Leita í fréttum mbl.is

Rimaskóli og Smáriskóli Íslandsmeistarar stúlknasveita

IMG 6029

Íslandsmót stúlknasveita fór fram í Rimaskóla í gær. Alls tóku sextán sveitir þátt. Rimaskóli kom sá og sigraði örugglega í eldri flokki mótins (1.-10. bekk) en sveitin vann allar sex viðureignir sínar 4-0!

Sveitina skipuðu:

  1. Nansý Davíðsdóttir
  2. Valgerður Jóhannesdóttir
  3. Ásdís Birna Þórarinsdóttir
  4. Heiðrún Anna Hauksdóttir
  5. Tinna Sif Aðalsteinsdóttir.

Mikil spennan var hins vegar um 2.-3. sæti. Þar hafði systrasveitin Salaskóli (systur á 1.-3. borði) annað sætið eftir mikla keppni.

IMG 6020

 

Foldaskóli hafði þriðja sætið. Melaskóli var þarna sjónarmuni á eftir.

IMG 6017

 

Röð efstu liða:

  1. Rimaskóli 24 v. af 24
  2. Salaskóli 17 v.
  3. Foldaskóli 15 v.
  4. Melaskóli 14 v.
  5. Rimaskóli b-sveit 12 v.

Lokaröð mótsins má finna á Chess-Results.

Í fyrsta skipti var sér keppni fyrir sveitir í 1.-3. bekk en það er hugmynd Lenku Ptácníková. Sú hugmynd skilaði því að sex sveitir, allar úr Kópavogi, tóku þátt. 

Smáraskóli hafði mikla yfirburði en sveitin hlaut 17,5 vinning í 20 skákum. Snælandsskóli og Álfhólsskóli urðu í 2. og 3. sæti og hafði Snælandsskóli annað sætið eftir stigaútreikning.

IMG 6015

Skáksveit Smáraskóla:

  1. borð: Freyja Birkisdóttir.
  2. borð: Vigdís Tinna Hákonardóttir.
  3. borð: Helga María Sveinsdóttir.
  4. borð: Benedikta Fjóludóttir. 

Lokastöðuna má nálgast á Chess-Results.

Stelpurnar skemmtu sér afar vel og var heldur rólegra yfirbragð yfir mótinu en hjá strákunum! Að minnsta kosti minni hlaup!

Skákstjórar voru Gunnar Björnsson, Stefán Bergsson og Donika Kolica. 

Myndaalbúm (HÁ)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 136
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 110
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband