Leita í fréttum mbl.is

Róbert tefldi fjöltefli í Trékyllisvík á þjóðhátíðardaginn

1Skákhátíðin á Ströndum hófst á föstudaginn, 17. júní, þegar Róbert Lagerman tefldi fjöltefli í samkomuhúsinu í Trékyllisvík. Meistarinn tefldi klukkufjöltefli á 9 borðum, og hafði 20 mínútna umhugsunartíma. Róbert hafði því í raun aðeins rúmlega tvær mínútur að meðaltali fyrir hverja skák, og varð viðureignin því æsispennandi. Leikar fóru svo að Róbert sigraði í 8 skákum en gerði jafntefli gegn Kristjáni Albertssyni,2 Melabónda, sem um langt skeið hefur verið meðal sterkustu skákmanna á Ströndum.

Hrafn Jökulsson tók myndir frá fjölteflinu sem finna má í meðfylgjandi myndaalbúmi.   Fleiri myndir frá skákhátíðinni á Ströndum eru væntanlegar á næstum dögum á Skák.is.

Myndir frá fjöltefli Róberts


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 148
  • Frá upphafi: 8779028

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 117
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband