Leita í fréttum mbl.is

GAMMA Reykjavíkurskákmótið - lítið um óvænt úrslit

RvkOpen_2_1Önnur umferð GAMMA Reykjavíkurskákmótsins fór fram í morgun. Allir sterkustu skákmenn mótsins komust slysalaust í gegnum umferðina og því enn gríðarlegur fjöldi skákmanna með fullt hús vinninga. Mesta athygli vakti skák Anish Giri (2771) við Vigni Vatnar Stefánsson (2341), okkar efnilegasta skákmann, en Vignir stóð sig vel og þurfti að láta Hollendinginn hafa vel fyrir vinningnum en hann hafðist eftir 44 leiki.

Það var aðeins sænski meistarinn Eric Blomqvist sem tapaði á efstu borðum en hann lá fyrir hollenskum skákmanni. Fjölmargir Íslendingar náðu góðum jafnteflum og t.a.m. náðu nokkrir efnilegir skákmenn góðum úrslitum. Jón Kristinn Þorgeirsson (2189) gerði jafntefli við Guðmund Kjartansson (2468) og Báður Örn Birkisson (2146) gerði jafntefli við Þröst Þórhalsson (2423). Vert er einnig að minnast á gott jafntefli hjá Júlíusi Friðjónssyni gegn bandaríska stórmeistaranum James Tarjan.

Jóhann Hjartarson (2536) er efstur Íslendinga og sá eini sem er með fullt hús ásamt efstu mönnum með tvo vinninga. Jóhann vann í dag snarpan sigur í fallegri sóknarskák og er til alls líklegur. Gaman verður að fylgjst með Jóhanni en hann hefur ekki teflt á Reykjavíkurskákmóti í 21 ár en hefur fært taflmennsku aðeins í aukana undanfarið og varð m.a. Íslandsmeistari í fyrra.

 

Leikar taka að æsast í þriðju umferðinni sem fram fer klukkan fimm í dag en þetta er eini dagurinn þar sem keppendur tefla tvær skákir.  Jóhann mætir indverskri skákkonu í þriðju umferðinni og eins munu margir fylgjast með Eugenio Torre, goðsögninni frá Filipseyum, sem mun etja kappi við Íslandsvininn Gawain Jones. Áhorfendur eru velkomnir í Hörpu en Helgi Áss Grétarsson mun sjá um skákskýringar frá kukkan 19.

 

Heimasíða mótsins

Bein útsending með Fionu og Simon Williams

Úrslit og paranir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 8779007

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 102
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband