin, Sigurð Daða, peði yfir í endatafli og Vignir Vatnar sigraði Guðmund Halldórsson nokkuð snaggaralega.

TR-ingarnir Björn Þorfinnsson og Daði Ómarsson sættust á skiptan hlut og sömu sögu var að segja af Huginskempunum Ásgeiri og Lenku þar sem Ásgeir náði ekki að ryðja sér sigurbraut í örlítið betra endatafli.

Áhugaverðar viðureignir í 6. umferð

Jóhann Hjartarson og Björgvin Jónsson eru efstir að fimm umferðum loknum með fjóra vinninga hvor. Í humáttina koma Hannes Hlífar, Helgi Áss og Jón Viktor sem situr yfir í 6. umferð. Þriðjudaginn 13. febrúar kl. 19.30 verður baráttunni haldið áfram. Hannes Hlífar hefur þá hvítt á Jóhann Hjartarson en takist öðrum hvorum þeirra að sigra, nær sá forystu á mótinu fyrir 7. og síðustu umferðina. Á öðru borði mun reyna á þrætubækur skákfræðanna þar sem Helgi stýrir hvítu mönnum gegn Björgvini. 

A-flokkurinn á Chess-Results.


Hvítir hrafnar

Lítið var flogið í Hrafnabjörgum í 4. umferð. Kapparnir Jónas Þorvaldsson og Friðrik Ólafsson sættust á skiptan hlut en skákir Braga Halldórssonar gegn Jóni Þorvaldssyni og Björns Halldórssonar gegn Júlíusi Friðjónssyni verða tefldar 13. febrúar.

Hvítir hrafnar á Chess-Results.

B flokkur

Gauti Páll, sem hafði unnið allar fjórar skákir sínar, mætti Agnari Tómas Möller í fimmtu umferð. Úr varð hörku skák sem Agnar Tómas vann eftir mikla baráttu. Nánar er fjallað um skákina á Skákhuganum.

Á öðru borði tefldu Blikarnir Birkir Ísak og Stephan Briem vel. Birkir Ísak hafði betur að þessu sinni og hefur unnið fjórar skákir í röð.
Siguringi heldur áfram með gott mót og sigraði Björn Hólm örugglega.

Sigurður Freyr var með mun betri stöðu gegn Hilmi Frey þegar maður datt í hafið og þrátt fyrir álitlega sókn sem fylgdi í kjölfarið þá héldu varnir Hilmis og hann sigldi vinningnum örugglega í höfn. 

Eftir fimm umferðir eru fjórir skákmenn jafnir og efstir með fjóra vinninga: Gauti Páll, Siguringi, Birkir Ísak og Agnar Tómas.

Margar spennandi viðureignir verða í sjöttu umferð:

B-flokkurinn á Chess-Results

Ítarlegri umfjöllun á Skákhuganum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.7.): 16
  • Sl. sólarhring: 29
  • Sl. viku: 140
  • Frá upphafi: 8779000

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 112
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband